Heimskringla - 05.05.1904, Page 1
XVIII. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 5. MAl 1904.
Nr. 30
BAKER BLOCK.
470 MAIN STREET.
DriSjn dyr fyrir snnnan Bannatyne Ave., vest-
anveröu á Aöalstrœtinu.
Phone 2085.
Þér uppvaxandi íslendingar,
kaupið fasteignir f bænurn eða f
kringum hann, ávaxtið peninga yð-
ar svo þeir geti verið yður stoð á
elliárum yðar. Athugið eftirfylgj-
andi vél:
.80 ekrur á Rauðárbakkanum 9
mílur frá Winnipeg á $30 ekran.
Bæjarlóðir á Simcoe- og Bea-
verley- strætum á $9 og $10 fetið
Verð á öllu, sem óselt verður um
mánaðamótin á þessum strætum,
verður sett upp.
Mjög billegt Cottage á Eoss
ave. nærri Nena verður selt mjög
billega.
Peningalán afgreidd mjög fljótt
Hús og munir tekin 1 eldsábyrgð.
Eggertsson & Bildfell.
470 MAIN STREET.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRÍÐSFRÉTIR.
Rössar hafa sent Vladivostok-
herflota sinn suður með Koreuströnd
um og náð þar japanisku kaupfari
ogsöktþví. Aftur hafa Japar nö
komist 120 mílur norður í Manch
uria með her mikinn og vopn og
vistir og tekið nokkra bæi þar. Rúss-
ar virðast óviðbíinir að veita veru
legt viðnám enn þá. Sagt er að
Rússar hafl tapað mörg hundruð af
mönnum sínum í Yaluána fegar
Japar fóru yflr hana. Ætla má að
Japar hafi eínnig orðið fyrir tapi
þar þó þe3S sé ekki getið. Fréttir
komu um sfðustu helgi að Japar
hefðu tapað 7000 manns í bardaga
við Rössa i Manchuria, en svo var
það síðar horið til baka og ekki het-
ir frétt sú verið opinberuð f Péturs
borg. sem [þo mundi orðið hafa, ef
svo hetði verið. Japar hafa rifið
upp járnbrant Rússa norðon við Port
Arthur og evðilagt fréttasamband
milli þess staðar og Harbin.
Sagt er að Rús3ar hafl sökt 4
mannflutninga skrpum fyrirJapön-
nm þann 25. Apríl og drekt þar
4000 jaþaniskum hermönnum.
Rússar söktu japanisku her-
flutningaskip þann 26. Aprfl. 200
manna á skipinu neituðu að gefast
upp og sukku með því; hinir voru
teknir fangar. Það voru als 188
manns. Það er og sannfrétt að
Rússar hafaekki nema 250,000 her
menn í Manchuria, og að mikið af
liði þessu er þeim ónýtt, af því bæði
skortir hesta og vagna og önnur
hergögn, sem er óumflýjanlegt til
hernaðar, af þessum fjölda eru um
30000 menn i Port Arthur og Vladi-
vostok, sem ekki fara út fyrir tak-
mörk víggirðinga sinna, og eins
mai gir menn þurfa til að passa Sí-
beríubrautina og 10 þús. manna eru
bundnir við ýms störf, sem ekki til-
heyra beinlfnis hernaði, svo að Rúss-
ar hafa ekki yflr 170 þús. manns í
hreyflngu þar eystra. Sagt er að
Rússakeisari muni sjálfur hugsa til
ferðar austur til að tala kjark í her-
menn sína og reyna að koma skipu-
lagi á herinn, sem kvað ve>'a í mol-
n m og móðlaus síðan Japanar fóru
að vaða yfir Manchuria og skemma
brautír og málþræði og hefta allar
samgöngur milli herstöðva Rússa og
taka herskildi bæi og virki hvar
sem þeir komast í færi. Tilgangur
Japa er að reka Rússa algerlega úr
Manchuria, eins og úr Korea, ef það
er mögulegt.
Japanar hafa unnið f rægan sig-
ur ífyrsta landbardaganum, sem
þeir hafa háð móti Rússum. Japar
hafa komist með mikinn her norður
yflr Yalu-ána og réðust á 30,000
Rússa á þriðjudaginn 26. Apríl.
Bardaginn stóð yflr alla vikuna og
á sunnudagsmorguninn hófu þeir á
ný skothrfð f dögun og börðust allan
daginn. Þeir höfðu rekið Rússa á
undan sér alla vikuna og tekið
ýmsa bæi og hervirki Rússa í Man-
churia, en á snnnudaginn unnu þeir
algerðan sigur. Tóku þá 28 fall-
byssur af Rússum og mikið af öðrum
hergögnum cg riffium og mesta sæg
af hermönnum til fanga. Rússar
töpuðu yflr 800 manna á vígvellin-
um, en Japar um 700 manna. Japar
hafa nú brúað Iho og Aida árnar og
þokað sérnorður yfirþær, þrátt fyr-
ir það að Rússar héldu uppi uppi-
baldslausri skothrfð á þá meðan á
brúargerðinni stóð. Japar gerðu og
aðra flotbrú yfir Yalu ána á laugar-
daginn var. Áin er 3 mílur á
breidd. Japar eru nú sagðir lið-
fleiri og hafa betri afstöðu i Manch-
uria, heldur en Rússar, og teija sér
sigur ví8an. Herforingi Rússa hef-
ir sent frétt um þenna bardaga til
Pétursborgar og viðurkennir þar yf-
irburði Japana. Rússar brendu
bæi þá sem þeir urðu að yfirgefa, til
þess að herfang Japa yrði sem
minst.
Tvær þvottakonur í Buffalo
hafa nýlega erft millíón dollars, er
bræður þeirra í Astralíu eftirskildu
þeim að sér látnum.
Elding sló kornhlöðu í bænum
Midland. Ont. Hlaðan branu, en
viðirnir drápu einn mann og skemdu
mjög 2 gufnskip, sem lágu við
bryggjuna, er kornhlaðan stóð á.
Tilraun var gerð nýlega til að
sprengja upp 2 herskip, sem nýbúið
var að smíða í Rússlandi. Sprengi-
kúlu var hent að þe’m, . þegar þeim
var hleypt af stokkunum. Þykja
þetta hin mestu tíðindi og ljóslega
benda á að Rússar megi ekki' trúa
sínum eigin borgurum. Tveir
Finnar eru grunaðir um að vera
valdir að þessari tilraun.
Bretar hafa sett til síðu 5 þús-
und ferh.mílur af landi í Austur-
Afríku, sem Zionista-trúflokkurinn
á að tá til landnáms og ræktunar.
Land þetta er talið vel byggilegt;
jarðvegur frjófr, með nægu vatni og
nokkrum skógi til bygginga.
Ungverjastjórnin hefir beitt
hörku við verkfallsmenn á járn-
brautum ríkisins þar. Varpað for-
ingjunum í fangelsi og höfðað mál
mótj hverjum verkfallsmanni, sem
ekki heldur sig við vinnu á braut-
unum.
Sáputré það sem nefnt er ,Sap-
indus utilis“ og vex á Indlandi,
Kína og Ja.pan, er nú gert að verzl-
unarvöru. Félög í Algeriu hafa
gert ráðstafanir til þess að nota tré
þetta til s&pugerðar. Það véx á því
einskonar hnota á stærð við lítið
epli. í hnetum þessum er fitukend
ur lögur og er hann talinn góður til
sápugerðar. Þegar trén eru 6 ára
gömul, gefa þau árlega frá60 til 220
pund af hnetum þessum hvert tré.
Það ersannreynt að hneturnar eða
kjarninn úr þeim er hið bezta sápu-
efni og framleiðslan er talin svo ó-
dýr, að talið er víst að selja megi
sápuna í samkeppni víð hverja aðra
s&putegund, sera nú er íáanleg, auk
þess sem sápan úr t-jám þessum er
talin betri en aðrar sáputegundir.
PIANOS og ORGANS.
llefntKinan & Co. I’ianos.-Bell Orgel.
Vér seljum með máDaðarafborgunarskilmálmn.
J, J. H- McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
NEW YORK LIFE
JOHN A. McCALL, president
H#
Síðasta skýrsla félagsins sýnir að á árinu 1903 hefir það gefið út
170 þús. lífsábyrgðarskírteini fyrir að upphæð miliónir doll.
Á sama ári borgaði fél. 5,300 dádarkröfur að upphæð yfir 16
miliónir doll., og til lifandi meðlima borgaði það fyrir útborgað-
áarlífsbyrgðir fullar 18 miliónir doll. Sömuleiðis lánaði félagið
$32 þús. meðlimum út á Ufsábyrgðarskirteini þeirra nær því 13
miliónir dollars. Einnig hefir félagið skift á mílli meðlima sinna á
Síðastl. ári 5J mlión dsll., i vexti af ábyrgðum þeirra í því, sem er
$1,250,000 meira en borgað var til þeirra á árinu 1902. Llfsábyrgðir
í gildi hafa aukist á síðastl. ári um 191 millionfr IIollnrM.
Allar gildandi lífsábyrgðir við áramótin voru # 1,745 milionir
Allar eignir félagsins eru yfir .35SS& million Dollars.
C. Olafson, J. H, ýlorgan. Manager,
AGENT. GRAIN EXOHANGE BUII.DING,
W I TsT IST IPE G-.
Skipaútgerðarmenn og skip-
stjórar og stýrimenn á segl- og gufu-
skipum höfðu fund með sér í Cleve-
land, Ohio, þann 28 Apríl. Á
ieim fundi heimtuðu skipstjórar og
stýrimenn 9 mánaða kaupfiá skipa-
eigendum á hverju ári, hvort sem
skip þau er þeir innu á væru á sigl-
ingu allan þann tíma eða að eins 3
mánuði & sumri, og hvert sem skip-
stjórar væru í vinnu hjá öðrum yíir
þann tíma, sem skip þeirra væru að-
gerðalaus. Þessu neituðu skipaeig-
endur að ganga að.
Innflutninga umboðsmenn Ca-
nada í Bandaríkjunum segja 60 þús.
manns muni flytja þaðan á þessu
ári til að taka sér bólfestu í Vestur-
Canada. Farangur þessa fólks og
gripastofn og peningaeigu er inetið á
25 millíónir dollars. Als .ertalið að
nær 200 þúsund manns muni flytja
inn I Canada frá öllum löndum fyr-
ir næstkomandi nýár,
Fellibylur æddi yfir ríkin Tex-
as, Arkansas og Oklahama og Indi-
ana héraðið í síðastl. viku. Mörg
hús voru lögð f eyði og allmargt
fólk misti líf sitt af völdum storms
ins.
Verkamenn hafa myndað stjórn
arráðaneyti í Ástrrlíu. í því eru
alls 8 manns og eru allir verkafélags
menn, nema herra Higgins, sem var
gerður dómsm&lastjóri. Hann er
lögfræðingur og gat því ekki talist
í verkamannaflokknum.
Rússar eru kátir mjög yflr gnll-
fundi miklum í Caucasus fjöllunum.
Verið er að byggja iárnbraut í náma
hérað þetta.
40 n&mamenn í Suður-Afrícu
féllu 2000 fet niður f námu, skamt
frá Jóhannesburg. Lyptivél nanm-
unnar hafði brotnað.
Ontariostjórnin vill lána stál-
gerðartélaginu í Sault St. Marie 2
millíónir dollars, með því að ábyrgj-
ast þá upphæð með vöxtum af
skuldabréfum félagsins. Þetta er
talið nauðsynlegt, af því að stál
gerðarfélag Bandaríkjanna hefir
gert keppinaut sínum ómögulegt að
að f& fé á peningamarkaðinum með
neinum öðrum kostum en þeim, að
stjórnin stæði ábyrgðarfull fyrir
láninu.
Voða eldsbrúni varð í London &
Englandi í s. 1. viku hann byrjaði
í vöru húsum London og North
Western járnbrautafélagsins 4
sex loftuð hús brunnu á lítilli stund
u, þó 50 eldvélar sprautuðu vatni
á eldin.
Eldur kom upp í bænum
Fernie í B. C. og gerði $750.000
tjón. Slökkvi áhöld bæjarins reyud
ust ónóg.
St. Louis sýningiu var opnuð
með mikilli viðhöfn þann 30. þ. m.
30 þúsund menn unnu í sýningar-
garðinum síðustu vikuna til að
undirbúa alt og koma í rétt lag
áður en sýningin væri opnuð.
Gufulest áNorth Westernbraut-
inni á Englandi rann & laugar-
daginn var með Bandaríkja póst-
flutningin frá Bristol til London á
99 mínútum eða 118 mílur á kl.
stnnd Það c-r talin fljótasta ferð
sem enn heflr gerð verið þar á
landi.
Nýtt Pósthús heflr verið Stofn-
sett á Sec. 4. Tp. 16. Rge. 10. W.
spölkorn vestan af Wild Oak P.
O. , landi vor hr. S. B. Olson er
póststjóri þar.
Sendiherra Japans í Montreal
heflr ritað bréf til blaðsins Winnipeg
Free Press og látið þess getið, að
Japan þurfl ekki hjálpar þeirra Can-
adisku manna, er boðið hafa þjón-
ustu sína í berliði Japana.. Sendi-
herrann segir Japan hafa alls 600
þúsund manns á að skipa mót Rúss-
um, og að það muni reynast nægi-
legt til sigurs.
68 Bólusjúkir Indiánar og kin-
blendingar eru í einangrun í bæn-
um St. John N. Dak. Frést heflr
og að Bólusýkinnar hafi orðið vart
meðal Kynblendinga við Manitoba
vatn. En aigerð vissa er en ekki
fengin fyrir því. og ekki er það
sagt að vera nálægt bygðum Is-
lendinga.
Danastjórn heflr látið leggja
sprengi vélar með skipahöfninni í
Kaupmannahöfn, er það gert til
þess að varna Rússneskum og Jap-
aniskum skipum að komast inn á
höfnina, nema með fullu leyfi
hermáladeildarinnar.
Assyriumenn hafa myndað fé-
lag í Pittsburg Penn. Félagið
heitir „Góðvildar blómið'1 (The
flower of Benevolence ) en verksvið
>ess er að hræda peninga út úr
fólki og til að berja og meiða þ&
sem félagsstjórninni er í nöp við.
18 mál hafa verið höfðuð móti
félaginu.
Allan lfnu skipið Corinthian
lenti í svo miklum ís í St. Lawrence
fljótinu í síðustu yiku að það varð
frá að hörfa, og komst með illan
leik til Hallfax.
Sagt er að Gyðingar á Rúss-
landi hafi sýnt svo lofsverða föður
lands ást síðan strfðið við japan hófst
að keisarinn og r&ðgjafar hanns
hafi rýmkað talsvert um laga á-
kvæði þau sem viðkoma þeim sér-
staklega og að þeim verður héreftir
veitt ýms hlynnindi sem þeir hafa
ekki áður haft, en þó verður þeim
ekki veitt jafnrétti við sjálfa Rússa.
Sáning er nú almenn í Manitoba
víðast hvar byrjað að sá laust fyrir
sfðusu mánaðamót. Einstöku menn
höfðu lokið hveiti sáningu fyrir lok
Apríl mánaðar.
Ameer yfir Afganistan hefir
nýlega geflð út skipun um að engin
þegna sinna megi eiga fleiri en 4
konur. Þyk;r mörgum höfðingum
þar, þetta hið mesta ranglæti, þar
sem þeir verða að losast við frá
20 til 30 konurhver, til að hlíðnast
lögum Ameer's, það jylgir og með
skipun konungs að konur þær sem
núverandi eigendur losa við sig
skuli gefnar ógiftum hermönnum
sínum, og þykir þeim allvænlega
áhorfast fyrir sér.
Ljúfustu sporin.
Ort á íslandi.
Gróin er grund,
gullhringar settir á vordaga mund;
drekka nú blómjurtir dala
döggma svala.
Fuglar, sem fá
frjálsir að svffa um loftgeiminn blá,
liefja við hlýindin gladdir
hásumar raddir.
Töfrandi mátt
tengið nú fuglar við hörpunnar
syngið f sólarlaust hjarta [slátt,
sumarið bjarta.
Hugur minn hér
helkulda vetrarins rektu frá þér;
reyndu hjá rósinni hlíða
róminn að þýða.
Inndæla vor!
andanum veitir þú svölun og þor;
ljúfustu sporin mig leiddir,
leiðina greiddir.
S. S. Ísfeld.
Skallagrímshaugur.
Úr Borgfiröingasögu í ljóöum:
Horfi’ eg yfir hauginn dökkva,
hetju værðarrúm.
Niðföll brims í náttkyrð sökkva,
nesið sveipar húm;
lel frá lffi liulda skilur,
hlátraglaum frá þögn og sorg,
jökli vafin jörð þars hylur
jötuns andarborg.
’ ’tisasvipur rfs úr haugi,
rennur hold á bein;
ferleg mynd af fornum draugi
freðinn klýfur stein,
máninn glottir móti skalla
merktum djúpri heiftarrún;
drynja náhljóð drangar fjalla;
draugur yglir brún.
Knött hann greipar knúfatöngum,
iampinn þekur hrím,
hlífir feldur herðadröngum,
hylur Skallagrfm.
Sé eg karl á svelli standa,
sækja leiki trylldan strák.
Gnötra fyrir grimmum anda
Granason óg Brák.
Sækjast rammir svipir lengi,
svellin lfða spjöll; —
harðir knettir hrufla drengi,
harkið óina fjöll.
Grimmdin fast í Grfmi svellur,
Grananið hann krummum þreif; —
örendur á ísahellur,
undrafall, hann sveif.
Hrikinn Egil höndum þrífur,
hamast styrjartröU.
Feigðar remmifjötra rýfur
flagð, við töfraköll;
berserks heift að Brák er snúin,
byltist norn í sollið haf,
æðileiks frá ógnum flúin,
ólffs færð í kaf.
Hverfa svipir, haugur lokast,
heyrnir nemur Þógn-
Dularflfk of drauma þokast,
dyljast haugarögn.
Gulli fólgnu Grfmur ræður,
göfug vakir hetjusál.
Fjárins geyma fornar slæður
frægð og sigur-stál.
Þungan söng við þðgla granda
þrymur Ægisdjúp,
ferleg nótt á fiilva sanda
feigðar breiðir lijúp.
Þar, sem ríkja prúðgum völdum
þokumekkir næturhríms,
felst í drungafjötrum köldum
fjörður Skallagríms.
Hnipinn drúpir hörgnr steina,
hruninn, neðst í dal; —
falið sandi fylgsni beina
fram við öldusal. —
Sveimar enn hjá söltum vogum
svipur Gríms, þá blundar drótt: —
Haugar brenna hrævalogum
hverja pokunótt.
StyrkAr Vésteinn.
Geislinn minn.
Það var mikill kynja-kraftur,
kominn ert [>ú hingað aftur,
svörtum, eins og dauðans dúr,
drungamyrkrum risinn úr.
Þungt var mörgum þín að bíða,
þótti tfminn aldrei lfða;
þér varð leiðin ströng, að stríða,
gegnum kuldans kólgu-múr.
Svo var mikil bylja bræði,
bungur hlíða léku’ á þræði,
eins og vildu fella fjöll
firni, runnin saman öll.
Heyrðust raddir dimmar duna,
darralög og hrfðarstuna;
náhljóð gegnum náttúruna
Dofra konungs hristu höll.
Nú er loksins Veðra-valdur
vikinn burt með storma galdur.
Geislinn sezt á snmarstól,
sendir yl um grund og hól;
vekur, hressir, frjófgar, fæðir,
fjörið, von og kjarkinn glæðir;
hann guðvefjar kyrtli klæðir
alt, sem hrærist undir sól.
Loft og jörð að vanaverki
vinnur undir Ijóssins merki;
vorsins milda vængjablak
veifar fjöðrum yfir þak.
Opinn smfgur gegnum glugga
geislinn, til að verma’ og hugga;
burtu hússins skelfir skugga
fljótt hans létta fótatak.
Dimmir svipir sælu banna,
sækja fast að bústað manna;
felst í myrkri fár og þraut,
fellur oft í þjóða skáut.
Öll þín mörgu alheimssporin,
eilífðar frá morgni borin,'
til að skapa skin og vorin,
tindra, vftt á tfmans braut.
Haldi nokkur, að ég ekki
eðli þitt né boðskap þekki,
tálmynd þar á töflur dró
tilfinningin þankasljó.
Hjartaglaður höfði mínu
halla ég að brjósti þínu,
og á þinni ljóssins línu
hefi fundið hugar ró.
Þó mig enginn þegna syrgi,
þrútið trega andlit byrgi; —
vonlaust angur, vilta spá,
var mér aldrei ljúft að sjá.—
Ef að mínu leiði lágu
lætur þú úr heiði bláu
blika vinarbrosin smáu,
einskis meir eg óska þá! —
S. S.Isfeld.