Heimskringla - 05.01.1905, Blaðsíða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
• ♦
♦ T. THOMAS ♦
♦ lBlcmkiir kanpmaBur
selar alskonar matvöru, gler og
klæöavöru afar-ódýrt gegn borg-
un út 1 hönd.
« 5.'J7 Eilice Ave. Phoae 2620 ♦
«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS, kaupmabur |
♦ umboössali fyrir ýms verzlunarfélög J
♦ 1 Winnipeg og Austurfylkjunum, af- J
T greiöir alskonar pantanir Islendinga J
♦ iir nýlendunum, peim aft kostnaöar- ^
♦ lausu. Skrifiö eftir upplýsingum til J
$ 5»7 Ellice Ave. - - • Winniþeg $
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 5. JANÚAR 1905
Nr. 13
Ami Eggartsson
671 ROSS AVENUE
Pbone 3033. Winnipeg.
Sleppið ekki þessu
tækifæri!
Eg hefi 80 ekrur á Rauðárbakk-
anum að austan verðu, um 8 tíl 9
mflur frá Winnipeg, land sem eftir
afstöðu er $40.00 til $50.00 dollara
virði ekran, sem ég get selt fyrir
$27.00 ekruna, ef það selst fyrir 1.
janúar. “Torrens title.” Söluskil-
málar rýmilegir. Eftir eitt til tvö
ár verða lönd þessa vegalengd frá
Winnipeg frá $00 00*til $100.00
ekran. Slíkt hefir reynslan sýnt f
ðllum bæjum í landinu. Sleppið
ekki tækifærinu, kaupið strax.
Ég hefi einnig lot og hús til sölu,
peninga að lána, eldsábyigð, lífsá-
byrgð ofl.
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blb
Telephone 3364
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRIÐS-FRÉTTIR
Fréttir af ófriðnum eru talsvert
veigameiri en f sfðustu viku. Þá
gekk hvorki né rak fyrir Japönum
þar eystra. En sfðan hafa þeir
verið f jötunmóð og unnið krafta-
verk. Fyrri hlutann af desember
unnu Japanar 2 öflug vígi frá
Rússum, um 5 mllur vegar út frá
aðal-kastalanum 1 Port Arthur.
Þau voru bæði í nánd við 203 metra
hæð, en öflugri miklu en hæðar-
virkið. Eftir að hafa traustlega
búið nm sig í virkjum þessum,
héldu þeir uppi látlausri skothrfð á
aðal innri virkin og gerðu mikil
spell á herbúðum Rússa þar; féllu
tveir rússneskir yfirherforingjar og
tveir aðrir særðust hættulega, f>ar
á meðal sjálfur hershöfðinginn
Stoessel, sem féll af hestbaki við
það, að ögn úr einni af kúlum Jap-
ana særði hann. Sagt er að þá
hafi Stoessel sent til Japana og
boðið að gefa upp allan staðinn í
hendur þeirra, ef hann fengi að
halda til Rússlands með það sem
«ftir er af varnarliði hans En
General Nogi neitaði boðinu, kvaðst
yera svo langt kominn að vinna
staðinn, að hann teldi sér hann vís-
an, þótt Rússar héldu vörninai
appi eins lengi og þeir mættu.
Svo leið tíminn til þess 29. des.
Þá höfðu Japanar unnið af kappi f
margar vikur að J>vf að grafa 7
göng undir hið öfluga vfgi Rússa
f Rihlung fjalli. Þenna dag fyltu
þeir göng þessi undir varnarvirkj-
nm Rússa með dynamite og
sprengdu alt f loft upp. Við þá
hryðju atrennu mistu Japanar þús.
menn, en náðu virkinu og með þvf
47 öflugum fallbyssum og öðrum
kostbærum hergögnum, sem f>eim
kom sérlega vel að fá. Þetta virki
er að eins 2’mflur frá insta og aðal-
virki Rússa f Port Arthur, og er
því talið víst, að nú sé f>eim léttur
leikur, að ná ölla sem eftir er innan
skams, þar sem Japanar geta nú
óhindraðir beitt öllu afli sínu frá 203
metra hæð, og Keekwan og Rih-
lung fjöllunum á aðal herbúðir
Rússanna.
Svo er sagt, að nú séu menn
Strossels búnir að missa móðinn
og telji tap sitt vist á hverri stundu.
Þess vegna sé þeim ant um að kom-
ast að einhverjum þeim samning.
Port Arthur er fallin
Japanar fengu þá nýársgjöf, að foringi Rússa í Port Arthur, klukkan 9 á nýársdag,
bauðst til að gefast upp með liði sínu öllu og afhenda borgina í hendur Jap-
ana. Allir samningar voru klárir og undirritaðir kl. 4.30 á mánudaginn var.—
Rússar gengu skilyrðislaust að kröfum Japana, en keisari Japana hefir sent Nogi
herforingja þá ósk sína, að hann sýni Rússum alla virðingu og sé vægnr í kröfum
við þá. Meira um þetta í næsta blaði.
PIANOS og ORGANS.
Hefntxman &. C«. I’ianos.-Bell Orgel.
Vér seljnm með máuaðarafborgunarskilmálum.
J, J. H McLEAN 8c CO. LTD.
330 MAIN St. WINNIPEG.
um við herforingja Japana, er leyfi
j>eim að komast lífs út úr staðnum'
Það er og sagt, að nú í fyrsta
skifti sé Rús8akeisari fús að hlusta
á sáttaleitun stórþjóðanna, sérstak-
lega Frakklands.
Knrópatkin hefir hálfa millfón
vfgra manna f Manchuria, en orkar
þó ekki að þokast eitt hænufet á-
fram fyrirher Japana þar.
Keisarinn er farinn að sjá, að
strax og Port Arthur er fallinn og
Japanargeta sent her þann norður
j>á sé Rússum hin mesta hætta bú-
in og lítil von um sigur, og það j>vf
sfður, sem allur herskipafloti hans
er nú algerlega eyðilagöur og lítil
von um, að hinn flotinn komist lífs
af, sem nú er á leið pangað austur,
ef Togo kemur auga á hann.
Árið endaði illa fyrir Rússum og
vel fyrir Japönum.
Fregnritarar stórþjóðanna, sí:m
fluttir voru til Port Arthur til að
sjá með eigin augum aðfarir Jap-
ana þar. eru kornnir aftur til Tokio
oa láta vel yfir ferð sinni og athug-
nnum. Þeim ber saman um, að
engin stórþjóð í heimi hefði getað
gert eins mikið að verkum eins og
Japanar hafa gert, því að Port Ar-
thur sé sá rambygðasti staður, sem
nokknr |>jóð hafi nokkurn tfma
gert umsát um. Þessi fregn hefir
haft þau áhrif, að annað skip hefir
verið gert út með hóp af höfðingj-
um til að fara til Port Arthur og
gera athuganir þar. í þessum hóp
ern 10 sjóliðsforingjar, 4 stórhöfð-
ingjar, 17 þingmenn, 1 þingskrif-
ari og 1 herforingi, en engir fregn-
ritar. Það er tilgangur þessara
manna, að dvelja f nánd við Port
Arthur, þar til staðurinn fellnr f
hendur Japönum. Má af þessu
marka, að j>eir telja að ekki verði
þess langt að bfða, að Japanar
vinni j>ar algerðan sigur. General
Kuroki, sem sagt var að hefði fallið
f orustn J>ann 4. október sl, hefir
ritað bréf til þýskra vina sinna í
Dortmund f Þýzkalandi, dagsett 7.
nóvember sl. og lætur J>ar vænlega
af sér.
— Bnndarfkja stjórnin hefir á-
kveðið áð borga til baka 25 pró-
cent af innflutuings tolli þeim sem
goldin er af canadi zku h veiti. Þetta
hefir J>au áhrif að hækka verð á
hveiti og hveitimjöli hér í landi
með þvf að mörg hundruð þús-
und bushels eru árlega send liéðan
til Bandarfkja.
— Það er nýtt f pólitískri sögu
[>essa lands, að 2 menn í Prinee
Edward Eyjn voru við síðustu
kosningar kjörnir fyrir sama kjör-
dæmið. Annar var stjórnarfor-
maður Peters (Lib); hinn var H»
D. McEwan (con), hvor J>eirra fékk
515 atkv. en kjörstjórin, sem átt
hefði að skera úr mólum, úrskurð-
aði }>á bæða réttkjörna þingmenn,
þó hann vissi að aðeins annar
Jæirra má eða getur setið f Jnnginu.
— Sveitakosningar f N/ja Is-
landi eru um garð gengnar. GiÆni
Þorsteinsson kjörin Oddviti gagn-
sóknarlaust; Baldvin Anderson með
ráðandi Wsrd 1. kosinn með 73
atkv. umf'am; Sigurður Sigur-
björnsson á Árnes koesinn gagn-
sóknarlaust, og Gunnst. Eyjólfsson
Icel. River og Helgi Tómasson
Hecla., náðu báðir kafningu f sfn-
um deild im.
— Bandaríkjafclag eitt, hefir
keypt 54 þúsnnd ekrur af landi
nálægt bænum Calgary f Alberta
með þeim tilgangi að setja á þau
lönd efnilega bændur frá Banda-
ríkjunum. Verðið var 250 J>úsund
dollars.
— Voða viudBtormar hafa geng-
ið umhverfis Bretlandseyjar s. 1.
viku; ýmis smáskip hafa farist og
önnur laskast, margir sjómenn hafa
látið lfC sitt. Á landi hafa sam-
göngur teppst og tal og málvirar
sfitnað, bj'ggingar skemri og marg-
ir hlotið meiðsli af.
— Þýzkalands Keisari hefir sent
svollátandi auglýsingu til sendi-
herra stórþjóðanna, sem þeir eiga
að opinbera f heima löndum sfn-
um, ungum konum til eftirbreitni:
‘‘Konur sem koma fram fyrír hin
keisaralegu hjón, eiga jið. halda
höfðinu uppréttu og með ánægju
svip : ganga uppréttar og veglega
(dignified) og að beigakné sín með
lipurð og alvöru þegar þeim er
leift að koma fram fyrir keisara
hjónin. Þegar þær eru heiðraðar
með þvf að annaðhvort keisara-
hjónanna ávarpi J>au, þá mega þær
ekki vera örar á nokkurn hátt. og
mega ekki spyrja nokkurra spum-
inga, eða að viðhafa léttúðarfult
hjal, og hlátur er fyrirboðinn.”
—Sjúklingur á vitfyrringa spftal-
anum f Selkirk, strauk f sfðustu
viku og hélt til Winnipeg að finna
kunningja sfna hér. Hann var
hægur en nær dauða en lffi af
kulda er hann komst hingað.
Hann var fluttnr til baka á spftal-
ann eftir dagsstundardvöl hér f
borginni.
— Rússastjórn lætnr þess getið
að mögnuð sýki hafi gosið upp
hjá kósökkum f Ural fjölluu, Svo
er sýkin skæð að 26 manns dóu
úr henni á 4 dögum milli 22. og
26 nóv. s. 1. Sýki J>essi hefir út-
breiðst nm nærliggjandi sveitir.
— Tugir þúsunda manna sem
unnu við olfu upptöku f Kákasus
fjöllum og Baku héraðinu á Rúss-
landi, hafa gert verkfall. Mönnum
þessum þikir kaup lftið og með-
ferð á sér óþolandi. — Afleiðing
enn óséð.
— Virden bær hér 1 Manitoba
hefir sett upp talþráðakerfi á
eigin reikning. Einnig er ráðgert
að leggja Telephones heim að hús-
um bænda í héruðum umhverfis
bæinn.
— 150 fangar í Folsom fangels-
inu í Sacramento Cal. gerðu tilraun
til að komast úr vistnm þann 29.
des., vildu helst mega um‘,frjálst
höfuð strjúka á Nýárinn. Menn-
irnir voru að vinna við steintök
og voru á leiðinni f fangelsið um
kveldið, þogar þeir alt í einu
gerðu áhlaup á varðmennina; þeir
höfðu allir knffa, en varðmenn
snérust illa við og skutu strax 7
fanga til ólífis, þá stungu hinir
fangarnir knífnm sfnum f sliðrur
og gengn rólegir í fangelsið. Einn
varðmaður sjerðist.
— Bartlett, sá er stolið hafði
$4,500 inntektum fylkisins fyrir
gyftingaleifi á sl. 12 árum, var f
sfðustu viku dæmdur í eins árs
fangelsi. McKellar skrifstofustjóri
Akuryrkjudoildarinnar var, af dóm
urunum sem mnnsökuðu kærnna á
hann um meðsekt f þessum þjófn-
aði, frikendur.
— George Turner hefir verið
tiandtekinn f Aberdeen S. D., hann
er kærður um að hafa verið for-
maður hestaþjófaflokks þess er sf-
felt hefir stolið hestum frá bændum
í suðvestur Maniteba í haust er
leið og framan af J>essum vetri.
Maður þessi er og sagður að hafa
stolið mörgum góðum gripum frá
Dakota bændum.
AuglVsing.
Meðlimir íslenzka Conservative
Klúbbsins eru hér með aðvaraðir
um það, að ársfundur félagsins
verður haldinn f fundarsal J>ess
fimtudugskvel,\i3 26. J>. m.( kl. 8.
Samkvæmt lögum klúbbsins verður
& J>essum fundi kosin stjórnarnefnc
fyrir næsta 6r, lögð fram endur-
skoðuð fjárhagsskýrsla o. 9., o. fl.
Það er sanngjarnt að ætlasttil þess,
að allir félagsmenn, sem J>á verða í
bænum og ekki hafa gild forföll,
sæki þonnan fund.
Svo er félagsmönnum hér með
gert kunnugt, að næstkomandi
þriðjudagskveld, 10. þ. m., byrjar
“Pedro Toumament” f klúbbnum,
og er skorað á alla, sem vilja taka
þátt f því, að vera viðstaddir það
kveld.
Fyrir hönd nefndarinnar,
AI.BKHT J. GOODMAJL,
skrifari.
Póstferðir til og frá
íslandi
Gufnskipafé’agið danska hefir
nú sent Heimskringu ferðaáætlun
skipa sinna fyrir árið 1905. Sam-
kvæmt henni fara skip félagsins
frá Leith, áleiðis til íslands, svo
sem hér segir:
F r á L e i t h : 17. janúar, 28.
febrúar, 2. og 8. marz, 12. og 19.
aprfl, 2. og 31. maf, 10. og 21. júnf,
8. og 29, júlf, 3. og 19. ágúst, 14. og
23. september, 19. og 30 október,
18. nóvember og 2. desember. —
Þessi skip eiga' að koma til Reykja-
vfknr 6 dögum eftir að þau fara frá
Leith.
Frá Reykjavfk: 27. janú-
ar, 16. marz, 19. aprfl, 12. maf, 8.
og 30. júní, 18. júlf, 16. október og
28. nóvember, öll beint til útlanda.
En þan sem fara kringum landið
áður en þan leggja til útlanda, fara
frá Reykjavík: 14., 29. og 30. ágúst,
27. septemberog 12. október.
Frá Islandi koma skipin á þess-
um dögum til Leith: 16. febrúar,
26. marz, 3. apríl, 8., 21, og 30. maf,
23. júní, 15. júlf, 2. og 27. ágúst, 4.
og 14. september, 30. október, 5. og
23. nóvember og 22. og 29. des.
Farið á fyrsta plássi frá Leith ti
Islands er 90 kr., og á öðru plássi
60 krónur.
(Límið þetta í hattana yðar).
Snmkoma Stúdentafclagsins.
Eins og hefir verið minst á áður
ætlar Stúdentafélagið að haldasam-
xomu 10. þ. m. Þeir, sem unna
góðum samkomum, ættu að koma.
Til samkomunnar hefir verið vand-
að eftir beztu föngum. Bezta ís-
enzka söngfólkið kemur þar fram,
eins og sjá má á auglýsingu pró-
gramsins. Ræðumennimir eru
báðir vel þektir. Dr. Bland frá
Wesley College er kom haustið
] 903 hingað til bæjarins, og muna
eflaust margir eftir, hve vel blöðin
mintust hans við það tækifæri.
Slðan hefir hann orðið frægur fyrir
ýrirlestra sfna meðal enskumæl-
andi fólks í þessum bæ. Stúdenta-
félagið álftnr,að það geti ekki betra
gert fyrir íslendinga hér f þessum
bæ, en að gefa þeim tækifæri til að
heyra til Dr. Blands. Tableaux
verða sýnd í ljósi frá töfralukt.
Yfir það heila tekið, þá vonum
vér, að samkoman verði góð og vel
J>ess virði að sækja hana hvað það
snertir, fyrir utan það að Það verð-
ur mikill styrknr fyrir Stúdentafé
lagið f heild sinni, að samkoman
verði fjölmenn.
Félagið hefir tekið sér það fyrir
hendnr að lána fátækum náras-
mönnum fé, eftir því sem kringum-
stæður hafa leyft. Það má telja
sér það til heiðurs, að það hefir
þannig orðið ýmsum að liði, sem
aunars hefðu orðið að hverfa frá
námi. Það hefir ekki safnað pen-
ingum í gróðaskyni fyrir sjálft sig,
heldur fyrir þá félagsmenn, sem
þurftu þeirra með. Með þvf augna-
miði, að hafa saman peninga til
slfkra fyrirtækja, hefir félagið tekið
sér fyrir hendur að halda þessa
samkomu.
Munið að samkoman byrjar á
réttum tfma.
Stúdentafélagið heldur fund á
laugardagskveldið kemur, þ 7. þ.
m., kl. 8 á venjulegum stað. —
Meðlimir beðnir að fjölmenna.
Þresking
i.
Hveitibindin bíða,
Búið er að slá;
Fögrum akri á
Standa stakkar vfða.
II.
Bóndi br/tur strá,
Brauðþur kornin smá,
Þegar þreskja má.
III.
Þrekna þreski-garpa
Þarna líta má:
Sveitta, svarta, jarpa;
Sízt er hent að karpa,
Sagt er, við seggi þá.
IV.
Gufu-gang-vél há
Gefur hljóð sér frA;
Undra-útgerð þá
Allir koma að sjá,
B/li bóndans á.
V.
Upp í stakkinn stekkur
Sterkur þreski-maður;
Bindi af bindi hrekkur,
Breytist komustaður.
Hvítur hveiti-sekkur
Kúffyllist. — Mjög glaður
Með hann rogast rekkur,
Röskur bóndamaður.
VI.
Þreskivélin búkstór bryður
Brauðþur kom í hungmð iður;
Vel 1 barkann ráma ryður,
Raular við, um meira biður;
Seint hún fyllist,sveinar miður
Sýnast hafa. Þessi kviður
Hveitibindum kingir niður.
Köllin, hrópin! Enginn friður
Þegnum gefst nú, þreytist liður,
Þrótt sinn reyna er manndóms
siður.
Upp við forkinn einn sig styður.
Eitthvað brotnar, vélasmiður!
VII.
Vagna, hesta, hali
Hérna lfta má;
Kornið flytja frá
Menn 1 tugatali.
VIII.
Er nú dagsverk unnið:
Allir heim í tjald.
Gott er’Vinnugjald. —
Myrkur mjög á rannið.
IX.
Oft er ilt í tjaldi:
“Ég vil heldur sofa
Heima’, f hlýjum kofa;
í kveld er norðan kaldi.”
X.
Eg vil gröf mér grafa:
“Gista f þes3u strái;
Hér ég hollast spái
í nótt sé næði að hafa.”
X/.
Þreyttir J>egnar skjálfa
Þessa kölilu nótt,
Sveinar sofa’ ei rótt;
Snjór í kné og kálfa.
XII.
Upp með dy'rum degi,
Drekkum vel og etum;
Fram með hreysti fetum;
Dott nú dugar eigi.
XIII.
Hýmar yfir höldi:
Hörð er skorpa gerð,
Hér er fjör á ferð. —
Komið er enn að kvöldi.
XIV.
Bráðum er akur auður,
Úti er þreski-vist-
Nú fæst næði fyrst! —
Hvfl þig hönd og hauður!
XV.
----Þó er þresking meiri
Þráð á andans grund:
Ei gefst eirðarstund!
Hugtök fleiri og fleiri!
JÓN KJÆ IiNES TEfí.
F r á P1 u m a s
Sveitakosningin nýafstaðna end-
aði svo, að Mr. Hall frá Gladstone
var kjörinn sveitar oddviti með 345
atkvæðum umfram Mr. Lamb, frá.
Plumas.
Lamb þessi var lýtt þektur mað-
ur og kom fram með nýja stefnu
í skattálögum Sveitarinnar, sem
hefði lagt þunga byrði á land
spekulanta, en létt aftur á bænd-
unum sem yrkja lönd sfn. Samt
fékk liann mörg atkvæði á þeim
stöðum er hann gnt lialdið fundi
og skfrt stefnu sfna fyrir kjósend-
unum.
Rokkur og Ruggustóll
Aður en Guðm. G. ísleifsson
flutti vestur að Kyrrahatí f fyrra
haust skildi hann eftir hjá mér
rokk og ruggustól og sagði að þess
mundi verða vitjað. Nafnspjald er
bundið við þetta, merkt: “ P.
Bjömsson, Yorkton, Assa.” Éghefi
skrifað þangað og ekkert svar feng-
ið. Eigandi getur vitjað þessa til
mfn með þvf að borga þessa aug-
lýsingu.
8. TIIORSON,
605 Ellice Av©., Winuipeg