Heimskringla - 23.02.1905, Qupperneq 3
HEIMSKRINGLA 23. FEBRÚAR 1905.
íslendingar færu að sýna sjálfum
sér og öðrum meiri hreinskilni,
heldur en f>eir hafa gert, bæði f
trúarefnum og öðru. Hræsni og
tíhreinskilni öll eru einhver hin sví-
virðilegustu rotnunar-átumein þjóð-
anna,hvort lieldur er í kirkjulegum
málefnum eða öðru. Þeir, sem eru
ánægðir í lútersku kirkjunni eins
og hún er, þeir séu kyrrir. Þeir,
sem eru sár-óánægðir með einhver
atriði, f>eir leiti sannleikans.
Geta hræsnarar verið vinir hins
sanna kristindtíms?
Elkaði ekki Kristur hreinskilni?
Aðalsteinn Kristjdmson.
Islands-fréttir.
Islands blöðin (“Þjóðviljinn,”
“Reykjavfk”, “Ingólfur”, “Fjall-
konas” og “Hifn”) bárust oss í síð-
ustu viku. Þau ná fram að 22.
janúar, og drepum vér hör 4 híð
merkasta af innihaldi þeirra:
“Hlfn”, gefin út af St. B. Jóns-
syni í Reykjavík, flytur aðallega
lýsingar á ýmsum þeim Ameríku-
vörum, sem útgefandinn hefir til
sölu par heima. Þess utan eru f
blaðinu greinir um Ameríkn-ferðir,
með samanburði á verði á nauð-
synjavörum hér og f>ar, miðað við
peninga að eins, en ekki kaupgjald
fólks eða gjaldpol, sem þó hefði
rétt verið.—Mölun og mjöltollur.—
Tvent ólíkt.—Skýrslur og skrítlur,
m.m. Þetta hefti “Hlfnar” er ekki
eins fróðlegt og sum hin fyrri, enda
fátæklegra miklu að pappfr og öðr-
um ytra frágangi ekki síður en að
innihaldi.
“Reykj vík” 21. jan.:
Milli 40 og 50 ný hús eru f vetur
bygð norðan í Skólavörðuhæðinni.
ISiy gata er lögð þar, samhliða Grett-
isgötu, og heitir Njálsgata. Flest
eru þessi nýju hús smá.—Sæmund-
ar Eddu ætlar nú Sigurður Krist-
jánsson bóksali að gefa út og sér
Finnur Jónsson prófessor í Kaup-
mannahöfn um útgáfuna. Bókin
verður prentuð hér, en prófarkirnar
sendar til Khafnar. — Bindindis
vinir í Húnavatnssýslu sneru sér
sfðastliðið sumar til forstöðumanns
Carl Höepfners verzlunar, hr. A-
Sörensens, með tilmæli um, að hann
hætti áfengisverzlun 4 Blönduósi.
Hann skrifaði peim bröflega f haust
og synjaði. Meðal annars, sem
hann ber fyrir sig, er það, að all-
mikil áfengissala fari fram í sýsl-
unni utan verzlana. Því til sönn-
unnar tilfærir hann f>að, að einn
bóndi f sýslunni, sem hann nefnir
fullu nafni, hafi á fyrri helmingi
nýliðins árs fengið með skipum 700
potta af áfengi, brennivíni og
whisky. Hr. Sörensen hyggur, að
hætti hann áfengisverzlun, muni
þessi bóndi flytja inn ef til vill
þeim mun meira af þessari vörui
og þá sé ekki fyrir neinu að gang-
ast fyrir áfengisóvini. Sömuleiðis
lætur hann þess getið, að sér hafi
verið sagt, að á Hvammstanga séu
mjög fjörug brennivfns og whisky
viðskifti (en meget livlig Yirksom-
ked með Br.vin og Whisky) og á-
fengis sé par aflað á ýmsan hátt.
(“Fjk.”).— Iðnaðarmannafélag var
stofnað f vetur á Akureyri til þess
að efla framfaraviðleitni í iðnaði 1
kaupstaðnum og nágrenninu. —
“Gjallarhorn” skýrir frá því, að Jón
Þorlákssou mgeniör hafi rannsakað
leir, sem tekinn var í landeign
Syðra-Krossaness við Oddeyri, og
segi um þá rannsókn f bréfi frá 4.
des. sfðastl.: “TJr leirnum voru mót-
aðir steinar, sumpart úr leirnum
tómum, sumpart úr leimum blönd-
uðum sandi. Steinarnir þornuðu
allir án þess að springa eða rifna,
og við brensluna sýndi pað sig, að
þegar hitinn var eigi minni en 1000
stig C„ fékst dágóður múrsteinn.
Mátulegur brensluhiti er um 1050
stig C. Samkvæmt þessu læt ég í
ljósi pað álit mitt, að úr leir þessum
megi búa til múrstein.”— Vestur-
íslendingur, Hálfdán Jakobsson,
sem um mörg undanfarin 4r hefir
verið f Ameríku og grœtt þar stór-
fé, hefir kcypt Héðinsliöfða af Sig-
urjóni dbrm. Jóhannessyni áLaxa-
mýri fyrir 10 f>ús. kr., að sögn.
(“Gjh.”).— Flóvent Jóhannsson bú-
fr. sleppir Hólabúi í Hjaltadal í
vor, en við tekur Geirf. Tr. Frið-
finnsson á Garði í Fnjóskadal. Fló-
venthefir keypt Sjávarborg í Skaga-
firði (“Glij.”).— Þllskipunum hefir
fjölgað í sumar sem leið við Eyja-
fjörð um 4 skip. Eitt fórst í vor
við hákarlaveiðar, en 5 hafa verið
keypt, eitt peirra 90 tons, og er það
stærsta fiskiskip Norðurl. (Stefnir).
—Skarlatssótt hefir verið að stinga
sér niður í Eyjafirðinum í vetur á
Svalbarðseyri, Oddeyri og inni í
Héraðinu. — Sjúkrask/li er verið
að koma upp á Eskifirði fyrir for-
göngu læknisins þar, Friðjóns Jens-
sonar, en með samskotum innan-
héraðs (“Nl.”).
“F j all kona n”, 13. des.
Fiskafli er nú kominn við Isafj.
djúp f>egar gefur, eftir fregnum
sem komu með ‘Tryggva konungi.’
— Taugaveiki er komin upp á
Blönduósi. Tveir menn höfðu lagst
er sfðast fréttist. Húsin, sem þeir
ltggja í, höfðu verið sóttkvíuð.—
Eldey er leigð af lsndsstjórninni
Chr Lehmann Gram, dönskum
manni, til þriggja ára, fyrir 1000
kr. eftirgjald á ári. Hún er, sem
kunnugt er, eyðiklettur út af
Reykjanesi. Leigjandinn ætlar sér
að flytja fugladrft paðantil útlanda
til áburðar.
(20. des.). Sæluliúsið við Jök-
ulsá 4 Fjöllum hefir, að sögn, n/lega
orðið 14 kindum að bana, segir Nl.
Fé var rekið inn f kjallara, en hann
reyndist of lltill ogvoruþá nokkur-
ar kindur látnar upp á loft. Bit
arnir undir gólfinu voru orðnir svo
fúnir, að f>eir hrundu niður undan
f>unga fjárins, og fór alt niður á
féðf kjallnranum. Onnur hliðin á
gólfinu lenti 4 stoðum frá hesta-
stalli, og varð f>eim kindunum til
lffs, sem af komust. — A sunnud.-
kveldið var var samþykt á safnað-
arfundi fríkirkjunnar, hér í bænum
að lengja kirkju þeirra um 15 álnir
4 næsta sumri. Kirkjan er nú 20
auk forkirkju. Eftir þennan við-
auka verður hún langstærsta kirkj-
an á landinu. Dómkirkjan mun
ekki vera nema 30 álna löng. Söfn-
uðurinn eykst stöðugt að stórum
mun, svo stækkunin var alveg
óumfl/janleg, enda samþykt með
öllum atkvæðum.
(13. jan). Benedikt Gröndal
skáld hefir verið veikur undanfarið,
en er nú f bezta afturbata.
(20. jan.) Skarlatssótt hefir kom-
iðf 2 hús á Akureyri (Oddeyri), svo
kunnugt sé. Hún hefir og komist
á einn af fremstu (instu) bæjum í
Eyjafirði, Villingadal. Þar sýktust
4 börn.—Nl. segir frá því, að f sum-
ar hafi héraðslæknir Guðm. Hann-
esson.á Akureyri vakið máls á f>vf
við 17 lækna, sem allir voru í N.
og Austuramtinu, að einum frá-
töldum, hvort þeim væri fjarri skapi
að gerast bindindismenn og styðja
bindindis-hreyfinguna í héruðum
sínum. Málaleitun þessi fékk þær
undirtektir, að 12 af pessum 17
læknum tjáðu sig hlynta bindindis-
inálinu og albúna til f>ess, að einum
frátöldum, að gerast sjálfir bind-
innismenn. Af þessum 12 læknum
voru að eins f>rir bindindismenn
áður. Bindindisfélag með þessum
læknum er í þann veginn að fá fast
skipulag, og telur blaðið ekki ólík-
legt, að þetta sé byrjun til íslenzks
læknabindindis. Það er ekki lítill
ávinningur fyrir bindindismálið, að
fá til forgöngu mann, sem nýtur að
verðugu jafn-mikils trausts og álits
eins og Guðm. Hannesson. Og
sæmd er f>að fyrir læknana, hve
margir þeirra hafa tekið málaleitun
hans vel. — 50 norkir sjómenn eru
væntanlegir í næsta mánuðj. Þeir
eiga allir skipsrúm hör f vændum á
þilskipum, og eru ráðnir upp á
mikið lægri laun, að sögn, en há-
setar þar hafa nú. — Á Akureyri
andaðist í ársbyrian cand. phil.
Bernliard Laxdal, einkasonur Egg-
erts Laxdals kaupinanns,eftir langa
legu. Hann var um tfma annar
ritstjóri “Gjallarhorns.”— Blöndu-
ósskólinn; þar er ný forstöðukona í
vetur, frk. Guðrún Sigurðardóttir
frá Lækjamóti. Námsmeyjar voru
f>ar í haust rúmlega 20, en 10 vænt-
anlegar í viðbót um áramótin.—
A Hólaskóla eru 50 lærisveinar í
vetur, 20 úr Skagafirði; 14 úrEyja-
firði; 8 úr Þingeyjars/slu; 1 úr Ár-
ness/slu og 1 úr Norðurmúlasýslu.
Óneitanlega virðist. það stórkost-
lega gengi, sem skólinn er í, frem-
ur benda í f>á átt, að þjóðinni gefist
ekki illa að peirri ráðabreytni,
sem svo mikið hefir verið um deilt,
að greina bóklega námið frá verk-
lega náminu. — Maður varð úti í
Olfusi fyrra sunnudag í blindbyl,
nnglingsþiltur frá Kotströnd, Páll
að nafni; hafði verið sendur með
böðunarflát þar um sveitina. Sagt
er, að hestar, sem hann var með,
hafi fundist dauðar í ársprænu, en
hundur hans verið með lífi, en kal
inn á löppum.
“Þ jó8 v i 1 j i nn” (ð.des.)
Cand. phil. Evakl Möller frá Eski-
firði ætlar að hafa sápugerðarverk-
smiðju í Reykjavík, svo að Islend-
ingar þurfi eigi að sækja alla sápu
sfna til útlanda. Þær eru þó að
smáfjölga iðnaðargreinarnar hér á
landi, sem betur fer. — Rjómabúin
eru 24 hér f landi nú f árslokin,og
eru 20 þeirra í Saðuramtinu, nfl.:
11 í Árness/slu, 4 f Rangárvalla-
sýslu, 2 í Kjósars., 2 í Borgarfj.s.
og eitt í V. Skaptafellss. I Norður-
amtinu eru rjómabúin þrjú, sitt í
hverri s/slunni Húnavatns, Skaga-
fjarðar og S.-Þingeyjar sýslum.
Loks er eitt rjómabúið f Vestur-
amtinu, nefnilega f Dalasýslu. —
Hugvitsmaðurinn Olafur Hjalte-
sted hefir búið til nýja sláttuvél, er
hann nefnir ‘Tyrfing’, og tjáir hann
hana geta slegið grasið svo snögt,
að eigi verði eftir nema J þumlungs
frá rótinni, og gengur einn hestur
fyrir vélinni. Gert er ráð fyrir, að
vél þessi fáist f verzlunum hér á
landi á vori komanda og kosti 210
kr. Reynist sláttuvél þessi svo sem
henni er lýst, þá er hér stigið afar-
þýðlngarmikið framfaraspor, sem
fremur flestu öðru getur orðið til
þess, að reisa íslenzkan iandbúnað
og gera hann arðvænlegri en nú er.
— Frá ísafirði er “Þjóðv.” ritað 1.
des. des. sfðastl.; “Héðan er að
frétta dágóðan afla í Bolungarvík,
og einnig reitingsafla í verstöðun-
um innan Arnarness, þegar gæftir
leyfa. Innbrotsþjófnaður varfram-
inn f Bolungarvíkumsíðustuhelgi;
hafði þjófurinn brotið glugga í
verzlunrrbúð Péturs kaupmanns
Oddssonar, og nældi sér rúmar 100
krónnr.
(15. des.) Hvalveiðastöðin að
Suðureyri í Tálknafirði, bæði fbúð-
arhús og verkmanna skúrar, brann
til kaldra kola 4. des. sfðastl., og er
gizkað á, að skaðinn muni nema
nær 110 þús. kr. Mælt er, að húsin
hafi verið f eldsvoða ábyrgð, en að
lfkindum fæst ábyrgðarféð þó eigi
greitt, nema hvalveiðistöðin sö reist
aftur að Suðureyri f Tálknafirði.
Ófrétt er enn, hvernig eldurinn hefir
kviknað. — Fólksfjóldi í Reykjavík
er talinn hafa verið um 8,300 hinn
1. okt. slðastl., eðA 8^ þús., ef talið
er, að um 200 bæjarbúa hafi f>á
verið fjarverandi, svo sem blaðið
“Reykjavík” gizkar &.
(22. des.). “Beskytteren”, land-
varnarskip Dana við Færeyjar, sem
dvalið hefir hér við land um hríð,
tók nýskeð botnverping, er var að
landhelgiveiðum, og fór með hann
til Vestmannaeyja. Það kostaði
botnverpinginn 2700 kr. sekt.
“Ingólfur” (8. jan.)
Jarðskjálftakippur snöggur fanst
aðfaranótt 27. f.m. um klukkan 5
árdegis og annar minni síðar um
morguninn.— “Verði ljós”, er J>eir
hafa gefið út séra Jón Helgason
prestaskólakennari og HaraldurNf-
elsson cand. theol., er hætt að koma
út nú frá nýftri. Eru nfu ár sfðan
[>að var stofnað.
(15. jan.). í Kristjaníu hefir ný-
legaverið keypt einkaleyfi að merki-
legum öngli, sem gera má ráð fyrir
að orðið geti til mikilla nota sjó-
mönnum hér ekki síður en annars-
staðar, ef hann reynist svo vel, sem
frá er sagt. Þessi öngull er með
þeim hætti, að á legnum er smokk-
fiskur úr rauðu “guttaperka” og
sn/r höfuðið niður. Gætir öngul-
bugsins lítið meðal gripamanna.
Fiskurinn er holur innan og 4 að
setja innan í hann baðmull vætta í
smokkfiskableki; fæst þaðhjáþeim,
er öngulinn selja. Talið er aðdraga
megi altað tveim hundruðum fiska
á hvem öngul, áður en smokkfisk-
urinn verður ónýtur. Hver öngull
kostar í Noregi kr, 0.65—1.40 eftir
stærð. Sá heitir B. Jacobsen, sjó-
maður gamall, er gert heíir öngul
þenna f fyrstu, en hlutafélagið, sem
býr hann til, heitir “Patent Fiske-
agn” og formaður þess Karl Sund.
Miklu lofsorði hefir verið lokið á
öngulinn í blöðum erlendis og hefir
hann meðal annars lengið meðmæli
frá Arthur Feddersen f Khöfn og
ritstjóra Fiskitfðindanna dönsku.
Öngull f>essi hefir verið sendur
nokkrum verzlunum hér á landi, en
hefir ekki verið reyndur enn, síst
til nokkurrar hlítar. En þess verð-
ur nú kostur með vorinu að vita,
hversu porskurinn verður ginkept-
ur við honum.
(22. jan.) Göturnar í Isafjarðar-
kaupstað hafa nú hlotið ákveðin
heiti. Atján götum er nafn gefið
og heita f>ær svo: Aðalstræti, Hafn-
arstr., Fjarðarstr., Sundstr., Skipa-
gata, Silfurg., Tangag., Smiðjug.,
Brunng., Þverg., Vonarstr.. Mjóg.,
Pólg., Póstg., Bankag., Templarag.,
Steypuhúsg. (betra væri Steinhús-
gata) og Hlfðarvegur. Húsin verða
einnig tölusett. — Eimskútu hafa
f jórir Isfirðingar keypt til sfldveiða
með reknetum. Skútan er nýbygð
f Dvergsteinshvalveiðistöð f Álfta-
firði. Vélin hefir 10 hesta afl, og
kostaði skútan 6000 kr. með vél.—
Fiskafli var góður við Isafjörð f
desember„.ánuði.—Maður varð úti
8. f>. m. austur f Ölfusi. Hann hét
Páll Pálsson, átti heima 4 Kot-
strönd. Hafði hann mist hesta sína
tvo niður um fs í Ölfusá og fanst
sjálfur örendur á fsnum dagÍDn
eftir. Harðneskjuveður með kaf-
aldi var um daginn og nóttina. —
Maður druknaði 12. þ.m., Guðm.
Jónsson frá Ulfljótsvatni f Grafn-
ingi. Hann rak fjárhóp yfir ís á
vatninu, en ísinn brast og týndist
margt af fénu ásamt fjármanni.
Sakir þess, að við undirritaðir
höfum fengið nokkur nafnlaus bréf,
er snerta ýms almenn mál, sem vert
væri að ræða frekar en bréfaritar-
inn gjörir, óskum við eftir að hann
vildi veita okkur þann heiður, að
ræða mál þessi við okkur munn-
lega, svo að við getum nánar kynst
tilgangi hans með bréfum þessum.
Vinsamlegast,
STTRKÁRR V. IIELGASON
WM. ANDERSON.
VANTAR
KENNARA Til Laufas
SchoolDist. No.
1211., frá 1. ap-
rfl til 30. júnf (3 mánuði). Skrif-
leg tilboð sendist til nndirritaðs
fyrir 15. Marz næstkomandi, og að
þau tiltaki menta stig og hvaða
kaup óskað er eftir.
Geysir Man., 1). febr. 1905.
Bjcirni Jóhannsson.
Herra Bergur Jónsson, frá Bald-
ur, sem hér var í borginni f vik
unni sem leið,óskarað fá vitneskju
um hvar Bergur Benediktsson frá
Einholti í Mýrarsveit í Hornafirði
á Islandi er niðurkominn. Þeir,
sem kynnu að vita um f>etta, geri
svo vel að senda Bergi skeyti um
það á póstspjaldi.
Þessir eiga bréf á skrifstofu
Heimskringlu:
Tho'steinn Johnson.
Kristín Magnúsdóttir.
Elisabet Felixdóttir.
S. Eymundson.
Miss Marja Jósepsdóttir.
Miss Emma Halvorson.
Eggert Jóhannsson.
Sigurjón Andersson.
W. Thompson.
HINN AQŒTI
‘T. L/ Cigar
er laugt á undan, menn ættu ekki að reykja
aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá :
í WESTERN CIGAR FACTORY
S Thos. Lee, eigandi, 'WILIISriISriIF'IEQ-.
---------------------------j
DEPARTMENT OF AGRICULTURE J
AND IMMIGRATION 5
MANITOBA
með jámbrautakerfi sfnu, sem veitir bændum létt að koma
landafurðum sfnum til markaðar, b/ður óviðjafnanlega hagn-
aðarkosti öllum f>eim sem verja fé sfnu í fylkinu.
Fylkisstjórnarlönd eru ennþá fáanleg fyrir $3.00 til $6.00
hver ekra.
Ræktuð búlönd í öllum hlutum fylkisins fást keypt fyrir
$10.00 til $40.00 hver ekra.
Þessi lönd fara árlega hækkandi f verði.
NOKKRAR RÁÐLEGGINGAR
Hyggilegasta aðferðin fyrir J>á, sem koma til Manitoba
með þeim ásetningi að fá sér búlönd, er að vera nokkra daga
í Winnipeg og kynna sér legu og gæði landa þeirra, sem fáan-
leg eru, hvort heldur til kaups eða sem heimilisréttarlönd.
Til eru hcruð, sem hafa verið bygð um margra ára tíma,
þar sem enn má fá heimilisrettarlönd og lönd til kaups. Sum
af löndum f>essum eru sléttur, sem hægt er að rækta með litl-
um tilkostnaði, og sem hafa eins mikla frjósemi til að bera og
þau lönd, sem bezt eru þeirra er áður eru tekin. Önnur lönd
hafa góðar byggingar og eru yrkt að parti, svo auðvelt er að
setja sig niður á þau.
Til eru fylkisstjórnarlönd og rlkisstjómarlönd og jám-
brautarlönd, sem enn eru fáanleg.
Verðið er mismunandi. Frá $3.00 til $40.00 ekran. Verð-
ið fer eftir afstöðu landanna og í tilliti til timburs, vatns, járn-
brauta og kauptúna, er á þeim eru eða í grend við þau.
Allar upplýsingar um heimilisréttarlönd fást á Dominion
Land skrifstofunni.
Upplýsingar um fylkisstjórnarlönd fást á Þinghúsinu.
Upplýsingar um C P.R. og C.N.R. járnbrautalönd fást á
sknfstofum þessara brautafélaga.
Landagentar gefa upplýsingar um landeignir einstakra
manna.
Upplýsingar um atvinnu gefur
J. J. GOLDEWT,
Provincial Immigration Bureau,
617 Main St., Winnipeg
BOYD’S
“MACHINE-
MADE”
BRAUD
eru altaf
eins, bæði
holl og gómsæt
Ef þú vilt fá brauð, þá er
hægast að láta þá vita
það gegnumtele-
fóninn, núm-
erið er 1030
KJÖRKAUP
Bezta gróðafyrirtæki viðvíkjandi
bæjarlóða kaupum í Winnipegborg
getið pið fundið út hjá
Q. J. COODMUNDSSON
618 Langside St„ Winnipeg, Man.
DOMINION HOTEL
523 IÆ^A.ITV ST.
E. F. CARROLL, Eieandi.
Æskir viðskipta íslendinga, gisting ódyr, 40
svefnherbergi,—ágætar máltíðar. Þetta Hotel
er gengt City Hall, hefir bestu vlföng og Vindla
—þeir sem kaupa rúm. þurfa ekki nauðsvnlega
að kaupa máltíðar, sem eru seldar sérstakar.
Qonnar & Hartley
Lögfræðingar og landskjalasemjara?
494 Slain St, -- - Winnipeg
R. A. BONNER. T. L. HARTLBY,
Giftingaleyfisbrjef
selur Kr. Ásg. Benediktsson,
372 Toronto Street
I---------------------1
| Dry Góods j
Grocery j
i búð, 668 WelliHgton Avenue, S
' rerzlar rneð alskyns matvœli, •
, aldini, glervöru, fatnað oc fata- *
i efni, selur eins ódýrt eins og ó- (
dýrustu búðir bæjarins og i
i i
gefur fagra mynd
í ágætum ramnoa með gieri yf- '
ir, með hverju $5.00 virði sem [
keypter. íslendingum er beut
á að kynna sér vörurnar og i
verðið í þessari búð.
--- '
J. Medenek,
66S Welliaigton Ave^|
Woodbine Restaurant
Stærsta Billiard Hall i Norðvesturlandin
Tlu Pool-borö.—Alskonar vín ogvindlar.
I.ennon A llebb,
Bieendur.
MARKET H0TEL
146 PRINCESS ST.
A móti markaðnum
P. O’CONNELL, eigandi, WINNIPEQ
Beztu teRundir af vínföngnm og vindl-
um, aðhlynning góð og húsið endur-
bætt og uppbúið að nýju
Heimskringla er kærkom-
inn gestur á íslandi
Skrifid eftir
Verðlista
íslenzkir verslunarmenn
i Canada ættu að selja
SEAL OIE1 MJÁLsTITOBA. Vindla ♦