Heimskringla - 23.03.1905, Blaðsíða 1

Heimskringla - 23.03.1905, Blaðsíða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ T. THOMAS Islenzkur kaupmaOur salur Kitl og Kldivitl Afjireitt tijótt og fullur inælir. 537 Ellice Ave. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Phone 2620 ♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ T. THOMAS, kal’pmaður I ♦ nmboössali fyrir ýms verzlnnarfélög ^ 1 Winnipeg og Austurfylkjunum, af- f J greiöir alskonar pantanir lslendinga J J Ar nýlendunum, peim að kostnaöar- J J lausu. Skrifiö eftir upplýsingum til J ♦ 537 Ellice Ave. - - * Winniþeg * ♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ XIX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 23. MARZ 1905 Nr. 24 PIANOS og ORGANS. Ileintzman & Co. Pianosi.-Kell Orgel. Vér seljom med mánaðarafborgunarskilmálum. J. J. H. MoLEAN & CO. LTD. 330 MAIK St. WINNIPEG. NEW YORK LIFE Insurance Co. Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upphæð $342,212.569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón- um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millíónir dollara var borgað fyrir 6000 dánarkröfur. Y fir 20 mill. til lif- andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini peirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél. hækkuðu um 8£ millfón. — Sjóður pess hækkaði um 38 millfónir, er nú $390,660,260.— Lífsábyrgð í gildi hækk- aði um $183,396,409. Öll lffsábyrgð 1 gildi 1. Jan. 1905 $1,928,609,308. CHR. ÓLAFSSON, J. G.MORGAN, AGENT. WlNNIPEG MANAGER Arni Eggeitsson 071 ROSS AVENUE Phone 3033. Wlnnlpeg. Agæt bújörð Eg hefi ágætis bújörð til sölu við íslendingafljót, 180| ekrur. Ein af beztu bújörðum í því bygð- arlagi. Liggur rétt meðfrnm fljóts- bakkanum. Talsverður heyskapur og einnig skógur; ágætis jarðvegur. Verðið að eins $650.22 Eignir hér í bænum teknar í skift um. Til frekari upplýsinga skrifið eða finnið Arni Eggertsson Offlce: Room 210 Mclntyre Blk Telephone 3364 Fregnsafn Markveröustu viðburðir hvaðanæfa. STRIÐS-FRÉTTIR Þann 13. þ. m. háðu Japanar á- hlaup á her Rússa hjá Sin King og ráku þá úr vígum þeirra með miklu mannfalli. Þar náðu Japan- ar 2200 riflum, 6 “machine” fall- byssum, 320,000 rifiilskotum, 11,500 fallbyssukúlum, 12,000 bindum af gaddavfr og fullum forða af alls konar efni til að byggja 30 mflur af járnbraut, ásamt með fjölda af vögnum, sem ætlaðir hafa verið til að renna eftir þessari braut; einn- ig 10 vögnum hlöðnum með 45,000 alfatnaði fyrir hermenn, svo og allan vélaútbúnað til þess að vinna samtímis 8 kolanáma, og 4000 stór- tré til brúagerðar. Enn fremur náðu Japanar þar mesta ógrynni af áhöldum til vfgvirkjasmfða, ásamt með mesta fjölda af færikvfum fyr- ir s'kepnur, tjöldum, rúmfatnaði og eidavélum, auk margra þúsunda af nautum og hestum og ógrynni af landabréfum og telegraf og telefón áhöldum. Enn er þó ó^alið alimik- ið af verðmætu herfangi, sem Jap- anar hafa náð 6 öðrum stöðum, svo sem við Fun Shun og Tei Ling og vfðar; ekki komin skýrsla um pað, er seinast fréttist, en fað er vitan- legt, að herfang þetta var mjög mikið En alt af halda Rússar áfram að fylla í skörðin, og er svo sagt, að þeir^sendi nú daglega með Sfberíu- brautinni yfir 15 þús. tons af alls konar varningi og matvælum, og svo er umferð mikil á brautiuni, að yfir 2000 vagnar hlaðnir ýmiskonar hergögnum og öðrum nauðsynjum standa albúnir 4 hliðarspori á þeim kafia brautarinnar, sem liggur milli Samara og Slatoust, og standa f>eir þar kyrrir, — komast ekki áfram fyrir umferð annara vagna, sem tal- ið er meira árfðandi, að komist austur. Þess er og getið, að langir kaflar á brautinni séu svo úr lagi gengnir, að nauðsynlegt sé að byggja þá upp að nýju áður en vagnar geti gengið eftir þeim reglu- lega. Þetta stendur Rússum ekki all-lítið fyrir þrifum,að koma livorki mönnum, vistum né vopnum austur eins ört og þörf er á. Kuropatkin hefir sent orð til Pétursborgar þess efnis, að ekki sé unt að etja við Japana, því þeir virðist alt af hafa nægan afla af ó- lúnum mönnum, en sfnir menn séu orðnir úttaugaðir. Hann mælist og til, að rússneska þjóðin taki upp almenna bænahaldsfundi og biðji fyrir sér og hermönnum sínum, að Rússar mejji vinna sigar. Þetta var auglýst um alt Rússland f þessum mánuði með sérstökum augl/singa- skjölum, skreyttum svörtum sorg- arborða. Eu áhrif bænarinnar eru enn ekki áþreifanleg, þvf að á mið- vikudagskveldið þ. 15. þ. m. tapaði Kuropatkin öðrum stórbardaga við Tie skarðið, því þangað hafði hann flúið með lið það, er undan komst úr Mukden orustunni miklu og sem Japanar höfðu elt að skarðinu. Ráðstefna mikil hefir haldin verið í St. Pétursborg og þar samþykt, að lialda sírfðinu áfram til þrautar, — ef mögulegt ýrði að fá nóg pen- ingalán til þess. Auðmenn á Frakk- landi, sem þegar eru búnir að lána Rússum ógrynni fjár, hafa neitað að lilaupa aftur undir bagga, með þvf að Rússar noti alt lánsfé sitt til hergagna sem svo falli í hendur Japana; f þvf sambandi benda þeir einnig á, að þau 62 skip, sem Rúss- ar sendu með kol til Vladivostock hafi lfka verið tekin af Japönum. Á þessu stranda nú framkvæmdir Rússa að svo kornnu. Rússarfengu í fyrra 160 millíón dollara lán hjá Frökkum, ereiga nú alls lijá Rúss- um um 3000 millfónir dollara. Og nú biðja þeir um 125 millíón doll- ara lán í viðbót, sem Frakkar neita þeim um, eins og að framan er sagt, nema þeir semji um frið sem fljót- ast, þvf að útséð sé um. að þeim verði sigurs auðið f þessu strfði. Frá Tokio kemur sú frétt þ. 16 þ. m., að Japanar hafi þegar náð yfir 50,000 föngum úr her Rússa og drepið yfir 90 þús. af liði þeirra f stóra bardaganum við Mukden, og sært að minsta kosti 26,000. Jap- anar eru nú að flytja fangana heim til Japan og á að geyma þá þar, eitt þús. á hverjum stað, uhz friður kemst á aftur. Þess skal getið, lesendum til fróð- leiks, að Mukden er að eins 6 dag- leiðir frá Tokio, en 16 til 20 dag- leiðir frá St. Pétursborg. Japanski herinn fer frá Tokio til Mukden alla leið á sjó nema 110 mílur, sem farnar eru á járnbraut frá næstu sjóhöfn. En Rússar verða að fara hálft fimta þús. mílur með braut. Af þessu er það ljóst, livers vegna Japanar eru ólúnari en Rússar, þeg- ar á vfgvöllinn kemur, og 'eins verð- ur það skiljanlegt, að Japanar geta sent miklu meiri herafla á vfgvöll- inn en Rússar á jafnlöngu tímabili. Þvf svo má heita, að Japanar hafi ótakmarkað tækifæri til flutninga þangað norður, en flutningsfæri Rússa eru öll í ólagi og vegalengdin er þeir þurfa að sækja, svo miklu meiri. Og þaraðauki er almælt, að yfirmenn í her Rússa dragi óspart í sinn vasa fé það, sem ganga á til herkostnaðar. Slðustu fréttir segja, að Rússar ætil að senda 55 herskip austur, en ekki vita menn fyrir vfst um sönn- ur á þessu. Hitt er vlst, að 22 jap- önsk herskip sáust að kveldi 16. þ’ m. við mynnið 4 Malacca sundinu, og hafa menn fyrir satt, að þaueigi að sitja fyrir Rússum og hefta ferð þeirra austur. Þ. 17. fréttist, að Japanar hefðu unnið annan stórsigur á Rússum við Tie Pass' en áður en þetta skeði liáðu Japanar bardaga við Rússa hjá Fan ánni og töpuðu þar þúsund manns. Er mælt að Japanar hafi offrað þannigmönnumsfnum f þeim tilgangi, að draga athygli Rússa frá aðal-fylkingum þeirra, sem lagt höfðu aðrar leiðir norðnr fyrir Tie Pass td þess að sitja þar fyrir Rússum, er þeir kæmu þangað. En svo urðu Rússar tæpt fyrir, eftir sigurvinning sinn við Fan ána, að þeir neyddust til að brenna öll þau áhöld sín, sem þeir gátu eldi í kom- íð, til þess að Japanar skyldu sem minst græða á viðureigninni. Þann 17. þ. m. gaf Rússakeisari lit yfirlýsingu með fyrirsögninni “Svfvirtur”. Þar er þess getið. að Kuropatkin hershöfðingi liafi verið sviftur formensku rússnesku hcr- flokkanna í Manchuriu og sé tafar- laust kvaddur heim til Pétursborg- ar. En herforingi Linevitch sé hér eftir skipaður aðalforingi yfir öllum her Rússa á sjó og landi þar eystra Giullnámi sá náíægt Sault Ste. Marie í Ontario, sem nýlega var fundinn þar, hefir reynst svo góður, að eigendur hans hafa neitað að þiggja millfón dollars í peningum, sem enskt auðmannafélag bauð fyr- ir hann. — Gömul vatnskanna frá 16. öld fanst nýlega í rusli f kjallara undir Búsi auðmanns nokkurs á Bret- landi. Kanna þessi þótti svo merki- leg, að hún var seld við opinbert uppboð og slegin hæztbjóðanda fyrir 21 þúsund dollara. — Loftgólfið f Zion kirkjunni í Brooklyn brotnaði nýskeð undan þunga fólksins, sem sótti þar messu. 13 manns biðu strax bana og yfir 50 særðust, margir hættulega. — Kirkjan var 60 ára gömul og úr timbri. — “Coronia” heitir n/asta gufu- skip Cunard lfnnnnar, og er talið hið stærsta skip, sem nú siglir nokkurn sjó. Skip þetta cr ^'75 feta langt, 72| fet á breidd og 97 feta djúpt frá kyli upp að dekkbrú. Svo eru reykháfarnir gildir, að 2 strætisbrauta vagnar geta staðið samhliða í hverjum þeirra. Þessir reykháfar eru 150 feta háir. Bolt- arnir, sem þurftu til að negla sam- an stálplötur skipsins, vógu 600 tons. Skipsskrokkurinn að utan er jafn 3 ekrum ummáls. Skipið ber 30,000 tons og 3l00manns, auk skipshafnarinnar, sem er550 menn. Skip þetta er með þeim allra hrað- skreiðustu skipum, sem nú ganga yfir Atlantshaf. Jarðskriða féll á hús eitt f Inns- bruck, Austurrfki,ogvarð6 bömum að bana. Annað fólk var í húsinu en náðist úr þvf lifandi þegar húsið var grafið úr rústum skrið- unnar. — Port Arthur bær í Ontario, lætur nú strætisbarutavagna sfna ganga á sunnudögum, jafnt og öðr- um dögum, ekki aðeins um göt- urnar f Port Arthur heldur einnig f Fort William, í trássi við bann borgarstjórans þar. Út af þessu er talið víst að mál muni rfsa milli bæja þessara. Það verður fióðlegt að athuga hvernig þvf líktar. — Mrs Chadwick, sem verið hefir fyrir rétti í Cleveland um nokkura undanfarna daga, fyrir skjala fölsun og peninga svik, hefir verið dæmd cek. Dómur er enn ekki fallinn f máli hennar. — Rússastjórn hefir rekið' 40 þúsundir manna frá atvinnu við vopna og skotfæra verksmiðjur sfn- ar, og sett hervörð til að gæta verk- stæðanna Orsök til þessa er sú, að stjórnin er orðin leið á verkföll- um þéim sem menn hennar hafa verið að gera svo að segja stöðugt í sl. ár, og af því hún vill með engu móti sinna pólitiskum kröfum mannanna. Ospektir nokkrar hafa orðið út af þessu. 5 verkfallsmenn voru skotnir til bana og 15 særðir. Kröfur mann- anna eru meðal annars, að stjórn- in geri alt land að þjóðeign, sömu- leiðis iðnaðar stofnanir og að rit og málfrelsi verði tafarlaust viður- kent af stjórninni. — Maður f Brantford, Ont. sem f sept. 1903 svfvirti og myrti 9 ára gamalt stúlkubarn, var í sl. viku dæmdur í æfilangt fangelsi og til 75 vandarhagga-h/ðingar, hengdi sig í fangelsinu daginn eftir að hann var dæmdur. — Alexander Martin í Toronto var Ifflátinn 10 þ.m. fyrir að drekkja syni sfnum, fárra mánaða gömlum, f Ontario vatni þann 3. ágúst s. 1. Hann meðgekk að sfðustu glæpinn. Skeyti var sent til Edwards kon- ungs og hann beðinn að náða mann- inn, en það hafði engin áhrif. —Lögreglan f Marseilles á Frakk- landi náði nýlega 6 rússneskum anarkistum, sem voru meðnefndar- menn uppreistar nefndarinnar í Moscow. Skjöl þau, sem fundust á mönnum þessum, sýndu að þeir höfðu r.mboð frá uppreistar-nefnd- inni til að drepa Grand Duke Alex- is og Vladimir, náfrændur keisar- ans, og að þeir hefðu átt að fara frá Marseilles f þessa di ápsför 2 dögum eftir að þeir voru handteknir. — Þetta er prógram anarkista um all- an heim: dráp, dráp! — 80 ára gamall maður fanst ný- lega standandi uppréttur með staf f hendinni nálægt heybólstri úti á landi f grend við bæinn Syracuse í N. Y. rfki. Hann var frosinn og löngu dauður, er hann fanst. — H. A Mullins, fyrrum þing- maður í Manitoba þinginu fyrir Dauphin kjördæuaið, seldi nýlega 66,500 ekruraf landi f Alberta fyrir Cochrane landfélagið, til Banda- ríkja auðmanna, fyrir $400,000. — Kona f St. Lousis. sem tveir læknar og ein hjúkrunarkona sögðu dauða og gáfu vottorð uui það, er enn þá lifandi. Skyldmenni kon- unnar töldu efa á danða hennar og fengu læknir til þess að sprauta saltblöndu inn í æðar hennar, og það lffgaði hana við, svo hún er nú á.góðum batavegi. — Uppreistarmenn íChornigoff, Oreland og Kurslo héruðunum á Rússlandi, æða nú með báli og brandi yfir landið, brenna stóreign- ir og ræna öllu, sem hönd á festir. Eitt sykurgerðar verkstæði brendu þeir upp til ösku, og er sá skaði metinn eigendunum 44 millfón doll- ars. Stjórnin hetír sent herafla inn í þessi héruð til þess að verja Iff og eignir fbúanna þar. En brennn- vargar þessir ferðast um alt í smá- hópum, svo ekki er hægðarleikur að festa hönd á þeim. Eldunum heldur stöðugt áfram. — Eldur kom upp í stórhýsi einn f St. Paul, þ. 13. þ.m., og gerði 80 dollara eignatjón. — Stórhýsi f New York borg, sem yfir 2 hundruð manna bjuggu í, brann til ösku þ. 14. þ.m. Nítján manns brunnu þar inni f augs/n fjölda fólks, sem ekki fékk bjargað þeim. En yfir 40 brunnu til skemda, þó flestir þeirra séu lfklegir að halda lífi. Það er álitið, að eldur- þessi liafi verið af völdum brennivarga. —Methodista prestur nokkur, J. F. Cordova, í New Jersey, var n/- lega dæmdar fyrir að yfirgefa konu sína og 3 börn þeirra hjóna og fyrir að strjúka burt með ungfrú einni, Julia Browne. Þessi sami prestur er nú á ný fyrir dómi fyrir að hafa barið konu sfna. — Borgarstjóri Wm. Godwin í Steelton, Ont., hefir verið sviftur öllum borgara-réttindum um 8 ára tíma fyrir að taka ólöglegan þátt í Ross kosningunum 1 Ontario f vetur. — Jafnvel Þjóðverjar, sem ann- ars hafa verið Rússum hlyntir í viðureign þeirra við Japana, frá því fyrsta, eru nú f blöðum sínum farn- ir að kalla þá, “frændur vorir, Jap- anar.” Þetta er það sama, sem landar vorir f Reykjavfk tóku upp f fyrra. Það má ætla, að “ frænd- þjóðunum” fjölgi eftirþvf sem Jap- anar vinna fleiri og frægri sigra á Rússum. — Sextíu ára gamall ekkjumaður fanst frosinn f hel í húsi sfnu f St. Thomas, Ont., þ. 12. þ. m. Hann var síðast séður daginn áður, þá blindfullur, liefir eflaust sofnað 4 gólfinu og látist þannig. Kona manns þessa fraus á lfkan hátt í hel í sama húsinu fyrir 2 árum. — Herra Marconi sk/rði frá þvf í Lundúnum þ. 9. þ. m , að hann hafi uppgötvað n/ja aðferð við mót- töku loftskeyta. Áður var að eins hægt að veita móttöku 24 orðum á mfnútu, en nú með þessari nýju að- ferð getur hann veitt móttöku 100 orðum á mfnútu. Orðin færast úr loftinu á borð eða ræmu úr ein- hverju þar tilgerðu efni, og þarf ekki að sinna þvf verkfæri öðruvfsi en að setja n/ja ræmu í það jafnótt og sú fyrri tekur enda. — Innflutningur frá Austurfylkj- nnum til Manitoba og Norðvestur- landsins er nú hafinn fyrir fulla al- vöru. Um tvö þúsund manns komu hingað frá Ontario í sfðastl. viku. Það fólk alt ætlar að taka sér ból- testu hér vestra. — Sextfu og tvær bænarskrár, undirritaðar af hundrnðum þúsunda manna, hafa verið sendar Laurier stjórninni tilandmæla móti sérst "'k- um skólum hér í Vesturlandinu. Líklegt er talið, að stjórnin neyði ekki lögum þeim gegn um þetta þing. — Brú yfir Los Angelos ána í Califomfu féll niður þ. 13. þ.m., og með henni 14 manns, er allir drukn- nðu. Flóð var í ánni og þyrftist fólk að henni til að sjá vatnsgang- inn, en að eins þessir fáu voru úti 4 henni, er hún féll. Búist er við, að áin muni brjóta af sér fleiri brýr, og hefir því lögreglan verið sett á vörð til að gæta þess, að eagin um- ferð sé nm þær, þar til hættan af völdum flóðsins er um garð gengiu. Einnig hefir orðið 200 þús. dollara skaði á tveimur hafnarstöðum þar f rfkinu. Lestagöngur á jámbraut- um hafa stansað 4 snmum stöðum og tal- og fréttiþræðir skemst. — Sir William Macdonald hefir gefið 2 millfónir dollara til að bæta alþýðumentun og æðri mentun í Quebec fylki. Þar með eru taldir búnaðar og verkfræða skólar, einn- ig skólar til að kenna náttúrufræði, Anðmaður þessi lætur þess getið, að sjái liann góðan árangur af gjöf sinni, þá sé hann þess albúinn að gefa Quebec fylki aðrar 2 millíónir llara til þess að stækka enn meir rksvið þessara kenslustofnana. — Málaþras og verzlunarkepm milli stór-kjötverzlara í Chicago er nú á dagskrá. Fimm stærstu kjöt- salar borgarinnar hafa myndað ein- okunarsamtök með þeim ásetningi, að eyðileggja kjötverzlun 26 ann- ara stór-kjötsölufélaga þar f borg- inni. Rannsókn f máli þessn á að hefjast þar f dag, og blöðin segja, að 3 millfónir dollara hafi þegar verið lagðar f sjóð til þess að stand- ast kostnað við þá rannsókn, svo að almenningur fái að vita, hvemig þessir 5 stóru einokendur hagi verzlun sinni og hvers konar áð- ferð þeir beiti til þess að eyðileggja þá 26 kaupmenn, sem vilji selja vörur sfnar með sanngjörnu verði. — Dominion-stjórnin hefir sett þingnefnd til aðrannsakastarfsemi telephone félaga 1 öllum pörtum Canada og lög þau, er þau vinna undir f hinum ýmsn fylkjum. Sir W. Mulock lét þess getið, að hann áliti rétt, að félög þessi væra índir umsjón rfkisstjórnarinnar. — Frá Ottawa kemur frétt um, að Bandarfkjastjórn hatí gert tilboð um að kaupa út fiskiveiða-réttindi Canadamanna í Bæringssjó, og sé fús til að borga 3 millíónir dollara fyrir það. Mál þetta er sagtað bráð. lega muni rætt verða af ráðaneyti Lauriers, en ekki talið liklegt, að boðið verði þegið. — Arabiskir uppreistarmenn náðu á sitt vald í sl. viku bænum Sahas f Yemen héraðinu. 5,000 hermenn, sem þar voru, gáfust upp fyrir uppreistarmönnum. Fiisteigiiasala Lag: L'ifið d bauk tr sto iiómandijiott I Mdntyre höllinni margt gengur á, Magnús og Kristján þar g/juna slá. Nætnr og daga er dynjandi ös, dalirnir liggja sem fiskur í kös. Hallir og kofa, og lóðir og lönd 1/ðnum þeir selja mót borgun í hönd; hjá þeim er viðskifta vegurinn . hreinn, verðið svo lftið, það munareineinn. I Mclntyre höllinni margt er að sjá mikil er ösin þeim félögum hjá. Tveir, einn og nfu er númerið það nú sem að drengirnir lialla sér að. MARKUSSON &. BENEDICTSSON Skrifstofa: SÍI9 Mclntyre Block. Telephone 2986.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.