Heimskringla - 30.03.1905, Side 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS
♦ lslenzkur kaupmaOur ♦
♦ selur K.<»1 og Kldivitl ♦
J Afgreitt fljótt og fullur inwlir. J
t 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦
♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦
♦
♦
♦
T. THOMAS, kaupmaður
umboössali fyrir ýms verzlunarfélög
1 Winnipeg og Austurfylkiunum, af-
freiöir alskonar uantanir lslendinga
r nýlendunum, beim aö kostnaöar-
lausu. Skrifíö eftir upplýsingum til
537 Ellice Ave. - - - Wimiiþeg
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 30. MARZ 1905
Nr. 25
PIANOS og ORGANS.
Heintxman & €o. Pianos.-Bell Orgel.
Vér seljum með mánaðarafborgunarskilmáiuro.
J. J. H MeLEAN & CO. LTD.
530 MAJN St. WINNIPEG.
Arni Eggertsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. Winnipeg.
Agæt bújörð
Ég heíi ágætis bújörð til sölu
við íslendingafljót, 180| ekrur.
Ein af beztu bójörðum f því bygð-
arlagi. Liggur rétt meðfram fljóts-
bakkanum. Talsverður heyskapur
og einnig skógur; ágætis jarðvegur.
Verðið að eins
$650.22
Eignir hér f bænum teknar í skift
um. Til frekari upplýsinga skrifið
eða finnið
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blk
Telephone 3364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRlÐS-FRÉTTIR
Japanar hafa náð 6 brezkum
gafuskipum, hlöðnum kolum fyrir
Vladivostock. Af skipum þessum
hafa Japanar náð 25 þús. tons af
kolum, ásamt öðrum nauðsynjum.
Sömuleiðis náðu f>eir miklu af her-
gögnum og matvælum í Tieling vfg-
inu, sem þeir unnu þ. 17. f>. m. En
þó voru Rússar þá búnir að brenna
upp tvo þriðju hluta af eignum sín-
um þar áður en Japanar náðu vígi
þessu.
Herdeildir beggja þjóða keppast
nú um að komast sem fyrst til Har-
bin. Japanar hafa elt Rússa 100
mílur norður um land á sl. 9 sólar-
hringum og láta vel yfir árangrin-
um. Japanar mistu stórt herskip
við strendur Kfnlands í sl. viku.
Herforingi Oyama er sagt að hafi
lofað mönnum sfnum því, að þeir
skyldu verða f Harbin 10. n. mán.
Þann 21. þ. m. náðu Japanar enn
brezku herskipi, sem var að flytja
kol til Rússa f Vladivostock.
Þann 24. þ.m. kom sú frétt frá
Pétursborg, að vel geti komið fyrir,
að Rússar verði að yfirgefa Harbin,
þótt herdeildir þeirra komist þang-
að óhindraðar, og neyðist þannig
til að eftirláta Japönum alla norður
Manchuriu og Amur hérað Rússa.
En samt þykjast Rússar ætla að
senda austur bráðlega um 200 þús.
vfgra manna og nóg af skotvopnum
og matvælum til að byrgja Vladi-
vostock upp til tveggja ára.
Rússar hafa fengið 100 millíón
dollara lán heima fyrir, þvf aðrar
þjóðir vildu ekki lána þeim. En
“dýrt var drottins orðið”: verða að
borga $1.00 fyrir hver 86c, auk 5
prócent árl. vexti f 50 ár. En haldið
geta þeir uppi ófriðnum meðan
þessir skildingar endast.
Sagt er, að Japanar séu að fá 150
millíón dollara lán hjá brezkum og
Bandarfkja auðmönnum. En jafn-
framt er þess getið, að stórveldin,
sem nú eiga ógrynni fjár hjá báð-
um þjóðunum, séu farin að koma á
samtökum sfn á milli til þess að
binda enda á ófriðinn, svo trygging
fáist fyrir borgun lánanna f gjald-
daga. Rússnr eru þegar búnir að
eyða um 1000 millfónum dollara í
hemað þenna, og þykir rússneskum
alþýðumönnum, sem von er, að þvi
fö hefði verið betur varið með því,
að leggja það til vegabóta, brúa-
gerða og alþýðu mentamála, og
hefði þá hvert hérað f landinu feng-
ið sem næst 10 millfónum dollara
f sinn hlut.
Nákvæmar skýrslur stjórnarinnar
í Tokio sýna, að í Mukden bardag-
anum mikla mistu Japanar 50,000
manna, en Rússar alls 175,000.
Eitt af blöðum Rússa, sem sér-
staklega ræðir hernaðarmál, hefir
nýlega birt prívat skýrslur hermála-
deildarinnar, og sýna þær, að frá
þeim tíma sem stríðið hófstog fram
að 12. þ.m. hafði stjórnin sent móti
Japönum 13,037 herforingja og
761,457 hermenn, eða alls nær 800
þús. hermanna, 146,408 hesta, 1521
fallbyssur og 316,321 tons af mat-
vælum og skotfærum og öðrum her-
gögnum. Blaðið játar, að Japanar
hafi þegar drepið, sært og fangað
um hálfa millíón rússneskra her-
manna, og náð undir sig miklu af
hergögnum Rússa og matarforða.
En þetta er sama sem að segja, að
Japanar liafi lagt að velli, sært og
fangað yfir eitt þús Rússa á hverj-
um degi að jafnaði síðan strfðið
hófst. Blaðið viðurkennir einnig,
að Rússar hafi ekki metið firæði og
herkænsku Japana áður en stríðið
hófst eins og þeir hefðu átt að gera,
en segir jafnframt, að öll vopn
Rössa hafi verið betri en Japana,
ef herinn hefði kunnað að nota sér
þau. Grein þessi liefir vakið hina
mestu eftirtekt, ekki að eins f Ev-
rópu, heldur í öllum öðrumlöndum.
Og telja margir rangt af blaðinu, að
opinbera þetta eins einarðlega og
það hefir gert það. En blaðið hefir
þá afsökun, að allur heimur viti nú
ástandið, þess vegna sé nú láns-
traust Japana svo got'., að þeirgeti
fengið fé hvar sem þeirvilji og með
betri kjörum en nokkru sinni fyr;
en lánstraust Rússa sé þrotið, nema
hvað einstöku auðugir föðurlands-
vinir hjálpi hermáladeild landsins
um nokkurt fé móti okur vöxtum
og með öðrum þvingandi skilmál-
um. Blaðið telur því röttara, úr
þvf sem komið er, að Rússar reyni
að semja frið hið allra fyrsta og
komi þannig í veg fyrir frekari ó-
farir, vanvirðu og vantraust meðal
heimsþjóðanna, en þegar sé orðið.
Má af þessu ráða, að stjórnin er
alvarlega farin að hugsa um, að
biðja litla Japana vægðar, og jafn-
vel talið, að ekki sé vonlaust um,
að algerður friður komist á maf
næstk., ef Japanar verða ekki alt
of harðir f sáttakröfum sfnum.
Enn er talið að Rússar hafi 300
þús. manna eystra, en þeir hafast
lítið annað að, en flýja undan Jap-
önum, og þykir blaðinu það borga
sig illa fyrir þjóðina, að gera þá út
með nesti og nýja skó, og halda
þeim þar eystra að eins til þess að
flýja undan Japönum og eyðileggja
um leið eignir sínar í millión doll-
ara tali, og láta um leið af hendi
lönd, sem Rússar hafa f hálfan
mannsaldur verið að byggja upp
með ærnum tilkostnaði, og stórum
vaxandi þjóðskuld, sem komandi
kynslóðir mega borga
Konungar Breta, Þjóðverja og
Spánar, heiðruðu söngfræðinginn
Manuel Garcia, á hundrað ára af-
mæli hans, með gull medallu og
konunglegum heiðurs-merkjum.
Hann þáði og heimboð hjá Edwarð
konungi við það tækifæri, og var
þess utan heiðraður af mörgum
söngfræðis félögum í Evrópu.
Þýzkalands-keisari gerði út sér-
stakan sendiboða til þess, að af-
hendrf gamla öldungnum heiðurs-
gjöf sfna.
— 5 stórhýsi í New York brunnu
til ösku um sfðustu helgi, lfftjón
varð ekki.
— ítali einn í New York, að
nafni Romano, stefndi nýlega konu
sinni fyrir að hafa helt köldu vatni
yfir sig,meðan hann lág í rúmi sfnu.
Konan bar fyrir sig svolátandi vörn:
“Herra dómari! Ég var leikkona
og mætti bónda mínum fyrir ári
sfðan og elskaði hann strax, og
giftist honum. Sfðan hefir líf mitt
verið reglulegt h.... , bóndi minn
þytur upp frá vinnu sinni á öll-
um tfmum dagsins, til þess að
kyssa mig. Hann kyssir mig á
morgnana og á daginn og á nótt-
unni; hann lætur mig ekki fá frið
til að sofa, en vill verai að kyssa
mig á hverri sekúndu. I nótt er
leið ónáðaði hann mig þar til ég
þoldi ekki mátið lengur, og fór á
fætur; hann reyndi að draga mig
til baka, og þá helti ég vatninu yf-
ir hann.
Ég yfirgaf alt hans vegna, vini,
ættmenni og atvinnuveg, af þvf ég
elskaði hann. Eg elska hann enþá,
en maður getur ekki elskað án þess
að fá stundum að sofa.”
— Sagt er að nýlega hafi fund-
ist gullnámi fyrir austan Emerson
hér I fylkinu. Sagt er að gull sé
þar nægilega mikið til þess að
borga alla væntanlega vinnu við
upptök þess úr námanum
— 30 menn voru sendir frá Ed-
monton þann 16. þ. m., til þess að
höggva út vegastæði alla leið frá
Dawson City til Peace River liér-
aðsinsogEdmonton. Brautin verð-
ur 1000 mflur á lengd og á að
hafa sæluhús á hverjum 20 uiflum.
Dom. stjórnin hefir varið $25,-
000 til þessa fyrirtækis og ætlar að
verja öðrum 25. þús., ef þörf gerist,
til þess að fullkomna brautina,
sem öll á að liggja í Canada landi.
— 1400 skozkir og brezkir inn
flytjendur komu til Halifax þann
19. þ. m. Þeir ætla að setjast að
í Vestur Canada.
— Vábrestur f 2 námum í Vir-
erinia þann 24. þ. m.,varð 24 mönn-
um að bana.
— Fréttir irá Rússlandi segja
uppreistar menn í ymsum borgum
séu teknir að drepa hvem þann
verkamann sem ekki geri verkfall
strax og þeir heimta það. Helst
kveður að þessu f suður Rússlandi.
Uppreistarmenn vaða þar um með
báli og brandi, sprengja upp og
brenna verksmiðjur og auðmanna
byli. Stjórnin er ráðalaus að
stemma stigu þessara ofbeldis-
seggja. 300 menn hafa verið hand-
teknir, en aðrir koma jafnótt í
staðinn.
— Eldgos f Versuvius fjalli,
dynkir heyrast og jarðskjálftar
finnast í 80 mílna fjarlægð frá fjall-
inu.
— Auðmannafélag í Kansas sem
hefir umráð yflr mörgum öflug-
um olíu námum, hélt fund þar
í höfuðborginniþann 19. þ. m., til
að ræða um samkepni við “Stand-
ard Oil”-félagið, 3000 manns voru
á fundinum. en um ákvæði hans
hetir ekki frétst.
— Gufuketill sprakk í skóverk-
stæði f Massachusetts og varð 24
manns að bana, en 50 manns eru
enþá ófundnir, skaði á sjálfu hús-
inu er metinn $200,000.
— Edmonton bær hefir samþykt
að veita G. T, P. járnbr. félaginu
$100,000.00 peninga gjöf, til þess
að setja upp verkstæði sfn þar í
bænum. Undir þjóðeignar stefnu
Conservativa hefðu sllk útgjöld
ekki orðið á íbúum neins bæjar f
landinu.
— Vatnsflóð f Alleghany ánni f
Pennsylvania liafa ollað miklum
skemdum og gert 10. þús. manns
atvinnulausa, jámbrautarspor hafa
sópast burtu, og ymsir hafa * mist
húseig«ir sfnar, jafnvel týnt lffi
sínu í flóðum þessum.
— Farþegjalesta-þjónar ástjóm-
ar járnbrautunum í Italíu, sem
með lögum eru hindraðir frá að
gera verkföll, hafa fundið upp nýtt
ráð til að takmarka vinnu sfna og
starfsmagn brautanna. Þeir hafa
sem sé, tekið upp á þvf, að fylgja
svo nákvæmlega öllum fyrirskip-
unum sem fram eru teknar í starfs-
reglum fyrir brautarþjónana, að
lestagangurer að miklu leyti hindr-
aður. Það er sagt, til dæmis, að
fólk fái ekki keypt farbréf nema
það komi með klipta fargjaldsupp-
hæðina, svo að þjónar braiitarinn-
ar þurfi ekki að gefa býtti, og f
einu tilfelli gekk þetta svo langt að
lestin var 7. kl. tfma að komast
13. mflur áfram, og einum tíma of
sein til að komast afstað. Þetta
“ leti verkfall ” brautar þjónanna
hefir svo æst alþýðu á Italíu, að
sumir þeirra hafa verið stórmeiddir.
Stjórnin hefir enn engar ráðstaf-
anir gert til þess að hindra fram-
halds þessa ásigkomulags.
— Rússar hafa leitað liðs hjá
Þjóðverjum. Svo stendur á, að til
þess að geta sent hálfa millión her-
menn austur til mótvið Japa,
urðu Rússar að taka mikið af setu-
liði sfnu f Póllandi, og til þess að
hindra uppreist af hálfu Póllend
inga, meðan herinn er að heiman
hafa Rússar beðið Þýzkalands
keisara að Ijá sér herdeild til þess
að halda reglu í Póllandi, og er
sagt að Þjóðverjar hafi lofað að
gera það En þetta er í raun réttri
það sama og styrkja herdeildir
Rússa til atlögu mót Jöpnnum.
Samtímis þessari fregn, kemur og
sú, að Rússar söu farnir að stela
möunum f lier sinn og er synt að
á vissum stöðum, þar sem útlend-
ingar koma inn yfir landamæri
Rússa, voru þeir strax teknir með
valdi og sendir til Manchuria.
—Ottawa stjórnin hefir með til-
kynningu, nýlega útgefinni, bann-
að fiskiveiðar í Manitoba vatni,
St. Martin vatni, Portage Bay,
Water Hen, Dog Lake og Shoal
Lake, frá 1. apríl til 30. nov. ár
hvert. Það verður ekki annað séð,
en að fbúunum meðfram vötnum
þessum sé með þessu bannað að
fiska jafnvel sér til matar, þvf að
reglugjörðin segir skírt: “It is
hereby ordered, that no fishing be
allowed in Lakes” osfrv.
— Nýlega skaut upp eyju úr
hafinu f eldsumbrotum suður und-
an Japan. Eyja sú er nær 3.
mflur ummáls og 480 feta há. Jap-
ar slógu eign sinni á eyju þessa.
— 300 rússnejkir bændur réð-
ust nýlega á heimili prinsins í
Scharopan héraðinu í Rússlandi,
og ræntu því sem lauslegt var og
brendu svo höllina. Lögreglan,
sem fengið hafði vitneskju um
áform bændanna, handtók 5 af
leiðtogum bændanna og við það
lenti f skothríð milli flokkanna,
og .féllu þá nokkrir bændur, en
lögreglan hélt föngum sfnum og
flutti þá með sér f fangelsi.
— Einn af ráðgjöfum Bretasagði
f London þinginu fyrir fáum dög-
um, að 350 þúsund manna hefðu
dáið á Indlandi á s. 1. 3 mánuð-
um úr hinni svonefndu Austrænu
sýki. I Bomboy héraðinu einu
höfðu dáið úr sýki þessari nær 320
þúsundir manns sfðan á nyári.
Hann kvað stjómina ætla að senda
nefnd vísindamanna til þess að
grafast fyrir orsakir þessarar bráð-
drepandi syki, og að nefnd sú
skyldi tafarlaust leggja á stað í þá
ferð.
— Dr. Friðþjófur Nansen, heim-
skautsfari, liefir verið á ferð f Bret-
landi undanfarnar vikur.
í samtali við blaðamann f Lund-
únum sagði hann sainbandið með
Norðmönnum og Svfum vera næst
að slitum komið. Hann kvað Svía
vera tollverndarmenn, en Norð-
menn frjálsverzlunar menn, og
þessvegna væri Noregi nauðsyn-
legt að geta annast eigin verzlun-
ar m&I sín, án afskifta Svíanna.
Að þessum tfma hafa verzlunar-
mál beggja landanna verið háð
sömu yfirumsjón, en árið 1902 hafði
þeim komið saman um að slfta
þvf sambandi En nú gengu Svíar
á gerða samninga, og því væri Nor-
egi nauðugur einn kostur, sá, að
segja sig algerlega úr sambandinu
við Svíana, ef þeir halda áfram
að beita Noregi valdslegum ójöfn-
uði.
— Montreal bankinn hefirkeypt
Peoples bankann í Halifax og sam-
einað hann við sig. Kaupverðið var
ein million dollars.
— Ontario stjórnin hefir ný
ega látið taka með valdi 3ooo end-
ur sem skotnar höfðu verið í mani-
toba, á friðunar tíma, og sendar
sfðan austur til sölu þar.
— C.N.R. félagið kveðst verða l>ú
ið að fullgera járnbraut sfna til
Edmonton í Október n. k. Félag
Jetta ætlar að verja millíón dollars
til umbóta í Winnipeg’, og verð-
ur tafarlaust byrjað að beggja
verkstæðin f Fort Rouge, og síð-
ar vagnstöðvarnar miklu sem eiga
að verða á horninu á Main St. og
Broadway.
— Sú frétt berst frá Ottawa, að
jarðfræðingar stjórnarinnar séu
samróma "um að demanta námar
séu norðarlega í Canada, milli stór-
vatnanna og Hudsons-flóans. Enn er
þó ekki sýnt að nokkrir demantar
hafi fundist þaa.
HKIHSKRINGLU ok TVÆR
skemtilegar sögúr fá nýir kaup
endur fyrir að eins SSÍ.OO.
Orð að vestan.
í Heimskringlu dags. 15. des.
1904, er Mrs. Jóhanna Goodman
að burðast með eitthvað sem líkist
þakklœtisyfirlysingu til Bla'ne búa
fyrir gjafir (samskot), er hún hafði
frá þeim þegið. En aðal-áherzlan
virðist þar lögð á, með vel völd-
um og viðeigandi orðum, “mann
vonsku fulla tilverugjöf föður
tveggja drengja sinna, er lofi sér að
hafa alla áhyggju af viðurhaldi
þeirra.” — Svo mðrg eru nú jpessi
orð.
En þar sem hún hefir fengið
meira meðlag með eldri drengnum,
eu hún hefir gert reikningslega
kröfu til, eða gæti með nokkurri
sanngirni gert kröfu til, þá er þetta
ádeiluatriði f ritgerð hennar ekki á
gilduni rökum bygt. Eg mælist
því til, að hún færi sennilega á-
stæðu fyrir þvf, að hún hafi a 11 a
áhyggju af uppeldi hans ein.
En hvað viðvfkur yngri drengn
um, þá ætti hún að feðra hann
með meiri alvöru, en hún hefir gert
til þessa. Skyldi hún nú þurfa að-
stoðar til þessa, þá vildi ég benda
henni á færan manD,sem er “ofeig-
ur sparð”. Hann er fær í mörgu,
ritari góður, sterkur í dulspeki og
faðerni. Lögfróður er hann. svo
að hann er fær um að byrja upp f
Moses-lögum, og — sjá, fer f gegn
um alda raðir, gegn um alt, alt þar
viðeigandi, ofan f miðja Grágás, og
hnýtur hvergi, og má það furðu
kalla á þeirri leið, þvf hann er frem-
ur peialegur. Lengra geri ég ekki
þetta mál að sinni. K. B.
Aths.— Vér höfum ekki viljað
synja Mr. Benson rúms f blaðinu
fyrir ofanprentaða grein, þar eð
hann í prívat bréfi til Hkr. telur sig
meiddan með ummælum Mra.
Goodman 1 Heimskringlu No. 10,
dags. 15. des. sl. En á hinn bóg-
inn er það sýnilegt, að mál þetta er
svo vaxið, að ekki verður gerlegt
að ræða það frekar f þessu blaði.
Hvor málsaðili hefir notið rúms í
blaðinu fyrir eina grein og við það
verður að sitja, að því er Heims-
kringlu snertir. Ritstj.
t
Hinn 24. þ. m lézt að Selkirk,
Man„ Mrs. Sigfríður Thorarensen.
Hún var jörðuð þ. 27. s. m. af séra
Steingrfmi Thorlákssyni.
ALMANAK
(>lafs S. Thoi geirssonar
fyrir árið 1905. Ellefta ár. Verð
25 cents. Til sölu hjá útgefandan-
um og umboðsmönnum hans út
um bygðir íslendinga.
Til íslands
ættuð þér að senda Almanakið til
ættmenna og vina. Ekkert lesmál
er þeim kærkomnara héðan að vest-
an enn landnámssögu-þættirnir
sem verið hafa f Almanakinu sjö
seinustu árin, auk margs annars
fróðleiks, sem í þeim finst. Þau
eru enn fáanleg og kosta 25 cents
hver árgangur. Ég sendi þau livert
sem er án aukaborgunar, að eins
að mér sé send greinileg utanáskrift
jafnframt andvirðinu.
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON,
678 Sherbrooke St.,
Winnipeg, Man.
Alla sem skulda mjer
undirrituðum áminni ég hér með
vinsamlega um að gera svo vel að
borga mér fyrir 20. aprfl næstk.,
sökuin þess að ég hefi áformað að
fara heim til íslands. ef guð lofar, f
mafmánuði þetta ár með öll börn
mín. Með vinsemd og virðingu,
GUÐMUNDUH PKTUItóSON
(frá Shoal Lake).
686 McGee St., Winnipeg, Man.
Nýir kaupendur Heimskringlu fá
sögu í kaupbætir.
Fiisteigiiasala
Lag:- Lífið á bauk er kvo Ijómandifiott
I Mclntyre höllinni margt gengur á,
Magnús og Kristján þar gyjuna slá.
Nætur og daga er dynjandi ös,
dalirnir liggja sem fiskur í kös.
Hallir og kofa, og lóðir og lönd
lyðnum þeir selja mót borgun í
hönd;
hjá þeim er viðskifta vegurinn
hreinn,
verðið svto lftið, það munarei neinn.
I Mclntyre höllinni margt er að sjá
mikil er ösin þeim féliigum hjá.
Tveir, einn og níu er númerið það
nú semað drengirnir halla sér að.
MARKUSSON &
BENEDICTSSON
Skrifstofa: 219 Mclntyre Block.
Telephone 2986.