Heimskringla - 04.05.1905, Síða 1

Heimskringla - 04.05.1905, Síða 1
«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ T. THOMAS ♦ ♦ lglenzknr kanpmaOur ♦ ♦ selur Ii«»l ok Eldivid ♦ Afgreitt fljótt oe fullur mælir. X ♦ 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦ • ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ T. THOMAS, kaupmasur nmboössali fyrir ýnos verzluoarfélög 1 Winnipeg og Austnrfylkiunnm, af- treiöir alskonar pantanir íslendinga r nýlendunum, peim aö kostna&ar- lausu. Skrifiö eftir npplýsingum til 537 Ellice Ave. - - - Winniþeg ♦ ♦ t « ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦d XIX. AR. WINNIPEG, MANITOBA 4. MAÍ 1905 Nr. 30 Ami Eggertsson 671 ROSS AVENUE Phon.e 3033. Winnipeg. Hér er tækifæri fyrir mann með $2000.00-^48 Ég heíi til sölu 320 ekra búgarð, 30 mílur frá Winnipeg og einamflu frá járnbrautarstöð. 100 ekrur eru plægðar á landinu og 40 ekrur beiti- land. Nú sem stendur eru 75 ekr- ur búnar undir sáningu. A land- inu er 7 herbergja cement-steypu hús (concrete) og byggingar yfir 75 gripi og 10 hross. Heyskapur er nógur skamt frá, ágætis vatn og 6- takmarkað frjálsræði með gripb — Kirkja og skóli er þar rétt hjá, og alt eftir f>vf pægilegt. 'Verðið er $22 ekran og $2000 niðurborgun. Einnig eru gripir hæns og svfn til sölu. Til frekari upplýsinga skrifið eða finnið. Arni Eggertsson Offlce: Room 210 Mclntyre Blb Telephone 8864 Fregnsafn Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. STRÍÐS-FRETTIR Engar áreiðanlegar fréttir af stríðinu hafa borist að austan í sl mánuði og þó er orustum haldið áfram norður frá Mukden svo að segja daglega, en allar eru þær f smáum stíl, svo að tæpast er orð á gerandi. Sú sfðasta var háð þann 29. aprfl hjá Tunghusiang. Rússar segjast hafa borið þar sigur úr být- um. En herforingi Japana hefir sent stjórn sinni í Tokio þá frétt, að í orustu þeirri hafi lið sitt tapað 38 manns, en Rússar hafi eftir- skilið 200 á vfgvellinum. Lfklegt þykir, að þessi frétt sé áreiðanlegri en hin. En yfirleitt mun mega telja, að í sl. mánuði hafi flokkarnir staðið svo jafnt að vfgi, að hvorugur hafi eiginlega unnið nokkum verulegan sigur á hinum. Um sjóflota Rússa má pað segja, að skipin, sem nú teljast alls milli 50 og 60, eru að sveima um sjóinn þar eystra. Þrjátíu af skipunum sáust í Honkohe vfkinni á fimtu- daginn var, en um flota Japans manna hefir ekkert frézt í langan tfma, og virðist enginn vita, hvar hann er. Er nú talið, að flotar beggja þjóða séu sem næst jafnir að skipatölu og styrkleika. En frá Tokio er sagt, að Japanar séu hvergi hræddir við afleiðingamar, hvenær sem flotanum lendir saman Rússar hafa tekið 50 millfónir dollara lán til að halda áfram jám- brautabyggingu, sem þeir urðu að hætta við, þegar strfðið byrjaði. Rússneskir auðmenn lánuðu það fé og buðu fimm sinnum hærri upphæð en stjórnin þáði. Hefði fénu átt að verja til hergagna- kaupa, er talið vfst, að lánið hefði ekki fengist. Japanskir fangar í höndum Rússa segja, að Japanar skipi nú liði sínu á þennan hátt: 1. General Nodzu hefir lið sitt á svæðinu milli Tie Pass og Kayman. 2. Gen. Oku frá Tie Pass vestur frá járnbrautinni. 3. Gen. Kuroki frá Pie Pass aust- ur frá járnbrautinni. 4. Gen. Nogi, frá Fakoman til Changatufa, og 5. Gen. Kamamura, norðaustur frá Mukden. Yfir 20 þúsund særðir Riissar eru nú í bænum Irkutsk og daglega eykst tala þeirra. Oll skólahús og skemtihús hafa verið gerð að spít- ulum og matvæli eru þar sögð af skornum skamti. Annað ekki markvert að svo stöddu. __________________ Innflutningur til Canada á níu mánuðum, til 31. marz sl., var 71,- 120 manns, þar af voru 25,240 manns frá Bandaríkjunum. — Johan Hock, hinn marggifti, er fyrir dómstóli í Chicago um þessar mundir, kærður um að hafa gifst um 30 konum. Og nú, meðan mál hans stendur sem hæzt, hafa 2 konur, sem menn ekki vissu um áð- ur, gefið sig fram, og segjast líka vera konur hans. Nokkrar af kon- um hans eru daglega í dómsalnum að lilusta á gang málsins. — 16,521 heimilisréttarlönd voru tekin f norðvestur Canada á fyrstu 8 mánuðunum af þessu fjárhagsári rfkisstjórnarinnar. Það er 648 fleiri en á sama tfmabili í fyrra. — Innflutningur til Canada fer stöð- ugt vaxandi með hverju ári og lönd hækka stöðugt í verði. Nóttina milli þtíss 25. og 26. f. m. brutust pjófar inn í Merchants Bank of Canda í Lancaster, Ont. Einn af þjónum bankans, sem svaf f húsi aftan við bygginguna, vakn- aði við það, að 4 menn með skamm- byssur stóðu yfir honum. I stað- inn fyrir að gefast þegar upp náði hann í skammbyssu sfna, sem var undir koddanum og skaut einu skoti áður en ræningjarnir áttuðu sig og réðust á hann. Bankaþjónn- inn, sem heitir Hermann Von- metzke, varðist hraustlega, og svo fóru leikar, að þjófarnir flýðu, enda var þá bankaþjónninn orðinn mjög sár og móður, og liggur nú fyrir dauðanum af sárum. Um morgun- inn fanst lfk eins ræningjans á járnbrautarstöðinni, 400 yds. frá bankanum, en hinir hafa ekki náðst enn. Þjófarnir gátu engu stolið. — Þorpið St. Andre de Kamour- aska, Que., brann svo að segja til kaldra kola f>. 26. þ. m. Des Jar- dins verksmiðjurnar, sem búa til allskonar smfðisgripi og áhökl úr jánii, eyðilagðist algerlega, auk margra fbúðarhúsa. Skaði metinn $50,000; eldsábyrgð mjög lftil. — Þingið í British Columbia samþykti nýl. lög, sem voru mjög óvilhöll f garð Japana. Ottawa- stjórnin hefir nú synjað lögum þess- um staðfestingar. — Það er siður í Austurrfki, að keisarinn einn vissan dag á árinu ber mat og drykk fyrir 12 af hin- um elztu og fátækustu mönnum, sem til eru í Vínarborg, og sem eru svo emir, að hægt er að koma þeim til hallarinnar; einnig skal hann f>vo fætur þeirra. Athöfn þessi fór fram f ár á fimtudaginn 20. f. m. að viðstaddri allri keisara hirðinni, ásamt sendiherrum stórþjóðanna og öðrum stórmennum. — Að kveldi þess 26. f. m. héldu nokkrir af hinum atkvæðameiri Liberals fOntario sjálfum sér veizln í Ottawa. Undir borðum varð Mr. D. Salaberry, merkum lögmanni frá Hull, og Mr. Major sundurorða, unz Major greip vatnsglas, sem stóð á borðinu, og henti þvf af afli að mótstöðumanni sfnum. Glasið hitti Mr. I^alaberry á gagnaugað ogskar f sundur æð, svo blóð spýttist f all- ar áttir. Læknunum gekk mjög erfitt að stöðva blóðrásina, og var maðurinn fyrst talinn af, en sfðustu fréttir segja, að hann sé á batavegi, ef ekkert ófyrirsjáanlegt komi fyrir því til hindrunar. — Mr. Frank G. Bigelow, for- stöðumaður eins stærsta bankans í Milwaukee, Wis., og formaður hins volduga banka-eigenda félags í Bandaríkjunum, gerði nýlega þá játningu á fundi stjórnenda bank- ans, að hann hefði dregið undir sig og sóað einni millfón og 400 þús. dollars af fé bankans. Hann kvaðst að eins eiga 300 þús. dollara virði í prívat eignum upp í [>etta. Hann skýrði meðstjórnendum sínum einn- ig frá, hvernig hann hefði farið að því, að falsa bækurnar til þess að dylja stuldinn. Hann segist hafa tapað þessum peningum á ýmsu gróðabralli, mest á hveitikaupum f New York. Stjórnendur bankans voru lengi að bræða með sér, hvort þeir ættu að láta taka þennan mikla mann fastan eða ekki, en það varð ofan á, og situr hann nú í fangelsi. Síðan hefir það komið upp, að skuldir eða stuldir Bigelows muni nema milli 2—3 miljónir dollara, sem skiftist á milli ým6ra stofnana, er trúðu honum fyrir framtfð sinni. Það sannast hér sem oftar hið forn- kveðna: “Svo brégðast krosstré* sem önnur tré.” ; Ein af stúlkunura ” og Lögberg No. 14. I 14. tölublaði Lögbergs þ. á. birtist mikil og merkileg grein frá “Ein af stúlkununv'. Grein þessi á auðsjáanlega að vera svar á móti grein minni í Baldri. sem út kom 29.marz sfðastliðinn, með fyrirsögn- inni “Yfirlit”. Að vfsu er þessi áminsta Lögb. grein byrjuð á þann hátt, að efi getur verið á, hvort hún er ætluð að vera til mín, þar sem nafnið er byrjað með “C”, í staðinn fyrir að mitt nafn byrjar með “G”. En ég tók það fyrir að vera Lögbergs rétt- ritun að eins. Ætla ég f>ví að fara fáeinum orð- um um þessa áminstu grein, þó það séu margir af Baldurs mönnum fær- ari til þess en ég, enda býst ég við, að það verði gerðar athugasemdir við þá grein af fleirum af Baldurs aðstandendum. Þessi “stúlka” er í grein sinni að gefa það í skyn, að biéf herra Ket- ils Valgarðssonar, er birt var í Baldri sfðastliðinn vetur, hafi verið rangfært, stafsetningunni hafi ver- ið breytt af Baldurs mönnum. Ég vil skjóta þessu máli til herra K. Valgarðssonar sjálfs. Hann getur bezt borið um það, hvort stafsetn inguuni á bréfi hans hafi nokkuð verið breytt. Svo hefi ég ltka enn vel geymt handritið. Er þvf hægt að gera samanburð, ef f f>að fer. Um hinn manninn, “sem átti að eins þrjú orð f greininni sinni eftir að búið var að birta hana f Baldri”, veit ég ekkert um, en þætti gaman að fá að vita, hver hann er, og væri það þvf ekki nema siðferðisleg skylda af “henni”, að láta nafns hans getið. og sanna, að nokkrum parti, með því sögu sfna. Ég sleppi alveg að svara sumu af þvf, sem þessi “stúlka” ber borð fyrir lesendur Lögbergs, þar eð ég hefi nú þegar svarað því í Baldri nr. 14 f>.á. Það er annars merkilegt, hvað þær eru nauðalfkar greinin hennar I. J. P., sem út kom f Baldri 29 marz þ.á., og þessi áminsta grein í Lögbergi. Maður gæti vel hugsað, að þær væru systur, eða að minsta kosti, að þær hefðu báðar fæðst sama bæ. Hvað meinar þessi “stúlka” f>ar sem hún minnist á grein sinni “Leikritið Piltur ogstúlka”? Mein ar hún, að f>að sé til “leikrit” með f>essu nafni? Ef svo, hver er höf- undurinn og hvar er það fáanlegt? Mér er ant um, að fá keyptar sem flestar nýjar bækur og rit. Skal ég þvf borga “einm af stúlkunum” vel fyrir snúð sinn, ef hún sendir mér eitt eintak af þessu “leikriti”. Hvernig á að skilja seinustu lfn- una í fyrsta dálki á 3. sfðu, og fjór- ar fyrstu lfnurnar í öðrum dálki á f>riðju sfðu Lögbergs no. 14 f>.á.? Það er einhver sérstök fræði, sem ég vil leita mér upplýsingar um. Ritstjórinn liefir að lfkindum verið að lesa próförk af fyrsta dálki á annari sfðu, þegar þessu var rent f gegn að lioiuun fornspurðum. “Ein af stúlkunum” segir í þess um pistli sínum til “C-ísla”, að þær hafi “orðið að sauma og setja upp tjöldin sjálfar”. Það er alveg ré.tt. Þær báðu um leyfi að mega gera það. og jafnframt að mega æfa leik- flokkinn f fundarhúsinu tvisvar eða þrisvar áður en leikið yrði, og var þeim hvortveggja veitt. Þær höfðu samkomusalinn til fullra umráða heilan dag áður en samkoma þeirra átti að verða, þ. 21. marz sl., og svo meira að segja notuðu þær salinn í sfnar þarfir daginn eftir samkom- una, og var ekkert talað um það af þeim, sem höfðu yfir salnum að ráða. “Ein af stúlkunum” gefur það f skyn 1 byrjuu greinar sinnar, að hún hafi ekki séð það til neins, að senda Baldri þessa grein sína, af því hún hafi verið hrædd um, að stafsetningin yrði ekki sem bezt, mundi kannske verða breytt. Hafi hún ætlast til, að greinin hennar birtist á prenti, eins og hún kom út f Lögbergi, þá hefir hún gert alveg rétt. Baldurs menn hefðu naum- ast getað látið hana koma út jafn- skemtilega vitlausa og Lögbergi tókst að gera, þvf hún er þeim mun verri, en bréf herra K. Valgarðs- sonar var, og var það nógu örðugt viðfangs að láta það koma út sam- kvæmt handritinu, og ef það hefði verið öllu verra, þá hefði það ekki verið hægt. Er ég svo þessari “Ein af stúlk- unum'’ þakklátur fyrir hennar góða vi„ia á, að vilja segja eitthvað. Ég tek viljann fyrir verkið. í sambandi við greinina hennar “I.J.P.”, sem kom út í Baldri nr- 13 þ.á. og greinina hennar “Ein af stúlkunum” í Lögbergi nr. 14 þ. á., dettur mér í hugþessi skrýtla: “Ég flýti mór að láta þig vita, að ég hefi eignast tvíbura; meira í næsta skifti. Þinn V.” Mér finst þetta geta átt vel við að sumu leyti. Vinsamlegast, Gísli P. Magnússon. PIANOS og ORGANS. Hefntzman «V Co. Pinnos.-Kell Orgel. Vér seljam með mánaðarafborgunarskilmálum. J. J. H- McLEAN & CO. LTD. 53Ð MAIN St. WINNIPEG. NEW Y0RK Insurance Co. LIFE Jobn A. McCall, PRESIDENT Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upþhæð $342,212.569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón- um meira, en nokkurt annað Iffsábyrgðarfélag hefir selt á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millíónir dollara var borgað fyrir 8000 dánarkröfur. Yfir 20 mill. til lif- andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini þeirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél. hækkuðu um 8-J millfón. — Sjóður þess hækkaði um 38 millíónir, er nú $390,660,260.—Lífsábyrgð í gildi hækk- aði um $183,396,409. Öll lífsábyrgð 1 gildi 1. Jan. 1905 $1,928,609,308. CHR. OLAFSSON, AGENT. WlNNIPEG J G. MORGAN, MANAGER Neitað um meðraæli. Nokkrir meðlimir úr stúkunni Heklu nr. 33 komu sér saman um, að reyna að koma á fót n/rri Good Templara stúku hér í bænum, og báðu þeir fslenzku stúkurnar um meðmæli til stórstúkunnar með nýrri stúkustofnun. En allar stúkumar létu sig henda það hneyxli, að neita um meðmælin, og jafnvel, að ein þeirra gengi svo langt að gera áskorun til þessara áður umgetnu manna um að vera ekki þau dauðans flón, að láta sér detta f hug að stofna nýja stúku. Við þessa neitun er margt að at- huga. Fyrst er það. að neita með mælum með sllkri stofnun, er sama sem að vinna á m ó t i bindindis málinu og Good Templar reglunni. Neita mönnum um að vera f bind- indislegum félagsskap. Að neita um svona löguð meðmæli, er alveg sama og ef að kæmu góðir og heið- arlegir menn og bæðu um inntök,u í stúkuna og þeim væri neitað um beiðnina, að eins af þeirri ástæðu að þeir ætluðu að starfa að bind- indismálinu! í fám orðum sagt, þessi neitun stúknanna er alveg gagnstæð og þveröfug við anda og starfsemi Good Templar reglunnar og bind- indismálsins. Að svona starfsemi vinnur ís- lenzka Good Templar reglan Winnipeg! Von er að henni gangi vel! Að ný stúka væri stofnuð ætti að vera hinum stúkunum meira gleðiefni en svo, að þeir gerðu stór hneyxli fyrir eigin hagsmuna sakir eins og þær hafa gert með áminstri neitun. Þótt það væru þeirra eigin með- limir, sem stúku vildu stofna, gerir ekkert til, því eftir þvf, sem fleiri stúkur eru, eftir því eru fleiri menn starfandi f reglunni. Það er lítið fengið með þvf, að stúkur geti talið tvö, þrjú til 4 hundruð meðlimi, og af þeim starfa svo sem 30 til 40, hitt alt dauðir meðlimir. Betra að stúkan telji ekki nema 50 meðlimi og þeir séu allir starfandi. Enn fremur, ef stúkur eru marg- ar, telur reglan fleiri meðlimi, því þessi stúka fær menn inn f regluna> sem hin fær ekki osfrv. Með mörgum stúkum fást marg- ir til að ganga f regluna og starfs- svið reglunnar stækkar og breiðist út, og við það eykst henni kraftur og magn. En ekki með þeirri lúa- legu og öfugu aðferð, sem fslenzku stúkurnar hér brúka til að hrinda bindindismálinu áleiðis. Á þessari neitun stúknanna sést að starfsemi þeirra er peninga- spursmál, og til að sýnast. Að láta það berast út um heiminn. að þær telji svo og svo mörghundruð með- limi, sem allir séu góðir og kær-' leiksrfkir bindindisvinir' og vinni með trú, von og kærleika að biiul- indismálinu með því að r:eita bræðr- um sfnum um meðmæli með þvf, að stofna nýja bindindisfélagsdeild í viðbót við þær sem áður eru. Slfkt er nú áhugi, trú, von og kærleikur! Það er víst eins dæmi í sögu Good Templar reglunnar, að hennar eigin meðlimir neiti hvorir öðrum um tækifæri til að efla og útbreiða regluna. Hverri stúku ætti að þykja það stór heiður, að hennar eigin með- limir yrðn til þess að stofna nýja stúku; þvl með því sýnir hún það, að hún á starfandi meðlimi, og lfka stuðlar hún til þess, að fleiri gangi í regluna, því það verða alt af fleiri meðlimir f tveimum stúkum en einni. Eg ætla ekki að vera fjölorður um þetta mál f þetta sinn; en ég vildi óska, að svona lagað hneyxli eða nokkurt annað ætti sér ekki stað í stúkunum framvegis, þvf mér er of vel við Regluna til þess að ég óski eftir, að hún geri löguð glappaskot. Að endiingu skora ég á stúkurn- ar, að taka þessa neitun t a f a r - 1 a u s t til baka og veita meðmælin og hjálpa til eftir megni að stofna nyja stúku. Því eins löguð neitun og áður er sagt er meira hneyxli, en nokkur einasta Good Templara stúka ætti að vera þekt fyrir að gera. Agúst Einarsson. Winnipeg, 1906 * Búland J til sölu f Ég hetí 240 ekrur af góðu búlandi, 48 mílur suð- T vesturfrá Winnipeg.skamf frá Glenboro - brantinni, sem ég get selt eða skift fyrir eignir hér f bæn- um. Þeir, sem vildu þessu, snúi sér til J. T. Bergman 680 Sherbrooke St. f & '<A T sinna * T "i» f •i? VEGGJA-PAPPIR KVRIH Hálfvirði Við erum bráðum útseldir af mörgum sortum af pappír, eigum að eins eftir fyrir eitt herbergi (ekki mjög stórt) af mörgum tegundunum; sumt mjög fallegur pappír, sem við sel.ium fyrir hálfvirði og það- an af minna. Bekkja og loft pappír sam- svarandi líka til sölu. Veggjapappír fyrir hálfvirði ANDERSON & GOODMAN m RO«S AVE. FastÉMsala Afbragðs land, með stóru góðu húsi, og fjósi yfir 40 gripi, og ágætu vatnsbóli, f Pine Valley, er boðið til skifta móti d&góðu húsi og lóð. Eigandinná yfir $1,000 í oft 8Vona eigninni, er hann lætur upp í hús- eign hér f bænum. Bæjareignin verður að vera f suðurparti bæjar- ins. Tækifæri fyrir þá, sem vilja komast á ágætt land. MARKUSSON & BENEDIKTSSON Skrifstofa: 21» Mclntyre Block. Teleplione 2986.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.