Heimskringla - 15.06.1905, Qupperneq 1
«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS ♦
♦ lslenzkur kaupmaOur ♦
♦ selur Kol oe Eldivid ♦
J Afgreitt fijótt og fullur mælir. J
♦ 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦
♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS, KAUPMAPUR ♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
mnboössali fyrir ýms verzlunarfélög
1 Winnipea: og Austurfylkjunum, af-
?reiöir alskonar pantanir Islendinga
r nýlendunum, beim aö kostnaöar-
lausu. Skrifiö eftir upplysingum til
537 Ellice Ave. - - - Winniþeg
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 15. JÚNl 1905
Nr. 36
Arni Eggertsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. Winnipeg.
Eg hefi til sölu lot á Beverly St.
norðan við Sargent að vestanverðu
fyrir $350.00.
A Arlington St fyrir $10 fetið.
“ Alverstone St. fyrir $10 fetið.
“ Victor St. fyrir $lf> fetið.
“ Maryland St. fyrir $23 fetið.
“ Agnes St. fyrir $15 fetið.
“ Furby St. fyrir $24 fetið.
“ William Ave. $14 fetið.
Á Notre DameAve. 33x198 ft. tJ
Winnipeg Ave. Gjafverð $25 fetið.
Nú hefi ég nóg af peningum að
lána út á góð hús.
Eldsábyrgð, Lífsábyrgð.
Komið og hafið tal af mér.
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blfe
Telephone 3364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRÍÐS-FRÉTTIR
Stjórnin f Japan heflr á ný gert
ráðstöfun til þess, að auka herafla
sinn 1 Manchurfu upp f eina mill-
íón manna eða meir. Þetta erstærri
her, en nokkuri [>jóð hefir til f>essa
komið til hugar að peir gætu boðið
út. Skörpustu hermálamenn Þjóð-
verja fullyrtu nýlega, að Japanar
gætu ómögulega haft fleira en 350
þús. manna á vígvellinum í einu.
En þetta var bygt á J>vf, að fyrir
árið 1896 var allur her Japana á
friðartfmum einar 80,000. en á hern-
aðartfmum var hann áætlaður 270,-
000. En einmitt þetta ár var gerð
breyting á hermála ráðsmensku
landsins, sem stórþjóðunum var
ekki tilkynt um,og sú breyting jók
tölu hers þeirra á ófriðartímum upp
í 560,000, ef \ þurfti að halda. En
svo var enn gerð breyting á þessu í
fyrra og aftur á þes3u ári, sem
tryggir Japönum J>að að geta sent
út og haldið við á jvfgvellinum yfir
einni millfón manna og veitt hon-
um allan nauðsynlegan útbúnað af
fullkomnustu gerð.
Það er nfl sannfrétt af sk/rslum
Japana, að mannfall hjá J>eim í
þessu strfði fram á þennan dag er
um 90,000 fallnir og um 100,000
særðir. Það er og vfst, að mannfall
Rússa hefir verið ógurlegt og að
þeir töpuðu í Mukden bardaganum
einum eins mörgum mönnum og
Japanar mistu á öllu árinu sem leið.
Snemma í maf f.á. var haldin há-
tíðleg sorgarathöfn f Tokio í minn-
ingn um þá látnu. Stjórnar skýrsl-
urnar sýndu þá, að af landhernum
höfðu fram að }>eim degi fallið 28,-
999 og af sjóhernum 1887, eða alls
30,886 manns.
Rússar hafa spurt sig fyrir um
hvaða friðarkosti Japanar mundu
gera sig ánægða með, ef um sættir
væri leitað, og hafa Japanar sagst
ætla að gera þessar kröfur:
1. 800 millfónir dollara í skaða-
bætur fyrir herkostnað og
mannfall.
2. Að Rússar gefi upp alt tilkall
til Manchuríu.
3. Að Rússar gefi tryggingu fyrir
þvf, að Kfnaveldi sé látið hlut-
laust í framtíðinni, svo það sé
sjálfstætt og frjálst rfki.
4. Að Rússar afvopni Vladivo-
stock.
5. Að Rússar viðurkenni yfirráð
Japana yfir Shantungjaragan-
um, að meðtöldu Port Arthur
víginu og Kóreu.
6. Að Rússar selji Japönum f
hendur öll rússnesk herskip,
sem séu í herhaldi á höfnum í
Kínaveldi.
Þessir samningar þykja Rússum
svo óaðgengilegir, að blöð þeirra
kveða óhugsandi, að þjóðin gangi
að }>eim, og telja betra, að halda
stríðinu áfram út íþað óendanlega.
En svo langt hafa samt blöð Rússa
gengið, að þau nú f fyrsta skifti
kalla Japana sigurvegara sína og
játa með þvf, að strfðið sé þeim
tapað.
Það er fuliyrt, að herdeildum
beggja þjóða f Manchuríu hafi ver-
ið tilkynt um sátta umleitun Rússa
og að þeir skyldu hafa vopnahlé
meðan málið vœri rætt, eða þar tíl
útgert yrði um, hvort til sátta drægi
eða ekki.
Við þetta stendur að svo stöddu,
þvf allar lfkur benda í áttina til
friðar.
Sfðustu fréttir frá Tokio segja
Rússar hafi f sjóbardaganum mikla
mist 14 þús. menn drepna ogdrukn-
aða og 4,600 fanga, en að yfir 3,000
manna hafi sloppið undan. Rúss-
ar hafa J>vf haft yfir 20 þúsund
manna á flota sfnum.
Svo segja rússneskir fangar, að
Rússast jórn hafi verið sannfærð um
sigur yfir Japönum í þessum bar-
daga, að hún var búin að ákveða
með hvers konar viðhöfn floti sinn
skyldi sigla um á Vladivostock
höfn eftir að hafa sópað Japan
flotanum í sjóinn.
Japanar hafa sent 7 herskip til
Manila, til þess að vera vissir um,
að rússnesku herskipin, sem flúðu
þangað úr bardaganum í Kóreu-
sundi, komist ekki burtu aftur,
heldur verði afvopnuð, svo J>au geti
engan óskunda gert framar.
Enn hefir Rússa stjórn fundið
sprengivéla verkstæði í bænum
Riga. Lögreglan fann þar 50 full-
gerðar sprengivélar, nokkuð af skot-
vopnum og sveðjum eða stfnghníf-
um. Alt eign og úthald anarkista
þar f bænum. Þeir eru dyggir við
iðju sfna, piltarnir þeir!
— William Zeigler, auðmaður
nokkur, andaðist nýlega í New
York, og eftirlét 14 ára gömlum
fóstursyni sfnum 30 millfónir doll-
ara virði f eignum, sem gefur pilt-
inum svo sem 125 þús. dollara inn-
tekt á ári hverju ári. Konu sinni
eftirlét hinn látni 50 þús. dollara á
ári meðan hún lifir, og nokkrum
öðrum ættingjum slnum gaf hann
um 20 þús. dollara á ári að jafnaði.
— Svo er að sjá á skýrslum inn-
flutninga umboðsmanna Dominion
stjómarinnar í Ottawa, að farið sé
að hafa strangt eftirlit með inn-
flytjendum til Canada. Er svo að
sjá, að á sfðastl. ári hafi einn maður
verið sendur til baka af hverjum
290 manns, sem komið hafa til
landsins, af þvf, að þeir gengu með
einhverja sjúkdóma og voru ekki
vinnufærir. En af þeim, sem til
Bandaríkjanna hafa flutt, hefir einn
verið endursendur af hverjum 2665
manns, sem þangað hafa komið.
Af þessu sést, að það er farið að
þrengjast um inngöngu f Canada,
— Noregur hefir slitið samband-
inu við Svfþjóð þann 7. þ.m. Stór-
þingið fól ráðherrum Noregs, eftir
að þeir höfðu lagt niður embætti
sfn, að taka við störfum sínum aft-
ur, og hafa að auki ráð allra þeirra
mála, er áður heyrðu undir kon-
ung. Þetta var gert með svolát-
andi ályktlm, er þingið samþykti f
einu hljóði: “Þar eð allir ráðgjaf-
ar Noregs hafa lagt niður völd sín
og embætti, og þar eð hans hátign
konungurinn hefir tjáð sér vera
ómögulegt að mynda nýtt ráða-
neyti, -og þar eð grundvallarlegt
konungsvald hans er með þessu
ófullnægjandi, — þá felur stórþing-
ið formanni stjórnarinnar og ráða-
neyti hans, sem sagði af sér í dag,
að halda áfram öllum stjórnarstörf-
um fyrir hönd Noregs og að fram-
kvæma öll störf, sem samkvæmt
grundvallarlögum Noregs heyra
undir konunginn, og með þeim
lagabreytingum, sem nauðsynlegar
eru í tilefni af því, að samband
Noregs við Svfþjóð undir einum
konungi hefir endað, af þvf kon-
ungurinn hefir hætt að rfkja sem
konungur Noregs.” — Þessi sam-
þykt var tilkynt konunginum með
þeim ummælum þingsins,að norska
þjóðin bæri engan illhug til hans
og óskaði samvinnu hans til að
velja sér til konungs prinsaf Berna-
dotte ættinni. Konungur sendi
andmæli sfn til þingsinsgegn þess-
ari samþykt. En vitanlega verða
þau andmæli þýðingarlaus, þvf
Norðmenn munu fara sfnu fram.
Ekki er talið lfklegt, að ófriður
verði út af þessu heldur verði Nor-
egsmönnum leyft að fullkomna
skilnaðinn í friði.
— Rússar hafa beðið umboðs-
menn sfna f Washington og Parfs
að fara þess á leit við stjórnina á
Frakklandi og Bandarfkjastjórn, að
þær komist að með hverjum kost-
um Japanar verði fáanlegir til að
semja frið við Rússa. Er þetta
gert með sameiginlegum vilja allra
ráðgfafa keisarans. Þetta bendir
á, að Rússar séu að lokum gengnir
úr skugga um, að sá sé þeirra kost-
ur vænstur, að semja frið sem fyrst.
— Maður f Toronto hefir verið
kærður fyrir svik. Hann fór f fyrra
á spftala þar og fékk fría læknis-
hjálp af þvf hann kvaðst vera efna-
laus. Og f vetur sem leið fékk
hann hjálp frá bæjarstjórninni
undir sama yfirskyni. Nú er það
komið npp, að maður þessi á mikla
peninga á banka og þar að auki ein
fimm hús f bænum, sem hann leig-
ir. Tvö þeirra gefa honum $60 f
leigu á hverjum mánuði.
— “Restaurant” haldari einn í
Ottawa seldi nýlega á sunnudegi
ísrjóma, aldini, brjóstsykur og önn-
ur sætindi og hafði búð sfna opna
allan daginn. Mál var höfðað gegn
honum fyrir þetta og hefir hann
unnið þáð. Eftir er að vita, hvað
æðri dómstólar ákveða um þetta.
— Félag hefir verið myndað í
Lundúnum til þess að leggja 100
mflur af böggul hraðsendinga plp-
um eftir götum borgarinnar. Þetta
verk á að kosta yfir 60 millíónir
dollara, og félagið b/st við að flytja
á ári hverju um 80 millíónirböggla,
af þeim 220 millfónum böggla, sem
500 búðir í borginni senda árlega
frá sér. Félag þetta býst við að
geta flutt um 600 böggla á klukku-
stund að jafnaði.
— Fimmtíu þúsundir manna
voru við messu hjá páfanum á
föstudaginn 2. þ. m. í ÍSt. Péturs
kirkjunni í Róm.
— Tveir anarkistar hafa enn
verið teknir í Parfs fyrir spreng-
ingar. Báðir höfðu spánska gull-
peninga í ríkum mæli. Annar
þeirra játaði, að sér hefði verið sent
sprengiefni frá íSpáni til að myrða
með Alfonso konung, en að hann
hefði ekki notað það, þó hann á
hinn bóginn væri meðmæltur því
að konungurinn væri líflátinn.
— Maður að nafni Gurati and-
aðist nýlega 1 Mexico og eftirlét
dóttur sinni 800,000 doll. í eignum
og peningum með þvf skilyrði, að
hún gif-tist ítölskum manni einum
1 Milan. Stúlkan hafði áður lofast
Svisslendingi, sem hún elskaði.
Til þess að komast úr Jæssum vand-
ræðum fór hún á fund Italans og
bauðst til að giftast honum og gefa
honum 200 þús. dollara, ef hann
vildi veita sér skilnað strax að af-
lokinni vfgslunni. Maðurinn gekk
að boðinu og giftingin fór fram í
kirkju einni f Milan. Að vígslunni
afstaðinni skildi hún við bónda
sinn f kirkjndyrunum og fór strax
á fund elskuga sfns og var hjá hon-
um þangað til skilnaðurinn fékst.
Þegar hann var fenginn, giftist hún
unnusta sfnum og fékk 6u0 þúsund
dollara af eignum föður síns eftir
að hafa borgað fyrri bónda sfnum
það sem um var samið.
— Rannsóknarnefnd, sem sett
var til að athuga herkostnað Breta
í Búastrfðinu hefir lagt fram álit
sitt og sákar þar f msa stjórnar-
þjóna, er það nafngreinir, um að
hafa haft af stjóminni 5 millíónir
dollara með því að selja henni her-
gögn með uppsprengdu verði.
— Eitt af köfunarskipum Breta
hvoldist nýlega við strendur lands-
ins og 14 manns druknuðu.
— Stjórn Japana hefir samið
við háskóla prófessora f Bandaríkj-
unum, að taka embættum í Japan
til þess að bæta mentamálin þar
strax að afloknu stríðinu við Rússa.
— Þýzka stjórnin hefir fengið
frétt frá Cape Town f Afrfku um
að aðalherstöð þeirra (Warmbad)
þar í landi hafi verið eyðilögð og
að alt herlið Þjöðverja þar hafi
verið stridrepið af biökkumönnum.
— Max Laszonde í Montreal
hefir orðið vitskertur af því að
hlusta á ræður prests nokkurs þar
í borginni, sem hélt endurlffgunar-
(revival) fundi í kirkju sinni. Ann-
ar maður f Massachusetts rfkinu
mætti sömu útreið fyrir tveimur
.ikum sfðan af lfkum ástæðum.
Montreal maðurinn hefir svo um-
vendst við fundi þessa, að hann
eyðilagði eigur sfnar og kvaðst hér
eftir ekki þarfnast neinna verald-
legra nauðsynja, hvorki ljóss, hús-
næðis, matar né fata. Ekki kvaðst
hann heldur þurfa konu sinnar með
og gerði þvf snögt áhlaup á hana í
þeim tilgangi, að ráða hana af dög-
um. En hljóð konunnar heyrðust
langar leiðir og henni varð bj'argað
en manngarmurinn settur í fang
elsi. Ekki hefir frétzt, hvort prest-
urinn hafi verið kærður fyrir að
gera manninn vitlausan.
— í sfðustu viku var seld horn-
lóð f New York borg. Lóðin var
alls 1120 ferhyrnings fet, eða 20
fet á breidd og 56 fet á lengd. Verð-
ið var 700 þús. dollara. Það er
hæzta verð, sem enn hefir verið
borgað fyrir nokkura landspildu í
Amerfku.
— Frank B. Bigelow, forseti
First National Bank f Milwaukee,
Wis., var 10. þm. dæmdur f 10 ára
fangelsi fyrir ftrekuð brot á em-
bættisskyldu sinni í sambandi við
stjórn bankans og gegn bankalög-
um Bandaríkjanna. Þessi dómur
bendir til þess, að ekki sé farið f
manngreinarálit, þegar um stór-
glæpi er að ræða.
Fy rirspur n.
Fyrir nokkrum árum síðan fór
ungur piltur, að nafni Thorsteinn
Thorsteinsson.liéðan úr bænum,suð
ur til Mountain N. D., í vinnu til
hra. Jóns Hilmans. Þar var hann
nokkurn tíma. Það hefir sfð-
ast fréttst til hans fyrir tveim ár-
um síðan, að hann hafi J>á farið
frá N. Dakota til Duluth, Minn.
PIANOS og ORGANS.
Hefntxman & Co. Pianos.-Be’’ Orgel.
Vér seljnin með mánadarafborgunarskilmáium.
J. J. H- McLEAN & CO. LTD.
330 MAIN St. WINNIPEG.
---------------—--------------------♦
NEW Y0RK LIFE
Insurance Co.
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 lffsábyrgðar skýrteini að upphæð
$342,212.569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón-
um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt
á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millíónir dollara
var borgað fyrir 6000 dánarkröfur. Yfir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini
þeirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um 8^ millfón. — Sjóður þess hækkaði um 38
millfónir, er nú $390,660,260.— Lífsábyrgð í gildi hækk-
aði um $183,396,409. Öll lífsábyrgð í gildi 1. Jan. 1905
$1,928,609,308.
CHR. ÓLAFSSON, AGENT. WlNNIPEG J G. MORGAN, MANAGER
Samkomukvæði.
i.
Þó húmið sveipi loft og láð,
Alt líf sé snautt og dofið,
Og hafi bleikar blæjur gráð
Úr bládögg vorsins ofið,
Vér óskum þó að þessi stund,
Oss þroska’ og gleðja megi,
Og kveiki blys, sem l/si lund
Á lífsins grýtta vegi.
Svo smár hinn fyrsti vísir var,
Mun vonarsólin bjarta
Hans signa’ ið minsta blómsturbar,
Sem blómgast inst í hjarta.
Oss auðnast fegri sól að sjá,
Úr sorta dimmum heiðir,
Unz þar til björkin hrein og há
Mót himni greinar breiðir.
Því hver með djörfung, hng og þor
Úr hlekkjum laus sig brýtur,
Og stfgur áfram örugt spor
Og ei til baka lftur;
Hans miða dfpstu hjartans þrár
Að helgu frelsis verki,
Og ofar stjömum gullnum gljár
Hans guði vfgða merki.
Með nýju ári og nýrri öld
Og nýjum andans straumum,
Vér hefjumst enn til handa í kvöld,
Að hrinda gömlum draumum. —
Enn skortir lífsins lindum frá
Oss ljós og kraft og fleira:
Vér þurfum opin augu’, er sjá,
og eyru, sem að heyra.
II.
Ennþá komum allir saman vér,
Ein og sama vonin styrk oss lér
Til þess fyrir eining, dáð og dug
Deyfðin hverfi, andinn taki flug.
Sjá, þá eygló rís úr ránarlaug,
Reifar gulli láð og himinbaug!
Ó, svo gæti andans ylblíð sól
Okkar snortið hjartans jökulbál!
Einhver stjarna á himni hún það er,
Höpp og slys vor ber í skauti sér,
En ei úr hennar loga letri má
Lífs vors þýða dularfullu spá.
En sú stjarna’, er inst í lijarta rfs
Okkur lofar gulli dýrri prfs,
Bendir oss þá helgu hugsjón á,
Hærra, dýpra, lengra fram að ná.
Merkið hátt, og yfir alt það hér
Oss sem hindrar: mótvind brim og
sker.
Geisli’ af von og trú og trygð og þrá
Titri iifsins völtu bárum á.
Til allra Skógarmanna
Á sfðasta fundi f Stúkunni “ísa-
fold,” I.O.F., var kosin þriggja
manna nefnd til að vinna að þvf að
fá félagsmenn til að sækja betur
fundi í stúkunni, en átt hefir sér
stað nú uppá sfðkastið. Þessi
nefnd mun gera sitt ítrasta að
reyna að finna að máli helzt alla
félagsmenn liér f bænum fyrir
næsta fund, sem haldinn verður þ.
27, þ. m., en ef það verða ein-
hverjir sem undan sleppa, svo að
nefndin ekki geti séð þá, eru þeir
hinir sömu, eins og allfr aðrir
stúkubræður, fastlega ámintir um
að sækja þennan fund. Þá er bú-
ist við að allmargir nfjir félags-
menn verði teknir inn, og einnig
sér nefndin um að á þeim fundi
verði ýmislegt til skemtana, svo
sem söngur og stutt ræðuhöld, og
ekki að gleyma þvf, að þar verður
borið fram ókeypis hressing fyrir
alla bræður sem á fundinn koma.
Þetta verður nákvæmar auglýst
í næsta blaði. Munið það.
Nefndin,
Bréf frá Amesbygð, dagsett 7.
júnf 1905:—
..... “Góð tfð, þó heldur lftið
regn fyrir sáðverk og þurlendi.
Barn þeirra hjóna, Bjöms Hjör-
leifssonar og konu hans í Árdals-
bygð, var höggvið af öðru óvita
barni, þvf nær einn fingur af og
nokkuð af öðrum fingri; bamið var
á fyrsta eða öðru ári. Hjónin fóru
með það til Selkirk, til lækninga.
Frétzt hefir að drengur norður
við íslendingafljét hafi skotið sig
f hendi, nokkuð af 2 fingram. Að-
vörun fyrir drengi sem fara með
byssur, að gæta sín betur en þeir
stundum gera.
Einnig hefir frétzt að drengur
hafi druknað f Mikley, sonur séra
O.V. Gfslasonar.”
Mrs. TH. J. SAMSON, yfirsetu-
og hjúkrunaikona, býr að 520 Ag-
NE§ STREET.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
Skyldmennum hans í Winnipeg
er ant um að hafa upp á honum.
Þeir, sem kynnu að vita hvar
Thorsteinn þessi er niðurkominn,
em vinsamlegast læðnir að tilkynna
það á skrifstofu Heimskringlu.
HE1M»KRINGL,1! oK TVÆR
skemtilegar sögur fá nýir kuup
endur fvrir að eins $12.00.
Þá mun allur öldugangur lygn,
Andans fylling, guðlegri með tign,
í störfum vorum lifa’ í lengd og bráð
Leifturgeislum sælli tfðar fáð.
Burt með skuggann, kraftur, líf og
ljós
Lýsi og greiði veginn hal og drós!
Lifið heilir! Leiki um yðar brár
Lukkan björt um sérhvert friðsælt
ár!
Sigtrygqur AgúaUson.
Hafa flutt skrifstofu sfna
frá 219 Mclntyre Block að
205 1 sömu byggingu.
Telephone nr. verður auglýst sfðar.