Heimskringla - 24.08.1905, Qupperneq 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
T. THOMAS
lglenzkur fcaupmaflnr
sel'ir K<il og Kldivitl
Afgreitt fljótt og fullur mwlir.
♦ 537 Ellice Ave. Phoae 26L_ ,
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦t
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Phone 2620 ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS, KAyPMABL-R ♦
mnboOssali fyrir ýms verzlunarfélðg
1 Winnipeír og Ausfcurfylkjunum, af-
freiðir alskonar pantanir lslendinga
r nýlendunum, peim aö kosfcnaðar-
lausu. Skrifiö eftir upplysingum til
537 Ellice Ave. - - • Winniþeg
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
xrx. ár.
WINNIPEGr, MANITOBA 24. ÁOÚST 1905
Nr. 46
PIANOS og ORGANS.
HeintKman & Co. Pianost.---Bell Orgel.
Vér seljatn með mánadarafborgunarskilmálum.
J, J. H- McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEQ.
NEW YORK LIFE
Insuranee Co. “'AI".
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upphæð
$342,212,569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millfön-
um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt
á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millfónir dollara
var borgað fyrir 6000 dánarkröfur. Yfir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út A skýrteini
f>eirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um 8^ millfón. — Sjóður f>ess hækkaði um 38
millfónir, er nú $390,660,260,— Lffsábyrgð f gildi hækk-
aði um $183,396,409. Öll IffsAbyrgð f gildi 1. Jan 1905
$1,928,609,308.
CHR. ÓLAFSSON,
AGENT.
WlNNIPEG
J G. MORGAN,
MANAGER
Arni Eggertsson
671 ROSS AVENLE
Phone 3033. Wlnnipeg.
Eg hefi til sölu lot á Beverly St.
norðan við Sargent að vestanverðu
fyrir $350.00.
A Arlington St. fyrir $10 fetið.
“ Alverstone St. fyrir $10 fetið.
“ Victor St. fyrir $16 fetið.
“ Maryland St. fyrir $23 fetið.
“ Agnes St. fyrir $15 fetið.
“ Furby St. fyrir $24 fetið.
“ William Ave. $14 fetið.
A Notre DameAve. 33x198 ft. til
Winnipeg Ave. Gjafverð $25 fetið.
Nú hefi ég nóg af oeningum að
lána út á góð hús.
Eldsábyrgð, Lífsábyrgð.
Komið og hafið tal af mér.
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Elk
Telephone 3364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
SAttanefnd Riíssa og Japana,
sem nú hefir fundi með sér í bæn-
Portsmouth, N. H., í Bandarfkjun-
um, hefir enn ekki meira en lftil-
fjörlega byrjað umræður um hin
ýmsu atriði, er Japanar heimta.
Eriri hcfir ho&uurirra- ckki fcng;C
að vita greinilega um öll atriði
þessa máls, en svo mikið er vfst,
að Japanar heimta meðal annars
að Rússar borgi sér allan herkostn-
að að fullu; einnig krefjast þeir
fullra umráða ytír Port Arthur og
Liao Tung skaganum öllum og að
Rússar hafi sig á burtu úr Man-
churfu fyrir fult og alt. Þeir vilja
einnig að Rússar Uti af hendi Sak-
halin eyjuna og selji sér í hendur
alla rússnesku járnbrautina norður
til Harbin, og öll herskip, sem
tóku þátt f stríðinu og nú eru í
haldi 4 ýmsum höfnum. Vitaskuld
áskilja Japanar sér lfka öll umráð
yfir Kórea eyjunni.
Rússar hafa að sögn þegar geng-
ið að 7 af 13 samningsatriðum.
Þeir viðnrkenna yfirráð Japana í
Kóreu og á öllum Liao Tung skag-
anum; þeir afsala sör Port Arthur
og vilja láta af hendi hin umgetnu
herskip. En þetta er f>ó alt þeim
skilyrðum bundið, að keisarinn
samf>ykki gerðir nefndarinnar.
Öll þau atriði, sem nefndarmenn
ekki geta komið sér saman um að
svo stöddu, eru látin sitja á hakan-
um f>angað til þau atriði eru út-
rædd, sem lfklegt er að báðir máls-
partar geti komið scr saman um.
Þeir,sem semja fyrir hönd Rússa,
eru M. Witte og barún Rosen, en
Japana megin eru þeir barún
Komura og Mr. Takashira.
Að málefnin séu í meira lagi al-
varleg má meðal annars marka af
f>ví, að á sunnudaginn f>ann 13. þ.
m. sendu nefndarmenn hraðskeyti
til stjórna sinna á Rússlandi og í
Japan, sem kostuðu samtals 190
f>ús. dollara.
Nefndarmenn hafa komið sér
saman um, að gera sem minst af
gerðum sfnum opinbert, fyr en
hvert sérstakt atriði er orðið að
samningum. En búist er við, að
innati fárra daga veiði gert lieyrum
kunnugt, hvernig sakir standa.
En meðan nefndin situr sveitt
við að reyna að semja um frið,
halda þeir Oyama og menn hans
áfram að herja á Rússa í Man-
churíu. Og svo segir herforingi
Rússa f>ar, í frétt til keisarans fyr-
ir fáum dögum sfðan, að Japanar
hafi ráðist 4 fylkingqr sfnar og
gengið svo liart að, að Rússar hafi
orðið að hörfa undan. En ekki
getur hann um, hve mikið mann-
fall hafi orðið.
Ein Util rússnesk herdeild gaf
sig 4 náðir Japana, og var vel tek-
ið. Foringi f>eirrar deildar kvaðst
hafa sent um 100 mönnum af her-
deildinni, sem voru fjarverandi,
skeyti um að koma á eftir og gef-
ast upp.
Tólf hundruð rússneskir her-
menn í Harbin hafa limlest sig til
þess að geta komist hjá herpjón-
ustu.
Japanar hafa skotið á og sökt 2
rúsneskum verzlunarskipum, og
einnig rússneska herskipinu “Reii-
viz” og féll þar öll skipshöfnin.
Japanar hafa náð bænum Okhotsk,
veittu íbúarnir lítið viðnám, f>vf
bærinn var ekki vfggirtur.
— Lord Curzon hefir sagt af sér
embætti sem landsstjóri á Ind-
landi. I hans stað hefir verið skip-
aður Lord Minto, fyrverandi lands-
stjóri f Canada.
— Látinn er 1 Frederickton, N.
B., Hon. David Wark, senator, og
elzti 8tjórnmálamaður f Canada.
Hann varð 101 ára gamall.
— Hópur af Doukhobors eru á
leið til Canada. London blöðin
segja, að þeir séu stórir menn og
sterklegir; tveir menn í hópnum
eru 6 fet og 8 þuml. á hæð og hinir
allir yfir 6 fet.
— Frétt frá Rússlandi á mánu-
daginn 21. f>.in. segir, að stjórnin
f>ar neiti að borga Japönum nokk-
urn herkostnað eða að láta af hendi
við þá Sakhalin eyjuna. En kröf-
ur þeirra um tilka.ll til herskipa,
sem undan kotnust og flýðu inn 4
hafnir annara þjóða, og um tak-
mörkun á herafla Rússa í Austur-
álfu, — eru Rússar fúsir að sam-
þykkja. Ef Japanar halda fast við
kröfur sínar um borgun herkostn-
aðar og afsal Sakhalin eyjunnar,
þá er líklegt, að ekki verði af frið-
arsamningunum að svo stöddu.
— GreatNorthern járnbrautarfé-
lagið hefir fært niður flutnings-
gjald á hveiti bænda svo nemur
um 2 cent á hverjum l'JO puudum
frá N. Dakota til Duluth.
— Bæjarstjórnin í Los Angeles,
Cal., hefir með höndum það mikil-
fenglegasta vatnsleiðsluverk, sein
nokkurn tíma hefir reynt verið í
heiminum. Það á að taka vatnið
úr fjall-lendi f 240 inflna fjarlægð
frá bænum og leiða f>að þaðan í
vfðum pípum alla leið til borgar-
innar. Vatnsafl borgarinnar er
talið nægilegt fyrir núverandi fbúa-
fjölda, en alt bendir til þess, að
bærinn muni mjög bráðlega stækka
svo að vatnsþurð verði, nema þetta
fyrirtæki sé framkvæmt tafarlaust.
— Blaðið Free Press sk/rir frá
þvf, að við rannsókn kjörlistanna f
Philadelphia hafi f>að sannast, að
60 þúsund mannanöfn hafi verið
f>ar umfram það, sem átt hefði að
vera, og að sumir þeirra, sem á
listunum voru taldir að eiga at-
kvæðisrétt, liafi verið f gröf sinni f
sl. 40 ár. Það hefði verið rétt að
draga rautt stryk yfir nöfn hinna
dánu náunga.
— Ýmsir bæir f Bandarfkjunum
eru farnir að ijnna til f>ess, að íbú-
um þeirra er hin mesta liætta búin
af sjálfhreyfivögnum, sem renna
með alt of miklum hraða eftir göt-
unum. Margskonar ákvæði hafa
gerð verið til þess að hindra þ’enn-
an ófögnuð, sem árlega fer vaxandi.
Bæjarstjórnin f Glencoe í Illinois
ríkinu hefir þannig tekið f>að til
bragðs, að setja tálmanir á götur
bæjarins, sem eru hættulegar fyrir
vagna, sem renna með miklum
hraða. Eigendur sjálfhreyfivagna
hafa höfðað mál móti bæjarstjórn-
inni út af þessu tiltæki hennnr og
heimta 10 þúsund dollara fyrir
hvern mann, sem bfður tjón af f>ví
að keyra yfir þessar torfænir á
strætum bæjurins. Málið er nú
fyrir dómstólunum.
— Iíungursueyð er í Andalúsfu
á Spáni. Hópar hungraðra manna
ráfa um landið fram og aftur og
ræna öllu ætilegu frá bændum og
slátra búpeningi [>eirra sör til mat-
ar. Auðmenn flýja eignir sfnar
undan þessum óaldarflokkum og
liafa sest að f borginni keville í
Cordowa héraðínu. Flokkur af 4
þiisund flækingum hafa sest um
bæinn Osuma og hóta að brjóta
niður hús anðmanna, nema f>eim
sé veitt fæði, Hjálp sú, sem
stjórnin ogsveitarfélögin geta veitt,
er ónóg. Herdeildir hafa verið
settar til að vernda suma bæi. En
yfirvöldunum er illa við að J>urfa
að beita valdi gegn f>essum hungr-
uðu aumingjum, f>vf þeir óttast, að
f>að muni orsaka upphlaup um
land alt. Yfir millfón manna eru
bjargarlausir.
— Chicago blöðin eru að gera
fyrirspurnir um, hvernig á þvf
standi, að bæjarstjórnin þar borg-
aði fyrir 255,000 máltíðir handa
lögregluþjónum borgarinnar meðan
á verkfallinu stóð, þó f>eir fengju
aðeins 200 þús. máltfðir. Þessi
mismunur nemur $19,250 þegar
hver máltfð er reiknuð 4 35c. Blöð-
in krefjast þcss að fá að vita hvi r
fckk þessa peninga.
— Loftfar 4 Englandi, sem er
180 feta langt og 12 f>ús. pund að
pyngd, fór nýlega með 4 menn
ineira en 25 mflna langa leið og
reyndist ágætlega.
— Járnbrautarslys varð á At-
lantic Coast brautinni í Virginfu
f>ann 18. þ.m. Vagnlestin rann út
á brú eina, sem lá yfir stórt vatns-
fall, en miðhluta brúarinnar hafði
verið snúið til f>ess að gufuskip
kæmist eftir ánni. Lestin féll því
af brúnni ofan í ána og allir, sem
í henni voru, druknuðu. Það mun
hafa verið yfir 40 manns í lestinni.
Aðeins brautarþjónarnir komust
lffs af. Kæruleysi vagnstjórans er
kent um slys þetta, en sjálfur getur
hann enga ástæðu fært fyrir þvf
hversvegna hann stöðvaði ekki
lestinn áður en hann lileypti henni
út á brúna, eins og f>ó er almennur
siður og hann hafði ætfð áður gert.
— Brezkur anðmaður og fyrver-
andi þingmaður fyrir Camlachie
kjördæmið á Englandi, hefir verið
tekinn fastur og kærður um að
hafa áformað að drepa konuna sfna.
Hann bauð manni nokkrum stóra
peninga upphæð fyrir að hjálpa til
við illvirkið, en maðurinn varspæj-
ari og sagði alla söguna um tilboð
auðmannsins.
— Dómnefnd sú, sem gert hefir
út um ágreiningsmál miili Frakka
og Venezuela manna, hefir dæmt
Venezuela til að borga Frökkum
650 þús. dollara, og er það smá-
ræði eitt í samanburði við kröfur
Frakka, sem námu mörgum millf-
ónum dollara.
— Rússakeisari hefir veitt þegn-
um sfnum stjórnarskrá og með
henni meira frelsi en áður var.
Keisarinn veitir þjóðinni þingræði
en þingið verður aðeins ráðgefandi,
— völdin öll hjá keisaranum.
Fyrsta þing á að koma saman um
miðjan janúar næstkomandi.
— Fregnriti einn hefir nýlega
skýrt blaði sfnu frá bændaþingi,
sem fyrir skömmu var haldið í
Moscow. Bændur voru svo hrædd-
ir, að f>eir héldu fundi sína 4 nótt-
um í afskektu húsi, til f>ess að
vekja ekki grunsemi hervaldsins.
Samt náðu hermenn ýmsum bænd-
um um leið og f>eir komu inn í
borgina og vörpuðu þeiin f fangelsi
af því þeir neituðu að segja erindi
sitt. Margir bændur komu fót-
gangandi langar leiðir til þess að
sækja þing þetta. Flestar af ræð-
unum voru þess efnis að lýsa kúg-
un stjórnarvaldsins og illverkum
embættisinannanna. Ollum fund-
armönnum kom sam:m um, að
prestarnir og dómararnir væru örg-
ustu óvinir alþýðunnar, og að kirkj-
an væri aðeins deild af kúgunar-
kerfi stjórnar-fyrirkomulagsins
— Maður var n/lega sektaður
um $200 f Ontario fylki fyrir að
taka menn í lífsábyrgð án þess að
hafa leyfi frá stjórninni.
— B. B. Kieran frá Ástralíu
þreytti nýlega kappsund í Stokk-
hólmi, höfuðstað Svfarfkis, og syoti
500 metra á 7 mfnútum og 18 sek-
úndum. Enginn maður hefir áður
synt jafnlangan veg á svo stuttum
tfma.
— Gulasýkin f New Orleans er
voðagestur. Þann 13. þ. m. voru
936 sjúklingar þar í borginni og
50 bættust við þann dag, en 13 dóu.
Alls hafa dáið þar á fáum dögum
125 manns.
— Þann 7. þ.m. lézt f Washing-
ton prófessor Alexander M. Bell,
67 ára gatnall. Hann var faðir
Bells J>ess, er fyrstur fann upp tal-
þráðafyrirkomulag það, sem kent
er við nafn hans.
— Snjór féll í Newberry hérað-
inu f Michigan þann 9. þ.m. Varð
VÍ2 þuml. djúpur snjór og gerði
sketndir á ökrum bænda.
— Ottawa stjórnin hefir gert þá
herra Forget og Bulyea að fylkis-
stjórum f nýju fylkjunum, sem gerð
hafa verið f Vesturlandinu, og
Walter Scott verður leiðtogi Liber-
ala í Saskatchewan. En Haultain,
sem verið hefir stjórnarformaður
Norðvesturhéraðanna f mörg und-
anfarin 4r, fær ekkert embætti, en
verður að sjálfsögðu foringi J>ess
flokksj sera berst fyrir trúfrelsi og
öðrum fylkjaréttindum. Starfssvið
hans verður f Saskatchewan fylk-
inu og stefna hans verður sú, að
berjast fyrir J>vf, að fylkin fái full
yfirráð yfir löndum þeim, sem nú
eru í vörzlum ríkisstjórnarinnar.
Einnig mun hann berjast fyrir þvf,
að járnbraut verði bygð til Hud-
sonsflóa og að mentamálin verði
algerlega undir yfirráðum fylkj-
anna.
— C. W. R. Borchert, læknir f
Edmonton, var nýlega handtekinn,
kærður um hestaþjófnað. Hestapar
fanst í vörzlum hans og var hann
þá kominn af stað með það áleiðis
til WTinnipeg.
— Norðmenn hafa með almennri
atkvæðagreiðslu um land alt sam-
þykt að skilja við Svíarfki. Aðeins
einn af hverjum 3 þús. manns var
á móti aðskilnaðinum.
— Fjörutíu og J>rír af mönnum
þeim, sem gerðu uppreist á rúss-
neska skipinu Kniaz Potemkine á
dögunum, hafa verið kærðir fyrir
herrétti og próf tekin í málum
þeirra; fjórir eru dæmdir tildauða,
3 f æfilangt fangelsi, 15 voru frf-
kendir og hinir fengu fangavist
um lengri og skemri tfma.
— Jarðfa'll mikið varð f British
Columbfa f>ann 13. þ. m. 'og ger-
eyddi Indfána þorpi nokkru við
Thompson ána og drap um 12
manns, sem voru f þorpinu.
— Frétt frá Yorkton, Assa., dag-
sett I3.f>.m. segir, að hóp af Douk-
hobors haíi borið þar að bænum
J>ann dag, og voru þeir að leita að
Jesú. í hópnum voru 16 karlmenn
og jafnmargar konur, og 4 börn,
Þegar fólk þetta nálgaðist J>orpið,
klæddi það sig úr öllum fötunum
og brendi þau. Það vildi koma
nakið fram fyrir frelsarann, ef J>að
skyldi mæta honum f þcrpinu. En
lögreglan hafði aðra skoðun, hand-
samaði fólkið, vafði J>að í ullar-
voðir og hnepti í fangelsi. Og J>ar
verður það að bíða frekari rann-
sóknar.
— James Garron f Chicago kom
fyrir nokkrum dögum heim í hús
sitt og var talsvert ölvaður. Kona
hans sagði honum, að hann ætti að
stökkva í vatnið og drekkja sjálf-
um sér. Já, hann kvað það vera
sanngjama eftirlátssemi, að hlýða
ráðum góðrar konu og stökk út og
steypti sér í vatnið, sem var J>ar
skamt frá. Maðurinn náðist lif-
andi en dó skömiúu síðar.
— Byggingarlóð var nýlega seld
f Toronto-borg fynr $6,250 hvert
fet, sem að strætinu snéri. Þeir
koma tímamir, að land í Winnipeg
borg verður jafn dýrmætt.
— Ferðamenn frá Congo-ríkinu
í Afrfku, sem nýlega komu með
skipi til Þýzkalands, segja, að hóp-
ur af Niems mannætum hafi drepið
og étið 2 þúsund negra og 8 Þjóð-
verja J>ar syðra.
— Lávarður Grey, landsstjóri,
heíir ákveðið, að ferðast um Norð-
vesturlandið í haust. Hann verður
eina viku hér í bænum, frá 7. til
14. október.
Nýstárleg uppíundning.
Það var lúaleg aðferð, sem Lög-
berg beitti f síðustu viku, að gera
gys að fróttinni um tilboð pað. sem
herra Jónasi Pálssyni hefir gert
verið í Toronto-borg, að gerast
organisti í kirkju einni þar. Þvf
þó í blaði voru hefði misprentast
orðið “kirkjunni” fyrir orðin
“kirkju einni”, eins og ritað var í
handritið, þá var J>að ekki mál, sem
nokkur nauðsyn bar til að gert
væri að umtalsefni.
Óllkt betur helir Heimskringlu
farist við Lögberg á liðinni tfð.
Þetta blað hefir aldrei gert sér það
að ástæðu til þess að draga dár að
Lögbergi, að þar hafa fundist prent-
villur stöku siunum og stundum
jafnvel ófyrirgefanlegar afbakanir,
sem auglýsendum og öðrum hlut-
aðeigendum mundi miður líka, ef
þeir vissu af J>ví eða tækju eftir
því.
Til dæmis má nefna auglýsingu
Bankrupt Stock Buying Co, sem
birt er neðst á fimta dálki á fjórðu
bls. í Lögbergi dags. 6. júnf sl., —
þar sem frá því er sk/rt, að lérepts
hattar félagsins verði að sleðum.
Margir mundu þeir í landi þessu,
J>ar sem vetrarrfki er mikið og um-
ferð manna um langan tíma ársins
fer fram á s 1 e ð u m, sem mundu
glaðir verja 25 centum af fé sínu
til að eignast j>að verkfæri, sem
J>eir gætu notað fyrir sólskinshatta
á sumrum, en snúið upp f sleða á
vetrum. Það væri ekki ofboð leið-
inlegt fyrir fslenzku bændurna f
fylki þessu, að aka yfir slétturnar
á vetrum meðal nábúa sinna og f
kaupstaðinn á sumarhöttunum sín-
um! En svona hljóðar þó þessi
nýstárlega lippfundning í Lögbergi,
dags. 6. júní sl., og mega þetta telj-
ast stórum meiri framfarir en
nokkuð f>að, sem sögur fara af að
gerst liafi f Toronto-borg. ,
Eftir £essu hefir fólk ástæðu til
að vona, að næsta uppfundning
Lögbergs verði sú, að vagnar bænda
verði notaðir fyrir sólhlffar kvenna
og að bolum kvenna verði breytt f
loðskinnskápur fyrir bændurna að
skýla sér f, er þeir aka um slétt-
urnar á 25 centa léreptshöttum
Bankrupt Stock Buying félagsins!
HEUI8KRH'»LU og TVÆR
skemtilegar sögur fá nýir kaup-
endur fvrir að eins sa.oo.
Óðölin f óspart ná
Enskir, kaupum vanir;
“Toronto” mest treysta á
Tyrkir, Rússar, Danir.
Á “Beverly” oft beztu kjör
býðst í eign og lóðum.
Hefir enginn feigðarför
farið þar á slóðum.
“Fort Rouge” þykir fangasælt,
fallega “Brýtar” dansa.
Ávalt var þeim Eden hælt,
þar auður og metorð glansa.
Á f jögur {>úsund firðum var
fasteign seld án kala,
á fjórtán vikum fengust J>ar
fimtán þúsund dala.
Helgidóma huldu tal
ldustunum nú f dunar
gróðann stóra að grfpa J>ar
Grand Trunk inn þá brunar.
Ódáins við aura sýn
unaðs finnið blæinn,
þá ei sól og sumar dvfn
við Sánkti Maríu bæinn.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
205 Mclntyre Blk., Winnipeg
Telefbn 4159