Heimskringla - 31.08.1905, Blaðsíða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
T. THOMAS
lslemknr kaupma8«r
selur K«»l ok Elilivl«l
Afgreitt fijótt og fullur m«lir.
537 Ellice Ave.
Phone 2620
:
♦
♦
♦
♦
♦
:
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ T. THOMAS, kaupmaður
nmbotssali fyrir ýms vorzlunarfélöff
t WinnipeK og Austurfylkjunum, af-
ÍraiSir alskonar pantanir Islendinga
■ r nýlendunnm, þeim að kostnaðar-
lausu. Skrifíð eftir upplysingum til
♦
♦
♦
♦
♦
♦
:
♦
| 537 Ellice Ave
♦
Winniþeg
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦:
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 31. ÁGtJST 1905
Nr. 47
PIANOS og ORGANS.
Heintzman & Co. Pianos.-Bell Orgel.
Vér seljum med mánaðarafborgnnarskilmáium.
J, J. H- McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
Um póstmál.
Árni Eiprtsson
671 ROSS AVENUE
Ikeiu 3033. W'innipeg.
Eg hefi til sölu lot á Beverly St.
norðan við Sargent að vestanverðu
fyrir $850.00.
A Arliugton St. fyrir $10 fetið.
“ Alverstone St. fyrir $10 fetið.
“ Victor St. fyrir $16 fetið.
“ Maryland St. fyrir $23 fetið.
“ Agnes St. fyrir $15 fetið.
“ Furby St. fyrir $24 fetið.
“ Williaui Ave. $14 fetið.
A Notre DameAve. 33x198 ft. til
Winnipeg Ave. Grjafverð $25 fetið.
Nó hefi ég uóg af ueningum að
Una út á góð hús.
Eldsábyrgð, Lífsábyrgð.
Komið og liafið tal af mér.
Arni Eggertsson
0£8ce: Room 210 Mclntyre Blk
Telephone 3364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
FRIÐARHORFURNAR.
Það hefir verið örðugt að fá á-
kveðna vissu um friðarkosti þá, er
Japanar settu Rússum, En nú
hefir friðarnefndin samþykt, að op-
inbera kröfurnar og samþyktir þær,
sem gerðar hafa verið.
Rússar iiafa gengið að þvf að
riðurkenna yfirráð Japana yfir
Coreu. að báðir milsaðilar hafi sig
algerlega á burtu úr Manchurfu og
hafi par engan her framvegis, en
gefi þann landshluta hinum réttu
eigendum, Kínverjum, f hendur;
Rússar afsala sér öllum rétti til
Liao tangans, Port Arthur, Dalny
og Blonde og Eliott eyja. En aðal-
atriðunum í kröfum Japana, sem
sé að fá herskip Rússa á höfnum
hlutlausra þjóða og eignarrétt á
Sakhalin eyjunni ásamt yfir þúsund
millfón dollara í lierkostnað, —
eru Rússar alveg mótfallnir og
setja þvert nei fyrir að ganga inn
á þau. segjast hvorki láta af hendi
lðnd né lausa aura, þar sem þeir
séu engan veginn yfirunnir og hafi
næga peninga til að halda áfram
hernaðinum í heilt ár ennþá.
Að vísu geta nú Rússar ekki
fengið peningalán á heimsmarkað-
inum til þess að halda áfram liern-
aði, en keisarinn hefir tekið upp
það ráð, að þröngva rússneskum
auðmönnum til að selja rfkinu í
hendur 200 millfónir dollara af fé
sem þeir eiga fyrirliggjandi, gegn
5 próeent árlegum vöxtum. Að
vfsu láta blöð Rússa illa yfir þessu
tiltæki, en auðmenn og bankastjór-
ar verða að beygja sig undir vald-
boð keisarans, sem kveðst heimta
féð með liörðu, ef þeir vilji ekki
góðfúslega af liendi láta.
Til þess að miðla málum liafa
Japanar boðið að láta af kröfunni
nm lierskip Rússa, en heimta Sak-
halin eyjuna, sem þeir bjóðast svo
til að selja Rússum fyrir jafna upp-
hæð og herkostnaðar krafa Japana
nemur. Ef Rússar vilja ganga að
þessu, þá bjóðast þeir til að slá
stryki yfir herkostnaðar kröfu sfna.
En Rússar vilja ekki heldur ganga
að þessu, segja það sé sama sem
að gefa eyjuna Japönum í liendur
eða að borga þeim fullan lierkostn-
að. Þeir bjóðast á hinn bóginn til
að borga rfflega fæðispeninga fyrir
þá 100 J>ús. rússneska fanga, sem
nú eru f Japan. Þetta segja þeir
sé nóg með því sem Japanar fái
yfirráð yfir miklu járnbrautakerfi
þar eystra, sem bygt hafi verið á
kostnað Rússa.
Af 12 kröfum Japana liafa Rúss-
ar enn ekki gengið að nema 8, og
þar við situr. Friðarhorfur eru
því mjög óvænlegar, en f næsta bl.
verður væntanlega hægt að segja
ákveðið hvortofan áverður: friður
eða strfð.
Sú frétt berst, er blað vort er að
fara f pressu, að friður sé sam-
inn með Rússum og Japönum.
Nákvæmari fréttir í næsta blaði.
Múrsteins-leggjarar í Regina
hafa gert verkfall fyrir kaupliækk-
un. Þeir fengu 50c um kl, tfmann,
en heimta nú 60c. Verkveit-
endur neita um liækkun.
— Landstjórinn yfir þeim hluta
Austur Afrfku, sem heyrir undir
Wzkaland, hefir sent stjóm sinni
beiðni um mann-hjálp af þvf líf
þýzkra borgara þar f landi sö f
veði. — Tvö lierskip hafa verið
send þangað, og mikill her verður
settur þar á land til að vinna
sveig á fbúunum.
— Póllendingar liafa gert al-
ment verkfall um land alt sem
mótmæli gegn þeirri ákvörðun
Rússnstjórnar, að þeir fengu enga
hlutdeild að hafa í þingmálum
þjóðarinnar. Kosakkar hafa ver-
ið sendir til að sefa Pólverjana og
og hafa drepið nokkra þeirra en
varpað öðrum f fangelsi.
— Blaðið “Minneota Mascot”
hefir með nýliðnu 14 ára afmæli
sfnu stækkað að miklum mun og
er nú mjög myndarlegt blað. Hkr.
óskar ísl. ritstjóra þess, G. B.
Björnson, allra heilla með þetta
fyrirtæki hans.
— No'rska þingið liefir veitt
stjórnmni leyfi til þess að senda
menn til Svfarfkis til þess að koma
þar á friðsamlegum samningum við
Svíana. um algjörðan aðskilnað
ríkjanna.
Síín af þeim Doukhobors sem á
dögunum afklæddust og brendu
föt sfn og gengu svo naktir um
Yorkton-bæ að leita að Jesú,
hafa ,\ erið dæmdir f 6 mán-
aða fangelsi f Regina, og fluttir
á fangahús þar.
— Blaðið Free Press segir járn-
brautar félög þau í Bandaríkjunum
sem nú hafa fært niður flutnings-
gjald á hveiti, viðurkenna að hafa
orðið að liafa gera það í Dakota og
Minnesota vegna flutningsgjalda
ækkunar sem gerð liafi verið í
Manitoba. Blaðið segir ennfremur,
að þessi flutningsgjalda lækkun sö
margra millíón dollara virði í vasa
bændanna í þessijm rfkjum.
Þetta er vafalaust sú langbezta
viðurkenning sem járnbrautar-
samningar Roblin - stjórnarinnar
hafa ennþá fengið.
— Prinsessa Infanta María Te-
resa á Spáni, systir Sp&narkon-
ungs, ætlar að giftast prins Louis
Ferdinand frá Bavaria. Samning-
ar um þetta liafa þegar verið gerðir
af forráða fólki þessara persóna,
en þau verða að hlýða
— Fréttir frá Frakklandi segja
lmngursneið meðal fiskimanna f
Brittany, af þvf að Sardfnu fiski-
veiðin hafi algerlega brugðist.
600 skip liafa komið )ieim als-
laus eftir vertfðina, en 50 skip
öfluðu nokkuð, en þó minna miklu
en vonað var eftir. Beitan sem
Frakkar nota kemur frá nýfundna-
landi og koshir $10 tonnið. Hvert
skip brúkar daglega eitt ton af
.beitu, svo að tap þeirra sem lftið
eða ekkert öfluðu varð voðalega
mikið. Enda ervertíð þeirra talin
sú versta er sögur fara af í Frakk-
landi.
—Kfnverjar f New York liáðu
strlð f s. 1. viku; 4 menn voru
skotnir og margir barðir til óbóta,
og /ms hús þeirra voru skemd til
muna. Lögreglunni tókstum sfðir
að koma spektum á,
— AliceRoosevelt, dóttir Roose-
velts forseta Bandar., sem nú er á
ferð með hermálaritara Taft um
Manila Eyjar, lieflr fengið gifting-
ar tilboð frá Sultan yfir Sulu eyju.
Að vfsu á sá karl 6 konur sem liann
býr með, en lét þó sem sér væri
hugleikið að ná í dóttir forsetans.
Ekki getur fréttin um, hvort svar
hún gaf mót loónorði soldáns, en
trúlegt þykir að ekki verði mikið
af samningum.
— Gyðingur einn frá Roumauia
107 ára að aldri, ferðaðist n/lega
til Canada í kynnisferð til sona
sinna sem hér búa, og er sá elsti 88
ára gamall. Oldungur þessi er
hraustur á sál og lfkama, og er liann
hafði lokið erindinu hjá sonum
sfnum, hélt hann aftur til Jaffa og
þaðan ætlar hann til Jerusalem og
dvelja þar til æfiloka.
— Skýrslur frá búnaðardeild
Norðvestur-liéraðanna segja upp-
skeru útlit þar liið bezta, og að
þessa árs uppskera muni verða
afar mikil. Engar skemdir nein-
staðar af frosti eða riði.
— Þyzkur prófessor f Berlin
hefir stungið upp á því, að konur
sé teknar inn f þýzka herinli.
Hann hefir ritað um mál þetta í
tímaritið “Nord und Sued”. Hann
villláta hverja unga konu vinna 3
ár í hernaði, áður en þeim sé leyft
að giftast. Hann telur rétt að
konur séu í þessu tilliti liáðar
sömu lögumog karlmenn, sem allir
eru lierskildir á unga aldri. Einn-
ig álítur hann rétt, að strax og
konur heimta jafnrétti við karla, þá
sé sjálfsagt að þær lúti sömu skyld-
um; jafnt f liernaði sem f öðrum
stöðum.
— Doktor M. D. Rucker í Lund-
únum, sem eitt sinn var millíóna
eigandi, er nú orðinn gjaldþrota og
getur ekki borgað skuldir sínar.
Hann hafði tapað mestu af auði
sfnum í kaupum veðreiða-liesta.
— t'ngur svertingi var nvlega
brendur á bili í North Carolina. Á
þingi svartra Baptista var rætt um
mál þetta, og komist að þeirri
niðurstöðu, að maðurinn liefði unn-
ið til þessa dauðdaga.
— Þingið og stjórnin f Svfa-rfki
hafa samþykt að semja friðsamlega
um að skilnað Noregs og Svfþjóðar.
— Brezkt gufuskip rakst á jap-
anskt mannflutninga skip á jap-
anska liafinu og sökti þvf. Á skip
inu voru 160 japanskir hermenn
sem allir voru meira og minna veik
ir, — þeir druknuðu allir.
— Voðalegar óeyrðir og hryðju-
verk eru daglegir viðburðir f Elfsa-
bethgrad og Alexandria héruðum
á Rússlandi. Leigu bændur vaða
um landið í stór fylkingum og
brenna og eyðileggja eignir stór-
landeigenda 6g auðmanna.
Margir kaupmenn eru ýmist
meiddir eða myrtir, og eignir þeirra
teknar af þessum ferðamönnum.
Járnbrautabrýr eru sprengdar og
ýmislegur annar óskundi framinn.
Bærinn Wernendfroosk var lagður
í eyði; þar réðust vegfarendur á
alt sem fyrir varð, ræntu verzlunar-
húsin, stungu augun úr og skáru
eyrun af kaupmönnum og brendu
bæjinn. Hermenn voru sendir til
að skakka leik þennan, en konni of
seint til að verða að liði.—
— Minto lávarður, sá er síðast.
var landsstjóri í Canada, hefir ver-
ið gerður að landstjóra yfir Ind-
landi. Canadizku blöðin f austur-
fjikjunum. og enda sum hér
vestra, eru óvæg yfir þessu; segja I
manninn als óhæfan sem stjórnara
og vona að slíkur komi aldrei ti
Canada framar. Þegar Lord Minto
fór frá Canada, fékk liann öflugt
meðmæli og hóls ávarp frá rfkis-
þinginu í Ottawa, sem lét f ljósi
hrygð sfna yfir þvf að verða að sjá
á bak svo mikilhæfum stjórnara.
En nú segja blöðin, að þingið hafi
ekkert annað meint með þessu, en
barakurteisi,og að hólið um lands-
stjórann hafi aðeins verið /kjur og
ósannindi.
IsLAND.
Frakkar eru að byggja spftala á
Vestmannaeyjum, sem á að rúma
9 sjúklinga. — íslenzkt smjör selt
f Danmörku á 1 kr. pundið og lftið
lægra á Englandi.—Kuldaróvenju-
lega miklir á Suðurlandi síðast í
júlf, en á Austurlandi með hl/jasta
móti í alt sumar.— Islenzkir hest-
ar seldir erlendis á 232 kr. að jafn-
aði hver, 2 vagnhestar á 300 kr.
hvor og dyrasti hesturinn í hópn-
um fór fyrir 420 kr.—— Yerið er að
koma upp barnahfceli f Reykjavfk
og hafa ýmsir gefið rfflegar upp-
hæðir til þess. — Þjóðminningar-
dagur haldinn 2.ágúst í Reykjavfk.
Lög afgreidd frá alþingi eru:
1. Um hækkun á aðflutningstolli,
2. Um stefnufrest frá dómstólum
á Islandi til liæztaréttar, — í
einkamálum.
3. Um ákvörðun verzlunarlóðar-
innar í Yestmannaeyjum.
4. Um lögaldursleyfi lianda kon-
um.
5. Um skyldu embættisma'ma, að
sjá konum sfnum borgið eftir
sinn dag.
6. Um hegning fyrir tilverknað, er
stofnar hlutleysisstöðu rfkisins
1 hættu.
7. Um stækkun verzlunarlóðarinn-
ar í Bolungarvík.
8. Um stækkun verzlunarlóðarinn-
ar á Búðareyri við Reyðarfjörð.
9. Um heimild á lóðasölu fyrir Isa-
fjarðarkaupstað.
Frumvarp til laga tim afnám fóð-
urskyldu Marfu og Péturs lamba
var felt f þinginu.
Mareoni loftskeytin hakla áfram
að koma til Rvíkur, svo að segja
daglega, og hepnast sendingin á-
gætlega—Þýzkir ferðamenn komu
í sumar til Islands á 2 skipum og
eyddu miklu fé meðan þeir dvöldu
í Rvík, keyptu frímerki fyrir á ann-
að þús. kr. og bréfspjöld fyrir ann-
að eins, gáfu holdsveikra spftalan-
um 500 kr. — N/stárlegt er það í
sögu íslands að á þriðja hundrað
'ijændur úr öllum kjördæmum sunn-
anlands, hafa gert sér ferð til R.-
vfkur, til þess að ná fundi Haf-
steins ráðgjafa og mótmæla stefnu
hans og stjórnarinnar í stórmálum
þjóðarinnar. Fundur sá, er nefnd
þessa stóra bændaflokks átti með
ráðgjafanum fór fram 1. þ.m., og er
svo sagt, að þá hafi margar þús.
manna verið samankomnar í Rvík
til þess að styðja málstað bænd-
anna, sem gengtð höfðu frá vinnu
um hásl&ttinn til þess að takast
ferð þessa á hendur, af alvarlegum
áhuga fyrir velferð þjóðlegra stór-
mála. Tyær kröfur voru bornar
fram fyrir ráðgjafann: 1) að hann
hætti við ritsfmamálið og tæki loft-
skeytatilboði Marconis, og 2) að
stjórn og þing afstýri þeim stjórn-
arfarlega voða, sem stafar a£ þvf
að forsætisráðlierra Dana undir-
skrifi skipunarbréf Islands ráðherr-
ans, Ráðherrann gaf það svar, að
hann vildi hvorugri áskoruninni
sinna. Þá hrópaði mannfjöldinn
úti fyri r fundarsalnum: “Niður með
þá stjórn sem ekki vill hlýða þjóð-
viljanum! Niður með ráðherrann!”
Um þetta segir Fjallkonan, að “frá-
leitt liafa nokkru sinni jafnmargir
menn hrópað í einu liér á landi”,
Ástæður ráðgjafans fyrir þvf, að
neita að sinna áskorun bæmlanna
voru: 1) að undirritun forsætisráð-
herra Dana undir skipunarbréf
ráðherrans setti landsréttindi ís-
lendinga í enga hættu, og 2) að
loftskeyti gætu ekki orðið send við
dagsbirtu og væru þar að auki ó-
tryggari en þráðskeytin, og 3) að
ekki væri með þessari heimsókn
sannað, að þjóðviljinn væri stjórn-
inni andvfgur f þessum málum. En
fremur kvaðst hann enga ástæðu
finna til þess að fresta málinu eða
að rjúfa þingið og leggja málið und-
ir dóm kjósendanna. Síðar var
haldinn fundur ndkill á Austur-
velli og rætt um málið; voru þá
marghrópuð sömu orðin og að fram-
an er frá skýrt, og auk þess sungið
þetta vers úr “fslendingabrag”
Jóns Ólafssonar: “Og þeir fólar,
sem frelsi vort svfkja”, o.s.frv. Það
er og f vændum, að önnör sveit
bænda úr kjördæmum norðan og
austanlands muni gera ferð til R.-
víkur til þess að mótmæla* gerðum
stjórnarinnar í ritsfmamálinu. —
Sendimaður Marconis í Rvfk segir,
að jafn-auðvelt sé að senda skeyti
á degi sem nóttu.
KJAFTA-ÞING.
Hræfuglarnir héldu þing
heimskunnar á pöllum.
sekan dæma sakleysing,
smáflugl einn, er flaug í kring
og söng um lielga svfvirðing
sannleiksrómi snjöllum.
Herjans mengi hefnda svangt
heift lét enga sparða:
sekt að fengi’ ei sýndist rangt,
með sóp að flengja ei nógu
strangt.
Nokkrir gengu loks svo langt,
að láta henging varða.
Hrafninn rómi hásum, krá,
liljóðs sér bað á þingi,
fölskum glyrnum gaut á ská,
glenti vélið búknum frá.
hrokinn sat í sveppum á
svörtum uppskafningi
“Söngfugl þenna”. krummi kvað,
“klerkar ættu að flengja,
háðulegt þvf held ég að
hatí straffið verðskuldað;
fsjárvert þó ætla’ eg það
ófétið að liengja.
“Mfn er jafnan meining föst,
mér það lfkar ekki,
átt það getur eftirköst,
ýmsir kalla glæpalöst,
að skjóta jafnvel skógarþröst.
Skárra ráð ég þekki.
“Fann ég hvar hans fylgsni var
fram á dal í vetur;
ættum króa’ ’ann inni þar
og af honnm reita f jaðrirnar,
úr þvf kemst hann ekki par
eða sungið getur.
“Ekki mun hann oftar þá
okkur verða að meini,
hægt ér lfka eftir á
af lionum snoðinn bjórinn flá,
og átuna — nafnar! krá. krá, krá!
kroppum svo f leyni.”
Tillagan var krákum kær,
“Kingo” frá eg þær syngi.
Karlflokkurinn öskiaði ær
a m e n, síðan skelti á lær.
Fólin svo með flentar klær
flugu af kjafta-þingi.
Vígabarði.
HKIJIISKKINGLU og TVÆR
skemtilegar sögur E& nýir kaup-
eudur fvrir að eins SIS.OO.
Sfðustu rfkisskýrslur vfir póst-
mál Canada yfir árið 1904 em bæði
fróðlegar og skemtilegar. Hér
era aðal atriðin úr þeim:-
Tala pósthúsa í Canada 10.460;
ala registéraða bréfa flutt með
pósti, 5,986,000; tala bréfa án burð-
argjalds 88,190,000; tala ailra bréfa
flutt með pósti 259,190,000; tála
póstspjalda 27,198,000; tala bréfa á
nef hvert í ríkinu, 46.25,
Af þessari bréfatölu hefir sent
verið frá Manitoba og Norðvestur-
landinu nær 30 millíónir, eða sem
næst 52 bráf á hvert nef íbúanna.
Vegalengd sú er bréfin vora flutt
yfir var: Með járnbr. 19,756,019
mflur. Á ám og vötnum 1,324,512
mlr. í keyrsluvögnum á landi 16,-
129,121 mflur. Als 37,209,652 mlr
Kostnaður við flutningin $6,306.-
420.00. Inntektir við fiutningin
$6,001,636 00. Gróði als $304,784.00
Fyrir frfmerki og póstspjöld fékk
stjórnin á árinu $5,636,746.00.
Af registéraðum bréfum vora 135
send á dauðra bréfa deildina en
17,155 komust ekki til þeirra er
þau voru send tii; af þeim voru 15,-
407 endursend til ritaranna ; aðeins
8 slfkum bréfum var stolið en 18
týndust algerlega. Als voru send
á dauðrabréfa deildina á árinu
1,405,362 bréf og bréfspjöld og
böglar og þessháttar póstflutninear
og flestum þeirra varð komið til
sendendanna. 35,243 peninga bréf
með als $438,343.00 virði voru flutt
með pósti á árinu.
í þessum skvrslum. sem teknar
eru úr “Statistical Year Book,”
fyrir 1904 eru engar upplýsingar
gefnar um tölu blaða sem gengió
hafa með pósti — Þær fást í skýrsl-
um póstmála-deildarfnnar fyrir
það ár.
Fjármálaskyrslurnar eru einnig
fróðlegar. Inntekt rfkisins á árinu
1904 varð $70,669,817.00, þar af
fyrir aðflutnings toll a innfluttum
vörum $40,110,355 og fyrir innlands
tolla $12,957,751. Als fyrir tolla
$53,912,100.00. Útgjöldin urðu
$57,266,928.00 og auk þess rúml.
15 inillfónir dollars. Yextir borg-
aðir af þjóðskuldum $13,732,687.
En þjóðskuldin er talin als $364,-
961,512.00, eða að fr&teknum rfkis-
eignum $260,867,719.00.
FyrLrspurn.
Fyrir nokkrum árum síðan fór
ungur piltur, að nafni Thorsteinn
Thorsteinsson,liéðan úr bænum,suð
ur til Mountain N. D., f vinnu til
hra. Jóns Hilmans. Þar var hann
nokkurn tíma. Það hefir sfð-
ast fréttst til hans fyrir tveim ár-
um síðan, að hann hafi J>á farið
frá N. Dakota til Duluth, Minn.
Skyldmennum hans f Winnipeg
er ant um að hafa upp & honum.
Þeir, sem kynnu að vita hvar
Thorsteinn þessi er niðurkominn,
era vinsamlegast beðnir að tilkynna
það á skrifstofu Heimskringlu.
•♦•'fc-
MARKUSSON &.
BENEDIKTSSON
205 Mclntyre Blk,, Winnipeg
Telefón 41ö9