Heimskringla - 07.09.1905, Blaðsíða 1

Heimskringla - 07.09.1905, Blaðsíða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ T. THOMAS ♦ lslenzkur kanpmaBur J ♦ selur Kol og Kldivid ♦ J Afgreitt fljótt og fullur mælir. J ♦ 5it7 Ellice Ave. Phone 2620 ♦ $♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ : ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ T. THOMAS, kadpmaðpr nmboOssali fyrir ýms verzlunarfélög 1 WinnipeR og Austurfylkjunum, af- ereiöir alskonar pantanir íslendinga ur nýlendunum, peim aö kostnaöar- lausu. Skrifíð eftir upplysingum til 557 Ellice Ave. - - - Winniþeg ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ XIX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 7. SEPTEMBER 1905 Nr. 48 Arni Eggertsson 671 ROSS AVENPE Phone 3033. Winnipeg. Eg hefi til sölu lot á Beverly St. norðan við Sargent að vestanverðu fyrir $350.00. A Arlington St. fyrir $10 fetið. “ Alverstone St. fyrir $10 fetið. “ Victor St. fyrir $10 fetið. “ Maryland St. fyrir $23 fetið. “ Agnes St. fyrir $15 fetið. “ Furby St. fyrir $24 fetið. “ William Ave. $14 fetið. A Notre DameAve. 33x198 ft. til Winnipeg Ave. Gjafverð $25 fetið. Nú hefi ég nóg af ueningum að l&na út á góð hús. Eldsábyrgð, Lífsábyrgð. Komið og hafið tal af raér. Árni f]ggertsson Offlce: Room 210 Mclntyre Blk Telephone 3364 Fregnsafn Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. Bretar og Japanar hafa endur- % nfjað bandalags samning p>ann, er gerður var fyrir 2 árum, og er Jap- önum með þvf trygður að miklu leyti ágöðinn af sigri sfnum yfir Rússurn, þvf engin stórveldi Ev- rópu munu voga, að skipta sér af þeim málum meðan Bretar og væntanlega einnig Bandarfkjamenn eru á hlið Japana. — Próf. Garner fri London hefir lagt upp f aðra ferð til Afrfku til þess að athuga mál apanna f>ar. Hann hefir áður ferðast þangað f sömu erindum og komist að því, að aparnir tala eins margar tungur og menskir menn. — 30 þúsund ekrur af kolalandi á Queen Charlotte eyju f Kyrrahaf- inu liafa verið keyptar fyrir 700 þús. dollara. — Laurier-stjórnin hefir ákveðið að senda 2 eða 3 af ráðgjöfum sín- um sem rannsóknarnefnd til þess á ný að athuga tollmálin. Fyrsti fundur nefndarinnar á að verða í Winnipeg 7. sept. næstk. — C.P.R. félagið hefir lagt fram mótmæli gegn því, að Gr.T.P. braut- in fyiirhugaða sé látin liggja sam- hliða C.P.R. brautinni hér f Mani- toba og vestar, á nokkur hundruð mflna löngurn vegi. Á löngum köflum verður bara 14 míla milli brautanna. Ottawa stjórnin hefir ályktað, að hún geti ekki skift sér af því máli. — Sir John Forrest, fj&rmála- ráðgjafi f Ástralíu, sagði f Mel- boume þinginu f>ann 22. þ. m., að inntektir rlkisins á nýafstöðnu fjár- hagsári hefðu verið 57,333,000 doll- arar, en útgjöldin að eins 21,500,000 dollarar. Hann stakk upp á [>vf, að rfkisstjórnin tæki að sér skuldir allra fylkja f sambandinn, sem eru alls 1170 millíónir dollara, og mælti með að breyting yrði gerð á stjórn- arskránni til þess að koma þessu í verk. Hann bjóst við, að næsti árstekju afgan ur yrði sem næst34 millíónir dollara. — Mælskur prestur Dr. Simpson f ríkinu Maine f Bandarfkjunum hélt nýlega guðsþjónustu f kirkju sinni, og fyrir áhrif mælskunnar fékk hann yfir $45,000 f samskotum við þá messugerð. — 95 ára gömul kona f North Dakota réð sér bana í sl. viku með því að kasta sér út um loftsglugga á húsi tengdasonar sfns. Hún liafði verið blind f 25 ár og var orðin leið á lífinu. — Johan Hock, f Cliicago, sá er giftist um 40 konutn og kærður var fyrir að hafa ráðið mörgum þeirra bana og dœmdur var til hengingar fyrir glæpina, hefir fengið frest nokkurn svo að m&l hans verði rannsakaðjað nýju. ' — Eldur í Point Edward gerði 125 þúsund dollara tjón fyrir fáum dögum síðan. — Anarkistinn Jori réð sér bana í fangelsi í Botzen f Austurríki þ. 19 f. m. Hann hafði verið hand- tekinn fyrir að bera á sér morðtól, bæði skammbyssur og sprengikúl- ur, og skjöl, er sýndu, að hann var af félagsbræðrum sfnum valinn til að myrða Austurríkis keisara. — Blaðið “Omaha Bee” segir út- gjöld Bandarfkjanna á sl. 13 mán- uðum hafi verið40 millíónir dollara meiri en inntektirnar, og að nú sé alþýðan með ýmsa áhrifamikla stjórnmálamenn f broddi fylkingar búin að hefja hreyfingu til að fá þessu kipt í lag með þvf að krefj- ast þess, að stjórnin gæti þess fram- vegis, að láta inntektirnar mæta útgjöldunum — nfl. að minka út- gjöldin. — 8ir Frederick Travers, einn af frægustu|læknum á Bretlandi, hofir nylega sagt f skýrslu til stjórnarinnarj að f Suður-Afríku hafi það verið áreiðanlega sannað, að af f>eim 30,000 mðnnurn, sem sendir voru til að hjálpa herliðinu f Ladysmith, hafi f>eir uppgefist fyr3t á göngum, sem drukku vfn. Hann segir að f>að sé áreiðanlegt, að öll víndrykkja‘|dragi afl og f>ol úr mönnum. — Skógareldar i Nova Scotia hafa eyðilagt miklareignir f tveim- ur bæjum þar í fylkinu, en mann- tjón hefir ekki orðið af þeim. — Járnbrautarslys varð nálægt Innisfail f Alberta þann 29. ágúst. Átta flutningsvagnar eyðilögðust, en farpegjavagnarnir fóru ekki af brautarsporinu og enginn maður á lestinni meiddist. — Hon. Peter Jansen, sunnan úr Bandarfkjum, hefir verið að ferðast um f Canada, sérstaklega Norðvesturlandið, og segir afdrátt- arlaust, að Quill Plain héraðið í Assiniboia (þar sem nokkrir landar vorir hafa tekið sér bólfestu), sé það fegursta landsvæði, sem hann hafi séð nokkursstaðar og telurþað ágætlega’gott til akuryrkju. — Roosevelt forseti vildi sjálfur vera vottur að tilraun, sem nýlega var gerð fJOyster Bay með nýjan köfunarbát, sem smfðaður hafði verið fyrir stjórnina. Roosevelt var 50 mínútur neðansjávar í bát þessum og lét vel af ferðinni. — Mestajóánægja er sögði f Pét- ursborgar-búum yfir ræktarleysi stjórnarinnar við limlesta hermenn, er fluttir hafa verið þangað frá Mancliúrfu Mesti fjöldi af slíkum aumingjum, sem annaðhvort vantar hönd eða fót og f sumum tilfellum hvorutveggja, ganga nú um götur borgarinnar og biðja beininga. Margir þessara manna bera St. Georgs krossinn á brjóstum sér. En hann er veittur aðeins f>eim, sem hafa s/nt framúrskarandi dugnað og hetjuskap. Samt sinnir stjórnin þessum mönnum ekkert. — C. P. R. félagið hefir lagt fram, eins og áður er drepið á, and- mæli gegn legu G.T.P. brautarinn- ar í hendnr landsstjóra Grey og beðið liann að skakka leikinn milli sín og Laurier-stjórnarinnar. — Landsstjóri Greý er þannig beðinn að taka fram fyrir hendur stjórnar- innar og banna, að G.T.P. brautin verði bygð eins nálægt C.P.R. eins eins og nú er byrjað að gera vestur frá Portage la Prairie. Það var í fyrstu samið svo um og af öllum milspörtum svo skilið, að pessi nýja braut skyldi liggja f ekki minna en 30 mflna fjarlægð frá nokkurri áð- ur lagðri jámbraut hér í Vestur- lándinu. En nú byrjað að leggja þessa nýju braut þannig, að hún á 275 mflna svæði hér í fylkinu hvergi er meir en 10 mílur frá C.P. braut- inni og sumstaðar aðeins hálfa mflu frá henni. Út af þessu er C. P. félagið óvægt, og þar eð stjórnin vill engu skeyta mótmælum þess, þá leggur [>að mál sitt undir lands- stjórann. — Amerfkanskt gufuskip sökk f stórsjó við Florida strendur og 20 manns drukknuðu af [>vf. Aðeins 2 komust lffs af. Skipið flutti kol frá Philadelphia. — Þjóðverjar hafa herjað á 1,000 uppreistarmenn f Austur-Afrfku þ. 25. ágúst og unnið sigur á þeim. Margir féllu fyrir vopnum, aðrir voru reknir út f Refyi ána og druknuðu [>ar. Aðeins helmingur af uppreistarmönnum var útbúinn með vopnum. — Vindbylur æddi yfir Souris bæ f Manitoba og gerði þar 5 þús. dollara skemdir. Svifti þökum af húsum og gerði nokkrar skemdir á ökrum norðan við bæinn. Sagt er að storms þessa hafi orðið vart í Pipestone og Virden, en nær því engar skemdir urðu í þeim bæjum. — Fyrir nokkrum dögum kom [>að fyrir í bæ í Ontario, að stungið var upp á að gera manni einum [>ar í bænum aðsúg og hræða hann. Maðurinn var giftur barnamaður. en var fremur óviusæll þar í bæn- um. Þetta var að ráði gert og eitt kveld, þegar dimt var orðið hélt hópur af mönnum heim að húsi hans. I förinni var maður, sem hafði verið f strfðinu í Suður- Afrfku, og bjó hann sig út með riffil hlaðinn mörgum skotum. Þeg- ar að húsinu kom, lét skríllinn mjög óðslega til f>ess að hræða þá er inni voru, og hermaðurinn tók riffil sinn, miðaði á húsið og skaut 3 skotum. Svo hljóp fólkið burtu, án þess að athuga, hverjar afleið- ingar af þessu hefðu orðið. Næsta dag barst sú frétt út, að 11 ára gamall sonur bóndans hefði verið skotinn til bana og dóttir hans hættulega særð. Leit var svo hafin aftir [>eim, sem verk þetta hafði unnið og játaði þá Afrfku-maður- inn á sig glæpinn, en kvaðst hafa gert þetta í gáska og það væri ó- viljaverk. Rannsókn var hafin í málinu og kviðdómur settur til þess að ákveða um sekt eða sýknu mannsins. Það var sannað, að ferðin var eingöngu gerð til þess að hræða manninn, að hlaðinn riff- ill var af ásettu ráði hafður með f förinni og lionum miðað á húsið, er fólkið bjó í, og 3 skotum hleypt úr honum. En samt komst kvið- dómurinn að þeirri niðurstöðu, að maðurinn, sem skaut úr riffilnum og drap eitt barn en særði annað, væri saklaus! Og við það var mál- ið látið falla niður! — En mörgeru blöð þau, sem hafa svo mikla ein- urð og réttlætistilfinniugu, að þau hafa farið hörðum orðum um dóm þennan. Enda hefir hneixlanlegri dómur aldrei verið upp kveðinn í þsssu landi eða öðru. — ítalskir vinnumenn í Fort William köstuðu grjóti í kaupa- menn frá Ontario, sem fóru þar um í sl. viku, og meiddu suma þeirra hættúlega. Einn af mönnunum, sem fékk stein f höfuðið, varð að flytja & spítala og búist við, að liann tapi sjón á öðru auganu. — Á fundi, sem 300 menn héldu f Pötursborg á Rússlandi 31. ágúst^ var auglýst, að [>úsundir bænda í Saratoff og Samara héruðunum séu að vopnast til undirbúnings undir almenna uppreist, sem í ráði er að að gera þar á þessu hausti, sem nú fer í hönd. — Læknir í Kingston, Ont., S. H. Fee að nafni, skaut sig til bana í sl. viku. Hann var að verða blindur og þoldi ekki mótlætið. — Gerðarnefndar þing mikið var haldið í Brussels [>ann 27. þ.m. Voru þar saman komnir erindrekar frá öllum löndum. Frumvarp til gerðar-samninga var lagt fyrir þingið, en ekkert útgert um það, en samþykt að koma saman f Hague að loknu stríðinu milli Jap- ana og Rússa. Þessi samþykt var gerð í tilefni af skriflegri beiðni í þ& átt frá Roosevelt forseta, er les- in var upp á fundinum. — Blað eitt í Parfs á Frakklandi leggur til, að John D, Rockefeller, auðmaðurinn mikli f New York, sletti f Japana 500 millíónum doll- ara, eða svo sem svari herkostnaði þeim, er heimtaður var af Rúss- um. Blaðið telur gamla manninn geta þetta án þess að taka sér f mein og Japönum komi vel að fá skildingana. Gamli Jón þegir við þessari tillögu. — Tzar Nikulás hefir persónu- lega sent þakklætisskeyti til Roose- velts forseta fyrir starf hans í þarfir Rússlands. Frá Svfarfki koma og þær fréttir, að ein af Noble verðlaununum muni á næsta ári verða veitt Roosevelt forseta fyrir starfsemi hans í [>&gu bræðra- lags meðal þjóðanna og alheims- friðar. Verðlaun [>au eru talin 40 þús. dollara virði. — Nýlega hafa Bandaríkjamenn hleypt af stokkunum nýsmíðuðu herskipi, sem [>eir nefna “Ver- mont”. Það er talið með stærstu og öflugustu skipum í heimi, 450 f. langt, 77 f. breitt og hefir lfiþús. tn. lestarúm. Skipið hefir 32 fall- byssur og skipshöfn þess er um 800 manns. — Bretar og Japanar endurn/j- uðu bandalag með sér [>ann 12. ágúst. Er svo ákveðið að þjóðirnar skuli hjálpa hvor annari á ófriðar- tfmum, jafnvel þó aðeins ein þjóð ráðiit á aðra hvora. Pað er álit Evrópuþjóða, að [>essi samningur tryggi framtfðarfrið meðal heims- ins þjóða um langan aldur. — Það er almenn skoðun stór- veldanna, að Noregur muni setja á stofn hjá sér lýðstjórn, þó [>jóðin sé nokkuð tvfskift í þvf efni. — Kóleru s/ki hefir komið upp í Þýzkalandi jókst tala sjúklinganna á 5 dögum um 20 í 12 héruðum. Stjórnin hefir gert alt, sem í henn- ar valdi stóð, til þess að afstýra út- breiðslu s/kinnar. — Loftfari Baldwin frá Lesanti- ville, Ohio, týndi lífi f loftfari sínu þann 30. ágúst. Hann var að sf na, hvað gera mætti mætti með dyna- miti á ófriðartímum og hafði með sér í loftfarinu talsvert af [>ví sprengiefni. Þegar hann var 2 þús. fet í lofti uppi, [>á kviknaði alt í einu f sprengiefninu og splundraði loftfarinu í sundur og tætti mann- inn í smáagnir. Mörg hundruð manna horfðu agndofa _á þennan atburð. — Sendimenn Japana, sem sátu á friðarfundinum f Portsmoutli, hafa fengið lieimboð úr nálega öll- um hlutum Austur-Canada og frá Englandi. Óvfst er ennþá, hvort þeir sinna nokkrum af þeim heim- boðum. Sérstakt heimboð hetir rfkisrit.ari Ottawastjórnarinnar gert barún Komura um að koma til höfuðstaðarins, og er nokkur von um, að liann piggi það boð, ef tfmi og hentugleikar — og keisari Jap- ana leyfir það. — Rússneskir leiguliðar f Alex- androvsk hafa gert samtök til [>ess að r&ða sjálfir hverja leigu þeir gjaldi landeigendum af leigulönd- unum. Alment er að borga fjórð- ung uppskerunnar fyrir afnot af landinu, en nú hafa leiguliðar neit- að að gjalda meira en einn tfunda hluta uppskerunnar til landeig- enda. Og þeir hafa jafnvel gengið svo langt, að hóta að drepa land- eigendurna, ef þeir gæfu sér ekki PIANOS og ORGANS. Heintzman A Co. Pianoa.-Beli Orgel. Vér seljum með mánaðarafborgunarskilmáium. J, J. H- McLEAN & CO. LTD. 530 MAIN St. WINNIPEG. ♦ ■ ........... —-------------------♦ NEW Y0RK LIFE Insurance Co. Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að npphæð $342,212,569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón- um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt á nokkru undanfömu ári. — Nærri 20 niillíónir dollara var borgað fyrir 6000 dánarkröfur.. Yfir 20 mill. til lif- andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini þeirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél. hækkuðu um 8^ millfón. — Sjóður [>ess hækkaði um 38 millfónir, er nú $390,660,260.— Lffsábyrgð í gildi hækk- aði um $183,396,409. Öll lffsábyrgð í gildi 1. Jan. 1905 $1,928,609,308. CHR. ÓLAFSSON, J.G. MORGAN, AGENT. WlNNIPEG MANAGER ♦ ■—-... .................................... ...♦ algerlega þau lönd, er [>eir hafa hingað til tekið á leigu af þeim, og að [>eir augl/stu þær landgjafir f blöðunum, sem hafandi verið gerð- ar af fúsum og frjálsum vilja. — Landeigendur eru ráðalausir; þeir hafa leitað aðstoðar hervaldsins og bardagar liafa orðið og manndráp og meiðingar. Tvo landeigendur hafa bændur skotið, sem neituðu að láta af hendi lönd sfn fyrir ekkert. — Látinn er í Indianapolis [>. 23. ágúst Philip Kreigh, talinn stærsti maður í Indiana, Hann var 775 að [>yngd og yfir 6 fet á hæð. Leiðrétting á jámbrautarsög- unni í Lögb. og Baldri. Hr. Gísla Thompson farast þann- ig orð & einum stað í “sðgunni”: “ Sumir af Gimliuiannanefndinni settu sig þvf f bréfasamband við núverandi þingmann vorn í sam- bandsþinginu, Mr. S. J. Jackson, og sömuleiðis er mér kunnugt um, að Mr. E. Ólafsson ritaði i n n a n - J rí kis r á ðgj af anu m í Ottawa og fékk mikilsvarðandi upplýsing ! ar í málinu”. . Nei, nei, þetta er hr. Thompson e k k i kunnugt um, því innanrfk- isráðgjafanum hefi ég aldrei ritað j um já^pbrautamálin á Gimli, en hitt gerði ég, að skrifa járnbrautar- málaráðgjafanum í Ottawa, Mr. Emmerson, all-langt bréf um þessi mál 7. júnf í sumar, og fékk frá honum brcf, dagsett 14. júnf (sem var rétt um það leyti, sem Gimli- menn voru að fara í sfðasta leið- angurinn til Winnipeg), [>ar sem hann segist liafa fengið bréf frá mér, og lofar að svara spurningun- um og gefa þær upplýsingar, sem beðið sé um. Eftir að bréfið mitt frá 7. júní er svo búið að vera f salti bjá honum tvær eða á þriðju viku, skrifar hann mér frá Ottawa 27. júnf, sem er rétt um það leyti sem nefndarmennirnir frá Gimli voru staddir hér í Winnipeg, og voru að skiftast á hraðskeytum við Mr. Jackson, með aðstoð hr. Sig- tryggs Jónassonar, og kom það bréf til mfn sama morguninn, sem nefnd- armennirnir fráGimli lögðuaf stað heim til sfn, sem mun hafa verið 30. júnf. Þetta bréf sendi ég svo rétt á eftir til hr. Guðm, Christie á Gimli, formanns sjömannanefndar- innar, sem kosin var f vetur, og sem ég hafði þann lieiður að vera í. Hjá honum var bréfið um all-langan tfma og [>ar hefði Mr. Thompson og aðrir nefndarmenn átt að geta séð það og innihald þess. Enda munu þeir og hafa gert það ? Inni- hald bréfsins var vitanlega mikils- varðandi, eins og herra Thomson segir. Aðalatriðið f bréfinu ' var svarið upp á spurningu nr, 2 f bréfinu mínu frá 7. júnf, og segir þar, að C. P. R. félagið geti ekki fengið stjórnarstyrkinn, nema svo aðeins að brautin sé lögð að Gimli, og er [>að vfst hið sama, sem hrað- skeytin sögðu, sem send voru frá Ottawa um sama leyti, eða þegar sendinefndin var liér á ferðinni. En svo er bréfið þar að auki sér- staklega mikilsvarðandi fyrir [>að, að það er sá eini stafur, sem nefnd- in hefir fengið beint frá járnbrauta- m&laráðgjafanum viðvfkjandi þess- um úrskurði lians í sambandi við styrkinn til C.P.R. félugsins, þvf öll önnur skeyti viðvíkjandi því máii hafa komið óbeina leið, hafa komið f gegn um Mr. Jackson, þingmann, og fleiri. Svo orðlengi ég þetta ekki meira, en mælist aðeins til [>ess, að þegar sagan verður gefin út á prent næst, þá verði ég ekki gerður að f>eim skynskiftingi, að hafa skrifað inn- anrfkisráðgjafanum um mál, sem heyra undir deild járnbrautarmála- ráðgjafans. Einar Olafsson. þakkarorð Yið undirrituð þökkum hér með af hjarta öllum þeim mörgu, er á einn eða annan hátt auðsýndu okk- ur hluttekningu f hinUm langvar- andi veikindum barnsins okkar, er við mistum nú nýlega úr hinni svo nefndu og altof alkunuu sumar- veiki. Sérstaklega eru það tilfinn- ingar móðurhjartans, sem knvja fram þá bæn, að allir þeir, sem sýndu okkur hluttekningu f þeim kringumstæðum, verði aðnjótandi sannrar hluttekningar í ríkum mæli í öllum þeirra mótgangi, — “það sem þér gerðuð einuin af mfn- um minstu bræðrum, f>að hafið þér mér gert”. Selkirk, Man. 3. sopt. 1905, Jón Hjdlmarsson, Kristín J. Hjdlmarsson, N/ir kaupendur Heimskringlu fa skemtilegar sögur f kaupbætir, ef þeir borga fyrirfram. MARKUSSON & BENEDIKTSSON 205 Mclntyre Blk., Winnipeg TeUfón 415:i

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.