Heimskringla - 28.09.1905, Side 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
T. THOMAS
♦ ♦
♦ lslenrkur kaupmaOur J
♦ selur Kol og Eldivid
♦ Afgreitt fljótt og fullur m»lir. J
X 5!t7 Ellicð'Ave. Phone 2620 ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»
♦ ♦
► T. THOMAS, kaupmascr ♦
♦ ♦
T umboössali fyrir ýms verzlunarfélög ♦
T 1 Winnipecr og Austurfylkjunnm, af- ♦
T greiöir alskonar pantanir Islendinpa ♦
nr nýlendunum, peim aö kostnaöar- ♦
J lausu. Skrifiö eftir upplysingum til ♦
£ 537 Ellice Ave. - - - Winniþeg: í
♦ z
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 28. SEPTEMBER 1905
Nr. 51
PIANOS og ORGANS.
Heintxman & €o. IMiiiion.-Bell Orgel.
Vér seljum með mánaðarafborgunarskilmálum.
J, J. H- McLEAN & CO. LTD.
S30 MAIN St. WINNIPEG.
Ami Egprtsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. Winnipeg.
Eg hefi til sölu lot á Beverly St.
norðan við Sargeut að vestanverðu
fyrir $350.00.
A Arlington St. fyrir $10 fetið.
“ Alverstone St. fyrir $10 fetið.
“ Victor St. fyrir $1(5 fetið.
“ Maryland St. fyrir $23 fetið.
“ Agnes St. fyrir $15 fetið.
“ Furby St. fyrir $24 fetið.
“ William Ave. $14 fetið.
A Notre DameAve. 33x198 ft. til
Winnipeg Ave. Gjafverð $2« fetið.
Nú hefi ég nóg af oeningum að
l&na út & góð liíis.
Eldsíibyrgð, Lífsábyrgð.
Komið og hafið tal af mér.
Árni PJggertsson
Offlce: Roora 210 Mclntyre Blk
Telephone 3364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Merkilegur uppskurður var gerð-
ur nýlega á 23 ára gíimlum manni
í Philadelphia sem liafði verið
skotinn f hjartastað. Partur af 2
rifum úr sfðu hans var tekin burtu
og hjartuuu iyft aö nokkru loyti úr
líkamanum, og kúlunni sem var
tæpan þumlung frá lijartanu, náð
út. Hjartað var svo lagt á sinn
stað, og rifunum smelt í sitt far —
og um alt vel búið. Maðurinn lif-
ir og læknar telja að hann muni
ná fullri heilsu, — eftir nokkurn
tíma-
— Blaði einu í Ohicago telst
svo til, að kornvöru uppskera
Bandaríkjanna á þessu ári, muni
verða nægileg til þess, að fylla
hálfaðra millíón flutningsvagna,
sem gerðu 12 þúsund mílna langa
lest auk 37,500 gufuvagna sem
þyrftu til að draga lestina, og sjálf-
ir gerðu 354 mflna lest. S a m a
blað áætlar, að frá Minnesota Norð-
ur og Suður Dakota komi 326 milh
íón bushels af hveiti á þessu ári og
sem talið er að verða muni með
þeirri mestu uppskeru í sögu lands
ins.
— 16 ára gamall piltur fór af
rælni í ioftbát sem s/ndur var í
Oneouta, N. Y. Margt fólk fór
200 fet f loft upp í loftfarinu sem
var stjórað niður með reipum svo
það kæmist ekki hærra. En reipið
bilaði er pilturinn var í farinu og
fór yfir 2 mílur upp áður en það
hvarf sjónum áhorfenda. Pilti
þessum tókst- að losa svo um ör-
yggis kranann neðan í loftbelgnum,
að hann gat hleypt út gasi svo að
hann náði lendingu um kveldið 30
mflur vegar frá sýningar-sviðinu.
Pilturinn og eins loftfarið var ó-
skemt eftir ferðina.
— Það hefir komið upp í Tokio
að 3 féhirðar f sjóhernum hafi haft
af stjórninni als 165 púsund dollars
og að þessir stuldir þeirra hafi náð
yfir all langt tfmabil. Japar una
pessu illa og telja það að kenna
illri stjórn hermáladeildarinnar, og
verður þetta vafalaust notað sem
vopn mót landsstjórninni. Þeim
seku mönnum verður þunglega
hefnt fyrir syndir sínar.
— Rússastjórn hefir gefið út
skýrslu um tap sitt f hernaðinum
við Japana. Þar er talið að skipin
sem stjórnin tapaði hafi kostað
liana 113 millfónir.
— Eldur í Toronto borg þann
19. þ. m., gerði 100 púsund dollars
skaða.
— Auðmaður e i n n í bænum
Haschmann á Þýzkalandi gaf fyrir
nokkrum tfma stóra f járupphæð og
skyldi vöxtum sjóðins varið til þess
að hlynna að giftingum óútgengi-
legra kvenna þar í bænum
Stjórnendur sjóðsins hafa ráð-
stafað honum svo, að af vöxtum
hans skuli árlega ’vera veitt verð-
laun mönnum þeim, sem giftast
ófríðustu, elstu og vansköpuðustu
konum bæjarins. 16 pund sterling
eru borguð þeim manni sem gift-
ist ljótustu konunni, en 12 pund
aðeins þeim sem _giftist þeirri, sem
nrestan lfkams víuiskapnað ber.
Konnr 40 ára og yfir, sem að
minstakosti tvisvar hafa orðið að
þola gjaforðsrof, fá 10 pund ef f>eim
tekst að giftast. En stundum eru
f>ó verðlaunin lægri, ef sjóðurinn
leyfir ekki ákveðna verðlauna-borg
un, eða ef ofmargar slíkar gefa sig
fram á einu og saiaa árinu. En
svo eru stundum verðlauniu stærri
ef konan get.ur sannað, að hún hafi
orðið að beita reglulegum lietju
eða skörungsskap til að komast f
hjónabandið, og að hún hafi verið
sérlega frá-hrindandi kona. Sjóð-
ur þessi liefir nú þegar orðið mörg-
um konurn að miklu liði —og von-
að að hann verði það framvegis.
— Stálbygging féll í Montreal
í sl. viku. 7 mann duttu 100 fet
til jarðar, 3 ictu strax lífið en4 lifðu
af, lftið meiddir.
— Svo segja gripakaupmenn, að
yfir 35 þúsund nautgripir verði
fluttir út úr norðvesturhéruðuiuim
yfir ágúst, september og október þ-
árs, og að þeir séu f óvanalegum
góðum holdmn, o? seljist með
sæmilegu verði.
— Franska stjórnin ætlar að
verja .1 ni’llfón dollars til að leggja
málþráðalfnu yfirSahara eyðimörk-
ina, svo að samband fáist milli Al-
geria og landeigna Frakka á vestur
strönd Afríku. Byrjað verðar taf-
arlaust á þessu verki.
— Tveir Armeníumenn hafa
verið dæmdir til dauða á Tyrklandi
Annar fyrir að fremja morð p>ar á
landi [>ann 26. ágúst sl., og hinn
fyrir meðsekt 1 tilraun til að ráða
Tyrkjasoldán af dögum þann 21.
júlí s. 1. Menn pessir kveðast vera
þegnar Bandarfkjanna og krefjast
verndar Washington stjórnarinnar,
sem hefir heimtað af Tyrkjasoldáni
að umboðsmanni sfnum sé leyft að
rannsaka málin, og að mennirnir
séu ekki lfflátnir fyrr en sýnt er að
þeir séu sekir. Soldáni neitaði
lengi vel að verða við pessari kröfu
Bandarlkjanna. En lét þó að sfð-
ustu undan og er nú sendiherra
Bandarfkjanna að rannsaka mál
þessara glæpaseggja. Vfst má þó
ætla að Bandaríkin verndi menn
þessa ekki frá maklegri liegningu,
ef þeir reynast sekir.
— Þýskt félag hefir tekið að sér
að koma loftskeytasendingum á,
milli Puerto Bermudez og Ignitos
í Suður Ameríku, yfir rúmlega 600
niflna vegalengd. Félagið ætlar að
hafa 2 millistöðvar milli aðal stað-
anna til þess að tryggja fullkomið
samband. Sfðar á að lengja frétta-
sambandið alla leið til Manaos, við
AmasKin ána og J>aðan til Para, svo
að fidlkomið samband fáist alla
leið milli Atlantsliafsog Kyrraliafs.
Hafþráður liggur eftir Amazon
ánni en gengur svo oft úr lagi, að
það er talið langtum tryggara að
liafa loftskeytasamband, auk þt-ss
sem það er talið langtum ódýrara
en þráðsendingakerfi.
— Frá Claresholm, Alberta,
koma fréttir af óvanalcga mikilli
hveiti uppskeru. Þessir bændur
eru nefndir: N. C. Nelson fékk 50
busliel af ekru liverri, Mr. Lock-
wood 35 bushel, Mr. Soderham 28
bushel, L. H. Hayter 32 bushel,
Porter 56 bushelsem vóg 6712 pd.
buslielið, B. Herring 55 busli, af
ekru, 67 pund hvert bushel.
— Til [>es8 að vinna eins dollars
veðmál, stökk R. A. Falkner, frá
Montreal, út af vagnlest sem rann
með 40 mílna hraða á kl. tímanum
og beið bráðan bana við fallið.
— Archie McFail bóndi nálægt
Brandon hér í fylkinu, þreskti ný-
lega 4076 bushel af liveiti af 120
ekrum af landi sfnu, og fékk 70e.
fyrir hvert bushel, eða rúmlega
$22 00 virði af ekrunni.
— Rússastjórn hefir lagt strangt
bann fyrir að skotvopn söu seld
almenningi á Rússlandi eða að her-
menn kaupi skotvopn án leyfis ytír-
manna sinna.
— Strætisvagna félagið f Tennes-
see í Bandrfkjunum, hefir neitað
að flytja svertingja á vögnum sfn-
um eftir að hafa fengið það í lög
leitt í rfkinu, að vagnstjórarnir
megi neita hverjum þeim um far,
sem J>eim sýnist, og heimta hjálp
lögreglunnar til að láta hvern J>ann
út úr vögnunum sem inn kann að
koma án leyfis vagnstjóranna.
Lög J>essi voru samin aðallega
mót svertingjum, sem strax þar
á eftir var neitað um keyrslu.
Inntektir félagsins liafa minkað
um $500 á viku sfðan J>essi aðferð
var leidd í gildi.
Svertingjar héldu fund og byrj-
uðu strax flutningslfnu á strætun-
um með 70 flutningsvögnum sem
þeir áttu sjálfir. Nú liefir R. H.
Boyd, bankastjóri þar í bæ, keypt
4 öfluga sjálfhreyfivagna, f viðbót
við þá áðurtöldu 70, og leigt þá til
svertingianna. Fyrirtæki þeirra
hefir hepuast vel , þeir tíytja jafnt
hvfta menn og svarta, og komast
allra sinnaferða án hjálper stiætis-
brautafélagsins.
— Þegar Japar tóku við suðurhl.
Sakhalin eyjunnar, fundu J>eir J>ar
meðal annara rússneskra fanga,
Professor Alexieff Torigon/, sem á
sínum ttma var talin með lærðustu
lögfræðingum f Evrópu, o g hélt
prófessors embætti við rfkisháskól-
ann í Moscow. Þessi maður var
handtekinn árið 1381, grunaður um
að hafa verið í vitorði með J>eim,
er réðu Alexander II., Rússakeis-
ara, af dögum. Það var á almenn-
ings vitund að skoðanir lögmanns-
ins hneigðust að lýðstjórn og aðrar
sakir fundust ekki mót honum, en
samt var hann rannsóknarlaust
sendur til Sfberfu í æfilangt fang-
elsi. Síðar komst hann þaðan út f
eyjuna og hefir síðan verið geymd-
ur [>ar sem fangi. Hann varð
fegnari en frá verður sagt eig-
andaskiftum eyjunnar, og þvf, að
veraleystur úrfangelsi. Hann flutti
strax með Jöpunum ytír í Japan
og bjÓBt til að rita J>ar bók mikla
um meðferð Rússa á pólitfskum
og öðrum föngum þeirra. En Jap-
an stjórn vildi ekki að hann gœfi
ritið út J>ar í landi, og tjáði honum
jafnframt að sér væri þægð f að
hann færi f>aðan. Prófessorinn
hefir því ásett sér að flytja til
Bandaríkjanna og setjast þar al-
gjörlega að, og gerast tafarlaust
borgari þess lands. Væntanlega
fréttist síðar frá f>essum manni.
— Dr. Thomas John Barnardo,
hinn heimsfrægi mannvinur f Lon-
don á Englandi. andaðist þar þann
19. þ. m. eftir stutta legu.
Hans hefir áður verið getið hér
f blaðinu, í sambandi við f>að starf
sem hann stundaði alla æfi sína, að
taka að sér, ala upp og koma til
manns og í f>ægilegar lffsstöður,
fátækum og munaðarlausum börn-
um á Englandi. Umæfisína hjálp
aði hann á þennan hátt, yfir 56
þúsundum fátækra- barna, sem
nú, ásamt öilum mannvinum, syrgja
fráfall hans. Víst mun mega telja
að verki því sem hann byrjaði á
og hélt áfram til dauðadags, verði
haldið áfram framvegis.
Rússastjórn hefir á ný rýmk-
að um frelsi [>jóðarinnar þannig,
að nú eru leyfð opinber fundar-
höld, til þess að ræða pólitfsk og
önnur J>jóðleg velferðarmál. Ennf>á
hafa þó yfirvöldin svo mikla hlið-
sjón með slfkum þingum, að J>au
geta takmarkað umræður, ef svo
langt ganga, að þær hneygjast f
landráða átt, eða að f>ví sem álitið
er að rfkisheildiuni sé hætta af.
— Japanar hafa gert ráðstafanir
til þess að admfrálsskip þeirra,
“Misaka”, verði reist úr sjó. Það
situr nú sex fet f leir á sjávarbotni,
en sagt að vel sé hægt að lyfta þvf,
og er búist við að svo verði gert
innan fárra mánaða.
— Uppreistarmenn f Baku á
Rússlandi hafa eyðilagt framleiðslu
áliöld 34olfu félaga og gert aðrar
stórskemdir á eignum manna. 4
þúsund nianns voru drepnir og 46
hundruð hús brend til ösku. 70
þúsund manns eru atvinnulausir.
Hversvegna menn, 4 tímum fátækt-
ar og atvinnuleysiis, taka það ráð
að brenna hús og borgir, drepa
fólk og eyðileggja framleiðslutæki
landsins og þar með atvinnuveit-
ingar möguleikana.—Það erofvaxið
skilningi allra óbrjálaðra manna.
Fingraför glæpamanna
Athuguu fingramarka hefir frá
fyrstu tímum átt mjög mikinn þátt
í þvf, að liægt hefir verið að hafa
UPPá glæpamönnutn og sanua á
þá glæpi. “Austrænu vfsindin”
er fingrainarka lesturinn stundum
k^llaður, af J>vf hann var fyrst
Jæktur og notaður f Austurálfu, og
svo er sagt, að Kfnastjórn heimti
enn þann dag f dag, að handar eða
fingramörk handhafauna séu á öll-
um vegabréfum sem hún veitir ein-
staklingum.
Það var fyrst árið 1823, að Ev-
rópumenn fóru að athuga f>ami
sannleika, að hver einasti maður
liefir sérskilið fingramark, ólíkt
fingramörkum allra annara manna.
Þeir tóku eftir þvf, að keisarleg
boðskaparhréf, sem gefin voru út
af sjálfum Japankeisaranum og
sem voru undirskrifuð af honum,
báru einnig merki Jnimalfingursins
á hægri hendi hans. Þetta var
gert til þess, að tryggja þjóðinni
|>að, að boðskapurinn væri í raun
og veru frá keisaranum sjálfum og
engum öðrum. Þvf að það var vit-
anlegt, að þó að einhver gæti ritað
nafn hans, svo það þektist ekki frá
undirskrift keisarans, þá mundi
enginn sá finnast f rfki hans, sem
gæti gert alveg eins mark með fingr-
unum.
A Iiullandi voru og fingraför
notuð sem undirskrift undir land-
eignaskjöl, J>vl J>ó að seljandi eða
kaupandi gætu hvorugur ritað nafn
sitt, þá gitu þeir þrýst þumalflngr-
inum á skjalið, og var J>að eitt nóg
til þess að staðfesta söluna.
Sá af Evrópumönnum, er fyrstur
athugaði þetta árið 1823 var vfs-
indamaðurinn [>fzki Dr. Purkenje.
Hann sýndi fram á, að fingraförin
væru óskeikul. En það var ekki
fyr en 40 árum síðar, að brezki vís-
indamaðurinn Sir William Hers-
chel sannaði brezku þjóðinni fylli-
lega gildi fingrafaranna með bók,
sem hann ritaði og gaf út um þetta
mál. Aðferð hans að setja fingra-
för á öll lögleg skjöl og söluskil-
mála og á kvittanir fyrir eftirlaun-
um, var viðtekin á Indlandi og
reyndist ágætlega. Hvenær sem
einhver dó, sem lifað hafði á eftir-
launum, þá gat nú enginn komið
fram f hans stað til þess að krefj-
ast launanna, eins og áður hafði
oft átt sér stað, og sviksemi í land-
sölu hvarf með öllu.
Um þetta leyti kom prófessor
Francis Galton upp með þá nf ung,
að fingraför væri óskeikul til þess
að finna glæpamenn. Ef innbrot
var gert f hús, þá hlaut innbrots-
þjófurinn að hafa snert við ein-
hverjum hlut og J>á mátti hæglega
sjá fingraför hans og með J>eim var
svo hægt að sanna glæpinn upp á
þjófinu.
Prófessor Galton hefir fullyrt og
leitt rök að þvf, að í 64 millfónum
manna geti ekki verið nema tveir
menn, sem geti gert samskonar
fingraför.
Bretar hafa um mörg uudanfarin
ár notað þessa aðferð til J>ess að
hafa upp á þjófumog öðruui glæpa-
mönnum, og hefir aðferðin reynst í
alla staði áreiðanleg. Hvenær, sem
einhver verður sannur um glæp, þá
eru strax tekin fingraför hans og
geymd f safni á óhultum stað, nieð
öllum öðrum nauðsynlegum upp-
lýsingum um manninn.
A árinu sem leið telst svo til, að
fingraförin liafi beinlínis verið ör-
sök f þvf, að Bretum tókst að hand-
sama og sanna sakir á 5 J>úsund
glæpamenn. I ár er áætlað, að um
10 púsundir glæpamanna verði
fangaðir sem afleiðing af þessari
aðferð. Það hefir enn ekki komið
fyrir, að aðferð J>essi hafi mishepn-
ast. Með ýmsum meðulum geta
menn nú fundið glæpamenn, þó
þeir aðeins komi með fingurgóm
sinn við rúðugler. Förin á rúðun-
um skýrast svo við áburð tneðala,
að þau eru óhrekjandi vitni í saka-
málum. Vanalega eru aðrar sann-
anir, ásamt fingraförunum, taldar
nauðsynlegar til f>ess að fá menn
dæmda seka, en þó hefir [>að komið
fyrir, að menn liafa verið dæmdir í
fangelsi um lengri tfma — jafnvel
til fangavistar f Portland fangels-
inu — Jægar ekkert annað vitni var
á móti J>eim, en þeirra eigin fingra-
för. En menn sem þannig voru
dæmdir, höfðu glæpaferil að baki
sér og aðrar llkur sem bentu á, að
þeir væru sannir að sök.
Einn maður var dæmdur f margra
ára fangelsi fyrir að sprengja upp
peningaskáp. Fingraförin á skápn-
um svöruðu nákvæmlega til fingra
hans og myndar þeirrar af fingra-
förum hans, sem lögreglan hafði í
vörzlum sínum. Ekkert annað en
fingraförin bar þess vott, að hann
hefði unnið verkið. En eftir að
dómurinn var uppkveðinn játaði
hann á sig glæpinn.
Lögreglan hefir nú 800 þúsund
fingraför í fórum sfuum og engin
2 eru eins.
Fr étitabréf.
Spanis/i, Fork, Utah, í sept,, líXh't
Það eru ekki margir Islendingar
hér í Utah, en á meðal þessara fáu
þá eru nokkrir, bæði karlar og
konur, sem eru bæði til sóma pg
uppbyggingar f mannfélaginu, og
sein liafa eins hreina föðurlands-
ást sem nokkrir aðrir. Sumir af
J>eim helztu handiðna mönnum og
konum hér f Sp. Fork voru fædd
og uppalin á íslandi, og bæði f
alj>/ðu- og háskólunum fá börn ísl.
til jafnaðar, ágætis vottorð hér
bæði fyrir breitni og skynsemi.
I vor sem leið fengu fjögur af
voru unga fólki sérstakan sóma
vitnisburð frá B. Y. University í
Provo. Á meðal þeirra voru 2
börn Þorgerðar Jónsdóttur, Odds-
sonar frá Bakka f Landseyjum, og
manns hennar Þorbjörns Þorbjörns-
sonar í Kirkjulandshjáleigu; Hans
er nú háskóla kennari f Oskaloosa,
Iowa, en systir hans vinnur sem
skrifari hjá Skelton prentfélaginu
f Provo, og sem er eitt af þeim
elztu og fullkomuustu prentsmiðj-
um hér vestra.
Þá næst er að minnast á sfúlk-
urnar, Róseti Hansson, sonar dótt-
ur Eirfks s&l. Haussonar er bjó á
Gljábakka í Vestmannaeyjum(móð-
ur hennar er dóttur Guðm. sáluga
og Guðnýjar frá Mandal f Vest-
inannaeyjum) — og Margrótnr dótt-
uar Halldórs Jónssonar, sem ólst
upp á Stóra Mosfelli hjá frænda
sfnum séra Halldóri Jónssyni.
Þórun kona Halldórs Jónssonar f
Spanish Fork, og móður Margrétar,
eru dætur Guðmundar Þormóðs-
sonar á Ásum í Gnúpverjahrepp f
Árnessýslu, og því bróðurdóttir
Hjálmholts-biæðranna.
Margrét hefir nú góða stððu sem
bókhaldari fyrir stórt verzlunarfé-
lag í Provo, en Rósetta er nú al-
þ/ðnskólakennari. Og þar eð fleiri
af 'yngisfólki voru hefir gengið
mentaveginn, þá híifum vér þær
beztu vonir með, að framtfð fsl.
ættniðja hér í Utah verði til sóma
ættjörð vorri, og up^ibyggingar hér.
John Thorgeirson.
Prógram
fyrir söngsamkomu sem haldin
verður f kirkju Tjaldbúðarsafn-
aðar að tilhlutun kvennfé-
lagsins fimtudag 28.
sept.’95kl.8e.m.
1. Piano Solo, próf. S. K. Hall.
2. Vocal Solo, Mr. S. Sigmar.
3. Vocal Solo, Mrs. Hunter,
4. Address, Mr. A. Anderson.
5. Quartette.
6. Vocal Solo, Mrs. (Rev.) N. S.
Thorlakson.
7. Recitation, Miss Lulu Thor-
laksoa.
8. Vocal Solo, Mrs. S. K. Hall.
nee Hördal.
9. \ ocal Solo, Mr. Th. Clemens.
10. Piano Solo, Próf. S, K. Hall.
11. \ ocol Solo, Miss Lulu Thor-
lakson.
12. Vocal Solo, Mrs. (Rev.) N. S.
Thorlakson.
Kaffiveitingar í kirkjusalnum
ókej pis handa öllum.
Inngangur 35c.
Til Sölu
^ Alþekt gistihús til sölu í West
Selkirk fyrir aðeins $1100.00. —
Vægir skilmálar.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
^0.» Hdntyre Blk., Winnipeg
Teletón 4159