Heimskringla - 08.04.1909, Blaðsíða 3

Heimskringla - 08.04.1909, Blaðsíða 3
H EIM 5 K R 1N G B A' WINNIPEA, 8. APRÍL 1909. b’* S »•••«! ROBLIN HOTEL 115 Adelaide 8t. Winnipeg Bezta $1.50-4-dag hús í Vestur- Canada. Keyrsla ÓKeypis milli vagnstððva og hússinsfá nóttn og degi.tAðhlynninig hins bez'-a. Við- skilti Islendinga óskast. William Ave. strætiskarið fer hjá húsinm O. ROY, eigandi. - SPONNÝTT hótel ALGERLEGA NÝTÍZKU Hotel Majestic John HcDonald, eigandi. James St. West, Rétt vestan viö Mair St. Winnipeg Telefón 4 9 7 9 $1.50 á dag og þar yíir Bandaríkja-snið Alt sem hér er um hönd haft er af beztu tegund. Reynið oss. MIDLAND 285 Market St. HOTEL Phone 3491 A/ytt hús, nýr húsbúnaður *■ Fullar byrgðir af alls- konar vönduðustu drykkj- um og vindlum í hressing- ar stofunni. Gisting einn dollar & dag og þar yfir. W. G. GOULÖ :: FRED. D. l’ETERS, Eigendur winnipeg ::: ::: canada Ágæt meðul. Ofilgi hefi kynst og pantoö áður rrua&ul vi5 nef, kverka- og aJiid- kaía sjúkdómum hjá Royial Rieim- ediy Co. pau fá beata vitnisburð. iþieir, sami se.iwla mér sjúkdómslýfi- ángiu, og $4.(M> fyrirfraffn, £á m®8- ulin send beim til sín kostnaSar- laust hvair sem er í Canada. Kins og tnörgum er kunnugt, hefi ég iengist töluvwrt mikið við mieðala- 6Ölu stundum, og þekk'i “patent” meðul vd. pessá meðul ecu ‘ekta’ gjóð jniaðul, og íólk má treysta Jneriim, ef það kaupir þau í tæka itíð. K.Ásg. Benediktsson. 540 Simcoa St., Winnipeg. TleDoniinion iiiink NDTRE DAMEAve. RKANCII Cor. Nena Sl VÉR GEFUM SÉRSTAK AN GAUM AÐ SPARI- SJÓÐS-DEILDINNI. — VBXTIRIBORQADIR AF INNLÖOUM. HÖFUÐSTOLL ... $3,983,392.38 SPARISJÓÐUR - - $5,300,000.00 A. E. PIERCY, MANAOER. Jón Bjarnason andaðist að heimili sínu nálægt Akra, N. D., þann 15. des. 1908. Hann var fæddur á Múla við Vatnsnesfjall í Húnavatnssýslu 17. júní 1842. Foreldrar hans voru þau hjónin Bjarni Jónsson og Kristín Guðbrandsdóttir. Ungur fluttist hann með foreldr- um sínum að Sauðadalsá á Vatns- nesi, og dvaldi þar meiri part tíma þess, er hann var á Islandi. Um tvítugs aldur misti hann föð- ur sinn, og var eftir það aðstoð móður sinnar, þar til hún andað- ist 1872'. Árið 1873 kvongaðist hann eftir- lifandi ekkju, Ivlinborgu Bjarnason, dóttur Bjarna Sigurðssonar og Náttfríðar Markúsdóttir, konu hans, að Hlíð á Vatusnesi. þau hjón Jón og Elinborg eignuðust 5 börn, fjóra drengi og eina stúlku. þrír drengirnir dóu í æsku, en tvö þeirra eru á lífi : Friðrik, kaup- maður í Ilensel, N. Dak., og Kristín, ekkja Ingimundar I.eví Guðmundssonar, Akra, N. Dak. — Tvö fósturbörn tóku þau hjón, bæði á öðru ári og ólu upp og veittu umönnun, sem þeirra eigin væru, til fullorðins aldurs. þau eru: Valdimar Valdimarsson, Páls- son, nvi til heimilis nálægt Fair- land P.O., Sask, og Elizabeth Jón- asdóttir, Samson, enn til heimilis hjá fóstru sinni." Til Ameríku fluttist Jón sál. á- samt konu sinni og börnum árið 1883. Hann festi sér bújörð nálægt Akra, N. Dak., hvar hann dvaldi til dánardægurs. Hcimili þeirra hjóna var sönn fyrirmynd að guð- rækni og góðgerðasemi, iðjusemi og góðum siðum. Haustið 1902 sýktist Jón sál. snögglega af slagi, og var þá ekki útlit, fyrir mannasjónum, að bati væri mögulegur. En fyrir frábæra hjúkrun og umhyggju konu hans og barna og tengdasonar (sem var þá etin ' á lífi), fékk hann eftir langa og þvingandi sjúkdómslegu þá heilsubót, að hann hafði fóta- ferð og litlar þjáningar, þar til í marz 1908, að hann veiktist á ný, og lá rúmfastur þar til hann attd- aðist. Á því síðasta sjúkdómstíma bili hafði hann oft sárar þjáningar, sem hann bar með frábærri kristi- legri stilling og rósemi til enda. Jón sál. var að eðlisfari fáorður og fáskiftinn og friðelskandi. Hatiti var prúðmenni, ástríkur og um- hyggjusamur eiginmaður og faðir, ráðvandur, ráðhollur og mjög trygglyndur ; fróður, ræðinn og lipurt spaugandi, þegar hann átti tal við kunningja sína. Yndi hafði hann af fögrum skáldskap, og var sjálfur laglega hagorðttr, en hreyfði því eigi, nema þegar hann átti tal við sína beztu kunningja. Jón sál. var ekki víðþektur mað- ur, en valinktinnur í héraði sínu. Allir þeir, sem kyntust honum, gátu gert sér ljósa grein fyrir, að hann var sannur maður. Maður, sem er ekki eitt í dag og annað á morgun, beldur trúfastur vinur, búinn að rétta þeim hjálparhönd, sem strýddu við erfiö lífskjör. Staðfastur vinttr, sem ekki lét smáyfirsjónir vina sintta, né tal ó- hlutvandra breyta hugarþeli sínu. Hans er sárt saknað af vanda- mönnum og vinttm. Hann var jarð sunginn í grafreit Vídalíns safnað- ar, af séra IJ. B. Thorgritnsen, að viðstöddum fjölda fólks. Blcssuð sé minning hans. Vinir hitts látna. BRÉF TIL Edmonton íslendinga. Kæru vinir og vinur !J Kæra þökk fyrir samverutím- ann. Mig hefði langað til að skriía ykkur öllttm persónulega, en það er óhugsandi, að reyna að finna efni í svo mörg bréf, svo ég bið Ileimskringlu, að fiytja ykkur nokkur orð frá mér. Eg hefði átt að vera búin að því fyrir löngu, en frostiö hefir hamlað og fleira. Frostið hefir lcitað mjög inn í vet- ur. Eg hefi haft nóg að gera, að halda uppi vörn gegn því, — jan- úar allttr ein óslitin frostaskorpa, að undanteknum 3—4 dögum. En nú er gott veður, mér er nærri of heitt. — “Undarlegt sambland af frosti og funa”. J»á er nú ferðasagan, — hún verður stutt og laggóð. Eg tók farmiöa til Red Ileer, eins og á- kvarðað var, og dvaldi þar í viku meðal landa minna, sem tóku mér með alúð. þar er bezta fólk og sannir Islendingar heim að sækja. Hafi þeir hjartans þökk fyrir vin- arþelið. Svo hélt ég til Innisfail, kom þar á hentugum tíma, á mánudag eftir nón. þá voru marg- ir bygðarmenn þar staddir. Eg kom mér vel við einn þeirra, Gunn ar Jóhannsson. Ilann keyrði mig alla leið heim, og var það þó úr leið fyrir hann. Við hreptum storm til Markerville, svo við vor- um nær blind, er þangað kom, því götur voru þttrrar mjög. þá var farið að kvelda. Enginn þekti mig. Mun ég þá hafa verið all-torkenni- leg með alt moldrykið í andlitinu, — ekki ólík Jökla-Tobbu, marg- sólbrendri flökkukerlingu heima á íslandi. það var orðið nær aldimt, er við komtim heim. Af okkur liér og plássi þesstt er fljótt að segja. Veðurlag mjög svipað og hjá ykkttr : “Venus rennir hýrum hvörmttm himni blá- um frá”, — þó það kunni að bera út aí því, að himininn sé blár. — Eg veiti því ekki mikla eftirtekt, ég fer ekki spor að kalla má. — Eg heyri hér mikið ttm samkom- ur talað, svo veit ég ekki meira. Mest mttti að þeim kveða meðal Góðtemplara. Myndi það ekki kosta minni títna og peninga, að vera sjálfstæður ? 1 félagi þessu mutt vera eins margt kvenfólk og karlar. Ilvað tnun það vera að gera þar ? Mun það vera að flýja undan árásttm Bakkusar ? Ekki líklcgt. Piltar góðir, því látið þið fara með ykkttr eins og óvita ? I/átiö þessi bindindisfélög ekki þurfa að vera til. þau vinna upp öll sín gæöi. I/átið fólkið ekki þurfa að segja : “það verður að gera við þvi sem er, að menn verða aldrei sjálí.stæðir". Bjóðið bæði bindindisfélögunum og vín- söluhúsunum byrginn. Gangið fram hjá þeim með reigingi O'g stolti. Verið sjálfstæöir! Á hvaða nterg standa bindindisfélögin ? Á ykkar rnerg. þau eru getin og fædd af ykkar ósjálfstœði. Er þetta ekki satt, vinir minir ?' þið gætuð ket’pt ykkur skó á fótinn eða hatt á höfuðið eða annað þarf- legt fyrir þá peninga, sem þið íleygiö út í þessi félög, — já, fyrir það, sem þiö kattpið böndin, sem binda hendur ykkar og fætur. — þurfið þið þessara banda ? Ég segi nei, ekki ef þið gættuð ykkar. það er þó leiðinlegt, að hafa þrælsótta Reynið að vera menn, — írjálsir menn. það er skemtilegra og kost- ar minna. Lofið þið vínsölumönn- um að skæla yfir sjálfstæði ykkar og skiftavinamissir. — Ég býst nú við, að ég verði sek skógarkona fyrir þessa prédikun. Gerir ekkert til. Mér fellur lengi vel, að fara einförum. Tímanum, sem þið eyð- ið í gagnslítið og gagnlaust þvað- ur á fundum, getið þið varið til lesturs eða uppbyggilegra hugleið- inga, eöa þá líkamlegra starfa. þið þarna í Edmonton fylgist með, — lesið blöðin Heimskringlu og Lögberg að minsta kosti. þar hefir margt borið á góma, sem viö er að búast síðan í september í haust. Austanrok i Heimskringlu nú í seinni tíð. Mollurnar geta orð- ið óhollar, valdið sansa dofa. Ros- ar geta orðið þreytandi, ekki sízt ef þeir koma lengi úr sömu átt. — Kr. Ásgeir og A. J. Johnson eru vígir vel, þó Kr. betur. Hann hefði staðið betur að vígi, hefði hann ekki átt greinina góðu, sem bardaginn reis út af. Sízt datt mér í hug, að slík hellidemba mundi koma yfir okkar ljóöasmiöi úr þeirri átt. En öllum má of- bjóða. Ekki er ég samdóma Kr. um sögur Einars Hjörleifssonar. þær eru aö mínu áliti viökunnan- legri mi í seinni tíð. þær sýna, aö Einar er farinn að gefa konum meiri gaum, skoöa þær með stærri augum, í bjartara og stærra og fegurra Ijósi. Áður fanst naumast nýt kona í sögum hans. þó hann nefni hhttina síntt rétta nafni, ger- ir lítið til. Fullhraustum karl- mönnum ætti ekki að verða óglatt af því. Af hverju viðhelst veraldar sneypan ? Er ekki tilvera manna aðal máttarstoðin, hvort heldur þeir eru skil eða óskilgetnir, — það gerir minst. það er var- menska fornaldar, sem orsakar helzt ógleði, eða öllu heldur við- bjóð og gremju. En það er verst, að þtirfa daglega að umgangast slíka fornaldar aumingja. þeir eru sorglega margir. Mttn ekki lestur biblíunnar orsaka velgju þeim, sem veiiir eru ? Enginn er þar tepruskapur viöhafður. — þá er nú andatrúin, ef trú skyldi kalla. það kastar tólfunum, þegar dauð- ir metm færast í aukana, og f-arið er að gera holdskurði á þeim. Hvað skyldi næst verða ? Og þetta þóttist maðurinn sjá, sem farið er að nefna til forustu á Fróni. (Nú heíir E-im tekist, að hrinda Haf- steiniflHkamraa stund. I/itlu verð- ur»Vrú^gur feginn, væntir mig). — þegar eg les allar þessar drattga- sögur, finst mér ég vera komin aftur fyrir margar aldir. — Ekki er það rétt hjá Arnóri mínum Árnasvni, að það séu trúleysingjar i þessum andatrúarfiokki. það samstemdi illa þeirri skoðun. það eru einmitt guðstrúar kennendttr og fylg.jendttr, sem vænta mátti, sem fylla þann flokk. það er ó- þarfur leikur, að vekja upp drauga trú á íslandi, og gera trúgjarnt fólk, sem enn mun finnast þar, svo hrætt, að það þori ekki um þvert hús að ganga. þetta álít ég hneyksli, og ekkert betra fyrir það þótt það sé komið frá öðrttm löndum. Mjög rignir nú hnútum að okkar ljóðasmiðum. Aldrei munu þeir hafa orðið fvrir slíku á liðnum öldttm. þetta er ný frelsisöld, og hér er frjálst land kallað. Mér finst það vera meira i orði enn á borði, enn sem komið er. Eitt- hvert gól hefir nú borist til okkar úr Kyrrahafs þokunni, — bréfkafli í Heimskríngltl. ílö’fúndut fiá segír að Húnvetningar hafi eitt sinn all- ir farið að yrkja. Hann treystir því, að hann verði ekki látinn sverja þetta. það hefir þó verið heiöarleg undantekning, þar sem höfundur bréfkaflans á hlut að máli. það væri Húnvetningum eng in vanvirða, að kunna að yrkja, jafnvel þó eitthvað í því kunni að vera leir. Eða finst mönnum jeir- inn vera dýrmætari í óbundnu máii ? það sýnir þó liagleik, að geta hnoðað leirinn og gert úr honum myndir. — Hafið þið ekki gaman af rímunum hans Kr. Ás- geirs ? Ég hefi það. þær minna mig á Sigurð Breiðfjörð, uppáhald kvenna lifandi og dauður. — Ég heyrði konu segja : — “það segi ég satt, — ég vildi heldur faðma hann Sigurð dauðann, en kyssa hann Símon lifandi ! ” Nokkuð mikið sagt. Rímurnar hans stytta marga annars langa kvöldvöku í sveitum uppi. Engin | ástæða til að amast við þeim. Ég vona, að Kr. Ásgeir ljúki við Drotningarrímur sínar. Já, síðast en ekki sízt, verð ég að drepa á “Afglöpin” hans Thor- sons. Hann er sjálfur afglapi. — Hann fór fram hjá afglöpum þeim, sem mest kveður að í heimi þess- um og skaðlegust eru. það eru svik og prettir, tál, í ýmsum mvndum. Mun honum hafa fundist þetta vera fyrir ofan eða neðan af- glöp ?, ESa þá ekki í sínum verka- hring að minnast á það ? Annars er hægt að telja upp önnur afglöp á hverju kveldi í heilan mánuð. — Ileimurinn er ríkastur af afglö- um. Alla jafnvel afglöpin einhverntíma henda. Afglapar á afglöpin afglöpunum benda. Með óskttm beztu til ykkar allra. ykkar einlæg, R. J. DAVlDSON. Það kostar minna en 4 cent á viku aðfá HKiMSKuisot u heim til þfn vikulega úrið um kring. bað gerirengan mismun hvar í heimin- um þú ert, — þ v í hf/Imskrinola mun rata til þfn. Þú hefir máske heyrtað “blindurer bðk- laus maður”, en ef þú mfttt missa 4c. & viku fyrir heimskrinqht þá verður þú hvorugt. 4c. á viku eða $2 um árið. Skrifið eftir Hkr. nú þegar, til P. O. Box 3083 Winnipeg, Man. Á beztu heimilum hvar sem er í Ameríku, þar munið þér finna HEIMS- KRINGLU lesna. Hún er eins frððleg og skemti- legeinsog nokkuð aiutað fslenzkt frcttablað f Canada MARKET HOTEL 146 PRINCESS ST. ISSk.. P. O'CONNELL, elgandt. WINNIPEO Beztu teaundir af vinfðngum og vindl um, aðhlynning góð, húsið endurbætt JOHN DU^F PLUMBER, OA8 ANDSTEAM FITTER Alt rerk vol vandaO, og verðiÐ rétt 604 Notre Dame Ave. Phone 3815 Winnipeg Strathcona Hote/ Horni Main og Rupert Str. Nýbygtogágætt gistihúsjGest um veittöll þægindi með sann- gjarnasta verði. Frl keyrsla til og frá öllum járnbr. stöðv- um. Beztu vfn og vindlar; og herbergi og máltlðar ágætar. McLaren Brothers EIGKNDUR Hotel Pacific 219 Market | II. M. Hickt, Street. I Bigandi Winnipeg Manitoua Telephoott 1838 Ný-endtirbætt og Ný-tízku hús f alla Btaði. V iðskifta yBar óskaet virð- ingarfylst. $1.35 a Dag BRUNSWICK HOTEL Horni Main St. og Rupert Ave. Bettn borðhnld; Ilrein og Björt IIer- bergi; Finuitu Drykkiroy Beatu Vittd- lar. ókeypii Vagn matir ÖUum Train- lutum. Heynið 011 þegar þú ert d ferð. LEYNDARMÁL CORDULU FRjENKU 275 miklu hún licfir ætlað sér að koma undan að þessu sinni”. í einni svipan reif hitn skrínið af Felicitas. — Hin unga stúlka rak upp hljóð, og þreif angistarfull eftir skríninu, en ríkisstjóraffúin fór skcllihlægjandi lengra fram í gangdnn, og lyfti þar lokinu af því. “Bara bók”, tautaði hún undrandi. Skrínið og lokið féll úr höndum hcnnar og hún hristi bókina með ákefð. það hlaut þó að vera peningaseðlar eða önnur verðmæt skjöl í lienni. — Nei, bókin, haíði ekkert þess konar að geyma. Á meðan hafði Felicitas náð sér aftur. Ilún gekk til frúarinnar og krafðist með alvöru bókarinn- ar. En hún reyndi að sýnast róleg, en samt lýsti rödd hennar þeirri geðshræringu, sem> hún var í. “N'ú, — svo þér haldið, að ég sleppi við yður bókinni! ” mælti ríkisstjórafrúin háðslega og sneri að henni bakinu um leið og hun þrýsti bókinni fast að brjósti sér. — Nti, þér eruö auðsjáanlega alt oí óttafullar til þess að hcr sé að eins um lítilfjörlegan hégóma að ræða”, tnæl.ti liún og.leit um óxl sér með óumræðilega mikilli fyrirlitningu til ltiunar ungu stúlku. — “það býr eitthvað undir öllu þessu. I/át- um okkur nú rannsaka það, góða mín”. Hún fletti bókinni aftur í sundur. — Nei þar fundust engir peningar. Á gulnuðum blöðum sa hún ekki annað cn fallcga , skrifuð orð. En þó hníf hefði verið stungið í hjarta hennar, liefði hentri ekki brugðið meira viö, en henni brá við að lesa orðin a blaðsíðu þeirri, er hún fyrst leit á. Hið blómlega andlit varð náfölt, hún greip hendinni fyrir augu sér, og eitt augnablik leit helzt út fyrir, að hún myndi hníga niöur. En hún hafði alla æfi æít sig í, að hafa stjorn a sjálfri sér, þegar aðrir sæu , til. Hún kunni að líta með auðmýkt og lotningu til himins, þó hjarta henn- 276 SÖGUSAFN IIEIMSKRINGLU. ar væri fult hatri og reiði. Hún gat látið sýnast sem hún með andakt hlustaði á ræöu prestsins, þó hún hefði allan hugann við nýjan kjól, sem hún ætl- aði sér að eignast. — Hún talaði af harmi miklum um alt syndsamlegt í fari sttmra manna, hve fólk læsi lítið í biblíunni, og hve ófyrirgefanlegt það væri. En sjálf las húti franskar klámsögur, en eins og gefur að skilja í laumi. Henni hafði sjaídan orðið ráðafátt um dagana. Hinir ótrúlcga miklu hæfileikar hennar til að haga sér eítir því, hvað bezt átti við í það og það skiftið, höfðu aldr'ei brugðist henni. — Og nú náði hún sér strax eftir fáar sekúndur. Hún lokaði bókinni, og lét í ljósi með ofurlitlu brosi, að hún áliti sig ltafa verið dregna á tálar. “þetta er þá eftir alt saman að eins gömul.einsk- isverð bók”, mælti hún við prófcssorinn um leið og hún eins og háif utan við sig stakk bókin.ni í vasa sinn. — “Mér finst það nokkuð skrítið af yður, Karó- lina, að koma af stað öllum þessum gauragangi út af engu”. “Er þetta henni að kenna?” spurði prófessorinn og færði sig nær, skjálfandi af reiöi. “Ég hélt það hcfðir verið þú, er kallaðir á mig, til þcss að geta í votta viðurvist sakfelt þessa ungu stúlku fyrir þjófn- að. Viltu gera svo vel, að taka á augabragði aítur hin skammarlegu orð þín ! ” "þú sérð að ég |í svipinn er ekki fær um —” “A augabragði ! ” hrópaði hann. — “þú tekur orð þín aftur, og biður hana fyrirgefningar í viður- vist okkar Hinriks ! ” ‘lNú, — með mestu ánægju, Jóhannes. það er ekki ncma kristileg skylda, að kannast við, ef maður gerir öðrum rangt tii, og bæta fyrir það. — Bezta Karólína mín ! Fyrirgcfið hafi ég gert yður rangt til L" LEYNDARMÁL CORDULU FRÆNKU 277 “Og nú færðu lienni bókina aftur”, mælti prófess- orinn í sama óþýða, skipandi rómnum. “Bókina?” mælti hún með mesta sakleysissvip. “Kæri Jóhannes, — Karólína á hana ckki”. “Hver hefir sagt þér það?" “Ég hefi séð nafnið hcnnar gömlu Cordulu á henni. — Ef nokkur finst eigandi hennar, þá ert það þú, þar eð hún arfleiddi þig að öllum bókum og bús- lilutum sínum.------En bókin er J>cr einskisvirði. — J»að lítur helzt út fyrir, að í henni séu gömul kvæði. Mundi J>cr þykja nokkttð varið í annan eins hégóma ? En ég elska allar þessar gömlu bækur. Mér er bók- in mikilsVirði, þó hún sé ekki fegurri útlits en hún er. þess vegna bið ég yður að gefa mér hana”. “Getur verið eg geri það, þegar ég er sjálfur bú- inn að lesa hana”, mælti hann kuldalega, og rétti út hendina til að grípa bókina. “Mér þætti miklu meira varið í hana, ef þú gæfir mér hana óséða af þér”, mariti hún blíðlega. — “Á ég að trúa því, að þú sért svo nískur, að þú tímir ekki að að gefa mér Jtennan eina hlut, setn ég á œfi minni hefi beðið þig um?” “Mér er alveg sama, hvað þú heldur um það, svaraði hann stuttlega, og æðarnar á enni hans þrútnuðu. — “En ég krefst bókarinnar. — Jnt ketnur tnér nokkuð grunsatnlega fvrir sjónir. — Afrit af gömlum hégóma kvæðum geta ekki gert þig náföla af hra‘ðslu“. Um leið og hann mœlti þessi orð, gekk hann í veg fyrir hana. — Hún leit flóttalega eftir ganginum, og ætlaði að stökkva burtu nær sem hún gæti, — en prófessorinn greip um handlegg henjtar og hélt fast. Felicitas skalí af hræðslu. — Ef prófessorinn næði nú i bókina ! . það var nógu leiðinlegt, að vita hana í höndum hinnar vondu kontt. Samt þóttist hún vita, að hjá benni yrði hún jafnvel geymd og sér, 278 SÖGUSAFN HEIMSKRINGLU og myndi strax um kveldið verða að ösku. J»ess vegna reyndi hún að hjálpa henni til að flýja. “Herra prófessor. Lofið náðugu frúnni að fara” bað hún eins rólega og henni var unt. J>ér munuð fljótt komast að raun utn, að bókin er að engu leyti, verðmæt". I fyrsta sinni leit prófessorinn tortrvgnislega til hennar. — Hún kafroðnaði og leit niður fyrir sig. “Svo ]»ér látið svo lítið, að biðja", mælti hann hastur. — ”þá er hér um að ræða. meira enn lítilfjör- legan hégóma. Ég sé líka, að það er satt, sem frændkona mín sagði áðan, að þér eruð mjög hræðslu legar. Ég spyr yður upp á æru og samvizku : — Hvað hefir bókin inni að halda?” Felicitas vissi eigi, hverjtt svara skyldi. Hún reyndi að tala, en kom engu orði ttpp. '‘Reynið eigi, að hafa nein undanbrögð”, mælti hann brosandi við hana, — en ttm leið herti hann á takinu um bandlegg ríkisstjóra frúarinnar, — því hún reyndi hvað eítir annað að rífa sig lattsa. “J»ér getið verið harðar og miskunarlausar og hræðilega hreinskilnar, — en þér getið ekki logið. — Bókin inni- heldur engin kvæði, heldur eitthvert leyndarmál, setn ég má ómögulega fá vitneskjtt ttm. — Viltu nú gera svo vel, Adela, og fá mér bókina, sem þú sjálf hefir sagt að ég 'ætti?” “GerStt við mig, hvað .þú vilt, en bókina færð þti aldrei", sagði ríkisstjórafrúin djarfiega. Hún hafði lagt niðttr alla auðmýkt, og reyndi enn þá einu sinni að rífa sig lausa, enda tókst það, og fltiði htin sem sveit vopnaðra manna væri á eftir henni að dyrttn- um. En þar stóð Hinrik með útbreidda arma og varnaði henni útgöngu. Hún hrökk aftur á bak. — “Farðu úr vegi, þorparinn þinn !.” æpti hún og stappaði í gólfið.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.