Heimskringla - 17.09.1914, Síða 5
WINNIPEG, 17. SEPT. 1914.
HEIMSKRINGLA
Bls. 5
TIMRTTR • • Spánnýr
1 11V1 D U 1\ Vöruforði
Vér afgreiBum yöur fljótt og greiöilega
og gjörum yt5ur í fylsta máta ánægöa.
Spyrjiö þá sem verzla viB oss.
THE EMPIRE SASH AND DOOR CO. , LIMITED
Phone Main 2511 Henry Ave. East Winnipeg
Fréttir frá Islandi.
(Seyðisfiröi, 16. júlí—eftir Austra.)
Þýzkt feríamannaskip.
“Yictoria Louise” 18 þús. smálestir
að stærð, kom til Akureyrar, 14. þ.
m. hafði áður verið í Reykjavlk og
var á leið til Svalbarðs. Er það
stærsta skip sem komið hcfir
til Islands. Skipið stóð við 6 tíma
á Akureyri og komu 700 manns í
land, 500 farþegar og 200 af skips-
höfninni.
Skipströnd " wr. '*» ‘ '
1 fyrri viku sigldu norsku síldar-
veiðaskipin Storeggen og Havhest-
en á sker, hið fyrnefnda við Gjögur-
en hitt á Siglunes. Bæði skipin
náðust á flot skömmu á eftir, lítið
skemmd.
Brimnessíminn.
Er nú fullgjör fyrir rúmri viku
síðan. Á þeirri símalínu er sam-
band við Dvergastein, Brimnes og
Brimberg.
Fiskiaflinn.
Góður á mótorbáta og róðrarbáta
eg töluvert af fiski hefir einnig
veiðst á handfæri hér inni í firðin-
um.
Jóhannes Kjarval
Málari kom hingað austur með
Elóru um daginn og dvelur nú í
Borgarfirði við að máia landslags-
myndir.
Málmleit.
Gunnar Hafstein
Gunnar Hafsten bankastjóri frá
Þórshöfn 1 Færeyjum kom nú hing-
að með “Flóru” ásamt frú sinni og
2 börnum. Ætla þau hjón að
dvelja hér á iandi þar til í sept.,
fyrst á Akureyri og síðan f Reykja-
vík.
Gronemann símritari
Gronemann símritari fór til út-
ianda með Helga konungi um s.l.
helgi með frú sinni og börnum, til
sumardvalar í Danmörku.
Fiskiafli
Lítill á mótorbáta fyrri hluta s.l.
viku sökum ógæfta og beituleysis,
en fremur góður afli á róðrarbáta,
er höfðu skel til beitu, og róa undir
bjarg. Síðari hluta vikunnar hafa
mótorbátar afiað vel á hina nýju
síld er þeir fengu að norðan.
Litprentað bréfspjald.
Nýtt litprentað bréfspjald með
mynd Heklu hefir Carl Kúchler
meistari nýlega gefið út- Dóttir
hans Magdalena, sem ferðaðist hér
með föður sínum í fyrra, fótgang-
andi yfir snjófergjur Fjarðarheiðar
til Egilsstaða og svo alla leið frá
Rvík til Þingvalla, Geysis og Heklu
og heim aftur til Rvíkur, hefir mál-
að þessa Heklumynd frá Fellsmúla
á Landi, og er þaðan besta útsýni
til Heklu. Munu þessvegna margir
hafa gaman af að eiga þetta fagra
bréfspjald Heklufjallsins eftir mál-
verki þýzkrar stúlku, sem, eins og
hún sjálf segir elskar Island eins
heitt og faðir hennar, nafnkunni
íslandsvinurinn. Fréfspjalið fæst
hjá Sigfúsi Eymundssyni í Rvík.
Englendingar hafa vérið í málm-
leit hér nú f vor, eins og áður hefir
verið minnst, og orðið varir við
ýmsa málma, einkum f Loðmundar-
firði og Húsavfk, hafa sýnishorn
verið send til Lundúna til rann-
sóknar þar. Heyrt höfum vér að í
Húsavík hafi orðið vart við silfur-
berg, gljástein, járn, kopar og postu-
lfnsleir.
Snjóloft.
Borgarfjarðarpósturinn, Halldór
Benediktsson, sagði Austra frá því,
að hann hefði gengið á snjólofti yf-
ir á milli Stakkahlfðar og Seljamýr-
ar í Loðmundarfirði 10. þ.m. á ferð
sinni til Borgarfjarðar, og hafi ver-
ið farið með hest þar yfir daginn
áður. Mun slíkt nær einsdæmi á
þessum tíma árs.
Sláttur.
Sláttur hér eystra mun vfðast hafa
byrjað í þessari viku. Túnavöxtur
er víðast í meðallagi, en á útengi
laklegur. Á Dvergasteini er búið
að hirða 80—100 hesta af töðu.
íslenzkt gistihús á Englandi.
Þegar maður er á ferð í ókunnu
landi, þekkir heizt ekkert andlit og
skilur íila mál innbyggjara, kemst
maður upp f sjöunda himinn, er
hann hittir landa sinn á þessari
íerð, einkum ef sá er betri í máli og
kunnugri staðháttum. 1 Salamand-
er Street Leith—sem er skammt frá
lpndingarstað skipannh—er ofur1-
lítið íslenzkt greiðasöluhús er þær
hafa stofnsett þar —á síðasta vori—
frú Gunnhildur Jóhannesdóttir og
ungfrú Elísabet Baldvinsdóttir.
Þarna er alveg ágætt fyrir íslenzka
ferðamenn að koma, séu þeir slæmir
í málinu og mjög ókunnugir. Þarna
geta þeir fengið íslenzkan mat og
þarna fæst mikið ódýrari greiði en
á öðrum greiðasöluhúsum þarna í
borginni.
Seyðisfirði 8. ágúst.
Frá Vonafirði var símað í gær:
Mokafii á róðrarbátua, sumir tví-
hlaða á dag, en aftur er minni afli
á mótor báta.
Símskeyti.
Stjórnarráðið hefir nýfengið svo-
hijóðandi skeyti frá Danastjórn:
“Gjörið ekki óhentug innkaup.
Útfiuttningsbannið úr Danmörku
upphafið. Útlitið batnað.”
Síldaveiðar.
Fyrir Norðurlandi eru nú almennt
byrjaðar sfldarveiðar og hafa skipin
aflað ágætlega s. 1. viku. Tvö norsk
sfldarveiðaskip komu hingað tijl
Seyðisfjarðar á miðvikudaginn með
síld er þau seldu til beitu, kom það
sér mjög vel, því beitulaust hafði
verið hér nokkra daga. Tvö önnur
síldarveiðaskip hafa og komið með
síld til beitu til Suðurfjarðar.
Seyðisfirði 8. ágúst
Vöruverð hækkar-
Skömmu eftir að fregnirnar um ó
friðinn bárust hingað til lands,
brugðu kaupmenn víða við og
hækkuðu verð á nauðsynjavöru.
Hér á Seyðisfirði mun verðhækkun
nema 20—25 prósent á matvöru, en
eigi nema um 10 prósent á kolum.
Vöruhækkunin mun þó eigi hafa
verið framkvæmd af kaupmönnum
hér almennt fyr en fréttin kom um
útflutningsbannið á nauðsynja-
vöru frá útlöndum, svo að ýmsum
bæjarmönnum hafði áður tekist að
birgja sig nokkuð af matvöru, er
þeir fengu með óuppsettu verði.
Brytt hefir á óánægju meðal al-
mennings yfir því, að kaupmenn
settu hér upp þá vöru, er þeir höfðu
keypt áður en verð hennar hækk-
aði f útlöndum.
En kaupmenn munu þar til hafa
því að svara, að þetta sé almennt
kaupmannabragð og svo megi segja
að vörurnar hækki í verði um leið
og peningavextirnir séu færðir upp;
og svo þegar varan lækkar f verði
aftur geta kaupmenn gjört ráð fyrir
tapi á birgðum, sem eftir eru af þvf
er þeir keyptu á hærra verði.
Kjöt hefir og hækkað allmikið í
verði, t.d. var nautakjöt selt hér úr
svcit nú í vikunni á kr. 1,30 kflóið.
Vorar Flónel Skyrtur.
Eru öllum öBrum betri. Gráar eða Bláar
Flónel skirtur sérstaklega vel til búnar, bol-
stórar, hver.....................$1.50
,
White & Manahan Ltd. !
500 Main Street Winnipeg j
Mun það hæsta verð sem nokkru
sinni hefir verið hér.
(Lögrétta, Reykjavík, 19. ágúst)
Hvalveiðastöðin á Tálknafirði var
seld við opinbert uppboð á iaugar-
daginn var. Ibúðarhúsið keypti
Jón Auðunn bankastjóri á Isafirði
fyrir 19,500 kr., en bræðsluhús og
aðrar eignir hvalveiðastöðvarinnar
keyptu Pj. ólafsson og ói- Jóhann-
esson ræðismenn á Patreksfirði fyr-
ir 3,500 kr.
“tírama”
Til kaupenda Heimskringlu.
Við mánaðarmótin næstu er yfirstandandi árgangi blaðsins lokið. Og er vér förum að yfirlita áskrifenda
skrána, verðum vér þess varir að fjölda margir áskrifenda skulda blaðinu, ekki einasta fyrir þcnna árgang
heldur lengra til baka. En til þess.blaðið fái staðið f skilum við viðskiftamenn sína og kaupendur, þarf
það að fá það sem það á útistandandi hjá öðrum, og þá eðlilega hjá kaupendunum. Vonumst vér þvf til
að ekki þurfi nema að minna menn á skyldur sínar í þessu efni, til þess þeir standi skil á skuldum sínum
við biaðið. Heimskringla er ekki á hverri viku að minna menn á að þeir hafi ekki borgað áskriftargjald sitt.
Telur hún að virðingu kaupenda sinna sé misboðoð með því. En hún ætlast þá líka til, að þegar hún kallar
eftir sínu, meti menn orð sín og eigin virðingu svo miki ls, að þeir láti ekki þurfa að gjöra það oft. Það eru
því tiimæli vor, að sem allra flestir, fari nú að sýna lit á borgun úr þessu, á því sem þeir skulda. Blaðið þarf
peninganna, en þér þurfið blaðsins. Til leiðbeiningar setjum vér hér skrá innheimtumanna blaðsins, yfir
Canada og Bandaríkjin.
Skipið sem brann á Siglufirði f
sumar, var nýlega selt á uppboði
fyrir 4000 kr. Kaupandi var Helgi
Hafliðason.
Seldar verzlanir
Verslanir Milíónafélagsins á Vest-
urlandi eru nú seldar. Verslunina
á Þingeyri hafa Proppé-bræðurnir
keypt með skipum og vörubirgðum
á 50 þús. kr. Einnig verslanirnar
í ólafsvík og á Sandi, ó 45 þús., að
sögn. En Bíldudals verzlunina
hafa þeir keypt Þórður Bjarnason
verslunarstjóri og Hannes Stephen-
sen bróðir hans, á 75 þús. kr.
Vatnseyrarverslunina hefur Ólafur
Jóhannesson konsúll keypt.
Smjörverð í Englandi.
Skeyti frá L. Zöllner segir smjör
nýlega selt frá Hróarsiækjar-smjör-
búi á 155 shill- kvartilið.
Tíðin
Tíðin hefur um tíma verið góð
hvervetna um land og fréttirnar
segja, að heyskapurinn gangi vel.
Landmælingamennirnir dönsku
Er. í sumar hafa verið í Húna-
vatnssýslu, fóru heimleiðis með
“Vestu” nú fyrir fáum dögum, höfðu
verið kallaðir heim vegna stríðsins.
Einn varð þó eftir, því hann hafði
verið norður á Hornströndum, er
kallið kom, og nóðist ekki til hans.
Dagblað á Akureyri.
Það er sagt að Jón Stefánsson
ritstjóri á Akureyri sé farin að gefa
þar út dagblað, er hann kallar
“Fréttablaðið”
I CANADA.
F. Finnbogason.............
F. Finnbogason...........
Magnús Teit................
Pétur B}arnason............
Páll Anderson..............
Sigtr. Sigvaldason.........
Jónas J. Hunfjord..........
G. M. Thorlaksson..........
Óskar Olson................
J. K. Jónasson.............
• J. H. Goodmanson.........
F. Finnbogason.............
John Januson...............
Kristmundur Sæmundsson. . . .
G. J. Oleson...............
F. Finnbogason.............
F. Finnbogason..............
J. H. Lindal...............
Andrés J. Skagfeld.........
Jón Sigvaldason............
Arni Jónsson...............
Andrés J. Skagfeld.........
Jónas J. Hunfjord..........
Jónas Samson...............
J. T. Friðriksson..........
Oskar Olson................
Lárus Árnason................
Eiríkur Guðmundsson..........
Pétur Bjarnason..............
Eiríkur Guðmundsson........
John S. Laxdal...............
Jónas J. Hunfjord............
Paul Kernested.............
Gunnlaugur Helgason........
Andrés J. Skagfeld........
Árborg
Arnes
Antler
St. Adelaird
Brú
Baldur
Burnt Lake
Calgary
Churchbridge
Dog Creek
Elfros
Framnes
Foam Lake
Gimli
Glenboro
Geysir
Hnausa
Holar
Hove
Icelar.dic River
Isafold
Ideal
Innisfail
Kristnes
Kandahar
Lögberg
Leslie
Lundar
Markland
Mary Hill
Mozart
Markerville
Narrows
Nes
Oak Point
Pétur Bjarnason......
Sigurður A. Anderson
Jónas J. Hunfjord. . .
Sumarliði Kristjánsson
Gunnl. Sölvason......
Runólfur Sigurðsson. .
Andrés J. Skagfeld. . .
Snorri Jónsson.......
J. A. J. Líndal......
Jón Sigurðsson.......
Pétur Bjarnason......
Ben B. Bjarnason. . . .
Thorarinn Stefánsson.
Ólafur Thorleifsson. . .
Sigurður Sigurðsson. .
Thidrik Eyvindsson. . .
Paul Bjarnason........
Otto
Pine Valley
Red Deer
Swan River
Selkirk
Semons
St. Laurent
Tantallon
Victoria, B. C.
Vidir
Vestfold
Vancouver
Winnipegosos
Wild Oak
Winnipeg Beach
Westbourne
Wynyard
í BANDARIKJUNUM.
Jóhann Jóhannsson
Thorgils Ásmundsson
Sigurður Johnson
Jóhann Jóhannsson
John Th. Ardahl . . Dututh, Minn.
S. M. Breiðfjörð
S. M. Breiðfjörð
Elís Austmann
Árni Magnússon
Jóhann Jóhannsson . . Hensel
G. A. Dalmann
Gunnar Kristjánsson
Col. Paul Johnson
G. A. Dalmann .... .. ... Minneota
Thorst. Gauti
Jón Jónsson, bóksali
Sigurður Johnson . Upham
Islensku botnvörpungarnir og
Bretland.
Jes Zimsen konsúll gjörði fyrir-
spurn til umboðmanns síns í Hull
um það, hvort óhætt mundi vera
að senda botnvörpuskip héðan til
Bretlands með fisk. Hann fékk
svar síðastl. laugardag, er hljóðar
svo:—“Álft enga hættu, en þó róð-
legast að láta skipin koma við í
Strömness eða Longhope til að fá
upplýsingar, áður en haldið er á-
fram hingað. Humberfljótið er
lokað frá sólariagi til sólarupprásar.
Fáheyrð þrælapör.
Einhver ljótasta sagan, sem frétzt
hefir um langan tima, kemur nú úr
einni islenzku bygðinni hér í Mani-
toba, um ódrengskap og óknytti, fá-
heyrð meðal fslendinga. Nöfn hlut-
aðeigenda viljum vér ekki birta,
þótt þau séu nú þegar komin ó prent
hér í ensku blöðunum i bænum, á-
samt sögu þessari, er hér fer á eftir,
er vér tökum þaðan.
Norður í Narrows bygðinni við
Manitoba vatn er aldraður einsetu-
maður, ail-vel fjáður, en litt þokk-
aður, er hefir gjört sér það að at-
vinnu undanfarin sumur, að taka
sauði í geymslu. Sjálfur er hann
fjármargur; en með þvi fé, sem
hann hefir tekið, hefir hann haft
stórar hjarðir og gætt þeirra vel.—
Ekki liefir hann átt sökótt við neinn
en ýmsir hafa sýnt honum ertingar,
og komið því alment inn hjá þeim
yngri, að saklaust sé að glettast til
við hann, vegna þess eins, eftir því
sem séð verður, að hann eigi fáa
formælendur. Kemur í ljós í þessu
sú litilmenska, sem víða liggur í
landi, að hafa þann útundan, sem
eitthvað er hjárænn og öðruvisi en
aðrir, og skemta sér við það, að
gjöra honum fátt i skapi og sýna hon
um ýmsan strókskap og hrekki.
Með þessu hugarfari tók sig einn
unglingur til þar í bygðinni, eitt-
livað 15 ára gamall; fór að heiman
eina nótt nú fyrir skömmu og leit-
aði uppi sauðahjörð karls og skaut
til dauðs og limlesti undir 2ö fjár.
Að verkinu loknu fór hann heim
aftur og hafði ekki orð á um verkn-
aðinn. Um morguninn sáust vegs-
ummerkin á skepnunum, en ekki
spurðist,, hver níðingsverk þetta
hafði unnið, því skepnurnar gátu
ekki sagt frá.
Líða svo fáar nætur. En að þvi
búnu tekur þessi sami piltur sig til
aftur; leitar út um nótt, vel búinn
að skotfærum, leitar uppi sauði
karls og rekur þá saman í rétt, og
byrjar svo á sinni fyrri iðju. Drep-
ur nú og limlestir töluvert fleira en
áður. Meðgekk hann seinna, að hann
hefði skotið yfir 50 skotum þarna í
afkróaðan sauðahópinn. Var nú að-
koman ekkert fögur um morguninn,
og farið fyrir alvöru að spyrjast
fyrir, hver valdur væri að þessu ó-
dáðaverki. Komst það brótt upp, og
var pilturinn tekinn og fluttur hing-
að til bæjar. Meðgekk hann allar
misgjörðirnar. — Eignatapið með
skepnudrápinu var virt á eitthvað
rúma' $260. Var þvi af fénu, er var
með lifsmarki um morguninn, þeg-
ar að var komið, slátrað, og nýttist
ivi flest af því, sem drepið var.
Fyrir réttinum var það tekið til ]
greina, er skaðinn var metinn, og J
sektir færðar niður ofan i rúma j
$130. Var piltinum dæmt að borga
það og honum skipuð vist af dóm-
aranum. Má hann ekki úr þeirri |
vist víkja í nokkur ár, eða hann
tekur betrunarhúss vist i staðinn.
Þótt það sé gott, að ekki var tek-
ið harðara á broti þessu, af þvi svo
að segja barn átti í lilut, verður þó
að álitast, að dómur þessi hafi ver- (
ið vægari, en sakir stóðu til.
Hvað er tjónið, er unnið var með!
skepnudrópinu, hjá því ódæðisverki
að níðast á saklausum skepnum og
kvelja úr þeim lífið á þenna hátt?
Það eitt hefði verðskuldað margra
ára fangelsi, ef i strangan reiknings-
skap hefði verið farið. Komi marg-
ir svipaðir atburðir fyrir, þessum
líkir, i bygðarlögum vorum, fara
þau að geta sér þann orðstír, er fá-
ir munu óska eftir. Þvi þess skyldu
menn minnast, að það er ekki látið
niðri liggja, hverrar þjóðar þeir eru,
sem troða hér glapstigu.
í sambandi við atburð einsog
þenna hlýtur manni að koma til
hugar, að eitthvað sé öfugt við
hugsunarháttinn i þeirri sveit, þar
sem börn geta leiðst út í annað
eins og þetta. Og enginn vafi er á því
að ávöxtur ruddamensku og sið-
leysis, lágs hugsunarháttar og feg-
urðarleysis í framkomu, sáir margs-
konar sæði og uppsker margvíslega,
einsog til er sáð. Fráleitt eiga þar
þó allir óskift mál, fremur í þessu
cn öðru, þvi það vitum vér með
vissu, að þar býr margur sæmdar-
maður og góður drengur.
Hvað þolir Paris langt
umsátur?
Hve lengi getur París varist, ef
tugir þúsunda Þjóðverja settust um
borgina?
Árið 1870 varðist bærinn i fjóra
mánuði og var þó lítt undir umsát-
ur búinn. Hefði varist lengur, ef
Frakka hefði ekki þrotið mat. En nú
er betur um alt búið. Þúsundir
tonna af mat og hundruð hundraða
nautgripa hafa verið fluttir inn i
borgina og bak við hlifðarmúra
skotvirkjanna; svo ekki þarf að
koma upp hungur í borginni skjót-
lega, þó allur innflutningur þangað
yrði teptur. Allar líkur eru á því,
að keisarinn þýzki fái sig fullreynd-
an áður en hann fær sjálfdæmi yfir
borginni. Enda játa Þjðverjar það,
að París.sé bezt víggirta borg i öll-
um heimi. Frakkar sjálfir segjast
geta varið hana í heilt ár, þó á hana
sæki 500,000 hermenn og þeim sjálf-
um berist engin hjálp utan frá.
Allar upphugsanlegar hervarnir
hafa verið settar umhverfis borg-
ina. Umhverfis hana standa 36 skot-;
virki og í hverju þeirra eru þetta I
frá 24—65 fallbyssur af ýmsri gjörð.
Háir turnar eru á hverjuin þessum
kastala og má skjóta úr þeim sprengi!
kúlum yfir óvinaherinn. Rúmt 170
þúsund manns er til varnar i virkj-
unum. Umhverfis kastalana, svo |
mílum skiftir, hafa sprengivélar!
verið faldar, skurðir grafnir og alls-
konar tálmanir settar, svo að heita
má algjörlega ófært yfirferðar. Þess
utan hafa Frakkar þarna i köstul- j
unum fjölda af byssum, er miða má [
beint i loft upp og hæfa með flug-:
skip, vílji þau leggja leið sina yfir
borgina.
Fyrir utan þetta fasta varðlið hef-
ir verið se.tt innra varðlið skipað
200,000 hermönnum, sem verða til
staðar, ef Þjóðverjum hepnast að
kömast inn fyrir yzta vörðinn. Er
varðlið þetta vopnað með alls kon-
ar drápstækjum og maskínubyssum,
er skotið geta 30—50 skotum á mín-
útunni. Er borgin því ekki árenni-
leg óvinveittum gestum.
Til þess að komast inn i borgina
yrði óvinaherinn að brjóta sig gegn
um þrjá varnarhringi. Er sá fyrsti
að ummáli um 75 mílur, og er ,ytri
in í því, að kastalarnir falli, einsog
hinu, að borgin svelti og verði þess
vegna að gefast upp. Árið 1870 voru
étnar rottur og mýs, hundar og hest-
ar og alt, sem tönn á festi, og jafnvel
allar skepnur úr dýragarðinum, og
varð borgin seinast að gefast upp
vegna hungurs. — Það þarf mikinn
mat til þess að fæða 3,000,000 ibúa,
sem nú eiga heima i borginni. En
svo er sagt, að viðbúnaður í þá átt
hafi verið góður. Mörgum þúsundum
ekra innan við viggirðingarnar hef-
ir nú verið snúið upp í inatjurta-
garða. Frakkar eru þeir beztu garð-
yrkjumenn í heimi, og með állri
þeirri þekkingu, sem þeir hafa á að
skipa, geta þeir fætt ógrynni manns
af þessum görðum. Þó hafa þeir lika
búið sig undir með kjötmetið. Með
niðursuðu-aðferð, sem þeir hafa,
geta þeir breytt heilum nautsskrokk
í töflur og smáskamta og i geymslu
tekur það upp mjög lítið rúm. 1 einu
stóru vörugeymsluhúsi, má geyma
hundrað þúsundir sauða- og nauts-
skrokka, eftir að búið er að steypa
þá upp í þessar töflur. Hafa þeir nú
óðum verið að byrgja sig upp með
þesskonar mat.
Eftir öllu að dæma ætti París að
þola langt umsátur, svo langt, að
eitthvað yrði umskipað heima fyrir
hjá Þóðverjum áður en þcir fá tek-
ið borgina. Er því ástæðulaust, að
bera nokkurn ótta með París að svo
stöddu.
KÆRU LANDAR.!
brún þess hrings um 12 milur frá
miðbiki borgarinnar. 1 hring þessum
standa 19 kastalar, allir steyptir úr
stáli og steini. Innan við þenna varn
argarð kemur annar, um 35 milur
að ummáli, og er ytri brún hans 5
mílum innar en hin. Standa þar 17
kastalar, útbúnir með öllum þeim
nýjustu verjum, sem hernaðaraðferð
þessara tíma þekkir. Það var þessi
varnargarður, er uppi hélt vörninni
1871. Eftir áhlaupið þá voru marg-
ir kastalarnir stórskemdir, en við
þá hefir verið gjört siðan, og yj'ðu
Þjóðverjar betur að gjöra en þá, ef
þeir ættu að taka þá i annað sinn.
Insti hlífisvegurinn er ótraustastur.
Það er gamli borgarmúrinn. Hann
er 21 míla ummáls, og þótt veggirn-
ir séu þykkir og hafi viða verið
lilaðip skotvirki þeim til varnar, þá
er ekki álitið, að þeir verndi borg-
ina fyrir öðru en riddaraliði eða
fótgönguliði. Kanónu-skot mörg
stæðu þeir ekki, enda er þá komið
inn í borgina, þegar að þeim er
komið.
Sagt er, að byssurnar frú útvirkj-
unum verndi hringmyndað svæði,
er vera muni um 500 fermilur að
stærð.
En hættan er ekki svo mjög fólg-
Það gleður mig að sjá svq margar
hetjur og bardagamenn í okkar
þjóðflokki, eins og lesa má í síðustu
vikublöðunum islenzku. Eg efast
ekki um að allir þessir íslenzku
kappar þjóðarinnar ætli að bjóða
sig fram í stríðið.I Annars myndu
þeir ekki láta nafna sinna getið í
sambandi við það.
(Miklir menn erum við Hrólfur
minn.!)
Ungir uppvaxandi Islendingar.!
Ef ykkur langar til að fara 1 stríðið
af eiginn vilja, og taka öllum þeim
afleiðingum, sem því fylgja, þá
gjörið það. Þá sé eg að lifir eftir í
gömlum eldsglæðum. En látið allar
hvatir koma frá ykkur sjálfum; þá
væruð þið sönn eftirmynd fornrar
íslenzkrar karlmennsku.
Þegar þið sýnið það á vlgvellinum
þá mun alheimurinn viðurkenna
ykkur niðja hinna fornfrægu Is-
lendinga, sem börðust fremst í fylk-
ingjum og kváðu konungum dýr-
ustu kvæði.
En látið enga eftirstælingu eða
falskar hetjuraddir knýja ykkur til
að forna lífi ykkar. Hárbeitt járn
þarf ekki brýningar við.
KOLBEINN THORDARSON