Heimskringla - 11.03.1915, Síða 2
BLS. 2
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. MARZ 1915.
THE CROTO DRUG CO.
WINNIPEG
Bætir
fljótlcga
Ábyrgst
RHEUMATIC
TREATMENT
VertS $1.50
Rafmagns heimilis áhöld.
Hughes Rafmagrns Eldavélar
Thor Rafmagns Þvottavélar
Red Rafmagns Þvottavélar
Harley Vacuum Oólf Hrelnsarar
**l.acor* Nltrogen og Tungrsten Lamp-
ar.
Rafmagna 44FIxtures**
MUnlversar* Appliances
J. F. McKENZIE ELECTRJC
CO.
283 Kennedy Street
Fhone Maln 4044
Wlnnlpeg
VlTJgJOrUlr af öllu tarl fljótt og
af hendi leistar.
D. GEORGE & C0.
General House Repairs
Cablnet Hakera aad tjphalaterers
Furniture repaired, upholstered and
cleaned, french pollshlnK and
Hardwood Flnishing, Furnl-
ture packed for shlpment
Chairs neatly re-caned.
Phone Sher. 2783 389 Sherbrooke 8».
THE CANADA
STANDARD LOAN CO.
A«al Skrlfatofa, TYlnalpec
$100 SKULDABRÉF SELD
Tllþœglnda þeim sem hafa smá upp-
hæóir til þess aTJ kaupa, sér 1 hagf.
Upplýsingar og vaxtahlutfall fæst
á skrifstofunnL
J. Ca Kyl«, rflTbtmaQnr
42S Main Street. Wlaalgeg.
Piano stilling
Ef þú gjörir árs samning um
aö láta stilla þitt Píano eða
Player Píano, þá ertu æfinlega
viss um að hljóðfæri þitt er 1
góðu standi. Það er ekki að-
eins að það þurfi að stilla
píano, heldur þar að yfirskoða
þau vandlega.
Samnings verð $6.00 um árið,
borganlegt $2.50 eftir fyrstu
stillingu, $2.00 aðra og $1.50
þriðju.
H. HARR/S
100 SPENCE STREET
CARBON PAPER
for
TYPEWRITER—PENCTL—
PEN
Typewriter Ribbon for every
make of Typewriter.
G. R. Bradley
& Co.
304 CANADA BLDG.
Phone Garry 2899.
Kistur, töskur, húsmunlr eöa ann-
aö flutt eöa geymt.
ISABEL BAGGAGE AND
TRANSFER ST0RAGE
GARRY
109S
K3 ISAÐEL STREET
Radd Framleiðsla
Mra. Ho' nck, 485 Arllngton St. er
relöubúin ab veita mðttöku nem-
endum 1 yrlr raddframletöslu og
söng.
Vegna þesa aö hún heftr kent
nemendum á Skotlandi undlr Lond*
on Royal Academy prðf meö bezta
árangrl er Mrs. Hossack sérstak-
lega vel bœf til þess aö gefa full-
komna kenslu og meö láu veröl.
Símið Sherb. 1779
Brúkaöar saumavélar meö hsefi-
legu veröl.; nyjar Slnger vélar,
fyrir penlnga út 1 hönd eöa tll letlgu
Partar 1 allar tegundir af vélum;
aögjðrö á öllum tegundum af Phon-
nographs á mjög lágu veröl.
J. E. BRYANS
531 SARGENT AVE.
Okkur vantar duglega "agenta” og
verksmala.
Pólland.
Fyrir þrjú hundruð árum siðan
var Prússland litið hertogadæmi
sunnan við Eystrasalt, beggja megin
Vistula ósanna, og var land það
bygt hálfviltum þjóðum. Austurríki
var þá kallað hertogadæmi, og var
litið, en fólk fákunnandi fjallabúar.
Þá var Rússland reyndar stórt nokk
uð, en mest voru það hjarðmanna-
flokkar, sem bygðu landið norðan
frá íshafinu vestan við Ural fjöllin.
En þá náði Pólland yfir þveran
austurhiuta Norðurálfunnar, frá
Eystrasalti og suður að Svartahafi,
og var frjálst og óháð lýðveldi, þó
að nokkuð væri þar róstusamt
stundum.
Nú er frægðin gamla Póllands að
mestu gleymd, en þjóðin fjöruga,
gáfaða og frelsisgjarna fótum troð-
in, og hefir svo verið um tvö hundr-
uð ár. En smáhvolparnir, sem áður
þorðu varla a'ð gelta að Póllandi,
eru nú vaxnir orðnir, — kotbúarnir
i Salsburger fjöllunum og fiskikarl-
arnir við ósa Vistula fljótsins; Vind-
ur, sem forfeður vorir sóttu til am-
báttir og þræla sina, þeim er nú
báðum vaxinn fiskur um hrygg, og
nú brenna þeir og bræla hið forna,
fræga Pólland, og vilja hneppa það
i ánauð undir veldi keisarans þýzka,
— þetta litla, sem eftir er af því;
þvi að meginhlutanum eru rikin bú-
in að skifta upp á milli sín. En þó
er það ekki óhugsandi, að stríð
þetta verði til að losa um fjötur hinn
ar fornu þjóðar og veita frelsi og
sameina þessar 20 millíónir Pól-
verja, sem nú lengi hafa setið við
harðan kost undir þremur stórveld-
um: Austurriki, Prússlandi og Rúss-
landi.
Þjóðirnar deyja og liða undir lok,
en ægileg og hörð eru fjörbrot
sumra þeirra, og stundum vilja þær
ekki kyrrar liggja, þó að grafnar
séu.
Um það eru deildar skoðanir,
hvar Pólverjar hafi fyrst komið
fram. Menn hafa engar áreiðanleg-
ar sagnir af þeim fyrri en á 10. öld.
En það vita menn með vissu, að
þeir voru einn hinna mörgu slaf-
nesku þjóðflokka, og voru með hin-
um stærri eða stærstu, og fyrir löngu
siðan komu þeir að sunnan, ein-
hversstaðar neðan til úr Dónár-
dalnum og settust að við upptök
fljótanna Oder og Vistula, eða i
löndum þeim, sem nú eru Mahren
og Slesía og Galizía og Suður-Pól-
land.
Snemma á elleftu öld tóku þeir
kristni. Fyrst varð einn höfðingi
þeirra, Mietzyslaw, ástfanginn 1 I)a-
browka, dóttur konungsins í Böhm-
en. En hún var kristin, og þó henni
litist vel á manninn, vildi hún ekki
giftast honum, nema hann tæki trú
og léti skírast. Það gjörði hann.
Sonur þeirra var Boleslaw, sem kall-
aður var hinn mikii.
Kristniboðar frá Rómaborg komu
svo til þeirra og boðuðu Pólverj-
um trú og fengu þá til að skírast.
Hafa þeir siðan verið rómversk-
katölskir. En flestir aðrir slafnesk-
ir þjóðflokkar hafa verið grísk-
katólskir. En það var fyrst á elieftu
öld, að höfðingjar þeirra náðu kon-
ungstitlinum. Þeir töpuðu honum
aftur, er páfarnir lögðu óþokka á
þá 1079, en náðu honum þó aftur
tvö hundruð árum seinna.
Undir Bolislaw, 992—1025 e.
Kr., var Pólland mikið riki. Náði
yfir helminginn af Austurríki sem
nú er, nefnilega: Galiziu, Bukóvína,
allan norðurhluta Ungarns, Mahren,
Böhmen, Slesiu alla vestur að Elfu.
og frá Böhmen norður undir ósana
á Oder fljóti, og svo austur með Bug
ánni að Vistula, nokkuð norðar en
Thorn er nú; nærri vestur að Ber
lin, sem nú er, en var þá ekki til
Á fjórtándu öld bættist öll Lithuania
við það. Árið 1667 bættist ennþá
stór iengja við Pólland, alla leið
norður frá línunni beint vestur af
Moscow til Riga við Riga flóann og
suður að Svartahafi. Var það þá eitt
hið stærsta ríki i Norðurálfu.
Mest var veldi Pólverja á fjórt
ándu öldinni. Þá var Casimir hinn
mikli konungur þeirra, frá 1333—
1370. Var hann kallaður “bænda-
konungar”. Hann stofnaði háskól-
ann í Crakow, og á hans dögum
náðu Pólverjar Galiziu, Lemberg og
fylkinu Volhyniu. Árið 1386 óx Pól-
land um meira en helming, er hið
mikia ríki Lithuania bættist við
það; land bæði víðáttumikið, frjó-
samt og þéttbygt. Náði það norður
að Eystrasalti og austur undir Mos-
cow. Löndin við Eystrasaít voru
bæði Kúrland og Lífland. Vesturtak-
mörk Lithuaniu voru skamt fyrir
austan Warshau.
Erfitt gekk þó að koma góðu sam-
bandi og samlyndi á milli rikjanna;
varð töluvert sundurlyndi miili
manna og lagaðist aildrei til fulls.
Og þegar veldi Póllands stóð sem
hæst, var það aðeins samhand
margra smáríkja sem hvert fyrir sig
var meira eða minna óháð og hvert
fyrir sig frábrugðið hinum að þjóð-
erni, tungumáli, lögum og siðvenj-
um. Það var því ekkert undarlegt,
þó að ríkið sundurliðaðist, þegar
það var klofið í marga hluta i
fyrstu, líkt og Austurrikí hefir ver-
ið nú á seinni timum. En hörmulcgt
hefir mörgum þott, hvernig Pólland
hefir verið bitað i sundur eða því
hefir verið smáslátrað lifandi.
Hvað stjórnarform snertir, þá var
Pólland alla tið einveldi, þó að í
rauninni væri það lýðveldi. llöfð-
ingi Pólverja var upprunalega kall-
aður hertogi og seinna konungur og
tók hann tign sína að erfðum. En
eftir tólftu öld fóru lendir menn að
eflast (aðallinn eður óðalsmennq og
drógu til sín stjórn ailra opinberra
mála. Lögin um, að konungstign
gengi að erfðum, voru brotin hvað
eftir annað, svo að þau loks voru að
engu höfð, og þegar konungurinn
dó, voru æfinlega ótal prinsar eða
höfðingjar, sem sóttu um kontings-
tignina. Einkum voru þeir af kon-
unga-ættum Austurrikis eða Russ-
lands, Frakklands, Saxlands eða
Sviþjóðar. Og kosningunum fylgdu
svo mikil svik og prettir, að þeim
ofbauð stjórnmálamönnunum í Ev-
rópu, sem þó voru útlærðir i refja-
skóla Machiavellis og Mazarins.
Og það voru aðeins aðalsmennirn-
ir, sem mynduðu þjóðina, og þeir
voru mennirnir, sem sátu á þingi
eða sendu erindsreka sina þangað,
og þar af leiðandi réðu þeir lögum
öllum.
Einkennilegast við stjórnarskrá
Póllendinga var “bannið” (liberum
veio, nefndu þeir það), — þetta
“veto”, sem margir höfðingjar hafa
ennþá. Yfir allan heim er það meiri-
hluti atkvæða, sem ræður úrslitum
mála. Sumstaðar þarf tvo þriðju
hluta, eða þar, sem mest er, þrjá
fjórðu. En við Iok fimtándu aldar,
var það samþykt á þingi Þjóðverja,
að ekkert mál skyldi ná fram að
ganga ,sem ekki fylgdi hvert einasta
atkvæði. Ef að ei.tt einasta atkvæði
var á móti, þá var málið fallið, og i
tvö hundruð og fimtiu ár var reglu
þessari fylgt með sárfáum undan
tekningum.
Og það var ekki nóg. að einn ein-
asti þingmaður gæti hrundið hverju
máli, þegar til atkvæða kom, held
ur gat hann lokað umræðum um
hvaða mál sem var á einu augna-
bliki, með þvi að standa upp og
kalla hátt: veto (‘e‘g banna”, ncfni-
lega umræðuna). Eftir það mátti
ekki tala um inálið framar, — já,
inátti leysa upp þingið með því að
banna hvert málið á eftir öðru. Er
óliklegt. að nokkurntima fyrri eða
síðar hafi mönnum komið til hugar
jafn vitlaus og ranglát aðferð, sem
þessi. Og það er litium efa undir
orpið, að þessi aðferS átti meiri
hlut í því, að eyðileggja Pólland, en
nokkur hlutur annar. Hinir útlendu
höfðingjar og útlendu riki gátu æf-
inlega keypt einn eða annan þing-
mann til að eyðileggja hvaða mál
sem þeir vildu.
Á Póllandi var raunar meðalstétt
einsog i öðrum löndum; en það
voru verzlunarmenn og handiðna-
menn (smiðir;, sem annaðhvort
voru Þjóðverjar eða Gyðingar. All-
ur múgurinn Pólverja voru bændur,
og áttu þeir einlægt við ilt að búa;
þeir voru kvaldir og kúgaðir af
höfðingjunum. Þeir voru eins konar
þrælar, sem fylgdu löndunum sem
kúgildi og voru eign þeirra, sem
löndin áttu; þeir höfðu öll ráð yfir
lifi bændanna og limum. Bændurnir
voru alveg réttlausir fyrir þeim.
En alt fyrir þetta var Pólland ekki
ver komið, en hin önnur lönd í Ev-
rópu á sautjándu og átjándu öld-
inni. Og hvað æðri mentun snerti,
þá stóðu þeir langt um framar, en
mörg hin löndin. Háskólar og skól-
ar voru hér og hvar um landið og
voru vel sóttir. Það var frá Cracow,
sem hinn nafnfrægi heimspekingur
Copernicus kom, fyrirrennari New-
tons. Hann breytti gjörsamlega hug-
rnyndum manna um alhciminn. Áð-
ur héldu menn, að jörðin væri mið-
punktur alheimsins, og stæði eða
sæti föst, og allur heimurinn snörist
um jörðina. Copernicus snöri þessu
við og sannaði að jörðin væri hnött
ur en ekki flöt og snörist um sólina,
og allur heimurinn væri á eilífu
flugi um geiminn. Þá voru Pólverjar
snillingar i söngfræði og óðnim
listurri.
Og pólska þjóðin varð fræg og
viðurkend um alla Evrópu og her-
menn voru þeir hraustir og hugað
ir. Svo reyndist það að minsta kosti
árið 1863, þegar hinn mikli herfor
ingi Jóhann (John) Sobieski bjarg-
aði Austurríkismönnum og Vinar-
arborg, -— rikinu, sem hefir kúgað
þá og tætt af þeim eina flikim. eftir
aðra, einn landshlutann eftir ann-
an, og nú eru Austurrikismenn að
strádrepa niður syni þeirra, sem
frelsuðu þá á neyðarinnar timum.
Þá, árið 1683, höfðu Tyrkir, tryltir
og hamóðir, vaðið yfir löndin öll
sunnan við Vinarborg og stóð ekkert
við þeim. Þeir unnu hvern sigurinn
á eftir öðrum og scttust um Vínar-
borg, höfuðborgina, og voru búnir
að svelta hana svo, að innan fárra
daga hefði hún orðið að gefast upp;
en þá hefðu Tyrkir vaðið norður um
alt Þýzkaland. Voru þá þjóðir allar
skjálfandi, því aldrei höfðu aðrar
eins ógnir vofað yfir Evrópu i þús-
und ár, síðan Atli konungur var á
ferðinni með Húna sina. En Sobi-
eski var óskelfdur og kom með Pól-
verja sína og sópaði Tyrkjum á
burtu.
En alt fyrir þetta er saga PóUands
þessi seinustu tvö hundruð ár, áð-
ur en það leystist í sundur, eintóm
hrakfara saga: Innanlands sundur-
gjörð og ósamlyndi og sívaxandi
hættur utan að. Aðalmeinið var
stjórnarfarslegt, og kom eða orsak-
aðist alt af þvi, hvernig þetta lib-
erum veto (bannið) var illa notað;
og svo af ofstæki og blindni flokk-
anna og eigingirni og sjálfselsku að-
alsins, og svo því, að enginn var
nógu sterkur eða öflugur, til þess
að láta hina hlýða sér. Utan að staf-
aði hættan af ágirnd og græðgi þjóð-
anna þriggja, sem næstar voru, en
það var Prússland, Rússland og
Austurríki.
I byrjun átjándu aldar kom hætt-
an frá Sviþjóð. Þar var Karl kon-
ungur 12. á ferðinni; mjög áþekkur
maður að mörgu leyti Vilhjálmi
keisara, herskár og hraustur og
gjörði Svia trylta af bardagalöng-
un. En Pétur hinn mikli Rússakeis-
ari mætti honum, og þó hann biði
hvern ósigurinn á fætur öðrum, þá
varð hann þó að lokmn þyngri á
vogunum en Karl og frelsaði það
Pólverja í það skiftið. Þetta var
fyrstu árin eftir 1700. En frestur sá
varð aðeins stundarlangur, því að
þá komu til sögunnar eftirkomend-
ur Péturs mikla.
En maðurinn, sem fyrst fékk hug-
myndina um, að skifta Póllandi
upp og smáreita af því einn lands-
hlutann eftir annan, var víst Frið-
rik Prússakonungur hinn mikli.
Hann kom til rikis árið 1740, og leið
ekki á löngu áður en hann var kom-
inn í ófrið við Austurríki, og þegar
friðurinn var saminn, hafði hann af
því alla Slesiu, sem eiginlega var
pólskt iand, en komið undir Austur-
riki.
Næst rendi hann girndaraugum
til landsins, sem Pólland átti niður
með Vistula og alla leið að sjó norð-
ur um Dantzig. Pólland var þá mjög
losalegt og samhaldslaust. Konung
arnir voru kosnir af þinginu, og
vanalega þurfti að múta öllum þorra
þingmannanna, þvi að ef einn sagði
nei, var hvert mál faliið. Enginn
hugsaði um annað en mútur.
(Framhald).
Sjónir Vilhjálms árið
1908.
Það er nú nýkomin út bók á Eng-
landi eftir Wiliam le Queux, sem
kailast; German Spies in England.
Þar er kapituli einn með ræðu, er
Viíhjálmur keisari flutti á lcvni-
fundi stjórnarráðsins i Potsdain
júnimánuði 1908. Kveðst höfundur
inn hafa fengið skjöl þessi frá hátt
standandi þýzkum manni, sem var
mikill vinur Breta, en hann var einn
þeirra sem á fundinum voru.
Keisarinn hóf ræðu sína á þessa
leið: .
“Eftir langar og heitar bænir hef-
ir ijósið ioksins komið yfir mig.
Eg veit það vel, að útlitið i heiinin
um er fremur skuggaiegt og myrkt
fyrir oss Þjóðverjum; en vér þurf
um ekki að örvænta, þvi Guð sjálf
ur með öllu sinu veldi er í félagi
meif oss, og hefir Iagt oss i hendur
meðulin til þess að leysa þýzka
keisaradæmið úr hættunni miklu, er
yfir því vofir, seni vildi hún eyði
leggja velferð rikisins og farsæld í-
búanna.
Þér vitið við hvað eg á. Það er
hin dásamlega uppfinding, sem
hans “hávelborinheit” Zeppelin
greifa fyrir drottins hjálp auðnað-
ist að fullkomna til þess að auka og
trygRjn dýrð og velferð föðurlands
vors.
Þessa uppfindingu hefir Guð
sjálfur lagt i hendur mínar, svo eg
gæti leitt Þýzkaland út úr ' öllum
þeim vandræðum, sem yfir vofa,
sigri hrósandi með fánann hátt á
lofti, og staðfest með því og uppfylt
orð skáldsins fræga, er kvað:
“Deutschland uber Alles” (Þýzka-
land öllum hærra, — einn rammi
þjóðsöngurinn þeirra).
Fyrst i friði og fyrst i striði.
Já, herrar mínir! Þýzkaland er og
á að vera fyrsta og fremsta land í
heimi. Fremst í friði og fremst i
striði. Það er að segja: friði þeim,
sem Guð hefir boðið mér að fá með
sigurvinningum fyrir hönd Þjóð
verja, og eg er sannfærður um, að
eg vinni sigur fyrir hjálp hins al
máttuga.
Svo segir fregnritinn, að keisar-
inn hafi farið að skýra, hvernig
þetta skyldi gjörast. Fyrst þyrfti að
byggja nógu xnarga Zeppelin loft-
báta, og eyðileggja með þeim flola
Englendihga i Norðursjónum, Erm-
arsund og á Atlantshafi. Og væri þá
enginn hlutur á jörðu, sem gæti
hindrað Þjóðverja frá að lenda her
sinum á Bretlandi, og væri þá létt,
að halda sigurför alla leið inn i
Lundúnaborg. Hin hraðskreiðu far-
þega og flutningsskip Hamburgh
American og North German Lloyd
skipafélaganna, með fleiri skipum,
myndu á skömmum tima geta flutt
óvígan her til Englands.
Rússland kxmi þar ekki nærri.
Þetta stríð myndi verða á moti
Bretum og Frökkum, sagði keisar-
JWE,
RibboN
gófíee
BLUE RiBBON
KAFFI
OG
BAK/NG POWDER
Vér bjóðum yður að prófa hinar
hreinu og ófölsuðh Bhe Ribbon fæðu-
tegundir eingöngu á vorn eiginn kostnað
Vér ábyrgjumst að þær séu algjörlega
hreinar og í fylsta máta góðar. Ef að
yður líka þær ekki að einhverju leyti,
þá getið þér komið með þær í búðina
aftur og fengið peninga yðar.
inn Rússar væru illa komnir og ekki
búnir að ná sér aftur eftir stríðið
við Japan, og myndu því friði
halda. Mintist keisari þá á Banda-
ríkin í Ameriku, “þar sem hann eig-
inlega hefði æðstu völd, þvi að
nærri helmingur þjóðarinnar væri
annaðhvort barnfæddir menn og
konur á Þýzkalandi eða af þýzkum
ættum”. En 3,000,000 atkvæðisbærir
menn greiddu atkvæði í forsetakosn-
ingum þar eftir því sem keisarinn
vildi. Þeim (Bandaríkjunum) þyrfti
að gefa lexiu. Þjóðverjar yrðu að
hafa öll yfirráð i Siiður-Ameríku og
Suður-Afriku, og Þýzki fáninn ætti
að blakta yfir Jerúsalem.
Svo sameinar hann sjúlfur allar þjóð
ir undir ægishjálm sirtn.
Svo lauk keisari ræðunni með
þessum orðmn: “Þegar þetta alt er
fnllkomnað, þá mun eg sameina alla
hina hvítu þjóðflokka og mynda
voldugt bandnlag, undir forustu
Þjóðverja til þess að mæta háskan-
um frá hinum gulu þjóðflokkum,
seni er að verða ægilegri og voða-
legri með ári hverju”.
Mr.William le Queux kveðst hafa
sent fregn þessa og skjöl til Breta-
stjórrjar, og hefðu þau verið lögð
fyrir stjórnaráðið og séu nú i skjala-
safni þess.
“Queen Elisabeth”
einn af stærstu bryndrekum fíreta
í Hellusundi.
Xigs til messn valin bezt,
varna sessinn skekur;
rrínar skessan ramgjör mest
róminn hvessa teknr.
Vörgum óa vopnin sterk,
vigin lógast báli;
arma drríg úr yfirserk,
eldi spjó og stáli.
Vigin hneigðust djúpt í dú,
darra- beygð við -flauminn,
fertugeygða flegðan þá
fremst sig teygði i strauminn.
Nú er bundið felmtri flest,
fólkið undan hörfar;
brjóta sttndnr björgin fest
fírefans tundur örfar.
Hitdibranda kvikum kólf
kljúfa fjanda veldi,
þritughanda þursar tólf
þeyttu á landið eldi.
Engám féndum likn er léð,
loga strendur táðar.
Þór nafnkcndur Mjölni með
mötvar á hendur báðar.
J. G. G.
t
DANARFREGN.
---*
Þann 15. jan. þ. á. andaðist á
spítala i Bayonne, New Jersey, eftir
þriggja mánaða veikindi, kona Þor-
láks Björnssonar, er þar hefir búið
fleiri ár. Hún hét Guðbjörg og var
Jóhannesardóttir Árnasonar, frá
Ytra-Álandi í Þistilfirði í Þingeyjar-
sýslu á fslandi; en móðir hennar
var Ingiriður Ásmundsdóttir, Jóns-
sonar, frá Máná á Tjörnesi í Þing-
eyjasýslu.
Guðbjörg sál. var fædd 12. febr.
1863. Hún var eitt af 11 hörnum
foreldra sinna, er á legg komust. —
Eru bræður hennar og ein systir hér
vestan hafs: Guðni og Ásmundur,
húandi i Winnipeg; Kristján vestur
i Alberta; Guðmundur, búandi i Ár-
borg, og Kristin, kona Þorsteins
Sveinssonar i Árdals bygð i Nýja
fslandi. En systkyni hennar, sem
heima eru á íslandi, eru: Síra Árni
Jóhanncsson í Grenivík; Valgerður,
kona Jóns Sveinssonar á Hólí i
Höfðahverfi, og Þorbjörg, kona Jóns
Ingimundarsonar á Brekku í Núpa-
sveit í Þingeyjarsýslu. Tvö systkini
hennar, Arnbjörg og Kjartan, eru
dáin fyrir nokkrum árum.
Guðbjörg sál. kom til þessa lands
árið 1894. Árið eftir giftist hún eft-
irlifandi manni sínum, Þorláki
Björnssyni; er hann sonur síra
Björns Þorlákssonar, sem lengi var
prestur á HöskuldSstöðum á Skaga-
strönd í Húnavatnssýslu; en móðir
Þorláks var Katrin Jakobína Nelson
Havstein, kaupmanns á Hofsós í
Skagafirði. Kom Þorlákur til Ame-
ríku árið 1880. Giftist hann Guð-
björgu sál. maí 1895; höfðu þau
hjón þvi lifað saman i hjónabanda r
19 ár og 8 mánuði. Eignuðust þau
6 börn; eitt af þeirn dó ungt, en þau
sem eftir lifa eru: Viola Inga, 18
ára; Edvard Jakob. 16 ára; Myrtle..
13 ára; Arthur, 10 ára, og Katrín
Camielle, 7 ára gömul.
Guðbjörg sáluga var guðelskandi
og góð kona, umhyggjusöm og ást-
rík móðir; dagfarsprúð í umgengni
við alla, er hún kyntist, og ávann
sér með því elsku og virðingu alln*
þeirra, er hana þektu.
Burtför hennar var því tilfinnan-
legri, sem vinirnir voru fleiri.
Blessuð sé minning hennar.
ísafold og Austri eru beðin að-
birta þessa dánarfregn.
, Vinur hinnar látnu.
V.
Hospital Pharmacy
Lyfjabúðin
sem ber uf ölliim öðram. —
Komið og skoðið okkar um-
ferðar bókasafn; mjög ódýrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávísanir, seljum frimerki og
gegnum öðrum pósthiisstörf-
um.
818 NOTRE DAME AVENTTE
Phone G. 5670-4474
Menn! LæriíS Automobile og
Ga* Tractor Iðn.
Vi5 þurfum at5 tá fleiri menn tll
a?5 skipa þær stöíur sem eru auðar
vegna þeirra mörgu hundru® manna
sem hafa farit5 f srft5it5, og vegna
þess hvat5 korn matur er hár þá
vert5a allar Tractor vélar i brúkl
næsta vor; og eigrendur eru alla
reyt5u farnir at5 grjöra eftirspurn
eftir véla fræt5ingum. Byrjat5u á
skólanum nú strax svo þú vertiir
vit5búin vorinu. Skrifiti eZ>a komiti
og fáit5 fallega ókeypis vert5skrá.
Hemphill’s Motor School.
483H 31ain Street, Wlnnlpeg.
Phone Mnin 5181
170 Fort St.
FRANK TOSE
Artist and Taxidermist
Sendlb mér dýrahöfntiin, aem þli)
viIJItS Iflta Mtoppo tlt.
Kaupi stór dýrsböfub, Blk tennur,
og ógörfuti lot5skinn og hút5ir.
Bit5jit5 um ókeypis bækling met5
myndum.
BETUR BÚINN TIL
Bragð Betri,—er Betri
pC
í merkur eða pott flöskum. Selt hjá
öllum verzlunarmönnum eða frá
E. L. Drewry, Ltd., Winnipeg.