Heimskringla - 29.07.1915, Síða 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLa
WINNIPEG, 29. JÚLí 1915.
Fréttir úr Bænum.
Á föstudaginn var, þann 23. þ. m.,
voru gefin saman í hjónaband að
650 Maryland St., af síra R‘gnv. Pét-i
urssyni — herra Sigurður S. Ander- j
son, frá Pine Valley, Manitoba, og j
ungfrú Guðrún Magnússon, til heim-1
ilis hér í bænum. Brúðhjónin héldu
samdægurs út til Pine Valley, þar
sem þau búast við að setjast að nú
fyrst um sinn.
Takið eftir fundar auglýsingu
Konservatíve klúbbsins, um fund á
fimtudagskveldið í samkomusal
Únítara, kl. 8 c.m. Þér sjáið á aug-
lýsingunni, hver málefni þar verða
ræddrædd. Ilver einasti Konserva-
tiv hér ætti að verða þar viðstadd-
ur á tilteknum tima og enginn að
láta sig vanta og enginn að láta bíða
eftir sér. Menn geta kent sjálfum
sér um, ef þeir missa af því, sem
þar gjörist. Og sé nokkur áhugi i
mönnum og nokkur dugur, þá leggi
þeir sig nú fram. Fyllið húsið, vin-
ir, og verið þess búnir að taka þátt
í ináluru.
Vér sáum nokkuð nýstárlegt núna.
Vér keyrðum á hjólinu fram hjá
spitalanum um hádegisbilið. Það
voru tvær eða þrjár stúlkur þar að
berja úr gólfteppum á grundinni.
Rykið úr teppunum var svo mikið,
að stúlkurnar nærri hurfu. Oss
liálfóaði við að horfa á þær þarna,
og fórum að hugsa um, að það væru
tkki milliónir baktería heldur billí-
onir og trillíónir, sem þær gleyptu
á hverri mínútu. — En hví í ósköp-
unum hefir spítalastjórnin ekki sog-
vélar til að ná öllu þessu ryki og
öllum þessum smáu djöflum úr gólf-
teppunum? Þar pumpar vél ein alt
rykið og bakteriurnar i poka einn,
og má svo tæma sekkinn í eldinn,
og lóga öllum þessum ófögnuði, án
þess að hætta lífi sínu eða eiga það
undir kasti, hvort maður útbreiðir
kanske banvænar ðrepsóttir. Auk
Jiessa er það æfinlega leiðinlegt, að
sjá kvenfólk við slíka vinnu og varla
samboðið mentuðum mönnum.
Samskot í Rauðakross sjóðinn.
Áður auglýst............... 233.10
Ónefnd, Winnipeg............ 11.00
Samtals ............ $244.10
T. E. Thorsteinsson,
féhirðir ísl. nefnd.
SKEMTIFERÐ.
Á Iaugardaginn 31. júli fer Ung-
mcnnafélag Únítara skemtiferð með
skipinu Lockport til Hyland Park.
Tíckets 50 cents fyrir fifllorðna og
25 cents fyrir börn. Farið verður
frá Lusted St. bryggjunni kl. 2. e. h
og klukkan 8 að kveldinu. Menn fari
með strætisvögnum norður Main
Sl. til Euclid Ave.
Félagið vonast eftir að marg
ment verði í þessari ferð. Ágætur
danspallur (floats) er út við ‘park-
ið’, sem allir geta notað er vilja.
Einhleypur maður vanur flestri
vinnu óskar eftir vinnu frá 20. ágúst
n.k. hjá bónda eða öðrum vinnu-
veitendum, helzt sem lengstri. List-
hafendur skrifi G. S. Friðriksson,
P.O. Box 237, West Selkirk.
KENNARA VANTAR
Fyrir Geysir skóla No. 776, fyrir
þrjá mánuði. Kenslutíminn er frá
1. okt. tii 31. des. 1915. Umsækjandi
tiltaki æfingu, mentastig og kaup.
Tilboðum veitt móttaka af undir-
skrifuðum til 31. ágúst 1915.
Th. J. Púlsson, Sec’y-Treas.
Geysir, Man.
“Hvað er svo glatt, sem góðra vina fundur”
íslendingadagurinn í
Wynyard 2. Ágúst 15
Komdu að Wynyard, Sask., íslendingadaginn 2. ágúst
1915. Þar verður gnótt skemtana og gleðskapur margvislegur.
Þrír ræðumenn mæla að minnum á ræðupalli og
hefir enginn þeirra áður svo gjört á sliku móti.
Bragðvisir glímugarpar takast þar fangbrögðum og vaða
völlinn að knjám og keppa svo um verðlaun.
Orkuslyngir stökkmenn og hamramir hlauparar renna
þar i kapp; fá þeir fræknustu vegsauka og verðlaun.
Að kveldi dans stiginn: faldafeykir, friggjarspor og
draumböt. Organ troðin og bumbur barðar.
Flokkur vel' æfðra söngmanna og vaskra lúðurþeytara
skemta öðru hvoru dag allan.
KomiÓ og njótiS góóra skemtana og sýnið íslenzku þjóðerni
ræktarsemi með nærveru ykkar þjóðminningardaginn.
Nefndin.
Hr. Þorsteinn S. Borgfjörð “con-
tractor kom hingað 26. þ. m. frá
Vancouver, og verður hér nokkra
daga. Hann sýnist vera jafn fjörug-
ur og léttur á fæti og áður, þó að
nokkuð sé hann fyrirferðarmeiri nú.
Fimtudaginn 22. júlí gaf síra Run-
ólfur Marteinsson saman í hjóna-
band þau Þorgrim Jónas Pálsson og
Guðrúnu Helgason, bæði frá Geysir.
Hjónavígslan fór fram að 493 Lip-
ton St.
Umræðuefni i Únítarakyrkjunni
næsta sunudagskveld: Til. hvers
minnumst vér þjóðernis vors? —
Allir velkomnir.
Á sunnudaginn var kom upp eld-
ur í griparéttunum í St. Boniface.
Brann þar upp á 50,000 dollara.
Gripuni, sem inni voru varð komið
út og bjargað flestum. Þó brunnu
27. Alt í ábyrgð. Réttirnar verða
óðara bygðar upp aftur.
KENNARA VANTAR
til Laufás skóla nr. 1211. . Kensla
byrjar 15. sept. í 3 mánuði. Byrjar
aftur 1. marz 1916, þá aðra 3 mán-
uði. Þriðja stigs kennarapróf ósk-
ast. Tilboð, sem tiltaki mentastig og
æfingu, ásamt kaupi, meðtekið til
14. ágúst.
Bjarni Jóhannsson, Sec’y-Treas.
Geysir, Man.
Islendingadagurinn.
Eins og þegar er margbúið að
auglýsa, verður hinn almenni þjóð-
minningardagur íslendinga haldinn
hátíðlegur hér í borginni næstkom-
andi mánudag, þann 2. ágúst.
Hefir mikið verið vandað til há-
tiðahaldsins, svo sjaldan eða aldrei
hefir betur verið en nú. Enda á
Winnipeg hægast með það allra
þeirra staða, þar sem íslendingar
búa vestan hafs. Hér er mest fjöl-
menni íslendinga saman komið á
einum stað í heiminum utan Reykja-
víkur. Hér eru rúmbetri og fegurri
skemtigarðar, en finnanlegir eru i
öllu Vesturlandinu; og hér er leik-
ment ag íþróttalíf íslendinga þrosk-
aðra en á nokkrum öðrum stað utan
íslands.
Svo er þetta hátíðahald orðið elzt
hér í borg, og ætti þess vegna að
vera okkur ennþá kærara. Er þetta
tuttugasta og sjötta árshátíðin, sem
hér hefir verið haldin. Fyrsti fs-
lendingadagur, sem hér var haldinn
hátíðlegur, var 1890.
Strax frá fyrstu byrjun var svo al-
ment álitið meðal allra íslendinga
hér vestra, að hátíðin í Winnipeg
væri aðal þjóðminningarhátiðin hér
vestra. Hingað sóttu fiestir. Hér var
mest vandað til ræðuhalda, íþrótta
of; ananra skemtana, og fjöldi hafði
gaman af því að koma inn til borg-
arinnar og sjá ættingja og vini.
Svona var það i fyrstu; svona
hefir það verið og svona er það og
mun verða.
íslendingadagurinn auglýsir fs-
lendingar í augum hérlendra manna.
Þess vegna verður han nað vera oss
til sóma. Hafa nefndir síðari ára
harist fyrir því, að hafa hann engu
viðhafrlarminni og ófjölbreyttari
cn samskonar þjóðminningardaga
brezkra þjóða hér í landi. Var það
H. STONE
739-41
SARGENT AVE.
GROCERIES, FRUITS, ETC.
Hin bezta búð í Vestur hluta bæjarins þar
sem nýlenduvarningur, aldini og öll matvara
er hin bezta. :::::::
Reynið okkur og gefið okkur tækifæri að
sanna ykkur það sem vér segjum. : :
PHONE GARRY 180
-Heimsækið okkar ný-tízku ísrjóma stofu-
lika óhjákvæmilegt, ef íslendingar
ætluðu að halda sæmd sinni óskertri
— þeir eru bornir saman við aðrar
þjóðir, og sem að sjálfsöðgu hátiða-
höld þeirra líka við hátíðahöld hér-
lendra þjóða. Og það er óhugsandi,
að hafa íslendingadaginn óveglegri,
ef álit vort sem þjóðar á ekki að
ganga til þurðar. En það, sem gjör-
ir hátíðahaldið veglegast, er fjöl-
menni, — það verða landar að hafa
hugfast. — Það er ekki eingöngu
skylda, bæði gagnvart þjóðflokknum
og sjálfum oss, að sækja hátíðina og
gjöra hana sem tilkomumesta, held-
ur er það og líka metnaðarmál, að
geta sýnt það kanadiskum samborg-
urum sinum, að vor þjóðernislegu
samtök séu meira en nafnið tómt og
hátiðir vorar með þeim veglegustu
í landinu.
Það gagnar ekkert minna. — Að
gjöra sig ánægða með að jafnast á
við þá, sem fámennastir eru, er ó-
sæmd. Að sýna lítið mannamót af
sér vinnur öllum vorum islenzku
málum tjón.
‘íslendingar viljum vér altir vera’
eru einkunnarorð þjóðminningar-
dagsins. Látum ekki þau orð verða
ao vansæmd. En það verða þau sé
hátíðahaldið óveglegt og fáment.
Forstöðunefndin hefir gjört sitt
til að gjöra það veglegt. Sýni al-
menningur þá þjóðernis-skyldu að
koraa.
Veglegur íslendingadagur er sómi
vor allra.
Hér eru helztu atriði tilhögunar-
skráarinnar:
Ræður flytja:
Minni íslands: Dr. Jón Stefánsson.
Minni Bretaveldis: B. L. Baldwinson
Minni Vestur-íslendinga: Dr. Bald-
ur Olson.
Kvæði:
Minni íslands: S. J. Jóhannesson.
Minni Bretaveldis: Dr. Sig. Júl. Jó-
hannesson.
Minni Vestur-fslendinga: Einar P.
Jónsson.
Helztu íþróttir:
fslenzk glíma.
Kapphlaup, frá 100 yds. til 5 mil.
Langstökk.
Hástökk.
Stangarstökk.
Kappganga.
Hjólreiðar.
Eru iþróltir þessar á ýmsu stigi,
svo sem gefur að skilja, og margs-
konar aðrar íþróttir, sem hér eru ó-
taldar.
Barnasýning.
Söngur.
Hljómleikar.
Söngnum stýrir herra Brynjólfur
Þorláksson og hefir fjölmennan og
vel æfðan söngflokk, sem einvörð-
ungu syngur islenzka söngva.
Hornleikaraflokkurinn er hérlend
ur, en með þeim beztu hér i borg,
og leikur hann islenzk iög.
Hátíðin verður haldin eins og áð-
ur hefir verið auglýst í sýningar-
garðinum og hefst kl. 9 um morg-
uninn.
Gunnl. Tr. Jónsson.
tíðindamaður nefndarinnar.
GðVur Bjór hvar aem er — Có$ur
Bj/>r atS hafa A heimllinu œtfil—
1 AUOlA.Uf Og potc
flösku hylkjum
Fáanlegt hjá þeim sem þú kauplr
af eCa hjá oss.
E. L. Drewry, Ltd., Winnipeg.
<<
ISLENDINGAR VILJUM VÉR ALLIR VERA”
ISLENDINGA=
DAGURINN
Mánudaginn, 2. Agúst, 1915
Verður haldinn í
SÝNINGARGARÐINUM.
Forseti hátíðarinnar, H. M. HANNESSON.
Allur undirbúningur er nú fullgerður, eftir beztu vitund nefndarinnar.
Aðeins eitt er nauðsynlegt til að gera daginn þetta ár þann bezta Islendinga-
dag, sem nokkurn tíma hefir haidinn verið hér í Winnipeg—það, að sem
flestir Islendingar sæki daginn. Sjálfsagt sækja hann allir íslendingar, sem eiga
heima í Winnipeg, og er von á, að sem flestir úr íslenzku bygðunum komi
einnig og taki þátt í skemtaninni. Tilraun hefir verið gerð til að gera daginn
skemtilegan, ekki aðeins fyrir Winnipeg Islendinga, heldur sérstaklega fyrir
alla aðkomandi gesti.
Klukkan 8.30 á mánudagsmorguninn leggja af stað frá horninu á
Portage og Arlington og frá horni Sherbrooke og Portage vagnar, er flytja alla
sem vilja ókeypis út í garðinn. Sem flestir ættu að hagnýta sér þessa vagna.
Klukkan 9 byrja hlaupin fyrir börn frá 6 til 16 ára, og þar eftir hlaup
fyrir fullorðið fólk, menn og konur, gift og ógift, ungt og gamalt. Þeir, sem
voru ánægðir með verðlaunin í fyrra, verða enn þá ánægðari í ár, því nefndinni
hefir hepnast ágætlega að fá góða og þarflega muni, en ekkert glingur.
Klukkan 1 1.30 byrja íþróttir fyrir drengi frá 14 til 18 ára, og skal það
tekið fram, að enginn drengur fær að reyna sig sem 16 ára, ef hann er kominn
yfir 16. afmælisdag. Sama regla gildir um 18 ára drengi. Verði það upp-
víst, að einhver drengur hefir sagt ósatt í þessu efni, þá tapar hann verð-
launum sínum.
Máltíðir verða veittar allan daginn af enska kvenfélaginu W.C.T.U., og
er það nægileg trygging fyrir því, að góður matur fæst þar keyptur með sann-
gjörnu verði. En þeir, sem vilja hafa mat með sér, geta fengið heitt vatn ókeypis
Frá klukkan 4 til 6 verða fluttar ræður og kvæði og sungnir ættjarðar-
söngvar, sem æfðir hafa verið af stórum söngflokki.
SKEMTISKRÁ.
i.
í.
Ræða—B. L. Baldvinsson.
Minni Islands. >
Ræða—Dr. Jón Stefánsson. Kvæði—S. J. Jóhannesson.
2. Minni Bretaveldis:
Kvæði—Sig. Júl. Jóhannesson.
3. Minni Vestur-Islendinga:
Ræða—Dr. Baldur Olson. Kvæði—Einar P. Jónsson.
H. Barnasýning.
III. (slenzk glíma af æfðum mönnum.
IV. Ættjarðarsöngvar sungnir af æfðum söngflokki.
V. Hljóðfærasláttur; æfðir flokkar.
VI. Allskonar íþróttir.
VII. Dans.
Klukkan I byrja íþróttir fyrir íslenzka leikfimnismenn undir umsjón
Manitoba deildarinnar í Fimleikafélagi Canada.—Samhliða við íþróttir þessar
fara fram knattleikir (Baseball) barnasýning og einnig verða sýndar há-
íslenzkar glímur af vel æfðum glímumönnum.
Klukkan 8 byrjar dansinn, og leikur fyrir hann hljóðfæraflokkur John-
stons. Verðlaun verða gefin þeim sem bezt dansa.
100 Grenadiers lúðraflokkurinn leikur yfir daginn.
Enginn fær að fara út úr garðinum og koma inn í hann aftur ókeypis
án þess að hafa sérstakt leyfi.
I forstöðunefnd dagsins eru:
H. Marino Hannesson, forseti. Ólafur S. Thorgeirsson, skrifari.
John J. Vopni, féhirðir.
A. Anderson. S. D. B. Stephanson. A. S. Bardal.
Skúii Hansson. H. J. Palmason. H. Alex Johnson.
H. G. Hinriksson. H. B. Skaptason. A. P. Jóhannsson.