Heimskringla - 10.02.1916, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 10. FEBR. 1910.
H E I M S K R I N G L A
BLS. 3
Fréttabréf.
Sinclair, Man., 22. jan. ’IC.
Herra ritstjóri!
Það hlýtur að vera sérlega
skemtilegt, að vera góður rilstjóri,
og láta dynja á sér fréttir og bréf úr
öllum óttum og af öllu tagi, og öll
með rífandi skjalli og lofdýrð til
ritstjórans. Það yrði að eins að bera
i bakkafullan lœkinn, að bæta ofan
á þetta, og ætla eg því að sleppa
þeim kafla og bíða átekta með
hvort þessar línur fá aðgang i Hkr.
eða ekki. En þar sem eg hefi alls
ekkert skemtilegt né heldur fræð-
andi frain að bjóða, þá liggur mér í
léttu rúmi, hvort það er birt eða
ekki. Og hafi Kringla margt annað
af betra tagi að birta, þá má herða
á hitanum í ofninum með þessum
línum.
Allmargs mætti minnast og marg-
falt fleira, en eg ætla að eiga við
eða draga hér fram. Eg hefi átt von
á, i tveimur síðustu blöðum Heims-
kringlu, að hún kæmi með góðan og
fróðlegan útdrátt af Bændaþinginu,
sem haldið var i Brandon fyrir 2
vikuin síðan; en blaðið steinþegir
yfir þessu öllu, og virðist það þó
all-undarlegt, þar sem það flytur þó
búnaðardálk, og þetta þing er ein-
initt til að cfla og styðja allan bún-
að, og gjörir það dyggilega og mik-
ið betur en nokkur annar skapaður
hlutur. En mörg félög og mörg blöð
vinna í hamförum á móti Bændafé-
laginu; en eg vona, að Hkr. sé ekki
i þeirra tölu.
Þessir svokölluðu Grain Growers
hafa sýnt það greinilega, að stefna
þeirra er i rétta átt fyrir bændur
yfirleitt. En á því eru nú þau dauð-
ans vandræði, að margur bóndinn er
sá grútur, að hann vill ekki gefa
dollar til að vera ineð og hjálpa að
balda sínum eigin rétti og með-
bræðra sinna fram; en gengur aftur
háæpandi, þegar hann er troðinn
niður, sem ekki er ósjaldan; þvi
allir vilja ná i þann, sem heyrir ekki
til neins félags eða félagsskapar, fyr-
ir þá sök, að þá hafa þeir enga
verndun. Það er því auðgjört, að
troða þá undir, þvi þeir geta ekki
hefnt sín sjálfir, og engir til að gjöra
það fyrir þá.
Á þessu þingi, sem nú er rétt ný-
afstaðið í Brandon, var landi vor
héðan úr bygðinni, Hinrik Johnson.
Hann er vel skýr maður. Eg hafði
stutt tal af honum, þó að eins í gegn
um talþráð^ Hann var fullur af á-
huga og fjöri yfir ferðinni, og eg
THE CANAD4
STANDARD LOAN CO,
Aðul Skrifstofu, WinniiieK
$100 SKULDABRÉF SELD
Til þæginda þeim sem hafa smá upp
hæt5ir til þess atS kaupa sér í hag.
Upplýsingar og vaxtahlutfall fæst á
skrifstofunni.
J. C. KYLE, Itfi hMiiiu hur
428 Malu Sireet. WINNIP
BG
Ein persóna (fyrir daginn), $1.50
Herbergi, kveld og morgunvertSur,
$1.25. Máltíóir, 35c. Herbergi, ein
persóna, 50c. Fyrirtak í alla stabi,
ágæt vínsölustofa í sambandi.
Tulsimi Gurry 225
R0YAL 0AK H0TEL
Chas. GuNtnfsHon, eiftundl
Sérstakur sunnudags miÖdagsverÖ-
ur. Vín og vindlar á boröum frá
klukkan eitt til þrjú e.h. og frá sex
til átta aö kveldinu.
283 MARKET ST.
YVINNIPEG
Brúkaðar saumavélar meö hæfilegu
veröi; nýjar Singer vélar fyrir pen-
inga út í hönd eða til leigu. : :
Partar í allar tegundir af vélum;
aðgjörö á öllum tegundum af PhonO
graphs á mjög lágu verði. : :
J. E. BRYANS
531 SARGENT AVE.
Okkur vantar duglega “agenta” og
--------verksmala.------
Isabel Cleaning and
Pressing Establishment
J. \V. QUINJí, cigandl
Kunna manna bezt að fara með
LOÐSKINNA
FATNAÐ
Viðgerðir og breytingar
á fatnaði.
Phone Garry 1098, 83 Isabel St.
horni MoDermot
vonast eftir, að hann láti til sín
heyra i gegnum blöðin. Hann og
kona hans eiga mörg börn og sérlega
efnileg, 3 eða 4 koinin til fullorðins
ára. Eitt þeirra er Margrét; hefir
hún verið skólakennari hér í ná-
grenninu í nvörg ár og dugað vel.
Næst er Lára. Hún er í Brandon og
gengur þar á kennaraskóla. Elzti
sonur lians, Ásgeir, mun vera á bún-
aðarskóla í Virden.
Já, eg gat til uin það í byrjun
þessa bréfs, að ýmislegs væri að
minnast, og er það ckki að eins í
nýrri tíð, heldur þyrfti eg ef rétt
væri, að seilast langt aftur í tímann
og það helzt mörg ár; því að bygð
vor hér og bæjir hennar, og þá ekki
síður útihús, hafa tekið að segja
má tröllslegum stakkaskiftum; þar
sem áður voru smákofar, standa
þessi stóru fjós og hlöður.
Áðurnefndur Hinrik Johnson reisti
stórt og sterklegt fjós, alt úr grjóti
fyrir neðan loft. Svo að eins hálfa
mílu þar frá er hr. Jóhann G. Jó-
hanns; hans “barn” er eitt hið allra
stærsta og að öllu leyti fullkomið.—
Þá er Mr. Magnús Tait; hann lauk
við eina þessa byggingu nú í sumar.
Og ýmsir aðrir hafa góðar bygging-
ar, svo sem lllugi Friðriksson og
Þorsteinn Jósephsson, og enn fleiri.
Þó vita allir, að síðastliði sumar
var eitt hið allra inndælasta og upp-
skera ágæt. En eins og suinum hætt-
ir við að segja söguna, þá er hún alls
ekki rétt; eins og kom fyrir hér í
haust, þegar einn enskur nágranni
rninn þóttist fá 54 hushel af ekr-
unni, og lenti þetta i veðmáli okkar
á milli, og kom þá í ljós, að akur-
inn var töluvert stærri, en hann
hafði sagt frá, og þá auðvitað varð
bushela talan langt fyrir neðan það
mark, ea rétt um 39 af ekrunni. —
Þetta er eitt dæmi af ótal, sem eru
daglegir viðburðir.
En sem sagt var uppskera ágæt-
lega góð; en ýmsir urðu seint fyrir
og lentu í snjó og liraktist hveitið;
en flestir landar fengu þó þrekst,
þó seint væri og skemt, og var það
auðvitað skaði mikill fyrir þá.
Fyrstur allra landa liér að fá alla
sína uppskeru þreskta mun hafa ver-
ið Mr. Þorsteinn Jósephsson. Þau
hjón eiga mörg hörn og flest upp-
komin; þau sýna foreldrum sinum
dugnað og sérlega samhygð; enda
er bú þeirra alt hið blóinlegasta.
Fyrir tíma i suniar höfðum við þá
ánægju, að hafa með oss hér stúdent
Halldór Johnson. Hann er prstsefni
hið bezta. Ilann skírði allmörg börn
og fermdi 7 ungmenni. Hann fór
sérlega vel með öll ræðuefni sín, og
á hann þakkir og heiður skilið fyrlr
komuna.
Hingað til bygðarinnar er komin
Miss Jónasína Stefánsson, til að taka
hér við skóla. Hún hefir í mörg und-
anfarin ár kent hér, og parta úr ár-
um; og nú er hún enn á ný fengin
til að taka sama skólann. Það er víst
dugur í henni, þeirri stúlku, enda
ber hún það með sér.
Eg mætti vikja að þvi aftur, — þó
flcstir landar liér næðu uppskeru
sinni, þá er hér fjöldi af öðrum
bændum, sem hafa mikið úti, og jafn
vel allmargir, sem hafa alla upp-
skeru sína eins og hún leggur sig
undir snjó. Þetta er sérlega tilfinn-
antegt og verst, að þegar vonð kem-
ur, þá stendur alt fast, og næsta
sumars uppskera getur ekki 'orðið
mikil hjá þeim. Og yfir það heila lít-
ur ekkj vel út með það, fyrir þá sök,
að akrar standa allvíða ótilbúnir.
— Eg hefi taiað við ýmsa drifandi
bændur, sein segjast að eins geta sctt
i tiðugan helming að ckrufjölda við
árið sem leið, og má þetta heita al-
ment.
Kolaekla er hér töluverð allvíða
og alment kent um að vagnar fáist
ckki; þetta er viðbáran aðallega hjá
C.P.R. Það lítur helzt út fyrir, að
nú loksins, eftir að hafa haft í hrein-
an gróða um 15 milíónir fyrir að
flytja hveitið okkar í haust, að þeir
séu nú fullsaddir í bráð, og kæri sig
lítið um að flytja kolin.
Já, herra ritstjóri, margt mætti
hér segja um þetta auðveldisfélag,
og sannast hér hinn gamli máls-
háttur: “Grísir gjalda, en gömul svín
valda”, að þetta félag er nú orðið
nokkurskonar ofjarl hínnar kanad-
isku þjóðar og stjórnar, og sýnir
það í verkinu, að stjórn vor hefir í
fyrri tíð kent þeim að taka spenann
svo greinilega, að ómögulegt er að
venja þá af; þeir hanga því þannig
áratug eftir áratug á blóðrisa brjósti
hinnar ungu og ágætu Kanada. Já,
slétturnar hennar, frjófgu og fríðu,
voru þeim gefnar og millíónir þar
með. Nú ljá þeir því varla eyra, þó
íbúar landsins mælist til, að þeim
séu færð kol með járnbrautum fé-
lagsins, — og þó er þeim hærra
goldið fyrir þann og allan annan
flutning, en gjört er i ýmsum öðr-
um fylkjum. Almenn óánægja er hér
gagnvart Jifssu félagi, og það alls
ekki að astæðulausu.
Þá fáum við loksins þann heiður,!
að ganga til atkvæða móti honum
Bakkusi þann 13. marz. Já, það verð-
ur gaman; en verður þó, að eg
vona, full alvara. Að hin nýja stjórn
vor skyldi nú skera svona illa við
neglur sér, að lofa ekki kvenfólkinu
að vera ineð í þessum kosningum, er í
itla farið, og það eftir öll þau fögru
loforð, sem hún gjörði. Þetta er itla
farið og mælist illa fyrir, sem von
er, eftir alt og alt. Auðvitað hefði
kvenfólkið hjálpað okkur til að
ganga inilli bols og höfuðs á þessu
allra argasta þjóðarmeini, sem hefir,
hinar söinu afleiðingar uin heim j
allan. — Já, kvenfólkið yfirleitt hef-
ir liðið meira tjón við ofdrykkjuna
enn karlmenn. Það hefði verið fag-1
urt, að láta þær byrja með oss ein-
mitt á þessu hér i Manitoba; og þá I
hefði líka sigurinn verið vis. En sé-1
um við karlmenn sannir menn og j
stöndum saman (því brennivins-:
belgir munu standa saman), þá ætt- |
um við samt að hafa yfirhöndina og i
vinna frægan sigur.
Herra ritstjóri, eg vík að því aft-
ur, að þú gefir oss útdrátt af gjörð-
um Bændaþingsins, sem eg mintist
á hér að frainan.
Fréttir af þessu þingi cru sérlega
fræðandi og uppbyggilegar og vel
við eigandi i búnaðardálkum blaðs-
ins. Og í öllum bænum að láta fylgja
hina ágætu þingsetningarræðu R. C.
Henders, sem er forseti Grain Grow-
ers félagsins hér í Manitoba. Griptu
bara talsimann að Suite 4, Balmoral
Court, Winnipeg, og þá gefur hanp
þér öll þau blöð, sem þú þarfnast;
og þótt fyrir þér verði í þessum þing
skýrslum, að mikið var rætt um að
stofna þriðja pólitiska flokkinn á
þessu þingi, þá hugsa eg þig svo
styrkan fyrir, að það gefi þér ekki
“kaldar fætur”; enda er álit mitt,
að sá flokkur verði ekki myndaður
í nálægri framtið (þótt full þörf
væri á).
En þetta ntál tekur líklcga marga
dálka í Kringlunni, svo ef þér lízt,
þá láttu þessar linur á hilluna. Það
er orðið lengra og lakara en eg ætl-
aði að hafa það, svo láttu fréttirnar
af bændaþinginu sitja fyrir.
Með heillaóskum.
\
A. Johnson.
Fáeinir punktar frá
Lesiie.
M. J. Skaptason.
Heiðraði ritstjóri Heimskringlu!
— Það er ekki af þvi, að eg ætli að
hefja mig til dýrðar eða gjöra mig
vegsamlegan í augiiin lesenda Heims-
kringlu, að eg sendi blaðinu nokkr-
ir línur. Eg hefi verið að vonast eft-
ir, að sjá fréttagrein frá Leslie, nú
im siðustu tvo mánuðL en sú von
hefir orðið að vonbrigðuin alt til
þessa dags. Og þess vegna tek eg nú
það Bessaleyfi, að senda Kringlu
minni örfáar linur, í því trausti, að*
•þér, ritstjóri góður, gefið þeim rúm
í blaðinu.
Héðan frá Leslie liefir engin
fréttagrein sést í íslenzku blöðunum
i háa herrans tíð. En, ritstjóri góo-
ír, við Leslie búar erum þó bráðiif-
andi og höldum áfram að starfrækja
alt mögulegt, sjálfum okkur og öðr-
im til nytsemdar og lífsviðurhalds,
eftir kúnstarinnar reglum, til að
halda í horfinu; þvi allir lilutir eru
núdýrir, en þarfirnar miklar úr öll-
um áttum, og í allar áttir.—- Það er
þetta stóra, voðalega Evrópu-stríð,
sem er þess ollandi, að allar lífs-
þarfir manna eru svo dýrar og þarf-
irnar miklar.
Tiðarfarið var hér eins og ann-
arsstaðar í fylkinu hið inndælasta,
og uppskera ómunalega góð og inik-
fl; nýting uppskerunnar góð, utan
nokkradaga snemma í október sem
rigndi og tafði fyrir þreskingu. Með-
altal uppskerunnar mun liafa verið
40 bush. af ekru. Margir fengu 40—
50 hush. af ekrunni; eg vissi til að
stöku menn fengu 55 bushel af vor-
broti. Það var fallegur skúfur, skal
eg segja þér, ritstjóri góður. Hafrar
niunu hafa verið að meðaltali 68
bush. af ekru. Byggi og flaxi mun
hafa verið lítið sáð til i vor.
Verð á hveiti var 86—106, eftir
þvi sem það féll og hækkaði á hveiti
markaðinuin austurfrá. Verð á höfr-
um 37—4Gc bush.
Til þess að gefa mönnum liug-
mynd um uppskerumagnið hér í
kring uin þennan smábæ, þá hefi eg
sannar skýrslur fyrir því, að borg-
að hefir verið fyrir burtflutt hveiti
og hafra, alt upp að stuttum tima,
$215,000 (tvö hundruð og fimtán
þúsund dollarar) frá þrennir korn-
hlöðum, sem hér eru. Þar að auki
eru þær nú fullar, og rúma þær 30,-
000 bush. Einn hveitikaupmaður
sagði mér nýlega, að eftir mundi
vera óselt hjá bændum 30 prósent.
Eg veit til dæmis af þremur bænd-
um hér skamt frá, sem ekki liafa
dregið neitt til markaðar af síðustu
uppskeru sinni, og er kornvara
þeirra til samans 31,000 busli..
Þetta framantalda uppskerumagn
bendir á það, að bændur hljóta að
vera i cfnalega góðu ástandi þetta
ár, og er það gleðilegt að vita. Þvi
undanfarin ár hafa margir bændur
átt við ramman reip að draga, að
komast úr skuldum. Og í sambandi
við þetta uppskerumagn skal þess
getið, að önnur blessun, sem þetta
fylki öðlaðist, var vínsöluhannið sl.
sumar. Það má heita svo, að varla
hafi sézt drukkinn maður siðan. —
Maður telur það ekki, þótt stöku
gamlir vínsvelgir sjáist ofurlítið j
góðglaðir, svo sem einu sinni i mán-1
uði, eða jafnvel sjaldnar. Það væru
þúsundir dollara komnir, eða hefðu
farið inn í drykkjukrána sl. haust,
þar scm þvilíkir peningar voru trl, ef
vínbannið hefði ekki verið, og færri
dollarar borgaðir upp í skuldirnar.
Svo þetta ár ætti að vera eitt hið
mesta happa- og hagsældaár f.vrir
land og lýð. —
Það er vonandi, að algjört vin-
bann komist á í þessu fylki á yfir-
standandi ári.
Nýlega var hér á ferð “license in-!
spector” Jón Hjaltalín. Eg spurði
hann um það málefni, og kvað hann j
áreiðanlegt, að vinhann kæmist á i
fylkinu einhverntíma á þessu ári.
En enga hugmynd hafði hann um
það, nær það mál kæmi fyrir al-
menning.
Samkomur mcð dansi hafa verið
haldnar hér í haust þó nokkrar;
flestar til arðs fyrir stríðs-sjóðina,
svo sem Beígíu-sjóðinn, Rauðakross-
sjóðinn, Hermanna-sjóðinn, og fleiri
sjóði og félög.
Leslrarfélagið Hekla hafði hluta-
veltu þann 14. þ.m., og hafði aí-
gangs kostnaði nálægt $60.00, sem á
aú að kanpa hækur fyrir. Eg hefi
góða von um, að það félag nái vexti
og viðgangi og þroskist áfram og
upp á við á íslenzkum bókmenta-
akri.
fslcnzk lestrarfélög eru eitt út af
fyrir sig öryggismeðal til viðhalds
íslenzkri tungu. Landar hér vestan
hafs ættu að lesa inn í sig íslenzkt
þjóðerni, — lesa inn í sig það göf-
ugasta, sem feður vorir og mæður
höfðu til að bera; — lesa inn i sig
dáð og dug, drengskap og framfara-
hug.
Þetta lestnarfélag hér, sem er að
eins ársgamalt, liefir nú 20 meðlimi,
og virðist það góð byrjun.
Söngflokkurinn Fjölnir, sem mynd
aður 'var i fyrra og sem hefir legið í
dvala um langan tíma, er nú vakn-
aður til meðvitundar aftur um til-
veru sína. Hefir hann æfinag i viku
hverri undir umsjón, stjórn og
kenslu Mrs. W. II. Paulson, þingm.,
sem er sú cina af íslendingum i bæ
þessum, sem getur kent söng; og ber
henni þakkir fyrir þá fræðslu i
þeirri fögru list. Söngflokkur þessi
samanstendur af 12 karlmönnum. —
Lengi lifi sönglistin íslenzka!
Þá eru nú upptuldar allar félags-
Hveiti
Hinnar miklu millu—
Sem stóra BrauðiÓ er búið til úr
PURITy FLOUR
“ More Bread and Better Bread ”
ÞAÐ VANTAR MENN TIL
Að læra
Automobile, Gas Tractor lUn i
bezta Gas-véla skóla í Canada.
l>ab tekur ekki nema fáar vikur
ab læra. Okkar nemendum er
fullkcmlega kent at5 höndla og:
gjöra viö, Automobile, — Auto
Trucks, Gas Tractors. Stationary
og Marine vélar. Okkar ókeypis
verk veitandi skrifstofa hjálpar
þér aö fá atvinnu fyrir frá $50
til $125 á mánuöi sem Chauffeur
Jitney Driver, Tractor Engineer
eöa mechanic. KomiÖ et5a skrif-
iö eftir ókeypis Catalogue.
Hinn nýji Gas Engine Skóli vor
er nú tekinn til_starfa í Regina.
Hemphills Motor School
«43 Mnln St. Winnipegr
A5 læra rakara iSn
Gott kaup borgaö yfir allan ken-
slu tímann. Áhöld ókeypis, aö-
eins fáar vikur nauösynlegar til
a?5 læra. Atvinna útveguö þegar
nemandi útskrifast á $15 upp I
$30 á viku e?5a vi?5 hjálpum þér
a?5 hyrja rakara stofu sjálfum
og gefum þér tækifæri til a?J
horga fyrir áhöld og þess háttar
fyrir líti?5 eitt á mánu?5i. I>a?5
eru svo hundru?5um skiftlr af
plássum þar sem þörf er fyrir
rakara. Komdu og sjá?5u elsta
og stæösta rakara skóla í Can-
ada. Vara?5u þig fölsurum.-----
Skrifa?5u eftir ljómandi fallegrl
ókeypis skrá.
Hemphills Barber College
Cor. IvinftSt. nnil Pncific Avenue
WINNIPEG.
I írtibú í Regina Saskatchewan.
Þegar þú þarfnast bygginga efni eSa eldiviÖ
D. D. Wood & Sons.
-------------Limited--------------
Verzla mecS sand, möl, mulin stein, kalk,
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eldaðar pípur,
sand steypu steinar, “Gips” rennustokkar,
“Drain tile,” harð og lin kol, eldivið og fl.
Talsími: Garry 2620 eöa 3842
Skrifstofa: Horni Ross og Arlington St.
legar frainkvæindir meðal landa hér,
nema safnaðarlifið íslenzka. Ekki
vantar prestinn, sira Sigmar; eitt
hið mesta snyrtimenni í þessari
bygð; en hvort að hann er þar eft-
ir góður smali, ötull að safna saman,
skal ósagt. Eg hygg hann láti hvern
sjálfráðan um samvinnu i söfnuðin-
um; enda mun Kristnes söfnuður
fámennur og fjölgar litið af með-
limum; og er það furða, þar sem svo
er skýldurækinn og góður prestur.
En svo hefi eg litið eftir, að í söfn-
uðinum eru menn, sein öllu viija
ráða. Slik aðferð liefir spilt fyrir og
spillir fyrir viljaþreki margra að
ganga í söfnuðinn; en friður og ein-
ing mun þó ríkjandi i söfnuði þess-
um.
Engar byggingar hafa átt sér stað
í þessum bæ á siðastliðnu ári, nema
hvað kyrkja var hér bygð i haust.
Ilún tilheyrir Ensku kyrkjudeild-
inni (English Church). Hana smíð-
aði PáH Magnússon snikkari, eftir
uppdrætti heiman af Englandi. Hún
er lítil, en mjög snoturt hús.
Gleðifrétt er það, að þessi sma-
bær er nú kominn i gott fjármála-
legt ástand; og ipun það að þakka
framúrskarandi dugnaði og fram-
sýni Jóns kaupmanns ólafssonar,
sem hefir verið oddviti (overseer)
í bæjarráðinu i 3 ár. Hann hefir svo
drengilega hlaupið undir bagga með
að borga úr sinum vasa áfallnar
skuldir, sem hvíldu á hænum og
voru komnar i gjalddaga, en budda
bæjarins tóm. Auðvitað hefir hann
fengið þá peninga aftur, þegar bæj-
arsjóður átti peninga til. Þetta sýn-
ir, að Mr. Ólafsson hefir viljað starfa
bænum og bæjarbúum i hag, með
þvi að koina bænuin í fjármálalegt
sjálfstæðis-ástand. En mún honum
þökkuð þessi framkvæmd hans af
gjaldenda hálfu? Stórt spursmál. —-
Ætli það séu margir, sem stinga
hendi sinni í sinn eigin vasa til þess
að borga skuldir, sem hvíla á bæj-
um og sveitum og fylkjum Sjálfsagt
mjög fáir. Hér er víst um eins dæmi
að ræða í þessu landi og viðar.
^iðsvetrar samsæti Helga magra
er ákveðið að haldast skuli þann 18.
febrúar, liér i fundarhúsi bæjarins,
Leslie Hall; og er i orði, að til þess
móts skuli vandað meira en nokkru
sinni fyrr, og verði ríkmannlegar á
borð borið, bæði andlegar og likam-
lcgar krásir og munngát, en hin fyrri
miðsvetrarmót hafi r?okkru sinni
boðið gestum sinum, — þvi nú er
mikið i matarbúri Hclga magra.
Þótt þetta framantalda sé stutt yf-
irlit, þá eru það fá orð i fullri mein-
ingu og af sönnun frá sagt.
Það er slæmt, að þú, Kringla inín,
skulir ekki hafa ákveðinu fréttarit-
ara héðan, sem gæti seht þér línu
svo sem tvisvar á ári, að minsta
kosti; menn kinoka sér við að taka
þetta béssaleyfi, sem engin heimild
er i. Að lesa fréttagrein frá löndum,
úr bæjum og bygðum, eflir og sam-
kepni til ýmsra framkvæmda.
Með bezlu ósk til landa minna og
langa lífdaga ritstjórans og lesenda
Heimskringlu.
Leslie, Sask., 31. jan. 1916.
L. Árnason.
og er talið víst, að þegar þeir gefi
út áskorun sína muni 2,000,006
Sósialista og Syndikalista taka upp
mál þeirra og styðja þá.
Er þess getið. að áskorunin muni
benda á, að stjórnendur landsins
hafi fótum troðið hinar æðstu hug-
sjónir, og það fyrsta, sem gjöra
þurfi, sé að steypa þeim öllum.
Torfi í Olafsdal.
Þá er fallið þetta vigið,
—þrotlaust geisar heims vors stríð—
frá crss mesta höfuð linigið,
hér sem varði búandlýð.
Betra spor af bændum stigið
birzt hefir ei um mina tíð.
Er sem dauðir gæti grátið —
grátið missi þvilíks manns.
Hvað er hringiið, fumið, fátið
fjöldans þessa strjála lands?
Betur hefðum hundrað látið
heimalninga, en missa hans!
Lifið hans var langa æfi
landi sínu að vinna bót;
valdi fyrst hvað var við hæfi,
vildi sjá það festa rót,
þreyttist ei, þó þjóðin svæfi,
því að koma’ á styrkan fót.
Verkin hans að telja tölum
trautt eg þekki nokkurn mann;
búnað lands i bygð og dölum
hætti enginn jafnt sein hann;
meðan feitu fé vér smölum
framkvfemd lians ei gleymast kann.
Vann og eins i orði og verki,
aldrei þreyttist sal né hönd;
ótal rit og mannvitsmerki
tninna á staka framtaks-önd;
vitið, dáðin, viljinn sterki
vildi greiða sérhvcr bönd.
Sania snfldin úti’ og inni
öllum ljúf og hugum kær,
hvar sem hann með húsfrú sinni
hafði ráðin, nær og fjær.
Sjaldan grær í manna minni
merkilegri rausnarbær.
Heiðrið, skáld, í skyldum óði
skörungmann í ólafsdal,
þar sein liann með frægðarfljóði
fræddi lengi snót og hal.
Nú er fallinn guminn góði;
grípi merki bœndaval!
Matlh. Jochumsson.
MARKET HOTEL
146 PrlnoeKK Stroet
á mótl markatSinum
Bestu vínföng, víndlar og ati-
hlyning góti. Ialenkur vettlnga-
matSur N. Halldórsson, ieittbein-
ir lslendingum.
I*. O'CONNEL, Eigandi Winnipeg
r
Stjórnarbylting í vændum á
Þýzkalandi.
Lundúnum, 16. janúar: Frá Zur-
ich á Svissaralandi kemur sú fregn,
að þar verði innan skamms gefin
út áskorun til Þjóðverja um að hefja
á Þýzkalandi nýja stjórnarbyUingu.
Og fullyrðir fregnin, að bak við þá
hreyfingu standi vísindamenn og
aðrir mikilsmetnir menn í Berlin,
Hospital Pharmacy
Lyfjabúóin
sem ber af öllum öðrum. —
Komið og skoðið okkar um-
ferðar bókasufn; mjög ódýrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávisanir, seljum friiuerki og
gegnum öðrum pósthússtörf-
um.
818 NOTRE DAME AVENUE
Phone G. 6670-4474