Heimskringla - 17.02.1916, Qupperneq 8
BLS. 8
H E I M S K H I N G L A
WINNIPEG, 17. FEBR. 1910.
Miðvikudaginn og Fimtudaginn
"BELLA DONNA”, Pauline Frederick
CHAS. CHAPLIN á Föstudaginn og Laugardaginn
GRACE CUNARD á Mánudaginn og Þriðjudaginn
Fréttir úr Bænum.
Kappræðan i íslenzka Konserva-
tive klúbbnura á fimtudagskveldið
í síðustu viku var fjölsótt, og var
það gleðilegt tákn tímanna, hve
inargt var þar af konunum; þvi þaö
bendir á, að þær hafa mikinn áhuga
fyrir almennum málum, ekki síður
en karlmenn, og mun það koma æ
betur og betur í Ijós, nú er þær hafa
fengið jafnrétti. Kappræðumennirn-
ir höfðu breytt umtalsefninu og töl-
uðu um bilingual skólafyrirkomu-
lagið í staðinn fyrir vinsölulöggjöf-
ina. Dr. Sig Júl. Jóhannesson helt
því fram, að eingöngu beri að
kenna ensku á barnaskólum fylkis-
ins; en síra Rögnv. Pétursson áleit
þjóðfélaginu fyrir beztu, að börn út-
lendinga fengju einnig tilsögn i
feðratungu sinni. — Var kappræða
þessi einkar fróðleg og skemtileg,
og myndi áhugi manna á landsmál-
um verða meiri og áhrif þeirra á
þau þar af leiðandi heillavæniegri,
ef pólitisku félögin hefðu slíka fundi
sem oftast.
Kvenfélag Skjaldborgar safnaðar
ætlar að hafa skemtisamkomu í
Skjaldborg á mánudagskveldið 28.
febrúar. Nánar auglýst í næsta bl.
Mrs. Jodinson, 627 Agnes St., hefir
nýlega fengið bréf frá manni sínum,
Árna, er héðan fór með 44th Batta-
lion, og er nú í Bramshott Camp á
Englandi. Hann lætur vel af sér, og
kveðst hafa fengið Jölasendingar frá
kyrkjunuin og sömuleiðis frá stúk-
unni Skuld, og þakkar hann þeim, er
sendu.
Munið eftir hinni ágætu söngsam-
komu hr. Brynjólfs Þorlákssonar í
fTnítarakyrkjunni á föstudagskveld-
ið í þessari viku (18. febr.). Pró-
grammið er auglýst hér í blaðinu,
og er þvi lítið breytt frá því sem
áður var. Það er unun að hlusta á
söng, þar sem allir beztu íslenzku
söngkraftar hér í borg konia fram.
Vér teljum víst að húsfyhir verði.
mann, Gilbert Johnson og Einar
Skaffel.. Og þó að öllum ræðumönn-
um tækist vel, þá var jiað ]>ó ein-
róma úrskurður dómendanna, að
Bergthór fcngi gullmedtídiuna, enda
var ræða hans einkar skýr, hugð-
næm og fyrirtaks vel flutt, svo að
hún hreif hvern mann, sem inni var.
Dómendur voru jieir B. L. Baldwin-
son aðstoðar ráðgjafi, Árni Ander-
sub lögmað^r og síra B. B. Jónsson.
Ræða Bergthórs birtist á öðrum
stað hér í blaðinu.
Magnús Ólafsson Friman, frá Cold
Springs i Álptavatnsbygð, er nú að
fara vestur til Prince Rupert í Brit-
ish Columbia, gamali maður, ern og
hress, sveitungi vor að heiinan. —
Heimskringla óskar honum til allra
heilla og góðrar farar.
Einhver var að spyrja, hvort orð-
ið væri réttara: þremenningur eða
þrimenningur. Það er lítill efi á, að
þrímenningur sé réttara. Og ekki
munum vér eftir orðinu þreinenn-
ingur í fornum bókum. Töluorðið
er þrír ekki þrer og verður því: þrí-
menningur, þrínættur, þrímerking-
ur, þríhöfðaður, þrifættur, Jirígild-
ur, þríhyrndur, þríhendur o. s. frv.
Hin myndin kemur að eins fyrir í
orðinu/þrefaldur, sem ætti vist að
vera þrífaldur, þó að Danir haf —:
Trcfoldig.—Ritsij.
Catalog McKenzie Co., Ltd., fyrir
1916 fylgir með tímanum betur en
nokkur annar. Vér erum rétt búnir
að fá eitt eintak af honum.
Hver einasti bóndi eða maður,
sem garðmat ræktar, ætti að hafa
þessa ágætu útsæðisbók, sem tekur
öllum öðrum fram, sein þetta félag
hefir gefið út.
Hið fyrsta, sem slær mann, er hin
einkennilega kápa og hin frjálsa
teikning á henni. Það er svo ein-
kennilega einfalt og þó fagurt og á-
nægjulcgt og litirnir svo margir.
Og svo myndirnar og lýsingarnar
í bókinni; þær taka öllu fram, sem
áður hefir í slikum bókum prentað
verið, og blaðsíðurnar eru svo hrein-
Skrifaðu
í dag
og án
TAFAR
Stór bók sem fjallar um
persónulegar og als=
konar þarfir og
nokkrir sérstakir
BÆKLINGAR
viðvíkjandi nauðsynja
Vörum
CRutcni
T.EMON C?-
fc\ v-'LÍ
ifffliTTmTrtS**^Skrifaðu eftir
! hverri
pessari sem
" |>ú æskir eftir
Sendu oss nafn þitt og utanáskrift
og skýrðu frá hvaða verðlista þig vantar, og við skul-
um senda þá að kostnaðarlausu með næsta pósti.
jMODERN HOME
BUILDING MATERIAI
T.EATON C
LIMITED
CANADA
imTT«Tc»I7K
IIIIIIMIIIIHUHHIHIttllimilHWUuÍHníiÍlÍl
Samkoma íslenzka stúdentafélags-
ins til arðs fyrir Rauðakrosssjóðinn, |
var haldin á fimtudagskveldið var.
Það var mjög ánægjuleg samkcuna
og fjölsótt. Fjórir stúdentar keptu!
þar um gullmedalíu, er Hon. Th. H. |
Johnson hafði gcfið Stúdentafélag-
inu í því skyni. Þessir stúdentar
tóku þátt i mæl'sku-samkepninni:
Bergthór E. Johnson, Miss Ásta Aust-
ar og vekja svo margar hugsanir hjá
mönnum, og menn sjá og skilja þá,
hvað feykilega mikið öllu þessu hef-
ir farið fram.
Vér ráðum hverjum einum að fá
eitt eintak af þessari fögru bók, sem
er troðfull af skemtilegum og gagn-
leguin fróðleik.
Með póstinum fæst húu fritt, ef
beðið er um.
Grand Concert
undir stjórn hra. Brynjólfs Þorlakssonar, organista.
Föstudagskveldið 18. Febrúar 1916
í Islensku Onítarakyrkjunni
PHOGRVM MK.
1. Trio—3 Violins: Miss Clara Oddson, Mr. M. Magnús-
son, Mr. W. Einarsson . ....... M. Magnússon
2. Morgunsöngur: Söngflokkur (blandaöur kór)....Gade
3. Þ»orst. Þ». í>orsteinsson: Indverskir hhoíar.
4. Uppiestur—t>orst. Björnsson, cand theol.: LífiC í
þorpinu.
5. (a) Solo: Lullaby, Mrs. S. K. Hall....Cary Jacobs Bond
(b) “ Longing, Mrs. S. K. Hall Cary Jacobs Bond
6. (a) “Vor guö oss lýsa lát þitt or$”. Söng-
flokkurinn ..................Jón Friðfinnsson
(b) “Um sumardag”: Sóió og kór. Söng-
flokkurinn . ..... Franz Abt
(Soprano Solo: Mrs S. K. Hall.
Bass Solo: Mr. Alex Johnson).
7. Violin Solo: Legende, Miss Clara Odd-
son ............................ Wianiawski
8. Hætia: Síra Rögnv. Pétursson
9. Comic Recitation: Mr. John Tait
10. óákvetJið.
11. Solo: “Knowest thou not that fair land’’ (from
Mignon)—Mrs. S. K. Hall .......... Tltomas
12 Hirðingjar: Solo og kór—Söngfl....Schumann
Accompanists: Miss S. Fredericksson and Professor S. K. Hall.
Fundir bindindismanna.
Boðað er til funda til að ræða
hin fyrirhuguðu vínbannöög Mani-
toba fylkis, á þeim stöðum í norður-
hluta Nýja íslands og á þeim tíma,
er hér segir: —
í Framnes Hall, þriðjudaginn 22.
febr., kl. 2 e. li.
í ftindarsal Templara í Árborg
sama dag, kl. 8 að kveldi..
. í Geysir Hall, fimtudaginn 24.
febr., ikl. 2 e. h.
f Breiðuvík, í Kyrkjubæ, föstudag-
inu 25. febr., ki. 2 e. h.
Fundur i Víði licfir áður verið
boðaður og fer fram í dag.
Skorað á menn að sækja fundi
þessa og vera mættir í tíma.
* * *
Fundur verður haldinn á Hay-
land Hall, Man., 25. febrúar, kl. 4 e.
m., til að ræða bindindis- og vin-
bannsmálin. Ræðumenn verða Páll
Reykdal og Jón Jónsson frá Sleð-
brjót. óskað er, að allir komi sem
geta. Á eftir verður “Box Social” og
dans.
Samkoman byrjar kl. 8.15
Inngangur 35c
At5göngumií5ar til sölu vífcsvegar um bæinn og í verzlun Björns Pét-
urssonar, horni Simcoe og Wellington; einnig í Goodtemplara-
húsinu vi® lnnganginn tii leiksins “Afturgöngur" mit5vikudags-
kvelditS 16. febrúar.
Vér urðum varir við þá Kristj:
Halldórsson Halldórssonar, Jón Si
urðsson Sigurðssonar, frá Rauð
mel, og E. Helgason, alla frá Lum
ar. Þeir komu og gengu í 108. he
deildina. Nokkrir úr Nýja fslam
hafa og komið nýlega til borgarim
ar, þó að vér vitum ekki með vis<
nöfn þeirra. Um og yfir 10 land;
ganga nú í 108. herdeildina á vik
hverri.
Vínsölubúðum og hótelum í Sel-|
kirk hefir verið lokað í viku, fyrst
uin isinn, og hvorttveggja til að þau
fái að selja vin aftur, segja ensku
blöðin.
Hvað er klukkan ?
Það gat ekki nema einn unnið
vasaúrið, sem spilað var um i i
lenzka Konservatíve klúbbnum um
daginn, og til að bæta úr því gaf
annar góður félagsmaður, hr. Fil-
ippus Filippusson, klúbbnum vasa-
úr til að spila um. Byrjað verður að
spila um þetta úr á fimtudagskveld,-
ið kemur, 17. þ.m. og ísömu reglum
fylgt eins og áður.
Meðlimir klúbbsins og aðrir ís-
lenzkir Konservatívar ættu að sækja
þenna fund og alla fundi klúbbsins.
Spilanefndin.
Næsta laugardagskveld (19. febr-
úar) hefir Ungmennafélag Únítara
spilafund í samkomusal safnaðarins.
Ágæt verðlaun verða gefin þeim, er
flesta vinninga fær í kappspilinu.
Fjöldi landa utan úr bygðum eru
nú komnir í borgina og höfum vér
orðið varir við marga, og á meðal
þeirra eru þessir: Guðm. Gíslason,
Óli Ó. Jóhannsson og Jón Goodmans-
son, frá Elfros; Páll Jónsson og Bogi
Bjarnason. frá Wynyard; Jón Veum,
frá Foam Lake; Skúli Björnsson, frá
Leslie; Sigurgeir Pétursson, frá Nar-
rows; W. Kjernested og J. H. John-
son, frá Dog Creek; Ben. Rafnkels-
son, frá Clarkleigh. Annarhvor Ar-
gyle búi má heita að séu nú í bænum
og fjöldi frá Nýja íslandi, vér vitum
ekki hvað margir.
Mr. Baldvin Anderson kom sunn-
an úr Bndaríkjum með hunda sina
hingað til borgarinnar núna í vik-
unni og heimsótti Kringlu görnlu;
en vér vorum ekki heima og fengum
því ekki að siá hnnn, en þeir sögðu
að það hefði verið völlur á Balda.
“SYRPA”, 4. hefti, 3. árg., verður
sent kaupendum innan fárra daga.
Þeir, er skift hafa um bústað siðan
síðasta hefti kom út, eru beðnir að
gjöra aðvart strax. — Verð 30c.
ólafur S. Thorgeirsson,
678 Sherbrooke St., Winnipeg.
Sigurður Thórdarson frá Geysir
j og Eiríkur Einarsson frá Hnausum,
I komu til borgarinnar nýlega. Þeir
^ litu inn til oss og sögðu oss margar
fregnir af kunningjunum þar neðra.
j Fiskimenn eru að koma hcim af
! vatninu með nokkurnveginn góðan
afla. Snjór er mikill þar neðra; en
samt höfðu mestu janúar-hriðaruar
farið hjá þeim.
Minnist þess, landar góðir, að
hinn nafnkunni leikur Henrik Ib-
sens “AFTURGÖNGUR” verður sýnd
ur í kveld (miðvikudag 16. febr.) í
Goodtemplarahúsinu. Þessi leikur
hefir vakið mikla eftirtekt um allan
hinn mentaða heim, eins og áður
hefir verið drepið á hér í blaðinu.
Engir ættu að neita sér um þessa
skemtun, því önnur betri mun ekki
á boðstólum.
BIBLfU-FYRIRLESTUR
verður haldinn i 804% Sargenl Ave.
(milli Arlington og Alverstone St.)
miðvikudaginn 16. febrúar kl. 8 síð-
degis. Efni: Síons lireyfingar. Munu
Gyðingar safnast í Palestínu áður en
Kristur kennir?
Sunnudaginn 20. febr. kl. 4 e.h.
verður umræðuefnið: Upphaf synd-
arinnar. Kærleikur guðs og réttlæti
birtast í stríðinu milli ljóssins og
inyrkursins.
Inngangur ókeypis. — Allir vel-
komnir.
Davíð Guðbrundsson.
Mr. S. Ófeigsson, sem kom með
kvæði til birtingar í blaðinu, er beð-
inn að koma á skrifstofu Hkr. við
fyrstu hentuglcika.
Mr. Pétur Magnús, frá Edmonton,
Alta., er nú hér í borginni. Hann
koin frá Argyle, þar sem hann hefir
dvalið nokkurn undanfarinn tíma.
KENNARA VANTAR.
fyrir Reykjavik skólahérað, No.
1489, frá 15. marz til 15. júlí. Kenn-
ari tiltaki kaup, scm éiskað er eftir.
Umsækjandi þarf að hafa Second
Class Profcssional Certificate. Til-
moðuin veitt móttaka af undirrituð-
um.
22. janúar 1916.
A. M. Freeman, Sec’y-Treais.
24-30p Reykjavík P.O.
KENNARA VANTAR
fyrir Vestfold skólahérað, No. 805.
Kenslutimi frá 1. apríl til 31. októ-
ber, að undanskildum ágústmánuði.
Kennarinn verður að hafa Third
Class Professional Cerlificate. Um-
sækjendur tiltaki kaup, sem óskað er
eftir, einnig æfingu við kenslu.
Vestfold, 2. febr. 1916.
A. M. Freeman, Scc’y-Treas.
TVO KENNARA VANTAR
fyrir Norður-Stjörnu skóla No. 1220.
annan með 2nd, cn annan með 3rd
Class Certificate.
Kenslutíminn er sjö mánuðir, frá
1. apríl til 1. des. næstkomandi. Fri
yfir ágústmánuð.
Tilboðum, sem tiltaki kaup og æf-
ingu, verður veitt móttaka af undir-
rituðum til 1. marz.
G. Johnson, Scc’y-Trcas.
18-22 Stony Ilill, Man.