Heimskringla - 27.04.1916, Síða 7
WINNIPEG, 27. APRÍL 1916.
H E I M S K R I N G L A.
BLS. 7.
Bágborinn búskapur.
Meðalaldur allra þeirra, er fæðast
hér á landi, er yfir 60 ár. Það er því
lágt reiknað, ef gjört er ráð fyrir
því, að hver tvitugur maður eigi að
meðaltali eftir ólifuð 40 vinnuár.
Ef nú er gjört ráð fyrir því, að með-
al árskaup islenzkra sjómanna sé i
1000 kr., þá mun mega ætla, að hver J
þeirra vinni íslenzka þjóðfélaginu
inn að meðaltali 2000 krónur á ári*)
En 2000 kr. á ári í 40 ár eru 80 þús.
krónur, sem þá er sú upphæð, sem |
tvítugur íslenzkur sjómaður er
virði íslenzka þjóðfélaginu, að frá-
dregnu því, er fer til lífsviðurværis
hans sjálfs. Ef nú er gjört ráð fyrir
því, að sjómenn eyði helmingnum af
kaupi sinu sjálfir, en hinum helm-
ingnum til að framfleyta með fjöl-
skyldu (og vafalaust er það að með-
altali ineira en helmingur af kaup-
inu, sem fer til fjölskyldunnar), þá
er sama sem 20 þúsundir (500 kr. í
40 ár) af þessum 80 þúsundum fari
til mannsins sjálfs, og verða þá eft-
ir 60 þúsund krónur. Hver tvítugur
sjómaður er því eftir þessum reikn-
ingi, sem vafalaust er of lágur, 60
þúsund króna virði fyrir íslenzka
þjóðfélagið. Þegar tvítugur maður
druknar, er það því (auk táranna og
tregans, er ekki verður metinn í pen-
ingum) 660 þúsund króna tap fyrir
lsland. •
En hvernig förum við íslendingar
nú með vinnukraftinn — það verð-
mætasta sem landið ,á — og það,
sem öll velferð þess i nútíð og fram-
tíð byggist á?
Hvað marga verkamenn er búið
að drepa á óþarfri næturvinnu hér
í Reykjavík? Og hvað er búið að
eyðileggja heilsu og stytta líf margra
sjómanna með óhæfilegum, ósvifn-
um og óþörfum vökum á íslenzku
togurunum?
Dagsbrún flutti í sumar greinar
um vökurnar á togurunum, og skor-
aði á þingmenn að flytja frumvarp
um lögboðinn minstan svefntíma á
togurunum, ,en enginn af þeim fjöru-
tiu háu herrum, sem á þingi sátu,
hafði rænu, vilja eða tíma til þess,
að sinna svo “ómerkilegu” máli.
Margar eru þær lendingar hér á
landi, sem að meðaltali ferst einn
maður á ári (landinu 60 þúsund kr.
virði), sem öruggar mætti gjöra með
því, að verja til þess 10 til 20 þús-
undum króna.
Það mundi þykja frámunalega
hágborinn búskapur hjá þeim bónda,
sem gæti umgirt díki fyrir 3—6 kr.,
sem árlega dræpi fyrir honum eina
sauðkind, en gjörði það ekki. — En
hvað á maður að kalla þetta búskap-
arlag islenzka þjóðfélagsins, að fara
svona gáleysislega með mannslífið
-— dýrmætt- þjóðfélaginu, og í tvö
földum skilningi dýrmætt þeim, sem
eftir lifa?
Hver stjórnar þessu? Eða réttara
sagt: hver ætji að stjórna því? —
Svarið er: Alþingi. Hverjir ráða
þar? Það gjöra “heldri” mennirnir.
Þjóðin hefir trúað á þá eins og guð'
(eða freklega það), en þeir hafa ekk-
ert gjört landinu til verulegra frain-
fara, ekkert hjá því, sem hefði getað
verið; þvi þó framfarir hafi orðið
hér 1 landi siðustu áratugina, ]>á eru
þær ekkert hjá því, sem þær hefðu
getað verið, þvi ísland er gott land
fyrir þjóð, sem kann að búa hér. En
það kunnum við ei ennþá, þvi allur
þjóðarbúskapur okkar er eins og sú
sóun- á mannslifum, sem á sér hér
stað.
Síðan alþýðuflokkurinn fór að
láta til sín taka, eru farnar að heyr-
ast raddir úr herbúðum gömlu flokk-
anna um, að nú eigi að fara að koma
á heilmiklum framföruin. En loforð
sem ekki voru haldin, eru ekkert
nýtt í íslenzkri pólitík, og alþýðan
mun svara: 1 fjörutíu ár höfum við
trúað á ykkur, i fjiiúutíu ár hafið
þið rifist um ekki neitt, i fjörutiu ár
hafið þið hrúgað upp handónýtum
pappírslögum og í fjörutiu ár hafið
þið skarað eld að kökum ykkar.
Nú þekkjum við ykkur.
Burt með ykkur!
— (Dagsbrún).
Fréttabréf.
*) Erlendis, bæði hér í álfu og
í Vesturheimi, gjöra hagfræðingar
ráð fyrir að tæpur helmingur af
gróða allskohar atvinnufyrirtækja
renni til verkamanna, hitt til at-
vinnurekenda, og mun mega gjöra
ráð fyrir því sama hér á landi.
™í D0MIN10N BANK
Hornl Notre Dome og: Sherbrooke
Street.
Hðfutl.Iftll uppl>......
Varasjfttlur ............
Allar elgrnlr...........
. „ „ »6,000,000
..... »7,000,000
. „ . . »78,000,000
Vér ðskum eftlr vlftsklftum veri-
lunarmanna og ábyrgjumst atl gefa
þelm fullnœgju. Sparlsjótisdelld vor
er sú stærsta sem nokkur bankl hef-
lr I borglnnl.
lbúendur þessa hluta borgarlnnar
óska aft sklfta vtB stofnum sem þelr
vlta aft er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygglng óhlutlelka.
ByrjlB sparl innlegg fyrir sjálfa
yBur, konu pg börn.
W. M. HAMILT0N, RáSsmaíur
PHONE GAIIRY 3450
Columbia Grain
Co., Limited
242 Grain Exchange Bldg.
WINNIPEG
TAKIÐ EFTIR!
Vér kaupum hveiti og aðra
kornvöru, gefum hæðsta verð
og ábyrgjumst áreiðanleg við-
skifti. Skrifaðu eftir upptýs-
ingum.
TELEPHONE MAIN 1433.
Howardville, 17. apríl 1916.
Kæra Kringla, alúðarheilsan!
Eg tek mér penna i hönd, pappir
og blek og ræðst í að senda þér fá-
einar línur, bæði til þess að stytta
mér stundir, og svo ef ske kynni að
þú hefðir gaman af að fá línu frá
karlinum, sem hefir haldið trygð og
kunningsskap við þig i 23 ár. Og
skammast eg min fyrir, að hafa svo
sjaldan sent þér línur, sem ]>ú þó
liefðir átt margfaldlega skilið, og
man eg það, að eg dróst á það við
þig síðast þegar eg heimsótti ]>ig, að
eg kanske sendi þér línur einhvern-
tíma á vetrinum, en sem þvi miður
hefir ekki orðið fyrri en þetta; eg
veit að þú fyrirgefur það, og segir
að betra sé seint en aldrei.
Eg ætla þá að byrja á því að segja
fyrst af sjálfum mér, af þvi að þver
er sjálfum sér næstur. Mér hefir
liðið ágætlega síðan i haust að eg;
kom þá frá Argyle. Hefi verið stál-
hraustur; ekki fengið snert af kvefi,
sem lagðist þó býsna þungt á marga
hér i þessari bygð. Og svo var það
líka annað, sein lagðist býsna þungt
á fólk hér; það var þessi hvíta,
þykka og þunga vterarvoð, sem ald-
rei hefir verið jafn þykk og þung,
eins og þenna vetur, og verst hefir
þetta farg farið með gamahnenni
eins og mig; já, eg hefi hálf-sofið og
hálf-vakað, varla getað hreyft mig;
verið með geðvonzku og ónotum;
að eins staulast með staf í hendi
milli húsa og bæjar og fleygt mér
svo í fletið með ólund. Þetta er lítið
betra en kvef, vilt þú máske segja,
og það er kanske rétt, en bíddu nú
dálítið við, góða mín; eg þarf að
segja þér meira um mig.
Þann 6. marz reis eg upp við ol-
boga undan voðinni hvítu og gægð-
ist út undan, og sá eg sólskin, en
dauft var það, sem von til var, því
það var Liigbergs “sólskinið”, sem
eg sá, og fann eg það þá glögt út, að
sólskinslitlir dagar mundu hjá okk-
ur verða hérna við norðurheims-
skaut Nýja íslands, eins og hjá
Birni gamla í Öxl, ef við hefðum
ekki annað hlýrra sólskin en Lög-
bergs-sólskinið. Já, niikið hefir aum-
ingja Lögberg tapað áliti hjá mér
síðan það innleiddi þetta “sólskin”
i blaðið, sem er að eins barnagælur
við ritstjórann sjálfan og hefði átt
að vera sérstakur bæklingur fyrir
]iess konar mánaðarl., til arðs fyrir
blessuð litlu börnin fátæku, hans
pabba og hennar mömmu, sem mörg
má finna á þessum striðstímum víðs
vegar um heiminn. Svo mætti spað-
bita-dál'kurinn missa sig úr Lög-
bergi, og ættu þeir (spaðbitarnir)
og leikhúsaauglýsingarnar, að s,end-
ast út á stóra sorphauginn borgar-
innar, svo góð fréttabréf þyrftu ekki
að bíða svo og svo lengi, og þan.nig
þoka fyrir þessu rugli. — Er ekki
þetta nokuð satt, kæra vinkona min,
Kringla?
Þá er nú þar að byrja, er áður
var frá horfið: Voðin hvita velti
mér á koddann aftur, og lagðist þétt
með kulda á karlinn, þar til 24. marz
að eg vaknaði algjört af þessum lúa-
og leiðinda-svefni, og þá snart mig
þíða og sólskins blíða.. Já, þessi al-
hcimsins bliða sól var þá farin að
kasta sínum vermandi geislum á voð
ina hvítu og þykku; enda fór hún
þá úr því til muna að léttast og
þynnast, og nú í dag er svo komið,
að víða er hún orðin götótt, sem hálf
ónýtt fat, og grætur það víst enginn,
| og vonum við hér eftir, að svona
| fari með hana: Voðin hvíta veltist
| af við varma sólar, ef að nöpur
j nornin norðra neitt ei gólar. — Já,
j það mæla börn sem vilja. Við vilj-
um tafarlaust verða lausir við voð-
I ina hvítu, köldu og þykku.
Þá fer nú það að minka, sem eg
hefi af sjálfum mér að segja, og býst
eg við að þér þykji eg drjúgur á
fréttunum af sjálfum mér; enda er
það svo, því sárlitlar almennar frétt-
ir liefi eg til, þær sem orð er á gjöi*-
andi. Þó skal eitthvað til tina.
Það er almenn heilbrigði nú sem
stendur í þessari bygð, og allir hafa
unnið af kappi þenna vetur, þrátt
fyrir þá afarmiklu örðugleika, sem
af þessuin mikla snjó leiddi. En
kjarkur, þol og þrautseigja virðist á-
valt fylgja aumingja Ný-íslending-1
um, hvar sem ]>cir eru og hvaða j
starfa sem þeir stunda, og beztir |
þykja þeir allra vinnumanna vestur
i Argyle, og kalla þeir þó ekki altl |
ömmu sina, þvi ekki vantar dugnað-
inn hjá þeim körlum. Eg endurtek
það aftur, að allir hafa unnið af
kappi þenna vetur: fyrst við fiskiri,
sem reyndist í tæpu meðallagi; svo
þar á eftir við heybinding og flutn-
ing á þvi til markaðar, og höfðu
inargir stórar peninga upphæðir að
þeim starfa loknum. Hey seldist hér
fyrir 9—12 dollara tonnið, i flutn-
ingsvagn komið.
Svo tóku menn til við blessaða
friðsælu og fallegu skógana, að ná
út úr þeim þurru tamraki. Við það
var unnið í stórum stýl, og fluttu
margir þetta frá einu æki til fjögur
á dag frá heimili og oft daglegu;
borgað var fyrir korðið 3.50 til 3.75
dalir, komið í flutningsvagn við
Riverton. Margir tóku tvö til fjögur
korð á sleða eftir snjóplógi á vatn-
inu, og komu þar inn aftur stórar
upphæðir fyrir þá sölu..
Svo seldu margir á sama tíma
nokkur vagnhlöss af girðingastaur-
um; 2000 fara i stóran járnbrautar-
vagn, og borgað var fimm cents fyr-
ir hvern staur; þar koniu inn lag-
legar peninga upphæðir.
Svo er nú ekki þar með búið, þvi
margir bændur hafa að vanda — og
búlausir menn — tekið út sögunar-
við (logs) og bætast þar nokkrir dal
ír við í vasann, ásamt endurbættum
húsakynnum. Mr. Sveinn Thorvalds-
son, kaupmaður i Riverton, sagar
við þenna fyrir bændur, ásnmt fá-
einum “loggum”, sem liann lét taka
út i vetur, um 25,000 að tölu; það
er falleg breiða, rétt framundan hús-
inu mínu. Mr. Gestur Oddleifsson,
sem margir Jiekkja, er verkstjóri að
því verki, og vann það bæði fljótt
og vel; enda vann hann alla daga
hart að því sjálfur.
Svo fer kornrækt hér óðum vax-
andi, og munu bændur hér hafa haft
aö öllu samanlögðu fimrS til sex
þúsund búshel til fóðurs í.vetur;
það hefir sparað mörg cent að þurfa
ekki að kaupa það á markaðnum.
Af öllu þessu geta menn séð, að
almenn vellíðun muni vera hér, það
segir sig sjá'lft; enda hafa allir byrgt
sig upp með allar upphugsanlegar
nauðsynjar, og sumir skroppið til
Winnipeg og sótt sér 500 dala hesta-
par í aktýgjum og borgað út i lófann
skildingana. Það kallar maður lag-
lega gjört, sér í lagi þegar um ungan
pilt er að ræða.
Félagslíf er hér í bezta lagi og þol-
ir allan samanburð við hin önnur
bygðarlög lslendinga, sem menn
hafa fréttir úr i vetur.
Já.'fjörið er mikið í unga fólkinu
liér, og jafnvel þeir gömlu eru fjör-
ugir enn og >jilja vera með og eru
það eins lengi og hægt er, og svo-
leiðis á það að vera. Það hafa verið
skemtisamkomur um alt Nýja ísland,
og þó fólkið hafi verið þreytt af arf-
iði dagsins, vikunnar og mánaðar-
ins, og þótt snjór væri mikill, þá
hefir það ekkert staðið fyrir ungu
piltunum, að koma jómfrúnum á
safnkomustaðina, á góðum keyrslu-
hestum, í póleruðum sleða, eða ]>á í
fínustu hundasleðum, með bezta
hundakyni þessa lands fyrir. — Já,
]>að er skemtilegt, að svifa gegnum
skógana hér á góðu “hundatreini”;
það “bítur” alt annað ‘trein’ og uxa,
hesta og asna.
Þetta verður þá að duga í þetta
sinn, min kæra, góða Kringla Má-
ske, ef starfsmanni þínum lika þess-
ar línur, að eg sendi þér fáein orð
síðar meir, af því að nú finn eg að
eg er alvaknaður og í fullu fjöri, uð
taka á móti blessuðu sumrinu og
gjöfum þess.
Eg heyri á þér, vina mín, að þér
gengur illa að innkalla skuldir þin-
ar, og það er slæmt. Þó hygg eg að
það standi ckki á þvi í þessari bygð
i ár; bæði er það, að það hefir lát-
ið vel í ári hér, og'Svo þekki eg þá
alla hér að því, að vilja borga skuld-
ir sínar. Það eru harðir timar viða,
meðan þessi .styrjöld stendur yfir.—
Mér þykir vænt um, að eg hefi ekki
þurft að láta þig eiga hjá mér nú
síðari árin, og má eg þakka það
blessuðum Argyle vinnuveitendun-
um og vinnunni; því að síðan eg
fór að vinna hjá þeim á haustin, nú
í 8 haust, hefi eg jafnan haft það
fyrir reglu, að borga þér það sem eg
hefi skuldað þér fyrir árið, og það
virðist vel gjört af þér að lána til
ársins, og ætti sú skuld að borgast
fyrir árslokin ár hvert. Það er ó-
þægilegra, að draga það saman fyr-
ir imörg ár, það fann eg bezt sjálfur;
þvi 10 ára skuld var eg kominn i við
þig áður en eg fór að f'ara til Argyle
og fá hjá þeim bæði vinnu og pen-
inga. Eg gef það vel eftir, að þó að
eg ætti nú örðugt uppdráttar fyrstu
árin, að hefði eg tekið það fyrir, að
borga þér árlega þessa litlu upphæð,
þá má vera að eg hefði getað það,
eins vel eins og að borga fyrir 10
árin 20 dali, því það gjörði eg, eins
og eg veit að þú manst. Eg fékk alt
af ónota sting í mig, þegar blessaði
bjartsýni drengurinn minn, B. L.
Baldwinson, var'að auglýsa þetta
fyrir þig: “Hefir þú borgað Heims-
kringlu?”, eða þá “Borgaðu Heiins-
kringlu!”. En þetta lét illa í eyrum
mínum, svo eg fór að hafa'reglu *á
því, að borga þér árlega skuldina,
og það finst mér nú bara létt. Það
var eins og mér sýndist Mr. B. L.
Baldwinson standa rétt fyrir fram-
an mig, eins og nokkurs konar póli-
tí, með hvössu augun sín og alvöru-
svipinn, þó eg hvorugt sæi hann eða
hana. þá hafði stingurinn þetta í
för með sér, að eg skammaðist mín,
sem eg sé aldrei eftir, og á það vist
að þakka þessum svip Mr. B. L.
Baldwinsonar Og eg vil ráðleggja
þér, góða mín, að fara að reyna
þessar auglýsingar til skifta og
smekkbætis fyrir fólkið.
Eg enda svo þessar línur með inni-
legum velvildarhug til þin og hjart-
ans bezta þakklæti fyrir þitt bjart-
sýni og frjálslyndi i öllum landsins
mest varðandi málum. Já, eg þakka
þér fyrir herhvatirnar; þvi þær
sýna ljóslega þá samhygð og velvild
og svo hvier skilningur þinn er á
þegnskyldunni og stóru þörfinni á,
að taka saman höndum og tengjast
órjúfandi trygðaböndum Bretaveld-
is. Slikt ætti að vera hnoss fyrir
okkur og heilög skylda. — Eg óska
þér svo gleðilegs sumars og arð-
sams. Megi gæfan ávalt fylgja þér
um ókomnar aldir. Vil eg svo botna
þetta bréf með bögu einni og segja:
Þarf ei bera höfuð halt
heiðarlega Kringla.
Þú við Lögberg skrafa skalt,
sem skömmum er að dingla.
Ármunn Júnasson.
Islenzkan hér vestra
og fleira
Viltu gjöra svo vel og ljá eftirfylgj-
andi rúm í blaðinu. Eg sá hjá Jóni
frá Mýri tvö vcrs, sem hann leyfði
mér að senda blaðinu til prentunar:
ÍSLENZKAN.
Hvert barn, sem að kornungt hið
margbreytta mál
af mæðrunum íslenzku lierði,
fékk þroskaðri skilning og þrútt-
meiri sát,
scm þrekraunin fjöldamörg nærði,
og hávamál fornhelg og hávamál ný
þau hlutii titt gildi og fegurð af þvi.
Æ önnumst sem dýrgrip hið ís-
lcnzka vit,
svo úbornir megi þess njúta,
i þiisund «r alið við stúrhríða strit,
og straurnþunga sjávar og fljúta.
Og gleymum því aldrei, að gultaldar
mál
er grúðrarstöð vitsins i íslenzkri sát.
Jún Jónsson (frá Mýri).
Eg vil mega leyfa mér að birta litla
grein úr þýzka blaðinu “Der Nord-
westen”, Winnipeg, sem koin út i
því, þegar þing Manitoba dauða-
dæmdi öll tungumál utan enskuna í
barnaskólum fylkisins: —
“Islendingurinn Skúli Sigfússon,
sem er þingmaður fyrir St. George
kjördæmi, þar sem svo margir út-
lendingar hafa tekið bústað, mælti
með al-enskúm skóla. Það er furðan-
legt, hvað íslcndingar lialda lítið af
móðurmáli sínu, því ]>ó íslenzka
þjóðin sé fámenn, þá hefir málið
mikið sögulegt gildi, og liverjum Is-
lending mætti með réttu þykja upp-
hefð að ættstofni sinum”.
Líka flutti saina blað tvær rit-
gjörðir við síðustu borgarráðskosn-
ingar i Winnipeg, og hvatti Þjóð-
verja að kjósa berra Arna Eggerts-
son, sem hæfileikamann i þá stöðu.
Greinarnar voru hlýjar í hans garð.
Svona líta nú Þjóðverjar á mál
íslendinga. En sjálf veit Heims-
kringla, hvað liún segir um Þjóð-
verja!
Mig minnir að Ileimskringla
flytti grein fyrir nokkru eftr mann,
sem tekinn var af fótur, og kvartaði
alt af uin þrautirnar i þeim partin-
um, sem var af tekinn, nefnilega cft-
ir að fóturinn varð fráskila likaman-
um. Hér er sagður maður nálægt
Wynyard, sem þurfti að taka af
hendina (hendin lenti í vél og muld-
ist). Eg sjálfur hefi ekki talað við
hann, en menn segja mér, að hann
kvarti alt af um kvöl í af teknu
hendinni, þó hún sé löngu aðskilin
frá líkamanum, og kalla margir það
bara, að maðurinn sé ekki “réttur í
höfðinu”; það sé alt.
Eg skil þetta undur vel af opin-
berun drottins, og veit vel, að þessir
menn segja það öldungis satt, að
þeir finni svona til þrauta i af tekna
limpum.
Magmis Braziliufari.
ATHS.—Vér viljum ekki neita
nafna' vorum að taLa hina einkenni-
legu ritgjörð Braziliufarans. Fyrst
í greininni kemur skáldskapur; svo
kemur útdráttur úr biblíu Brazilíu-
farans, þýzka blaðinu ‘Der Nord-
westen’ hér í Winnipeg; $vo kemur
saga um aftekinn fót og aftekna
hönd. Alt þetta er til; en það er eins
og nafni vor skilji ekkert, að minsta
kosti er ekkert hugsana-samband á
milli þessara atriða.
Vísurnar hans Jóns frá Mýri eru
mikið vel kveðnar. En eiginlega
eiga þær heima á íslandi, og sizt hjá
manni þeim, sem er svo gagnsýrður
af þýzkum anda, bókfræði og ment-
un, að hann sér ekkert nýtt eða gott
i héimi, nema það komi þaðan.
Þýzka blaðið Nordwesten virð-
ist vera biblía hans, — mannsins,
sem í 40 ár hefir legið á spenum
hinnar þýzku menningar. En það
vill nú svo óheppilega til, að fleiri
íslendingar en -Magnús Brazilíufari
geta lesið Þýzka tungu og hafa tim-
um saman liaft blöð á þýzku máli,
og geta því dæmt um, hvað þau
fiytja.
En hvað árás hans á Skiila Sigfús-
son, þingmann hér í Manitoba, við-
víkur, þá kemur þar i ljós al-þýzkur
andi, — landráða-andinn, sem getur
verið bæði þýzkur eða islenzkur,
franskur eða rússneskur. Nafni vor
kemur hingað til að lifa við borð
hinnar kanadisku móður. Alt líf sittl
og barna sinna og eftirkomenda ætl-{
ar hann að byggja á því, að hún |
leggi honum alt til: föt og fæði á '
degi hverjum, land og akra, gripi
og vélar, hús og heimili, og í hennar
skaut ætlast hann til að lagður sé
likami sinn og allra sinna cftirkom-
enda. En þessa sína móður, sem
hann ætlar alt af að þiggja, svívirðir
hann með því, að taka aðra fram
yfir hana. Það kann að vera góður
vilji hjá manni þessum; en fyrir
vitinu fþjtum vér ekki virðingu bor-
ð, fremur en fyrir æru og manndygð
landráðamannsins. — Þessir menn
ættu að vera með vinum sinuml
Vér heiðrum Mr. Skúla Sigfússon
fyrir stefnu hans, að kenna ensku
og ekkert annað mál á barnaskólum
llands þessa, og teljum hann sja
bæði lengra og skýrara en nafna
vorn. — Það fer ekki vel á þvi fyrir
bóndanum, að ála upp úlfa eða tóu-
hvolpa með lömbum sínum og verð
ur seint til samlyndis, og hver sá
maður, sem ekki sér það, hefir farið
á hundavaði yfir sögu mannkynsins
og sögu hinna seinustu tíma. Nafni
vor getur verið bóndi góður og giid
ur bg fróður um ýmsa hluti; — en
þessar liinar þýzku skoðanir ætti
hann að læsa niður í kistu sinni og
láta ekki fyrir eyru nokkurs manns
koma. Þær cru meira og meira að
ávinna sér verðskuldaða fyri■*Iitn-
ingu meðal allra sannra Kanada-
manna, og þar á meðal íslendinga.
En hvað endir greinarinnar snert-
ir, um hinn aftekna fót eða hönd, þá
er hún sálarfræðisleg, og sjáum vér
ekki, hvaða þýðingu hún hefir í
sambandi við það, sem á undan e;
farið.—fíitstj.
“Margt smátt gerii eitt stórt”
segir gamalt orðtak, sem á vel við
þegar um útistandandi skuldir
blaða er að ræða. Ef allar smá-
skuldir, sem Heimskringla á úti-
standandi væru borgaðar á -þessu
ári, yrði það stór uþphæð og góður
búbætir fyrir blaðið. — Munið það,
kæru skiftavinir, að borga skuldir
yðar við blaðið nú í ár.
ÞAÐ VANTAR MENN TIL
Að læra
Automoblle, Gas Tractor IBn I
bezta Gas-véla skóla I Canada.
ÞaB tekur ekkl nema fáar vlkur
aB læra. Okkar nemendum er
fullkcmlega kent aB höndla og
gjöra vlft. Automoblle, — Auto
Trueks, Gas Tractors, Statlonary
og Marlne vélar. Okkar ókeypls l
verk veitandi skrifstofa hjáipar
þér aö fá atvlnnu fyrir frá $50
til $125 á mánuftt sem Chauffeur
Jitney Driver, Tractor Engineer
eiia mechanic. KomiB eBa skrif-
1B eftir ókeypis Catalogue.
Hinn nýji Gas Enginc Skóli vor
er nú tekinn til starfa i Regina.
Hemphills Motor School
643 Maln St. Wlnulpeg;
A3 læra rakara iSn
Gott kaup borgaB yfir allan ken-
slu tímann. Ahöld ókeypis, ati-
eins fáar vikur nautisynlegar til
ati iæra. Atvinna útveguB þegar
nemandi útskrifast á $15 upp í
$30 á viku etia vlB hjálpum þér
ati byrja rakara stofu sjálfum
og gefum þér tækifæri til aB
borga fyrir áhöld og þess háttar
fyrir lítiB eitt á mánutit. ÞaB
eru svo hundrutium skiftir af
plássum þar sem þörf er fyrlr
rakara. Komdu og sjátiu elsta
og stæt5sta rakara skóla i Can-
ada. VaraBu þig fölsurum.-----
Skrifatiu eftir ljómandl fallegri
ókeypis skrá.
Hemphills Barber College
Cor. KIiikSí. an«l Paclflc Avenue
WINNIPEG.
útlbú í Regina Saskatchewan.
MARKET HOTEL
146 PrlnccNM Street
á. móti markatlinum
Bestu vínföng, vindlar og aT5-
hlyning góö. Islenkur veitinga-
maöur N. Halldórsson, leibbein-
ir íslendingum.
O’CONNEL, Eigandi Wliinlpeg
Sérstök kostaboö á innanhúss-
munum. Komi<5 til okkar fyrst, þib.
muniö ekki þurfa aö fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
503—595 NOTRE DAME AVEM'E
TalMíini: Gnrry 3SS4.
Shaw’s
Stœrsta og elsta brúkaöra fata-
sölubúö í Vestur Canada.
479 Notre Dame Avenue
GISLI G00DMAN
TINSMIÐVR.
Verkstœt5i:—Horni Toronto St. og
Notre Dame Ave.
Phone
Garry 29S8
HelmllU
Garry S09
FÍNASTA SKÓVIÐGERÐ.
Mjög fín skó viftgerb á meSan þú
bíbur. Karlmanna skór hálf botn-
abir (saumab) 15 mínútur, gútta-
bergs hælar (don’t slip) eba lebur,
2 mínútur. STEWART, 193 Paclflc
Ave. Fyrsta búb fyrir austan aöal-
stræti.
J. J. BILDFELL
FASTEIGNASAIjI.
Unlon Ilnnk 5th. Floor No. 520
Selur hús og lóbir, og annab þar aU
lútandi. Útvegar peningalán o.fl.
Phone Mnin 26S5.
PAUL BJARNASON
FASTEIGNASALI.
Selur elds, lífs, og slysaábyrgb og
útvegar peningalán.
WYNYARD,
SASK.
J. J. Swanson
H. G. Hlnrtksson
J. J. SWANS0N & CO.
FASTEIGN ASALAR OG
penlngn miblar.
Talsími Main 2697
Cor. Portage and Garry, Winnlpeg
Graham, Hannesson & McTavish
L.BGFK.EÐINGAR.
215—216—217 CURRIE BUILDING
Phone Main 3142
IVIWIPEG
Arni Anderson
E. P. Garland
GARLAND& ANDERSON
LttGFRÆÐIXGA R.
Phone Main 1561
'01 Electric Railway Chambert.
Talsími: Main 5302.
Dr. J. G. Snidal
TANNLÆKNIR.
614 SOMERSET BLK.
Portage Avenue. WINNIPEG
Dr. G. J. Gis/ason
PhyNÍclnn nml Surgeon
Athygli veitt Augna. Eyrna og
Kverka Sjúkdómum. Ásamt
innvortis sjúkdómum og upp-
skuröi.
1S Sontli 3rd St., <>rnn«l Forks, N.D.
Dr. J. Stefánsson
401 IIOYD BUII.DING
Hornl Portage Ave. og Edmonton St.
Stundar eingöngu augna, eyrna,
nef og kver"ka-sjúkdóma. Er ats hitta
frá kl. 10 til 12 f.h. og kl. 2 til 5 e.h.
Phone: Main 3088.
Heimili: 105 Olivia St. Tals. G. 2315
Vér höfum fullar blrgtiir hrein-
ustu lyfja og meöaia. Komiö
meö lyfseöla yöar hingaö, vér
gerum mfe15uHn nákvæmlega eftir
ávísan læknislns. Vér sinnum
utansvelta pöntunum og seljum
giftingaleyfi. : : : :
COLCLEUGH & CO.
Notre Damc «fc Shrrbrooke Sts.
Phone Garry 2690—2691
)
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnabur sá besti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina. : :
813 SHERBROOKE ST.
Phone G. 2152 WINNIPEG