Heimskringla - 27.04.1916, Qupperneq 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 27. APRÍL 1916.
Fréttir úr Bænum.
Stærsti hermaður í Winnipeg
GLEÐILEGT SUMAR!
Hr. Páll Réykdal, frá Lundar, var
hér í borg á fimtudaginn var, ]>ann
20. Hefir kona hans og börn dvalið
hér nokkra daga. I>au fóru heimleið-
is á föstudaginn.
Ilr. Bergjíór Þórðarson, bæjar-
stjóri á Gimli, og Lára dóttir hans
voru hér á ferð í bænum á fimtudag-
inn. Þau fóru heimleiðis aftur á
laugardaginn var. Engar sérlegar
fréttir að norðan.
Hr. B. B. Olson, frá Gimli, og
Franklin sonur hans, komu hingað
uppeftir á fimtud'aginn var. Var hr.
Olson að lfcita syni sínum lækninga
við meinsemd í nefi og hálsi.
Á sunnudaginn kemur, þann 30.
þ. m. verður ekki messað í Únitara
kyrkjunni. Síra Rögnv. Pétursson
verður staddur norður á Gimli og
flytur messu þar í kyrkjunni á venju
legum tima eftir hádegi.
Herra Einar Jónsson, frá Otto P.
O., kom hingað til bdrgar á þriðju-
daginn var, þann 18. þ. m. Alt tið-
indalaust þaðan úr bygðinni, bleyt-
ur með meira móti. Einar hélt heim-
leiðis á föstudaginn og Bergþór son-
ur hans, er verið hefir hér við skóla-
nám.
Vestan úr P'oam Lake bygð eru
nýkomnar |iær Miss Th. Thorsteins-
son og Miss Brynhildur Sigurðsson.
Kvenfélag Tjaldbúðar safnaðar er
að undirbúa samkomu, sem verður
haldin fimtudaginn 4. maí. Skemti-
skrá verður auglýst í næsta blaði.
Nýdáinn er einn af frumbyggjum
Nýja íslands, Jónas sál. Jónsson á
VöUum í Breiðuvik, Hnausa P.O.,
Man. Upphaflega var hann sveitun^i
síra M. .1. Skaptasonar og hér vestra
nágranmi hans í Breiðuyíkinni og
vinur, og fór síra M. J. Skaptason
ofan þangað á mánudaginn að jarð-
syngja hann. Hann átti að jarðast á
þriðjudaginn. Síra M. .1. Skaptason
keinur þaðan á miðvikudaginn.
Samkomu sunnudagaskólans úni-
tariska, er auglýst var í siðasta blaði,
Þrír nýjir liðsmenn skrifuðu sig nýlega í 223. Skandinava her-
deildina, og mun einn þeirra, Emil Benard Simonson, frá Foam
Lake, Sask., að lfkindum vera hæsti maður í herliði Canada-
manna. Hann er 6 fet og 6 þuml. hór, 245 pund að þyngd og 46
þuml. yfir bert brjóstið. Hann er fæddur í Warren, Minnosota,
U.S.A., af norskum foreldrum. Var Pétur Sfmonarson faðir hans
frá Stavangri í Noregi. Emil Símonarson er nú að safna liði í
Foam Lake bygðinni.
Guðmundur Oliver er annar maður á myndinni, frá Frainnes
P. O., Man, fæddur í Skagafirði á íslandi, og er snikkari. En
faðir hans er Stefán Oliver f Selkirk. Guðmundur er 5 fet 2% þinl.
Lúðursveinn (Bugler) J. P. itirby er Canada maður. Hann
er “maseot” (lukkudrengur) deildarinnar. Býr hann í Winnipeg
hjá stjúpföður sínum, Wm. Geo. Wilkinson, sem einnig er geng-
inn í 223. herdeildina. Mr. Kirby hefir verið í herbúðum áður, l>ví
að hann var við æfingar síðastliðið sumar í 61. herdeildinni.
er FRESTAB um hálfan mánuð. Bar
samkomukveldið upp á leikkveldið
í Goodtemplarasalnum, svo afráðið
var að fresta samkomunni til þess
11. næsta mánaðar.
Pétur Bjarnason, frá Lilliesve, var
hér á ferð i síðustu viku. Kom hann
að norðan frá fslendingafljóti, þar
sem hann hefir dvalið um mánaðar-
tíma, í kynnisför til fornra vina og
kunningja. Hann var nú á heimleið
aftur vestur i Grunnavatnsbvgð, en
stóð hér við nokkra daga til þess að
vera viðstaddur 25. ára Afmælishá-
tíð Únítara safnaðarins hér í borg.
Látist hefir hinn 6. þ. m. við Wyn-
yard, Sask., húsfreyja Guðrún Fins-
son, kona Friðriks W. S. Finnsson-
ar þar í bygð: kona á bezta aldri.
Banameinið var lungnatæring.
223. herdeildin heldur fund mið-
vikudagskveldið kl. 8 e. h. i sam
komusalnum í herbúðum sínum
Foley, Lock and Larson bvggingi-
unni, á Market St. East, til þess að
stofna íþróttafélag; fyrst og fremst
til að keppa við aðrar herdeildir.
Fyrsta samkepni á milli herdeild-
anna verður hér i bænum 20. mai.
Einnig er búist við, að herdeildin
verði hér 2. ágúst, og íslenzkir i-
þróttamenn, sem tilheyra herdeikl-
inni, hugsa sér að vera viðbúnir að
keppa um þá muni, sem íslendinga-
dagsnefndiin gefur kost á árlega.
Hr. Þorleifur Jackson, frá Sel-
kirk, var á ferð hér í borginni á
mánudaginn var. Var hann á Iieið
til Argyle bygðar, þar sem hann
gjörði ráð fyrir að vistast við vor-
vinnu, hjá fornum kunningja sínum,
er þar býr. Þorleifur er maður á
sjötugsaldri, einn meðal þeirra, er
fyrstir komu hingað til lands, en
furðanlega röskur og frískur ennþá.
Hr. Þorsteinn Þorkelsson, frá í)ak
Point, var í bænum um miðja sið-
ustu viku og fór heimleiðis á mánu-
daginn var. Með honum fór sonur
hans Njáll, er legið hefir hér inni á
spítalanum, en var nú á góðum bata-
vegi. Skrifaði Njáll sig í 223. her-
( deildina fyrir nokkru, en til þess að
fá inngöngu, varð hann að ganga
undir uppskurð áður, sem nú er lok-
ið og vel hefir tekist.
Fyrra miðvikudagskveld lagði af
stað héðan úr bænum ein deikl
hjúkrunarsveitar kanadiska hersins,
“Field Ambulanoe Corps No. 13”. —
Með henni fór landi vor, hr. Hjálm-
ur F. Baníelsson. búfræðingur, son-
ur Ilaníels bónda Sigurðssonar við
Otto P. O. óska vinir hans honum
heillar ferðar og heillar afturkomu.
Hr. .1. G. Gillies, er lesendur Hkr
munu kannast við af fjölda af stök
um, er eftir hann hafa birst í blað-
inu, hefir nýlega ort langt og stór-
myndarlegt kvæði, er hann nefn
“Herhvöt” og stílað er til og tileink-
að skandinavisku herdeildunum hér
í Manitoba, 197. og 223. Kvæði þetta
er vel lagað til söngs og ort undir
hætti “Marsilíu-bragsins”, hinum
fræga hersöng Frakka. Kvæðið er
tólf erindi, kjarnort og lipurlega
kveðin. Hefir höfundurinn ihyggju,
að gefa það út sérstakt; bafa hon-
um borist áskoranir þess efnis frá
ýmsum formönnum þessara her-
deilda. Býst hann við, að það komi
út í næstu viku, og geta þá þeir, sem
óska kynnu að eignast það, snúið
sér til höfundarins. Ættu líka þeir,
sem einhuga fylgjast með í þessu
stríði, ekki að setj sig úr færi með
>að.
l
♦
♦
♦
223. OVERSEAS
Næsta mánudagskveld (1. maí)
verður skemtisamkoma í Skjaldborg
til arðs fyrir hjálparþurfandi fólk
hér í borginni. Djáknar safnaðarins,
sem standa fyrir samkomunni, lofa
ágætri skemtun. Til dæmis verður
þar “Musical Drill”, myndasýning
og nokkrir nýjir söngmenn koma
þar fram o. fl. o. fl. Aðgangur ekki
seldur, en samskot tekin. Byrjar kl.
8 stundvíslega. Allir vetkoinnir.
♦-
-♦
4-
♦
♦
♦
♦
♦
♦
•f
♦
♦
-♦
♦
♦
♦•
T"
!
♦■
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Canadian Scandinavian Battalion
Ladies Auxiliary
Fundur verður haldinn af konum og ungum stúlkum allra
Skandinava, sem er ant um 223. herdeildina og vilja að
henni hlynna, í Goodtemplarahúsinu, horni Sargent Ave. og
McGee St.
LAUGARDAG 29. APRIL
Klukkan 8 e. hád.
til þess að mynda félag kvenna, er starfi með og fyrir þessa
ofannefndu herdeild.
Komið þangað með alla vini yðar.
Þangað eru allir velkomnir.
Ilr. Guðmundur Finnbogason, Ph.
D., kenslumálafræðingur og aðstoð-
arlandsbókavörður, frá Reykjavík
kom hingað til borgar á mánudags-
kveldið var. Er í ráði að hann ferð-
ist hér um bygðarlögin íslenzku og
dvelji hér iim þriggja mánaða tíma.
Hér með þökkum við kærlega hin-
um heiðruðu ritstjórnarnefndum
Liigbergs og Heimskringlu, — ekki
einungis fyrir sendingu á báðum
blöðunum, Heimskringlu og Lög-
bergi, 8 eintök (að gjöf), skilvíslega
og vikulega send, — ekki einungis
fyrir þetta þökkum við innilega, —
heldur einnig mjög vel þökkum við
fyrir mikla og ríflega útiitátna bóka-
sendingu ajð gjöf, frá báðuim, þóka-
söfnum beggja blaðanna.
Hlýhtigur og kær kveðja okkar
allra hér skal endurgoldin til frum-
kvöðla og gefenda þessara bóka og
blaða.
Vinsamlegast, með ósk uin gleði-
legt sumar og góðan árangur þess.
24. apríl 1916.
Fólkið á yamalla-heimilinu á Gimli.
CANADA’S FINEST SUBURBAN THEATRE
MIÐVIKUDAG OG FIMTUDAG —
“The Tongues of Men”, featuring Constance CoIIier.
Ágætar sýningar.
FÖSTUDAG OG LAUGARDAG —
“The Misleading Lady” og “Graft’ No. 9; “The Insur-
ance”, og fjöldi annara ágætra sýninga nú á boðstólum
á þessum nafnkunna skemtistað.
Sigfríður Friðriksson og Kristín
Skúlason, frá Geysir P.O., sem hafa
gengið á Normal skóla hér í vetur,
fóru heimleiðis fyrir páskaháttðina.
“Dorcas” félag Fyrsta lúterska
safnaðarins heldur Concert í Good-
templarahúsinu þriðjudagskveldið 9.
mai, en ekki 2. mai, eins og á að-
göngumiðunum stendur. Gott pró-
gram á boðstólum.
Bréf á Heimskringlu: —
Einar Páll Jónsson.
Mrs. Elín T. Stephenson.
S. T. Hördal.
Síra Fr. J. Berginann.
Guðm. Kr. Jóna'tanisson.
Lárus Guðmundsson.
Thóroddur Halldórsson.
Mrs. Guðrún Helgadóttir.
I-'jögur fyrst töldu bréfin eru frá
íslandi.
Hlutaðeigendur beðnir að vitja
bréfanna hið bráðasta.
Úr bréfi frá Glenboro, dags. 17.
april: Iléðan er alt bærilegt að
frétta. Nú jiiá heita alveg snjólaust
hér á sléttupum, en akrar eru mjög
blautir enn; þó má máske byrja sið-
ari part þessarar viku á hálendi. En
sum lönd, sem liggja í eða nærri fló-
anum nyrðst i Argyle, eru nú alveg
undir vatni, En verði þurr og hag-
stæð tið ifram yfir sáning, vona eg
'að allir komi í jörðina sáðtegundum
síniim í tæká tið. Og útlit fyrir góða
uppskeru virðist mér í betra lagi.
Árni Sueinsson.
Jón Nikulásson frá Víði hér i
fylkinu lézt á Almenna spitalanum
hér í bænum þann 5. þ. m. Hafði
verið skorinn upp við botnlanga-
bólgu, en alt orðið um seinan; botn-
langinn sprunginn, og er þá sjaldn-
ast nokkur von um bata.
Jón var 58 ára gamall, ættaður úr
Suður-Múlasýslu, uppalinn í Teiga-
gerði í Reyðarfirði, og mun hafa
komið vestur um haf fyrir 13 eða 14
árum. Hann var reglumaður mesti,
starfsamur og vandaður i viðskift-
um. Hann var og stiltur maður, dag-
farsgóður og prúður. Fékst mest
við fiskiveiðar og að gjöra aðra út
við veiðar. Var og upp á síðkastið
meðfcigandi í verzlaninni “Vidir
Trading Co.”, fyrst með Jóni Sig-
urðssyni og M. M. Jónassyni og allra
síðast með hinum síðasttalda ein-
um.
Jarðarför Jóns fór fram frá Vidir
Hall þann 10. þ. m., að fjölmenni
viðstöddu. Síra Jóhann Bjarnason
jarðsöng.
Þeir, sem bezt þektu Jón Nikulás-
son, sjá eftir honum, og þykir sem
er, að þar höfum vér á bak að sjá
nýtum manni og góðum dreng úr
hópi vorum.
Hlutaveltu og Dans
hefir stúkan Skuld til arðs fyrir
byggingarsjóðinn, í efri sal Good-
templarahússins næstkomandi mið-
vikudagskveld kl. 8.
Sumir munirnir, sem'um verður
dregið, verða litt verðmætir, en aft-
ur verða aðrir margra dala virði, og
l>ar á meðal þrír yfir tíu dali.
Drátturinn kostar 25c. Dansað
verður til kl. 2 um nóttina.
Sannsögli ritstjórinn
Heiðraði ritstjóri Ileimskringlu!
Viltu gjöra svo vel, að ljá nokkr-
um línum rúm í Kringlu. Mér voru
sendar nokkrar smágreinar, sem
höfðu verið kliptar úr Lögbergi, og
eru þær auðsjáanlega eftir ritstjór-
ann.
Han kallar það rógburðar-tilraun
Mrs. Jósephssonar milli sín og síra
Kristinnssonar, að hún sagði síra
Jakob þau orð, sem eg skrifaði
henni orðrétt eftir herra ritstjóran-
um. En því var hann ekki svo mann-
legur , að snúa sér að mér? Hann
hlýtur að vita, að hann talaði við
mig en ekki Mrs. Jósphsson, þegar
hann var að fræða mig á því, að sira
Jakob myndi jckki vera vígður, og að
ef svo væri, þá væri giftingin ólög-
leg, sem náttúrlega kom sér nú vel
fyrir jiafn fáfróðan mann og eg er
að fá að vita.
Ritstjórinn segir í endir greinar-
innar: — “og eg hefi aldrei, mér vit-
andi, . sagt neitt niðrandi í hans
garð”. Er þá herra ritstjórinh svo
minnislaus, að hann hafi verið bú-
inn að gleyma því, sem hann talaði
við mig inni á skrifstofu sinni? Eða
er hann viljandi og visvitandi, að
reyna að gjöra mig að ósanninda-
manni? Ef svo er, þá er það í fyrsta
sinni á æfinni, að það hefir verið
reynt við mig, og eg vona honum
verði það að góðu.
En svo eg víkji aftur að efninu í
enda greinar hans, þá er það ekki
niðrandi samkvæmt “moral” rit-
stjórans, þó hann segi um einhvern,
að hartn gjöri verk, sem landslögin
fyrirbjóða. — Það er annars ‘‘alt á
sömu bókina lært” hjá ritstjóranum.
Til dæmis segir hann i grein sinni:
“Að Mountain”: “Norður-Dakota er
vínsöluríki, sem menn vita”. Hér er
eitt meira sýnishorn af sannleika
þeim, sem ritstjórinn ber á borð fyr-
ir lesendur Lögbergs. Eg ætla ekki
að fara lengra út í þá grein, að öðru
en því, að:.ef það er framför, að
Goodtemplarastúkan á Mountain er
komin frá yfir 120 meðlimum árið
1913, sama árið, sem síra Kristinn
gekk i stúkuna, niður í “80—90”, —
þá er það sama framförin, sem sýn-
ist að loða við herra ritstjórann.
Greinin ritstjórans, þar sem hann
biður: “Munið eftir því að hún Rósa
— nei, nei, hún Sigurrós, er systir
hins heiinsfræga norðurheimskauts-
fara”, — sýnir að eins strákslegan
hugsunarhátt og óstjórnlega öfunds-
sýki; því í gegnum allan hringland-
ann finur hann þó til þess, að nafn
systur hins fræga norðurheim-
skautsfara niuni verða uppi löngu,
hingu eftir að hans nafn er horfið
niður í gleymsku djúp hans eigin
efnishyggju.
Ilreggviður.
Flóðið í Norwood.
Uppi í bænum var flóðið raunar
farið að minka á laugardaginn. En
áin hækkar einlægt og á laugardags-
kveldið (22. apríl) er áin svo mikil
í Emerson, að þar er farið að renra
upp i búðirnar. — En í Norwood
hefir einlægt versnað. Vér skrupp-
um suður og var Norwood partur-
inn sunnan við ána, em hólmi einn,
það er að segja miðparturinn af
Norwood, en haf alt í kringum
hæsta bletitnn. Var það 14—% mílu
á breidd víða, að oss sýndist, og þar
voru á floti hliðarstéttarnar, kollur,
kyrnur, kamrar og viður. A sumum
strætunum voru gufubátar, en alt í
kringum bátana voru kamrarnir og
smáhýsi og hliðarstéttirnar á sveimi
og gott ef ekki voru sporðaköst katt-
fiska og pæka í kringum kamrana;
þeim hefir fundist eitthvað matar-
legt þar. Á sumum stöðum höfðu
verið settar nýjar gangtraðir á háa
stólpa; en áður voru bátar hafðir á
helztu strætum til að ferja fólkið.
Úr heilum röðum húsanna hafði fólk
ið flutt; enda spýttist vatnið út úr
kjallaragluggunum. Það vátn kom
mest úr ræsunum og var óhreint, en
víða var vatnið komið upp á hurðir
og glugga. Og enn þá má búast við
að þetta aukist, því að flóðið að
sunoan á eftir að koma hingað
norður. Er þarna mikill munur frá
því, sem áður var, því að Norwood
var einhver fegursti partur bæjarins.
— Sagt var á laugardaginn, að vatfi-
ið væri komið i sjálfa bæjarhöllina;
það spýttist upp um lokræsin i
kjallaranum og var ilt við að gjöra,
ef ekki ómögulegt. Þetta ollir alt
feykilegu tjóni.
Á mánuöagiíin var flóðið enn að
hælýka, hafði hækkað um % fet eða
meira á sunnudaginn í Norwood, og
hélt áfram að hækka mánudagsnótt-
ina, bæði hér í Winnipeg og suður-
frá kringum Einerson. En það vatn
á alt eftir að koma hingað. Eru því
lítil líkindi til, að flóðið renni af
hér næstu daga.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safnað-
arins heldur samkomu í kyrkjunni á
fimtudagskveldið 27. apríl (næsta
fimtudagskveld), kl. 8 e. h. Ágætur
söngur og hljóðifærasláttur og veit-
ingar á eftir. Dr. Guðmundur Finn-
bogason. doktor i heimspeki, verður
á samkomunni, ávarpar fólkið og
flytur kveðju frá gainla landinu.
Kafli úr bréfi
Glenboro, Man., 15. apr. 1916
“----------Eg þakka þér, ritstjóri
góður, sérstaklega fyrir Heims-
kringlu, sem mér likar ágætlega und-
ir þinni stjórn. Sérstaklega átt þú
þakkir skyldar fyrir alt, sem þú hef-
ir um stríðið skrifað. Þú stendur
þar sannarlega á réttri sjónarhæð.
Striðsfréttirnar eru svo greinilegar
og sannar og vel sagðar, að það ætti
að afla blaðinu mikilla vinsælda;
og svo allar-ifræðandi ritgjörðirnar
viðvíkjandi stríðinu; að eg ekki
nefni mannúðina, sem skín út úr
hverri línu. Sambandsmenn ættu
sannarlega að hafá örugt fylgi hvers
einstaklings, ékki einungis í hinu
brezka ríki, heldur hvar sem er í
heiminum, þvi heiminum öllum
stendur ógn og voði af því, ef hinn
þýzki “Kultur” yrði sigursæll', og
þú sannarlega gjörir þinn skerf til
þess, að brýna sannleikann fyrir
fólkinu----------”
G. J. Oleson.
LAND TIL SÖLU
eða í skiftum fyrir kvikfénað, norð-
vestur fjórðungur af Sec. 32, Twp.
19, R. 3 West; gott land nálægt Lun-
dar, Man.. Hús, fjós og góður brunn-
ur. Verð mjög sanngjarnt.—Suite 1,
Sterling Bank Bldg., Winnipeg, Man.
/Þ b I i ufyri rl eslitr
verður haldinn í 804*4 Sargent Ave.
(milli Arlington og Alverstone St.)
fimtudaginn 27. apríl, kl. 8 síðdegis.
Efni: Tvö lögmálin. Hver er mun-
urimn á þessum tveimur lögmálum?
— Sunudaginn 30. apríl, kl. 4 e. h.
verður umræðuefnið: Hvað var það,
sem Krist negldi á krossinn? Var
það siðferðislögmálið?— Inngangur
ókeypis. Allir velkomnir.
Davíð Guðbrandsson.
Til Sölu
ágætt hús i vesturbænum. Framstofa,
borðstofa, eldhús ogskrifstofa niðri,
— 4 svefnherbergi, sumarherbergi
og baðrúm uppi. Efni og smíði alt
vandað (hard wood og lincrust fin-
ishing niðri; bezta finishing og bvr-
lap uppi). Allir söluskilmálar eins
sanngjarnir og hugsast getur. Hkr.
vísar á.
Til leigu.
gott land (% section) 2 mílur norð-
ur af Winnipeg Beach, hálfa mílu
frá vatni. Landið er inngirt, gott
hús á því, og nógur heyskapur og
viður. Ágætt fyrir familíu sem vildi
byrja búskap og reisa nokkra gripi.
Snúið ykkur til
G. J. Goodmundson,
696 Simcoe St., Winnipeg
Til íslenzkra hermanna í Winnipeg
Fyrsti lúterski söfnuður í Winnipeg býður ölium íslenzk-
um hermönnum, sem heima eiga eða staddir verða í Winnipeg
næsta sunnudag, 30. apríl, til guðsþjónustu í kyrkju safnað-
arins, á horninu á Sherbrooke Stroet og Bannatyne Avenue, kl.
11 f. h. Guðsþjónustan verður með sérstöku tilliti til her-
inannánna, og verður reynt að gjöra l>eiin stundina som á-
nægjuegasta.
Fyrir hönd safnaðarina
B. J. BRANDSON,
forseti.