Heimskringla - 02.11.1916, Síða 1

Heimskringla - 02.11.1916, Síða 1
íoilmiti Blk ’aul Av Royal Optical Co. Elztn Opticians i Winnipeg. ViO hófum reynst vinum þinum vel, — gefðu okkur tækifæri til að reyn- ast þér vel. Slofnsett 1905. W. R. Foivler, Opt. XXXI. ÁR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTLIDAGINN 2. NÖVEMBER 1916 NR. 6 60 ára afmœli B. L. BALDWINSONAR. Á fimtudagskveldið hinn 26. okt- éber var sainkoma haldin í húsi hr. Árna Kggertssonar á Vietor St hér í borg til iieiðurs Mr. B. L. Baldwins- syni, aðstoðarfylkisritara, sem var fæddur þenna dag úti á fslandi fyr- ir 60 árum. Hjá Árna Eggertssyni eru húsa- kynni stór og vel búin: en svo komu þar gestir margir, að allir salir voru fullir, og voru Jiar sainan komnir menn af öllum pólitiskum skoðun- um og öllum trúbragðaflokkum ís- lendinga hér; og var ekki annað að en að allir gætu komið sér sam- an og heilsað og mætt hver öðrum, sem kunningjum sómir. Þarna var tækifæri að sýna inanninum sóma, sem allir fslendingar verða að játa, að hafi verið einhver ötulasti, ein- ^eittasti ag heilladrýgsti maður fyr- ú' íslendinga í þessu hipu nýja föð- urlandi þeirra Canada. Vér vitum ekki gjörla, hve margir v°ru þarna samankomnir, en ætlum að það hafi verið nær 100 manns, karia og kvenna, og fór samkoman Drýðilega fram. Þegar flestalt fó'nrio' var komið, undir kl. 9 um kveldið, iyrjaði samkoman og söfnuðust menn saman í framsal hússins niðri. , Árni Eggertsson stýrði sam- koinunni; sátu menn í hvirfing með veggjum og voru tvær og þrjár stóla- raðir sumstaðar. — Mr. Eggertsson jýsti tilgangi samkomunnai’, að ueiðra gestinn Mr. B. L. Baldwins- »°n og starfa hans hér. Mr. Bíld- íell flutti all-langa ræðu og mæltist vel, og í ræðulok var borinn fram skrautgripur forkunnar vandaður, seni Mr. Bíldfell, í nafni gestanna,- að Mr. Baldwinson að þiggja, sem vott þess, að þeir kynnu að meta at- í>|ku lians og störf í þarfir almenn- in&s, og sóma þann, sem íslendingar u ir hefðu hlotið af framkomu hans ei í landi. Gripurinn var raflampi •" >r úr bronzi með 1 ljósum og lýsti hvert þeirra sem 60 kerti eða allur lampinn sem 240 kerti. Á milli ræðulialdanna fóru fram songvar íslenzkir og söng Mr. Gísli Jónsson stundum einn, en stundum sungu flestir gestirnir með. Kvæði voru einnig flutt Baldvini og flutti hið fyrra Mr. Þorsteinn I>. Þorsteins **on skáld og afhenti svo heiðuts- Sestinum kvæðið skrautritað eftir sjálfan sig. Annað kvæði flutti hon- um og Mr. Magnús Markússon. Og eru bæði kvæðin hér í blaðinu. Auk Mr. Bfldfells töluðu þar: Sr. Eriðrik J. Bergmann, sr. Björn B. Jónsson, sr. Rúnólfur Marteinsson, Mr. Árni Eggertsson, Hr. Páll Reyk- dal, Mr. B. L. Baldwinson (flutti ræðu, að þakka gestum vinahótin og gjöfina og skýra starf sitt; ræðan er prentuð hér í blaðinu); Sig. Júl. Jóhannesson, ritstj. Lögb. og Thom- as Jolinson, ráðgjafi opinb. verka. Ritstj. Heimskringlu sagði að eins fáein orð. — Allar þóttu oss ræðurn- ar vandaðar mjög og efnisríkar og inunum vér sjaldan eftir slíkum ræðum á samkomum þeini, sem vér höfum verið á. Og öll var samkoman hin ánægju- legasta, og er enginn efi á, að slfkar samkomur draga saman hugi Islendinga. Að loknum ræðunum fóru veit- ingar fram og voru hinar beztu. Síð- *n fóru menn að skemta sér í smá- hópum. Var klukkan eitthvað um' á miðnætti, þegar ræðunum vari lokið. Vér leggjum ekki út í að geta um ejni ræðu hverrar, þó að sumar þeirra hefðu gjarnan átt að takast niður með hraðritun. En vér tökum nér í blaðið ágrip af ræðu Mr. Bald- winsonar. j>ví vér vitum, að kunn Heimskringlu, meðan hann var rit- ■’tjóri, vilja fúslega heyra það. Og nú er kanske meira mark tekið á öllu, sem Baldwinson segir, nokkuru sinni áður. Striðs =f réttir Stríðið gengur sinn vanagang. — Þjóðirnar takast á heljartökum og eru sviftingar stórar. En flestar eru þær nokkuð langt í burtu frá oss, og hefir nú verið einna tíðræddast um viðureign liússa og Rúmena, bæði f Dobrudja, sunnan við Dónár ósa, og Maekensens bezta foringja Þjóðverja og liarðasta viðureignar. Hann hefir nú vaðið áfram um ósa- landið jiarna; tök liann Constanza og Medjida og borgina við brúar- sporðinn yfir Dóná, Tehernavoda. En áður cn hann næði borginn sprengdu Rúmenar brúna upp, svo að hann komst ekki á henni yfir ána. Er samt vafasamt, hvort Maek- ensen hefði hætt á ]iað, að fara þar yfir, því að brúin er talin 14 mílna löng og liggur yfir fen og foræffi að norðanverðu og. hefði því verið voðasiiil, að leggja út á hana mcð her manns til beggja lianda og íall- byssugarða alla vega til að skjóta hermennina niður af brúnni. Og nú sitja þá Rúmenar og Rússar brúar- lausir austan við ána, en Macken- sen sækir á að sunnan með víg- trylda Tyrki og Búlgara og Þjóð- verja. — Rúmenar hafa haldið enn lengra norður eftir ósalandinu, um 30 mílur norður af Tchernavoda að vestan á austurbökkuin Dónár, til borgar þeirrar, sem Hirsova heirir, en milli 50 og 60 mílur norður af Constanza við .Svartahafið til borg- ar þeirrar, sem Casopkeui heitir. — Þarna liafa þeir einar 20 herdeildir (divisions) til að standa á móti Mackensen, og er það nokkur flokk- ur, þegar 20 þúsundir eru f lierdeild hverri, eða 400,000 alls. (Division er eina orðið, sem liefði átt að þýðast með orðinu herdeild). — Síðan þeir komu þarna norður, hefir linast sóknin hjá Mackensen. Þarna hefi’- Mackensen verið að sækja fram, — ekki til að brjótast yfir Dóná til að vaða á eftir yfir alla Rúmenfu, h .'d- ur til þess að varna Rússum að taka þessar stöðvar, því að þaðan stend- ur Tyrkjum og Búlgörum mestur óttinn. Hefði hann lireinsað alt land ]>arna og getað trygt þessar stöðvar, þá var tíminn til að fara yfir ána og líklega á fleiri stöðum f einu. En það er nú oi^ðið ljóst, að Rúm- enar hafa verið illa viðbúnir á öll- um stöðum. Þeir höfðu hermenn reyndar, kanske fram undir milíón, og voru taldir ágætir hermenn. En þeir hafa ekki kunnað til herskap- ar þess, sem nú gildir. 1 viðureign- inni við Austurríkismcnn höfðu þeir byssur ailar velTTjWo að Aust- urrfkismenn skutu þá niður hrönn- um saman, en fallbyssur Rúmena drógu ekkj til þeirra. Þeir höfðu ekki gaddavírsspotta til að girða framan við skotgrafir sínar. Herfor- ingjar þeirra voru óvanir og ókunn- ugir álilaupum ]>eiin og skothríð- um, sem nú eru tfðar á öllum víg- völlunum. Þetta þektu þefr ekki og þurftu alt að læra, og var því ekki við öðru að búast, en að þeir fengju skelli svona f byrjun, og þá harða, og er furða, að ekki skuli hafa verr farið. En hugrakkir eru þeir og hraustlega berjast þeir að sögn og hirða ekki um, þó að þeir þurfi að snýta rauðu. j Og albúlið, að þeir eigi eftir að vinna sinn skerf að nið- urlagi Þjóðverja. Norðantil við Rúmeníu hefir Rúm enum gengið betur. Þeir urðu reynd ar að hörfa upp í fjöllin undan Þýzkum og láta laust mestalt land, sem þeir höfðu tekið í Transsylvan- íu. En þegar upp í fjöllin kom og skörðin, tóku þeir duglega á móti, enda fengu þeir þar hjálp frá Rúss- um, sem komu um Dorna Watra ingjar hans og allir kaupendur skörðin úr Búkóvfnu. Þar réðust en LUNDÚNABORG MA VARA SIG! Zeppelin gainli ætlar að fara að foggja Lundúnaborg í rústir með því aö senda 50— sumir segja 80 — nafna sína fljúgandi til að steypa yfir; þessa stórborg heimsins eldi og brennisteini. Þetta á að verða 1 ein- um flota, og hefir hvert Zeppelin- skip vcrið bygt í þessu augnamiði. — Það er mjög ótrúlegt, að þefr geti komið þessu til leiðar, en færi svo, þá yrði fyrst heitt á vígvöllun um næstu mánuðina á eftir. Þýzkir á Rússa við Kirlibaba um daginn, en Rússar tóku svo á móti, að þeir eyðilögðu 20 battalions af Þjóðverjum og Austurríkismönnum. Þetta var 21. október og fréttist ó glögt f fyrstu. Er sagt að varla liafi maður staðið uppi af öllum hcr Þjóðverja og Austurrfkismanna, er þarna sótti fram. En nú seinni dagana hafa Rússar hrundið aftur þjóðverjum úr öllum fjöllunum og skörðunum frá Dorna Watra við Búkóvína og suður und- ir krókinn, þar sem fjallgarðurinn hinn mikli beygist vestur, og jafn vel fyrir krókinn alt þangað til kemur suðvestur af Kronstadt eða Brasso. Þar brutust Þjóðverjar f gegn fyrir nærri hálfum mánuði síð- an, þó að Rúmenar gætu stöðvað þá 6 mílur fyrir sunnan landamærin við Rucasu. — En nú segja fregnir, að Þjóðverjar séu koinnir þar dálft- ið lengra, til Kimpalung, þar sem járnbrautin frá Bucharest endar. En ekki liafa þeir tekið bæjinn, þeg- ar þetta er skrifað (á laugardag). Á öðrum stöðum vitum vér ekki til, að Þjóðverjar hafi komist inn fyrir landamæri þeirra, og vestast, suður við Dóná hjá Orsova, hafa Rúmenar aldrei látið neitt undan. Enda er ]>ar aðalhliðið inn í Rúmeníu. — Rússar berjast einlægt af kappi þó að grunur væri farinn að koma upp, að þeir væru að verða fátækir af skotfærum. En nú heyrast fregnir um, að þeir muni bráðlega byrja nýja kviðu, og liana ósvikna, á Pól- landi. — Á Frakklandi gengur það hægt en æfinlega slysalaust fyrir Banda- menn. Og nýlega gjörðu Frakkar Þjóðverjum l»ann grikk við Verd- ún, að þeir risu upp úr gröfum sín- um og réðust á Þjóðverja. Þjóðverj- a'r voru þar miklu fleiri en Frakkar, 3 eða 4 um einn Frakka, og uggðu ekki að sér. Frakkar hlupu alt í einu fram á hálfrar fimtu mflu svæði austur af Verdun og norð- austur aðalloga frá Douaumont að norðan og til kastalans Vaugh þar suður af, og svo bæði norðvestan við Douaumont og sunnan við Vaugh. Þarna voru Þjóðverjar að berjast og hamast í eina 3 mánuði, þegar þeir tóku svæði þetta, og létut á annað hundrað þúsund manna. En nú komu Frakkar með hraða miklum og tóku allar grafir Þjóð- verja og hröktu þá um 2 piílur all- staðar; nema þeir tóku ekki sjálft Vaugh vígið, en fóru fram með því bæði að sunnan og norðan, svo að það var umkringt á þrjá vegu. — Þarna tóku Frakkar 5,000 fanga og vcl það og mjög mikið af hergögn- um; en af mönnum Frakka voru ekki 5,000 fallnir og særðir, og fjöld- inn af þeim höfðu að eins smáskein- ur. Ekki er læss getið, livað fallið hafi af Þýzkum, en töluvert mun liað hafa verið. — Fjögur áhlaup gjörðu Þjóðverjar til þess að im stöðvum liessum aftur; en Frakkar hrundu lieim léttilega af sér. Á föstudagsnóttina færðu Frakk- ar sig ennþá nær virkinu Vaugh, sem að framan er getið og tóku 100 fanga, og segja allir, að virki þetta hljóti að falla í hendur þeirra mjög bráðlega. öll þessi hin fyrri áhlaup Frakka tóku þó ekki nema 3 kl.- tíma. En þegar Þjóðverjar hröktu l>á þaðan, tók það á þriðja mánuð. — Við Somme hafa Bretar ögn sig- ið áfram, cn kyrt og rólegt má þar nú heita við það sem áður var. Árás á Dofrasund. Þjóðverjar gjörðu árás mikla á Dofrasund hétt fyrir helgina, og ætluðu nú að sópa það með lang- skipum sínum (destroyers). En Bretar voru vakandi, mættu þeim og skutu í kaf tvo þeirra og hrukku Þjóðverjar undan. Þjóðverjar gátu þó sökt einu flutningsskipi brezku cr var tómt og brutu einn ‘destroy- er’ fyrir Bretum, svo að hann varð að hleypa á sand upp. Annan ‘de- stroyer’ Breta vantaði og vissu þeir ógjörla livað um hann varð fyrst eftir slaginn. Skýrsla um fangna. Núna kom skýrsla um fanga l>jóð- verska, sem Bretar hafa tekið, og brezka fanga, sem Þjóðverjar hafa tckið. Bretar hafa tekiö af Þýzkum: Herforingja............ 729 Hennenn..............36,165 Sjóforingja ........... 150 Sjóhermenn .......... 1,976 Alls ................ 39,020 Þýzkir hafa tekið af Bretum: Herforingja ............ 923 Hermenn...............28,770 Sjóforingja ............. 47 Sjóhermenn ............. 361 Alls .................. 30,101 Allur ])otri ensku fanganna var tekinn snemma í stríðinu. Vér bú- umst við, að margir hafi ætlað tölu hertekinna Breta ipikið hærri. En þetta er hún nú. Tókst ekki — því miÖur. Flugmaður nærri búinn að drepa Vilhjálm keisara. Frá París kemur sú fregn hinn 28. október, að flugmaður einn hafi hleypt siirengikúlu niður á lest eina sem Vilhjálmur keisari var á, og braut lestina en iianaði vélastjóran- um. En þvf miður hitti hann ekki nógu aftarlega. StríðiS stendur í tvö ár enn. Margir eru þeirrar trúar, að stríð- ið standi yfir i 2 ár ennþá, og segjast liafa það eftir merkum herforingjuin Breta, Frakka og Rússa, og jafnvel eftir Joffre sjálfum, sem er aðalfor- inginn á vestur-vígvöllunum. — Eitta f brögðum Joffre’s er það, að lengja víggarðalínuna Þjóðverja eins og mögulegt er, og þess vegna eru þeir á Frakklandi farnir að höggva hlið og geilar á garðinn. Þá lengist línan við hverja þessa geil, og af því að Þjóðverjar eru farnir að verða mannfáir, l>á kemur þeim liað illa. Ástæðan fyrir hinni löngu setu í Salonichi. Mai'gir hafa verið að furða sig á því, hvað herinn mikli væri að gjöra þarna í Saloniclii, að sitja þar aðgjörðalaus allan þenna tíma. — Menn hafa kent Grikkjum um það, og má vera, að þeir hafi átt nokk- urn þátt í því, og ótrúlegir hafa ’ eir verið og enginn hefir treyst þeim, livorki konungi eða Grikkjum sjálf- um. En nú kemur önnur ástæða í ljós og sýnir hún meðal annars, hvao oft menn dæma í blindni um liluti þá, sem þeir ekki þekkja eða mál, sem þeir bera kki skynbragð á. Salonichie er sjóborg, og hvenær sem þessi hinn mikli her fer þaðan á stað, hlýtur hann að þurfa feikn- in öll af skotfærum, fallbyssum, matvælum og herbúnaði af öllu tagi. Þetta verður að senda honum á járnbrautunum frá Salonichi. Því hann getur iivergi fengið það ann- arsstaðar að, og alt verður ])að að flytjast sjóveg til Salonichi. En nú var Salonichi tiltölulega lítil borg til þess að gjöra, og engin tök á, að afferma þar mikinn flutning. Þess vegna hafa Bandamenn nú í marga mánuði verið að smíða þar bryggj- ur og geyinsluhús fyrir vörur og fengið hina beztu bryggjusmiði og ; 'lamenn frá Bretlandi og Frakk- iandi og hafa þeir stöðugt haft ]>ús- undir verkamanna til að vinna að þessu, svo að það verður nú ein- hver liinn fullkomnasti affermingar- staður f heimi, með öllum þeiin út- búnaði, sem beztur er til þeirra starfa. — Áður en þetta var full- komið orðið, var sjáanlegt óráð og vitlítið fyrirtæki að fara á stað það- an; því að mikils mun við þurfa, og verra að snúa aftur, þegar farið er. En eftir öllu útliti nú, verður lítil hætta á því. SEINUSTU STRÍÐSFRÉTTIR. Þjóðverjar sökkva flutningsskip- inu Marina við Irlandsstrandir með 104 mönnum á, og þar af voru 50 borgarar Bandaríkjanna; en 34 af mönnunum, er á skipinu voru, er sagt að hafi verið bjargað. — (Þjóð- verjar gjöra Wilson forseta Banda- ríkjanna þar ljótan grikk svona rétt fyrir kosningarnar. Hann má setjast niður og skrifa þeim gott bréf núna!). — Níu norskum kaupförum söktu Þjóðverjar á einum degi. — Sagt er, að Þjóðverja-vinir f Rúmeníu liafi nýlega verið nærri búnir að bana drotningu Rúmena. Hún er dóttir hertogans af Edin- burg. — Bremen og Deutschland, kaf- bátarnir þýzku, á botni sjávar, cða bundin við bryggjur Breta. Frá borginni Genf á Svissara- landi koma fregnir um skip þessi hinn 30. okt. og eru hafðar eftir þýzku blaði, National Zeitung, og eru þessar: Bæði skipin Bremen og Deutsch- land eru annaðhvort sokkin eða tekin af Bretum. Bremen komst ald- rei til Bandaríkjanna, og kom aldrei heim aftur til Þýzkalands. En liegar skipið Deutschland lagði út í ann- að sinn, þá kallaðist það Wesar, og var það í scptembermánuði. En eng- inn hefir orðið var við það ennþá. Ncðansjávarbáturinn U-5 3var send- ur til Ameríku til þess að leita að skipunum, ef hægt væri að komast eftir, hvað af þeim liefði orðið. U-53 var kafbáturinn, sem sökti kaupför- unurn 5 við strendur Bandaríkj- anna nýlega. En hann er horfinn líka, og mun l>að satt vera, sem sagt var fyrir skömmu, að ein af varð- snekkjum Breta við Canada strend- ur liefði farið að leita að vfking þessum og fundið liann og sökt hon um með öllu, sem á honum var. ]>vert ofan í fregn þessa segja blöö- in f morgun (1. nóv.), að eitthvert kafskip með nafninu ‘Deutscliland’j liafi komið til New London í Banda- ríkjunum 1. nóv., og var kapteinn lvoenig á því. Líkur eru til, að það sé sama skipið og kom áður fyrri. Hann er í 4th Platoon A Co. 196th Battalion “University of Manitoba”. Er fæddur 17. ágúst 1893, sonur Sig- urðar Oddleifssonar og fyrri konu hans, Margr Gísladóttur frá Hún- stöðum í FKi,.aþingi. Kom frá Is- iandi 25. jvilí 1902, þá 9 ára gamall. Byrjaði sama ár hér á barnaskóla og fór í gegnum hann á 6 vetrum; það- an á Collegiate og var þar í 3 vefcur; En það hafi verið annað skip með nafninu ‘Deutschiand, sem íregin frá Svissaralandi talar um. þaðan á University of Manitoba og skrifaðist út ])ai>an með 3. árs prófi vorið 1916 f “Engineering", átti eftir að vera þar 2 vetur til fullnaðar- náms í þeiri;i grein. — Hinn 2. febr- úar 1916 innritaðist liann í Univer- sity Battalion og hefir t'yrsta nútiier (No. 91000D f þeirri herdeild. Fór héðan með herdcildinni til Eng- lands þann 27. okt. 1916. V erzlunarskóla - nám FYRIR AÐ ÚTVEGA NÝJA KAUPENDUR AÐ Heimskringlu 1 Heitnskringia hcfir keypt SCHOLARSHIPS á einum hin- um bezta verzlunarskóla borgarinnar, og gefur ])au sem prísa fyrir það að eins, að útvega blaðinu nýja kaupendur. SKILMÁLAR ERU ÞESSIR: Prísarnir eru þrír (3), nefnilega: 1. prís—4. mánaða kensla, virði ............. $50.00 2. prís—2. mánaða kensla, virði ............. 28.00 3. prfs—1 mánaðar kensla, virði ............. 14.00 (Einnig má nota kveldskólann ef þægiiegra er). Sá, sem útvegar flesta kaupendur, fær fyrsta prfs, og svo annan og þriðja þeir, sem næstir eru. Peningar verða að fylgja hverri áskrift, og vera sendir oss affallalaust (t. d. í P.O. eða Express Money Order). Þetta tilboð stendur til 23 desember, og geta þeir, sem prfsana vinna, byrjað nám sitt, hvenær sem er eftir þann tíma Upplýsingar fást á skrifstofunni um, hvað marga kaup- • endur — fæst — þarf að fá til þessað vinna prísana. Sé því marki ekki náð, þ^ verða borgaðar vanalegar prósentur f peningum í stað ‘Scholarships’ þeim, sem þátt taka. Allar frekari upplýsingar fúslega gefnar á skrifstofunni — skrifið eða finnið oss sem fyrst. Fálð vini og kunningja yðar til þess, að gjörast áskrifenciur Heimskringlu og vinn- ið þannig fyrir BUSINESS COURSE. THE VIKING PRESS, LTD. pr. S. D. B. Steþhenson, Mgr. P.O. Box 3171. 729 Sherbrooke St., Winnipeg Farinn áleiðis til Englands. SERGEANT AUGUST G. ODDLEIFSSON. I

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.