Heimskringla - 19.04.1917, Síða 4

Heimskringla - 19.04.1917, Síða 4
4. BL8. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 19. APRÍL 1917 WINNIPEG, MANITOBA, 19. APRIL, 1917 Samhugur og samvinna Stríðið hefir opnað augu þjóðanna fyrir mörgu því, sem þær sáu ekki áður. Það hef- ir heimfært mönnum margan þann sannleik, sem þeim áður var meira og minna hulinn. En ekkert hefir stríðið gert ljósara í hugum manna en það, hve nauðsynleg og þýðingar- mikil samvinnan er—samvinna einstakling- anna, samvinna þjóðanna. Flestar stríðsþjóðirnar voru líka fljótar að gera sér grein fyrir þessu. Sumar þeirra áttu þó við meíri örðugleika að stríða í þessu tilliti en aðrar. Hjá Þjóðverjum, t. d. var samvinnan sjálfsögð,—herskyldulögin gerðu það að verkum. Englendingar, með enga herskyldu í byrjun stríðsins, áttu hér við örðugri afstöðu að búa. En þessir örðug- Ieikar reyndust þó í raun og veru fyrsta vakning þjóðarinnar. Þannig var samhug- ur hennar vakinn og hennar ötulu starfs- kraftar. Hinir miklu örðugleikar höfðu þær afleiðingar í för með sér, að samvmna var hafin í landinu í afar-stórum stýl. — And- stæðir stjórnmálaflokkar fylktu sér undir sama merki. Flokksfylgi einstaklinganna féll niður, samhugur og samvinna kom í stað- inn. Þegar saga þessara tíma verður skrifuð, verður ekkert undrunarverðara til frásagn- ar en hið stórkostlega þrekvirki, sem þjóðin á Englandi afkastaði með þessari óviðjafn- anlegu samvmnu sinni.—Einstaklingar þess- arar stórþjóðar, sem yfirleitt eru þó svo sjálfstæðir að eðlisfari og þess vegna svo gjarnt til að vilja halda sinn í hverja átt- ina, vinna nú í aðdáanlegri sameiningu að sameiginlegum velferðarmálum þjóðarinn- ar. Fleiri miljónir manna bjóða sig sjálf- viljuglega í herþjónustu, leggja sjálfviljugir líf sitt í hættu í þarfir lands og þjóðar. Ein- staklingar annara þjóða eru knúðir fram með herskyldunni—Englendingar, í saman- burði við annað eins, eru vafnir geisladýrð lýðfrelsisins. En ekki má þó segja það, að allir hafi fylgst með í þessari baráttu þjóðarinnar á Englandi. Liðleskjur (slackers) þjóðar- innar drógu sig í hlé eins og vænta mátti, þegar reyndi á sanna karlmensku og dug og dáð. Eins og til þess að afsaka þetta at- ferli sitt, tóku þessir menn svo að átelja stjórnina og fylgismenn hennar. Sérvitring- ar og ofvitar gátu heldur ekki fylgst með rás straumsins,-—þeim var slíkt með öllu ó- mögulegt. Þeim var of dimt fyrir augum til þess. Enda koma slíkir menn sjaldan tii mikilla nota í mannfélaginu. Oft og einatt eru þeir góðum hæfileikum gæddir — en þeir eru eins og blindir fyrir öllu nema sjálfum sér, og nota því ekki þessa hæfi- Jeika sína. Þeir eru eins og stór tré, sem skrælnað hafa við hita sólarinnar, og bera því ekki ávöxt lengur. Og það var sökum slíkra manna og annara, sem af einhverjum orsökum ekki vildu leggja fram krafta sína í þarfir lands og þjóðar, að Englendingar neyddust til þess að grípa til herskyldu. En þetta kastar ekki skugga á mennina, sem á undan fóru. Þeir menn hafa ritað nöfn sín gullnum stöfum á spjöld sögunnar. Enginn skuggi fellur heldur á samvinnu brezkrar þjóðar í stríðsþarfir,—því þótt all- margir einstaklingar skærust úr leik, voru þeir samt fáir í samanburði við heildina. Samvinna Englendinga hefir frá stríðsbyrjun verið aðdáanleg. Hún hefir afkastað því stærsta þrekvirki, sem heimurinn þekkir. Þjóðin var alveg óviðbúin svo stórum hild- arleik á landi; hennar litli landher hafði hér lítið að segja. — Nú hefir enska þjóðin um sex miljónir æfðra hermanna, eins vel búna að vopnum og vistum og hugsast get- ur. Að safna þessum ógnar her og vopna hann er tæpra þriggja ára starf þjóðarinn- ar. — Þjóðverjar voru 40 ár að undirbúa sig undir núverandi stríð. Sú samvinna, sem öðru eins getur af- kastað og átt hefir sér stað hjá Englending- um síðan stríðið byrjaði, á heiður skilið. Ekki þarf Jjósari sannana við, til að sýna hve miklu þjóðirnar geta áorkað, ef einstak- Iingar þeirra eru samhuga og vinna í samein- ingu. Samvinnan er æfinlega aðal-atriðið, ef þjóðirnar hafa eitthvert mikið og stórt starf að framkvæma. Frakkar höfðu her- skyldu í byrjun stríðsins, en þurftu þó mest á samvinnunni að halda. Flokkarígur varð allur að falla niður í landinu til þess að þjóð- in gæti notið sín. Þannig hefir því líka ver- ið varið hjá öllum öðrum þjóðum, sem þátt hafa tekið í stríðinu. Og hvað er herþjónustan annað en sam- vinna einstaklinganna í þarfir þjóðarinnar? Hvað hefir hún verið annað frá aldanna byrjun? Með því að sameina þannig krafta sína, hafa þjóðirnar rutt siðmenningunni braut um heim allan. Þegar til hersins kem- ur, er samvinnan kend eins og hver önnur lærdómsgrein. Allar heræfingar og hver önnur kensla, sem hermönnum er veitt, stuðl- ar til þess að hvetja þá til samvinnu. Þetta er í orðsins fylsta skilningi rétt nefndur sam- vinnu lærdómur.---------Það er aðdáanlegt, að sjá heilar hersveitir við heræfingar. Sjá þúsundir manna þramma áfram í fylkingum eftir sama hljóðfalli; sjá þessar þúsundir hreyfast í vissar stellingar og raðir við sömu hugsun og eina skipan, — og sjá svo allar þessar hermanna raðir hefja á loft byssurnar og skjóta, sem einn maður væri. Hugur manns hlýtur að fyllast af lotningu við þessa sjón, yfir þeirri samvinnu, sem hér er aug- Ijós, og maður gleymir þessu aldrei. Stríðin leggjast niður með tíð og tíma, á því er ekki minsti vafi. Þau verða ekki nauðsynleg, þegar þjóðirnar hafa færst nær hver annari og eru teknar að þroskast sam- hliða. En samvinnu-skipulagið, sem á bak við stríðin stendur, verður þó að lifa. Þó stríðin hætti, verður að halda áfram að kenna einstaklingunum samvinnu. Reynslan hefir sýnt með Ijósum rökum, á meðan stríð- in voru viðhöfð, á hve hátt fullkomnunar stig samvinna mannanna getur komist, ef þeim er kent að vinna saman. Sú frétt berst nú frá Bandaríkjunum, sem vottar það Ijóslega, að Bandaríkja þjóðin vill ekki verða eftirbátur annara stríðsþjóða hvað samhug og samvinnu snertir. Elihu Root, foringi republicana flokksins í Banda- ríkjunum, hefir nýlega lýst því yfir, að hann og flokkur hans muni á meðan stríðið stend- ur yfir standa örugglega með stjórn lands- ins. Enda sé þetta nú sjálfsögð skylda allra Bandaríkja borgara. Allur flokkarígur verði að falla niður, hinir ýmsu flokkar verði með- an stríðið endist að renna saman í eina heild, sem vinni af alhuga í þarfir lands og þjóðar. Wilson forseti og þingið séu nú hinir réttu stjórnendur landsins og þeim’beri að h'ýða. Engar aðfmslur í garð stjórnarinnar megi nú eiga sér stað, heldur sé skylda allra að standa með stjórninni, hvað sem á dynji. Þetta er kjarninn úr yfirlýsingu þessa Banda- ríkja leiðtoga, sem andstæður er þó núver- andi stjórn í öllum stjórnmálum, og eru þetta fögur og viðeigandi orð. - Manni dettur ósjálfrátt í hug hin fagra ræða Sir Wilfrid Lauriers, foringja Iiberal flokksins hér í Canada, er hann hélt í byrjun stríðsins. En engin ástæða er þó til að ætla, að Elihu Root efni ekki ofangreind orð sín betur. Ef til vill stendur hann mikið betur við þessa stefnu sína—en raun hefir á orðið með liberal foringjann hér í Canada. Sir Wilfrid Laurier gerði mjög svipaða yfirlýsingu í byrjun stríðsins. Hann sagði þá meðal annars: “Ef í því, sem gert hef- ir verið, eða því, sem á að gerast, er eitt- hvað, sem vér fellum oss ekki við, eða sem oss finst mætti gerast á annan hátt—, þá munum vér samt sem áður ekki gerast spur- ulir, ekki setja oss upp á móti neinu sér- stöku og ekki viðhafa neinar aðfinslur. Að- finslur við núverandi stjórn má enginn mað- ur viðhafa á meðan hættan vofir yfir liði voru á vígstöðvunum.” Þetta voru fögur orð. En hvað skeði? Það ieið ekki á löngu áður ásökunum og að- finslum frá hálfu ýmsra liberala í Canada tæki að rigna yfir alla stríðsstjórn conserva- tíva flokksins. En alt þetta stuðlaði til þess að hindra samvinnu þjóðarinnar og gera stjórninni örðugra fyrir. Enginn mátti bú- ast við því, að stríðsstjórninni canadisku yrði ekki ábótavant í neinu—og þannig hátt hafin yfir stríðsstjórnir allra annara landa. Þegar tekið er til greina, hve stórt og mikið starf stjórnin hér varð að taka sér á herðar í byrjun stríðsins, og hve litla undan gengna reynslu stjórnmálamenn þessa lands höfðu í þessum efnum, þá mun engum nema liberöl- um dyljast, að núverandi stjórn í Canada hafi staðið snildarlega vel fyrir stríðsmálum öll- um. Enda hefir Canada hlotið viðurkenn- ingu alls heimsins fyrir þátt þann, sem það hefir tekið í stríðinu. Samvinna þjóðarinnar í öllu því, sem að stríðinu lýtur, er aðal atriðið hér, engu síður en í öðrum Iöndum. Alveg eins og hjá öðrum stríðsþjóðum er nauðsynlegt, að all- ur flokkarígur hér í Canada falli niður á meðan stríðið stendur yfir. Án samhugs og samvinnu einstaklinga sinna, getur engin þjóð í stríði staðið. En það er eins og helztu leiðtogar liberala hér í landi dylji sig þessa. — Nú er verið að reyna að æsa þjóðina til kosninga með því augnamiði að steypa nú- verandi sambandsstjórn frá völdum. En kosningar nú á dögum, þegar þjóðin er stödd í ægilegu stríði og þarf á öllum sínum starfs- kröftum að halda, eru ekki glæsiiegar í aug- um neinna, sem bera hag landsins alvarlega fyrir brjósti. En það er ekki víst, að þjóðin í Canada sé eins leiðitöm og sUmir virðast halda. Það er ekki víst, að hún kæri sig um kosningar að svo stöddu. En ef kosningar verða óum- flýjanlegar, þá er heldur engin vissa fengin fyrir því, að þjóðin í Canada kæri sig um að skifta núverandi stjórn, sem mikla og víðtæka reynslu hefir hlotið í stríðsmálum, fyrir stjórn, sem enga reynlsu hefir í þessum sök- um. Þó núverandi stríðsstjórn hafi í sumu verið ábóta vant, þá er þetta engin sönnun þess, að Laurier stjórnin hefði verið neitt betri, eða eins góð. Að kosninga barátta væri nú hafin, væri að sundra starfskröftum þjóðarinnar og hindra samvinnu hennar í stríðs þarfir. Ö- heillavænlegra spor en þetta gæti þjóðin ekki stigið. I sambandi við þetta ofanritaða dettur oss eitt atriði í hug, sem sérstaklega snertir oss Vestur-íslendinga. Það hefi^ mikið verið ritað og rætt um viðhald íslenzks þjóðernis í Vesturheimi. Enda er hverjum góðum íslendingi þetta mikið áhugamál. — Einlæg ósk allra sannra Islendinga er sú, að íslenzk þjóð og íslenzk tunga geti lifað hér sem lengst. Reynslan hefir sýnt, að við getum verið góðir borgarar þessa lands og engu síður góðir Islendingar. Islenzku hermennirnir hafa sýnt þetta manna bezt. Þeir af þjóð- stofni vorum, sem lengst hafa komist hér í landi, eru líka flestir góðir Islendingar. Fundur var haldinn hér í Winnipeg í vet- ur til þess að ræða þjóðerms málið og með því markmiði, að reyna að hrinda einhverju í framkvæmd í þessa átt. Ymsir málsmet- andi íslendingar tóku til máls á fundi þess- um og létu í ljós skoðanir sínar. Öllum kom ræðumönnum saman um það, að það helzta, sem stæði í veginum fyrir sameiginlegri þjóðernis baráttu Vestur-Islendinga, væru —flokkarnir. Vestur-Islendingar, þó fáir séu, eru skiftir í ótal marga flokka, og þessir flokk- ar eiga bágt með að vinna saman—jafnvel þó um sameiginlegt velferðarmál þjóðarinn- ar sé að ræða. En geta nú ekki Vestur-íslendingar fært sér í nyt þann lærdóm, sem stríðið hefir haft í för með sér? Ef Bandaþjóðirnar hefðu í byrjun stríðsins lagt árar í bát sökum þess, að einstaklingar þeirra væru skiftir í ótal flokka, þá væri nú illa á komið fyrir þeim. En þeim kom ekki slíkt til hugar; þær létu allan flokkaríg falla niður og settu á stofn öfluga samvinnu—og færðust þannig á sitt hæsta fullkomnunarstig sem stríðandi þjóðir. Þetta sama geta Vestur-Islendingar gert, ef viljinn er nógu sterkur. Og með samhug og samvinnu geta þeir þá reist íslenzkum listum og bókmentum þann minnisvarða hér í landi, sem standi um ald- ur og æfi. -------o-------- Við austurgluggann Eftir séra F. J. Bergmann. 3. Tvö söguleg skjöl öllum kemur víst sainan um, að skjölin, sem fram koma í sambandi við þetta stríð frá Jeiðtogum bjóðanna, verði skoðuð söguleg Skilriki í fyrstu röð um margar aldir ókomn- ar, þegar að saga þeirra viðburða, «em nú eni að gerast í heiminum, verður rituð upp aftur og aftur og um, hana hugsað af vitrum mönn- um grandgæifilega. Eg hefi fyrir framan mig safn af slíkum akjölum og liefi verið að blaða í. Eitt aí því fyrsta, er eg staðnæmdist við, var bréf frá keisaranum þýzka, ritað Bethmann-Hollweg, kanziara, 31. okt. 1916, í þann mund, að Þjóð- verjar voru að hrinda af stað friðarhreyfitngu sinni eða friðartilboði. Það mun fleirum þykja gaman að því en mér, og þess vegna set eg ]>að hér. “Kæri von Bethrnann-Hollwog! “Eg hefi alvai'lega verið að hugsa um síð- asta viðtal okkar. Það liggur i augum uppi, að óvinaþjóðirnar liafa fengið snert af hern- aðar-brjálsemi, sem magnast hefir af lygum og prettum, enda eiga þær enga hæfa né þrótt- mikla menn til að tala og frelsa heiminn. “Að koma fram með friðartilboð er athöfn, sem nauðsynleg er til að frelsa heiminn frá' þassari martröð, hlutlausu þjóðirnar iíka. Til að framkvæma slíka athöfn ]>arf þjóðhöfð- ingja, sem hefir samvizku, og finnur til á- byrgðar gagnvart guði, og tekúr sárt til eigin þjóðar sinnar og óvinaiþjóðanna. Það þarf á ]>.jóðhöfðingja að halda, sem er þruinginn af löngun til að frelsa heiminn frá hai'mkvælulnum, án þess að taka sér nærri þær röngu skýringar, sem fram kunna að koma í sambandi við þessa atliöfn hans. Eg hefi hugrekki til að gera þetta. Eg ætla að eiga það á hættunni í trausti til guðs. Gerið svo vel að gefa mér bráðlega ávarp og undirbúa alt. “Vilhelm.” Fróðlegt væri að vita, hvcrnig sagnaritarar ókominna alda dæma um þann manin', er svo lnigsar og talar um sjálfan sig, eftir alt, sem undan er gengið, Slíkt sjálfsálit og sifk feikna hræsni ganga vit- fírringu næst. Saman við þetta mætti bera síð- asta iskjalið, sem fram ihefir komið f sambandi við stríðið, — ávarp Wilsons forseta til þingsins. Þar heyrum vér .ainnan þjóðhöfðingja tala til þjóðar sinnar um -afar- örlagaþrungið spor, sem honum finst henni óhjákvæmilegt að stfga. Af öllum 'hinum stórmerku skjöl- um, sem fram hafa komið enn í sambandi við þetta stríð, er þetta ávarp forseta Bandaríkjanna það langmerkasta. Eg fæ ekki aninað skilið, en að það lifi í sögunni sem einhver hin viturlegustu og snjöll- ustu orð, sem töluð hat'a verið. Rúmið leyfir mér ek'ki að benda á nema eitt eða tvö atriði. Fyrst og fremst tekur hann það fram, svo afar Ijóst sem aldrei liafði áður verið skilið til fulls, að styrj- öid þessi er tafl upp á lff og dauða inilli einvalds og lýðvalds. Hugs- an hans er þar miklu skýrari og gleggri en hún var í vetur í svari sainbamdBþjóðanna gegn friðar- framboði Miðveldanna. En þess er að gæta, að Rússland er rétt búið að reka einveldið f ægilegustu mynd af höndum sér, þegar er Wifson forseti talar. Sá viðburður er eins og blys, er bregð- ur upp skyndiljósi yfir hin dular- fullu umbrot í sálum þjóðanna. Þar næst tekur hann fram anm- að f sambandi við einvaldið, sér- staklega keisarastjórnina þýzku, sem að líkindum verður henni og öllum einvalds hugmyndum í ókom- inni tíð að banaineini. Það er svikamylnain, sem sendiherra liðið þýzka hefir »ett upp hvarvetna sem unt hefir verið, undir yifirskini friðar og vináttu. Slíkt atferli segir hann að lýð- veldin líði ekki. Það geti ekki átt sér stað, þar sem siðferðisvitund þjóðanna fái að ráða. Ekkert lýð- veldi mundi taka í mál að líða ainnan eins ósóma og þann, að um 'sponna heilar þjóðir hinu arg- asta njósnarneti og stuðla til alls konar svikráða og spellvirkja fyrir tilstilli sjálfra sendiherranna. sem vera ætti istrang-heiðarlegustu trúnaðarinenn Jtjóðanna. Einmitt þetta verður keisara- dæminu þýzka frekar að fótakefli en nokkuð annað. Þýzkri keisara- stjórn fæst engin þjóð til að trúa uj>p úr þessu stríði. Hún verður búin að æsa uj>j> hatur svo mikið og óhug gegn sér með sviksemi sinni og undirferli, að þýzkri þjóð verður ólíft, nema liún breyti um stjórnarskipulag og kom.i sínum einvalds-keisara á forngrijiasafn, þar sem hann fær onguiri orðið að meini. En það getur orðið dagur og vika ]>angað til að Þjóðverjum skil.st þotta. 4. Glögg skýring. E'nn þeirra manina, er mest hugsa um ]>að, sem við ber í heim- inum, bæði í einu og öðru tilliti, er prófosser við Manitoba háskól- ann, H. W. F. Osborne. Hann er lfka einn af allra-mælskustu mönnum bæjarins, og því, sem hann segir, er ávalt veitt hin bezta áheyrn, bæði sökum efnis og búnings. Guðfræðingur er hainn ekki, heldur kennari í nýju málunum, ensku, Iþýzku og frönsku. Nú kennir liann aðallega frakkineska tungu og bókmentir, við háskól- ann. En þó hann sé ekki guðfræð- ingur, jnédikar liann l>ó eigi sjald- an, bæði í kirkjum bæjarins og víðs vegar, út um fylkið og livar sem leið hans iiggur. Og bók kom út eftir hann fyrir nokkuru, sem eiginiega öll var um trúnrál og hann nefndi: The Faith of a Lay- man. Ritgerðir um þá óbeit, er trú- arbrögðin vekja sem atvinnugrein. Vakti sú bók allmikið umtal og eftirtekt. Hún kom út árið 1910. Sunnudaginn eftir að fréttirnar komu af byltingunni á Rússlandi, talaði hann í kirkju Kongregazion- alista hér í bænum fyrir miklum fjölda fólks. Tók hann fyrir texta þessi orð Páls jistuia: Hér er ekki Gyðingur né grískur, hér er ekki þræll né frjáls maður, hér er ekki karl né kona, því að þér eruð allir einn maður í samfélaginu við Krist Jesúm (Gal. 3, 28). Hann valdi sér að umtalsefni: Stríðið og samband þjóðanna. Hann rakti rás viðburðanna frá því, er erkihertoginn austurríski var myrtur að Sarajevo og fram að þessum degi. Sarajevo hefði verið nafn, sem enginn hefði kunnað að nefna, unz sá örlagaþrungni við- burður hefði komið fyrir. Hér eft- ir mundi nafn þetta verða alkunna í mannkynssögunni og tákna upjs- haf voveiflegustu og ömurlegustu atburða, er tengdir væri við nokk- urn blett veraldar þessarar. Professor Osborne benti á, að sam- bönd milli ]>jóða væri ávalt næsta eftirtektaverð. Þau benti ávalt á eitthvað sameigimlegt í fari þjóð- anna, er slík sambönd mynduðu, eitthvað, er þær Jegði afar .mikla á- herzlu á og fyndist velferðarskil- yrði. Annars vegar liefðum vér í þessu stríði þýzka sambandið. Þar væri stóiweldið Þýzkaland forsprakki og leiðtogi, Þýzkaland, sem allur heimur ehskaði á dögum siðbótar- innar og lengi eftir. Því miður réði nú annar andi þar lögum og lofuin. Sæist það augljósast á því, að Þýzkaland, sem í mannkyns- sögunni stæði með geislabug um höfuð, af því að það hefði gefið heiminum siðbótina og alla þá blessan, sem lienni hefði fyigt, hefði nú látið sér saina að ganga f bandalag við Tyrki og hið katólska Austurrfki, og síðar hofði Búlg- arfa, sem Rús.sland hefði gert að sjáifstæðu landi, gengið í það ó- heilla bandalag. Nafn Tyrkja væri tengd við allra ömurlegustu liermd- arverk mannkynssögunnar. Hern- aðaraðferð þeirra á miðöldum og lengi fráin eftir, sem þótt liefði lík- ari dýrum en mönnum, hofði iriú algerlega sett öll ömurlegustu ein- kenni ®fn á hernaðaraðferð Þjóð- verja. Rússland, sem þangað til nú þessa sfðustu daga Ivefði verið að- setur arga-sta skrifstofu-ofríkis, einvalds og afturhalds, hefði lent inn í .stríð þetta Frakklands meg- iin. En með iþjóðinni frakknesku hefði lýðvaldshugmyndirnar, eða sú hlið þelrra, sem leggur áherzlu á fullkominn jöfnuð allra um á- byrgð gagnvart fósturjörðinni og skylduna tii að þjóna henni, kom- ist lengst á leið. Þetta hefði bezt komið í ljós á Frakklandi með þeim 50 stjórnar- skiftum, isem orðið hefði á þeiin 47 áruim, isem lýðveldið hefði stað- ið. Að eins þetta atriði sýndi ó- umræðilega glögt, hvílík alvara frakkineskri þjóð væri með að beita lýðveldis og jafnréttks hugmynd- unurn út f æsar í opinberu lífi sínu. England og Frakkland stæðf hlið við hlið. í stríði þessu eins og l>að væri ein þjóð. Þessar þjóðir, sem nú sýndust upj>fylla æðstu hugsjón fóstbræðraiagsins út f yztu æsar, hefði borizt á bana- spjótum og verið í óvingan afar mikill lvvor við aðna og það tiltölu- Legaf ýrir skömrnu. í stríði þessu væri sú óvingau öldungis horfin og endurminning- arnar um bardaga og banaspjót gii'eymdar i algerlega og grafnar, þrátt fyrir ]>að, að eldur hatursins hefði brunnið ljósum logum öld- um 'saman. England tæki ]>átt í baráttu þessari nú með rétti eins miklum og ]>egar er það stóð í fylkingai- broddi sambandsins gegn Napó- leon. En England hefði aftur breytt öldungis rangt, ]>egar er l>að hefði stutt konungsvaldið í tilraunum þess tiil að hnekkja fylgismönnum stjórn anby11i ngarnnar fra k k nesku. Afleiðingar sjálfsforræöis. Professor Osborne benti á, að hollustu Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálands og Afríku hefði þróast að miklum mun igagnvart Bretlandi, sökum sjálfsforræðis þess, er ný- landum l>es«um liefði verið gefið. Þessi djúprætta hollusta væri eina skýring þess, hve nýlendur þessar hefði ihafist handa, ættjörðinni gömlu til varnar. Jafnvei Indland hefði ivynst brennandi af hollustu og fórnarfús- leik, sakir l>akklátssemi sininar til brezkrar stjórnar, er reynst hefði því happaisæl. Þann dag í dag væri hinar helgu borgir, er frægar væri í mannkyns- sögunni fyrir göfugustu musteH Múhameds-trúar, Bagdad, Mekka og Medina, í höndum Brcta og bandamanna þeirra, eða þá þeirra, er viinveittir væri bandaþjóðun- um. Þann dag í dag skipuðu tveir fuLltrúar Indlands sæti á bekk

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.