Heimskringla - 26.07.1917, Síða 2

Heimskringla - 26.07.1917, Síða 2
2. BLAÐSÍÐA HllXIXBIIðLi WINNIPEO, 26. JÚLl 1917 , Keisaravaldið þýzka Eftir »íra F. J. Bergmann. _________________ J (Fr&mh.) 29. Vilhjálmur og Bismarck. Eftir stríðið milli Frakka og Þjóðverja 1870—71 stóðu þeir Bis- marek og Vilhjálmur I. hvor öðr- um hlið við hlið f seytján ár. Aldrei hafa tveir menn reynst hvpr öðrum hollari á löngum æfiferli. Konungurinn og keisarinn sýnir kanzlara sínum stöðugt óbilandi traust, jafnvel begar skoðanir þeirra fóru í ýmsar áttir. Ekkert sýnir betur, hvílíkur afburðamað- ur Bismarck var, en það, að vilji bans verður stöðugt að ryðja sér til 'rúms, þrátt fyrir mótspyrnu keisarans. Svo sannfærður var Vilhjálmur um, að skarpskygni Bismarcks bæri af hans eigin og annarra, er hann baifði völ á. Um hugsanir þeirra hvors um eig og metnað vita menn eigi. En þessir tveir höfðu það báðir sam- eiginiegt Friðriki mikia, að velferð rikisins var hið mikla miarkrnið beggja. Hana létu báðir ávalt.sitja í fyrirrúmi fyrir einka óskum sfn- um og skoðunum. Alt annað Iétu þeir lúta þessari megin-hugsjón sinni. Bismarek hafði togað lávarð sinn út í hvert stríðið á fætur öðr- um, stríð við Dani, strið við Aust- urríki og stríð við Frakka. Og öll þessi fyrirtæki höfðu hepnast. Að minsta kosti hafði árangurinn í hvert skifti orðið Prússlandi hinn mesti vegs- og vaida-auki. En á hinn bóginn mun það bafa aiið þá alt annað en holiu hugmynd upp hjá þjóðinni, að henni væri allir vegir færir. Hún þyrfti ekki ann- að en viljann til valda, svo gæti hún veitt sér völdin, hve nær sem henni sýndist. Aðai-atriðið var að hafa herinn þýzka til taks, hve nær sem á þyrfti að halda, og svo sterkan, að engum óvini gæti hæglega hug- kvæmst það tiltækilegt, að reyna sig við hiann. Hann yrði ávalt að vera í svo góðu lagi, að hann gæti látið höggið ríða, áður óvinurinn hefði nokkurt færi á að bera það af sér. heimtuðu, að hann gerðist leiðtogi þeirra, en til þess fekst hann ekki. Samt gekk hiaortn fyrir föður sinn og leitaðist við að sýna honum fram á, hve öfug stjórnarstefna Bismarcks væri. Þegar lögin um prentfrelsi og dagblöð höfðu verið birt 1863, iýsti hann því opinber- lega yfir, að hann væri þeim alger- lega mótfaliinn. Hann hætti að sitja á fundum ríkisráðsins og hafðist mest við utan Berlínar. Friðrik krónprinz var mikill vin- ur prinzins af Ágústenborg og studdi hann í kröfum hams og til- kalli til hertogadætnanna Slésvik- ur og Holtsetalands. En það var þveröfugt vilja Bismarcks, eins og gert hefir verið ijóst hér að fnam- an. 1 stríðinu við Danmörku fekk iiann fyrstu reynslu í hernaði. Þar reis ágreiningur upp milli herfor- ingjanna og aðal-hershöfðingjans og var Friðrik prinz skipaður til iað skera úr, og var þannig settur yfir hann. Prinzinn var mjög andvígur stríðinu. við Austurríki. Samt tók hann þátt í því og sýndi, að hann hafði mikla herforingja hæfileika til að bera. í úrslitaiorustunni við Königgraetz, komst hann á víg- völlinn með her sinn fyrst eftir 20 mfina hergöngU. En komst samt í tæka tíð og réð úrslitum. 1 stríðinu við Frakka var Friðrik prinz yfirforingi yfir her suður- ríkjanna. Hann átti mikinn þátt f bardaganum við Sedan og síðar í umsátrinu um París. Hann átti líka mikinn þátt í þvf, að samein- ingin tókst með suður- og norður- Þýzkalandi. öflugur stuðnings- maður keisaravaldsins reyndist hann og sór sig í því efni í ætt við forfeður sína. Prinzinn og kona hans höfðu bæði miklar mætur á list og lista- söfnuin. Honuin var einkum að þakka grö.ftur og eftirleit á Grikk- landi eftir leyfum frá gullöld Grikkja. Árið 1878 var skotið á föður hans í þeim tilgangi að ráða honum bana, og var þá Friðrik rijíisstjórnari meðan ikonungur greri sána sinna. Þegar frjálslyndu flokkarnir runnu saman 1884, var fiokkurinn aiment nefndur flokk- ur krónprinzins. Samt var Friðrik varaisainur og hinn gætnasti. hann vildi ekki á neinn hátt koma stjórn föður sfns í vanda. Vilhjáimur I. endaði 90 árin áð- ur en hann iézt. Borið hafði það við, 'að ágreiningurinn hafði svo mikill orðið um stefnur og aðferð- ir, að Bismarek hafði verið í þann veginn að segja af sér. En aldrei hafði keisaranum til hugar komið, ®ð taka það til greina. Hann iét sér finnast það óhugsanda, að Bis- marck færi frá, meðan hann sæti að völdum. En menn áttu þess alment von, að við fráfall Viihjáims, yrði kanzl- ®rinn að leggja niður völdin. Síð'- ustu árin var talað um þrjá keis- ara á Þýzkalandi. Gamli keisarinn var nefndur der Greise Kaiser — keisara öldungurinn. Friðrik, son- ur hans, sem taka átti við vöidum eftir hann, var nefndur: Der Weise Kaiser,—vitri keisarinn, og sonur hans, Vilhjálmur, sem nú er keis- ari, nefndist: Der Reise Kaiser, því hann var á stöðugu ferðalagi. Mik- il lotning var borin fyrir Friðriki ríkiserfingja, sakir mikilla vits- muna og frjálslyndis. En menn vissu, að hann múndi ekki endast lengi, því hann var hættulega veikur. Hugarstefna hans og Bis- marcks þóttust mcnn vita, að naumasti gæti orðið samferða. Vilhjálmur I. naut hinnar béztu heilsu í liárri elli og kendi naum- ast krankleika fyrr en skömmu fyrir andlát sitt. Það bar að hönd- um í Berlín 9. marz 1888. Hann var fæddur 22. marz 1797 og hefði því orðið 91 árs gamail, ef hann hefði lifað 13 döguin lengur. 30. Friðrik III, 9. marz 1888— 15. júní 1888. Hann v®r fæddur í Potsdam 18. okt. 1831, og var elzti sonur prinz Vfihjálms Jiess er síðar varð kon- uhgur og keisari, og þegar hefir verið sagt frá. Ungur ferðaðist hann allmikið og var Moltke hers- höfðingi einatt með honum á þeim ferðum. Árið 1855 trúlofaðist hann Vietoriu prinzessu, dóttur Vic- toriu drotningar á Englandi, og giftist henni 25. jan. 1858. Þegar er föðurbróðir Friðriks lézt og faðir hans tók við konungs- tign, varð Friðrik prússneskur krónprinz. Áhrifin frá móður hans og einkum tengdaföður, Al- berti manni Victoriu drotningiar, gerðu hann að frjálsiyndum manni. Sökum þess var hann mjög óánægður með stjórnarstefnu Bis- marcks og gang viðburðanna á Prússlandi, eftir að Bismiarck tók þar við kanzlaraembætti. Frjálslyndir menn á Þýzkalandi Með þjóðinni alinent gerðu menn sér hinar mestu vonir um etjórn hans er bann kæmist til valda, einkum hinn frjálslyndari hluti hennar. En það varð snemma dap- urt yfir þeim vonum, því prinzinn varð veikur af krabbameini í hálsi. Veturinn 1887—1888 var liann í San Remo á Norður-ítalíu. 1 janúar 1888 varð að gera barkaskurð á honum. Þegar faðir lians lézt 9. marz, flýtti Friðrik sér tii Berlínar. En hann vissi, að dagar hans voru taldir, enda var hann leiddur til hásætis, einungis til að deyja. Fyrir því gat ekki stjórn hans náð þeim tilgangi, sem menn höfðu gert sér vonir um. En þá voru flokkadrættir miklir í iandi og nöfn keisarans og keisarafrúarinn- iair notuð beint í illviljuðum til- gangi. Voru það einkum fylgis- menn Bismarcks, sem gerðu hvað eftir annað beiskustu árásir á keis- arafrúna, sem hún átti alls ekki skilið. Helzta stjórnarstarf Friðriks keisara voru þungar ákúrur, er hann veitti Herr von Puttkamer, sem var ráðgjafi innanríkismál- anna og afturhalds maður mikill. Varð það til þess, að hann sagði af sér. Þegar keisarinn átti kost á að skipa menn í nýjar stöður, valdi hann helzt menn úr flokki þeirra, sem hingað til höfðu verið iokaðir úti frá öllum náðarveitingum hirð- arinnar. Misklíð allmikil kom upp með keisaranum ok kanzlaranum út af giftingu prinzins frá Battenburg og Victoriu prinzessu f Prússlandi. Victoria Englands drotning varð að gera sér ferð til Berlínar til að jafna þá misklíð, en um leið til þess að vera viðstödd banabeð tengdasomar síns. Friðrik keisari lézt 15. júní 1888, eftir að hafa setið að ríkjum í níutíu og níu daga. Mikill ágreiningur reis út af því, hverjum læknisráðum hefði fylgt verið í sjúkdómi keisarans. Þegar f maf 1887 höfðu þýzkir læknar þózt verða varir krabba í hálsi hans. En Sir Morell Mackenzie, enskur sérfræðingur sem menn iíka ráð- færðu sig við, var þessu ekki sam- þykkur, og réð eindregið frá því, að holdskurður væri ger til að taka barkann burt. Ráðum hans var fylgt. En er keisarinn var lát- inn, vair þetta notað óspart til að blása að hatrinu til Engiands. Afturhaldsliðið alt á Þýzkalandi var stór-gramt yfir frálslyndi keis- arans og kendi enskum áhrifum. II. KEISARINN ÞÝZKI Ntr A DÖGXJM. 31. Vilhjálmur H., 1888— Vér erum nú komnir í þessu sögulega yfirliti voru yfir konung- ama og keisarana þýzku, niður til vorra daga. Vér erum nú svo iangt komnir niður í tímann, að vér stöndum þeim manni augliti til auglitis, sem nú er að allra dómi iífið og sálin í þeim viðburðum, sem nú eru að geraet. Ferillinn, sem vér höfum rakið, liefir verið nokkuð langur, og ef til vill einhverjum þótt | -fiður og þreytandi. En hann hefir verið öldungis nauðsynlegur, til þess að afla sér yfirlits og skilnings sög- unnar, er iiggur þeim viðburðum að baki, sem nú eru að gerast. Saga hins iiðma ljær oss lykii í hönd að viðburða safni nútímans. Án hans horfum vér í kring um oss eins og tröll á heiðríkju og skiljum ekkert nema til hálfs. Vilhjálmur II. Prússakonungur og þýzkur keisari er fæddur 27. janúar 1859 í Berlínarborg. Hann var eizta barn Friðriks og Victoriu. Var Victoria Englands drotning amma hans, en móðir hans systir Játvarðs VII. Engla konungs. Á tfunda afmælisdegi sínuin var 'hann gerður annar lautinant í fyrsta tvífylki varðmannaliðsins. Hann gekk á mentaskól'ainn (Gymnasium) í Kassel frá því í september 1874 til þess í janúar 1877. Þar næst stundaði hann nám í tvö ár við háskólann í Bonn. Upp frá því gaf hann sig all-lengi við skyldustörfum í sambandi við herinn. Árið 1885 var hann hafinn til foringjatignar. 1 æsku mun hann mest hafa umgengist her- menn og herforingja og orðið fyrir langmestum áhrifum frá þeim. Hann varð snemma miklu hrifnairi af einvaldshugsjónum þeirra Bis- marcks og Vilhjálims fyrsta, afa eíns, heldur en af hinum frjáis- lyndari skoðunum foreldra sinnai í opinberu lífi tók hann engan þátt, unz faðir hans varð veikur 1887. En eins og sagt er frá hér að ofan, varð breyting mikil í skynd- ingu við hirðina þýzku, er þeir létust hvor á eftir öðrum með að eins þriggja mánaða millibili feðg- arnir, keisarinn gamli, Vilhjáimur I., og keisarinn vitri, Friðrik III. Bæði afi og faðir Vilhjálms annars, er lengi höfðu gnæft eins og tveir dýriegir fjallstindar í huga fóiks- ins, hurfu inn í myrkrið mikla á einni svipstundu. Viihjálmur II. varð 15. júnf 1888 konungur Prússiands, hinn níundi í röðinni, og þriðji þýzkur keisari. Fyrsta stjórnarár iians var við- burðalítið. En snemma bar á meiri tiihneigingu hjá honum til að fiytja ræður, en alment gerist með konungum. Og mjög var það eftirtektarvcrt, hvernig því var tek- ið víðs vegar um Norðurálfu, er liann varð konungur. Alment var óttast, að friðnum í Norðurálfu væri mikil hætta búin af þessum unga manni, sem þá var að eins 28 ára gamall. Þeir, sem bezt þektu hann, og höfðu kynst honum bezt á ferðum hans, virtust óttast hann mest. Var á það bent, hve mikil ó- kyrð virtist á ráði hans og hugs- unuin. Ávalt væri hann að koma mönnum á óvart með einhverju. Hégómagjarn þótti hann með af- brigðum. Hann virtist stöðugt ganga með þá hugsan í höfði, að allur heimur hefði auga á honum og ekki mikið annað að gera en að glápa á hann. Fyrir því bar hann sig að, eins og maður, sem einiægt situr fyrir iijá myndasmið. Alt þetta gerði það augljóst, að maðurinn var stöðugt að hugsa um sjálfan sig og hélt, að aðrir menn hefði eigi mikið annað að gera, en að hugsa um liann. 32. Þýzkur keisari. Það bætti heidur ekki til, að þegar til keisaratignarinnar kom, virtist hann leggja lang-mesta á- herzlu á titilinn. Þegar afi hans var hafinn til keisaratignar, varð þýzkum stjórnmálamönnum næsta tíðrætt um, hvort hann ætti held- ur að nefnast keisari Þýzkaiands eða þýzkur keisari. En er það mál var fyrir hann sjálfan lagt, var honum annast um að bera það nafn eða titil, er enginn í Norður- álfu gæti mótmælt að hann ætti. Keisari Þýzkalands fanst honum ekki að hann geta með réttu heitið. Við hirðir Norðurálfu yrði gert gys að þeim titli og það fanst lionuin draga eigi lítið úr heiðrin- um. Þýzkur keisari fanst honum skárra, því þýzkur væri hann og því myndi enginn mega neita. Það varð ofan á. Hinn nýi keisari var auðkendur einkunninni þýzk- ur. En er til Vilhjáims II. kasta kom, var hann óánægður mjög að bera eigi annað og virðulegra nafn frammi fyrir heiminum, en þýzkur keisari. Hann heimtaði að vera nefndur keisari Þýzkalands, er keisaratignin væri fengin honum í hendur. Út af þessu urðu mikl- ar umræður og mikil heilabrot. Að síðustu var málið lagt fyrir Bismarck. Hann gerði sér hægt um hönd og spurði þá lærðu herra, er í kring um hann voru: “Hvað er pylsaí nefnd á latínu?” Sumir sögðu: farcimentum, aðrir farcimen. “Já, segir Bismarck þá, “Farcimentum eða farcimen stendur mér nákvæm- lega á sama. Pylsa er pylsa og ekk- ert ananð. Bismarck var maður- inn, sem með stjórnkænsku sinni og hyggjuviti hafði skapað þýzka veldi, sem nú var um að ræða, og honum fanst það býsna litlu máli skifta, hvort keisarinn nefndist keisari Þýzkalands eða að eins þýzkur keisari. Vilhjálm- ur II. mátti sætta ®ig við að verða að eins þýzkur keisari. Nafnið Reise Kaiser — ferðakeis- arinn—er eiginlega eina nafnið, sem hann hefir áunnið sér. Hann hefir ávalt sýnt vakandi áhuga um menn og málefni, enda verið hinn skemtilegasti í allri umgengni, fjörugur og fimur í öllu. Honum er og hefir verið mesta yndi af að vera á hafinu, frá því hann var ungur. Árlega hefir hann haldið jakt sinni til Noregs á sumrum og árlega ver- ið við kappsiglingarnar í Cowes á Wight-eyju. Hann hefir ávalt þótt íþróttamaður hinn mesti, er reið- maður mikill og fer allra manna bezt í söðli. Þó getur hann ekki notað vinstri hönd fyrir slys, er honum vildi til, þegar hann var barn. Eftir að hann varð keisari, not- aði hann ferðaiög sín til að heim- sækja hirðir Norðurálfu. Lagði hann á það mikið kapp, að kynn- ast hvarvetna með stórmenni álf- unnar, og iagði áherzlu mikla á vináttuna, einkum við Rússland og England. Breytingar urðu þeg- ar heilmiklar í helztu stöðum, bæði við herinn og í helztu em- bættum landsins, er liann kom tii vaida. Moltke, hershöfðinginn mikli, sem verið hafði um þrjátíu ár yfir- foringi hersins, og komið Þýzka- landi að ágætu haldi, sagði af sér stöðu sinni. Honum var eigi unt að gegna henni lengur, er nýr herra og svo ólíkur þeim feðgum, er hann hafði þjónað undir, var kominn tii valda. ætlan sinni, að bæta kjör verka- lýðsins. 1 þessum tilgangi ætlaði hann að kveðja til alþjóðaþings til þess að íhuga á hvern hátt unt væri að uppfylla kröfur iýðsins. Hina aðra yfirlýsingu birti hann sem konungur Prússa. Þar lýsti hann því yfir, að það væri skylda ríkisins, iað kveða á um vinnutíma og vinnuskiiyrði. Fyrir því yrði ríkisráðið sainan kallað til þcss að ræða þetta og önnur efni, er þessu væri skylt. Bismarck hafði ekki eins mikla trú á þessum ráðdm og keisarinn og var þessari stjórnmála'aðferð alls ekki fylgjandi. En með þessu móti var loku fyrir það skotið, að liann gæti fengið vilja sínum fram- gengt með því að hafa áhrif á kosningarnar eins og hann hafði ætlað sér. Yið þær kosningar, sem á eftir þessu fóru fram, urðu þeir þingflokkarnir undir, sem tekið liöfðu höndum saman á síðasta þingi. Aftur urðu jafnaðarmenn, miðflokkurinn og gerbreytinga- menn liðfleiri. Fáeinum dögum eftir kosning- arnar var Bismarck vísað frá em- bætti. Það, sem þeim bar á milli, keisaranum og honum, var annað og meira, en mannfélagsumbætur. Aðal-atriðið var, hvor þeirra ætti að vera fyrir framan og ráða stjórn- málastefnunni. Mergur málsins var: Hvort er það heldur keisar- inn eða kanzlarinn, sem ræður. Bismairck sagði, að keisarinn ætl- aði sér að verða sinn eigi kanziari, og hann hafði í því efni öldungis rétt fyrir sér. Tilefnið til þess, að Bismarck varð að láta af embætti, var í því fólgið, að keisarinn heimtaði af honum að ógilda ríkisráðsákvörð- un, sem gerð hafði verið á dögum Friðriks Vilhjálms IV., er gaf prúss- neska forsætisráðherranum einka- heimild til að vera milliliður milli ráðuneytisins og konungsins. Bis- marck neitaði að gera þetta. Fyrir því fekk h'amn skipun um að segja af sér. Keisarinn þoidi ekki Bismarck við hlið sér. Hann vildi sízt af öllu láta keisarann sitja f skugganum af kanzlarainum. Hann getur eng- an mann þoiað, er í almennings- álitinu ber ægishjálm yfir honum. Hann verður um fram alt, að vera bæði bóndinn og húsfreyjan. Um þettai hefir hann ekki þagað. Til grundvaliar^ liggur allur skilning- ur hans á keisarastöðunni og keis- aravaldinu. 34. Ræður keisarans. ---------------------------- GISLI GOODMAN TINSMIBUR. VerkstæTSl:—Horni Toronto Bt. oi Notre Dame Ave. Pkone HelaUla Garry 20S8 Garry H99 ____________________________/ J. J. BILDFELL FVSTKIGNASALI. Unlon Bank 5th. Floor No. M* Belur hú« og lóttir, og annaU >ar al lútandl. trtve^ar penincalán o.fl. Pkone Maln 2685. ---- ---------------------/ TH. JOHNSON, Ormakari og Gullzmiður Selur giftingaleyfisbrM. Sérstakt athygli veitt pöntunum og viöffjöröum útan af landi. 248 Main St. - Phone M. 8606 J. J. Bwanson H. O. HinrlkMen J. J. SWANSON & CO. FASTEIGKA9ALAR OG prnlnKa mlttlar. Talsíml Maln 2697 Cor. Portago and Garry, Wlnnlpog MARKET HOTEL 14€ Frlnr Street á nóti m&rkallnum Bestu vlnföng, vindlar mg aB- hlyning: góZ. Islenkur veltlnck* maöur N. Halldórsaon, leiöbeln- lr íslendlngum. P. O’CONNEL, Eifandi WiaaipeK Arnl Anderson E. P. Garland GARLAND & ANDERSON LIIGFKEBINGAR. Phon. Maln 1661 691 Eloctrlc Railway Cb&mb.r» Talslml: Maln S302. Dr. J. Q. Snidal TANNLÆKNIR. 614 SOMERSET BLK. Portage Avenue. WINNIPEG Dr. G. J. Gis/ason Pkyslclan and Surgfoa Athygli veitt Augna, Eyrna og Kverka Sjúkdómum. Asamt innvortis sjúkdómum og upp- skuröi. 18 South 3rd St., Grand ForEre, N.D. Dr. J. Stefánsson 401 BOYD BUILDIKG Hornl Portace Ave. og Edmonton St. Stundar elneönzu au,na, ejrrna, nef og kverka-sjúkdðma. Er a» hltta frá kl. 10 tll 12 f.h. og kl. 2 tll • e.h. Phone: Main 3088. Helmlll: 106 Ollvla St. Tals. O. 2316 33. Fall Bismarcks. Annars var fyrsta stjórnarár hans viðburðalltið. En þegar í ársbyrj- an 1890 voru mikiir viðburðir 1 að- sigi. Þá áttu kosningar fram að fara til ríkisþings — Reichstag—; Þær áttu að gilda um næstu fimm ár. Helzba ágreinings efni voiu lög gegn jafnaðarmönnum, sem gildandi voru til 30. sept. 1890. Stjórnin lagði nýtt lagafrumvarp fyrir, sem ganga ætti í gildi um leið og hin fyrri væri orðin útlifuð, og vera varanleg. Afturhalds flokk- urinn var þeim fylgjandi, en ger- breytinga^menn og mið-flokkurinn á þingi voru lögum þessum and- vígir. Eins og flokkaskipan þingsins var háttað, virtist frjálslyndi þjóðernisflokkurinn geta ráðið úr- sliturn um lög þessi. Þeir kváðust til þess húnir að greiða atkvæði með lögunum, ef að einni grein þeirra væri 'slept, sem heimilaði stjórnum ríkjanna 'að gera menn héraðsræka. 25. febrúar 1890 átti að ráða máli þessu til lykta á þingi. Breytingartillaga ihafði verið samþykt, þar sem grein þessari hafði verið slept. Frjálsiyndi þjóð- ernisflokkurinn var því með lögun- um, eins og þeim nú hafði verið breytt. íhaldsfiokkurinn var eins og ávalt um það eitt að hugsa, að greiða atkvæði eins og stjórnin vildi. Væri Bisroarck ánægður með lögin, eins og þeim nú hafði verið breytt, gott og vel, þá greiddi þeir atkvæði með þeim og þá yrði þau samþykt. En flokknum var engin bending gefin. Hann greiddi því atkvæði gegn lögunum, og frumvarpið var felt. Þingi var slitið þegar 1 stað. Menn áttu nú von á, að farið yrði að eins og áður, árið 1878, að stjórn- in myndi láta koma til almennra kosninga og afla afturhaldsflokkn- um svo mikils fylgis, að hún hefði meiri hluta nógu stóran til þess, að lög þessi gegn jafn'aöarmönnum gæti orðið eftir hennar höfði. En f stað þess að gera þetta, birtir keisarinn, sem mikinn áhuga virt- ist hafa á ýmsum mannfélagsum- bótum, tvær yfirlýsingar. önnur þeirra var stíluð til kanzlarans. Þar lýsti keisarinn yfir þeirri fyrir- Um þann alda.rfjórðung, sem keisarinn hefir setið að völdum, hefir hann stöðugt verið að flytja ræður við opinber og hálf-opinber tækifæri. Hann hefir verið lang- málreifastur einvaldnr vorra tíina. Meira en eiij þúsund ræðum hefir verið .safnað sainan eftir liann, þeirra er hann þegar hafði flutt fyrir 1902, af Kristjáni nokkurum Gauss. 1 þessum ræðum kemur innri maður keisarans til dyranna í sannverulegum búningi. Það hefir verið sagt, «ð orð sé til þess að leyna hugsunum. Má vera að svo sé stundum satt um inarga, stjórnmálamienn ekki sízt. En þau dylja naumast hinn innra mann, persónuleikann sjlfan. Hann birt- ist í orðunum. 1 þessum ræðum hefir keisarinn dregið upp öldung- is ógleymanlega mynd af sjálfum sér, sem eigi er með neinu móti unt að véfengjiai, en hlýtur ávalt að vera æðsti dómstóli, er um hann skal dæmt. í ræðum þessum verður öllum Ijóst, sem eftir þeim taka, að keis- arinn hirtist í raun og veru sem persónugerfing þess ófriðar, er nú geisar. Rauði þráðurinn, sem ein- kennir þær allar frá byrjan vega og fram á þenna dag, er kenningin um, að hann hafi guðlegt umboð til keisaraivaldsins. Það hvíli ekki í höndum þjóðarinnar, sé ekki neinni atkvæaðgreiðslu háð, held- ur sé hann til þess út valinn og korinn af forsjóninni sjálfri að hafa völd með höndum, og hann beri ekki ábyrgð á meðferð þeirra fyrir neinum, nemia konunginum allra hæsta. Þessi sannfæring virðist brenna eins og eldur, er öllu öðru eyðir, í huga keisarans. Hann trúir því statt og stöðugt, að hann og ætt- menn hians, sé af guði út valið verkfæri til þess að leiða þýzka þjóð, að því mikla markmiði, er henni sé ætlað: Að frelsa heiminn. Til þess að vera leiðtogi hennar í þessari herför eða leiðangri heim- inum til frelsis álítur hann sjálfan sig eins sjálfsagðan og guðlega skipaðian og Móse til að leiða hinn útvalða lýð út úr Egiptalandi. í ræðu, sem hann flutti í bæn- um Muenster 1907, sagði hann: “Þá (ef hann fær að leiða hana), (Framh. á 3. bl&) Vér höfum fullar blrgölr hraln- ustu lyfja og meöala. Korotö m«ö lyfseöla yöar hlnfaD, Tér gerum meöulin Dákvamltra aftir ávísan læknisins. Vér ilnnum utansvelta pöntunum og seljum giftingaleyfi. : : : : COLCLMUGH <ft CO. Nutrf Daiflf St 8herHr«>oke Iti. Phona Garry 2690—2«91 ’W \ A. S. BARDAL selur líkklstur og ann&st uai út- farlr. Allur útbúnaSur sú bestl. Ennfremur selur hann allskeaar mlnnlsvarða og le»stelna. : : 813 SHERBROOKE ST. PkH, G. 2162 WIKKIPEG AGRIP AF REGLUGJÖR8 mn beimiIurétUrlÖBd í Casada og N»r<yve$tarIaadÍBH. Hver fjölakyMufatSIr eía hver karl* maSur sem er II úra, sem var brezkur þecn 1 byrjun striSstns og heflr veriS þaS sllan, ela sem er b«zn Bandaþjúfl* anna eSa ðhálrar þjðSar, zetur tekl* helmlllsrátt á fjðrtiun* úr sectlon af ð- teknu stjðrnarlandl f Manltoba, Sas- katchowan etla Alberta. Umswkjandi vertlur sjálfur atl koma á landokrlf- stofu stjðrnarlnnar otla undtrokrlfstofú hennar I þvt hératll. f umboSI annars Hkrldori—S,x mánaSa ábú» og rooktun má taka land undlr vlssum okllyríum. landslns á bvorju af þrcmur árum. t vlssum háruSum getur hvor land- landnoml fon(lt) forkaupsrátt á fjðrtS- unzl eoctlonar meB fram landl stnu. VerS: 98.09 fyrlr hvorja okru. Skyldur: Sex mánaSa ábúS á hvorju hlnna nmstu þrtrirJa ára oftlr hann hefir hlotltl elrnarbráf fyrlr holmtllsráttar- tandl stnu or auk þoos rwktats 60 ekrur á hlnu setnna landt. Eorkaups- réttar bréf retur landneml fenrttl um lettl o( hann foer helmtltsréttarbréfiSi en þð motl vlssum sktlyrSum.. Landnoml, som fonrtS hoftr hotmllls- réttarland, on zetur ekkl fonrlS for- kaupsrétt (pre-emptlon) rotur keyp* helmtllsréttartand t vlssum héruttum- Vertt $3.00 ekran. Verllur ak búa « tandlnu sex mánutlt af hverju af þrem- ur árum. rsekta 60 ekrur or byrrJa hús, sem sé $300.00 vtrtl!. Þetr eem hafa skrlfaS slr fyrlr hetm- tllsréttarlandt, reta unnttl tandbúnatl- arvlnnu h1A bændum I Canada ArlS 1917 or ttmt sá relknast sem skyldu- tfml á landt þetrra, undtr vlssum sktl- yrtlum. T>erar stjðrnarlönd eru aurtÝst etla tltkynt á annan hátt, reta heimkomnlf hermenn, sem verm hafa t horþtðnustu orlondlo or fenrtH hafa heltlar1eK» tausn, fenrttl elns dar* forranr* rétt tll *tl skrlfa str fyrtr helmlltsráttar- tandl & tandskrlfstofu hératlstns (en ekkt 4 undtrekrlfstofu). Lauenarbréf verttur hann atl reta sýnt skrlfstofu- stjðranum. W. W. CORT, Deputy Mlntster of the Intertor. Blí$. sem flytja aurtýstnrn þessa • helmlldarleysl, fá enra borrua fyrlr.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.