Heimskringla - 15.11.1917, Side 1
--------------------------------
Royal Optical Co.
Elztu Opticians i Winnipeg. ViO
höfum reynst vinum þinum vel, —i
geföu okkur tækifæri til að reya-
ast þér vel. Stofnsett 1905.
W. R. Fowler. Opt.
v—--------- . ■ *
XXXII. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA, 15. NOVEMBER 1917
NÚMER 8
Styrjöldin
Stórkostleg uppreist á Rússlandi.
Rússland er land sögulegra við-
tiurða nú á dögum. Stórkostlegar
tiyltingar eiga sér iþar stað með
stuttu millibili og hvert einasta
skipuiag, sem þar er sett á fót, virð^
ist að eins vera til bráðabirgða;
t>ví ]>að næsta, sem íréttist, er að
bessu hafi verið sundrað til agna.
Eins og nú er ástatt á Rússlandi
virðist ómögulegt að fyrirsjá hvað
hiorgundagurinn kunni að geyma
t akauti sínu. Stjórnarbyltingin í
vor færði eins og blæ nýrrar menn-
ingar yfir RússLand — þegar þjóð-
ln hefst til banda og varpar af sér
ú skömmum tíma margra alda ein-
veldisfargi og gerist iýðfrjáls þjóð.
En ]>að er eins og þetta nýfengna
frelsi hafi rokið þjóðinni til höf-
uðs og hnekt ráði lvennar og rænu,
bvf síðan þetta bar við, befir stríðs-
stjórn allri þar í landi farið sí-
hnignandi og stjórnmál öll gengið
í mestu handaskoium. Á Alexand-
er Kerensky bafa augu allra bvílt,
enda mun óhætt að fullyrða, að
hann sé einn af áhrifamestu og
mikilhæfustu s t jó r nmál amö n n u m
heims. Hann ber höfuð og herðar
Vfir samtíð sína á Rússlandi og
enginn stjórnmálamaður í sögu
Þess lands hefir brotist til eins
hárra valda. Hefir ihonum verið
fengið öllu meira vald í hendur en
nokkur undanfarandi keisari hefir
ha ft. Stjórn hans öll hefir þó
gengið frekar skrykkjótt, enda
®an mannlegum kröftum ofvaxið
að ráða friðsamlega til lykta æs-
ingum þeim, som nú eiga sér stað
® Rússlandi — óumtlýjanleg örlög
slíks virðast vera borgarastríð og
blóðsúthellingar. Fram á þotta
mun Korniloff horshöfðingi hafa
séð og kaus bann þann veginn, að
ráða fram úr vandamálum öllum
tneð járn'hörku herstjórans. A
betta gat Kerensky ei fallist, vildi
heldur leitast við að miðla málum
alt hvað mögulegt væri og ekki
beita valdi fyr en slíkt væri með
bllu óumflýjanlegt, og stefna hans
varð ofan á.
Ekki virtist þó gata hans greið
einlægt fór útlitið á Rússlandi
versnandi. — Svo skall sú frétt yfir
lieimsins eims og þrumuskiir úr
kolsvörtu lofti, rétt eÆtir miðja síð-
ustu viku, að búið væri að steypa
Kej-ensky og bráðabyrgðarstjórn-
inni frá völdum og eetja aðra
stjórn í staðinn. Yar þessari nýju
stjórnarbylting hrint af stokkum
af Sambandsráði hermanna og
verkamanna f Petrograd — hinum
svonefndu Maximalistum. Ekki
hafði þetta neinar blóðsútbelling-
ar í för með sér til að byrja með og
virðist uppreistarinönnum bafa
gengið greiðlega að hneppa ráð-
herra bráðabirgðarstjórnarinnar í
varðhald og ryðja sjálfum sér leið
til valda. Kerensky komst þó á
brott og mun hann hafa 'haldið til
Mosoovv og svo þaðan til herstöðv-
anna til þess að fá í iið með sér þá
hermenn, sem enn eru á hans
bandi.
Sambandsráð hermanna og verk-
ln>anna á Rússlandi samanstendur
®f iafnaðarmönnum og ofsaþrungn-
úm írelsisdýrkendum — sem helzt
virðast stefna að algerðu stjórn-
feysi. Leiðtogi þessa sambands-
>'áðs beitir Leon Trotzky, sem um
tveggja ára tfma á að hafa átt
heima hér í Oanada og kynt sig
fremur ilia, og varð bann nú utan-
rfkis ráðherra hinnar nýju stjórn-
ar- Stjórnar ráðherra varð maður,
nafni Nikolai Lenine, stálefldur
^singamaður frá fyrstu tíð og sem
e*tt sinn var grunaður um að vera
a bandi Þjóðverja. Stefnuskráin
úýja varð, í stuttu máli sagt, bráð
friðarumleifcan, afnuminn eignar-
réttur á stórum landeignum og
hsendastéttinni fengnar þær til
"rriráða — en sambandsráði her-
lnanna og verkamanna verði falin
®il æðstu völd landsins.
Enn þá eu fréttir mjög ógreini-
effar af þesisari seinustu stjórnai-
hylting á Rússlandi. Yirðist sem
úPPreistarmönnium hafi aukist
Vtki með degi hverjum og bendir
a|t til þegis að þeir ' sitji enn að
vúldum þegar þetta er skrifað. —
'inna eftirtektaverðust er féttin
j1,n bað, að Korniloff hershöfðingi
afi á einhvern undursamlegan
*átt losnað ú prísundinni og taf-
ar'aust siegist í lið með Kerensky.
Föðurlandsást þessara mikilhæfu
leiðtoga befir dregið' þá undir sami-
eiginlegt merki. En að svo komnu
hefir ekki frézt greinilega liv'aða á-
rangur þetta hafi borið. Ein frétt-
in segir þá Korniloff og Kerensky
búna að bæla uppreistina niður,
en önnur fréttin sagði iið þeirra
bafa beðið algerðan ósigur í orustu
nálægt Tsarskoe-Selo. Þegar næsta
blað kemur út verða að líkindum
komnar gleggri fréttir.
“Maximalistar” eru þeir menn
nefndir á Rússlandi, sem stærstar
kröfur gera og er orð þetta af lat-
neskum stofni. — “Bolsheviki” er
rússneska þýðingin á orði þessu.
Sigur Breta í Palestínu.
Hersveitir Breta hafa unnið
hvern sigurinn af öðrum í Pales-
tínu. Um miðja síðustu viku tóku
þær bogina Gaza og tvær smærri
borgir sömuleiðis. Urðu Tyrkir
undan að Ihrökkva á stóru svæði og
varð rnikið mannfall í liði þeirra.—
borgin Gaza er um 50 mílur suðvest-
ur af Jerúsalem og um 30 mílur fyr-
ir suðvestan borgina Beersheba,
sem skýrt var frá í síðasta blaði að
Bretar hefðu tekið.
Seinustu fréfctir segja allan her
Tyrkja í Palestínu vera á undan-
haldi norður á við og bendir þetta
til þess, að þeir muni 'hafa beðið al-
gerðan ósigur fyrir Bretum á þess-
um slóðum. Sagt er að loftbátar
Breta veiti þeim eftirför og steypi
yfir þá sprengikúlum.
------o-------
Frá Vestur-vígstöðvunum.
Ypres skaginn, þar sem átt liafa
sér stað svo margar blóðugar or-
ustur í seinni tíð, er nú ekki í eins
mikilli hættu að verða tekinn frá
bandamönnum og áöur og gengur
öll vörn þeirra nú að mun betur.
Þrátt fyrir hina öflugu sókn Þjóð-
verja, sein nú hefir staðið yfir svm
lengi, bafa bandainenn hvergi verið
liraktir og 'hér og þar hafa þeir
getað brotist áfram og tekið á sitt
vald mörg ramgerð vígi. Sökum
hinnar hreystilegu framgöngu Oan-
ada herliðsins er hin svo nefnda
“Passchendaele bæð” nú öll á valdi
bandamanna. Hæð þessi er afar-
örðug sóknar og útehimti mörg
mannslíf, en að bandamenn hafa
nú náð henni allri á sitt vald. er
talinn einn þýðingarmesti sigur-
vinningur þeirra á vestursvæðinu
í seinni tíð. Standa þeir nú þarna
margfalt betur -að vígi en áður. —
Er talið líklegt, að áður langt líð-
ur ifái þeir tekið Roulers herstöð-
ina, sem er um fimm inílur norð-
austur af ofangreindri hæð.
Yafalaust áttu Oanada herdeiid-
arnar stærstan þátt í áhlaupinu
gegn hæð þessari og hafa þær við
þetfca tækifæri getið sér ihinn bezta
orðstýr — 'eims og reyndar ætíð
endar nær. Allir, sem á framgöngu
Canada hermannanna minnast,
ljúka mesta lofsorði á hreysti
þeirra.
Berdeildirnar frá Bandaríkjun-
um, sem komnar eru í fremstu skot-
grafir á Frakklandi fyrir all-löngu
síðan, gerðu sitt fyrsfca áhlaup í
lok -síðustu viku. Var þetta á
svæðinu með fram Rhine-Marne
skipaskurðinum. Sóttu Banda
ríkjamenn fram rösklega og kom-
ust í gegn um fremstu skotgrafir
Þjóðverja á einum stað. “Automa-
tic” rifflar Bandaríkjamanan voru
nú reyndir í fyrsta sinni og virtust
gefast ágætlega.
------o-------
ftalir veita viðnám.
Alla síðustu viku hélt undan-
hald Itala viðstöðulaust áfram.
Var Undanihaldi þessiu vel og
skipulega hagað og komst aðal-
herinn undan óskaddaður; áttu
sér að eins stað smáorustur á milli
varðliðsins ítalska og fremstu her-
fylkinga óvinanna. f byrjun þess-
arar viku tóku svo f^éttir að berast
um viðnám, sem ftalir væru teknir
að geta veitt við Piave ána, og í
Ledro dalnum virðast þeir fyrst
hafa getað hrint óvinunum ögn til
baka. Á Trentino svæðinu tóku
Þjóðverjar borgina Asiago og er
borg sú um 20 mílur vestur af
Piave ánni. Að óvinirnir náðu
borg þessari virtist í bili að stofn-a
ítalska hernum í 'hættu, sem nú
var tekinn að búast til varnar inn-
anvert við ofannernda á, en að svo
komnu hefir hætta þe si ekki orð-
ið að meini. Þegar þeta er skrif-
að segja fréttirnar orustu mikla
standa yfir á milli aðal-hersins ít-
alska of óvinanna á istóru svæði
með fram Piave ánni, alla leið frá
Susdeana við rætur Alpafjallanna
til Hadríahafsins. Taka hersveitir
Fra-kka og Englendinga, sem send-
ar h-afa -verið ftölum til hjálpar,
þátt í orustu þessari.
Eins og skýrt var frá í síðasfca
blaði voru sendar sendinefndir frá
Englandi og Frakklandi til ífcalíu.
Var Lloyd George, stjórnarráð-
herra Breta, formaður brezku
nefndarinnar. Hafði þefta þær af-
leiðingar, að til nýrrar herstjórnar
var stofnað á ítalíu. Samibandsráð
allra bandaþjóðanna v-ar stofnsett
og lagði Cadorna, æðsti ‘herforingi
ítala, niður herstjórn og var gerð-
ur meðlimur í þessu nýja stjórnar-
ráði. Búist er við, að þetta nýja
fyrirkomul'ag muni bera góðan á-
rangur.
------o------
Almennar fréttir.
CANADA.
Sala Sigurskuldabréfanna — Viet-
ory Bonds — hófst á mánudaginn í
þessari viku. Var þessu fagn-að með
þriggja inílna langri skrúðgöngu
hér í Winnipeg um helztu götur
borgarinnar. Um 40,000 manns voru
áhorfendur við þetta tækifæri og
inun óliætt að fullyrða að aldrei h
hafi Winnipeg búar sýnt meiri á-
huga fyrir neinu málefni en þessu.
Þegar þetta er skri'fað (miðvikud.)
hafa Sigur-skuldabréf verið -seld
bér í Winnipeg upp á fcvær miljónir
doilara. Er því ek'ki annað hægt
að segja, en vel sé af stað fa.rið.
Skrásetning fyrsta flokk-s her-
skyldaðra manna var lokið á laug-
ardaginn var. Skýrslur, sem birtar
hafa verið, sýna 332,301 menn hafa
-verið skrásettar í öllu Canada og af
mönnum . þe-ssum biðja 310,736
mienn um undanþágu. 1 hverju
einasta fylki er fjöldi, sem fyrsta
flokki tiiheyra og ekki gáfu sig þó
fram á meðan skrásetning -stóð yf-
ir, og í öllum stöðum er lögreglan
nú í óða öpn að leita -þá uppi. — 1
Vancouver báðu fæstir um undan-
þágu, -en flestir í Quebec.
Undirbúningur næstu kosninga
er nú að byrja um alt landið. Sir
Wilfrid Laurier hélt sína fyrstu
ræðu í Quebec Jiann 9. þ.m. og
eins og vænta miátti var h-onum
fagnað þar með mest-u gleðilátum.
Ekki er talið líklegt, að hann
muni ferðast mikið um landið fyr-
ir kosningarnar og lengra vestur á
-bóginn mun hann ekki fara -en til
Winnipeg. — Sir Robert Borden
cr nú að iferðast um strandarfylkin
og heldur þar ræður hér og þar. —
Um alt landið er verið að velja
þingmannaefni og bendir alt til
þess, að -s a m k t ey p u s tj ór n a rm ö n n-
um aukist fylgi með degi hverjum.
Hertoginn af Devon-shire, land-
stjóri Canada, fór í gegn um Winni
peg á þriðjudaginn áleiðis til vest-
urlandsins. Hefir hann í ihyggju
að ferð-ast pm Saskatchewan, Al-
berta og British Coluimibia og koma
í marga þá staði, sem ekki Ihefir
hann komið í áður. Á heimleið
mun hann d-velja nokkra daga hér
í Winnipeg.
BANDARÍKIN.
Stórtjón af eldi varð í New York
á isunnudaginn þann 11. þ.m., þeg-
ar verkstæði Washburn Wire fé-
lagsins brann til kaldra kola. Verk-
stæði -þetta vann fyrir stjórnina að
framleið-slu ýinsr-a hluta til stríðs-
þarfa og er því haldið að þýzksinn-
aðir brennuvargar muni hafa
kveikt eldinn. Skaðinn, sem af
þessu hlauzt, var um tvær miljónir
dollara.
N-okrir meðlimir I.W.W. óeirðar-
flokskins í Bandarfkjunum voru
leiknir illa nýlega í bænum Tul-sa í
Oklahoma ríki. Höfðu menn þoss-
ir verið teknir fastir af lögreglunni
og var verið að flytja þá á lögreglu-
jStöðina, þegar 'hópur af grí-mu-
klæddum mönnum kom þarna að
og tók þá með valdi úr höndum
lögreglunnar; voru þeir sv-o fluttir
af grímumönnum þessum út fyrir
bæinn og þar svo húðstrýktir og
ataðir tjöru, síðan var þeim slept
lausum. — Tildrögin að -þessu eru
sögð að vera þau, að nýlega var
sprengt upp hús eitt í bæ þessum
og sanaðist þetta að vera af
völdum I.W.W. 'flokksins og vakti
þetta gemju mikla á meðal borg)
arbúa.
Leynilögregluþjónar fundu ný-
lega $73,000,000 virði af ýrnsum m-at-
vælum í geymslu í vörnhúsum í
New York og voru öll matvæli
þessi sögð -að vera eign erlendra
félaga. En stjórnin hafði enga til-
kynningu um þetta fengið, sem
hún á þó heimting á að £á sam-
kvæmt. lögum. Verða því eigend-
ur þesasra matvæla annað hvort
að iselja stjórninni þau sanngjörnu
verði eða 'hún slær eign sinni á
þau.
við næstu kosningar------og hinn-
rótti og göfugi -málstaður hafi hér
sem þar áhrif í þá átt að hvetja
þjóðina og sam'eina?”
Markmið sameteypustjórnarinnar
kvað Sir Robert í þessu ávarpi
sínu vera það, að “byggja upp og
endurbæta; að kippa því í lag,
sem aflaga hefði farið. Sfcefnuskrá
þessarar stjórnar útskýrði h-ann svo
í fáum en ekýrum dráttum. — Að
endingu -hvatti hann þjóðina til
þess að láta -allan flokkaríg falla
niður, en h-efja í þass stað upp
merki einlægrar sameiningar og
ljá þeirri stjórn fylgi, scm bygð er
á þörfinni fyrir samhug ög sam-
vinnu og rnynduð þannig, að allir
flokkar landsins taka höndum
samain um hana.
TJTLÖND.
Hjálm-ar Branting. leiðtogi jafn-
aðarmanna í Svíþjóð og núverandi
fjármálaráðherra stjórnarinnar þar
var nýl. allharðorður í garð Þjóð-
verja og eru eftirfylgjandi orð höfð
eftir honum meðal ananrs: “Frið-
urinn fæst vKi sigur lýðveldanna.
Stjórn Þýzkalands er ekki samrým-
anleg anda vorra tím-a. Belgía verð-
ur endurreist og goldnar fullar
skaðabætur. Frakkar verða að fá
Al-sace-Lorraine aftur.”— Hafa blöð
á Þýzkalandi brugðist afarreið við
ummælum þessum og leggja þau
sænskri stjón þá kröfu á herðar
að útskýra hvort í þessu felist al-
gert hlutleysi.
Ávarp Sir R. Bordens.
Sir Robert Borden. hefir nú í
annað sinn sfðan liann varð for-
sætisráðherra eamsteypustjórnar-
in-nar sent ávarp til Oanada])jóðar-
innar og var ávarp þetta birt í öll-
um ensku blöðunum í byrjun þess-
arar vjku. Rúrasins vegna getum
vér ekki í þefcta sinn birt ávarp
þetta í íslenzkri þýðingu og verð-
skuldar ]rað þó fyllilega að koma
fyrir sjóhir íslenzkra lesenda. —
Skýrir Sir Bord-en fyrst frá því, að
tólfta þingi Canada sambandsins
hafi verið slitið í síðasta inánuði og
verði ]>ar af leiðandi gengið til
almennra saimbandskosninga. Sam-
kvæmt lögum hafi þingtíminn ver-
ið úti 1911, en mikilvægra og al-
varlegra onsaka vegna hafi þing-
tíminn ]>á, með samkomulagi
beggja flokkanna, verið fram-
lengdur um eitt ár. í fáum en ljóis-
um dráttum skýrir -hann -svo frá til-
drögunuim, s-em leiddu til þátttöku
þjóð-arinnar f 'strfðinu. Þegar þátt-
taka þessi hófst .og fyrstu sporin
voru stigin var engum mótbárum
hreift á ]iingi, þá stóðu þin-ginenn
allir saman sem einn maður og
vottaði þett-a bezt sarahug í þessu
máli þjóðarinn-ar um alt landið.—
Rúrnar fjögur hundruð þúisundir
manna buðu sig fram sjálfviljug-
lega til herþjónustu og margar
þúisundir m-anna iþessara eru -n-ú
þegar fallnir. Til þess að mögulegt
væri að senda hermönnum þjóðar-
innar hæfilegan liðstyrk varð her-
skyldan óumflýjanleg — þetta varð
eina úrræðið til þess að þátttaka
þjóðarinnar í stríðinu gæti við-
haidiist með heiðri og sóma. Skýrði
Sir Robert svo ítarlega frá ákvæð-
um hcrskyldulagannia og færði rök
að því að lög þessi væru fyllilega
samrýmanleg brezku lýðfrelsi. Þau
kölluðu fram jafnt ríka sem fá-
tæka og öllu h-eldur þá ríku, því
þeir æfctu minna tiikall undan-
þágu. Lög þessi væru ekki miðuð
við neina vi-ssa staði og gerðu öll-
um jafnt undir höfði, háum sem
lágum. — í sambandi við myndun
samsteypustjórnarinnar kemist Sir
Robert þanni-g að orði á einum
stað: “Sé markmið sambands-
stjórnarinn-ar nægilega stórt til
þess að réttlæta samvinnu þeirra
stjórnmálamanna, sem áður voru
andstæðingar og með gagnólík-ar
skoðanir, þá -er það vissulega
nógu stórt til þess að réttlæta sam-
kyns saneiningu í stefnu og hugs-
un kjósendanna — sem örlög sam-
steypustjórnarinniar byggjast nú á
og framtíðar ráðstafanir viðkom-
andi þátttöku þjóðarinnar í stríð-
inu. 1 skotgröfunum berjg-st liber-
alar og conservatfvar -fyrir sameig-
inlegt Can-ada og brezka veldið.
Enginn flokka veggur aðskiiur þá
særðu í sjúkrahúsunum. Hjúkrun-
armenninir spyrja ekki heldur, 1
hvaða flokki þeir særðu séu. Er
til of mikils mæl-st, að þessi sami
andi, sem kemur í ljós í lífi her-
mannanna og sigurþrá, komi einn-
ig í ljós hjá fólki hér heima fyrir i
Benedikt Frímannsson.
Fimtudaginn 1. nóv. -andaðist að
heimili sínu á Giinli, Benedikt
•FrfmannsMon-, fyi'verandi verzlunar-
maður og bsejarstjóri ]rar. Hann
var einn með merkari mönnuin þar
innan héraðs og búinn ágætum
gáfum. Sjúkdóms þess er dró hann
til dauða, kendi hann fyrir rúmu
ári síðan. Var hann heilsulítill alc
þetta síðasta ár og gat eigi talist,
að hann hefði fótaferð, þó hann
lengst af fylgdi fötum, en síðasta
mánuðinn var hann með öllu rúm-
fastur. öllutm sál-arkröftum hélt
hann þó frain til hins síðasta og
ráði og rænu fram í andlátið. Ráð-
stafaði hann öllu fyrir andlát sitt,
húsi sínu og heimili viðkomandi.
Var það mjög eftir upplagi þans,
því hirðu-semi og regla einkendu
allar gjörðir hans alla æfi. A blöð-
uim, sem eftir hann fundust, er ör-
stufct æfiágrip sem fylgir:
“Árið 1853, þann 9. júní, var Bene-
dikt Frfmanneson borinn f hei-m
þenna, á bæ, er Vatnsendi heitir, i
Húnavatnssýslu á Islandi, og ólzt
Iiann upp hjá foreldrum sínum,
Jóhannesi Frímann- Runólfssyni og
Guðrúnu Jónsdóttur, að mestu
leyti þar til hann var 16 ára. Þá
hættu foreldrar hans búskap, en
liann fór f vinnumensku til vanda-
lausra. Á unga aldri vandist h-ann
allri algengri vinnu, bæði til lands
og sjávar og varð því jafnt á sig
kominn 'hvort iheldur hann starf-
rækti.-----
Vorið 1888 fiuttist liann til Aime
ríku og kom 22. júlf til Hallson 1
Norður Dakota, settist að hjá
æskuvin sínum, Júlíusi Berendt-
sen, og var þar til næsfca hausfcs, að
Júifus dó þá f októbermánuði.
Festi Benedikt þá ekki yndi þar
syðm og flufcti til Winnipcg þá um
veturinm, 13. marz, til bróður síns
Benjainíns, sem þá átti heima í
Winnipeg, og bjuggu þeir saman
þangað til 1. nóv. næsfca haust, að
Benjamín dó. Átti Benedikt þá
heimili í Winnipeg um nokkur ár
og 3. maí 1895 giftist -hann nú eftir-
lifandi konu sinni, Ingibjörgu
Björnsdóttur (ólafssonar frá Auð-
úlf-sstöðum í Langadal og Margrét
ar Snæbjörnsdóttur). Dvöldu l>au
í Win-nipeg þar til í marzmánuði
1898, að þau fluttu hingað til
Gimli.”
Ágrip iþetta nær ekki lengra. —
Eftir að þau fluttu að Gimli stund-
aði Benedikt fyrst verzlun um
nokkur ár, þar næst h-afði hann
fólks og vöruflutninga á hendi
milli Selkirk og Gimli á -segl'bát, er
iiann stýrði og áfcti sjálfur.. Stofn-
aði þar næst kjötverzlun, er hann
hélt uppi þar til fyrir þrem árum
síðan.
Ýjnsum trúnaðarstöðum gogndi
hann þar einnig. Eftir að Gimli
hlaut kaupsfaðarréttin-di (Village
Incorporation-), sat hann lengst af
í bæjarráði og bæjarstjóri var hann
kosinn í desember 1914. Hann var
einkar félagslyndur maður og
sainvinnuþýður, þó -hann hin-s veg-
ar væri mjög skoðana fastur og
yrði cigi þokað um ])að, sem hann
áleit rétt vera. Hann var skemtinn
í viðræðum og minnugur á alt er
han-n las og heyrði, og kunni mæta
vel að segja frá atburðum, frá yngri
eða eldri tíð. Hann v-ar rarnm-
íslenzkur í anda og frábærlega vel
að sér í bókmentum og sögu 1-ands
og ])jóðar. Mestar mætur hafði
liann á þeim mönnum, er eigi voru
eins og fólk er flest, en iiöfðu af
nógu að taka, ef í raunir rak, er
leyna kunnu bæði atgjörvi og
mannkostum og -höfðu það eigi til
sýnis. Atti hann og margt sam-
merkt með þeim. Trúmaður var
hann alla æfi og öruggur fylgjandi
hinnar lútersku kirkju. Var trúi-n
Iionum hvorttveggja í senn, innri
nauðsyn og sætt við lífið í von-
brigðum og mótgangi þess. Þann-
ig bar han-n veikindi sín með sér-
stakri hugprýði, og þannig dó
hann.
Þau hjón cignuðust eina dóttur,
Ósk Lovísu, sem nú er fulltíða ald-
urs og stundar bankastörf hér í
borg.
Tvö hálfsystkini og tvær alsystur
á Benedikt heitinn- á lífi. Eru hálf-
systkinin Frimann Frímannsson til
heimilis í Selkirk og V-algerður
Nordail, -kona Sigurðar Nordals við
Geysir í Nýj-a íslandi. Alsysturnar
em Ingibjörg kona Jóns Skardals i
Selkirk og Sigurbjörg Ilannesson
á Gimii, ekkja Jóns Hannessonar
bróður Guðmundar lækn-is og pcó-
fessors í Reykjavík.
Jarðarförin fór fram á laugardag-
irin var þann 10. þ.m. Flutti séra
Rúnólfur Marteinsson húskveðju,
eni ræður í kirkjunni fluttu þeir
séra Hjörtur J. Leó og -séra Carl J.
Olson.
Með Benedikt Frímannssyni er
til moldar genginn maður, er eigi
vildi vaanm sitt vifca í neinu, dreng-
ur góður og tryggur vinur vina.
Atgjörfismaður var hann á marga
lund og einkum að því sem að
8jómensku laut, og átti liann ]»ar
eigi marga jafningja, vandist líka
vosi og hafi snemrna.
Eni svo er sjóferðum lokið, árar
dregnar í bát og báturinn settur
upp, lendingunni náð, — í friðar-
höfninni góðu.
R. P.