Heimskringla - 17.10.1918, Side 4
4. BLAÐSIÐA
HEIMSKRlwGLA
WINNIPEG, I 7 OKTÓBL.A ., . i
WINNIPEG, MANITOBA, 17. OKT. 1918
Stórbreytingar á
Englandi
Rússneskur byltingamaður, Vladimir Bourt-
zeff að nafni, er nú staddur í París á Frakk-
landi. Hafði hann áður ferðast til Englands
og dvalið þar lítið eitt. Frá Frakklandi hygst
hann að haida til Ameríku og ferðast í ýmsa
helztu staði Bandarfkjanna. Við fregnrita
einn í París komst hann þannig að orði um
England, eins og það nú kom honum fyrir
sjónir:
“Eg kom til Englands í ágústmánuði 1914,
skömmu eftir að styrjöldin var hafin. Nú
kom eg þangað aftur í júlímánuði þetta ár og
hlýt að meðganga, að þá gat eg ekki þekt
Engiand fyrir sama land og áður. England í
dag er alveg ólíkt og fyr, ekki eingöngu að
ytra útliti, heldur að öllu leyti.
Gamla England, er eg heimsótti 1914, virt-
ist ókunnugt öllu stríðinu viðkomandi. Um-
ræður manna hneigðust ekki oft að því yfir
heila tekið og úti á götunum sáust ekki margir
hermenn. Fyrir fjórum árum síðan virtist
sem England væri land gjörsnautt af hermönn-
um og meðlimir landhersins—‘fyrirlitlega smá
hersins’, eins og Þjóðverjar komust að orði—
voru engan veginn eins vígamannlegir að ytra
útliti og frakkneskir eða þýzkir hermenn. Svo
virtist, sem England á þessu tímabili gæti ekki
stært sig af öðru en sínum ágæta sjóflota og
sínum snarráðu, veðurbitnu sjóliðsmönnum.
En við seinustu komu mína til Englands
varð eg þess brátt vísari, að stórmiklar breyt-
ingar hefðu átt sér þar stað. Landið í heild
sinni er nú eins og orðið að einni afar-stórri
herstöð. 1 Lundúnaborg og sveitabæjum, á
götunum, á járnbrautarlesfunum, á gististöðv-
unum og ökuvögnunum — í stuttu sagt alls-
staðar þar augum er litið — sér maður nú
hermenn eða eitthvert starfsfólk í sambandi
við stríðið. Borgarar, sem hvorki eru í her-
þjónustu eða við stríðsstörf riðnir, sjást sjald-
an. Hvar sem fólk mætist, í heimahúsum eða
á mannamótum, er stríðið nú aðal-umræðu-
efnið og blöð og tímarit lcindsins fjalla nú um
það að heita má eingöngu. Jafnvel brezka
gripasafnið (Museum), stofnun eins fjarskyld
hernaði og unt er að hugsa sér, hefir tekið
þeim breytingum, að sumar stofur hennar eru
notaðar til ýmsra stríðsstarfa. Mér var mjög
umhugað að heimsækja eina lestrarstofuna,
uppáhaldstað minn til forna. En nú kom eg
þar að læstum dyrum og varð um leið var við
þá breytingu, sem þarna hafði átt sér stað.
Þannig notast nú skólar, opinberar byggingar,
prívat hús mörg o. fl. eingöngu til stríðsþarfa
eða sem skýli fyrir hermenn.
Það hlýt eg þó að segja, að ekkert á Eng-
lartdi vakti nú meir eftirtekt mína en kven-
þjóðin enska. Úti á götunum mætti maður
stöðugt kvenfólki í einkennisbúningum. Marg-
ar þessar stúlkur starfa á orustuvellinum sjálf-
um og eru þannig önnur hönd hermannanna,
sem berjast í skotgröfunum. Nú eru þær ann-
að hvort að koma heim fyrir stutta dvöl eða
þær eru að leggja af stað til vígvallarins
aftur. Auðveldlega má sjá á einarðlegum
svip þeirra, að núverandi störf þeirra hafa
gagntekið alt þeirra líf og þær helga þeim alla
sína krafta. Á meðal þeirra sér maður kven-
fólk, er kemur frá þeim nýlendum Breta, sem
lengst eru burtu — komu sjálfviljuglega til
þess að leggja fram ‘sinn skerf’ fyrir móður-
landið.
Sömuleiðis skipar kvenfólkið á Englandi nú
flestar stöður karhnannanna; innir af hendi
þyngstu erfiðisvinnu í sumum til fellum og
lætúí sér fátt um finnast. Konur aka nú bif-
reiðum, stærri og smærri og fara engu síður
geyst eftir götum en karlmennirnir; þær fást
nú við umsjónar og gæzlu störf og gegna
flestum stjórnarstöðum; úti á ökrunum ganga
þær á eftir plógunum, í skógunum sjást þær
sveifla exi og saga. Karlmennirnir eru komn-
ir til vígvallarins og konurnar hafa orðið að
taka að sér störf þeirra heima fyrir, og þetta
líka borið svo góðan árangur. Kunningi minn >
einn sagði mér, að jarðyrkja á Englandi hefði
fjórfaldast síðan stríðið byrjaði. Þó er jarð-
yrkja þar nú mestmegnis stunduð af kven-
þjóðinni.
Þrátt fyrir stríðið, halda öll opinber störf
brezku þjóðarinnar áfram og engin afturför
eða niðurhrörnun er þar sjáanleg. Þjóð þessi
samlagaði sig hmum nýju og áður óþektu
kjörum á aðdáunarverðan hátt og eg er viss
um einstaklingar hennar margir eiga nú full-
örðugt með að hugsa sér lífið án stríðs!
Stríðið er nú orðið hversdags starf meiri hlut-
ans þar, eða nærri allra þar, mætti segja, og
án þess að vera mikið kvíða slegið talar fólk
þar nú um stríð, sem ef til vill muni endast í
tvö, þrjú ár eða fimm ár lengur. Til þess að
geta háð þetta stríð, hefir brezka þjóðin orð-
ið að breyta allri tilhögun í landi sínu og að
skapa her, sem nú samanstendur af mörgum
miljónum, úr mönnum, er áður voru óæfðir
og fákunnandi í hernaðarlistinni. Og svo vel
hefir þetta tekist, að England er nú ósigrandi.
Stríðið er nú háð þar af allri þjóðinni í órjúf-
anlegri heild. Markmið þjóðar þessarar er
líka sigur til fulls. Það er verkefnið, sem
fram undan liggur og í þessari stefnufestu
brezku þjóðarinnar felst líka tryggingin fyrir
sigri hennar.----
Eg er nú á förum til Ameríku. Fýsir mig
að sjá með eigin augum störf Bandaríkja-
þjóðarinnar í sambandi við stríðið og komast
eftir hvort viljinn að sigra er ekki orðinn þar
að þjóðlegu markmiði. Og enn fremur fer eg
þangað til þess að leggja minn skerf til bar-
áttunnar þar gegn amerískum og þýzkum
Bolshevism — þeirri veraldar plágu.”
Þegar herra Bourtzeff var spurður hver
skoðun hans væri gagnvart sókn Czecho-
Slovaka í Síberíu, svaraði hann samstundis og
hiklaust: “Eg er ákveðinn fylgismaður
Czecho-Slovaka og þeirri stefnu, að skorist sé
í hildarleikinn í Síberíu og vona að þetta geti
borið fljótan og heppilegan árangur. Sann-
færing mín er að þetta sé eina úrræðið til
frelsunar Rússlandi.”
-. . - - - - —- .»
Frægur íslendingur
Enginn lslendingur, fyr eða síðar, hefir náð
annari eins heimsfrægð og Vilhjálmur Stefáns-
son norðurfari. Nafn hans er að heita má á
hvers manns vörum um heim allan. Flestir,
ef ekki allir, vita líka, að hann er af íslenzku
bergi brotinn, norrænn í húð og hár og þar af
leiðandi lítt gjarn að renna af hólmi. Islenzka
og norræna þrekið Iætur ekki hugfallast, þó
“endrum og sinnum gefi á bátinn.”
Síðustu viku birtist um Vilhjálm grein í
merku Boston blaði, sem er all-ítarleg þó hún
sé ekki löng og finst oss hún fyllilega verð-
skulda að koma fyrir augu íslenzkra lesenda.
Þó vér höfum oft flutt greinar um hann áð-
ur, vonum vér að engir skoði rúmi þessu illa
varið. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. —
Greinin umrædda hljóðar sem fygir í ís-
lenzkri þýðingu:
“Svo mikið af dirfsku, hættum og í stuttu
sagt öllum viðburðum réttnefnds æfintýra-
lífs, er samtvinnað landkönnunum Vilhjálms
Stefánssonar, að þó oft hafi frá honum heyrst
þessi fimm ár og hálft síðan hann lagði í sein-
ustu ferð sína til hinna ókönnuðu íshafs-
svæða, mun sagan frá ferðum hans og land-
fundum engu gildi hafa tapað. Sögu þá mun
hann bráðum segja frá ræðupallinum í fyrir-
lestraferðum sínum. Stefánsson er í tölu
allra atorkumestu landkönnunarmanna, sem
til norður íshafanna hafa farið. Leitina eft-
ir norðurpólnum hefir hann eftirskilið öðrum.
1 hans augum húa hin snjófgu svæði hinna
þögulu norðurslóða yfir mörgu, sem engu
síður er þýðingarvert en norðurpóllinn, og
flest af þessu marga hefir honum tekist að
finna. Nú er hann kominn aftur til heimalands
síns Canada og hefir í skýrslum sínum leitt í
í ljós aðal-ástæðuna fyrir því, að í seinni tíð
hefir hann ekki fundið nein ný lönd — sem
er sú, að á þessum parti jarðarhvelsins er ekki
fleiri ný lönd að finna.
Skýrslur hans frá þessum fimm og hálfs árs
tíma sýna, að hann hefir fundið land, sem
enginn hvítur landkönnunarmaður hefir áður
augum litið; hann hefir fundið nýja og áðu,
óþekta strauma, og er það öllu þýðingar-
meira, en þó nýtt land hefði fundist; hann
hefir fært áreiðanlegar sannanir fyrir því, að
nýtt meginland er þarna ekki til, og í þess
stað glöggvað sig á tveimur eyjum, sem báðar
til samans eru um 30,000 fermílur að stærð;
á eyjum þeim hefir hann fundið kol, er engu
síður eru aðgengileg en Spitzbergen kolanám-
urnar og sömuleiðis hefir hann fundið þar
kopar.
Alt, sem hann hefir fundið, verður eign
Canada sambandsins, er hrinti leiðangri hans
af stokkum og kostaði hann að öllu leyti. Fá-
ir hinna mörgu leiðangra norður á bóginn
hafa vakið jafnmikið athygli. Stefánsson
hafði með fyrri ferðum sínum vakið eftirtekt
alls heimsins áður hann lagði af stað í þessa
seinustu. Meðal annars hafði hann fundið
ljóshærðan Eskimóa kynflokk, og Ieiddi þetta
til endalausra bollalegginga á meðal mann-
fræðinga og annara lærðra manna. I bréfi er
hann ritaði frá “Mynni Dease árinnar 18. okt.
1910”, sagði hann meðal annars: “Á körtinu
virðist ekki, að við höfum afkastað miklu;
aðrir hafa komist á undan okkur til Dolphin
og Union Straits — við höfum ferðast þetta
fyrstir að vetrarlagi og fyrstir farið landveg.
Frá mannfræðislegu sjónarmiði og landfræð-
islegu sömuleiðis höfum við þó afkastað ein-
hverju, því við höfum fundið fólk á þeim
svæðum, sem áður voru haldin mannlaus.
Við höfum lifað nokkra mánuði á meðal
fólks, sem aldrei hafði augum litið hvíta menn
eða Indíána (þó haft hefði það fregnir af
þeim) og sem gat ekki glöggvað sig á því, að
eg væri ekki Eskimói — svo takmörkuð var
þekking þessa fólks á útliti hvítra manna.
Við höfum fundið Eskimóa (hvað tungu og
siðvenjur snertir), sem eru nauðalíkir Skandi-
növum í ytra útliti.” Hann heldur því svo
fram, að fundur þessi verði sú byrjun, er leiði
til úrlausnar á spurningunni: “Hvað varð af
þeim 3,000 Skandinövum, sem hurfu frá
Grænlandi á fimtándu öldinni?”
Er hann kom úr leiðangri þessum, var sið-
menningin meir en viljug að heyra hann ítar-
lega skýra þau atriði, sem hann hafði að eins
stuttlega drepið á í fréttaskýrslum sínum við
og við. Og hinn hugsandi heimur var ekki
meir en ögn farinn að átta sig á þeim undra-
verða fróðleik, er hann hafði verið að flytja,
þegar hann var lagður af stað í einn leiðang-
urinn enn. Nú var hann farinn, að sagt var, í
leit eftir nýju meginlandi og var haldið, að
þessi leiðangur hans myndi ekki vara leng-
ur yfir en þrjú ár. Hvorttveggju áform þessi
brugðust. Þeir atburðir komu fynr, sem alls
ekki hafði verið hægt að reikna upp á fyrir
fram. Slíkt er títt í norðurhöfum. Skipið
Karluk fórst og þeir, sem með því höfðu siglt
norður á bóginn, urðu aðskila. Bartlett kaf-
teini og átta öðrum var bjargað. Til Stefáns-
sonar spurðist ekki neitt all-Iengi, en sá spá-
dómur Bartletts, að hann myndi ‘skila sér’,
náði þó að rætast. En ófáanlegur var hann
að hætta að svo búnu og þrátt fyrir þó tapið
á Karluk þýddi tveggja ára töf, hélt hann
landkönnunum sínum áfram.
Eins og þegar hefir verið tekið fram til-
heyrir alt, sem hann hefir fundið, Canada sam-
bandinu, en á komandi hausti og vetri verður
honum þó leyft að segja all-ítarlega frá öllu,
bæði í Canada og Bandaríkjunum. Jafnvel
þó blöðin vissu eitthvað um fundi hans og um
sumt af því, er hann hefir orðið var þenna
fimm og hálfs árs tíma, væri óviðeigandi að
þau færi nú að birta það og þannig að reyna
að draga úr ánægjunni, er fólk hefir af því
að heyra Stefánsson segja frá þessu sjálfan.
Vilhjálmur Stefánsson, þrátt fyrir stafsetn-
inguna á nafni hans, er Canadamaður í húð
og hár. Hann er fæddur í Manitoba og af
íslenzku bergi brotinn. Undirbúningsmentun
sína fékk hann í Manitoba og við ríkishá-
skólann í Norður Dakota, þar sem hann út-
skrifaðist. Fullnaðar mentun hlaut hann við
Harvard háskólann og gerði þetta honum
mögulegt að leggja í rannsóknar Ieiðangur til
Islands árið 1905. Ferð sú var byrjunin, er
vakti landkönnunar Iöngun hans, og stöðugt
síðan hefir hann annað hvort verið að ferðast
um hinar þögulu norðurslóðir eða semja rit-
gerðir og halda fróðlega fyrir lestra um það,
sem hann hefir séð á þessum ferðum sínum.
Hann er einhver sá skemtilegasti ræðumað-
ur, sem fjallað hefir um rannsóknar tilraunir
í norður íshöfunum. Margar þúsundir eru
jafnan til staðar að heyra til hans og aldrei
er annars getið, en góður rómur sé gerður að
ræðum hans og fyrirlestrum.”
*..... - ■■ ■ ---------—--------— - - ■*
Stuðlið að velgengni
Ganada
Á undan síðasta sigurláni töldu fjármála-
menn landsins margir útlitið mjög tvísýnt
hvað Canada snerti. Stjórnin gat engin lán
fengið erlendis. En varð nauðsynlega að
hafa mikið fé með höndum til þess að geta
mætt hinum margvíslega stríðskostnaði. Og
þar sem fé þetta fékst ekki utan að, hlaut
Canada að stóla upp á eigin krafta og að
skora á aðstoð þegna sinna.
Svo fram úr skarandi góðar voru undir-
tektir þjóðarinnar 1917, þegar sigurlánið var
hafið, að hið ískyggilega útlit tók algerðri
breytingu. Canada var ekki í fjárþröng leng-
ur, þar sem meira fékst en um var beðið.
Alt var nú eins og knúð áfram af nýju hreyfi-
afli, landbúnaður allur og í stuttu sagt allur
iðnaður þjóðarinnar. Verzlunarlífið varð
að stórum mun fjörugra og velgengni þjóðar-
innar yfir höfuð á fastari grundvelli en áður.
nODD’S NÝRNA PILLUR, *ó«ai
lyriT allskonar nýrnaveiki. Lækni
gigt, bakverk og sykurveiki. Dodd’s
Kidniey Pills, 50c. askjan, sex öskj-
ur fyrir $2.50, fijá öllum lyfsölum
eða frá Dodd’s Medicine Go., Ltd,
Toronto, Onk
Eins og áður hefir verið tekið
fram, var nú fylkisstjórnum, sveita-
stjórnum og öðrum lántakendum
mögulegt að fá þarfir sínar upp-
fyltar heima fyrir. Hinar drengi-
legu undirtektir þjóðarinnar höfðu
gert þetta að verkum.
Sigurlánið 1918 miðar að sama
takmarki og 1917. Á undirtektum
þjóðarinnar hvílir nú fjárhagsleg
framtíðar velferð Canada. Vel
gengni allra einstaklinga hennar er
undir þessu komin.
Stuðlið að velgengni sjálfra yðar
og velferð Canada með því að vera
viðbúin að kaupa
VICTORY BONDS.
------o------
Frú Guðrún Thorlacíus
Hinn 8. febr. s. 1. andaðist frú
Guðrún Thorlacius að heirniíli
tengdasonar síns og bróðursonar,
séra Friðriks J. Bergmanns í Winni-
peg, 87 ára að aldri.
Hún var fædd í Garðsvík á Sval-
barðsströnd árið 1831. Foreldrar
hennar voru merkishjónin Jónas Sig-
fússon Bergmann bóndi í Garðsvík
og Valgerður Eiríksdóttir. Faðir
Jónasar var Sigfús bóndi í Víðidals-
tungu, Sigfússonar prests á Ríp og
Felli, Sigurðssonar prests að Barði
f Fljótum Einarssonar. En kona
séra Sigurðar var Ragnhildur dóttir
Guðmundar prests Jónssonar á
Helgafelli, bróður frú Valgerðar
konu Steins biskups. Björn faðir
Guðmundar landlæknis og frú Guð-
rún voru bræðrabörn. Valgerður
móðir frú Guðrúnar var dóttir Ei-
ríks prests að Þóroddsstað í Köldu-
krnn og fyrri konu han-s Kristínar
Ingveldar Jónsdóttur Pálssonar og
Guðrúnar. Minnir mig, að frú Elín-
borg systir Péturs biskups og Jóns
háyfirdómara segði mér, að Guðrún
þessi hefði verið ömmusystir þeirra
systkina. Víst er það, að frú Elín-
borg og frú Guðrún áttu skamt að
rokja ættir sínar.
Ljósmóðir frú Guðrúnar, Ingi-
björg Helgadóttir, kona Indriða
Jónssonar bónda í Leifshúsum, flutti
hana heim með sér næturgamia og
átti hún ekki að vera ihjá þeim ihjó.n-
um í fyrstu, nema meðan móðirin
væri að hressast, en sú dvöl varð
lemigri. Tóku þau hjón slfku ást-
fóstri við barnið, að þau mæltust til
að fá að ala hana upp, og var hún
hjá þeim í 13 ár, unz hún fór til móð-
ur sinnar, er þá var orðin ekkja.
Dvaidi hún hjá móður sinni nokk-
ur ár. Árið 1853 giftist hún séra
Magnúsi Thorlacíusi, er þá var orð-
inn aðstoðarprestur hjá föður sín-
um, Hallgrími prófasti á Hmfmagili.
Átba árum eftir að hún kom í Eyja-
fjörð, fékk séra Magnús veitingu fyr-
ir Fagranes prestakalli og nokkrum
árum síðar voru honum veitt Reyni-
staðarþing, og bjuggu þau á Haf-
steinsstöðum. Mann sinn misti hún
í desembermánuði 1878. Hætti hún
þá búskap næsta vor óg bygði jörð-
iima Jóni hreppstjóra og dbrm.
Jónssyni og Steinunni Árnadóttur
frá Mói, er þar búa enn og hafa
keypt þá jörð. Á Hafsteinsstöðum
dvaldi hún til ársims 1889, að hún
fluttist með syni isínum Hallgrími
presti Thorlacíusi að Ríp, er þá
hafði fengið veitingu fyrir því
brauði. Árið 1894 fluttist hún með
honum að Glaumbæ, en árið 1897 fór
hún til tengdasonar síns séna Frið-
riks Bergmanns f Winnipeg.
Þau séra Magnús og frú Guðrún
ábtu 5 börn. Af þeim eru 4 á lífi:
Guðrún ekkja séra Friðriks BeTg-
manns elzt, Anma glft Grönvold yfir-
kennara við mentaskólann í Hamar
í Noregi, Elín ógift í Winnipeg og
Haillgrímur prestur Thorlacíus í
Glaumbæ. Dren-g misbu þau árs-
gamlan.
Indriði fóstri frú Guðrúmar var
valinkuimnur sæmdarmaður í lwí-
vetn-a, gáfumaður hirnn mesti og
skáld gott. Lýslr bændavfsa sú, er
um hann var kveðim, honum einkar
vel:
“Gíarn á fagurt glaðlyndi,
greiðafús og vitur,
orðahagur Indriði
á Leifsihúsu-m situr.”
En enginn var hamn auðmaður,
og fékk þvf frú Guðrún litla tilsögn
í uppvexti sínum, enda voru konur
þá lítt settar til m-enba, en mjög
glæddi kveðskapur Indriða hjá
h-enni skáldle-gan smekk. Frú Guð-
rún var sjálf ágætlega bagorð, en fór
dult með. Svo voru og -f-lest -systkini
hennar, t. d. Jón Bergmann, faðir
séra Friðriks.
En þótt Guðrún -væri í uppvext-
inum lítt til menta sett, þá var hún
þó ágætl-ega að sér bæði til mupns
og handa, og iþað langt um fram
marga skóladrósina. Sjálf kendi hún
sér að skrifa ágæta hömd, reikning
og réttritun Dan-ska tungu nam
hún -af sjálfsdáðum svo vel, að hún
skildi hverja bók á þvf máli reip-
rennandi. í sögu var hún einkar vel
að sér og hafði un-un af ættfræði.
Eitt sinn hlustaði sá er þetta ritað
á viðræður þeirra frú Elinborgar
systur Péturs biskups og fnl Guð-
rúnar og hafði uiniun af, því báðar
voru einkar fróðar og höfðu frá
mörgu að segja. Skorti þar ei vitur-
leg orð.
Frú Guðrún var hin mesta starts-
kona og stjórnsöm -á heimili. Kom
það sér vel, þvf séra Magnúsi var
fremur ósýnt um búskap. Var hann
of bókhneigður til þess, og áhugi
hams allur við lestur og fróðleik, er
ekki var embættisönmum að sinna.
Il-afði hamm og úr mægu að blaða,
því eims stórt bókasafn hefir -að lík-
infu-m enginn átt hér nyrðra, nema
ef vera skyl-di séra Þorvaldur á Mei.
Bústjórnin kom Iþví mest á frú Guð-
rúnu og gegndi hún henni með frá-
bærri atorku, og var jafnam sfsbarf-
andi og athugul úti og inni.
Frú Guðrún v-ar ekki smáfríð, en
höfðingleg og tilikomumikil í sjón og
kjarkleg, gáfu-leg og skemtin í við-
ræðum, tryggiynd og vimföist. Elsk-
uðu h-ana o-g virtu allir þeir, er
nokkur kyrami höfðu af ihenni. Hún
er ein af þeim fáu konum, sem eg
undiantekningarlaust hefi alla heyrt
lofa, en en-gan lasta. Minning
hemnar mun lengi í iheiðri höfð hér
í Skagafirði.
Jón Björnsson,
(Nágranni til forraa.)
— ísafold.
Gjafir til Jóns
Sigurðssonar
télagsins.
Mrs. Kristín Lovísa Johnson, Sel-
kirk, $2; Mrs. G. Amderson, Pike
Peak, >Sask., $5; Mrs. Jónina Arnaeon,
Wpg., $3; Mrs. H. Floyd, Vidir, Man.,
$5; Si-gurjón Axdai, Wynyard, Sask.,
$5; Mrs. S. Sigurðsson, Keewatin, $2;
Ben. Rafnkelsson, Clarkleigh, $25;
Miss Thordí-s Gísl-adóttir, Plumas,
Man„ $1; Miss L. B. Johnson, Wpg.,
$2; Mrs. O. Andersom, Lögberg, Sask.,
$5; Mrs. Björn Jóhannsson, Vfðir,
$5; Mrs. Guðr. Stengrímsdóttir Ouð-
mundisons, Foaim Lake, $5.
Safnað af Mrs. B. rawford, Win-
nipegosis:—Oiafur Jóhannesson, $1;
August Johnson, $1; Mrs. Th. John-
sora $2, Otto Christianson $1, Thorar-
inn J-ohnson $1, Ármann Bjömsson
$1, Gunnlaugur Schaldemoise $1, H.
Leo Hjálmarsson $2, Vilh. Johnson
$1, Gunnar Friðriksson $1, Bjarni
Árniason $1, Jón Stefánsson $1, Mal-
vin Einarsson $1, Paul Pau-lison $1,
Finnbogi Hjálmar-sson $1, Jón Thor-
leifsson $1, Guðm. Guðhmundsson
$2, Stefán Jónsson $1, Thor. Stefáns-
son 10c„ Albert Stefánson $2, Ellis
Magrtússon $1, Ágústa Crawford $1,
Björn S. Crawtford $1.
Sokkar.—Mrs. Liija Bergm-ann, Bif-
röst, 1 par; Mra. Ásta Árnason, Pe-m-
bina, N. D„ 1 par; Miss Jódís Sigurðs-
son, Húsavík, 2 pör; Mra. Guðrún
Keliy, Selkirk, 2 pör.
Frá Mra. O. Thorlacius, Doliy Bay,
$5; Mre. E Steíánsson, Pebible Beach,
$3; Mrs. Margr. Eiiasson, fyrir ísl.
hermenn, $3; kvenfél. ísafold, Víðir
P.O., fyrir ísl. iher-menn, $20; kvenfél.
Sólskin, Vancouver, $30.
Félagið þakkar innilega allar þess-
ar gjafir.
Rury Arnason, féh.
631 Furby str., W.peg.
/---------------------------
Hafið þérborgað
Heimskrmglu ?
- - ---- - - -■*