Heimskringla - 17.10.1918, Blaðsíða 8
8. BLAÐSIÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 1 7. OKTóBER 1918
t— Cr bæ og bygð.
ASstoSiS hermennina! KaupiS Victory Bonds.
TIL LEIGU gott herbergi í góðu húsi, þar sem öll þægindi eru; kom- ið til 696 Banning str.
Fundi þeim, er halda átti í Skjaldborg næsta mánudagskvöld til aö raeða um myndun þjóðræknis- félags, hefir orðið að fresta til óá- kveöins tíma, vegna samfundabanns heilbrigðisnefndarinnar.
Björn Björnsson bóndi frá Argyle var hér á ferð um miðja síðustu \)ku. Hann bjóst við að skreppa ofan til Gimli áður hann héldi heim- leiðis aftur.
Philippus Johnson, 4rá Stony Hill, kom snögga ferð til borgarinnar síð- ustu viku. Sagði alt gott að frétta úr sínu bygðarlagi.
Lagarfoss og Gullfoss eru nú 1 New York; búist er við, að Gullfoss leggi aif stað til íslands' í kring um þann 21. þ.m.
Jón G. Gillies skrapp vestur til Kandahar nýlega og dvaldi þai nokkra daga.
ASstoSiS hermennina! KaupiS Victory Bonds.
Mr. og Mrs. Jóni ólafsson frá Glen- boro komu til Winnipeg fyrri viku og dvöldu ihér nokkra daga.
Bíaðið Gazette í Glenboro, -segir fcíð þafa haldist þar frekar ósfcöð- uga í ait haust og sökum töluverðra rigrdnga hafi þreskingin verið uppi- haldssöm og muni ekki taka enda fyr en eftir miðjan þenna mánuð.
S. Sigurðsson frá Lundar, Man. er dýkominn til borgarinnar; hann ætlar að ganga á skóla hér í vetur.
Jónas Stefánsson (Kaldibak), sem nú á heima við Baldur, Mian., kom til Winnipeg á laugardaginn var. Sagði góða líðan fólks þar vestra og þreskingu við iþað að vem lokið. Hann hélt heimleiðis á mánudaginn.
Steinn O. Tliornpson, sonur S. Thompsonar aktýgjasmiðs í West Selkirk, og isern verið hefir í Canada- hernum á Frakklandi, kom heim aftur á föstudaginn var. Fékk hann heimfararleyfi til þess að afljúka lækmaakólanámi. Var áður búinn að stunda iæknfefræði tvö ár við iæknaskólann hér í Winnipeg.
Kvenfél. Tjaldibijðat-siafnaðar befir frestað þakklætis samkemunni, sem það hafði auglýst, til óákveðins tírrra.
Sokkar sendir 2?3. aðstoðarfél.: —r Mrs, Thorst. Thorarinisson, Beverley str., 2 pör; Mrs. Stefán Jóhannsson, Bevprley str.. 2 pör; Mrs. T. Johnson, Wirthipegosis, Mian., 2 pör. — Með þakklæti, Mrs. T. H. Johnson, 629 Meermo't Ave.
“Leaves and Letters,”— Eftir Baldur Jónsson. Fæst keypt hjá séra Rögnv. Pét- urssyni, 650 Maryland St., Winni- peg; Miss Kristrúnu Sigvaldason að Baldur, Man., og hjá aðal út- sölumanni. — Andrés Helgason, Wynyrad, Sask. Kostar $1.60. Send póstfrítt.
HVER ER TANNLÆKNIR YÐAR?
Varanlegir ‘Crowns, og Tannfyllingar —búnar til úr beztu efnum. —-sterklega bygðar, þar sem mest reynir á. —þægiiegt að bíta með þeim. ■■ —fagu rlega tilbúnar. An —ending ábyrgst. N J
HVALBEINS VUL- AlA CÁNITE TANN- \ 1 ( } SETTI MÍN, Hvert T L V —ge.fa aftur unglegt útlit. —rétt og vísindalega gorðar. —paasa vel í munni. —þekkjast ekki frá yðar eigin tönnum. —þægilegar til brúks. ij —Ijómandi vel smíðaðar. U — ending ábyrgst.
BR. R0BINS0N
Tannlæknir og Félagar hana fl BIRKS BLDG, WINNIPEG
F. H. ísfjörð, að 683 Bevcrley str..
kom heim aftur frá Baidur, Man., ó
laug>ardaginn. Hefir hann unnið
þar í þreskingarvinnu um tíma.
Árni Yigfússon, frá Bifröst P. O.
í Nýja íslandi, var hér á ferð í byrj
un vikunnar. Sagði haþn alt gott
að frétta úr sínu hygðariagi, bæði
uppskeru og heyskap hafa verið i
betra meðallagi.
Gjafir í sjóð aðstoðarfélags 223.
herdeildarinnar. — Prá vini deildar
innar $75; Mrs. J. Ingimundarson,
Selkirk, $5; Paul Magnússon, Leslie,
$5; J6h. Kristjánsson, Mozart, $5;
Vigfús Thorsteinsson, $2; Baldvin
Johnison, $5. — Móttekið með þakk
læti. — Mrs. B. J. Brandson, aðstoð-
arritari, 776 Victor St.
KaupiS Victory Bonds, svo aS
frelsiS megi lifa!
Þann 14. þm. fékk Mr. S. Aust-
manm skeyti ifrá Ottawa-Htjórninni
um það, að sonur hans, J. V. Aust-
mann, væri kominn til Holiands. —
Eins og kunnugt er ihefir J. V. A.
verið fangi á Pýzkalandi síðan 1915.
Þann 10. okt. síðastl. andaðist að
heimili dóttur sinnar og temgdason-
ar við Hallson, N. D., ekkjan Sigríð-
ur Þorláksdóttir, systir Mag. Ouðm.
Þorlákssonar og þeirra systkina,
nær óttræðu.
Nú í síðastliðinni viku andaðist
hjá tengdasyni sínum og dófrtur, Mr.
og Mrs. Daníel Johnson, við Hallson,
N. Dak., ekkjan Kristín Johnson, há-
öldruð. Hún var jarðsungin á
sunnudaginn var þann 13. þm.
Nýiskeð andaðist í herbúðum
Bandarfkjanna sonur Hannesar
bónda Björmsonar við Mountain,
N.D., úr spönsku veikinni. Pilturinn
var heima hjá foreldrum sínum fyr-
ir fáum vikum síéan, en veiktist
sfruttu eftir að suður kom. Hann
var jarðsettur við Mountain.
AðstoðiS hermennina!
Kaupið Victory Bonds.
Minningar guðsþjónustan við ís-
lennlingafujót, sem haldast átti 13.
þ.m. og var frestað vissra orsaka
vegna, verður haldin á sunnudaginn
kemur (þann 20.) kl. 3 e. h., eins og
augiýsit var í síðasta blaði.
Lúðvík H. J. Laxdal, sem í undan-
farin mörg ár ihefir búið að Kanda-
har, Sask., er nú að flytja þaðan al-
farinn til California. Hamn hefir
uppboðssölu á gripum, ihestum,
verkfærum og húsbúnaði næsi-
komiandi iaugardag, 19. okt.
-------o—i-----
Til Jóns Jónssonar frá Sleðbrjót.
Eg þakka þér innilega fyrir grein
þfma í Lögbergi 26. sept um sam-
bandsmálið ísienzka. Hún er rituð
af sanngirni og þekkingu, svo sem
vænta mátti. Vonandi verður hún
til þess að menn hér vestra fái
gleggri 'hugmynd um málið og af-
stöðu samnimgsaðila en áður.
Eg hefi hér ifyrir framan mig upp-
kast af greimanstúf, sem eg ætlaði að
senda Heimskringlu um það leyti,
sem ritsrt. Lögbergs virtist hafa lok-
ið afchugasemdum sfnum við frum-
varpið, en drógst á langinn að full-
gera. En nú þykir mér vænt, að
svo varð, þvf ekki hefði eg getað
skrifað af jafn-mikilli þekkingu og
þú, enda naumast að vænta. Þú ert
þaulæfður istjórnmálamaður, en eg
ekki. Mér virðist þú ihafa hitt nagl-
amn á höfuðið f flesfcum, ef ekki öll-
um atriðum, þó eg ihefði máske kos-
ið að ifara frekara út í 2 eða 3 ein-
stök atriði.
Virðingarfylst,
Sigurður Magnússon.
-------o-------
Sokkagafir til Jóns Sigurðssonar
félagsins.
Mrs. J. P. Abrahamsson, Sinelair
P.O., 2 pör; Mrs. Thorv. Swamson,
W.peg, 1 par; Mrs. G. Sölvason, W.-
bourne, 2 pör; Mrs. K. H. Thomas-
son, Hecla P.O., Man., 4 pör; Mrs. S.
Thorsteinsson, Berosford, 3 pör; Mrs.
G. A. Johnson, Beresford, 2 pör; Mrs.
E. Erlindisson, Langruth, 1 par; frá
kvemféi. Krisbnes-safn., Kristnes P.
O., Sask., 11 j>ör; kvenfél. Sólskin, í
Vancouver, 2 pör. —
Þessar konur bafa prjónað ifyrir fé-
lagið; Mrs. Björg Olson, Winnipeg,
10 pör; Mrs. Thorv. Johnson, Wpg.,
3 pör; Mrs. Guðrún Jóhannsson, Vic-
-tor str., 3 pör; Miss Guðr. Johmson,
Wpg., 3 pör; Miss J. Abrahamson,
Winnipeg, 5 pör; Mrs. S. Hannesson,
Wpg., 3 pör.
Mr. Thorleifur Pétursson, Geysir P.
O., hefir gefið félaginu 7—8 pund af
ágætis bandi.
Fyrir Bed Cross h afa prjónað fyrir
félagið: Mrs. Finmur Jónsson, Wpg.,
2 pör; Mrs. Valdís Swamson, Wpg.,
3 pör.
Fyrir alla þessa miklu hjálp er fé-
lagið hjartanlega þakklátt. Nú höf-
um við fengið nóga sokka í jólakass-
ana drengjanna, og þeir senn komn-
ir á stað yfir hafið.
Guðrún Skaptason.
------o-------
Gunnar á Hlíðarenda.
(Framh. frá 7. ibls.)
hvern hátt, ef Njáll vaeri hafður
þar í huga. i-n höf. fjölyrðir aldr-
ei meira en þörf gerist—getur hafa
þótt nægja, að segja skýrt um
Gunnar, að honum hefndist. Sama
væri þá auðsætt um Njál. Mest list
í að láta lesendur og heyrendur
sögunnar ráða í þetta af rás við-
atburðanna. Og ef menn fallast
á þenna skilning, verður dásamleg
eining í allri Njálu.
En skáldið vill áreiðanlega leiða
oss fleira fyrir sjónir með frásögn
sinni af ráðum Njáls. Ráð hans
fara öll á sama veg, snúast öll hon-
um og Gunnari til óhamingju.
Hann ræður Gunnari að fara utan
(c. 28). Af því hlauzt ógæfan
mikla, hjónaband Gunnars og
Hallgerðar. Fyrir ráð hans og
meðmæli fær Þráinn Sigfússon
Þorgerðar, dóttur Hallgerðar (c.
34). Af því náði Hallgerður tök-
um á honum. Fyrir bón hennar
fór hann með Sigmundi að vígi
Þórðar leysingjasonar (c. 41—c.
42). En af því hefst fjandskapur
Njálssona og Þráins, er lauk þann-
ig, að Skarphéðinn vó hann á
Markarfljóti. En sonur Þráins og
Þorgerðar var Höskuldur Hvíta-
nessgoði, er Njálssynir drápu. En
ef því supu þeir og Njáll banaseyð-
ið. Af þremur fyrstu ráðum Njáls
sprettur öll ógæfa í Njálu. Enn'
réð hann Gunnari það heilræði að
vega “aldri meir í hinn sama kné- j
runn enn um sinn" (c. 55). Hugs-j
unin er auðskilin: Því fleiri sár
sem sami maður sló sömu ætt, því
hættara var við 'hefndum. En
þetta afbragðs ráð hafði þveröf- j
ugan árangur við það, sem til var j
ætlað, varð einmitt til þess, að
Gunnar vó tvisvar í sama kné- j
runn. Mörður frétti ráðið og hag- !
nýtti sér það, réð að koma Þor-
geiri Otkelssyni í fjandskap og að-
för að Gunnari, og stilla svo til, að
Þorgeir félli fyrir honum og það
hepnaðist.
Sá les undarlega Njálu, er held-
ur, að höf. hafi verið annast um j
sögulegar staðreyndir, er hann
samdi frásagnir sínar af ráðum j
Njáls. Þá væru þær að líkindumi
bæði þurrari og styttri. Höf. hef-'
ir ekki hirt samvizkusamlega um
einstök sannindi né staðreyndir,
heldur almenn lífssannindi. öll
ráð Njáls segja sömu harmsögu:
Þótt mannleg vizka leggist djúpt,
fær hún ekki “skygnst inn í hið
hulda, sem nokkuð er fjær”, ekki
séð við ráðum skapanna né stíflað
straum þeirra og veitt honum í
annan farveg.
Líklega hefir Njáll verið mikill
vin Gunnars og ráðunautur hans
góður, bæði í málaferlum og fleiri
efnum. Og ráðleitanir og ráðlegg-
ingar hafa víst tíðkast allmjög
meðal vor og frændpjóða vorra í
fornöld. Þá er menn voru ráð-
þrota — og það hefir ef til vill ver-
ið oftar en nú—, sneru þeir sér til
þeirra, er gnótt áttu þar fyrir. Við
þenna raunveruleik styðst frásögn-
in af ráðum Njáls. Og sama máli
gegnir um ráðaleitanir til Marðar
og ráðleggingar hans.
— Lítum nú á lofun Gunnars
og Hallgerðar. Þá er hann kom
frá útlöndum, heimsótti hann Njál
og kvaðst þá til þings ætla. Njáll
latti hann farar — grunar, til hvers
þingreið hans dregur. En hér fór
Gunnar ekki að ráðum hans. Njáll
getur nú ekki girt fyrir að óham-
ingja renni af ráði hans (er hann
réð Gunnari að fara utan).
(Meira.)
Til lesendanna
Félög þau, er búa til mynda-
mótin fyrir blöðin, hafa nú
hækkað prísa sína að miklum
mun. Hér eftir kostar því
$2.50 fyrir hverja vanalega
eins dálks mynd, og $5.00
fyrir tveggja dálka breiða
mynd á vanalegri lengd. —
Þetta eru þeir beðnir að hafa
hugfast, er myndir senda til
birtingar í blaðinu.
RES. ’PHONB: F. R. 3755
Dr. GEO. H. CARLISLE
Stundar Einfföngu Eyrna, Augna,
Nef og Kverka-sjúkdóma.
ROOM 710 STERL.ING BANK
Phone: M. 1284
THE BOOK 0F
KK0WLED6E
(t 20 BINDXXM)
öll bindin fást keypt á skrif-
stefu Heimskringlu. — FinniS
eða skrifið
S. D . B. STEPHANSON.
Prentuð ritfæri
Lesendur Heimskringlu geta
keypt hjá oss laglega preataða
bréfhausa og umslög, — 500 af
hverju — fyrir $7.00. Skrifið
nöfn og áritun o. s. frv. skýrt og
sendið peningana með pöntuninni.
The Viking Press, Ltd.
Box 3171 Winnipeg
Skólaganga Yðar.
Þetta er veralunarskóiinn, sepi í 36 ár hefir undirbúið unga fólkið
f þessu landi í beztu skrifstofustöðnrnar. Þér ættuð að ganga á
þenna skóla og njóta góðrar kenslu, þygða á svo langri reynslu.
STŒRÐ OG ÞÝÐING KENSLUSTARFA VORS
Vorir sameinuðu skólar. “Winnipeg and Regina Federal College”,
hafa kent og undirbúið fleiri en 24,000 stúdenta fyrtr verzlunarlífið.
Þeir finnast allsstaðar, þar sem stór verzlunarjstarfsemi á sér stað.
Þeir sýna eitnndg, hvar sem þeir eru, hvað kensluaðferðir vorar eru
notagóðar. — Þessi stóri hópur talar fyrir oss. — Viltu koma með
öðrum sjáifsboðum er innritast á skólann á mánudaginn kemur?
Dag og kvöld kensla.
Winnipeg Business College
222 PORTAGE AVE. George S. Houston, Gen. Manager.
Bújarðir í Britísh Columbia:
Vér leggjum upp í skoðunarferð til British Oolumbla
laugardagana næstu, nefnil. 19. og 26. okt. og 2. nóv.. Þar eig-
um vér þúsundir ekra af góðu búlandi f hinum velþektu
Bulkley og Naas dölum, viðurkendir að vera beztu dalirnir í
fylkinu. Löndin hafa verið vel valin til ábúnaðar, jarðvegur-
inn djúpur og frjór, og gnægð af vatni og tim/bri; járnbrautir
nálægt og svo indælis veðurlag æfinlega. — Ákjósanlegasti
staður fyrir tilbreytilegan búskap.
Vér bjóðum þessi lönd fyrir $15 til $25 ekruna, í stórum
eða smáum blettum, og með ákjósanlegustu kjörum, lítil nið-
urborgun að eins, lág renta, og afborganirnar dreifðar yfir
mörg ár eftir vild kaupandans. Eftir að niðunborgun er gerð,
er ekki ætiast til, að frekari borgun sé gjörð — nema renturn-
ar — fyr en við byrjun þriðja búskaparársins. Aðstoð er
einnig gefin ábúendum, ef þörf gerist, til að kaupa skepnur
og verkfæri, og vellíðan ábúandans sérstakur gaumur gefinn.
Sérstaklega niðursett járnbrautarfar vestur.
Skrifið oss strax og látið oss vita, hvort þér getið komið
með oss, svo vér getum gjört ráðstafanir fyrir farbréfi yðar.
Þér standið yður ekkí við að missa af þessu tækifæri.
Address:
Harold S. Johnston, :
Telephone: Main 4044
Sigurðsson, Thorvaldson
Co.,Ltd.—Arborg, Man.
License No. 8—16028
Bóndinn kemur heim úr Arborgar-kaupstað.
Húsfreyjan: “Heyrðu! keyptirðu ekki þetta, sem eg
bað þig um aS kaupá?” — “Jú.” — "Hvar er það?” —
“ÞaS er hérna.” — “ÞaS er alveg satt, og hvaS þaS er gott
og fallegt. En hvernig stendur á, aS þú kemur aftur meS
svo mikiS af peningunum?" — "Eg keypti þaS þar sem
margir góSir munir eru á lágu verSi, í SigurSson, Thorvald-
son búSinni.”
Vér seljum í næstu 2 vikur:
Reykta svínsbóga, vanaverS 35c, nú aS eins. . . . 31c.
Haframjöl, Robin Hood stauka, vanav. 35c.
og þar yfir, nú fyrir......................32c.
Luktir, góSa tegund, ódýrar þó h ildsöluverS
verS væri, fyrir. .......................$1.00
Royal Mint, Gold Cross, Meerchaum tóbak,
skoriS, hver pakki fyrir . . . ............lOc.
Karlm. nærföt, fleece lined, hvert fat fyrir .... $1.25
Kven- hússkór fyrír........ . . . . $2.25 tíl $3.15
Karlm. vetrarteryjur, bæSi sauSskinns og tau-
fóSraSar, af ýmsum prísum. Úr miklu aS
velja.
Salt, fínt og gróft, í tunnum, (280 lbs.) fyrir . . $4.45
Belt dressing geta þreskjarar fengiS hér.
I
Kolaverðið lækkað 25 til 40 prct.
mett þvl nft brfika
New Method Fuel Saver
MEIRI HITI MINNI ASKA MINNA VERK
I>etta áhald heflr verlJS f hrfikl f WÍnnipcK I l»rjíl
Ábyr^Ht ah wpara frft 25 tll 40 pröcent af eldM-
neytl ok ft Mama tlma »efa melrl hlta. I»ah borprar
nIr ah minNta koMti fjórum MÍnnum ft einuin vetri,
ok hrökaMt f Mambandl vlh hvaha teKund af eldfærl
Mem er (ofnn, matreiftHluMtftr, mihhitunarfærl etc.)
KOSTAR $3.75 OG MEIRA
Fielrl en 2000 N. M. F. Savern eru í brúki í Winnipeg:, og eftirspurn-
ln eykst daglega, því einn rábleggur öbrum aö brúka þaö. “Kauptu N.
M. F. Savers; þeir vissulega borga sig”—þetta heyrir maöur daglega á
strætisvögnum og allsstaöar. Skrifiö et>a finniö oss, ef kaupmaöur
ytSar ekki selur þá.
W
The New Method Fue/ Saver, Ltd. tíept. h
’PHONE SHERBROOKE 3980
023 PORTAGE AVE., WINNPIEG.
Sigurðsson, Thorvaldson
Co.,Ltd.—Riverton
CANADA F00D B0ARD
License No. 8—13790
Notið tækifæríð
á meðan það er eldheitt—lesið eftirfylgj-
andi verðskrá og notið sparnaðinn:
Ágæt græn Epli, 3 pund fyrir.........................25c.
Stórar og góðar Sveskjur, 25 pd. kassar á ... . $3.75
8 pd. kassar af góSu Soda Biscuits á..............$1.60
Grænt Santos Kaffi regul. kjörkaup 4 pd. á . . $1.00
Beztu Hrísgrjón, 8 pund fyrir . .....................$1.00
—Vér erum nýbúnir aS fá mikiS af alls konar steindrí
vöru, sem vér getum selt meS miklum kjörkaupum.
— Nú er hinn rétti tími aS fá ofna fyrir veturinn og
vér erum vissr um, aS vér höfum alveg þaS sem ySur
vantar á öllum prísum frá.........$3.00 til $30.00
TAKID EFTIR!
Látið oss taka
Ljósmynd at
yðurþessaviku
ÉRS1AKAN afslátt
gefum vér vorum
íslenzku skiftavin-
um. Verk alt á-
KomiS inn og sjáiS
sýnishorn vor.
Martel’s Studio,
264 PORTAGE AVE.
(yfir I 5c. búSinni)
byrgst.