Heimskringla - 23.04.1919, Page 7
i 'SriNNlPEG, 23. «°RiL )'9!l'S
iH:E !.s¥ S K R ! M<G L A
7. BLAÐSÍÐA
Nu FuHkomin “Truck”
UÉREFTI
í* inniliil
R má kaupa Ford One Ton Trucks — alveg FULLKOMNAR með flutningskössum og
inniiuktum kiefa fyrir keyrslumanninn, reiðubúnar fyrir akveginn.
Enn aá þó kaupa Ciassis án yfirbyggingar.
Þó verða Ford Trucks í fiestum tiifeiium seldir aibúnir,
því ait verkið á yfirbyggingunni, engu síður en Classis og
aflvél, er lagað til að gefa sem ailra bezta Ford þjónustu.
Þessi stór-breyting á framleiðslu Ford Flutningsvagnsins
— Truck - er gjörð með því augnamiði að gjöra hana sem
bezt nothæfa, og að eigandinn að Ford Truck fái Ford
verðmæti í ölium greinum.
Tvær tegundir Flutningskassa.
Þær tvaer tegundir Truck flutnings-
kassanna, sem mest eru brúkaðir, eru
Stake og Express.
Þessar tegundir verða til sölu hjá Ford
umboðsmönnum, reiðubúnar, málaðar,
(eða að eins einmálaðar) og að öllu
leyti tilbúnar til afhendingar.
Þær eru vélfræðislega rétt smíðaðar
til að dreyfa jafnt þyngd og áreynslu,
og eru hæglega fermdar.
Þær hafa eikar gólf, syllur eru úr vel
þurkuðu Hickory, fimm þuml þykkar
og sterklega festar við járngrindina
(chassis). Engin boltagöt eru á syllum
þessum til að veikja þær.
Sérstaldega sterklega steypt járnstykki
og partar að eins eru brúkaðir.
' Byggingin á þessu flutningstæki er í
öllum greinum svo sterk og vönduð, að
það þolir þá miklu áreynslu sem það
verður fyrir. Kassinn er agnúalaus að
utan, svo að á engu getur fest eða stað-
íð. Á grindinni eru heldur ekki að ut-
an neinir ásar er rekist geti í. Keyrar-
inn getur stigið úr sæti sínu í flutnings-
kassann eða grindina og þannig spar-
að margt spor í kring um ækið.
Luktur Keyraraklefi.
Það hafa aldrei verið neinar góðar á-
stæður fyrir að hafa keyraraklefann op-
inn gegn öllum veðrum. Truck er brúk-
uð í rigningu og vondum veðrum. Keyr-
arinn ætti að vera varinn gegn óþörfu
skjólleysi. — Hann fær skjól í hikta
klefanum á Ford Truck.
Þessi keyraraklefi má vera opinn eða
harðlæstur og súglítill eftir vild. Hann
hefir renniglugga og tvö færanleg vind-
skýli. — Það er Coupe hugmyndin brúk-
uð á Truck.
Þessar fullkomnu Ford Truck eru til sölu NÚ.
Spyrjist fyrir um hvað það myndi kosta yður að brúka þær í
yðar starfi. Athugið þær vandlega. Sjáið hvað langt þær bera
af öðrum Trucks í öHum greinum.
Þessi nýja hugmynd, að selja Trucks al-útbúnar gefur yður ekki
einungis óvanalegt verðmæti, heldur líka gjörir það mögulegt
að fá albúna Truck þegar þörfin krefur.
FORD ONE-TON TRUCK (CHASSIS ONLY) $750 F. 0. B. FORD, ONT.
Freigdit chaxgo to London, $15; Toronto, $17; Mantreal, $22; St. John, $31;
Winnipeg, $47; Regina, $63; Saiskatoon, $66; Calgary, $77; Yancouver, $93
Fyrir Stake e'5a Express kassa, hvít-
málaða, me'ð keyraraklefa—án hurða.
$128.50............... F. O. B. Ford
$133.00................F. O. B. London.
$134,00................F. O. B. Toronto.
$135.00................F. O. B. Montreal
$137.00................F. O. B. St. John
mla'ða, með keyrara-klefa—án hurða
málaða, með keyraraklefa—án hurða.
$140.00...............F. O. B. Winnipeg
$143.00...............F. O. B. Regina
$143.00...............F. O. B. Saskatoon
$147.00..............F. O. B. Calgary
$151.00...............F. O. B. Vancouver
I
Ef málaður kassi óskast, bæt $4.00 við verðið. Óskist hurðir, bæt $6.00 við verðið.
Ford Motor Company of Canada,
Limited,
Ford, Ontario.
’ —^
Mórauða Músin
Þessi saga er bráðnm upp-
gengin og ættu þeir, sem vRja
eignast bókina, að senda os3
pöntnn sína sem fyrst. Kost-
ar 50 cent. Send póstfrítt.
Grænland.
(Framh. frá 3. bls.)
flytja þangaS, því margt er það í
atvinnurekstrinum, sem ekki verS-
ur leyst af hendi nema margir
hjálpist að, t. d. smölun afrétta,
o. fl. Þeir, sem fara að líta á land-
kosti á Grænlandi, verða að til-
taka, með hve fáum mönnum í
fæsta lagi gerlegt sé að stofna ný-
lendu. — Svo konur og börn þurfi
ekki að liggja úti í tjöldum fyrsta
sumarið á Grænlandi, eins og í
fornöld, og ef til vill búa í illa
þornuðum húsum fyrsta veturinn,
er ráðlegt að gera bæjarhúsin
sumarið áður en innflutningurinn
á að gerast. Þá geta bæjarhúsin
verið orðin þur og tilbúin. Bæina
er réttast að gera úr torfi og þilja
þá innan. Þau bæjarhús eru fljót-
gerð og geta orðið í alla staði
sæmileg, einkum inn til dala á
Grænlandi, þar sem ekki eru mikl-
ar úrkomur. Síðan gætu menn
gert sér steinhús, þegar efnin eru
orðin meiri. Rauði sandsteinninn
á Grænlandi er ágætt byggingar-
efni, og var bygt úr honum óklofn-
um til foma. Til að gera bæina,
þyrfti að senda nokkra menn rneð
hesta og nauðsynlegan útbúnað til
Grænlands sumarið áður en flytja
skal þangað. Bezt væri, að þetta
væru sömu mennirnir, sem ætluðu
sér að flytja til Grænlcuids, því að
þá yrði sem bezt og haganlegast
unnið. Til þess að koma sem
mestu verki af, mundu þeir taka
Skrælingja sér til hjálpar við torf-
verkið. Veturinn eftir mundu þeir
sitja á Grænlandi og stunda þar
fiskveiði og aðra veiði, ef veður
leyfði, en annars verja tímanum
til að þilja bæina innan og gera
sér verkfæri til sumarsins. I rjá-
við og annað erlent efni í bæina
yrði að flytja inn samtímis bygg-
ingamönnunum, en það sama sum-
ar ætti einnig að flytja mn sem
mest, helzt allan útbúnað, sem
landnámsmenn þurfa til sjávarút-
vegs og landbúnaðar. Skekkjur
og vantanir má þá bæta sér með
þvi að senda pantanir að haustinu,
og landnámsmenn geta þá byrjað
útgerð þegar að haustinu, er ekk.
verður unnið lengur að húsagerð.
Næsta vor verða svo konur og
börn flutt vestur yfir sundið og
sömuleiðis búaáhöld og búfé, kýr
sauðfé og hestar. Miklu skiftir,
að þessi peningur sé vænn og á
bezta aldri, og að skepnurnar séu
íluttar yfir að vori en ekki bausti;
svo þær hafi kynst landinu og náð
sér eftir sjóvolkið áður vetrar.
Það er að eins 'fyrsta landnámið,
sem mundi va'lda svo mikhim erf-
ijðleikum. Þeir, sem flytja inn
síðar, kaupa sér innlendan fénað
o.s.frv., og hafaaðsetur sitt á þeim
bæjum, sem þegar eru bygðir, unz
þeir hafa bygt upp á öðrum jörð-
um. — Fyrst, þegar konur og
böm, búféð o. s. frv. er komið yf-
ir, byrjar atvinnulífið í eiginlegri
merkingu. Landnámsmennimir
stunda bæði landbúnað og sjáv-
arútveg í fyrstu, því vegna erfið-
leikanna á flutningi og ef til vill
efnaskorti verður bústofninn lítill
í fyrstu. Þegar frcim líða stundir
eykst vinnuskiftingin í grænlenzka
þjóðfélaginu, sjávarútvegurinn og
landbúnaðurinn verða tveir sér-
skildir atvinnuvegÍT og iðnaður og
verzlun dafna og magnast. En
fyrst í stað sinna sömu mennirnir
ýmsum bjargráSum.
--------e--------
V