Heimskringla - 03.11.1920, Qupperneq 1
I
Sendi-B efttr TerHltsL* ttl ®S
Roynl Crown Sonp, 1*0.
664 Maln 8t_, 'Wlnnlpeg OtóWMIT
Senditt eftir vertiltsta tlt
___I 'V;_ Royal Crown *»•», Lt4
nmbUOJ' bo4 Main 8t., wtnntpet
XXXV. AR
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 3. NÓVEMBER 1920.
r;cMER 6
Harding
kosirni forseti Bandaríkjamia.
Republikkaflokkuiiim kemst aftur til valda.
Kosningarnar í Bandartkjunum í gærdag fóru þannig aS sena-
tor Harding frá Ohio var kosinn forseti rfkjanna með miklum yfir.
burðum yfir demokrata andstæðing sinn, James M. Cox ríkisstjóra.
OIl stærstu ríkin urðu Hardings megin og það með njiklum atþvæða.
mun, svo að aldrei hefir annar slfkur verið gefinn nokkru forsetaefni
aður. Austurríkin öll og flest af mið- norður- og vesturríkjunum,
kusu Harding. Suðurríkin, sem aldrei 'bregðast demokrötum, héldu
enn trygð við flokkinn og kusu Cox, en |þó stóð tæpt í sumum þeirra,
svo sem Tennesee.
Harding kusu þessi ríki: Connecticut með 7 kjörmönnum, Dela-
ware 3, Idaho 4t Illinois 29, Iowa 1 3, Kansas 10, Maine 6, Massa-
chusetts 18, Michigan 1 5, Neíbraska 8, New Hampshire 4, New Jersey
14, New York 45, Ohio 24, Oregon 5, Pennísyflvania 38, Rhode Is-
land 3, Vermont 4, Washington 7, Wisconsirí 1 3, Wyoming 3. Alls
21 rlíki með 275 kj örmönnum.
Cox kusu: Alabama með 12 kjörmiönn.um, Arkansas 9, Florida
6, Georgia 14, Louisiana 10, Missisippi 10, Nortih Carolina 12, Okla-
homa 10, Souteh Carolina 9, Tennesee 12, Texas 20, Virginia 12.
AHs 12 ríki með 1 36 kjörmönnum.
I vafa eru ennlþá: Arizona með 3 kjörmönnum, Kentucky 1 3,
Minnesota 1 2, Montana 4, Nevada 3, New Mexico 3, South Dakota
5, Utah 4, California 13, Colorado 6, Indiana 15, Maryland 8,
Missouri 18 North Dákota 5, West Virginia 8. Alls 15 ríki með
120 kjörmönnum.
Til að kjósa forseta þarf 266 kjörmenn, og er því Harding þegar
kosinn, þó hann fengi ekkert af vafaríkjunum.
Republikkar fengu einnig kosna fleirtölu þingmanna til neðri
miálstofunnar og í senatinu hafa þeir 46 sæti, en demokratar 38. Óvíst
er enn um 12 senatora, en af þeim þurfa republikkar aðeins 3 til
að hafa meirihluta í senatinu.
34 ríkisstjórar voru kosnir og höfðu repuiblikkar þar einnig bet_
Ur og fengu kosna 19 ríkisstjóra. 1 Norður Dakota virðist O’Connor
demokrat vera kosinn. IMest harma demokratar fall A. E. Smiths
ríkisstjóra í New York.
Varáforseti ríkjanan var kosinn Calvin Coolidge, ríkisstjóri í
Massachusetts.
CANADA
Hon. McKenzie King, leiðtogi
hberalflokksins, hélt hina fyrstu
stjórnmálaræðu sína hér í Winni-
Pe8 á miánudagskvöldið. Marg-
menni kom til að hlusta á leiðtog-
ann °S þótti flestum honum segj-
ast fremur vel, þó (lítið hefði hann
af nýsnælum að ifæra eða veiga-
miklum loforðum, næði hann
völdum. Mestur hluti ræð unnar
gekk út á það að ihallmæla bæði
Unionstjórninni sálugu og arftaka
henríar Meighsenstjóminni, en eigi
virtist nema lítill hluti • fundar-
manna samihuga leiðtoganum í
sleggjudómum hans. Auk Mr.
Kings talaði Hon. H. S. Béland,
fyrrum póstmálaráðgjafi Laurier-
stjórharinnar. Var hann langt-
um hógværari en King og fékk
betri undirtektir. \
P. C. Mclntyre póstmeistari í
Winnipeg, andaðist á laugardag-
inn var eftir langvarandi heilsu-
leysi, 66 ara gamáll. Mclntyre
var merkur maður fyrir margra
hluta sakir, og hafði áður en hann
varð póstmeistari verið þingmað-
ur fyrir Norður-Winnipeg í tvö
kjörtímábil.
Bramwell Booth yfirmaður
hjálpræðishersins, er á ferðalagi í
Ganada. I Toronto var honum
fagnað sem þjóðhöfðingja og
hvarvetna annarsstaðar, er hann
hefir komið, hefir honum verið
tekið með fögnuði. Hingað til
Winnipeg er hann væntarílegur í
vikulokin.
Stjórnmálaleiðangur Rt. Hon.
Arllhur Meighen og félaga hans
maetir hvarvetna góðum viðtök-
um. I Vancouver talaði Meighen
7 sinnum á föstudaginn og fengu
faerri áð heyra hann en vildu. I
Victoria hélt hann tvær ræður á
laugardagskvöldið, og varð fjöldi
frá að hverfa báðum stöðunum^
sem stjórnarformaðurinn talaði á
vegna rúmleysis. Ræðum stjórn-
arformannsins var alstaðar vel
tekið; en aftur á móti átti Hon. J.
A. Calder í vök að verjast, því
nokkrir íufturkomnir hermenn
voru ekki ánægðir með skýringar
hanis og Joforð á styrkveitingun-
úm til hermannanna; þó tókst
honum að sefa svo hugi manna,
að Mappa ðvar fyrir honum í
ræðudok.
Gömlu sýnmgabyggingarnar í
Brandon, Man., brunnu á laugar-
dagsnóttina. Þar brunnu inni yf-
ir 30 hross. Skaðinn metinn um
$50,000.
Borgarstjórinn í Hamilton, Ont.
hefir nýlega lýst vanþóknun sinni
á þeim isiðbetrunarírömuðum, er
vilja afnema alla tóbaksnautn.
Fólk, sem þannig talar og kenn-
ir, getur ekki verið með öllum
mjalla, sagði borgarstjórinn ný-
lega í ræðu. “Það er nærri því
eins slæmt og kristilegu félögin,
sem vildu banna að senda her-
mönnunum í skotgröfunum vegna
þess að Iþað væri siðspillandi.
Þessi heimur verður ekki sérlega
ánægjulegur, ef ekkert verður
leyft utan rríatar en blávatn og
guðsbl essun; en að því stefnir,
eftir því sem nú horifir.”
Sykurverðið er komið niður í
1 4 cent pundið í heildsolu í 'Hali-
fax og St. John.
BANDAMÖN
Rannsókn stendur yfir í Was-
hington út af drápi á eyjarskeggj.
um á Haiti, sem hermenn úr sjó-
liði Bandaríkjanna eru valdir að.
Hafa 2250 eyjarskeggjar verið
drepnir án dóms og laga, á síð-
astliðnum 5 árum. Sjólið Banda-
ríkjanna hefir nokkurskonar lög-
gæzlu á Haiti, og hefir það ekki
sjaldan borið viðt að þeir hafi
skotið á eyjarskeggja, ef þeir hafa
framið eitthvert lagabrot. Árið
1918 voru 1860 eyjarskeggjar
drepnir. Við rannsókn málsins
lýsti George Barnett hershöfðingi,
sem aður hefir haft herstjórn á
eyjunni, því yfir að hermennirnir
hefðu þráfaldlega skotið eyjar.
skeggja til dauðs fyrir litlar sakir,
og þó hins vegar að margir hefðu
verið sekir um þjófnað og grip.
deíldir, og eyjarbúar í heild sinni
væru að mörgu leyti vandræða-
lýður, þá væri þetta tiltæki her-
mannanna með öllu ósæmilegt og
ekki ihægt að mæla því bót. En
það virtist svo sem að hermönn-
unum hefði fundist það sjálfsagt
að taka lögin í sínar hendur og
,hegna fyrir öll afbrot með skoti
in frekari umsvifa. Afsakanir
þær, sem komið hafa fram í mál-
inu, eru aðallega þess e'fnis, að
rán, morð og gripdeildir hafi ver-
ið orðið svo ilt á Haiti, að
þurft hefði að bæla þá glæpaöld
niður með harðri hendi.
1 9 manns druknuðu við strend-
ur Rhode Island 29. f. m., er
skipið Cape Fear sökk eftir á-
rekstur á annað skip. 1 5 manns
björguðust áf skipinu.
Kona ein í New Haven Conn.,
Mrs. Alexander Sokolowsky, hefir
nýlega verið dæmd í 10 ára
fangélsi fyrir að hafa drepið
manninn sinn með því að hel'la í
andlit hans victroli, sem brendi
hann svo að hann beið bana af.
/Etlun konunnar var ékki að
myrða bónda sinn, heldur að
spilla hinni fögru ásjónu hans, er
gerði hann, að því er konan og
aðrir báru, að kvennagulli hinu
mesta, og vildi kona hans koma í
veg fyrir að sllíkt héldist fram-
vegis.
Gufuskipið Celtic kom til New
York á laugardaginn og Ihafði
meðal annars meðferðis 344
kassa af gullli, sem virtir eru á
$12,000,000, og átti að fara til
fjárhirzlu Bandaríkjanna.
Það þykir tíðindum sæta, að
auðmaður einn í Bandaríkjunum,
Walter Clarke að nafni, hefir ver-
ið lögsóttur um $50,000 af tveim
konum. Konur þessar voru gest-
ir auðmanrísins á lystiskipi hans,
sem brann á Láke George í ágúst-
mánuði. Urðu konurnar til þess
að bjarga lífi sínu að steypa sér í
vatnið og synda til lands. Föt
sín öll og skartgripi mistu þær
með skipinu og voru lasnar í fleiri
daga eftir hrakningana. Fyrir
þetta ált heimta þær $50,000 af
Clarke.
Bandaríkjastjórnin ihefir ákveð-
ið að viðurkenna hina nýju stjórn
í Mexico. Bandarfkin 'hafa ekki
opinberlega viðurkent neina
stjórn þar í landi síðan Madero
forseti var drepinn 1913.
Kona ein í Los Angeles, Mrs.
Louise L. Peete, er kærð fyrir
dómstólunum þar um að hafa
myrt mann einn, er Denton hét.
Það sem merkilegast þykir við
þetta mál, er að konur hafa verið
skipaðar í kviðdóminnf og er það
í fyrsta sinni, svo sögur fari af, að
konur hafi haft með mieð höndum
glæpamál af slíku tæi.
34 . sentora og 28 ríkisstjóra
átti að kjósa í Bandaríkjunum í
kosningunum í gær, auk forseta
og varaforseta ríkjanna.
Byrjað er að grafa göng und-
ir Hudsons fljótið í New York rík-
mu. Eiga göng þau að kosta
$28,000,000 þegar þau eru full-
gerð.
I beinum sköttum tók Banda-
ríkjastjóm hálfri annari biljón
I dála meira inn á fjárhagsárinu er
! endaði 31. júní s. 1., en hún gerði
j árið á undan. Skatturirín á mun-
aðarvörum nam $373,000,000, á
j víni $343,000,000 og á bifreið-
í um $144,000,000.
BRETI.AND
Kolanámuverkfallið er nú á
enda, að því er flestir hálda. Hefir
samkomulag komist á milli stjórn-
arinnar og leiðtoga verkfalls-
manna, sem ætla má að verði að
fullkomnum samningum. Hefir
stjórnin samþykt að verða við
kauphækkun þeirri, sem námu-
menn báðu umf en aftur hafa
verkfallsleiðtogarnir fállið frá
kröfum sínum um ívilnun á kola-
verðinu til heimanotkunar. En
þegar þessir samningar voru born-
ir undir námumenn, mættu þeir
misjöfnum viðtökum. Námu-
mennimir í Wales neituðu að:
ganga að þeim, en á öðrum stöð-
urn náðu þeir samþykki me, litl-
um atkvæðamun. Alment er þó
álitið að Walesmenn verði að
beygja sig undir vilja leiðtoga'
sinna, og verði svo, er verkfallið
ur sogunni. 1
i
Jarðarför McSwiney iborgar-'
stjóra fór fram með óvenju mikilli
viðhöfn og hluttekningu. Fyrst
var líkið flutt í helztu kaþólsku
kirkjuna í London, St. George’s
Cathedral, þar sem helztu menn
kaþólsku kirkjunnar á Englandi
mintust hins framliðna. Þar var
margt annara stórmenna og hélztu
leiðtogar verkamannaflokksins.
Á kistunni var silfurskjöldur, sem
á var ritað: “Myrtur af útlend-
ingum í Briton fangelsi í London
25. okt, á fjórða ári lýðveldisins.
40 ára gamáll. Drottinn sé sálu
hans líknsamur”. Er kistan var
fltjtt út úr kirkjunni fyllgdu henni
þúsundir manna eftir götum borg-
arinnar á járnbrautarstöðvamar.
Líkið var síðan flutt til Cork og
jarðað þar með mikílli viðhöfn.
Hölfðu þúsundir manna víðsvegar
að af Iríandi komið þangað til að
heiðra minningu hins látna föður-
landsvinar. Fór alt friðsamlega
fram -og létu ihervöldin jarðarför-
ina með öllu afskiftalausa. Víðs-
vegar annarsstaðar voru minning-
arhátíðir haldnar til heiðurs hin-
um framlliðna. Til dæmis í París
á Frakklandi og í Montreal í
Canada. En mest létu þó Banda-
ríkin tíl sín taka í þeim efnum. I
stórborgunum öllum voru stór-
kostlegar minningaratháfnir haldn
ar. Gengu menn í tugum þús-
unda um göturnar í Boston og
New York undir írskum fánum
og hrópuðu iriótmæli yfir aðför-
um Breta við Iríand. Um 40,000
manna komu saman á New York
"Polo Grounds” og samþyktu þar
áskorun til forseta Bandaríkjanna
til að mótmæla aðförum Breta á
Irlandi og viðurkenna hið írska
lýðveldi. Samskonar samlþykt
var gerð í Chicago.
Stjórnin í Peru hefir að undan-
fömu verið að reyna að fá inn-
flytjendur frá Bretlandi og býður
þeim ýms hlunnindi er ganga
langt fram úr því, sem aðrar
þjóðir hafa ennþá boðið, svo sem
fríja ferð yfir hafið, og lán ti'l þess
að setja saman bú, er til Peru
komi. Brezka stjórnin lítur þess-
ar tilraunir Perustjórnarinnar ó
hýrum augum.
ÖNNURLÖND.
Wrangel hershöfðingi beið ný-
lega mikinn ósigur fyrir hersveit-
um Bolslhevika, og er haldið að
harín verði að hörfa af Krímskag-
anum..
Grikkir hafa kallað Paul, yngsta
son Konstantíns fyrv. konungs, til
konungs yfir Grikklandi í stað
Alexanders heitins bróður síns.
Hvort að Pault sem er enn ófull.
veðja ungllingur, tekur vfð kon.
ungstigninni, er undir föður hans
komið. Sjálfur vill Konstantín
gjarna ná í konungdóminn aftur,
en Grikkir vilja ekkert frekar hafa
saman við hann að sælda sem
konung. Neiti því Konstantín að
leyfa Paul konungdóminn, verður
bróður hans Georg prins, sem nú
á heima í Parísar'borg, boðin kór-
ónan.
Stjórnarskifti hafa orðið í Sví-
þjóð. Hefir Hjalmar Branting,
jafnaðarmannaforinnginn orðið
að leggja niður völdin, og í hans
stað hefir Gústaf konungur kvatt
hægrimann, 'Louis De Geer, til
stjórnarformanns og er ráðuneyti
hans að mestu skipað hægrimönn-
um. Álandseyjamálið varð Bran-
ting ráðuneytinu að falli.
Gulan gengur í Vera Cruz í
Mexico, 'og hafa 50 manns dáið
úr henni. Hefir Ö31 borgjn verið
sett í sóttvörn.
Stórtíðindi mega það kallast,
að maður nokkur í París, Albert
Grandin að nafni, játaði nýlega á j
banabeði sínu að hafa stolið ná-
lægt 3,000,000 marka úr fjár.
hirzlu herpósthússins; og þaðt sem
merkilegast er við þetta, er það,
að alt fram á þenan dag höfðu
menn ekki hugmynd um þjófnað-
inn, fyr en hinn deyjandi maður
vísaði á hvar þýfið væri geymt,
sem óeytt var. Ástæðan fyrir því
að yfirvöldin urðu ekki þjófnað-
arins vör, var sú,, að mörkin
höfðu verið keypt af frönskum
flóttamönnum frá Elsass Lothrin-
gen, og síðan Iátin í geymislu í
hvel'fingu pósthússins og ekkert
frekar skift sér af þeim. En Gran-
din hafði umsjón með henni, og í
félagi með bróður sínum og tveim
vinstúlkum þeirra, 'hafði honum
tekist að koma fénu á burtu.
Næstu mánuði lifðu þeir Grandin
bræður og vinstúlkur þeirra í
dýrðlegum fagnaði og eyddu fé
sem stóreignamenn, en samt kom
engum til hugar að auðurinn væri
ekki fenginn á ráðvandlegan hátt,
fyr en Albert lagðist veikur og
gerði játningu sína.
Stjórnir Norðurlanda hafa gert
4 breytingartillögur við þjóða.
bandalagssáttmálann, og eiga þær
að koma til umræðu á fyrsta fundi
bandalagsins í Genf 15. nóv. —
Fyrsta tillagan er um fultlrúafund
{ bandalaginu, sem halda skuli að
hausti til, t. d. annan sunnudag í
septemlber á hverju ári. — Önn.
ur tillagan er þaðt að 10 félagar
bandalagsins skuli geta heimtað
fund hvenær sem sé. — Hin
þriðja vill nema burt orðið
“venjulega” úr ákvæðinu um
gerðardóm í milliríkjadeilum, svo
að ákvæðið verði ákveðnara í þá
átt, að gerðardómur skuli ætíð
fjalla um slík mál. — Fjórða til-
lagan er viðvíkjandi viðskifta-
kreppu, sem er lögð í hegningar-
skyni á eitthvert ríki. Gengur til-
lagan í þá átt, að nágrannaríki
skuli með leyfi bandalagsstjórnar-
innar að einhverju leyti mega
taka upp viðskifti við hið ein-
angraða ríki til þess að tryggja sig
gegn árásum frá því. Á þetta á-
kvæði einkum að vera sett með
tilliti til þess, að smáríki eigi í
hlut. — Þessar tillögur hafa þegar
verið sendar öllum félagsríkjum
þjóðabandalagsins til athugunar.
Til þess að þær nái gildi verður
bandalagsráðið að fallast a þær
og^fulltrúafundur að leggja á þær
samþykki.
Ibúatala Danmerkur reiknaðist
að vera 3 miljónir og 49 þús.
manns 1. júli s.l. Árið sem letc
hefir fjölgunin verið 26 þúsund
sem er 0,86% af íbúatölunni. Ár-
in fyrirfarandi hefir aukningin ver-
ið mikið meiri, alt upp í 1,30%
á ári. Þessi litla fjölgun árið sem
leið stafar af því, að fæðingum
hefir fækkað að miklum mun.
Upp á síðkastið hafa Gyðinga-
ofsóknir farið mjjög í vöxt á Rúss-
landi. T. d. voru um 200 Gyð-
ingar nýlega drepnir í litlum bæ í
Síberíu. Stóðu hermenn rauðu
hersveitanna fyrir ofsóknun’um.
Svíar hafa nú um nokkurt skeið
flutt imbur^ í stórum flekum eða
flotum, sem bygðir eru eins og
skip í laginu til þess að þeir fari
betur í sjó. I einurn fleka eru oft
mörg þúsund tonn af timbri og
myndi það krefja mikinn skipa-
kost að flytja það öðruvísi. Um
Eystrasalt og til Danmerkur hafa
verið dregnir margir slíkir timbur-
flotar og einnig um Norðursjó-
inn. Einn heljar stór var á leið
tíl Amsterdami í miðjum septem-f
ber. í honum voru ekki minna
en 140,000 trjástofnar. En sam-
festinigin hefir ekki verið sem
tryggust, því við Elbuósa gliðn-
aði hlaðinn í sundur; hann var
um 6 métra á hæð og afarlangur
— og lenti sumt á grunn en sumt
flaut út. Var sagt að sigling um
Elbuósa hefði verið mjög torveld
þá dagana vegna trjástofna, sem
flutu þar þúsundum saman. En
strandbyggjar þar næriendis gera
sér vonir um góðan reka.
BLAND
Rvík 11. okt.
Júlíusi Havsteen hefir nú verið
veitt Þingeyjarsýsla.
“Vér morðingjar” Kambans
fá góða dóma hér í leikhúsinu.
Þykir ágætlega leikið í flestum
hllutverkunum.
Dáinn er á Landakotsspítala
Björn Jónsson frá Akureyri,
prentsmiðjueigandi og fyrrum rit-
stjóri Norðra. Kom hann hingað
á spwtalann með GuSlfoSsi síðast.
Björn var góðum gáfum gæddur
og hafði mikinn áhuga á lands-
málurn öllum. Nú upp á síðkast-
ið, áður en iheilisufari hans hnign-
aði, 'hafði hann á hendi ýms störf
fyrir Fiskifélag Islands norður þar
og beitti sér mjög fyrir því að
koma á samvinnu meðaL sjó-
mannastéttarinnar. Hann var
hniginn að aldri og hafði verið
heilsuveill nú um nokkurt skeið.
Guðm. Eggerz sýslumaður Ár-
nesinga hefir sótt um lausn frá
erríbætti sökum heilsubilunar.
Hann og frú hans og dóttir fóru
til Danmerkur með Isllandi og
ætla að dvelja þar fram eftir vetri.
Rvík 6. okt.
4 menn drukna. Frá Staðarfelli
í Hvammsfirði fóru nýlega þrír
menn og einn kvenmaður út í
eyju þar á firðinum að Hta eftir
heyi. Á leiðinni hvolfdi bátnum
og druknuðu allir, sem í honum
voru. Mennirnir hétu Gestur
Magnússon, Magnús Guðfinnsson
og Þorleifur GuðmUndsson. Um
nafn kvenmannsins er ekki getið.
Sex manns voru á þessu heimili
og er þetta því mikil blóðtaka
fyrir það. Nánari fregnir eru
enn ekki komnar með hverjum
hætti þetta hörmulega slys hefir
borið að.
Nýr læknir. Guðm. Thorodd-
sen iæknir er einn meðal farþega
á Gullfossi. Ætlar hann að setj-
ast að hér í bænum, að sögn.
Bætist bænum þar góður læknir,
og er það mikill ávinningur.