Heimskringla - 15.06.1921, Page 5
WINNIPEG, 15. JÚNI, 1921
HEIMSKRINGLA
5. BLAEíSIÐA.
Upplýsinfaf gefnar með ánægju.
Ný “Verzlunar starffræíSisdeild” hefir nýlega verið
stofnuð við bankann. Hlutverk hennar er að sjá um
að viðskiftavinum vorura sé sýnd kurteisi og fullkom-
in þjónusta og að störf vor séu í fylsta máta vel af
hendi leyst. Fyrirspurnum viðvíkjandi öllum banka-
störfum er óskað eftir af deild þessari.
ÍMPERIAL BANK
OF CVNADA
Riverton bankadeild, H. M. Sampson, umboðsmaður
Útibú að GIMLI
(354)
þinn! Komdu strax fraun fjnrir
mig.”
Kain kom einnig og sagði: “Já,
herra, hér er eg, hvað viltu mér
herra?” Guð svaraði: “Kain —
hvar er Abel bróður þinn?” En
þegar Kain heyrði herran spyrja
svona, varð hann hvítur af hræðslu
út af öllu saman. —
“Sjáið þið nú til, bræður, þessi
Kain var fyrsti hvíti maðurinn!”
(Þýtt)
----------X----------
Andagift Lögbergs.
ÞaS er ekki oft að andinn kem-
ur yfir Lögberg. Innihald' þess er
að jafnaði fremur létt og undur
guðræknis-hæverskulega með það
farið oftast nær. Aðeins tvisvar
höfum vér séð út af þes3u bregða
í langa tíð, ef ekki er tekið neitt
tillit til aðsendra greina í blaðið,
eins og t. d. greinanna um Tjald-
búðarmálið.
I fyrra skiftið sem þessa afbrigð
is varð vart, var þegar það flutti
ritdóminn um “Vígslóða” Ste-
phans G. Það hvein óvanalega
hátt í grundinni við þann skeið-
sprett. Annað skiftið sem þessi
undur skeðu, var síðastliðna viku,
þegar það þeysir af stað til þess að
setja ofan í við þá er málum verka
manna unna og tala. Andagiftin
verður þá engu síðri en í fyrra
skiftið og jóreykinn ber við ský-
in af fluginu sem á hinum andlega
fák blaðsins er um fyrsta dálk rit-
stjórnarsíðunnar.
Og hver er ástæðan? Flugrit
eitt sem gerist svo djarft að minna
á það, sem reyndar þúsund sinn-
um fyrir eitt hefir áður verið minst
a, að það sé með öllu óviður-
kvæmilegt og ósamboðið kalli
tímans, að bæði auðvald og stjórn
ir, með sumum öðrum áhrifa-
miklum öflum þjóðfélagsins, svo
sem blöðum, kirkjum o. fl. taki
höndum saman í þeim eina til-
gangi að hnek'kja hag alþýðu yfir-
leitt og verkalýðsins sérstaklega,
sem undur auðvelt er eins hjálp-
arlausar og báðar þessar stéttir
eru. En að sterkari öflin hafi nokk
ura ábyrgð eða skyldu á herðum
sér gagnvart minni öflunum,
smælingjum þjóðfélagsins, það
getur Lögberg ekki kannast við.
Það dæmir því hina smærri borg-
ara þjóðfélagsins sem alveg órétt-
mæta til að leggja nokkuð til
þeirra mála hvernig þjóðfélagið
skuli vera að byggingu til og fyr-
irkomulagi en gefur stóru "máttar
öflunum” allan veg og vanda
að því; alveg eins og alþýða og
verkamenn komi þar ekkert til
greina, séu ékki borgarar eins og
hinir, og það komi þeim ekkert í
koll hvernig stjómað er.
“Vér erum stundum að hugsa
um, hve langt svívirðingin getur
gengið, áður en velsæmis tilfinn-
ingu manna sé misboðið.
Vér erum stundum að hugsa um
hve lengi að heilbrigð dómgreind
muni þola að það, sem mönnum
er heilagast í þjóðfélags fyrirkomu
lagi voru, sé niðumítt, svívirt og
fótum troðið af andlegum mein-
lætismönnum.
Vér vitum og viðurkennum, að
það eru margar og miklar mein-
semdir sem þjá oss mennina. En
af engri vitum vér, sem er djöf-
ullegri en sú, er kemur fram í
þjóðfélagi voru í mynd þeirra
manna, er tala eins og talað er af
mörgum dags-daglega og eins og
talað er hér að framan í orðum
þeim er tilfærð eru.” (úr flugrit-
inu áminsta).
Þannig farast blaðinu orð. Finst
þér, lesari sæ'll, það vera mikil
lýgi, sem sagt er um andgift þess
hér að framan? Verðurðu þess
oft var að Lögberg berist á slík-
um arnar-vængjum hálfa leið til
himins, sem hér á sér stað ?
En orsakir liggja til alls. Og
flugið er Lögbergi ekki svona létt
að ástæðu lausu. Sá sem "mestur
er í heimi" býr undir hjartarótum
þess í svo ríkum mæli til ýmsra
máttarstoða iþjóðfél.; sérstaklega
til fylkisstjórnanna í Manitoba og
Saskatchewan, að það getur bara
ekki að sér gert, að láta þær finna
til þess, að hjartað sé á réttum
stað í sér. Sannar það einmitt með
því það sem (það ætlaði að hrek’
í flugritinu, að sterku öflin, blöðin
og stjórnir, tækju höndum saman
og legðust drjúgan á eitt á móti
alþýðu og verkalýð.
Hvernig tókust þær ástir með
Lögbergi og þessum stjórnum?
Það þarf ekki annað en að líta á
auglýsingarnar frá þeim í Lög-
bergi til þess að 'sjá ástaeðuna.
Það eru með öðrum orðum bit-
arnir sem þær réttu því af fé fólks
ins, sem skerpt hafa svona kær-
leikann, og elft og magnað hafa
hatrið til alþýðu og verkalýðsins.
Það reiknar ekki mikið á “lukku-
pottinn" ef flugrit verkalýðsins
skyldu flæma þær frá völdum og
alþýðan taka við taumhaldinu
með breyttu fyrirkomulagi, fyrir-
ko'mulagi sem væri ekki alveg upp
á “heilagasta” máta hvað Lög-
berg snertir. Já — svona mundu
þeir gera Lögbergi alt tií meins
þessir “andlegu meinlætismenn”,
ef þeir fengju að ráða. Því er um
að gera að hafa gætur á hvað
þeir eru að rausa og láta þá ekki
komast upp með það. Oss er að
vísu ekki fylhlega ljósi hvað átt er
við með orðinu “meinlætismað-
ur" í þessu sambandi, því “mein-
lætismenn höfum vér sjaldan
heyrt notað um aðra menn en
krúnu-rakaða múnka. Og þá héld-
um vér að Lögbergi væri ekki
neitt beinlínis illa við; vér höfum
lengi þókst grilla andlegan skyld-
leika þess við þá. En mein-kráka
er gott og gilt orð í málinu
þó ekki sé það biblíumál, og vér
erum hræddir um að pað verði
orðið sem verkalýðurmn hefir í
huga er hann minnist Lögbergs
fyrir þessa háfleygu grein þess um
sig. —S. E.—
■--------X--------—
Bændur og búsýsla
Engum sem komið hefir á gripa
markaðs-torgið (stockyard) hér í
Winnipeg, og tekið hefir eftir því
sem þar hefir farið fram, bland-
alst hugur um það, að það þurfa
að verða miklar umbæt’ir á með-
ferð gripa, ef þeir eiga að srljast
cins vel og ákjósanlegt er.
Og til þess að geta gebð mönn-
um dálítið yfirlit yfir hei/.to. gall-
ana, sem í vegi þess eru, höfum
vér, segir blaðið “Nor’ West
FarmeT” snúið oss til umsjónar-
manns sölumarkaðarins, H.Talbot
og beðið hann um upplýsingar í
þessu efni. Svar hans er birt hér:
“Þér munuð hafa veitt því eft-
irtekt, að vér höfum talsvert unnið
að því undanfarið, að benda al-
WBSBSL^^ .
þýðu manna á, í hverju höndlun
gripa er ábótavant til þess að grip-
rnir nái sem hæstu verði. Árang-
ur höfum vér orðið varir við tals-
verðan af því. Til dæmis hvað
iiorn-skellingar gripa snertir, virð-
3t fólk hafi tekið sér framum fram
kvæmdir, því miklumeira af horn-
skeltum gripum kemur nú til mark
aðar en áður. Og vér vonum að
hyrndir gripir fari fækkandi úr
þessu, sem til markaðar eru send-
ir. Hver sem ekki fylgir þeirri
reglu, má búast við að fá einum
dal minna fyrir hver 100 pund í
skepnunnni. Kjötsuðuhúsin í
Austur-Canada hafa birt skýrslur
yfir tap það er hlýst af mörðu
kjöti sem hyrndir gripir eru taldir
valdir að, nemur einni miljón dala
og öllu því hafa þeir tapað sem
gripina hafa selt, því þeir hafa
sem þessu nemur fengið minna
fyrir þá. Kjötsuðuhúsin láta altaf
illa við að kaupa kjöt af hyrndum ,
skepnum..
Það er annað, sem þess er vert
að athygli bóndans sé dregið að,
og það er að vana kálfa á meðan
þeir eru ungir; sé þetta vanrækt
þar til kálfarnir eru 6 mánaða til
1 árs gamlir, verður kjöt þeirra
aldrei markaðsvara, öðru vísi en
kjöt þarfanauta.
Mjög mikils vert er einnig fyrir
þá er svínarækt leggja stund á, að
1 ala helzt upp þá tegund svína er
síðufeit er (bacon type).. Eins og
kunnugt er, hefir Canada átt mjög
miklu láni að fagna með sölu á
slíku svínakjöti á Bretlandi, og ef
taka skyldi fyrir þá sölu vegna
vorrar eigin vanrækslu, væri það
slæmt og gæti þurft langan tíma,
að hafa upp eins góðan markað
aftur. Bandaríkin leggja einmitt
einnig stund á ræktun þessarar
tegundar svína.
Þá ættu menn heldur ekki að
gleyma fjárræktinni í Vestur-
Canada. Borgar sig auðvitað bezt,
að rækta sem ailra bezt kyn að
hægt er . Að vana hrút-lömbin
ung, er þýðingarmikið atriði
Snemmborin lömb eða vetrarlömb
eru ekki ákjósanleg fyrir þetta
land. Það er ein tegund fjár hér
sem kallast “Islendingur”*) (Ice-
lander) sem er mjög lélegt kyn,
fyrir þessa lands verzlun, þrátt j
fyrir það, að í Austur-Canada hef
ir kyn þetta verið talsvert bætt.
Stjórnin hefir sent menn út um
landið til þess að fræða menn um
heppilegar aðferðir snertandi fjár-
rækt, og hefir það borið töluverð-
an árangur. Ættu menn að nota
öll slík tækifæri, og færa sér upp-
lýsingarnar í nyt.”
Ef menn færðu sér slíkar bend-
ingar sem þessar í nyt, mundu
griparæktunarmenn landsins
græða svo þúsundum dala skiftir
á því, og það fé fengist að segja
mætti alveg að kostnaðarlausu.
Að því er hornskellingarsnert-
ir, ættu 3 eða 4 bændur að kaupa
tengur sameiginlega; einstöku
menn halda því fram að betri að-
ferð sé að eyða hornunum með
vítissteini( ? ) (Caustic) ; en aðrir
mótmæla því. Ef nautgripir eru
hornskéltir ársgamlir, gerir hún
þeim ekkert til eða háir. Og svo
nærri skyldu þau skelt af, að svo
sem hálfur þumlungur af hári sé
fyrir ofan stubban. Það lítur höf-
uð skepnunnar ekkert, og hornin
vaxa ekki úr því.
*) Vona bara að þeir meini
ekki það sem vanalega er meint
með orðinu.
--------—o---------—
Moð.
“Týndi hlekkurinn”, sem Dar-
win sagði að hlyti að vera á milli
manna og apa, hefir nú verið fund
inn, að haldið er. Tveir jarðfræð-
ingar sem á Frakklandi hafa ver-
ið að grafa Llangan tíma og leita
í iðrum jarðfcr að ýmsu er vísindi
snerta, hafa fundið beinagrind af!
manni, sem álitin er að vera sú
elzta er fundist hefir. Hjá beina-
grind þessari fundust einnig tenn-
ur úr mammúts-dýri, og svarar þá
til að maðurinn sem beinagrindin
Gigt.
L’mlraveríS .holmalæknlnff siigð oí
l>elm, sem sjfllfur rejndl hana.
Vorit5 1893 vart5 eg gagntekinn af
illkynjatSri vö'ðvagigt. Eg leitS slík-
ar kvalir, sem enginn getur gert sér
í hugarlund, nema sem sjálfur hefir
reynt þœr. Eg reyndi met5al eftir
meðal en alt árangurslaust, þar til
loksins at5 eg hitti á rát5 þetta. í>at5
læknaði mlg gersamlega, svo at5 sít5- i
an hefi eg ekki til gigtarinnar
fundiö. Eg hefi reynt þetta sama
met5al á monnum, sem legit5 höfðu
um lengri tíma rúmfastir í gigt,
stundum 70—80 ára öldungum, og
allir hafa f^ngit5 fullan bata.
Eg vildi at5 hver maður, seiri gigt
hefir reyndi þetta met5al. Sendu
ekki peninga; sendu at5eins nafn
þitt og þú fært5 at5 reyna þat5 frítt.
Eftir at5 þú ert búinn at5 sjá at5 þat5
læknar þig, geturt5u sent andvirt5it5,
einn dal, en mundu at5 oss vantar
þat5 ekki nema þú álítir at5 meðalit5
hafi læknat5 þig.
Er þetta ekki sanngjarnt? Hvers
vegna at5 kveljast lengur þegar
hjálpin er vit5 hendina? SkrifitS til
Mark H. Jackson, No. 856 G., .Durston
Bldg., Syracuse, N. Y.
Mr. Jackson ábyrgist sannleiksgildl
l ofanritat5s.
-
er af hafi verið uppi á því tíma-
bili jarðarinnar er risadýr þetta
var uppi. Af beinagrindinni þykj-
ast menn sjá að þá hafi maðurinn
gengið mjög boginn eða jafnvel á
fjórum fótum. Hauskúpan er að
lögun til lík apa hauskúpu, en þó
miklu stærri. Andlits-beinin eru
öll löng og minna á toginleita
Eftirfarandi frétt stóð í blaðinu
New Success allmerku bandarískuj
blaði, og er gott efni til umhugs-
unar: — “Af hverjum 7 hjónum
í Japan skilja ein; 1 Bandaríkjun-
um skilja ein af hverjum 10, en á!
Englandi ein af hverjum 10,000
hjónum.
Bandaríkin.
Á síðast liðnu ári voru flutt
160,000,000 pund af kjöti inn til
Bandaríkjanna; helmingur þess
kom frá Nýja Sjálandi. Hvað
lýður Canadisku vörunni?
Allir stúdentar við Chicago há-
skólann hafa samþykt sín á milli
að lifa á 65 centum á dag, en
verja afganginum af fæðispening-
um sínum til hallærissjóðsins kín-
verska.
Ný gengin í gildi í California
eru lög um að allir karlmenn yfir
2 1 sem ekki eru borgarar verði að
greiða skólaskatt sem nemur tíu
dollurum á ári hverju.
BRETLAND
Dr. Victor Pauchot heitir fransk
ur læknir sem nýlega hefir leyst
það þrekvirki af höndum, að
skera magann úr 50 ára gamalli
konu, og halda henni lifandi og
við góða heilsu eftir sem áður..
Læknirinn telur verk magans ekki
nema nokkursíkonar undirbúnings-
verk, sem hægt sé að leysa af
hendi á annan hátt, og gera hinum
pörtum meltingarfæranna mögu-
legt eftir sem áður, að vinna að
því að næra líkamann og færa
honum lifibrauð sitt.
I Omaha fæddist drengur fyrir
skömmu sem ekki er tiltölumál.
Hann var að öllu leyti eins og
börn eiga að sér að vera nema, að
það vantaði á hann eyrun; hann
var því heyrnarlaus. Þetta vakti
heldur en ekki eftirtekt lækna, og
það varð úr að drengurinn var að
þeirra ráði fluttur á sjúkrahús, til
þess að skera hann upp við þessu
og þar að reyna að koma heyrn-
arfærunum í lag. Tólf læknar eru
við þetta verk; þegar innra eyr-
að er tekið að vinna, sem lækn-
arnir gera sér góða von um
að lukkist með tímanum,
búa þeir til ytri eyrun,
sem eflaust veitist auðveldara;
efnið í þau taka þeir úr lærum
drengsins. Þó uppskurðinum hafi
fylgt svæfingar, heilsast drengn-
um vel, og læknarnir segjaát viss-
ir um að eftir nokkrar vikur verði
hann alheill, með góðri heyrn og
myndarlegum eyrum!
Fótbrotin dúfa settist á glugga-
sillu hjá lækni nokkrum í Nev:
Jersey, og linti ekki látum fyr en
læknirinn opnaði og hleypti henni
inn. Læknbinn tók hana og lagði
á skurðarborðið, setti spilkur við
fótinn og gekk frá meiðslinu sem
á hverjum öðrum sjúkling. Eftir
að það var búið flaug hún í burt.
En á meðan fóturinn var að gróa
heimsótti hún læknirinn daglega,
og gerði hann við sárið í hvert
sinn sem með þurfti. Varð hún
brátt jafngóð af meiðslinu. En síð-
an brotið greri, hefir dúfan komið
með einn orm á hverjum degi og
lagt á gluggasilluna, og álítur lækn
irinn það þorgun fyrir meinabót-
ina. Þykir honum dúfan nú hafa
fullborgað sér, og kærir sig ekki
um fleiri orma, en dúfan hættir1
ekki fyr en hann hirðir þá af
glugga-sillunni eftir að hún er
komin með þá. Að hún leitaði til
hans, skoða menn koma af því að
hún hafi séð halta menn fara inn
til læknisins og séð hann bjástra
við að læ'kna þá.
Erfðaskrá ein var nýlega skráð
á skrifstofu stjórnarinnar í New
Yersey fyrir nokkur hundruð dala
upphæð. Einkennilegt var ekki
annað við þá erfðaskrá en það,
hve hún var fáorð; hún var aðeins
þessi þrjú orð: “Alt til önnu.”
Ráðgjafafundurinn brezki verð.
ur settur á fimtudaginn kemur.
Ekki er heilsa Lloyd George talin
hafa batnað svo að hann geti stýrt
fundi. Fyrir hönd Breta verða þeir
Lord Curson utanrfkismálaráð-
herra og Rt. Hon. W. S. Churchill
nýlendumálaritari á fundinum.
Blaðið “Sunday Observer” segir
tilgang fundarins þann að leitast
við að ráða bót á ósamlyndi og
ófriðarhug þeim sem ríkjandi sé á
sanngjarnan og sómasamlegan
hátt með aðstoð allra hlutaðeig-
enda. Föðurlandið (England) seg
ir .hann reiðubúið að þjóna þeirri
hugsjón. Frjáls samvinna á sam-
eiginlegum hagnaði bygð, segir
blaðið efni fundarins verði; það
sé það sem England þrái, og það
alt sem það æskir.
Kosningar á Englandi, eru blöðin
farin þar að spá, að hljóti að
liggja fyrir dyrum. Auka-kosning-
ar sem þar fóru fram nýlega fóru j
þannig að sam3teypustjórnin tap-;
aði þeim og er nú að mun ótraust'
ari í sassi sn áður. Verkamenn þar
þó alt annað en sammála virðist,
eru vel samtaka er til kosninga
kemur, og unnu mjög á í þessum 1
nýafstöðnu aukakosningum. Telja
blöðin Lloyd George hafa staðið
vel í stöðu sinni út á við, en ekki j
hafa gætt ástandsins eins vel og j
gera þyrfti inn á við eða heima j
fyrir; engin veruleg úrlausn frá
hans hálfu á verkamannamálunum I
og atvinnuleysi, og hag aíþýðu yf- j
irleitt ekki eins gætt og nauðsyn-j
legt sé á þessum erfiðu tímum.
Og áður en að landsreikningarn-
ir verði lagðir fram næst, er hald-
ið að kosning verði, því fallegir
kváðu þeir ekki vera og Lloyd
George er ekkert ant um að þurfa
að verja þá, ef hann á annað íborð
✓ frá völdum, að sagt er. Að
hinu leytinu segja málgögn stjórn-
arinnar, að ekkert sé að óttast fyr-
ir stjórnina og að á meðan að sam-
vinnu verkamanna og liberala sé
ómöguleg, sé stjórnin hólpin.
I Belfast á Irlandi byrjaði eitt
manndráps-uppþotið á laugardag-
inn var; einn maður var ekotinn
til bana, en 1 4 særðir. Fóru menn
brátt að draga sig inn í þessar að-
farir, og eftir lítinn tíma voru orðn
ir stórir hópar á báðar hliðar.
Gekk þá grjótkast, skothríð og
kúlusprenging um hríð, sem ekki
varð stöðvuð fyr en herinn kom
til sögunnar. Á sunnudaginn byrj-
aði önnur hríð og létti henni ekki
af heldur fyr en herinn skarst í
leik. Þetta skeði á Yorkstræti. En
svo fór líku fram á öðrum stöðum
þennann sama dag. Óróinn virðist
hafa magnast svo, að menn eru nú
farnir að efa að nokkuð verði af
konungsförinni til Irlands, sem
fyrirhuguð var 22. júní, þegar
Ulster-þingið kemur saman. Mann
fagnaðarfundum hefir víða orðið
að fresta eða hætta algert við af
ótta við uppþot og manndráp í
sambandi við þau. Hótunarbréf
hafa og stjórninni verið send af
Sinn Feinum, en þeir bera nú samt
á móti því að eiga þau.
Fré'tt sem á dögunum barst um
það, að Bretar, Rússar og lrar
væru að stofna til fundar til að
leita algerðrar sættar og friðar og
samlyndis í milli jþessara landa, er
borin til baka.
-------—o---- .
STÖKU^
Sunnudags morgunbæn.
----- *.(*
Vellir spói, vælir kjói, ,
vorið lóan syngur inn;
kussa baular, boli raular,
bænir galuar klerkurinn.
Söndahl
-------1—o----------
BRANDA
Riðluðust hjú, þá rætt var um kú
og ráðgjafans ti'úvirka anda;
en saman í hrúgu safnast þeir nú
sem fyrir búinu standa.
En alt er viðsnúið. Árin um þvjú
hún algeld var búin að standa
og alin er nú á afturhaldstrú
og enskum rúggi'aut, hún Branda.
Sighvatur
----------o-----------
SÁ FEITI OG MAGRI
Sá feiti og magri fara geist
finst þeir vei'a að tapa og hrapa.
ÖFð það er ærið beizkt
og ömurlegt að hrapa og tapa.
Sannleikann þeir sjá ei má,
svörtum slæðum dylja og hylja;
ófvægja reyna alla þá
er hann vilja þylja og skilja.
Sá magri hefir tóma tólf
tóma en fræga leppa, að skt'eppa.
Opna ef hornsteinsins þarf hólf
hver mun umþað keppa og hreppa
Sá feiti kom með fjölda manns,
en flestir hafa eyra að heyra
rengja má ej rökin hans
ruglast kann þá meira og fleira
—N. N.—
7c á pundið
Hver böggull sérsta'klega
merktur. Aðferð o>kkar við
þvott er sparnaður á vinnu
og kostar minna en heima
þvottur.
Ideal
Wet Wash
Laundry
PHONE A25S9
— —=---------- -j,
__________________________
570 Notre Dame Ave Sími AS91S
DOMINION CLEANERS AND
RENOVATORS
Edward Wincent, eigandi.
FÖT SAUMUÐ EFTIR MÁLI
Karlmannsföt pressuð 75c
Kvenföt pressuð 5 1.00
Karla og kvenföt þurhreins
uð fyrir ............ 2.00
Alt verk ekkert of smátt
vel af hendi leyst. ekkert of stórt
verðlag í hófi
Sækjum heim til yðar og færum
yður aftur að afloknu verki.
The West End
Dry Goods Store
726 SARGENT AVE.
Allar tegundir af kvenn- og karl-
manns sumarfatnaði með
15% afslætti
Einnig höfum við fullkomnair
byrðir áf hlaupaskóm, inniskóm o.
fl„ o. fl.
K
LÍTIÐ INN TIL OKKAR