Heimskringla - 17.08.1921, Page 1
gefin
fyrir
Ti
Sendia ettlr vertSllsta tll ®8
Royai Crimn Soap, Ltd. > ,
664 Maln St., Wmnipeg tI!I!baOir
__________________________________________)
VerSIann
gefin
fyrir
‘Coupons’
og
Sendit5 eftlr vertSllsta tll
umbúðir
Royal Crown Soap, L(4.
654 Main Stn Wlnnip«K
XXXV. AR
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 17. ÁGOST 1921
NúMER 47
CANADA
Útlit fyrir kosrJngar. Sambaads-
kosningar er eitt af því sem menn
.nú öSru fremur hugsa um, enda
var Meighen ekki fyr kominn heim
en álits ihans var leitaS í því efni.
Og þaS er eftir honum sjálfum
haft, að hann sé með^því, að þær
fari fram í haust. Sumir í stjórn-
inni er aftur á móti sagt að séu á
móti þeim. Telja þeir hag lands-
ins þannig, að til fleiri kosninga
en haegt sé að komast af með, ætti
ekki að vera stofnað. Er bent á
atvinnuleysi og að ýmsu leyti ó-
hagstæða tíma til þess. Segja
betra að þingið snúi sér beint að
þeim málum. Aftur ætla aðrir, og
þar á meðal forsætisráðherrann.
að kosningar geti ekki beðið eftir
því að öll sár verði grædd sem
fcetta land fékk við stríðið. En
með því að tíminn fer að styttast,
ef hafa á kosningu í haust, verður
eflaust skamt að íbíða þess, að
að verði gert heyrum kunnugt
hvað gert verði í því e'fni.
Endurköllun Bayleys. Undir-
skriftum er sagt að verið sé að
safna til þess að endurkalla W. D.
Beyley þingmann fyrir Assini'boia-
kjördæmið. Ástæðan fyrir endur-
köllun Iþingmannsins, er sú, að
hann á að hafa í ræðu sinni minst
á trúmál gagnstætt því er kirkjur
kenna. Beyley var kosinn við síð-
ustu kosningar og er verkamanna
fulltrúi; sá er á móti honum sótti
var Wilton og fylgdi hann flokki
óháðra. Á þinginu í vetur flutti
Beyley oft langar og gagnorðar
ræður. Hann var einnig yfirkenn-
ari við King George V. skólann,
en var sagt upp því emlbætti ný-
lega. 'Er sagt að talsvert sé komið
af undirskríftum, þó enn vanti
mikið á að þær séu nægar til þess
að hann þurfi að segja af sér þing-
mannsemibættinu og verði ef til
vfll aldrei.
Fyrstu járnbrautarvagn.hlössin
af hveiti fóru að streyma inn til
bæjarins í byrjun (þessarar viku;
á þriðjudaginn komu 15 C.N.R.
vagnhlöss og nokkur með C.P.R.;
voru flest þeirra send austur. Þresk
ing er fyrir nokkru byrjuð í suður-
hluta Manitoba og er nú vist um
það byrjuð alls staðar.
Aldinarækt í Vesturfylkjunum.
Norman Ross, umsjónarmaður
gróðrarstöðvar sambandsstjórnar-
innar í Indian Head, segir að alls
konar ávexti sé mögulegt að
rækta í Saskatchewan fylki. Hefir
hann í gróðrarstöð stjórnarinnar
þ>ar ræktað epli, sveskjur og kirsu-
ber (cherries) jarðarber(stravb-)
him'ber (raspb.), kúrenur, stöng-
ulber (gooséb.), og fleiri runn-
ávexti. I sumar héfi-r gróðrarstöð-
ín úthlutað yfir 3,000,000 af aldin
trjám til bænda í grend við Indian
Head. Sjálfsagt má rækta þessi
aldini einnig í Manito'ba.
Þinginu í Nýfundnalandi var
slitið á föstudaginn var. Hefir það
staðið yfir á fimta mánuð, og er
það lengsta þing sem haldið hefir
verið í 70 ár. Ýms mjög mikils
verð mál snertandi fiskiveiðar og
fiskimarkað tóku upp mikið áf
þingtímanum. Aftur kemur þing-
ið saman 12. desember, n.k.
Epla uppskera er sögð ágæt í
British ColumJbia fylki, og er bú-
ist við að verðið verði 50 centum
lægra í haust á hverjum kassa en
í fyrra.
Tripzig línuskipið mikla sem
Þjóðverjar byrjuðu að smíða á
stríðsárunuim og luku nýlega við,
hefir C.P.R. félagið keypt og
bætt við línuskipaflota sinn á
Kyrrahafinu. Skipið hefir nú verið
skýrt upp og heitir “Empress of
Chma”; er það 19,300 smálestir
(ton) að stærð.
Um 7000 verkamenn komu frá
Ontario og Québec á miðvikudag-
inn var; héldu þeir viðstöðulaust
vestur í land; voru sumir þeirra
ráðnir áður en þeir fóru að aust-
an. Von er á nokkrum síðar, en
annars héfir verið tilkynt héðan,
að fleiri manna vaeri ekki þörf við
uppskeru vinnu að austan.
Fiskitollur hár. Tollurinn sem
legst á fisk sem sendur er frá Can-
ada til Bandaríkjanna er æði hár,
samkvæmt hinum nýju tolllögum
sunnan línunnar. Fiskimáladeild
sambandsstjórnarinnar hefir ný
lega verið að rannsaka það efni
og kemst að þeirri niðurstöðu, að
ef tollinn, sem nú er á fiski, hefði
þurft að borga í fyrra, hefði hann
numið $1,500,000 f stað ekki
fullra $100,000 sem borgað var.
Fiski-fita eða olía sem send er til
Bandaríkjanna nam í fyrra $409-
000 og var tollur á henni þá
$15,000; nú er tollurinn á sömu
upphæð $51,000. Þetta nægir til
að sýna hvernig tolllögin nýju
snerta viðskifti Canada við Banda
ríkin.
--------o-------
BANDARIKIN
Meir en biljón, hefir verið tekið
út- í lífsábyrgð hjá Bandaríkja
stjórninni undir hinu nýja lífsá-
byrgðarfyrirkomulagi hennar, eftir
skýslu C.R.Fobes umsjónarmanns
þeirrar deildar að dæma.
Æðsti réttur héfir úrskurðað,
að lög Washingtonríkisins sem
ákvarða að þeir sem kaupa eða
leigja land í því ríki verði að
vera eða þá að gerast borgarar
þess, séu rétt og komi ekki í 'bága
við stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Dr Perry M. Lightenstein lækn-
ir við fangahúsið í New York,
heldur því fram að það áfengi sem
selt he'fir verið síðan bannlögin
gengu í gildi, hafi orsakað meiri
brjálsemi ,en öll þau áhrif sem
stríðið hafði á þá sem á orustu-
völlinn fóru.
Roosevelt, skip það sem Robert
Perri fór á hina frægu norður-
heimskautaferð sína, hefir verið
leigt til að fara til Beringssundsins
til hjálpar “Maud” skipi capt.
Roalds Amundsonar.
Yfri Atlantshafið á 40 klst. er
sagt að hinn nýsmíðaði loftbátur
sjóliðs Bandaríkjanna geti ferðast
Loftdreki þessi var srrúðaður á
Englandi og er sá steersti og kraft-
mesti sem enn hefir af stokkum
hlaupið.
Kínverjar stelast til B.ríkjanna.
Bandaríkjastjórnin hefir verið að
smá réka sig á það að Kínverjar
eru að reyna að flytja inn til
Bandaríkjanna þrátt fyrir það, að
strangt bann sé lagt við innflutn-
ingi þeirra. Á hverju skipi sem
beina leið kemur frá Kína til
B.ríkjanna, eru ávalt nokkrir Kín-
verjar sem teknir eru fastir og
bannað er að setjast þar að. Ný.
iega voru þannig 40 manns tekrnr
á einu skipi, sem allir verða sendir
til baka; hafa sumir þeirra borgað
ýmsum $200—$500 til þess að
greiða veg þeirra inn í landið, sem
Kínverjarnir auðvitað tapa þegar
svona fer.
Alþjóðafundur um peninga-
verðfall. Bandaríkin eru iðulega
farin að fá 'bréf og skeyti frá Evr-
ópu, sem fara fram á það, að þau
gangist fyrir að alþjóðafundur
verði haldinn um réttmætara og
hagkvæmara fyrirkomulag á gildi
peninga, og sem afstýri því geysi
mikla verðfalli sem á þeim sé nú,
og sé að gera utan lands viðskifti
sem næst ómöguleg. Bandaríkin
taka þessu dauft, og er sagt að þau
muni ekki láta sig það mál miklu
skifta, ef hjá því verður komist,
enda græða þau ekki á því og það
er sú öld ennþá, að það er hver
sjálfum sér næstur.
Fjögra ára drengur datt út um
glugga á fjórða lofti á byggingu í
New York og niður á glerharða
steinstéttina, en meiddist ekkert.
Foreldrar hans, sem hlupu til hans,
urðu heldur en ekki hissa, er dreng
urinn kom hlaupandi á móti þeim
alheill og bað þau um ísrjóma.
Læknar skoðuðu hann í x-geislum
og kváðu hann óskaddaðann.
Drengurinn hafði verið að tusk-
ast við bróðir sinn í rúminu og
dottið út að glugganum og skot-
ist út við fallið.
“Frændi” Hardings. Ameríku-
menn hafa jafnan mikla dýrkun á
forsetum sínum, einkum eftir að
þeir eru nýseztir á valdastólinn.
Þá “snobba” þeir fyrir forsetun-
um, engu minna en Evrópuþjóð-
irnar fyrir konungum sínum áður.
Hefir nýlega komið þar fyrir at_
vrk, sem sýnir hversu blindir menn
eru í þessu tilliti og hefir sú blindni
verið notuð óþyrmilega til þess að
draga fólk á tálar. I Chicago átti
ungur maður heima «r hét Everett
Harding. — Nafnið vakti undir
eins athygli á manninum; fólk
sem hi.tti hann var altaf að spyrja
hvort hann væri ekki frændi for-
setans nýja og þar fram eftir göt-
unum. Manninum datt því í hug
hvort ekki gæti verið að hann
væri frændi forsetans og komst að
þeirri niðurstöðu að hann væri
eitthvað skyldur honum. Sá hann
að skyldleikinn gæti komið sér að
góðu haldi, eftir að nafn Hardings
væri orðið víðfrægt, og fór þá
að kalla sig “frænda” forsetans,
hvar sem hann kom og var fyrir
bragðið gerður að heiðursmeðlim
í möígum stjórnmálafélögum,
fékk peninga til að stofna nýtt
Harding-tímarit og fjölda af sæl-
gætisverzlurtum, sem bera skyldu
nafn Hardings. Þegar forsetinn
tók við forsetatign í “Hvíta hús-
inu” 1. marz, leigði Everett heila
aukalest frá Chicago til Washing-
ton, til þess að verða staddur við
hátíðahöldin og borgaði járn-
brautafélaginu fyrir með falsaðri
ávísun sem hljóðaði upp á -1900
Gerðist hann æ fífldjarfari eftir
því sem áleið. Sagði hann meðal
annars, að systir sín 1 3 ára göm-
ul, hefði verið boðin í “Hvíta hús
ið” og ætti hún að vera þar fram-
vegis til að lífga upp hjá “frænd-
fólkinu”. Og blöðin tóku fregnina
á lofti og birtu stórar myndir af
systurinni og fluttu greinar uimj
hana og veru hennar í “Hvíta hús
inu". En þar hafði Everett telft
of djarft. Harding sá myndina í
blöðunum og símaði þeðar í stað
til lögreglunnar í Chicago.að hann
þekti ekkert til þiessa “frænda”
og hafði ekki boðið neinni telpu
heim til sín. Og nú situr “frændi
forsetans” í svartholinu. Mbl.
BRETLAND
Lausn Markievicz. Á lrlandi er
greifafrú ein er Georgína Markie-
vicz heitir; hún hefir setið í fang-
elsi síðan 28. desember, á Eng-
landi, en var nú nýlega látin laus
með írsku þingmönnunuim, sem
eninig ha'fa verið þar í varðhaldi.
Greifafrú þessi hlaut kosningu til
ríkisþingsins í Bretlandi 1 3. maí,s.
1., en var þá fangi. Var hún tekin
föst fyr% þátttöku í að stofna til
félagsskapar á Irlandi, sem fyrir
Sinn Feina-málum þar barðist.
Hún er fyrsta konan er til ríkis-
þingsins á Bretlandi hefir vejið
kosin, þó hún 'haf.i ekki enn setið
á þingi.
Svar íranna. Eamonn de Valera
leiðtogi lýðveldissinnanna á Ir-
landi, er nú kominn aftur til
Lundúna með svarið frá Irum,
snertandi friðartilboð Breta. Af-
henti hann það Austin Chamber-
lain í fjarveru Lloyd George, sem
var á ríkja-fundinum í París.
Hvert innihald svarsins var, vissu
menn því ekki fyr en Lloyd Ge-
orge var heim kominn. Fylgdi sú
skýring fréttinni, að svarið mundi
þannig, að fundir yrðu haldnir og
málið rætt ennþá. En nú hefir það
ekki reynst svo. Eftir síðustu frétt-
um að dæma, er ekki framar um
sáttatilraunir að ræða. Irar háfa
neitað að taka boði Betlands.
En það var fólgið í því, að veita
Irlandi sömu réttindi og nýlend-
um sínum, að veita því vald til
að fara með fjármál sín að öllu
leyti, póstmál, löggæzlu inn á við
eða íheima fyrir, en væri í kon-
ungssambandi við Bretland eða
brezka ríkið. Var þeim þar á móti
áskilin vernd út á við, og í raun
og veru lýtur sarnbands-krafa
Bretlands aðallega að því, að
enshu-mælandi þjóðir, standi í
sem órjúfanlegustu samlbandi til
þess að geta því betur varið sig í
hvað sem skerst. En þessu neit-
uðu írar. Vildu ekki sættum taka
nema því aðeins að þeir yrðu al-
gerlega lausir undan Bretum;væru
með öðrum orðum viðurkendir
sem sjálfum sér ráðandi og lr.
land lýðveldi. Að þessari kröfu er
sagt að Lloyd George hafi þver-
neitað að ganga, og sátta-tilraun-
unum sé því lokið í svip, að
minsta kosti. En að málið falli al-
gert niður, er varla hugsanlégt,
því svo mikil áhrif og umhugsun
héfir það vakið bæði á Englandi
og lrlandi. Og þó að Lloyd Ge-
orge og de Valera virðist báðir
eindregnir í því að sllaka hvorugur
á stefnu sinni, því Lloyd George
segir um algerðan skilnað sé ekki
að ræða, og de Valera að um
ekkert minna en algerða lausn sé
að gera, þá samt virðast þjóðir
beggja landanna enn ekki von-
lausar um milliveg á milli þessara
tveggja ákveðnu stefna. Fréttir
frá Evrópu sem hingað berast, eru
stundum úr lagi færðar og einkum
þó ýktar. Er ekki ómögulegt að
svo sé um það er Lloyd George
og de Valera greinir á um, þó
mikið virðist á því bera sem stend
ur.
Lausn McKeowns. Málið um
lausn McKeowns úr fangelsi, eins
og írar fóru fram á, kom fyrir
brezka þingið og samþykti það að
láta McKeovm lausan; eigi að síð-
ur sagðist Chamberlain ekki kann-
ast við að öðru vísi stæði ekki á
með hann en hina fangana, en
lausnin væri veitt heldur en að
láta það efni verða til að spilla
fyrir framgangi friðartilraunanna.
“Times”. Sá orðrómur hefir bor
ist frá Englandi, að Northcliffe lá-
varður mundi vera að losa sig við
blað sitt, "Times”. Ástæðan til
þess er talin vera sú, að stórkost-
legt tap hefir verið á blaðinu nú
í seinni tíð; nemur útgáfukostn-
aður þess á viku 2500 sterlingsp.
Þessi breyting á stjórnendum
blaðsins þykir vera mikill sigur
fyrir Lloyd George, því áður hafði
blaðið, og einkum nú síðast, er
bar á milli í stiórnmálastefnu Eng-
lands O'g Frakklands, heldur verið
á öndverðum meið við Lloyd Ge-
orge. Haldið er, að aðalritstjóri
“Times” muni verða Sir FTiilip
Kerr. Hann hefir, þar til nú fyrir
skemstu, verið áhrifamikill á hlið
Lloyd George og var þá ritari hans
Er hann maður á bezta aldri, og
var, áður en hann gekk í þjónustu
Lloyd George, einn aðalstarfs.
maður timaritsins “The Round
Ta’ble’ ’, og er talinn vel að sér í
öllum utanríkismálum.
ÖNNUR LÖND.
T rúarbragða-stríð eða “heilagtl
stríð, eins og það er hér kallað,
hefir konungurinn í Hidjas lýst
yfir að íhann og þjóð hans væri
lögð út í við Grikki í Litlu-Asíu.
Hefir hann hlaupið undir bagga
með tyrknesku nationalistunum í
viðureign þeirra við Grikki. Kon-
ungurinn kallar menn sína S stríð-
ið til verndar trúnni en landstrú
þeirra er sem Tyrkja múham
meðstrú.
Fyrsti dauðadómur sem kveð-
inn hefir verið upp yfir nokkrum
manni á Frakklandi síðan á mið-
öldunum, var nýlega látinn ganga
yfir mann nakkum er Savin heitir.
Ódáðaverkið sem maður þessi
vann, var það að hann læddist
að bandarískum hermanni úti á
víðavangi og særði hann og rænti
fé því er í vösum hans var; yfir-
gaf hann hermanninn og hélt hann
dauðann. En svo reyndist það þó
ekki, og hermaðurinn lifir enn.
Fyrir þetta níðingsverk er Savin
þessi dæmdur til dauða og á að
framkvæma þá athöfn, að öllum
sjáandi á einhverju stræti borgar-
innar.
Steinaldarmenning. Það munu
fæstir gera sér í hug, að nokkur
nú.lifandi þjóð eða mannflokkur
lifi samkvæmt hætti eða menn-
ingu steinaldarinnar. En maður að
nafni Dr. Northcote Deck, sem er
missíóneri á eyjunum norður af
Ástralíu, fullyrðir að hann hafi
fundið menn þar sem lifi á sama
menningarstigi og steinaldar-þjóð
ir. Mannflokkur þessi er Dr. Deck
kyntist, helzt við á Reunell-eyju
svo kallaðri og er hún ein a'f Sóló-
mons eyjunum í Kyrráhafinu. I-
búar eyjarinnar eru um 500. Þar
eru engar hafnir og ferðir til eyj-
arinnar sama sem engar. Vopn
þeirra og áhöld eruöll úr steini eða
við. Og fyrst eftir að Dr. Deck
kom þangað, virtust eyjabúar una
því vel. En eftir a'ð þeir sáu áhöld
úr járni hjá honum, leyst þeiim
samt svo vel á þau, að þeir eru nú
til með að skifta við hvern sem
er á þeim og ýmsum munum úr
steini. Eyja-lbúar eru bardaga og
glímumenn miklir. Spjót hafa þeir
úr tré og ydda þau vanalega með
beini úr imannskandlegg eða fæti,
og kasta þeim með frábærum fim
leik. Hið einmanalega líf þeirra
héfir sett mót sitt á þá að ýmsu
leyti. Þeir eru þunglyndislegir á
svip og rödd þeirra er mjög ótam-
in og óviðfeldin. Og hljómleika
þekkja þeir ekki aðra en þá, að
þeir iberja saman spíitum, og
dansa eftir því. Peningar þeirra
eru tannir úr refum sem haldast
við á eyjunni í hellum og skútum.
Aðra mint þekkja þeir ekki.
Dauðahegning afnumin. Sá
merkisatburður hefir nýlega orðið
í löggjöf Svía, að dauðcihegning
hefir verið numin þar úr lögum.
Var þetta til umræðu í báðum
deildum þingsins síðast í fýrda
mánuði, og fékk nær því óskift
fylgi beggja deilda. Var það sam-
þykt í erfi deild með 62:23, en í
neðri deild með 116:48. Þykir
þetta merkisviðburður á löggjafar
sviðinu sænska, og láta blöðin
það ótvírætt í ljósi, að hegningar-
löggjöf flestra þjóða stefni í
mannúðar.átt.
Frá Islacdi.
VÍKINGABLÓÐIÐ
Ameríkumenn dást að íslenzk
fon sjómönnum. Blaðið “New
York Globe” flutti, síðast þegar
Lagarfoss var í New York, smá-
grein um komu skipsins. Lýsir hún
óblandinni ánægju þess sem rit-
að hefir fyrir “smáskipum” eins
og Lagarfoss, sem hætti sér út á
Atlantshafið um hvaða tíma árs
sem er. Greinin hljóðar svo: —
Fjórum til fimm sinnum á ári, fá
New York-búar sönnun fyrir því,
að víkingslundin er enn ekki út-
dauð hjá þeim, sem lifa á hafinu,
sem sé þegar hið litla, veikbygða
skip Lagarfoss frá lslandi kemur
hingað Við næstu bryggju við
Lagarfoss liggur eitt af stórskipum
Cunardlínunnar. Einn af fyrirlið-
unum bendir á Lagarfoss og segir:
“Þessi kuggur var að koma hing-
að inn áðan, í versta veðri sem
komið hefir á vetrinum, eins og
ekkert hefði í skorist. Þeir segja
mér þar, að það taki venjulega
12— 14 daga að komast hingað
frá Reykjavík, svo þérs jáið hvem
ig verið hefir núna, þegar ferðin
tók 19 daga. Þessi skel er ekki
stærri en bátarnir, sem New York-
búar hafa í skjögt út að Liberty-
styttunni. 700 smálesta skip með
200 smálestir af kolum. Getið þér
hugsað yður það? Hugsið þér yð-
ur að fara fyrir Cape Race í veðr
inu, sem okkur finst stundum vera
hérna á skipinu. Þeir segja mér að
þeir hafi orðið að fara 300 milur
úr leið. Þeir hefðu eins vel getað
lent í Aberdeen eins og í New
York. — Fciilþegarnir á skipunum
hjá okkur eru að fjargviðrast yfir
veðrinu sem þeir fái áleiðinni, en
þá liggur nær að fara og taka ofan
fyrir piltunum sem eru að ganga
um þarna á þilfarinu eins og ekk-
ert hefði ískorist, þó hléborðið
hjá þeim hafi lengst af verið í sjó
og öldurnar hærri en siglutopp-
arnir. Ef nokkur æfintýri gerast
framar á sjó, nú á dögum 50 þús-
und smálesta skipanna, þá farið
þér til drengjanna þarna; þar heyr
ið þér þau. Þvií það eru, svei mér,
sjómenn!” Mbl.
Séra Friðrik Friðriksson verður
fulltrúi Islands á fyrsta bama og
ungmenna-verndarþingi Norður-
landa.
Spánarsamningurinn. Stjórnin
hefir fengið símskeyti, sem segir,
að við getum ekki fengið að halda
áfram vægustu kjörum sem tollög
Spánar heimila, á fiski héðan, ef
ekki sé leýfður hingað innflutn-
ingur spánskra vína.
Fjárkláði magnaður er nú í suð-
urhluta Ámessýslu. Er iHannes
Jónsson dýralæknir nýkominn að
austan og segist honum svo frá.
að kláðinn hafi gripið mjög um.
sig á sumum bæjum og sé á all-
háu stigi. Sjúka féð hefir verið
skilið úr ósjúku eftir föngum og
komið fyrir í girðngum.
Tundurdufl hafa rekið nú að
undanförnu til og frá við Suður-
land og Vesturland, eitt í Rangár-
vallasýslu, annað á Miðnesi,
þriðja í Keflavík, fjórða í Hnífs-
dal. Hafa þrjú hin síðastnefndu
verið eyðilögð, hið síðasta við
Keflavík í gær. Nú síðustu dagana
hafa stjórnaxráðinu borist fregnir
um, að tundurdufl hafi sést úti
fyrir Dýrafirði, annað utan við
Patreksfjörð og utan við Arnar-
fjörð. — Þessi tundurdufl munu
vera komin frá Ameríku, að
minsta kosti er það víst um sum
þeirra.
---- -i'.—O' ■