Heimskringla - 21.02.1923, Síða 1

Heimskringla - 21.02.1923, Síða 1
Verðlaun gefin fyrir Coupons SendiS eftir vertSlista til Qg Itoyal Crown Soap Lt<l. , 654 Main St.. WinnlpeK UmbÚðu' Verðlaun gefin fyrir Coupons Sendl'ð eftir verðllsta til Og Royal Crown Soap Ltd umbuíir 654 Main St.. "Winnioeir XXXVII. ÁRGANGUR. WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 21. FEBRÚAR, 1923. NOMER 21 Ganada. Manitoba-þingið. Miðvikud. 14. íebr. — Frumvarpið um að lækka þingmannakaupið var samþykt við aðra umræðu i þinginu með 37 atkvæðum gegn *]. Verkamannafulltrúarnir og tveir eða þrír óliáðir þingmcnn voru á móti lækkuninni, en stjórnin og hinir þingflokkarnir voru með henni. Fimtud. 15. febr. — Fjálmálaráð- herrann Hon. F. M. Black, kvaðst ekki geta lagt reikninga fylkisins fyrir þingið á föstudaglnn, cins og ráð var gert fyrir, en gerði ráð fyr- ir, að á mánudagskvöld yrði það hægt. Hann hreyfði því, að minna væri prentað af tíðindum a' þing- inu en gert væri. Kvað prentunina nú kosta um $30 á da<g. Vildi spara eins í smáu sem stóru. I’essu var >iijög mótmælt af Norris og fleir- um og kveðið lúta að því, að svifta alþýðu tækifæri til að hafa «áreið- anlegar fregnir af því, sem gerðist á þinginu. Talað var um a~ kjósa nefnd þingmanna til að rannsaka 'iag og ástæður bæja og sveita út um fylkið. Einnig var samþykt if þingnefnd, að ábyrgjast Sckirkbæ $70,000 til þess að greiða veg hans efnalega. Föstud. 16. febr. — F. J. Dixo.i bar upp frumvarp þess efnis, að eigendur óbygðra landspilda logðii söluverð þeirra fram á sveitaskrif- stofunum, og að löndin væru skött uð samkvæmt því. Um þ.ctta frum varp urðu miklar umræður. Stjórn- in. var á móti því og þótti verka- mönnum það undarlegt, þar sem að jietta ákvæði stæði á stefnuskrá bænda. En stjórnin varði sig með þvf, að eins og þetta ákvæði væri sett fram i frumvarpinu, hefði hún ekki hugsað sér framkvæmdir í þessa átt. Atkvæðagreiðsla fór fram um fmmvai-pið og var það felt með 24 atkv. igegn 19. Mánud. 19. febr. — Fjármálaráfi- berrann, Hon. F. • M. Bl'ick hélt fjármáláræðu sína á mánudags- kvöldið var. Hann sikýrði frá því, að tekjumar hefðu ckki hrokkið s.l. ár upp í útgjöldin og því væri skuldin eftir árið $1,346,182.15. Öll væri skuld fylkisins því $66,381,121. óarðberpndi væru 26,864,924 af þeirri u|)|>hæð. Svo væru $6,676,962, sem eytt hefði verið til framræslu. Arðberandi skuldir væru því $32,- um $40,000; Giftingar- og veiðileyf- um um $9500 og á bílum, mótor- hjólhostum o. fl. $150,000. Alls nema þessir nýju og auknu skattar um $524,500. Geti nú stjórnin með þessu graf- ið fyrir þau átumein, er skuld fylk- isins valda, eins og hún gerir ráð fyrir, gerir hún í sannleika v.el. Auðýitað getur verið að hún selji eitthvað af verðbréfum til þess, en skattar þessir eru ekki tiifinnar le-gir fyrir alþýðu, þar sem þeii snerta verzlun meira en Iiana og eru þess utan ekki liáir. Stjórnin ætlar auðsjáanlega að vinna mest á sparnnðarstefnu sinni, og það er ef til vill eina ráðið sem stendur til þess að inæta skuldum fylkis- ins, og sú stefnan, som kjósendum geðjast þezt að. Sambandsþingið. Tvær tillögur komu brátt fram í saniibandsþinginu, sem stjórninni varð liálf óglatt af að heyra. Það voru tillögur Eændaflokksþing- mannanna Hoey frá Manitoba og Shaw frá Alberta. Tillaga Hoey fór fram á, að þar. eð skattar og kvaðir væru ávalt að aukast pg byrðin væri altaf að þyngjast á herðum almennings, og að af því væri megn óánægja ríkjandi, þá ætti sainbandsþingið að lofast til að gera altr það sem í þess valdi stæði til þess að létta tollum og sköttum af þjóðinni. Þetta kvað hann færa kostnað við framleiðslu niður, svo auðveídará væri að framleiða eftir en áður, og það færði niður framfærslukostnað aJ- mennings yfirleitt; en liann væri nú svo hár hér í iandi, að nærri iægi aö menn ilýðu land þess vegna. — Tillaga þessi kom af stað lönigum umræðum um tollmálin. En liún var feld með 114 atkv. gogn 76. Fáir aðrir en bænda- þingmennirnir greiddu atkvæði með tillðgunni. Stjórnirmi hefir engin þörf þótt vera á því að gera sitt ítrasta til þess að létta byrð- inni af herðmn almennings, og er það ekkert nýtt, að stjórnir skoði verkefni sín önnur en þau, að bæta kjör bans. Benti Hoey frek- ar á það stefnuleysi, er honum virt i ist ríkjandi í stjórnskipulaginu, 1 með því að minna á, að þjóðiri liorgaöi leiðtoga stjórnarinnar $19,000 á ári til þess að framkvæma vilja sinn, en greiddi svo öðrum manni, ieiðtoga stjórnarandstæð- 789,234. Þetta er skuld fylkisins 31. desember 1922. Allar eignir fylk- isins á móti þessari skuld kváðu vera $84,958,347. Eignirnar væru því uin $16,282,226 meiri en skuldin. Við þessa skuld á liðna árinu bæt- ist svo tekjuhailinn frá fyrra ári, 1921, sem hleypir skuldinni upp um nærri $2,000,000. Til þess að' geta þurkað þenn^ tekjuhalla af, þarf því bæði að færa niður útgjöldin á komandi ári og auka tekjur fylkisins. Útgjöldin gerir stjórnín nýja ráð fyrir að takmarka það, að hinn nýi áætlaði reiknlngur fari ekki fram úr ])ví, sem hann, var í fyrra, með hvorumtveggja tekjuhall°num með töldum. En til þess þurfa áætluðu tekjurnar að noma $10,073,043 á komandi ári. Tekjur þessar er sarnt sem áður ekki hægt að ná í nema með auknum skatti. enda þó að þær séu lægrl, en áætlaði reikn- ingurinn á þinginu í fyrra íyrir þetta yfirstandandi ár, eða upp að lokum ágústmánaðar 1923; en þau útgjöld voru metin $11,224,134. Hinir nýju skatar, sem ráð er gert fyrir, eru þessir: Gasoline- shattur $125,000, skattur á korn- verzlun er nemur $100,000 og skatt- ur á gosdrykkjum er nemur $100,- 000. Svo eru auknir skattar á knatt- leikahúsunum og veðreiðabraut- inga $14,000 sérstaklega til þess að ónýta gerðir stjórnarinnar eða framkvæmdir hennar. Við hvaða viðskiftastofnun skyldi slíkt eiga sér stað, spurði Hoey, að hálaun- aður maður væri fcnginn til þess að hindra starfsemi ráðsmanns stofnunarinnar? Tillaga Shaws laut að því, að með tilliti til þess að skuld landsins færi altaf vaxandi, yrði stjórnar- reksturinn færður niður og meiri sjiarsemi viðhöfð í öllum greínum en áður. Það væri eini vegurinn til þess að koma landinu úr skuld- um, því skatta þyldi þjóðin ekki hærri en nú væru. T2n tillðgu hans re.ddi ver af en tillögu Hoey. Á núti henni greiddu 140 atkvæöi. en .i»ð ekki neni:\ 54. E; því tvísa.i n- að, það sem áður er haldið fram, að stjórnin má ekki lieyra nefnda sparsemi eða afnám tolla og skatta. Forke> leiðtogi bænda, skýrði af- stöðu bændaflokksins í öllum helz^M málum landsins, er nú eru, á dag- skrá, og var góður rómur gerður að því. S. J. Woodsworth frá Winnipeg bar upp tillögu um það, að Canada gæfi Þjóðverjum upp skuldir sín- ar. Sú tillaga var feld með meixi- hluta atkvæða flestra þingflokk- anna. Canada er kjörlandið. Úm 4000 Bretar, þjónar hins op- inbera á lndlandi, ‘hafa nýlega feng ið lausn frá embættum. Menn þessir hafa í hyggju að flytja burt af Indlandi. En hvar þcir ættu að setjast að, heðr v rið þeim ráð- gáta. í fyrstu litu >þeir hýru auga til Ástralíu eða Nýja Sjálands; það er vissulega margt kostulegt við þessi lönd. En nú hafa peir samt ákveðið, að setjast að í Can&da; I álitu hana girnilegasta landið. Menn þessir eru vel fjáðir; hafa hver um $30,000 í fórum sínum. Að fjöiskyidum þeirra meðtöldum eru þetta um 10,000 manns. Fyrsti hóp- urinn, um 100 fjölskyldur, er væut- anleguX hingað með byxjun marz- mánaðar. Svefnsýki. Þrátt fyrir alla varúð og tilraun- ir heilbrigðisráðsins, til að hefta svefnsýkina, virðist hún vera að j breiðast hér út. S.l. viku veiktust j 21 af henni hér í bænum og tum | stöku sjúklingar hafa verið fiuttir aran úr sveitunum til bæjarins. l'iiiim manns dóu úr henni s.l. viku hér í bænum. Fjártillag sambandsstjórnarinnar. Fjártillag samJiandsstjórnarinnar til hinna ýmsu fylkja landsins, er nokkru hærra til vesturfylkjanna, að Manitoba undanskildu, en áður. í ár fær Manitoba $1,468,685; s.l. ár var það $1,470,991. Hlutur British Columbia er $738,816 eða $115,861 hærri en í fyrra; Alberta $1,628,638 eða $7,563 hæiTi en áður, og SasM atchewan $1,763,883 eða $10,808 liærri en s.l. ár. Hydro-kerfið. Hydro-Electrie kerfi Manitoba fylkis hefir liaft $14,609 í liag af starísrekstrinum s.l. ár. Árið áð- ur, 1921, var tap félagsins $27,277. öll var umsetning félagsins $1,659,- 725 árið 1922 eða um 87% þúsundi meiri en 1921. Eignir kerfisins eru metnar á $16,662,067. Verkfall. Kolanámumenn í Sidney í Nova Seotia liafa gert verkfali. Margar námur eru hættar að starfa. Þykir til vandræða horfa út af verkfalli ]>essu, og hefir verið lagt fyrir sam bandsstjórnina að skerast í leik og koma sættum á. En hún tekur dauft í það. --------XX--------- Bandaríkin. Lafollette og skuldir Breta. Semitor Lafollette frá Wisconsin er stálharður á móti «amningun- um, sem verið er að gera við Breta viðvíkjandi skuld þeirra við Banda ríkin. “Ákvæðið um að skuldin sknii borguð á 62 áram,” segir senatorinn, “sé hið sama og að vernda hinar víðáttumiklu nýlend- ur Breta út um ailan heirn í 62 ár.” Bandaríkin eru þá fflækt inn í al- ríkjapólitík Evrópu, heldur senat- orinn fram, og þá eru hin viðteknu Múnróllög Bandarfkjanna brotin. í hans augum er betra að gefa upp alla skuldina. Kolalest tekin. Kol, sem voru á leið til Canada sunnan úr Bandaríkjunum, voru tekin í bænum Balston, Spa, í New York ríkinu og notuð þar til elds- neytis. Nefnd sú, er eftirlit hefir með eldsneyti í New York ríki, skipaði þetta. Kolaskortur er svo mikill þarna suðurfrá, að til þess- ara ráða varð að grípa til að mæta þörfinni. Þetta voru 3 vagnhlö-s af kolum. Charlie Chaplin trúlofaður. Charlie Ohaiilin kvað vera trú- lofaður á ný leikkonu einni, er Pola Negri heitir. Þau eru sem stendur stödd í California, en giftingin hefir énn ekki verið á- kveðin. ----------XX--------- Bretland. Frá brezka þinginu. Tillaga sem fór fram á það, að al- þjóðafélagið ásaint Bandaríkjunum rannsökuðu liag Þjóðverja eða á- stæður þeirra viðvíkjandi því að greiða skaðabótaskuldir sínar var feld með 305 atkv. gegn 196. Um- ræðurnar um tillögu þessa voru miklar og var ræða Lloyd George oinkum víðtæk og ínerkileg í því sambandi . Hann yfirvegaði á- standið með svo snjöllum orðum, að dáðst-var að. Og ef að sá bögg- ull hefði ekki fylgt skamrifi, að stjórnin hefði verið feld með því að sainþykkja tillöguna, hefði hún ef- laust, segja fregnirnar, hlotið meiri hluta atkvæða á þinginu. Lloyd George benti með sinni fyrri mælsku oig afli á það að Frakkland væri, með því að taka Kuln-héröðin í sínar hendur, að efna til svipaðia vandræða, og Þjóðverjar hefðu gert 1914. Hann kvað fyrirhyggjuleysið hjá báðum þjóðunum það sama í því efni. Hann sagðist þess fullviss, að þeir sem framsýnir væru í hermálum á Frakklandi, héfðu aldrei ráðlagt Frakklandi að taka Ruhr-héröðin. Stjórnin gerði það án nokkurrar aihugunar, að því er afleiðingam- ar snerti. En þær eru bylting á Þýzkalandi. Og við þýzka bylt- ingu verður verra að ráða en við þýzkan stríðsanda. Að stöðva Frakka nú þegar í Ruhr-héröðun- um væri þvi nauðsynlegt. Og *' ð væri það sem í tillögunni teldist, sem fyrir þinginu lægi, með því .að láta nefnd frá Alþjóðafélaginu rannsaka hag Þjóðverja. Búpeningur frá Canada. Búpeningi sem frá Canada er sendur til Englands, er ekki aðeins tekið vel, hddur er hann að út- rýma dönskum búpeningi þar af markaðinum. Nauta- og sínakjöt- ið néðan l>ykir þar b°tra vegna ]iess að það er ekki eins fitumikið og kjöt frá Dajimörku. Bændur í Danmörku kváðu vera farnir að gefa því gaum, að gera gripi sína svo lir garði, að þeir _eti mætt þessari samkepní. Radio-stöð í Buckingham. Að Radio-stöð verði sett upp í Buokingham-höllinni er. nú talið víst. George Bretakonungur ætlar að nota eitt herbergið l>ar til þes^a og þaöan ætiar liann svo að tala við l>egna sína um alt land svo oft sem honum sýnist. Þetta er þægi- logt og álitið að hafa margt gott í för með sér. Með þráðlausum skeyt um hefir prinsinn af Wales nýlega opnað sýningar eða samkomur víðsvegar um landið. írar ekki hættir. Eitt af hinum verstu spellvirkj- um uppþotsmaiinann.a irsku var framið nýlega. Járnbrautarlest var á ferð milli Dublin og Hawth. Þegar skyggja tók komu 7 m nn útbúnir með skotfærum og skip- uðu aö stöðva lestina. En á st- inni voru fáir utan vagnstjóri og vðlstjóri. Uppreisnarmennimi-r skipuðu þeim að losa gufuketilinn frá vögnunum og létu svo gufuket- ilinn renna mannlausan þar til að hann kom þangað e>' iþeir höfðu áður tekið sporin af brautinni. þar veltist ketillinn um. En um þessa sömu leið var von á annari járnbrautarlest, sem inn á sporið kom skamt fyrir framan vagnana. Þegar lestarstjórinn og vélstjórinn af lestinni, sem stöðvuð var, ætl- uðu að gera aðkomulestinni ■•ðvart um að sporið væri rifið af braut- inni, skutu uppþotsmennirnir þá. Lestin hélt l>ví áfram og veltist um er að enda sporsins var komið. Það vora ekki margir með lestinni, sem betur fór, en níu manns var flutt meira og minna meitt á sjúkrahús. ---------xx---------- Önnur lönd.j Frá Ruhr-hérööunum. Deilan er altaf að liarðna í Ruhr héröðunum. Fréttir þaðan s.l. iaug- ardag fullyrða, að Frakkar krefjist nú þess eins í sambandi við skaða- bótamálin, að Þjóðverjar fái þeim héröðin með öllu í hendur. Þeir hafa og sagt 63 þýzkum yfirmönn- um í fjölda bæja þar, að hafa sig í burtu með fjölskyldur slnar innan fjögra daga. Hafa Frakkar sent Bretum tilkynningu um þetta og láta frönsk blöð þess getið, að þar sem Bretar séu ein af sambands- þjóðunum, geti þeir ekki með neinni sanngirni hindrað þetta eða gert sig að sáttasemjurum á rnilli Frakka og Þjóðverja. Enn- fremur hafa Frakkar tafið eða tek- ið vörur, er til Bandaríkjanna áttu að fara úr héröðum þessum. Er nú samt mælt að þeir séu að rann- saka það mál og ætli ekki ið haldi í vörurnar. En alt ber þetta með sér, að Frökkum er full alvara með að taka Ruhr-liéröðin upp í skaða- bótaskuldir Þjóðverja. Tyrkir sökkva frönsku skipi. Sagt er að Tyrkir hafi nýlega sökt frönku skipi nálægt Smyrna. Tízkan leggur land undir fót. Höfundar tízkubúniiiganna í Bandaríkjunum liafa ákveðið að senda stúlku alla leið “il Egypta- iands til iþess að leita að fyririrynd tízkubúninganna á koinandi sumri. Stúlka þessi á. að kynna sér bún- ir.g þessa nýfundna Earós, eða Tut-ankt-amen konungs, sem þar er nú nýgrafinn upp úr rústum og var uppi fyrir 35 öldum. Það l'tur út fyrir að tízkufólkið ætli að vera í einhverju í sumar. Fornleifafundur á Egyptalandi. Um mörg undar.far’n ár hafa Bretar verið að rannsaka gamlar borgarrústir á Egyptalandi. Á síð- astliðnu ári ’fundu þeir grafhvelf- ingu mikla, sem þeir hafa fram að þessum tíma verið að leita í forn- leifa. Loks fundu þeir gröf þá. eða réttara sagt jarðhús mikið, þar sem einn af konungum Egypta frá 13. öld fyrir Krists æðingu, Tut- ank-Amen að nafni, var grafinn í. í grafhvelfingu þessari er feiknin öll af auðæfum í munum hinum og öðrum, líkömum og öðram ger- semum. Síðasti afkimi grafarinnar var opnaður s,l. föstudag, og fanst þar svo mikill auður í munum, að slíkt verður erfei metið til peninga. Annað, sem afar mikla þýðingu hefir í sambandi við þetta, er sögu legi fróðleikurinn, som talið ,er að falinn sé í gröf þessari og munum ]>eim, er þar hafa geymst óskemdir um 35 aldir. Sá, er fyrir greftri þessum stendur, er Englendingur- inn Howard Carter. Arthur Wie- gall, enskur maður og einn hinn fróðasti núlifandi manna í sögu og fomleifarannsóknum Egyptalands, heldur því fram, að konungur þessi, s©m kallaður er Tut-ankt- Amen, sé sami maðurinn og Faraó sá er getur um í bihlíunni, barna- morðingi eins og Heródes, og sem sagt er að farist hafi í Rauðahaf- inu. nve mikill sögufróðleikur þarna er geymdur, vterðíir því ekki, fremur en allur auðurinn, em þarna hefir fundist, metið til fulls fyr en að löngum tíma liðnum. Röntgen látinn. Hinn frægi þýzki vísindamaður, Röntgen, siá er fann x-geislana, lézt nýlega í ófunchen á Þýzka- landi. ---------xx--------- Winnipeg. Almennur sainaSarfundur Sam- bandssafnaðar verður haldinn eftir guðsþjónustu næstkomandi sunnu- dag. Lagt verður fyrir fundinn frumvarp það til kirkjufélagslaga, er fulltrúar, hinna frjálslyndu íslenzku safnaða samþyktu að W’ynyard í desembermánuði síðastliðnum. Kvenfélag Sambandssafnaðar hefir í hyggju að efna til mjög fjölbreyttr- ar skemtunar síðari hluta marzmán- aðar. Samkon^t Fróns á þriðjudags- ki’öldið ætti að vera fjölsótt. Til þess liggja margar ástæður; og er þá fyrst og fremst sú að 'amkoman er í þjóðræknisskyni haldin, svo ..ð Islendingar geti einu sinni á vetrin- um kornið saman til þess að gleðjast vfir að þeir eru Islendingar; og í öðru lagi býður Frón nönnum upp á ágæta skemtun, eins og sjá má á skemtiskránni, að ógleymdum veit- ingum og dansinum á eftir, sem ætti að verða til þess að draga unga unga fólkið að. Islendingar! Munið eftir ársþingi Þjóðrknisfélags Islendirga í Vestur- heimi, sem haldi ðverður í Good- templarahúsinu dagana 26., 27. og 28. þ. m. Það ætti að vera kappsmál hverjum Islendingi, að sækja það þing, ef hann getur því við kom'ð, taka þátt í störfum þess og endur- nýja þjóðernismeðvitundina; því enn höfum vér ekki völ á betra þjóðerni en voru eigin. Nýjar íslcnzkar bækur. Sögur Rannveigar, II., eftir E. H. Kvaran, ób. $1.70, í b..... 2.40 Kvæði eftir Jón Trausta, í bandi $3.00, ób........... $2 10 Einsöngslög, eftir A. Thorsteins- son, I,—III. h.................. $2.00 Islenzk-dönsk orðabók, fyrri hluti, eftir Sigfús Blöndal .......... $10.50 Sögukaflar af sjálfum mér, eftir Matth. Jochumsson, í b. 5.75, ób. 4.75 Morgunn, 3. árg.................. 3.00 öðinn, 18. árg.................. $2.10 Þjóðvinafélagsbækur 1922 ........$1.50 Almanak Þjóðvinafél. 1923 .... $0.65 Andvörp, söugr eftir Björn aust- ræna ........................ $1.60 Tíu sönglög, eftir Arna Thor- steinsson ................... $1.40 Hjálmar Gíslason, 637 SaXgcnt Axe., Wpg. Stúdentafélagsfundur verður hald- inn á venjulegum stað, í Fyrstu lút. kirkjunni á Victor St, og byrjar kl. 8.15. Ymislegt til skemtunar ■ g fróðleiks verður þar um hönd haft. Gttðm. Davíðsson frá Riverton var í bænum yfir helgina. Fór heim aftur á mánudagskvöld, eftir að hafa verið við jarðarför Bjarna bróður síns. Andrés Skagfeld frá Oak Point, Sv. Björnsson frá Gimli og Sig. Freysteinsson voru staddir hér í bæn- um í gær.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.