Heimskringla - 21.02.1923, Qupperneq 5
WINNIPEG, 21. FEBRÚAR, 1923
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSÐA.
af smjaðursfullum hirðskrifurum.
Og svo nokkrar sagnir, hjátrúar
og hleypidóma, um flóð og fyrn-
indi, er yfir jörðu hefir gengið.
Einvaldar þessir eru ekki meir;
þeir eru fyrir löngu orðnir leir sem
leirspjöldin, sem á er greypt lof
}>eirra og frægð. Frægð þeirra,
er hvíldi á ótta }>rælanna, er því
jafn dauð sem þeir og leirspjöld-
in. Hvað fær lífið gert sér úr
slíku? Hvað hefir þá fundið
skjól í skauti hinna frjófu skóga,
þroskast við rætur pálmaviðar-
runnanna, kókusihnetutrjánna, þar
sem baráttan fyrir lífinu er svo
létt, að sem næst má segja að
maðurinn þurfi ekkert fyrir að
hafa? Það virðist hafa nætt um
þau skjólin, eigi með fönn og
frosti, heldur hinum heita og
sterka blæ, sem skrælir og þurkar
allan sálargróður.
Annað land þekkjum vér af af-
spurn og sögu um óteljandi aldir
fram. Þess er næst getið sem að-
setursstaðar menningar. I heimi
er ekki til frjórra land né gætt
meira grasi og gróðri. Það er
langur og breiður dalur, og dal-
botninn ótal álnir niður, myndað-
ur af mold urta og dýra, er lifað
hafa og dáið um þúsund aldir.
Land þetta er Egyptaland hið
fræga. Gósenland hinna gömlu
sagna. Þar teygir pálmaviðurinn
greinar sínar móti himni og sól.
Þar eru árstíðirnar fjórar, og^all-
ar frjóar. En hvað hefir frjó-
semi sú eftir skilið? Hvað hefir
fundið skjól undir njólunum, sem
vaxa svo að segja himinháir á
einni nóttu — ef maður undan-
skilur spámennina? Um landið
er stráð íisavöxnum stein-þríhyrn-
ingum, er hlaðnir hafa verið upp
af höndum ánauðugra manna.
Æfi þeirra og líf hefir bókstaflega
verið lagt í vegginn, hefir hlaðið
sér þar grafhvolf. Fleygmyndað
letur hefir verið klappað þar á
bergið, er segir frá dýrð og veldi
dáinna Faraóa, valdi sem þeir
höfðu yfir æfi og lífi þúsunda
þræla og ambátta. Haugar þess-
ir hafa verið brotnir og í þá verið
gengið. — Og hvað er svo þar
varðveitt? Þetta, sem afturhald-
ið í heiminum metur mest —
steingerfingar — steinrunnir lík-
amir þessar heimsdrotna—þræla-
húsbænda — er sofið hafa nú um
þúsundir ára. Mynd þeirra hel-
fjötrum reifð, afskræmd og engri
mannlegri ásjónu lík. Og um
þessar leifar er vafið lengjum úr
stör — grastegund þeirri, er þar
óx, og nefnd hefir verið pappý?
-— og á þær lengjur er ritað eins-
konar helgimál, um ferðalagið
burt úr þessum heimi, er seinni
tíminn hefir saman lesið og nefnt
“Bók hinna dauðu”. í steindys-
um þessum, er með hagleik eru
gerð, er þá ekkert að finna nema
dauðan leir, enga rödd þaðan að
heyra, engin orð, nema úr “Bók
hinna dauðu”. Þrátt fyrir sæld
og blíðu hinnar ytri náttúru hefir
fokið í skjólin þar.
Víðar má um heiminn fara og
leita gróðursins, en leitin verður
að litlu nær. En ef þetta sannaði
tiokkuð, og oss finst það sanna
«rið margt, þá bendir það ótví-
ræðilega á eitt, að jarðarfrjósemin
er gerir lífsframfaérsluna sem auð
veldasta, er eigi einhlít, þroskar
ekki anda og hugsun mannsins að
sama skapi. Það sannar, að 'leið-1
'rnar geta verið tvær til þroskans,
^nnur með hjörðinni er unir í
8rænu haglendi, hin upp fjalls-
^íðina með þeim, sem ummynd-
ast á Fjallinu. Það bendir á þau
sannindi, að þótt vaxið geti njóli
á einni nóttu í Ninevehborg, vaxi
ekki þar að sama skapi mannviti
mergur, svo að þar geti ek'ki búið
þúsundir þúsunda, er ekki þekkja
sína hægri hönd frá hinni vinstri.
En hvað er þá hrjóstrugt land?
Hvað er gróður? Á ekki gróður-
inn eitthvað skylt við líf? Eða
er hann Múmíur, Bók hinna
Dauðu, Hveitikorn, Steindys,
Rústir hruninna halla.
Eg ætlaði ekki að minnast á
bókmentir þjóðar vorrar. En eg
er knúður til þess. Eg skoða þær
sem gróður. Verð því að nefna
þær, sökum þess, að um hrjóstur-
landið er að ræða og spurninguna
hvort oss geti þótt vænt um það.
Stærri mótsetning finst ekki en
þær bökmentir við Bók hinna
Dauðu. Lífsbaráttunni er kveðið
lof, sigri andans sunginn óður.
Höndin seilist upp, jarðböndin
slitin, hve þétt sem þau eru þætt-
uð, sagst í ætt með því, sem eilíft
er og aldrei deyr.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjálfr et sama,
en orðstír
deyr aldregi
hveims sér góðan of getr.
Mold Egils er löngu blönduð
moldinni á Borg. Múmmía hans
i er hvergi varðveitt, en mynd hans
j er geymd lifandi, og ber enn “út
úr orðhafi, mærðartimlbur máli
laufgað”. Lífinu er geymd
reynsluþekking þúsund ára, til
þess að vísa því veginn um dalinn
j hér, en spekin ekki grafin í göml-
I um haugum. Ekkert land hefir
J lagt til minni efnislegan auð, eða
j skamtað skornara brauð, en ekk-
ert land hefir varðveitt eins vel
eða ávaxtað betur í skjóli sínu
j hinn andlega auð né mint betur á,
j að maðurinn lifir ekki af einu
I saman brauði. Það er stóra dæm-
ið mannkynssögunnar; eins og af
: forsjóninni ákveðið og útvalið til
að bera vitni um þann sannleika.
Til þessa vitnisburðar er útvalin
sú þjóð, sem eg tel allra þjóða
bezta, fegursta, bjartasta að svip
j og íturvaxnasta til lífs og sálar —
! það er mín sannfæring, en þar
1 dæmir hver um sem vill og honum
þykir hróður í. Skoðið ekki þetta
sem skjall eða hrós. Það er arfur
j sem vér höfum ekki unnið til, en
1 sem oss hefir verið gefinn. Hvern-
; ig viljið þér verja honum? Víxla
honum fyrir turtildúfur og fornar-
! lömb, fyrir erlenda mynt. Það
; vildi eg^ að einhver vildi þá rísa
upp úr mannþrönginn, snúa sér
svifur úr köðlum, hrinda um borð
um víxlaranna og helga musterið.
Þetta land er hrjóstrugt og
snautt. Fær oss þótt vænt um
það? Er spurningunni svarað?
Oss þykir vænt um það. Vér
berum minningar þess í huga.
En því miður auglýsum það
hvern dag með orðum og
gerðum. Land vort og þjóð
er einstakt og sérstakl í sögunni.
Það er opinberun andlega máttar-
ins, andans yfir efninu, lífsins er
rís yfir örðugleikana og vex við
þá. Það er ekki tilviljun að þangað
fluttu þeir fyrst, er njóta vildu
kyrðar til að auðga anda sinn, og
síðar þeir er vernda vildu einstak-
lingsfrelsið. Það er fyrirboði
þess, sem það hefir að nokkru
verið. Fyrirboði þess, sem það á
að vera í sem fýlstum mæli, þótt
aldir renni.
Island.
Vr Svarfaðardal cr skrifað 23. nóv
ember: “Heilbrigöi manna er hér
með atlra bezta rnóti, minsta tcosti inn
an sveitarinnar. Tíöarfar h;fir ver-
i« afbutöa gott þaö sem af er vetrin-
um, sérstaklega siöan um mánaö i-
mótin október og nóvember. Þá geröi
töluveröan snjó, en hann tók fljó.lega
upp. Hefir síöan ekki gránað í rót
þangað til í gær, aö fór aö hríða, og
er nú kominn dálítill snjór. Þetta
ætti aö verða mikill léttir fyrir bænd-
ur aö fleyta skepnum sínum í vetur,
enda munu margir þeirra hafa sett
mjög djarft á í þetta sinn. Er haft
eftir fóðureftirlitsmönnum sveitar-
innar, aö 40 kýr séu settar á tóma síld
og samt skorti fpöur fyrir 4 kýr og á
annað hundraö fjár algerlega.”
Tíðarfarið. — Um alt land hefir
verið einmuna tíö undanfariö, svo að
sá snjór, er kominn var, hefir alstað-
ar horfið. En nú síðustu daga mun
hafa veriö hríðarveður noröanlands
og kvaö hafa sett þar niður nokkurn
snjó — þó ekki mikinn.
Ferðatninningar, I. hefti, eftir
Sveinbjörn Egilsson ritstjóra, er nú
komiö út. Sveinbjörn ætíar að gefa
út endurminningar frá feröalagi sínu
en hann var lengi í siglingum og fór
viða. — Þetta hefti er tæpar 100 bls.
aö stærð og mun margt skemtilegt ■
veta í því. Þar er t. d. mikill fróð-
leikur um Hafnarfjörö eins og hann
var um 1870 og ýmsa Hafnfirðinga.
Þetta hefti endar á byrjun á frásögu
um veru Sveinbjarnar i Calcutta, en
heftunum er ætlaö aö vera 6.
“Heimir” 'heitir söngmálablaö, sem
nýkomiö er af fyrsta hefti. Eru rit-
stjórar Sigfús Einarsson og Friðrik
Bjarnason í Hafnarfiröi. Heimir er
annaö ritiö hér á landi, sem gefiö er
út til þess aö ræða söngment. Aöur
var gefið út “Hljómlist” Jónasar
Jónssonar.
Vtlcgð fsiendinga í Amcríku. —
* Þorst. Björnsson cand. fcheol. heldur
næsta fyrirlestur sinn um Vestur-
Islendinga kl. 2n.k. sunnudag í
Nýja B'íó og kemur Jiann í stað stúd-
entafræöslunnar. Efnið er aö vissu
leyti sérstakt, en þó áframhald af
fyrra fyrirlestri, sem bæöi þótti fróö-
legur og skemtilegur, en víst má
telja, aö þessi verði ekki síðri.
hvorri skipshöfn. Báru þeir þaö fram
af Otri, aö þeir heföu ekkert Ijós séð
á Maí. En skipshöfnin á Maí bar
það fram,, aö tilskipaö ljós heföi log-
að. Sóru þrír af hvoru skipi fyrir
framburðinn, og lítur þvi út fyrir aö
báöir séu i sökinni. Ber því vá-
tryggingarfélagið kostnað allan.
Slys. — Þaö slys vildi til í Vest-
manna eyjum fyrir stuttu. að Ágúst
Gislason útvegsmaður féll út af
bryggju niöur í grjót og beið bana
af Hann var maður á fimtugsaldri.
(Lögrétm).
VerkfalL. — Prentarar í Revkja-
vík hafa gert verkfall, og konu nú
er.gin blöö út i Reykjavík, en Visir
og Morgunblaöið gefa út vélritaða
snepla, til þess aö bæta úr bráöustu
neyðó.ni. Verkfallið stafar af ós'im-
komu'Iagi milli prentsmiðjueigenda
og prentara út af kaupgjaldi og ý:ns-
uui Peiri samningsatriðum.
Vothcysgerð. — Erasmus Gíslason
sem nú er á Loftsstöðum í Flóa, hef-
ir fundið upp nýja aðferö viö vot-
heysgerð, og sú reynsla, sem þegar er
fengin, gefur góðar.vonir um, aö hér
sé um merkilega og arövænlega fram
för að ræöa. Tilraunirnar hefir hann
gert á Loftsstöðum, Stokkseyri og
Kolviöarhóli. Rannsóknir efnarann-
sóknastofunnar hér sýna óvenjumikil
fituefni í votheyi hans.
Hestamarkað hefir heildverzlun
Garöars Gíslasonar haldið austur í
sýslum síðustu viku. Komu fyrstu
hestarnir, 45, að austan í gær, en ann-
ar hópur kemur í dag eöa á morgun.
Verður hestamarkaöur hér í fyrra-
málið. Hestanir verða sendir til
Englands meö Lagarfossi á morgun.
Maður hverfur. — I lok nóvember
mánaðar hvarf maður á Fáskrúðs-
firði, Stefán Þorsteinsson bóndi frá
Höfðahúsum. Var hann á leið frá
Búðum í bezta veöri, en mjög dimt
var. A leið þeirri, er Tiann ætlaði
að fara, fanst síðar ljósker, er hann
hafði 'haft með sér. En leið hans lá
meðfram bröttuni sjávarhömrum, 'er
sjór fellur upp að. Er þess getið til,
að hann muni 'hafa hrapað fram af
þeim. Hefir verið leitað með slæð-
um og netum undir hömrunum, en
árangurslaust.
----------xx----------
Winnipeg.
Ingólfslíkneskið. — Heyrst hefir,
að Iðnaðarmannafélagið hafi nú á-
kveðið að láta steypa líkneski Ingólfs
j Arnarsonar, sem gert hefir Einar
Jónsson myndhöggvari.
Sveinbjörn Olafsson frá Hjálm-
i holti, bróðir Sigurðar sýslumanns
i Ölafssonar, er nýlátinn af slagi.
j Hann hafði lengi verið á Eyrarbakka.
|
Dáin er í Kaupmananhöfn 3. þ. m.
(des.) Guðrún Einarsdóttir, sem lengi
var hjá Pétri sál. Péturssyni biskupi
og síðan hjá ekkju hans, og fluttist
með henni til Kaupmannahafnar.
Hún var ættuð úr Skagafirði.
Dánarfrcgn. — A jóladaginn and- j
jaðist Ölafur Jónsson bóndi á Bakka í j
j Leirársveit. Hafði hann legið rúm- !
fastur undanfarna mánuði. Olafur;
heitinn var sæmdarmaður í hvívetna i
^ og vinsæll mjög á meðal sveitunga j
sinna.
Togaraárekstur. — A aðfangadags !
morguninn rákust tveir togarar á,
j Otur og Mai, vestur á önundarfirði.
| Lá Maí fyrir akkerum en Otur var á j
leið út f jörðinn og lenti hann á Maí
framanverðum og braut þar gat á, en
mölvaöi sjálfan sig á stefninu, svo að
sjór féll inn. Komust þó báðir tog-
ararnir hingað. En próf hófust í mái
inu í gær. Voru 4 vitni leidd af
Þú getur læknað
kviðslit þitt.
Capt. ColllnKN Hemllr ytliir Okeypln fyr-
Irslílfn iim nllfrrlitna, wem hnnn notatll
tll afi lækna ajfilfan nIk.
Þúsundlr kvitSslltlnna karla og kvenna
munu gletljast yfir ats vita atS Capt.
Collings, sem var hjálparlaus og vitS
rúmitS fleiri ár vegna tvöfalds kvitS-
slits, sendir öllum ókeypis fyrlrsögn
um atSferöina, sem hann notaöi til atS
lækna sjálfan sig heima hjá sér.
SenditS atSeins nafn ytSar og utaná-
skrift til Capt. W. A. Collings, Inc..
Box 322H, Watertown, N. T. Þat5 kost-
ar ytSur ekki cent en gætl ortSitS ytSur
mikils virtsi. HundrutS hafa þegar
læknati sig sjálfir atSelns vegna þess-
ara ókeypis upplýsinga.
Vilhjálmur Jónsson, sonur Olafs
Jónssonar, Lundar, Man., lézt 14. þ.
tn. á Almenna sjúkrahúfinu; 14 ára
að aldri. Hann lézt úr hinni svoköll-
uðu svefnsýki. Jarðarförin fer aö
líkindum fram n. k. fimtudag að
1 atndar.
Þorvaldur Þórarinsson frá River-
ton var stadaur í bænttni s.l. mánu-
dag. Hann sat á stórstúkuþinginu
er haldið var hér um þær mundir.
Bjarni Davíðsson, til heintilis að
Riverton, Man., lézt laugardaginn
þann 17. þ. m. Hann hafði veikst
mjög snögglega heima hjá sé'' og
átti að reyna að leita honum lækn-
ingar nteð því að flytja hann á
sjúkrahús þessa bæjar. En hann dó
á járnbrautarlestinni upp eftir á
laugardagsmorguninn. Jarðarför
hans fór fram frá útfararstofu
Bardals að viðstöddum nánustu ætt-
ingjum og vinum. Dr. B. B. Jónsson
jarðsöng.
Misprentast hefir í greinargerö
íslenzku nefndarinnar við “America’s
Making” þrjú atriði á reikningnum:
Cleasby’s orðabók $1.00, fyrir $15.00;
myndamót og myndir af Leifi Ei-
ríkssyni $7.00 fyrir $7.50; Excelsior
Co. litmyndaplötur $24.05 fyrir
$24,45. Þessu er menn beðnir vel-
virðingar á.
5 amkviðlingur.
Svb. A. og L. K. hittust á skrif-
stofu Heimskringlu:
Svb. A. segir:
Mikið ári er nú skrítið
írafár í þér.
L. K. Svarar:
Yglast brár, en ljótt og lítið
lyftir háriö sér.
—----------xx-----------
Jón Sigurðsson Chapter, I. 0. D. E.
Financial Statement Jan. 31st, 1923
February 6th, 1923.
To the Regent and Members,
Jon Sigurdson Chapter, I. O. D. E.
Winnipeg, Man.
Madam Regent:—
Attached are Statements of Cash Receipts and Disbursement, and State-
ments of Assets and Liabilities setting forth the transactlon that have taken
place during the year and the financial position as at January 31st, 1923.
We have audited the books and vouchers of the Jon Sigurdson Chapter
I. O. D. E. for the year ended January 31stt 1923. The above mentioned State-
ments are in our opinion drawn up so as to show the financial position as at
January 31st, 1923, in accordance with your books and information provided us.
Heturned and WÓunded Soldlers’ Fund:
On hand January 31st, 1922 .... $ 273.79
Interest from Bankers ................................................ 6.30
Loan repaid by General Account........................................ 25.00
$ 305.09
Paid Returned Soldiers and Dependants ........................ $ 41.50
Loaned to General Account re Memorial Publication ............ 245.00
-------- 286.50
Balance on hand ........................................... $ 18.59
Ieelandli* Soldlera Memorial Fund. Thls fund including interest has been
transferred to General Fund for Memorial Publication purposps and credited
to Surplus Account.
The accounts of the Chapter have been handled in the ablest manner.
Receipts and vouchers produced for all Disbursements, and all uayments have
been duly authorized by means of monthly statements of cash receipts and
disbursements duly passed at meetings and signed by the proper officials.
Respectfully submitted,
(Sgn) H. J. PALMASON, C. A.
Honorary Auditor.
.IO\ SIGI RDSON CHAPTKR, I. O. 1). E.
Statement of Asscts and liiahilities.
January 31st, 1923: ASSETS:
Balance with Bankers: —
General Fund ............................................. $149.45
Returned and Wounded Soldiers’ Fund ........................ 18.59
-------- $ 168.04
Fees paid in advance ..........-....................................... 41.00
Badgers on hand ................................................ $2.10
Constitution on hand .............................................. 40
Honor Badges on liand ........................................... 1.25
------ 3.75
Paid on Account of Memorial Publication ....... ......................- 4965.35
Real Estate, Lot and Hall^ Winnipeg Beach ............................- 500.00
$5678.14
LIABILITIES
Returned and Wounded Soldiers’ Relief Reserve ....................... $ 238.59
Bills Payable, Loan re Memorial Publication ......................... 600.00
Memorial Publication Reserve:—
From previours years.................................. $2165.26
This year’s Subscriptions ................................ 127.00
-------- 2292.26
Membership Fees paid in advance .... — .........- ^.00
Surplus Account:—
Balance last year ...................................... $1263.19
Surplus Revenue for year ............ —.................. 737.58
Icelandic Soldiers’ Memorial Fund carried to General
Fund for Memorial Publication purposes ............... 539.52
--------- 2540.29
$5678.14
JON SIGURDSON CHAPTER, I. O. D. E.
For the year eniled January Slst, 1923.
RECEIPTS
Balance with Bankers, January 31st, 1922:—
General Fund .... ........' -— -...............•— - $957.23
Returned and Wounded Soldiers* Trust, A.c.............. 273.79
Icelandic Soldiers’ Memorial Fund ..................... 527.51
| Membership Fees 1922 .. — ......- .... — .... .... — . $70.00
Membership Fees 1923 ..........- — — — — ............ 7.00
General Funds Raised: —
Receipts from various Sales, Ent rtainments, etc.......... $888.59
LESS Cost for Materials used and necessary expense .... 143.84
$744.75
Donations^ etc............ —-------—...................... 80.25
Specific Funds:—
Memorial Publicatio Subscriptions .... ....................... $127.00
Repaid to Returned Soldiers’ Fund by General Account 25.00
Returned and Wounded Soldiers* Fund Int....................... 6.30
| Bills Payable, Loan against Memorial Publication ..................
i Acccounts Payable, Returned and Wounded Soldiers’ Trust Fund
transmerred to General Account ........... ......................
! icelandic Soldier ’ Memorial Fund, Interest earned ................
Amount transferred to General Account from Icelandic Soldiers’
Memorial Fund ........... - ..................................
DISBURCEMENTS
Chapter Expenses:—
Provincial, Municipal and per capita Tax 1922, etc...
Donated to Educational Fund .........................
Donated to Delegates Expe se ........................
Stationery and other expense..-......................
Fire Insurance ...................................- —•
$66.00
10.00
10.00
7.00
9.25
12.50
Per Capita Tax 1923 ..........- .... —----—.....................
Memorial Publication:—
Amount paid Printers, etc. on account .— .... — — .— — $2993.88
Amount returned to Returned Soldiers* Fund ............. 25.00
Direct Benevolent Disbursements:—
Municipal Chapter re Hospital Visits, etc. — — .... — — .... $ 6.00
Convalescent Home I. O. D. E. — — - —.... — — ....... 14.09
Returned and Wounded Soldlers* Assistance ............... 41.50
Grants to other Benevolent Organizations:—
Betel Old Folks Home, Xmas Cheer — — .........................
Returned Soldiers’ Trust^ advanced to General Account for
Memorial Publication purposes ...... — — — ........ ...........
Icelandic Soldiers’ Memorial Fund, transferred to General Fund
for Memorial Publicatlon------------------
Balance with Bankers:—
General Fund ...............— —___________________— .... $149.45
Returned and Wounded Soldiers* Fund______— ------ - .... 18.59
$1758.53
77.00
"T"T!
825.00
158.30
600.00
245.00
12.01
539.52
$4215.36
$ 114.75
41.00
3018.88
61.59
26.58
245.00
539.52
168.04
$4215.36