Heimskringla - 27.06.1923, Page 1
BmiiV eftir vertiHsta tli
R»r«l Crown Soip Md,
664 Hala St.. Wlnmlpeg. irmhnrtir
Verílaua
gefu
fyrir
Coopons
og
umbúðir
ROYAU
CííOWN
8endr3 eftlr vertSUsta til
Koyal Crowa Soap L>td
654 Main St., Wlnnlpeg
XXXVII. ARGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 27. JÚNI, 1923.
NÚMER 39
Vínsölamálið.
AtkvæíagreiSslan.
Atkvæðagreiðslan um fruimivarp
Hófsemdarfélagsins, eða stjórnar-
sölu á áfengi í Manitoba, fór þann-
ig að frunwarpið var sam'þykt með
yfirfljótanlegum meirihluía.
j>egar þetta er skrifað (á mánu-
dagskvöld) eru öll talin atkvæði,
bæði í toænum og út um sveitir, sem
liér segir:
Með stjórnarvínsölu
Með banninu .........
95,721
62,275
Meirihl. með vínsölu ........ 33.445
1 bænum fél'lu atkvæði þannig:
Með 'stjórnarvínsölu ........ 46,359
Með banninu ................. 20,371
Meirihluti með víninu
.... 25,988
Utan Winnipegiiorgar fór atkvæða-
greiðslan þannig:
Með vínsölu .........,........ 49.362
Með banni ....................41,905
Meirihluti með víni ......... 7,457
Frá allmörgum kjördæmum eru
3nn okki neinar skýrslur komnar.
En það getur ekki haft miklar
breytingar í för með sér á þau úr-
3lit, sem hér að ofan er lýst; sigur
Hófsemdarfélagsins og vínsöluliðs-
ins er svo ótvíræður, að honum get-
ur ekkert raskað.
Kjðrdæmin, sem sent hafa skýrsl-
ur frá öllum kjörstöðuim sínum, og
=sem með vínbanns/hliðinni greiddu
Eieiri atkvæði, eru þessi:
Arthur, Beautiful Plains, Cypress,
Duíferin, Gilbert Plains GlenuPod,
Hamiota, Killarney, Manitou, Mln-
nidosa, Portage La Prairie og St.
George. *
Pleiri atkvæði með vlninu voru
aftur í þessum kjördæmum:
Assiniboia, Birtle, Brandon, Dau-
phin, Iberville, Morden, Rhineland,
St. Boniface og Winnipeg.
En svo eru nokkur kjördæmi, sem
Eullkomnar fréttir hafa ekki borist
úr, og eru þessi af þeim með vín-
uanni sem stendur:
Deioraine, Glmli, Gladstone, Lake-
=ide, Landsdown, Mountain, Nor-
Eolk' Swan River, Turtle Mountain.
Með vínsölu eru þessi ennþá:
Carillon, Ethelbert, Emekon,
Pairford, Eislher, Kildonan og St.
Andrews, La Varendrye,. Morris,
Roblin Rockwood, Russell, St. Clem
ents, Ste. Rose, Springfield og The
Pas.
Pannig fór þá þessi atkvæða-
greiðsla og er víst óhætt að segja,
að margur varð hissa á því, og það
af fullri ástæðu.
Ö1 og vín atkvæðagreiðslan.
Það næsta, sem nú er að glíma
við, er atkvæðagreiðslan um frum-
varpið, sem “Beer and Wifte” félag-
ið hefir af sér getið. Það fer fram
á, að öl og sæt vin, eða hin óáfeng-
ari megi veita með mat á hótelum.
Það cr ekki gert ráð fyrir að selja
vín í stíunni (the bar), heldur við
máltíðir og borð, sem setið er við.
í frumvarpi Hófsemdarfélagsins eru
hótelin útilokuð frá vínsölu, þvi
það á aðeins að seljast í búðum
stjórnarinnar. í stíunni vita hótel-
in að þýðir ekki að nefna að fá leyfi
fyrir vínsölu. En þá dettur eigend-
um þeirra í hug, að reyna að biðja
u,m leyfi til að mega selja mönnum
vín sitjandi í stað standandi, þvi
það er alt og sumt, sem í frumvarpi
þeirra felst. Drykkjustían (the bar-
room) verður gerð að drykkjuskála
með borðum, og brauð og “langar”
selt með áfenginu, svo að þar er
ekki um stóra bót að ræða. At-
kvæðagreiðslan um þetta frumvarp
fer fram 11. júlí n.k.
Hvenær vínsalan byrjar.
Til þess að gera nú vilja kjósend-
anna að lögum, þarf fylkisþingið að
koma saman. Og þegar málið er
afgreitt þar, eru bannlög fylkisins
úr gildi, en stjórnarvínsala komin
á. > Forsætisráðherra Bracken hefir
sagt, að atkv.greiðslan um frv. Beer
and Wine félagsins verði að fara
fram áður en þingið komi sannan,
svo að liægt sé í einu að lögleiða
bæði frumvörpin, verði hið síðara
ofan á við atkvæðagreiðsluna 11.
júlí. En úrslitin af því verða ekki
kunn til fullnustu fyr en viku að
minsta kosti eftir atkvæðagreiðsl-
una. Dingið er nú talað um að
komi saman 24. júlí. Það lýkur
verki sínu á einni viku að minsta
kosti . Þessi stjórnarvínsala byrjar
l>á í lok júlímánaðar, vínsala, sem
brennivínsvald þessa fylkis þrengir
stjórninni nauðugri tid að takast á
hendúr, og fbúarnir hafa drengi-
lega stutt þá í með atkvæðum sín-
Stjórnarvínsala.
LTm l>að er ekki auðvelt að segja
cnn, hvernig stjórnarvínsölunni
verður hagað. Yínbúðir verða opn-
aðar víða í hverri borg og ein að lík
indum í hverjum smiábæ og þorpi.
Staupasala fer þar ekki fram, held-
ur verður alt vín selt í flöskum og
drekka má það ekki á staðnum sem
það er keyptt á, þ. e. a. s. í búðinni.
Þessi vínsöluaðferð hefir verið
reynd á nokkrum stöðum. og þó
hún hafi reynst ekki sem verst úti
í sveitum og nokkra stjórn hafi
verið hægt að hafa á henni þar,
hefir alt annað viljað verða í borg-
unum. Þar virðist það hafa orðið
stjórnunum ofurefli. að hafa nokk-
urn vcrulegan hemil á áfengissöl-
unni. Yínvaldið hefir orðið stjórn
inni sterkara oftast, og annað eins
er hugsanlegt og það, að til þess
hafi nú refirnir verið skornir með
að koma þessari aðferð á vínsölu
hér í lög; að þáð hafi verið póli-
tískt vald, sem verið var að sækj-
ast eftir. Eitt er víst, að ef út af
ber með eftirlit og stjóru á áfengi
iiér. verður stjórninni kent um það.
Hinir brotlegu I því efni geta þveg-
ið hendur sínar með því. Gg ef ilt
er að hafa eftirlit með banni, er það
erfiðara með vínsölu. Ábyrgð
stjórnarinnar og hætta er því mik-
il. En það ér vonandi að þeir, sem
með atkvæðum sínum innleiddu
liessa vínsöluaðferð, styðji nú
stjórnina drengilega í þvf, að fram-
fylgja þeim lögum, geri það betur
en þeir studdu 'hana í því, að fram-
fylgja bannlögunum.
—'■-----XX-----------
Ganada.
Hermannafrumvarpið.
Fatlaðir hermenn, heim komnir
úr stríðinu, og skyldmenni fallinna
hermanna, kvöftuðu undan því, að
ráðið, sem eftirlit hefir með þeirra
málefnum hjá samlbandsstjórninni,
breytti ekki eins og lögin s^ipuðu
fyrir, og þess vegna yrðu margir
fyrir órétti í samiliandi vfð þá hjálp.
i sem stjórnin veitir þessu fólki. Kom
frumvarp fram á síðasta þingi, sem
gerir ráð fyrir, að úr þessu sé
bætt, og var það samlþykt í neðri
deildinni. Er nú frumvarpið komið
fyrir ofri deildina, en þar lítur út
fyrir að það ætli ekik að fá eins
góðan byr og í neðri deildinni, þar
sem því hefir verið vísað til sér-
stakrar nefndar til yfirvegunar.
Tleimkomni* herinenn og skyld-1
menni fallinna hermanna, sem bæði
oru ekkjur og böm, eru hrædd um
að efri deildin ætli að fella frum-
varpið. Hefir félag þessara manna
haldið fundi og farið fram á það,
að almenningur gangi í lið með
þeini til þess að fá efri deildina til
að samþykkja frumvarpið, með því
að senda þangað áskoranir, sem að
því lúta. Þess má geta, að kon-
ungleg nefnd, sem skipuð vav til
þess að rannsaka. hvort að kvart-
anir hermannanna væru á rökutn
bygðar, var þeirrar skoðunar, að j
svo mundi vera, og það var ekki sízt
vegna þeirrar fullvissu, að neðri j
deildin sainþykti frunivarpið. Ef1
til þess kemur, að augu þiriginann-
anna i efri deildinni eru Lokuð fyrir
þeim órétti, sem fólk þetta er beitt,
er full þörf á að daufheyrast ekki
við þessari beiðni þess.
Sameignarkornfélag.
Ráðherrum Saskatchewan og Al-
berta tókst ekki að koina á fót
kornnefndinni fyrirhuguðu, vegna
þess að þeir fengu engan til að tak-
ast stjórn hennar á hendur. En svo
er því nú haldið fram, að félögin
United Farmers of Alberta, Sas-
katchewan Grain Grower.s félagið,
United Farmers of Manitoba, Sas-
katchewan Co-operative Elevator
félagið og Grain Growers Guide
félagið, s^u að efna til fundar n.k.
föstudag í Winnipeg, með það fyrir
augum, að koma á fót félagi með
sameignar fyrirkomulagi (Wheat
pool), til þess að höndla þes«a árs
hveitiuppskeru.
ina, og er sem ógurlegasti brimgarð-
ur til að sjá. íbúarnir eru að flýja
flokkurinn 14, verkamannaflokkur-
inn 4 og óháðir einn.
Conservatívar hafa þannig náð í svo þúsundum skiftir undan hraun-
54 ný þingsæti. Er það óskiljanlega leðjunni. Um tíu hreppar (town-
mikiil sigur. 31 einu af þeim sæt- ships) eru nú þegar gereyðilagðir.
um náðu þeir frá bændaflokkinum, j Svo er hitinn mikill, að í mÆlu fjar-
14 frá liberölum, 8 frá verkamanna-llægð frá leðjuveggnum er ’hann ó-
flokkinum og 1 frá öháðum. Hinir J þolandi hverjum manni. LTm 100,000
flokkarnir hafa þannig allir taiiað
hokkru í þesum kosningum.
Viðurlitamest er auðvitað tap
bændaflokksins,
kjörtímalbil er
manns eru heimilislausir sem stend-
ur, og er búist við að fleiri verði
fyrir þeim ósköpum enn, því gosið
Eftir aðeins eitt | heldur áfram og eyðileggingiti, sem
flokkurinn orðinn af því leiðir. Og ótti manna við
sundraður. Forsætisraðherra Drury; hættuna eykst að sama skapi. í
nær, ekki einu sinni kosningu sjálf- einu þorpinu, Linguaglossa, sem ó-
ur. \ umflýjanlegt virðist að lendi í eyði-
Sá er við forsætisráöherraembætt leggingunni, fóru Ibúarnir með
inu tekur, er eflaust Hon. G. How- J líkneski af St. Egidíusi eins nálægt
ard Ferguson, leiðtogi conserva-: 40 feta háum leðjuveggnum og þeiin
tívaflokksins. Hann hefir ekki skip-|var unt, og beiddust þess þar, að
að ráðuneytið enn. ’St. Egidfus frelsaði þorpið frá hætt-
Hverjar eru orsakirnar fyrir því, unni. Það er þjóðtrú í þessu þorpi
að þannig er komið fyrir bænda- að hann hafi stöðvað gosið 1873, er
flobknum? Fjármálastefna Drurys j'oærri Itj að eyddi þorpið þá. 1 Piedi
að nokkru, sundrung bændaflokks- Monte safnaðist allur þorpslýður-
ins innbyrðis, og vínsölumálið, sem inn saman á stræti úti í kringum
eonservatívar unnu ' eflaust mikið likneski St. Antony, og báðust þar
á Drury var sífelt á reiki milli fyrir heila nótt, að hinrri yfirvof-
Hepni.
Sumir menn eru ef til vill fæddir
hepnir, en stundum virðist líka að
iáninu sé þröngvað upp á þá. Það
má segja hið síðara um rakara einn
í Montreal. Þar fóru fram veðreið-
ar og menn veðjuðu óspart ó þann
hestinn, sem þeir hver um slg álitu
fljótastan. Rakarinn veðjaði á hest
sem “Fizen’ hét, en íékk í misgán-
ingi einhverjum viðurkenningu
fyrir að hafa veðjað á .“flopeful',
sem var annar hestur. Rakarinn
reifst svo mikið út af þessu, að lög-
reglan varð að taka hann fastan.En
þegar veðreiðunum var lokið þurfti
ekki að halda karlinum föstum
vegna óánægju, því að svo fóru
leikar, að Hopeful vann og þessi
vitlausa viðurkenning lagði rakar-
anum $425.00 upp í hendurnar.
Samkomur á sunnudögum.
Fyrir nokkru héldu þeir dr. B. J.
Gimslberg og Jack Myles í Winni-
peg samkomu og seldu aðgang að á
sunnudegi, og voru kallaðir fyrir
dómstóla fylkisins fyrir bragðið.
En svo féll dóinUr Sir Hugh Jolin
MacDonalds dómara í málinu, að
mönnum þessum var ekki hegnt
fyrir það. Bæði þetta og dómurinn
f fylkisréttinum um súnnudaga-
ferðir eimlestanán til sumarskemti-
staðanna. hafa vakið mikla at.hygli.
Eigendur hreyfimyndahúsanna fóru
á stúfana, óg héldu að sér væri ó-
hætt að hafa leikíhús sín opin, fýrst
sivona væri með sunnudagalöggjöf-
ina. Og búðum af öllum tegund-
um virtist heldur ekkert á móti því
að hafa opið. Dóinsmálaráðherra
Craig liefir nú samt sem áður varað
við því, en eigi að síður álítur hann
nauðsynlegt að endurliæta sunnu-
dagalöggjöfina, ef þetta eig,i ekki
að verða ofan á.
Hernaðarandi.
Leví Nelson, 14 ára, .Tos. Lainbert,
12 ára, og Byron Lambert, 9 ára.
týndust nýlega frá heimilum for-
eldra sinna í grend við Dramhell-
er, Sask. Leitarmenn voru margir
fengnir og fundust drengirnir loks
í skotgröf, sem þeir höfðu grafið
sér og haldið sig í um tíma. Frek-
ari skýringar eru ekki um þetta
gefnar.
Kosningarnar í Ontario.
Fylkiskosningarnar, sem fram
fóru í Ontario í gær, féllu þannig,
að conservatívar komúst til valda
með yfirfljótanlegum meirihluta.
Af alls 111 þingsætum hlutu con-
servatívar 77, liberalar 15, bænda-
bændaflokksins og liberala, og
spursmálið er hvort það hefir ekki
gert alla bölvunina fytir bænda-
flokkinn. Og ef svo er, getur bænda-
flokkurinn nú séð. hvers virði það
er fyrir hann, að fá þá fyrir leið-
toga sína, sem aldrei hafa verið
þeirra menn og aldrei verða bað,
nema um stundarsakir og vegna
eigin hagsmuna.
----------XXX-----------
Önnur lönd
ís í Atlantshafi.
í vor hefir orðið vart töluverðs
ísreks í Atlantshafi norðanverðu.
svo að skipaleiðir milli Evrópu og
Ameríku hafa verið færðar suður |
töluvert. Hér er auðvitað ekki um
ísbreiður að ræða, heldur einstaka,
stóra jaka, svokölluð isfjöll, sem
eru á sveimi um höfin, og geta orðið
skipum hættuleg. Það var eitt
slíkt ísfjall, sem var valdandi Ti-
tanic-slysinu.
Of konungssinnað.
Dagblaðið “L’Action Francaise’
í París, sem verið hefir bitrasta
vopnið á móti jafnaðarmönnum og
kommúnistum, hefir ekki kornið út
í' tvo daga. Prentararnir neituðu
að stílsetja blaðið, vegna þess að
það væri svo Svæsið einveldis-
stjórnar-iblað.
Bretum að kenna.
Blaðið “New A'ork Herald” segir,
að það sé alúfkisstefnan brezka, sem
sé á bak við Canada í þvf að neita
að hætta að flytja áfengi frá Can-
ada til Bandaríkjanna.
Fellibyl'ur í Norður Dakota.
Fellibyliir mikill geisaði yfir Ad-
áms County í Norður Dakota og
fleiri staði s.l. sunnudag. Varð bæði
manntjón þar og eignatjón talsvert.
1 New Rockford í N. D. lauzt eld-
ingu niður í tvö íbúðarhús og eydiM
þau. Eigendurnir hétu John Mona-
han og Hugh O’Connor. Dómshús-
ið varð einnig fyrir eldingu. Síma-
sambönd slitnuðu alstaðar, þar sem
bylurinn æddi um. í Chipawa Falls
í Wisconsin fuku þök af útihúsum.
Clarence N. Mcllvane, auðmaður
og vátryggingarfélagsstjóri fná Hú-
ron, S. D., var á skemt:iferð á báti
á Lake Byron, þegar sbormurinn
skall þar á. Bátnum hvolfdi og
maðurinn druknaði.
Annar maður. að nafni Tom
O’Grady, druknaði í storminum ó
Roberts I.ake nálægt Fairboult.
Btna gýs.
Um miðja s.l. viku liyrjaði eld-
fjallið Etna á Sikiley að gjósa. Er
gosið ægilega mikið, eftir fregnum
af því að dæma. Glóandi hraun-
leðjan kvað velta niður fjallshlið-
andi hættu yrði afetýrt.
Píus páfi og Emanuel konungur
eru farnir að gangast fyrir, að veita
þessu húsvilta fóiki alla þá aðstoð
sem unt er. Hefir konungurinn far-
ið út til eyjarinnar í þeim erindum
og páfinn lætur það boð út ganga
að opna allar kirkjur, til þess að
þetta fólk geti fundið þar skýli,
Eitt ihraunflóðið stefndi á borg
þá, er Giarra heitir; þar eru um 20
þúsundir íbúa. Hafa margir af
þeim flúið úr bænum.
Héröð þau, sem bæði hafa lagst,
oig sýnilega leggjast þarna í eýði,
eru hin mestu landkostahéröð á eyj-
unni. Þéttbýli er þar meira en
nokkursstaðar í heiminum annars-
staðar. Um 3000 manns búa þar á
hverri fermílu.
‘‘Bændasamtök'.
Á fundi, er haldinn var s.l. mið-
vikudag í Chicago, til þess að ráða
■bót á verði á hveitikorni í Banda-
ríkjunum, mælti Samuel Comper,
forseti American Federation of La-
bor, þessi orð:
“Ef bændur í Bandaríkjunum
hugsa sér að fá hlut sinn réttan í
viðskiftum, verða þeir að mynda
samtök sfn á milli á sama hátt og
hin öflugu verkamannafélög hafa
gert; annars eiga þeir lítillar upp-
reisr.ar von.”
Á fundi þessum iqættu rftn 500
fulltrúar af öllum stéttum: bænd-
ur, myinueigendur, kornsalar, og
banka-, ' járnbrauta- og skipaeigend-
ur. Og til fundarins var boðað af
ríkisstjórum nokkurra rikja, með
því augnamiði, að ráða bót á lág-
verðinu á hveiti.
“F.f að bændur geta ekki upp-
götvað neitt betra ráð, “hélt Comp-
ers áfram, “til þess að vernda sjálfa
sig efnalega og til að verjast verð-
hruni vöru sinnar, en að leita á náð
ir löggjafarinnar, getur ekki hjá því
farið. að þeir verði fyrir afskapleg-
ustu vonbrigðum.
1 sannleika sagt, sé eg enga á-
stæðu til þess fyrir bændur að gera
sér vonir um hagsmunaleg réttipdi
á annan há'tt en verkamenn gera.
En þeir liafa fyrirN löngu hætt að
láta sig dreyma um bættan hag
sinn fyrir “meðalgöngu” stjórn-
m^lamanna eða stjórna. Ef að
verkalýðinn í þessu landi hefði
brostið Vit og áræði til þess að
mynda samtök sín á milli, hefði
enginn haft minstu hluttekningu
með þeim og enginn litið alvarlega
á mál þeirra eða umkvartanir.”
Compers sagði frá fyrri tilraunum
verkamarína, að koma samsteypu-
félögunum fyrir kattarnef með að-
stoð stjórnmálaflokka, og benti
bændum og búalýð á, að með þeim
hætti væri einkis verulegs árang-
urs og engra umbóta að vænta.
Leiðin til að fá réttmætar kröfur
sínar uppfyltar, liggur ekki fyrir
yerkamönnum gegnum sambands-
þingið eða ríkisþingin,” sagði Oom-
pers, þejdur þoira eigin samtök og
félagsskapi.
Hann kvað heldur ekkert afl inn-
an hinna þjóðfélagslegu samtaka
verkamanna, sem ekki væri fúst til
að ganga upp að sáttafundarborð-
inu með bændum og taka saman
höndum við þá og auka þannig afi-
ið á móti þeim, sem ekki geta vitað
alþýðumennina, bændur og verka-
menn, njóta réttmætra ávaxta af
erfiði sínu.
Skaðabætur ítalíu.
ítalía er ekki ráðalaus með að
innkalal skaðabótaskuldir sínar af
Þýzkalandi. Hún innkailar þær í
vöru þeirri, er bækur heita. Þrír
jámbrautarvagnar, með 282 kössum
af þýzkum bókum, voru nýlega
sendir til Italíu. ítalir eru ekki
hræddir við mentun Þjóðverja.
----------XXX----------
Kirkjuþingið.
Eins og auglýst hafði verið í
Heimskringlu, var þing það er gera
átti út um stofnun kirkjufélags
milli frjálsiyndra íslenzkra safnaða
í Vesturheimi, sett á sunnudaginn
24. þ. m., ftd. 3 e. h. og byrjaði með
fyrirlestri, er séra Ragnar E. Kvar-
an flutti. Því næst var kosinn
bráðabirgða fundarstjóri og skrif-
ari, þeir séra Kvaran og séra Frið-
rik Friðriksson. Að því loknu var
skipuð kjörbréfanefnd og dagskrar-
nefnd. En síðan tóku sumir af full-
trúum frá söfnuðunum til máls og
ávörpuðu fundinn; en annars öllum
reglulegum þingstörfum frestað til
mánudagsmorguns, kl. 10.
Þessir fulltrúar sitja þingið:
Prestar.
Séra Friðrik Friðriksson.
Séra Eyjólfur J. Melan.
Séra Albert Kristjánsson.
Séra Ragnar E. Kvaran.
Séra Rögnv. Pétursson.
Fulltrúar:
Sambandssöfnuður í Winnipeg:
.Þorst. S. Borgfjörð.
Dr. M. B. Halldórsson.
Hannes Pétursson.
Jó-hannes Gottskálkssorí.
Sveinlbjörn Árnason.
Samibandssöfnuður á -Gimli:
B. B. Olson.
Gísli Magnússon.
Árnessöfnuður:
Sigurður Sigurbjörnsson.
Mrs. Guðrún JohnSon.
Quill Lake söfnwður:
J. M. Melsted.
M. O. Magnússon.
O. O. Magnússon.
Fr. Bjarnason.
» \ l
J. O. Björnsson.
Otto^söifnuður:
Tryggvi Ivristjánsson.
Björn Hördal. 1
Ánborgar-söfnuður:
G. O. Einarsson.
Kristján Bjarnason.
B. J. Lífmann.
Mehn, veitt full þingréttindi:
Dr. Ágúst H. Bjarnason.
Sigf. S. Bergmann.
Séra Magnús J. Skaptason. *
Sigurður Yidal.
Á mánudagsmorguninn var þing-
ið svo sett aftur, og þá samþykt að
stofiia hið fyrirhugaða kirkjufélag.
Eitt af verkum þingsins á mánu-
daginn, var að kjósa stjórn og
skipa íhana þessir:
Forseti: Séra Ragnar E. Kvaran,
Winnipeg.
Skrifari: Séra Friðrik Fríðriksson,
Wynyard.
Féhirðir: Hannes Pétursson, Win-
nipeg.
Yaraforseti: Séra Albert E. Krist-
jánsson, Lundar.
Yaraskrifari: Fred Swanson, Win-
nipeg.
Varaféhirðir: Guðm. Einarsson,
Árborg.