Heimskringla - 11.07.1923, Síða 1
VerSlaoB
ROYAV, CROWK gefi» fyrir Coupons
SOAP
og Senðll! eftir veríllsta tll ' Roynl Crown Soap L,td. 664 Maln St., Wlnnipeg. UIHDQOIT
Verðlaun,
gefia
fyrir
Coupons
og
umbáðir
. Sendlí! eftlr verSllsta tll
Royal Cnnvn Soap Ltd.
664 Main St., Wlnnipeg.
X
XXXVII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 11. JÚLI, 1922.
NCMER 41
Canada.
Verkfall í Canada?
Pulltrúar frá öllurn verkamanna-
sanrtökum í Vestur-Canada hafa á-
kveðið að hafa allsherjarfund bráð-
lega, annaðhvort í Winnipeg eða
Calgary. til þess að rœða um. hvort
að verkamenn í Vestur-Canada
œttu ekki að gera samhygðarverk-
fall með námumönnunum f Nova
Scotia. Hugir verkamanna hér
vestra hafa mjög snúist að ástand-
inu f Nova Scotia. En þar er herlið
nú við hendina til að halda öllu í
.skefjum. Héðan frá Winnipeg voru
hermenn sendir, en þeim mun hafa
verið snúið aftur í Ottawa. James
Murdock verkamálaráðherra sam-
bandsstjórharinnar, er í stöðuguin
bréfaviðskiftum við verkainenn, og
gerir alt sem honum er unt til að
koma á sættum. En hvort að það
liefir nokkurn árangur, er eftir að
vita. Það sem verkamönnum gremst
mest, er það, að herlið skyldi vera
dregið saman, eins Víða að og gert
hefir verið, og sent til Nova Scotia.
Og því hefir verið hreyft, að þetta
Empire Steel féiag, sein f sífeldu
stríði á við verkamenn sína, sé tek-
ið úr höndum þess og fengið stjórn-
inni. En hvað sem öllu þessu líður,
eru tímarnir mjög, alvarlegir í sam-
bandi við þetta mál, og eins líklegt
að út af því hefjist eitt hið stór-
lcostlegasta verkfall, sem hér hefir
nokkwi sinni átt sér stað. Dan Liv-
ingstone. forseti United Mine Work
ers í Nova Scotia, og ritari James
McLach'lan. leiðtogar verkfalls-
manna. eru báðir í fangelsi.
Ráðuneytið í Ontario.
Hið nýja ráðuneyti í Ontario hef-
ir nú verið skipað, og er sem hér
segir:
Eorsætisráðlierra og mentamála-
ráðherra: Hon. George I^. Eerguson
frá Greville.
' Ráðherra opinberra verka og
vega: Hon. George S. Henry frá
East York.
Fjármálaráðherra. Hon. W. H.
Price, K.C., frá Parkdale.
Námaráðherra: Charles McCrea,
Iv.C., frá Sudbury.
Heilbrigðis- og verkamálaráð-
herra: Dr. Eorbes Gottfrey, frá
West York.
Akuryrkjuráðherra: John S. Mar-
tin frá South Norfolk.
Eylkisritari. Lincoln Goldie frá
South Wellington.
Ráðherra sölu jarða og skóga:
James W. Lyons frá Sault Ste Marie.
Ráðberrar án emibætta: Sir Adam
Back frá London, Hon. Thomas
Crawford frá North-West Toronto,
dr. Leeming Carr frá EasbHamilton
og J. R. Cooke frá North Hastings.
Þingforseti verður kapt. Joe
Thompson.
f þessu nýja ráðuneyti eru þrír
bændur, einn nautgripakaupmaður,
þrír lögmenn auk forsætisráðherr-
ans, tveir læknar og þrír kaupsýslu
menn. alt eflings menn og æfðir f
stjórnmálum, að sagt er.
Nýja ráðuneytið tekur við völd-
um næstkomandi mánudag, en Dru-
rystjórnin fer frá.
Ekki viðurkendir.
Ef nokkrir eru. sem fyrv. forsæt-
isráðherra Drury í Ontario, hefir
sett í emíbætti síðan kosningadag
inn 25. júní, verður þeim sagt upp
sftiðunni tafarlaust, af nýju stjórn-
inni, og iitið svo á sem sú embætta-
skipun hafi verið á því einu bygð,
að gæða vildarvinum fráfarandi
stjómar.
Hagl í Suður-Saskatchewan.
Hagldrífa með ofsastormi geisaði
í suðurhluta Saskatchew s.I. laug-
ardag. Olli það ekki einungis
skemdum og eyðileggingu á ökrum
og húsum, heldur slö«uðust einnig
3 meijn alvarlega; nokkrir fleiri
urðu og illa útleiknir, en sluppu
þó hjá slysum. Dað var í Goose
Lake héraðinu, sem stormurinn var
æsfcastur. Harold Booth, bóndi í
grend við McGee, meiddist svo, að
honuiu er varla hugað 1 i E. Systir
hans meiddist einnig J. F. Oit í
söinu bygð, meiddist og :njög. fbúð-
arhús Booth. lilaða og aðiar bygg-
ingar, fuku um kojl og þannig
meiddist fólk það, er un; er getið
í Zealandia var 5 þuml. djúpui
haglsnjór á járnibrautarpallinum.
að hríðinni lokinni.
Senatbr Thorne dáinn.
Hon. William Henry Thdrne. sdn-
ator frá St. John, N. B., lézt s.l.
mánudag . Hann fékk senatorsem-
bættið árið 1013 hjá konservatíva-
stjórninni. Með fráfalli hans eru
nú þrjú sæti auð í efri málstofunni.
Hin sætin losnuðu við lát senators
J. Godbout frá Quebec og senators
A. E. Forget frá Banff, Alberta.
Hjónaskilnaði.
Hjónaskilnaðir hafa aukist og
margfaldast f Canada á síðustu ár-
um. Herma skýrslurnar, að árið
1913 liafi 59 af hverjum 1000 hjónum
skilið, en 1922 544. |
Mælist illa fyrir.
Það verk efri málstofunnar í
sambandsþinginu, að fresta að haf-
ast nokkuð að í að, fullgera ýmsa
járnhrautarstúfa í VesturCanada,
mælist afar illa fyrir. Forke, sam-
bandsþingmaður frá Manitoha,
Bracken forsætisráðherra og Far-
mer borgarstjóri í Winnipeg, liafa
allir lýst þvf yfir. að lietta bæri
vott um, að senatið hefði mjög
daufa heyrn, er um kröfur Vestur-
landsinS væri að ræða. Féð til þessa
hefir áður verið ákveðið að veita,
,og það hefði aflað mörgum vinnu.
ef á þessu verki hefði nxi verið hægt
að byrja.
Kornnefnd.
Vesturfylkin Alberta og Saskat-
chewan eru hætt við að stofna
nokkra kornnefnd í ár. En hug-
myndinni er mælt að ekki verði
gleymt, og á næsta ári verður harð-
ara en nokkru sinni fyr unnið að
því, að ná kornsöíunni úr höndum
þeirra, sem nú hafa hana.
Ferðhraði fréttanna.
Meðan á slagsmálunum stóð milli
Dempsey og Gihbons, suður í Shel-
by í Montana í Bandaríkjunum,
birtust fréttirnar hér í Winnipeg
á fréttaspjöldum blaðanna Free
Press og Tribune, þrem mfnútum
eftir að viðburðirnir skeðu. Þegar
annar hlaut skeinu, mátti lesa frétt-
irnar af því á spjaldinu úti fyrir
dyrum blaðanna þrem mínútum
síðar. Svona er ferðhraði fréttanna
mikill með áhöldum nútíðarinnar.
\ Segir af sér.
W. J. Smale, sem s.l. 13 ár hefir
verið stjórnandi iðnaðarsýningar-
innar í Brandon, sagði af sér s.l.
föstudag. Vanlieilsa var talin or-
sökin. Hver eftirmaður hans verð-
ur, er enn óákveðið. Mr. Smale var
þakkað verk hans undanfarin ár,
og þeim orðum um það farið, að
honum hefði hepnast svo vel að
gera þessar fylkisiðnsýningar góðar
að önnur sýning af þessu tæi væri
ekki íbetri haldin í Norður-Ame-
í'íku.
Kynnir sér sfcjórnarxínsölu.
Dómsmálaráðherra R. W. Craig
lagði af stað s.l. föstudag til British
Columbia. Ætlar hann að kynna
sér fyrirkomulagið á stjórnarvín-
sölu þar, til þes sað færa sér í nyt,
þegar stjórnin hér tekst hana á
hendur.
Önnur lönd
Fyrir dauðans dyrum.
Fyrv. forsætisráðherra Bretlands.
Bonar Law, er sagður svo hættu-
lega veikur, að læknarnir, er hann
stunda, telja að honum g«ti ekki
enzt líf nema aðeins fiáar vikur.
Deyja af hita.
í.mið- og austurhluta Bandaríkj-
anna deyr fólk af hita í hundraða-
tali, að sagt er.
Hveitiverð.
Bandaríkjaþingið kvað hafa í
hyggju að setja lögákveðið verð á
hveitikorn. Fyrir mælinn á bóndinn
að fá $1.50.
Hreyfimyndahúsin vel sótt.
Um 40.000,000 manna sækja hreyfi
myndahúsin á Bretlandi yfir vfk-
una. Að jafnaði genguf því hver
maður einu sinni á viku á leikhús
þessi.
Bifreiöaslys.
SðustU vikuna í júní dóu 38 af
bifreiðaslysum í Bandaríkjunum,
og 184 slösuðust. ■
Tekjur bóndans.
Samkvæmt nýútkomnum skýrsl-
um. eru tekjur bóndans í Banda-
ríkjunum $465 á ári. í tölum þessum
er ekki aðeins innifalin vinna bónd
an^ heldur og vextir af fé hans,
ef nokkrir eru, og vinna konunnar
og barnanna, sem ekki er gott 'i?
gera sér grein fyrir að sé engin.
20 ára fangelsi.
Eiiis og menn muna. var minst á
það fyrir skömmu í Heimskringlu,
að íslenzkur lögfræðingur frá Da-
kota, Guðmundur Grímsson að
nafni, hefði hafið rannsókn út af
láti ungs manns frá Dakota, er Ta-
bert hét, suður á Florida. Afleið-
ingih af þessu er nú orðin sú, að
formaður þrælahaldsstofnunarinn-
þar, Thomas Walter Higginhotliam
hefir verið dæmdur sekur um að
vera orsök í dauða Taberts, og hefir
hlotið 20 ára fangelsísvist fyrir.
Þetta þrælahald þar syðra hefír og
verið afnumið að löguin. Það er
því ekki smáræðis mannúðarverk,
sem þessi íslendingur hefir unnið
þarna syðra, enda er hans mjög get-
ið í enskum blöðum fyrir dugnað-
inn. sem hann sýndi í sambandi við
þetta mál.
Friður.
ilrrfurnar um frið rg sátt milii
þjóðanna á Lausannefundinum eru
hinar beztu. Það er herint, að alí-
ar þjóðirnar þar hafi komið sér
saman um aðalatriðin, sem 'þeim
har á milli. En það voru fyrst og
fremst skuldir Tyrkja og skaðabóta-
skuldir Grikkja. Falla hvortveggja
niður. Sambandsþjóðimar skila
Tyrkjum skipum og þyf sem þær
hafa af hergögnum frá þcim tekið.
og alhir útlendur her fer burt af
Tyrklandi. Samningurinn um þetta
verður að vísu ekki fullgerður fyr
en að viku liðinni, en úr því að
þjóðirnar á Lausannefundinum
hafa komið sér saman'um þessi at-
riði, er talið víst, að ekkert standi
friði í vegi. Tyrkir þurfa ekki að
kvarta undan þessum samningi, því
segja má að allar helztu kröfur
þeirra séu þeim veittar.
Slagurinn mikli.
í Shelby 1 Montana leiddu þeir
saman hesta sfna Jack Dempsey og
Tommy Gibbons, 4. júlí $.1., og börð-
nst upp á lif og dauða um frægðina
að vera mesti hneifaieikari heims-
ins, en svo fóru leikar að þeir urðu
jafnir. Dempsey, sem áður hélt
heiðri þessum. er því enn óyfirunn-
inn. Eftir þvf sem blöðin segja frá>
lítur samt út fyrir að fremur hafi
verið sókn en vörn af hans hendi,
en af svo mikilli list sióst Gihbons,
að Dempsey er hér eftir ekki talinn
ósigrandi. Aðgöngumiðar að slag
þessum. voru seldir á $25.00 hver.
þar til 5000 inanna voru komnir inn
á áhorfendapallana. En 2000 er síð-
ar koinu, voru seldir aðgöngumiðar
á $10.00. Er þetta sýnishorn af því,
hve mikið fé er í aðra hön'd fyrir þá,
sem svona leikum halda uþpi.
Eftirherma.
Á götunum í Berlín var maður
nýlega á gangi svo líkur Charlie
Ghaplin, hð engir viltust á, að
hann var þar kominn. Fólk þyrpt-
ist utan um hann og hann faðmaði
það og kysti eins og Chaplin gerir.
Margir, einkum stúlkur, hlökkuðu
til að sjá sig síðar á hreyfimyndum
í faðmi Ohaplins, en þegar fólk átt-
aði sig á því sem gerst hafði, kornst
það að raun um að vasar þess vroru
tómir, og að þessi maður hafði með
þessu bragði verið að stela fé af
þvi.
Heimili. *
Það er alment sagt, að heimilið
sé helgasti verustaður mannsins.
En heimilin eru misjöfn og eiga oft
lítið sameiginlegt annað en nafnið.
Heimili fjölskyldu einnar — manns.
konu og tveggja barna — í Mans-
field, Nottinhamshire á Englandi,
var svínastía. Þau gátu ekki fund-
ið neitt annað skýli yfir sig. Lengi
bjuggu þau þar samt ekki, því þeg-
ar bæjarstjórnin komst að þessu,
var þeim útvegaður vistlegri sami-
staður. * ' -s * .
Efla herinn.
Frakkland heldur áfram að bua
sig undir stríð. Á Englandi vakti
það ógeð fyrir skömmu, hve flug-
floti Frakklands væri óðum aukinn.
En nú nýlega hafa Frakkar byrjað
að smiíða 4 gríðarstóra neðansjávar-
báta. Kostar hver þeirra um $1.-
875,QPO. Það lítur s\ro út sem Frakk
land gerði ekki ráð fyrir að stríðið
mikla hafi verið sfðasta stríðið.
------------x------------
Síofnun sögufélags.
Eins ofr auglýst var í íslenzku
blöðunum, hélt kapteinn Sigtrygg-
ur Jónasson fund með íslendingum
í þessum bæ, síðastliðinn fimtudag
til að ráðfæra sig við þá um stofn-
un sögufélags meðal Yestur-ls-
lendinga.
Hann skýrði frá hugmyndinni, er
fyrir lionum vekti með félagsmynd-
un þessari. Sögufélög eru til með-
al allra eða flestra þjóða. Til
gangur þeirra er einn og hinn
sami, sem sé sá, að halda til liaga
öllum brotum eða molum. sem sögu
þjóðarinnar snerta, og þegar tími
er til kominn, að skrifa heildarsögu
úr þeim brotum.
Hér hefir talsvert mikiu verið
safnað af slíkum siögumolum hjá
Vestur-íslendingum. En héildar-
saga af íslenzka landnáininu hefir
ekki enn verið skrifuð. En það
virðist mörgum mjög viðeigandi, að
nú sé byrjað á slíkum vísi til sögu
Vestur-lslendirfga. Er það tvent,
sem aðallega mælir með þessu. —
annað er það. að 1925 eru 50 ár lið-
in síðan að íslendingar stofnuðu
varanlega bygð í þessu landi. Hitt
er að æskilegast sé, að heildaryfir-
litið yfir þann tíma sé skrifað.
einkum fyrrihluti þessj af einhverj-
um þeim Islendingi, sem lifði á því
frumbyggjatímabili, leið súrt og
sætt með fruinbyggjunum ^g sagt
getur frá því af eigin reynslu.
Um þörfina á þessu kemur öllum
saman. Og nú hefir einn af- þess-
um frumibyggjuin, kapteinn Sig-
tryggur Jónasson, sem með réttu
| hefir verið kallaður “landnámsfað-
J ir” Vestur-íslendinga, af -Imörgum,
j liafist handa og gengst pú fyrir að
j verki þessu sé hrint af stað. Að-
ferðinni til þ.ess lýsti hann á þess-
um fiíndi. Er húti sú, að “sögu-
félag" sé stofnað og deildir af þvf
myndaðar í hverri bygð. Slíkar
deildir hafa nú verið stofnaðar í
Nýja íslandi, og erindi herra Sig-
: tryggs Jónassonar til Winnipeg var
; oinmitt að koma hér á fót sögu-
félagsdeild.
j Deild sú var stofnuð síðastliðinn
í fimtudag í Goodtemplarahúsinu. 1
! bráðabirgða stjórnarneínd voru
i þessir kosnir: Séra B. B. Jónsson.
j séra R. Pétursson, Séra Hjörtur J.
i Leó, Séra Jóhann Sólmundsson, séra
j Rúnólfur Marteinsson, Jón ,T. Bíld-
fell og Stefá-n Einarsson. Margir
j gengu í félagið á jiessum fundi.
j Ncfnd þessi kallar eflaust bráðlega
til fundar og gerir þá ráðstafanir
j fyrir störfum félagsins.
Starfið. sem fyrir þessum sögu-
féiagsdeildum liggur, er mikið. Ef
kosta hefði átt fáa rnenn til þess
að k-y-n verkið af hendi. heföi tii
’þc 's þuift ærið fé. En með þc-ssun.
sa-ntökum ætti ]iað sð vera kl-yí;
l'iátK fyrlr féleysið Það fyrir-
konmlag var ef til y'þ ejni mogu-
kik'nn til þess að færast v^ikið í
':i n g.
' Þþtt allir væru einnar skoðunar
um þörfipa á þessari söguritiri,
komu fram raddir á fundin iin^ úm
bað, hvort að rétt-nætt væri, að
stofna nú þegar sögufféiag hér. og
. 6n þess að ráðíæra sig við Þjóð-
ræknisfélag í«lendinga um það,
nitð ]iví að verk þetts virtist liggja
innan verkahring þess féiag-.
Mæltu þeir Amljótur óLnsson,
Bcigsveinn Long cg Sigfús Bene-
diktsson nieð þvi að það væri gert.
Benti hinn' síðasttaldi á, að sér
! fyndist undinn of bráður bugur að
ritun sögunnar í heild sinni, og
liann efaðist um, að hlutlaust og
rétt yrði frá skýrt, ef sú saga væri
rituð aí þeim, sem sjálfir tóku þátt
í fruinbyggjaglíinunni. Og víst ef
um ]>að. að tíma Jiarf oft langan til
; bess að geta séð eða lesið liina réttu
þýðingu atburðanna og d]ýminn er
ekki ávalt hægðarleikur að kveða
upp í svip eða jafnvel af samtíðinni.
En auðvitað er ákjósanlegast, að til
sé sem mest af skrjfuðum lýsingum
af frumhyggjalífinu. svo að ekkert
fari forgörðum af þeim þráðum, er
voð sögunnar yrði ofin úr. Að
slíkt spor væri stigið af sögufélag-
inu. áður en það skrifar heildarsögu
Vestur-íslendinga, nægði ef til vill
í svip. Hitt virtist fundinum samt
ákjósanlegra, að heildarsöguritun
væri nú byrjuð. Bæði var það. að
0 1
þarna bauðst maður til þess að
verja næstu árum til þessa verks,
sem fáir hefðu ef til vill átt kost á
að sinna, og svo í annan stað efast
enginn um það, að hann geti leyst
verkið vel af hendi hvað þekkingu
snertir, auk þ.ess sein hann ef til
vill einn manna á í fórum sfnum
ýmsan fróðleik geymdan, sem að
miklu haldi kemur og snertir sögu-
ritun þessa beinlfnis. Ennfremur
þóttti það næg trygging fyrir því,
að sagan yrði hlutlaust og rétt
skrifuð, að hverri deild sögufélags-
ins er falið að rita sögu sinnar
bygðar, og að aðaleftirlitsmaður út-
gáfunnar er þvi-alt annað en einn
um söguritunina. Auðvitað á þetta
ekki að skiljast svo, að hinum um-
rædda manni, kapteini Sigtr. Jón-
assyni. yrði hættara við en öðrum
að iíta hlutdrægt á söguefnið. Hver
einn maður, scm söguna hefði ritað
nú- eftir þeim gögnum sem við
hendi eru, hefði verið háður sania
lögmáli á þessu tímabili varúðar
og vandlætingar. sem andi flestra
nú lifir og hrærist í.
Með starfi þessa sögufélags ér
vonin sú, að bót verði meðal ann-
ars ráðin á því, sem nú kemur sér
heldur illa, en það er að vita ekki
með neinni vissu, hve margir Islend-
ingar eru vestan hafs. Það er ætl-
ast til a1# nafn hvers Islendings
verði skráð. Er það mikið verk að
vfsu, en ef þvf er skift niður eins
og ráð er gert fyrir, ætti það að
vera kleift, að fá áreiðanlega
skýrslu um þetta.
Sigtrygg-ur Jónasson mun ferðast
um íslenzku bygðirnar í sumar, tii
þess að stofna sögufélagsdeildir. Að
því loknu sezt hann við ritun inn-
gangs að sögunni, ástæðum fyrir
vesturflutningum og um allar þær
eldraunir, er frumöyggjar komust í,
alt fram að þeim tíma, er þeir hafa
stofn»ð nýlendu og ef til vill fyrstu
árin eftir það. Fyrri partur sög-
unnar þykir viðeigandi, að verði
kominn út á 50 ára afmæli nýlendu-
bygðarinnar íslenzku. en það er ár-
ið 1925. Alls er gert ráð fyrir að 4
ár gangi til að rita söguna.
---------------xxx---------
Utskrifast úr háskólan-
um í Manitoha.
Jóhann Marínó Sigvaldason út-,
skrifaðist í vor frá Manitoba há-
skólanum sem B. Sc. (Bacheror of
Science) með fyrstu einkunn (1B).
Próf það, er hann tðk- var ekki bú-
ið um það leyti sem liáskólinn gaf
út skýrslu sína, ,og vegna þess gat
hann ekki fengið stig sitt um leið
og hinir. sem útskrifuðust 1 vor.
Jóhann er 22 ára að aldri. Hann
er sonur þeirra hjóna Þórunnar og
og Þórhalls Sigvaldason, er lengi
bjuggu f Winnipeg. Þórhallur er
dáinn fyrir nokkrum árum, og hef-
ir ekkjan síðan haft það góða mark
mið í lífinu, að koma drengjunum
þeirra til menta og leitast við að
gefa þeim tækifæri til að njóta
þess bezta, sem lífið hefir að hjóða
hverjum einum.
Þessi ungi maður er mannsefni
gott, og hefir hann með ástundun
og metnaði, ásamt góðum gáfum,
getið sér hvarvetna hinn bezta orð-
stír í gegnum skólagöngu sína, sem
oft vill verða torsótt.
Hann er þegar byrjaður að lesa
undir læknaskóla. En í sumarfrf-
inu er hann að vinna við mælingar
lijá C. N. R. félaginu.
---------xx----------
Frá Rómaborg.
Kardínáli van Rossumwæntan-
legur fcil íslands.
\ Séra Friðrik Friðriksson
gengur fyrir páfann.
Séra Friðrik Friðriksson sem ver-
ið hefir í Rómaborg að undanfórnu,
iælur þess getið í bréfi þaðan, aö
hingað mur.i koma í sumar kaidf-
náli van R j' sum, sem er mjög hátt
settur í hirð páfans og á sæti í kúr-
íunni eða ráðgjafarþingi páfans.
Yísir hefir spurt herra Meulenberg
um þessa fyrirliuguðu heimsókn, og
staðfesti hann fi-vgnina. Mun kar
dínálinn koma hingað 9. júlí í sum
vi. Er íslandi mikil sæmd að heiai
s^kn þes«j tigna g'.:s‘‘s, og mun ferð
hans draga mikla athygli að land-
inu meðal annara þjóða.
Séra Friðrik Friðriksson fékk á-
heym hjá kardínálanum og tók
hann honum hið bezta og lagðf
hlessun sína yfir hann. v
Þá fékk séra Fr. Fr. leyíi til að
ganga fyrir páfann og þótti honum
þaðvinjög hátíðleg stund. Yar séra
Friðrik hinn eini, sem páfinn ávarp
aði persónulega. af öllum þeim
fjölda manna, sem fyrir hann gekk
þann dag. Þeir töluðust við á lat-
ínu, og að skilnaði lagði páfinn
blessun sína yfir hann og mælti:
“Deus Optimus Maximus benedicat
te et tuam familiam, terram tuarn
et nationem (þ. e: Drottinn hinn
æðsti og albezti blessi þig og þína,
land þitt og þjóð).
(Visir.)
---------xx-
I