Heimskringla - 05.12.1923, Blaðsíða 1
^endi?5 eftir ver'Clista til
Koynl Crown Soap Ltd.
664 Main St.. Winaipeg.
Ver&laos
gefbi
fyrir
Coupons
og
umbúftir
Verðlaiu gefii
ROYAl-.
fyrir CROWN
Conpon* j SOAP
Og[ SendlíS eftlr ver?51I«tn tll . . . Royal Crown Soap Ltd. umbuoir 654 Main St., Winnipeff.
XXXVIII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKLÐAGINN 5. DESEMBER, 1923.
NQMER 10
Canada.
Árekstur.
Bóntli einn, Paul Madel að natni
var nýlega að aka yfir járnbraut-
arspor í bænum Laura, Sask., en
varð fyrir lest, sem kom þjótandi.
Kornhlaða hafði skygt á teinana
svo maðurinn sá ekki til lestar-
innar fyr en of seint var orðið, að
etöðva hestinn, svo honum var
einn kostur nauðugur, að halda á-
fram| og reyna að komast fyrir lest-
ina. Hlann var líka rétt sloppinn,
átti svo. sem hálft fet eftir, þegar
lestin rakst á vagninii og möl-
Lraut hann og henti m'anninum
langar leiðir. Hann meiddist tölu-
vert, en er þó hugað lff.
King kominn heim.
Mackenzie King, forsætisráðherra
Canada, kom á föstudaginn heimj
úr för sinni til Englands, þar sem
hann undanfarið hefir setið á al-
ríkisráðstafnunnL Hann steig á
land í Halifax, Nova Scotia, og var
tekið á móti honum ineð mikilli
dýrð. En ilia tókst til mieð hátinn
er sendur var á móti. skipinu ti‘l að
taka við forsætisráðiiorran um og
flytja hann til lands. Dimm þoka
var á, og ekki gbtt að átta sig,
enda mistókst bátsstjóranum það
algerlega og strandaði fleytan á
rifum úti í firðinum, og sat þar
heila klukkustund, með forsætis-
ráðherrann innan horðs1.
Mr. King lætur vel yfir förinni,
en þykir þó vænt um að vera komt
inn heim- Hann heldur því fram,
ajið þótt ástæður séu erfiðar héT í
Canada, þá séu þær þó góðar, sam-
anborið við aðrar þjóðir.
Joseph Bernhart.
‘Nýlega er látinn hér einn af eldri
borgurum bæflarins, Joseph Bern-
hart gestgjafi. Hann flutti hing-
að árið 1881, frá Quebec, og hefir
stundað hér greiðasöðu síðan, eða
í 42 ár. Bernhart var franskur að
sett, fæddur og uppalinn í Elsass-
Lothringen, en var hrakin þaðan
þegar Þjóðverjar tóku héröðin ár-
ið 1871, og fluttist þá til Quebec.
Færri innflytjendur til
Canada 1923 en 1922.
iSkýrslur sýma, að 19% færra fólk
hefir flutt inn til Canada á fjár-
hagsárinu, sem enti 1. marz 1923,
heldur en næsta ár á undan. Inn-
fiutningur s. 1. fjárhagsár var 72,887
en 89,999 árið 1921—22. Enskir inn-
flytjendur 1922—23 voru 34,508, en
39,020 næsta ár á undan.
-----------x-------
Önnur lönd.
Mustapha Kemal veikur.
Eorseti Tyrklands, Mustaplia
Kemal, hefir undanfarið þjáðst af
hjartasjúkdómL Hann hafði ver-
3ð á góðum batavegi, en sló niður
nú nýlega.
Kosningarnar á Englandi.
Kosningabaxáttan á Englandi
stendur nú sem hæst, og allir
flokkarnir ganga nú ötullega fram,
°g má svo að orði kveða, að ekki
meSi á milli sjá, hvorir vinna
muni, Baldwin stjórnin, eða and-
^tæðingar hennar, liberalar og
vérkamenn. Það, sem aðallega
véikir andstæðinga stjómarinnar,
er það, að í mörgum kjördæmum
berjast þeir hver á móti öðrum,
®em auðvitað hlýtur að hjálpa
stjómársinnum til sigurs- Frams-
hjóðendurnir eru alls 1446, og skift-
ast þeir þannig niður í flokka:
Ihaldsmenn 551
Erjáisiyndir 437
Verkamenn 434
íhaldsmenn, sem eru með frf-
verzlun, 7
Dháðir 17-
50 þingmenn vor.u sjálfkjörnir,
og voru þeir flestir íhaldsmenn, í
263 kjördæmum sækja allir flokk-
arnir; í 126 stendur baráttan að-
eins milli frjálslynda flokksins og
íhaldsmanna; í 53 milli. frjáls-
lyndra og verkamanna, og í 103
milli verkamanna og íhaldsmanna.
Eins og menn vita, stendur orra-
liríðin aðallega um tollafrumvarp
stjómarinnar. íhaldsmenn fl&stir
fylgja henni að málum; en þó eru
nokkrar undantekhjngar, eins og
sést hér að ofan. éem dæmi, má
geta þess, að sonur Baldwins for-
sætisráðherra, fyllir flokk verka-
manna, og er mjög harðorður í
garð föður sfns og stjórnar þans,
■bregður henni um aðgerðaleysi og
heigulshátt. Ræðu, er hann' hélt
nýlega, endaði hann 'á þessa leið:
"Við kærurrn okkur ekkert um
töllverndun, en við viljum fá vernd
gagnvart slíkri stjórn, sem nú e|it-
ur að völdum.”
Einn af forsprökkum frjáislynda
flokksins, Sir William Bulmer, sein
var f miðstjórn flokksins f York-
shire, sagði því embætti af sér, og
gekk í lið mieð íhaldsmönnum.
Ný borg.
1 Mugan héraðinu í Caucasus á
að ifara að reisa nýja borg, og
verður hún nefnd eftir Lenin for-
iseta Soviet-stjórnarinnar, og köll-
uð Novgorod Lenin.
Gleypir skrautmuni.
Kona ein í Philadelphia var fyr-
ir skömmu tekin föst, sökuð um,
að hafa stolið nokkrum skraut-
munum. Pyrir réttinum. harðneit-
aði hún ákærunni, en sumt af
mununum fanst upp í henni, og
þegar tekiin var af henni X-geisla-
mynd, sást að hún hafði gleypt
tvo hringi og tvo' eyrnahringi.
Búa á sömu jöröinni í 1200 ár-
Pranska stjórnin auglýsti ný-
lega, að hún sœmidi hvern þann
mann ihdiðursmerki, sem gæti
siannað það, að ætt hans hefði bú-
ið á sömu jörðinni að minsta kosti
í þrjár aldir samfleytt. 750 fjöl-
skýldur komu fram með hinar
nauðisynlegu sannanir. En lang-
fremst var þó La Pargues-ættin í
Ooutlie, nálægt Molieres, sem hefir
búið á söm|u jörðinni síðan árið
772 og fram á þenna dag, eða í
nærri 1200 ár.
, v
StórbrunL
Eldur geysaði nýlega í bænum
Detroit í MiþhrganríkJ. Nokkra'r
stórbyggingar og vörugeymsluhiis
brunnu til kaldra kola, eða eyði-
lögðust. Álls er skaðinn metinn
.$1,500,000. — Eldurinn kom upp í
vökumianns-skúr niður við höfniina
og hafði kviknað út frá ofni.
Nýja stjórnin á Þýzkalandi.
Loks hefir tekisit að mynda aft-
ur stjórn á Lýzkalandji, eftir marg-
ar árangurslausar tilraunir.
Stresemahns-stjómin varð að segja
af sér fyrir nokkru síðan, og reyndi
Eberts forseti þá að fá ýmsa til að
mynda nýja stjórn, en það reýndist
ómögulegt lengi vel, sökum þess,
að ekki var hægt að fá menn í hin
ýmsu emibætti. Nú hefir þetta
hepnast, og heitir sá Dr- Wi'lhelm
Marx, sem| leysti þrekvirkið af
hendi. Stjómin er skipuð þessum
mönnum:
Dr. Wilhelm Marx, kanslari,
Dr- James, vara-kanslari og
innanríkisráðherra,
Dr. Gustave Stresemann, utan-
ríklismlálaráðherra,
Dr. Otto Gessler, landvarnarmáia-
ráðherra,
Heinrich Brauns, verkamála ráð-
herra,
Dr. Hans Luther, fjámiálaráð-
herra,
Dr. Author Hoeflo, póst- og síma-
málaráðherra, og ráðheira hinna
hernumjdu héraða,
Herr. Hamm, innanríkismála-
ráðherra,
iKerr. Emiminger, dómsmálaráð-
herra,
Herr. .Schiele, vistamálaráðherra,
Herr. Hleinrich, fjárhagsráðherra.
Ekki hefir dr. Marx tekist að fá
mjeiri hluta Ríkisdagsins til fylgis
við sig. Er því stjórn lians völt i
sessL og má elins vel búast við, að
hún falli áður en langt um ilíður.
Rannsóknarnefnd.
Skaðabótanefnd bandamanna
hefir ákveðið að skipa nefnd til a'ð
rannsaka ásitand Þýzkalands, og
möguleika þess á að borga stríðs-
skuldimar.
Rússar og Frakkar.
• Blöðin flytja þær fr.egnir á föstu-
daginn, að Rússar og Erakkar séu
í þann veginn að fullgera samn-
inga sín á milli. Rússar gangast
undir að viðurkenna skuldir Rúss-
lands, sem vóru fyrir stríðið, en
Erakkar vliðurkenna Sovietistjórn-
ina- Uppkast hefir verið gert að
samningi um verzlun og önnur við-
skifti, og hermla fréttirnar það, að
sainmin'gar miegi heita fullgerðir,
og eigi aðeins eftir að skrifa undir
þá Erakkar hafa sent austur til
Moskva mann, að nafni Hemi
Eranklin-Bouillon, — þann er stóð
fyrir samniingunum við Tyrki um
árið, og mun hann eiga að reka
endahnútinn á þessa sairtninga.
Séu þesisar fregnir áreiðanlegar, þá
er þetta vafalaust mikill pólitfsk-
ur sigur fyrir Prakka, bæði yfir
Þjóðverjum og Englendingum, því
áður virtust þýzkir iðnkonungar
hafa tögl og haldir í Rússlandi, og
Englendingar hafa altaf annað
veifið haft á prjónunum samniínga
við Rússnesku stjórnina. — En af
þessu leiðir og það, að þýzka og
enska þjóðin færast óum/filýjanlega
nær hvor annari, enda virðist það
samband eðlilegra, en milfii Erakka
og Englendinga, og heillavænlegra
fyrir báðar, þjóðirnar. Þær em af
sömíu rótum runnar og mjög líkar í
mlörgu, en Englendingar og Frakk-
ár eru eins ólíkir, elns og sjórinn
og eldurinn.
Ný járnbraut frá Banda
ríkjunum til Winnipeg?
Sú frétt hefir flogið fyrir, að
Chieago Milwaukee og St. Paul
jámibrautarfélagið, ætli að leggja
járnbraut milli Eargo, N. D„ til
Grand Eorks, og hafl í hyggju að
leggja hana svo hingað til Winni-
peg. Ekki vita menn enn, hvort
nokkur hæfa er fyrir þessu, en
yrði þetta að ráði, þá væri það til
stórkostlegs uppgangs fyrir Winni-
peg, eftir því sem blöðin segja.
Alexandra drotning.
Afmæli Alexöndru drotningar
var 1. þ- m. Hún varð þá 79 ára að
aldri. Eins og rnenn vita, er hún
dóttir Kristjáns IX. Danakonungs,
en giftist Játvarði. VII. Englands-
konuhgi árið 1863. Hún er mjög
vinsæl hjá þjóð sirini, enda kvað
hún vera lík föður sínum, sem
var orðlagt ljúfmenni.
Bandaríkin neita.
Bandaríkjunum var boðið að
skipa fulitiúa í nefndir þær, sem
rannsaka eiga fjárhag Þýzkalands
og möguleika þess á að borga, en
sCðmin svaraði um hæl og hafn
r.ði boðinu. Li'tir þvf sjm Hughes
utanríkisráðherra segir, vilja
Bandaríkin hafa algerlega ó-
bundnar hendur f Evrópumáiun-
um, og ekki blanda sér inn f þau
að svo komnu.
Mussolini fús aö viður-
kenna rússnesku stjórnina.
iForsætisráðherra Italíu, Signor
Mussolini, hefir lýst því yfir f þing-
inu, að það væri ekkert því til
fyrirstöðu, að ítalía viðurkendi
Soviet-stjórnina á Rússlandi. Allar
þjóðir yrðu fyr eða síðar að taka
■upp aftur sanfhancí við RússJand,
annaðhvort beint eða óbeint, og
frá fjárhagslegu sjónarmiði, væri
hagur fyrir ítalíu að gera það.
------------x-----------
Tímans menn.
“Þeir #em ineður vopnum vega'r
Vernda stundum þjóðar rétt,
Vana og hefðar höggva á strengi
Hærra geta markið sott.
Afrani, hærra, æðra, stærra
fAndinn þráir metnaðs gjarn.
Niður með það forma fúna!
Frægð er að vera Tíuiians barn.
Þegar ritið engu ork-ar
Andinn verður bmnnúð gjall,
Mentin snýst um dimimar dogmur
Diáðrík hugsun jökul fja.il.
Þá er stríð það aflið eina, —
Uppreist vanans krafti mót,
Sem fær gamlar rústir rofið,
Rétti ’ins nýja unnið bót.
‘‘Mitt sinn munu allir deyja”
Tnnir sá er hjörinn ber, —
Innir hugdjörf hetju lundin
Hildar þá f göngu fer.
Bregður hjör á báðar hendur
Byltir fjöndum vígs á storð.
"Betra er að fa'lla en flýja”
Irægðar hljóina dánar orð.
Fyrjr vopnum verða að lalla
Vígaslóðum blóðgum á,
Frelsishetjan hugum stóra
Og heigull myrkraríki frá.
Þau eru örlög afls og hreysti,
Æfi sína ei nokkur veit,
Lyddur jatnt og hetjur hnfga
Og hvfla sanian dauðs í reit.
Hví skal lífsins hættu flýja?
Hrert er að flýja? spyrjum vór-
Dauðann flýja fær ei neinum
Eorlög söm á maður hver.
Lífið er völlur starts og stríða,
Stríðið vekur kjarlc og þrótt.
Því skal ei úr hildi hopa
Hinsta fyr en rennur nótt.
Frægð er stæret á styrjar vengi,
Stríð að heyja kúgun gegn, —
Frelsisstríð mót fornum draugum,
Framans lund er sálar megn.
Kappinn, sem á hólmi hnígur
Hefir ei unnið fyrir gíg
Sá hans mjerki sannleijis megin,
1 sveit ’hins ranga öll hans vfg.
Framltíðin sem frelsi þráir,
Friðar-trygging sína fær,
Samtfðar frá hildar-hríðum
Heim(s er öflum saman slær.’
Fortíð svartri fylking otar
Fram á tímans hildarsvíð.
Nútíð miá ei víkja, vægja
Vilji Framtíð öðlast frið.
Fram! f stríð, í frelsisnafni ,
Frami! í nafni sannleikans,
Þó að blóð úr benjum fossi, —
blæði lífli kærleikans.
Sannleikurinn sigra hlýtur
Sannleikans of bregst ei lið.
Frelsis-sinnans ifórnar dreyri
Fegrar gjörvalt lffsins svið.
Þair, semj kjósa frið á foldu
Fylkja liði verða brátt, —
H|ella út dökku dauða blóði,
Draga sannleiiksmerkið hátt-
Við lýgi má ei sættir semja,
Sáttamál ei gagna enn.
Sækið framj! í frelsis nafni.
Fram! til sigurs, Tfmans menn!
S.--------------B. Söndahl.
----------------xx -----
Ur bænum.
Séra Eyjólfur J. Melan frá Gimli.
komj hingað til bæjar á þriðjudag-
inn, frá Árborg. Fór þangað norð-
ur og pTédikaði þar á sunnudag-
inn var, hjá Árborgarsöfnuði. Hjann
hélt heimleiðis á þriðjudagskveldið.
S A M K O M A
verður haldin i samkomusal Sam-
bandssafnaðar, inánudagskvöldið 10.
þ. m-, byrjar kl. 8.30. Þar verður góð
skemtun á boðstólum, eins og sjá
má af skemtiskránni eem hér fer á
eftir: —
1. Mrs. P. S. Dalmann og Hall-
dór Þóróifisson: Tvísöngur.
2. Miss Helga- Pálsson: Piano
Solo.
3. Mr. John Tait: Upplestur-
4. Séra Ragnar E. Kvaran: Upp-
lestur.
5. Mr. Gfeli Jónsson: Einsöngur.
6. Arthur Fumey: Violin Solo-
7. Séra R. Pétursson: Ræða.
Carlysle Jóhannsson var fiutttur
veikur hingað til 'bæjar, frá Glen-
boro, Man., og færður inn á Al-
mcnna sjúkrahúsið hér í bæ, á
föstud&ginn var þann 30. nóv.
Hann var skorinn upp á mánudag-
inn við botnlangabólgu, af Dr.
Brandson. Uppskurðurinn tókst
vel eftir vonum.
Mrs- G. M. Jóhannsson frá Gimli,
kom hingað ti.l bæjar á laugardag-
inn var, til móts við son sinn, C|r-
lysle Jóliannsson, er fluttur var
hingað veikur frá Glenboro. Mrs.
Jóhannsson leit sem snöggvast inn
á skrifstofu Hkr. Engar markverðar
fréttir sagði hún nema að vatnið
er enn ólagt, og er það ekki. í
minnum, að það hafi áður haldist
autfi svo lengi fram eftir hausti.
Bazaar til hjálpar nauðlíðandi
börnum á Þýzkalandi.
Föstudaginn 14. þ. m- verður
Bazaar og hlutavelta haldið f
“Lecture II all” í Board of Trade
byggingunni á Main Str., og verð-
ur ágóðanum af þvf varið til að
kaupa mjólk og hveiti, og senda
þeim þúsundum af bðmum í
Þýzkalandi, sem eru nú hjálpar-
þurfa og í raun og veru við dauð-
ann úr hungri.
AUir vinir nauðstaddra bama
eru f nafni mannúðarinnar beðnir
að styrkja þetta þarfia fyrirtæki og
koma á útsöluna. Þar verða marg-
ir góðir og eigulegir munir til sölu,
idjög hentugir til jólagjafa. Alls-
konar veitingar verða þar á boð-
stólum. — Gjafir má senda til:
Mrs. Hugo Carstenis, 605 Strad-
brook Ave., Sími: F 6195; Mrs. Dr.
Lehmann, 99 Roslyn Road, sími F
2845, og Mrs. Schroeder, 513 Bana-
tyne Ave., sími N 7903Ö Þær veita
einnig ailar upplýsingar.
Dr. H. W. Tweed tannlæknir
verður staddur á Gimli, fimtudag-
inn og föstudaginn 13. og 14. þ. m.,
og tekur þar á móti sjúklingum.
Jóin Jónatansson rakari, hefir
legið veikur undanfarið, og liggur
enn. f forföllum hans starfrækir
Mr. Thorvaldur Davíðsson rakara-
stofuna, sem er á hominu á Victor
og Wéllington.
GÓÐ jóla- og nýjárs-gjöf er hin
fróðlega og skemtilega bók:
ÞjóÖvinafélags-AlmanakiÖ
fyrir árið 1924.
Fæst hjá Arnljóti Björnssyni (01-
son), 594 Alverstone Str., Winnipeg,
Man., fyrir 50 cents. Einnig kaup-
ir hann og selur, skiftir og gefur
alfekoniar eldri og yngri íslerizkar
bækur, blöð og tfmarit. — Sögu-
félagsbækurnar fyrir þetta ár, hef-
ir hann enn ekki fengið- Tilkynn-
ir þá þær koma.
Við aadlátsfregn
JÓNS JÓNSSONAR
frá Sleðbrjót.
Andinn líður ekkert tjón,
er það bezta greinin,
svona læknar svefninn, J ó n,
seinast gjörvöll meinin.
Vertu sæll vinur,
vonir þér fylgja
bjartar, broshýrar,
að betri stöðum.
Hressist hugur
að heyra þig sloppinn
yfir sleðbrjóta
í álfum tveimur.
Veit eg það vel,
að þér vonir brugðust
háar, hugdjarfar,
hreinar, bjartar,
því frelsis hugsjónir
föðurlandi
áttir þú beztar
eigna þinna.
Gráttu son þinn, Garðarsey,
gráttu sorgar tárum,
þó hann burtu flytti fley
fyrir mörgum árum.
Hvar sem sonur innl á,
andlega þér hann dvelur hjá,
leynir söknuð sárum.
Sigurður Jóhannsson.
Séra Alibert Kristjánsson frá
Lundar, Man., kom til bæjarins í
gær- Hélt hann samdægurs vest-
ur til íslenzku bygðanna í Sask-
atchewan, og flytur þar erindi
eins víða og við verður komið í
þarfir Þjóðrækri fefélagsins. Hann
bjóst við að verða '10 daga vestur
frá.
JÓLAKORT.
H. 6. Bárdal, 894 Sherbrooke Str..
hefir sent Heimskringlu sýnishorn
af ljómjandi fallegum íslenzkum
jólakortum, er hann hefir til sölu.
Einnig fást þau hjá útsölumönn-
umlvíðsV'egar í bygðum íslendinga.
Verðið á þeim er frá 5 centum og
upp í 50c hvert, eftir stærð og
gæðum. Dýrari kortin eru hand-
móluð og búin til á Englandi.
Þau þola samanburð við ensk
jólakort á sama verði, ættu því
fslendingar að nota þetta tæki-
færi og kaupa sem fynst, meðan
upplagið endist-
Mrs. Hannes Líndal, hefir tekið
offioe í Board of Trade þygging-
unni, þar sem, hún selur handmál-
að leirtau og allskonar hainnyrðir.
Fólk ætti að nota sér tækifærið, og
kau pa fallega og fágæta muni fyrir
jólin.
STÚDENTAFÉLAGIÐ
heldur fund, á vanalegumi stað og
tíma, á laugardagskvöldið þann 8-
desember. Á þeim fundi verða
ræddar fyrirhugaðar breytingar á
stjórnarskrá félagsins, samkvæmt
tilkynningu, sem gerð var á síðasta
fiundi, og gengið til atkvæða um
þær. Einnig íer fram önnur kapp-
ræða vetrarins. Efnið var valið
m|eð sérstöku tilliti til þess, að
næsta ár er hlaupár. Það er: "Á-
kveðið að framför sé, að kvenfólkl
sé heimilaður sami réttur og karl-
menn hafa, til þess að bora kostn-
að að sameiginlegum skemtunum
karla og kvenna, og að þeim sé
heimilaður sami réttur til bónorðs
og karlmenn njóta.” Já-kvæðu
hliðinni halda fram þær Miss Sig-
urborg Oliver og Miss Ragna John-
son, ©n máfetað karlmanna verja
þeir, Mr. Thorsteinn O. S. Thor-
steinsson og Mr. Ágúst Anderson.
Það má búast við harðri sennu
urilll kappræðenda, þar sem um
svona mikilsvarðandi mál er að
ræða.