Heimskringla - 18.06.1924, Qupperneq 1
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBCÐIR
ROYAL,
CROWN
SenditJ eftir vert51ista til Royal
Crown Soap Ltd., 654 Main St.
Winnipeg.
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
SenditS eftir verSlista til Royal
Crown Soap I.til.. 654 Main St.
Winnipeg.
XXXVm. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 18. JÚNí, 1924.
NÚMER 33. '
ISLENZKA VÍKINGASKIPIÐ VINNUR FYRSTU VERÐLAUN.
xxx GANADA >°o< j
Frá Toronto er símað 17. t). m.,
að stjórnin hafi, að undirlagi Hon.
Jamies Murdock, kveðið forgöngu-
menn póstþjóna- sambandsins til
viðtals f Ottaua, um launamál. Var
búist við, lað póstbiónar mjyndu
ihefja verkfall, á hádegi þ. 18 }>. m.,
í því skyni, að neyða stjómina til
þess jað hækka launin Vonandi
geta málsaðilar komið sér svo sam
an, að ekki verði úr verkfallinu.
Lieutenant — Governor Sir Jam-
es Aikins lýsti yfir þvf, er hann á-
varpaði þingheim Manitoba
Methodista á þriðjudaginn var, að
hann byggist við að þessi fundur
þeirra yrði síðastur vegna þess, að
hann byggist fastlega við stofnun
Sambandskirkju og áliti hana
heppilegasta.
Frá Ottawa er símað 17. þ. m., að
nýr flokkur sé myndaður í þing-
inu. Hafa nokkrir af bændaflokkn-
um, þeir er lengst hafa ihaldið sig
til vinstri, nú klofið sig frá hon-
um. Hafa þeir verið kallaðir
“ginger”-fiokkurinn, siikum þess að
þeix hafa þótt nokkuð hvassyrtir
á stundum. Hafa þeir tilkynt
foringja bændaflokksins, Robert
Forke, að þeir skoði sig ekki háða
þcim fiokki lengur. í hinum nýja
flokki eru þessir þingmenn: E. J.
Garland, Bow Rivert, Atla; Ro-
bert Gardiner, Medicine Kat, Atla;
G. G. Ooote, Macleod, Alta; H. E
Spencer, Battle River, Alta; D. M.
Kennedy, Edmonton West, Alta;
Agnes MacPhail, Grey South-East,
Ont., og W. C. Good, Brant, Ont
3?ar að auki er búist við að J. T
Shaw, Calgary, muni fylgja fiokkn-
um að málum. Búist er við, að
flokkurinn muni taka höndum sam
an við verkamannaþingmenn. Tel-
ui- hann að samvinna eigi að byggj-
ast á grundvelli sameiginlegra at-
vinnuvega, en ekki á breiðari
grundvelli samvinnu allra stétta.
Með það fyrir augum muni flokk-
urinn veikjast of mikið.
Frá Ottawa er simað 17. þ. m, að
frumvarpið um kirkjusambandið
hafi ekki komið til umræðu þann
dag; aðallega (Isökum fjærveru
Kings forsætisráðherra, er lagði á
stað sama daga suður til Yale, til
þess að taka á móti doktorsnafn-
'bót í lögum frá þeim háskóla. Mun
hann koma aftur á fimtudag, og
er þá ráðgert, að frumvarpig komi
til umræðu næsta þTiðlud}ag, og
búist við að það taki þann dag all-
an og e. tl v. miðvikudag líka, að
ræða frumvarpið.
Frá Bridgeburg í Ontario er sím-
að 17. þ. m, að milli 500 og 1000
manns streymi daglega frá Banda-
ríkjunum, norður yfir-^landaffnætrj-
in á þeim stöðum. Eru það mest
handverksmenn, er suður hafa
farið, að leita sér atvinnu. Er það
gleðilegt tákn um að útlitið sé að
batna hér nyðra.
Frá London er símað, að svo
margt merkilegt sé að sjá í Canada
höllinni á Wemlbleyssýnfngunni,
að þar sé meiri mannþröng dag-
lega, en á öðrum stöðum í ráði er
að fá mörg þúsund hveitibindini
frá Canada, sem efnivið í eftirlík-
ingu af hveitiakri, er á að sýna á
afarmikilli skrautsýningu er á að
fara fram á Wembleyvöllum.
Frá Ottawa er símað, að í viðbót
við þær tvær loftskeytastöðvar,
sem nú eru í Mays og Dauson
City, þá eigi að reisa 2—3 nýjar á
þessu sumri þama lengst út i
norðrvestrinu. Eiga þær stöðvar
að vera að Fort Simpson og Hers-
chel eyjunni, og standa í samíbandi
við stöð er reist verður í Edmon-
ton.
Önnur lönd.
að reyna að vemda líf þeirra,
mannfélagsins vegna.
Símað er frá Christabel við Pan-
ama, að Bandaríkjaprófessor, að
nafni Miarsh, er fór í leiðangur til
Darienhéraðsins, að leita að “hvít-
um Indíánum”, hafi komið til Col-
on vig Panamaskurginn, meg tvær
ungar stúlkur og einn ungan mann
og eru öll bláeyg, ljóshærð og slétt-
hærö, með fflabeins litað hörand.
Lau eru klædd sem Indíánar og
tala indíanskt tungumál, en annars
villl próifessorinn ekkert uppskátt
gera ennþá um fund sinn. — Leyf-
ar af Islendingum?
Skæðir fellibyljir ásamt hagli og
rigningum hafa geisað yfir Iowb
og Suður-Dakota nýlega. Hafa orð-
lð stórkostlegar skemdir á ökrum
og byggingum og tdlið að 14 manns
hafi farist.
Frá Cleveland Ohio, er símað, að
Calvin Ooolidge forseti, hafi hann
dag verið formlega kosinn sem for-
setaefni af hálfu Republicana, með
miklu lófataki og fagnaðarópum.
Frá Chicago er símað þ. 14., að
50 geðveikra læknum hefir verið
smalað saman til þess að reyna
a<5 finna einhver geðvæikismerki á
'barnamorðingjunum Nathan Iveop-
ald og Richard Loeb. Um að gera
Frá Cape Town í Suður-Afríku er
símað 17. þ. m. að Jan Ohr, Smuts
fogsætisráðherra hafi beðið ósig-
ur í nýafstöðnum' þingkosningum
og mist sæti sitt í hendumar á
Hey, mótstöðumanni sínum P*
flokki verkamanna I>essi kosninga
ósigur Smuts kom flestum al-
gjörlega á óvart. Annars hefir
verkamiannaflokknum: og National-
istum orðið bezt ágengt í kosning-
unum.
Frá Yersailles er símað þ. 13. að
Gaston Doumergue var þann dag
kosinn forseti Frakklands með 515
atkvæðum. Paul Painleve fékk 309.
Sagt er að menn hafi alment búist
við kosningum Doumergues, og séu
ánægðir með hana, að undanskild-
um rótlækum vinstrimönnum, er
hefðu viljað Briand eða Painleve.
Frá París er símað þ. 14. þ. m.
að nú hafi Frakkland loks fengið
jafnaðarmannostjórn, þar sem
Edouard Herriot tók við stjórnar-
taumunum þ(ann dag, pamkvæmt
tilmælum hins nýja forseta Don-
mergue.
Frá París er símað 17. þ. m., að
hinn nýi forsætisráðherra Herriot
hafi þann dag skýrt frá því í þing-
inu að hann teldi ógerlegt fyrir
“Heimskringla” kemur út með seinasta móti þessa viku.
Stafar það af háJtíðahaldinu miðvikudaginn var. En rétt um
það leyti, sem blaðið er að fara í pressuna, berst sú fregn inn á
skrifstofu blaðsins, að íslenzka vnkingaskipið hefði fengið fyrstu
verðlaun í skrúðgöngunni. Er vissulega betur farið en heima
setið, og er þetta Winnipeg-íslendingum til mikillar sæmdar.
Frakka að rýma Ruhr.fyrri en
þeir væru vissir um að Pýzkaland
léti afvopnast undir umsjón Banda
■manna og helzt undir umsjón al-
þjóiíasaiubandsias. Dessi ræða
Herriots er sagt að hafi vakið hið
mesta uppistand í Þýzkalandi og
-muni Nationalistar og keisarasinn-
ar nota hana sem ákafast til æs-
inga.
í írlandi hafa kaþóisku prestam-
ir nýlega ha'fist handa gegn aiiri
ástleitni ungra manna og kvenna,
og hafa helgað því máli eina viku.
Fyrirlestrar verða haldnir í ölium
æskumannafélögum og kvennaskól-
um, og svo langt er jafnvel gengið,
að ungum stúlkum hafa verið
fengnir vasaklútar, og hefir verið
saumag með miklu skrauti í eitt
hornið: ‘Werið ekki ástleitnir við
mig”! Þegar ungu mennirnir sjá
þetta, á þetta að hafa svipuð áhrif
og eldingaleiðari. En sumum ungu
stúlkunum þykir þetta nokkuð
langt gengið. Þær hafa fengig sér
aðra vasaklúta og saumað í þá
þetta: “Elskarðu mig!” Nú er eft-
ir að vita hver stefnan má sfn
meira.
Sú frétt, sem virðist hafa vakið
meiri athygli en flest annað þessa
síðustu viku víða um lönd, er hið
mikla hneykslismál í ítalíu, er
einn af merkustu stjórnmálamönn-
um iandsins, Matteotti að raafni
var numinn á brott og drepinn.
Matteotte þassi er miljónamæring-
ur og socialisti. Hefir hann barist
með mikiili harðfylgi á móti
Mussolini hinum mjög ræmda aft-
urhaldssegg, er nú situr við stýr-
ið í ítalíu. Þóttu böndin berast
að fylgismönnum forsætisráðherr-
ans, Mussolini, að þeir hefðu orðið
valdir að hvarfi og drápi Matte-
otti. Kom málið fyrir þingið, en
Mussolini harðneitaði að eiga
nokkura sök á glæp þessum, og
kvaðst hafa lagt fyrir lögregluna
að leita um þvert og endilangt
landið að illræðismönnunum. Síð-
ustu fréttir herma, ag fimm menn
hafa verið teknir fastir, og hafa
þeir allir reynst vera fyigismenn
Mussolinis. Þykir ekki ósennilegt
að þetta veiki forsætisráðherrann
og verði, ef til vill, til þess, að fiýta
fyrir að honum verði veit úr valda-
sessi.
Hinir dönsku meðlimir dansk-
íslenzku lögjafnaðarnefndarinnar
ætla sér að fara til íslands með
skipinu “Island” hinn 15. júní og
koma til Reykjavíkur 23. júnf. Bú-
ast þeir við að geta haldið aftur
á stað heim 2 júlf með skipi frá
Bergenska félaginu.
Eftir að iokið var umræðu i
fólksþinginu, sem jafnaðarmenn
og vinstriflokkurinn vora frum-
mælendur að, en gerbótamenn og
hægrimenn töluðu á móti, var
GrænlanfLssamningnum vísað til
nefndar á miðvikudaginn, og hefir
sérstök nefnd 15 manna verið kjör-
in til þess, að tgera tillögur í mál-
inu. Framsögumaður hægrimanna
Puirchel tilkynti, að firá Hlolster-
|borg og Sukkertoppen hefði sér
borist mótmælaskjal undirskrifað
af um 400 manns, sem krefðust
þess, að samningurinn væri lagð-
ur fyrir landsráðið grænlenzka.
Vinstrimaðurinn Yangaard, sem
var einn sendimanna ríkisins í
fyrra, talaði á móti sammingnum.
í viðtali við blaðið “Köbenhavn”
segir Stauning forsætisráðherra,
að ráðuneytið muni reyna að fá
samningnum framgengt, þrátt fyr-
ir afstöðu gerbótana til hans, og
yfirleitt ná málum fram með þeim
atln’æmum, sem fáist í það og það
skiftið, jafnvel þó stuðningsmenn
séu ekki þeir sömu.
Bramsnæs fjármálaráðherra hefir
lagt fram í fólksþinginu framvarp
þetta um afgjald af eignum, sem
nema meira en 50,000 krónum. Af-
gjaldið fer vaxandi, eftir eignaupp-
hæðinni, frá 1% af 60 þús. upp í 15,
1% af 20 miljónum króna. Áætlað
er, að afgjald þetta komi til að gefa
nálega 440 milj. kr. tekjur,
---------xx----------
Frá íslandi.
Afarmikil aðsókn var að lista-
safni Einars Jónssonar síðastliö-
inn sunnudag, — á fimtugsafm-æb'
iistamannsins. Er talið, að um
2000 manns hafi komið þangag á
tveim klukkutímum. Mun það
gleðja Einar, að svo margir mint-
ust hans þenna dag, þó að hann
væri sjálfur í öðru landi. Búist
er við, að Einar komi hingag í
næsta mánuði, ásamt frú sinni,
sem hefir verið ag leita sér heilsu-
bótar 1 Danmörku, og er nú á bata-
vegi.
Árbók Hins íslenzka Fornbréfa-
féiags (28. árgangur) er nýkomin
út. Fyrst er ritgerð um íslenzk
bæjanöfn eftir prófessor Finn Jóns-
son; er það allsnörp ádeilugrein
um ritgerð Hannesar skjalavarðar
Þorsteinssonar (Rannsókn og lei'ð-
réttingar á nokkrum bæjanöfnum
á fslandi), sem var í Árbók félags-
ins í fyrra. I>ar næst er Kvittun
til Dr. Finns frá Hanneéi, og er
hann furðu þungorður í garð pró-
fessorsins. Þriðja ritgerðin er um
Lambanessþing o. fl., eftir Kxist-
ján Jónsson frá Hrjót, en þá eru
smávegis athugasemdir um staði og
fomminjar, eftir Matthías Þórðar-
son fornminjavörð. í þeim eru 5
myndir, ein af dys Þorgeirs Há-
varðssonar og 4 af Grettisbæli í
Öxarfjarðarnúpi. Sami höfundur
ritar ítarlega gein um Alvíssmái, og
smágrein um gamla Alvíssmál, og
smágrein um gamla gátu, og loks
eru tveir eftirmálar eftir þá pró-
fessor Finn og Hannes ÞorsteinssOn
Leiða þeir þar enn saman hesta
sína, og hefir mörgum orðið tíðrætt
um deilu þeirra. Þeir, sem gerast
vilja nýir félagar í Fornleifafélag-
inu, eiga kost á allri Áxbókinni
fyrir gjafverð, en hún er mjög
merkilegt rit, og ómissandi hverjum
þeim, sem kynnast vill til hlitar
fornum fræðum íslenzkum.
Sænska rithöfundafélagið hef-
ir, að þvf er “Politiken” segir,
boðig Gunnari Gunnarssyni skáldi
og Finni Jónssyni prófessor að
taka þátt 1 rithöfundafundinum í
Stokkhólmi.
40 &ra stúdentsafmæli eiga 5.
júlí n. k. þessir: Síra Árni Þórar-
Eftirmáli
aftan við “English Bards ard Scotch Reviewers”.
Byron! hvílíkt happ! að þessu sinni
Heimi bættist, og þig fyrir steig,
Óminnugur lífs hjá Leþe þinni
Líða skuggi og þamba gleymisku-veig,
Fyrirlitning fræg svo þín ei kynni
Flaðrinu að vinna minsta geig,
Sem þér inní aldar-minning hnýttu
Arfar þeirra er forðum stærst þig grýttu!
Þegar spentur þinna ljóða bogi
Þar um gall: hve slyngt var allra-safn:
Eigin vömm, að skola í skírnartrogi
Skjanna-hvíta og velja kristið nafní
Þá stóð um þig lastmælginnar logi
Lucifer þú værir kær og jafn!
— “Sjálfur eins. Þó eg með hreinskilninni
Sé, að því leyti, guðlastari minni!”
Þinni snild vor augu opna kunni,
Að okkar dagar fæddu verri mann
Siða-bót sem byggja hygst frá grunni —
Breyting, sem ei heiðursfólkið ann!
Agnus Dei ertu þeim í munni,
Advocatus Diaboli hann-
Þú réðst ei til, byggingum að bylta —
Bara straukst af leirnum hýðið gylta!
II.
Ávalt munu áframhalda og skrifa,
Eftirbátsmenn tímans leggja á sig:
Dánum hrósa og lasta þá sem lifa-----
Lýttur nú og genginn þú á svig,
Hávegum þíns heiðarleiks til þrifa:
“Helt mun uppá gromsið” fyrir þig!
Gleðstu því, en gakk þú ekki af rónni,
Gutlið býður erfi-volgt “á stónni”!
25.-5. ’24.
Stephan G.
insson, síra Amór Árnason, Axel
Tulinius f. sýslum., Einar Bene-
diktsson f. sýslum., Halldór Torfa-
son iæknir (í Ameríku), séra Hálf-
dan Guðjónsson, séra Jón Finns-
son, séra Ólafur Stephenson, séra
Páll Stephansen, séra Skúli Skúla-
son, Sveinbjörn Egilson ritstjóri og
Þorleifur H. Bjarnrason yfirkenn-
ari. Hinn 5. júlf 1884 útskrifuðust
25 stúdentar úr lærða skólanum,
og eru þessir fymefndu eftir af
þeim hóp. Dánir eru: Sigurður
Jonassom ,Bjami Pálsson, Bjarni
Thorsteinsson, Magnús Ásgeirsson,
Tóinas Helgason, Christian Riis,
Lárus Árnason, Björn ólafsson,
Björn Jónsson (Mikiabæ), Sigurður
Sigurðsson (læknir), Kristján Jóns
son (læknir í Ameríku), Stefán
Stefánsson (skólamieistari). — Af
hópnum urðu 10 prestar, og af þeim
lifa 8. — í ráði mun að minnast
þessa afmælis í sumar.
í neðanmálsritgerð “Politiken"
skrifar Guðmundur Kamlban eftir-
tektaiverða lýsingu á leikhúsinu í
Beylkjavík log ihrósar mjög Starfi
Leikfélags Reykjavíkur og list
þeirri, sem þag gæti sýnt. Telur
hann Alþingi niikinn sóma að því,
að hafa samþykt lögin um skemt-
anaskatt og þjóðleikhús, sem geri
það kleift, að koma upp þjóðleik-
húsi á þúsund ára hátíð Alþingis.
Látinn er Þórður Daníelsson fyr-
verandi bóndi í Núpufelli í Eyja-
firði, eftir langvarandi heilsubrest
62 ára gamall. Mesti dugnaðar og
heiðursmaður. Einnig er látinn á
sjúkrahúsinu á Akureyri, Guðrún
Kristjánsdóttir, kona Sigurðar
kennara á Belgsá í Fnjóskadal.
Banamein hjartabilun.
------------0---------—
Björgvin Guðmundsson.
Um hvítasunnuhelgina fóru þau
hjón Björgvin Guðmundsson tón-
skáld, og kona hans alfarin héðan
úr bæ suður til Ohicagoborgar. Því
er ver og miður, að skilnaður
Björgvins Guðmundssonar varð
nokkur annar við þetta land, en vin
i” hans myndu hafa ákosið, þar
sem hann nú þarf að fara í annað
land að leita atvinnu. Björgvin
mun vera algerlega sjálfroentaður
í tónfræði. Hann hefir verið fá-
tækur maður alla æfi, og orðið að
vinna fyrir sér hörðuro höndum,
jafnframt því að helga tómstundir
sfnar sönggyðjunni. Er það illa
farið, því jafnmikil listgáfa og horo
um hefir verið gefin, á það ekki
skilið, að vera borin út á gaddinn
og grimdina. Þau ummæli hafa sér-
fræðingar viðhaft ura verk hans að
öll líkindi eru til þess, að hann
myndi gera garð sinn frægann,
hefðu skapanornirnar miðlað hon-
um isvo úr nægtahorni si^iu, að
hann hefði um stund getað horf-
ið til aðalheimkynnis hljómlistar-
innar, Þýzkalands, og bundið þar
enda á nám sitt. Allir vinir hans
óska þess, að sá draumur hans
megi rætast í sem nánastri fram-
tíð. Og hugheilustu ámaðaróskir
þeirra allra fylgja honum á fram-
tíðarbrautinni.
----------x-----------