Heimskringla - 18.06.1924, Blaðsíða 3
WINNIPEO, 18. JUNÍ, 1924.
HEIMSKRINGLA
f. BLAÐStÐA
Uessu næst er l)að fyrir uppgötv-
anir John Davis, að ný þckking
"breiðist út um legu og leiðir Græn-
lands, en á því sama ári sem Davis
lést (1605) gerði Kristján 4. út 3
skip til þess að “endurfinna” Græn-
land undir leiðsögu Bretans Jam-
es Hali; en æðsti skipherra farar
>eirra var einnig brezkur aðals-
maður, John Cunningham. Loks
var enn hinn þriðji Breti, John
Knight, foringi á einu af skipunum.
Árig 1606 gerði sami konungur enn
út 5 skip til Grænlands og voru
þeir aftur með í förinni Hall og
Cunningham og loks var hin l>riðja
ferð gerð 1607, en þá aðeins með 2
skipum, og var þá tilgangurinn að-
allega, að leita Austurbygðar, sem
J»á var almennt álitin vera á aust-
urströndinni. Yoru íslendingar
með f þeirri ferð, sem túlkar, þeg-
ar til Austurbygðar kæmi, þar sem
talið var víst að finnast mundu
enn íbúar af hinum forníslenzka
stofni. Á þessari för var James
Hall enn leiðsögumaður og með
honum annar Englendingur Josias
Hubert. En hve mikils þótti um
verð leiðsaga og foíusta Bretanna
á þessum ferðum má ráða af þvi,
ag Purchas heldur ]>ví fram, að
skipshafnirnar muni hafa risið upp
á móti yfirmönnum sínurn þegar
sjón var fengin af Grænlandi, vegna
þess að Danir viidu ekki unna Eng-
lendingi heiðursins af endurupp-
götvun landsins og hafi fyrir þessa
sök verið snúið aftur til íslands.
Að Hall hafi látið eitthvað á sér
skilja á þessari ferð, í þá átt að
eigna bæri Bretum landfundinn,
virðist heldur ekki ósennilegt, þeg-
ar athugað er að hann síðar (1612)
fer með 2 skipum til Grænlands, að-
allega til þess að slá þar eign sinni
á námulönd fyrir hönd Lundúna-
félags eins, sem var að vísu í orði
kveðnu stofnað til þess að finna
“Norðvesturleiðina”. En í þeirri
ferð var hann drepinn af Skræl-
ingjum og er það éftirtektavert í
þessu samlbandi, að hann gerir þá
síðustu ráðstöfun, að hann skuli
vera jarðaður í Grænlandi.
Eör Jens Munks til þess að leita
“Norðvesturleiðai'innar” (1619), sem
Kristján 4. þessu næst gerði út,
snertir ekki það efni, sem hér ræð-
ir um að öðru leyti en því, að Munk
sá landið þegar hann sigldi fram
hjá því. En eftir að "grænlenskt
félag” hafði verið stofnað í Höfn
með einkarréttindum (1636), voru
2 skip búin út þaðan, til þess að
það gæti rekið verslun við Skræl-
ingja á Vesturströndinni. Var sii
ferð árangurslaus að öðru leyti én
því, að fluttur var heim tii Hafn-
ar málmsandur nokkur, sem einn af
skipverjum hafði af tilviljun fund-
ið á ströndinni. En sandur þessi
reyndist þó einkisverður þegar til
rannsóknar kom. Eftir þetta gerðist
svo ekkert um Grænlandsleitir frá
Höfn, þangað til 1652, er danskt fé-
lag eitt, og veittu 'leyfisbréf frá
konungi, fær Hollendinginn David
Danell til þess að taka að sér for-
ustu yfir upgötvunarför þangað,
með 2 skipum. Danell náði höfn
við vesturströndina og hafði þar
ýmiskonar viðskifti við Skrælingja.
Hann var og kominn mjög nærri
því að ná til lands að austanverðu,
en tókst ekki. Á leiðinni heim
komu þeir til Reykjavíkur og gerðu
boð til Brynjólfs biskups Sveins-
sonar, sem þeir vissu að var fróður
um Grænland af fomum ritum og
fengið hafði konungsskipan áður
um að láta Danell 4 té allar upp-
lýsingar um landið, sem honum
væri unt. Er þetta atriði í siglinga
sögu Grænlands merkilegt og
minnir á hina alkunnu njósnarferð
Kolumbusar norður 1 höf, þegar
ætla má, að hann hafi leitað sér
þekkingar á sömu stöðvum, um
Grænland og Vínlandsferðir gömlu
Islendinga.
Danell gerði enn aðra ferð 1653
með einu skipi. En þótt hann bæði
verzlaði og fiskaði talsvert við
Grænland stóðst hann ekki kostn-
aðinn. Til Austurlandsins komst
hann heldur ekki. Loks fór hann
þriðju ferðina mieð 2 skipum, 1654,
og sigldi það skifti sunnanvert við
Island. Dvaldi hann þá þrjár vikur
við Grænlandsstrendur, en enginn
sérstakur árangur virðist hafa orð-
ið af þeJrri ferð. 3>ó munu skýrsl-
ur þær sem konungi voru gefnarl
um þessar þrjár ferðir Danells hafa
orðið til þess, að allrahæsta skip-
un kom út 16. júlí 1664 til biskups
í Þrándheimi um það, að senda öll
bréf og skjöl, sem findust þar, snert
andi Grænland (ásamt Vínlandi
etc.) til stjórnarinnar í Höfn. Dag-
bækur Danells eru týndar; en ekki
var nema sennilegt að skýrslur Skál
holtsbiskups kynnu að vekja nýja
umhugsun hjá konungi og stjórn
hans um hið gamla sáttmálasam-
band við Grænland og þekking
gömlu Islendinga á landinu.
Árið 1670 sendir Kristján 5. dansk
an skipstjóra Otto Axelsen i Græn-
landsleit, en ekkert er til frásagn-
ar um árangur þeirrar ferðar, ann-
að en það, sem haft er eftir Dor-
móði Torfasyni, að hann hafi kom-
ist til landsins. En þegar Axel-
sen næsta ár kemur aftur úr ann-
ari Grænlandsferð segir sama heim
ild, að skip hans hafi verið skotið
í sökk fyrir Suðurnesjum af Hol-
lendingi, sem hefur þá líklega átt
að vera keppinautur hinnar dönsku
útgerðar, enda er einnig sagt, að
Danir háfi áður drepið nokkra
menn af hoilensku skipshöfninni.
Þessu næst kemur enn til sögunn-
ar Hollendingur einn, Jan de Brou-
ers, sem var þaulvanur norðurhafs-
ferðunf og er hann gerður út af
kaupmanni í Bergen 1673—11674 með
konunglegu leyfi; átti í þetta sinn
að gera tilraun til þess að láta
nokkra af skipverjum taka sér býli
í Græniandi. En skipið var her- •
tekið og de Brouers dó áður en það
var gefig iaust. Varð öll ráðagerð-
in þvi að engu, þar sem fyrirtækið
aðallega bygt á forustu og kunnug
leik Hollendingsins. Þetta er hin
Jpíðasta markverða tilraun undir
stjórn hinna dansk-norsku konunga
tii þess að endurfinna Grænland,
sem getandi er um á undan trú-
iboðsferð Egede prests. En sé litið
yfir undanfarandi siglingar, sem
hér er lauslega drepið á, er óger-
legt að setja nafn hans í samband
við ihina svokölluðu nýju uppgötv-
un landsins. Sá heiður verður
fyrst og fremst að eignast rit-
ment, fróðleiksást og siglinga-
dirfsku hinna fornu Islendinga og
síðan hinni voldugu framsókn Breta
til rannsóknar um norðurhöf.
Um hið annað framannefnda að-
alatriði máls, er til þess kemur að
meta söguleigt gildi þess sem eftir
Egede liggur í Grænlandi, sem sé
um tiiganginn með för hans til
landsins, virðist nægja að vísa til
hans eigin orða, jafnframt því sem
kunnugt er um hvatir þeirra sem
styrktu hann til ferðarinnar. i'yr-
ir Egede var trúboðunin frá byrj-
un .fyrirtækisins alt í öilu, og fyrir-
hinum' öðrum, sem studdu aðal-
lega að framkvæmdunum vakti
það fyrst og fremst að finna bæri
leyfar nýlendunnar ^íslenzku í
Austurbygð. Þessi ferð er því
ekki gerð í því skyni að nema land-
ið, né slá eign konunganna á það,
hvorki af hálfu frumkvöðuls ferð-
arinnar né fylgjenda lians — en slík
ur vilji þurfti að vera ráðandi til
þess að rætt gæti orðið um stofn-
un erlendrar bólfostu, á þann hátt
að nýlenda bygðist þar í bága við
hina eldri réttarstöðu landsins. En
vig þetta atriði kemur það enn-
fremur til greina, sem mestu uffl
veldur og er megingrundvöllur all-
ra sanngirnis og réttarröksemda um
stöðu landsins gagnvart Islandi á
eina hlið og erlenda konungsvalds-
ins á hina. Bannið gegn siglingum
til Grænlands jafnt af hálfu annara
þjóða, sem Dana og Norðmanna
sjálfra, heldur hlffiskildi yfir rétti
Islands, bæði gagnvart athöfnum
konunganna í Grænlandi og leyfis-
höfum þeirra.
Þegar Magnús Eiríksson konung-
ur sagði af sér völdum yfir Noregi
og Svíþjóð 1350, áskildi hann sér
tekjjurnar af hinum “norðlægu
skattlöndum”, þar á meðal af
Grænlandi. En 1348 hafði hann
lagt bann móti siglingum allra er-
lendra kaupmanna til þessara
landa. Ennfremur leiddi það |af
ákvæðinu um konungstekjurnar að
öðrum varð ófrjálst að reka verzl-
un við Grænland. Eirfkur af
Pommern ftrekar bannið tstrang-
lega gegn útlendingum 1425. En
hve ríkt það áttl einnig að gilda
(Eramhald á bls. 7).
LÆKNAR:
--------------------------------
Dr. M. B. Halldorson
441 Boyd Bldc.
Skrltetofuslml: A 3674.
Stusd&r sérstaklega lungnasjúk-
déma.
Br aS finna á skrlfstofu kl. 11—13
f h. og 2—6 e. h.
Helmlll: 46 Alloway Ave.
Talsiml: Sh. 3168.
Dr. A. Blöndal
818 SOMERSET BLDG.
Talsími N 6410
Stunldar eérhtaklega kvensjúk-
dójna og barna-sjiúkdóma. Að
hitta kl. 10—12 f.b. og 3—5 e.h.
Heimili: 806 Victor St
Sími A 8180 ... .. ...
Dr. J. Stefánssor
216 MBDICAIi ARTS BLD6.
Hornl Kennedy Off Graham.
Standar elngðiiKU anjfna-, eyrma-,
nef- og kverka-ajúkdðma.
AT5 hltta frft kL 11 tU II t k
og kl. 3 tl 5 e k.
Talatml A 3521.
Helmll 373 Rtver Ave. F. 2631
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor Graham and Kennedy Sts.
Phone: A7067
Viðtalstfmi: 11—12 og 1—5,30
Heimili: 723 Alverstone St.
WINNIPEG, MAN.
BETRI GLERAUGU GEFA
SKARPARI SJÓN
Augnlækmar.
204 ENDERTON BUILDINO
Portage anc, Ha.grave. — A 6645
1
Talsími: A 1834
DR. J. OLSON
Tannlæknir
Cor. Graham & Kennedy St.
216 Medical Arts Bldg.
Heimasími:B 4894
WINNIPEG — MAN.
Tal.fmtl AS8SS
Dr. J. Q. Snidal
TANNLŒKNIR
614 Someraet Block
Port&sc Ave. WINNIPB6
DR. C- H. VROMAN
Tannlæknir
Tennur yðar dregnar e8a lag-
acSar án allra kvala
Talsími A 4171
505 Boyd Bldg. Winnipeg
HEALTH RESTORED
Lækningar án 1 y f J a
Dr- S. G. Simpson N.D., D.O. D,C,
Chronic Diseases
Phone: N 7208
Suite 207 Somerset Blk.
WINNIPEG, — MAN.
/------------------------------------N
DR. ROVEDA M. T. D., M. E.,
SórfræSingur í fótaveiki.
Rist, il, hæl, táberg, etc., vís-
indalega, lagfærð og læknuð-
Líkþorn og innvaxnar neglur á
tám, skjótlega læknað.
Innsólar til stuðnings og þæg-
inda, búnir til eftir mælingu.
242 Somerset Blk. Phone: A 1927
u ...
Í3T L YFSALAR :
Daintry’s Druf Store
Meðala sérfræðingmr.
“Vörugæði og fljót afgreiðsla”
eru einkunnarorð vor.
Horni Sargent og Lipton.
Ptione: Sherb. 1166.
^ LÖGFRÆÐINGAR :
r~---------------------
Aral AidfrsoD B. P. GarlnBÍ GARLAND & ANDERSON LÖGFRÆÐIN GAR Phtíne t A-219T 861 Electrle Halluay Chambcni A Arhorg 1. og 3. þriðjudag h. wl
W. J. Lindal Ja H. Linda’ B. Stefánsson íslenzkir lögfræSingar 3 Home Investment Building, (468 Main St) Talsími A49Ó3 Þeir hafa einnig skrifstofur að Lundar, Riverton, Gimii og Piney og eru þar að hitta á eftirfylgjandi tímum: Lundar: Annanhvern miCvikudag. Riverton: í'yrsta fimtudag í hverj- un? mánuBL Gimli: Fyrsta Miðvikudag kver* mánaíar. Piney: Þriðja föstudag i mVnuði hverjum.
Talsímar: N 6215 og A 7127 Bonnar, Hollands & Philp, lögfræðingar. 503-4 Electric Raiiway Chambers WINNIPEG
ARNI G. EGGERTSON íslenzkur lögfraeðingur. hefir heinrild til þess aS flytja mál baeði í Manitoba og Sask- •tchevicui. Skrif«tofa: Wynyard, Sask. >- j
FASTEIGNARSALAR:
J. J. SWANSON & CO. Talsimi A 6340. 808 Paris Building, Winnipeg. F,lósábyrgðarumboðsmenr Selja og annast fasteignir, át- vega peningalán o. s. írv.
r Money to Loan. If you require a loan on your furniture, house or farm we can arrange for you such a loan. EXCHANGE House for farm or Farm for house Insurance of all kinds WM. BELL CO. Phone: N 9991 503 Paris Bldg., Winnipeg k »
MATSÖLUHÚS: *
WEVEL CAFE
Ff þú ert hungraður, þá komdu
inn á Wevel Café og fáðu þér að
borða. Máltíðir seldar á öllum
tímum dags. Gott felenzkt katfl
ávalt á boðistolum- Svaladrykkir,
vindlar, tóbak og allskonar swt-
mdi.
Mra. r. jacobs.
KING GE0RGE HOTEL
Eina íslenzka hóteliS í hnrnw
(Á homi King og Alexander).
Tk. BjanaiM
RáðswmtSur
BRAUÐGERÐARHÚS:
ISLENZKA BAKARÍIÐ
selur bestar vörur fyrir lægsta
verð.
Pantanir afgreiddar fljótt og
vel.
— Fjölbreyttast úrval —
BIFREIÐAR
TIL LEIGU OG SÖLU:
THE ARROW SERVICE
Við flytjum fólk og varning
hvert sem er
ÓDÝRAST
í borginni. — Reynið okknr-
Sími dag og nótt: J 5700
Vist á klukkutímann,
eða eftir samningum.
Homi Arlington og Manltoba
J. T., ráðsmaður-
D ubois Limited
EINA ÍSLENSKA LITUNAR-
HÚSIÐ I BÆNUM.
Sími A 3763—276 Hargrave
Alt verk fljótt og vel að hendi
leyst. Pöntunum utan af landi
sérstakur gaumur gefinn. Eini
staðurinn í bænum sem litar og
hreinsar hattfjaðrir.
Eigendur:
A. Goodman
R. Swanson
Dubofe Limited.
,-----------------------—j
Saml Strong
Endurskoðari reikninga.
Endurskoðar bækur verzlana og
annara félaga.
Phon® A2027—607 Lombard Bldg.
WINNIPEG.
riNNID MADAME REE
mestu spákonu veralðarlnnar — hún
segir yíur einmltt þati sem þér TtlJ-
US vlta f öllum málum llfslns, áat,
gtftlngu, fjársýslu, vandræöum. —
Sulte 1 Hample Block, 273M Portag*
Ave., nálægt Smlth St. Vlötalstimar:
11 f. h. til 8 e. h.
KomltS meö þessa auglýslngu— þatl
gefur yöur rétt tll aö fá lesln forlög
yöar fyrlr hálfvlröt.
CHARLES AUGER
hjá
Domminion Motor Co., Limited
Fort og Graham Str.
Ford og Lineoln bflar, Fordson
dráttarvélar
Brúkaðir bílar á sérstaklega lágu
verði.
T ALSÍMI: N 7316
HEIMASÍMI: N 1434
A. S. BARDAL
selur Itkklstur og annast um út-
fartr. Allur útbúnaöur sá beitl
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnlsvaröa og legstelna_:_:
843 SHERBROOKE ST.
Pbonet N 6607 WIIVlVIPBie