Heimskringla - 21.01.1925, Blaðsíða 1
VERÐLATJN GEflN FYKiK
OOUFONS OO UMBUÐIR
'♦
SendlV eftlr verfSlista tll Royal
Crowa Soap r>td., 654 Main St.
Winnipeg.
4 ■--'------~~-----------------
———— —
VERÐLAUN GEVIN FTRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
ROYAU,
CROWN
SendiS eftlr veríllsta til Royal
Crowa Soap l.td-, 654 Main St.
| Wlnnipeg.
XXXIX. ÁRGANGUR.
WINNIPBG, MANITOBA, MH)VI KUDAGINN 21. JANCAR, 1925.
NÚMiER 17.
GANADA
Fyilkisþinjg Man'itoba kom saman
s. I. fimtudag. Fór þingsetningin
fram meS mikilli viöhöfn, eins og
vanalegt er og fjöldi fólks var við-
statt. Áheyrendasætin voru öll tek-
ín og um 200 manns var komið fyr.
ír niöri í þingsalnum fyrir aftan sæti
þingmanna. Er þaö ávalt aö koma
betur og greinilegar í ljós, hve á-
heyrendarúmiö er takmarkað í þessu
nýja þitlighúsi. Fylkigstjó;ri ÍSir
James Aikins las hásætisræöuna eins
©g lög gera ráð fyrir. Er meðal ann.
ars minst á i hanni, að styrkja eftir
föngum þær iönaðar.tilraunir er
vniða að notkun náttúruauðæfa fylk-
ísrns og með því afla mönnum at-
vinnu. Einnig er þar minst á hag
fylkisins, og að tekjur og útgjöld
standist á svo skuldin hafi ekki auk.
íst Ennfremur er minst á að gera
þá breytinu á starfsárinu, að það
byrji 1. maí í stað 1. sept. Að öðru
leyti er óþarft að fara lengra út i
efni hástætisræðunnar, þvi um það
verður kapprætt á þinginu og verður
þess þá væntanlega getið. Til starfa
tók þingið ekki fyr en s. 1. mánu-
dagskveld, ert fréttir af því eru ó-
komnar þegar þetta er skrifað.
Blöð þessa bæjar hafa það eftir
borgastjóra Webb, er nýkominn er úr
ferð sunnan frá Chicago, að vinn-
andi vegur muni vera, að fá menn;
syðra til að setja hér upp sykurgerð-
ar.verksmiðju og hörklæða-verk-
stæði. Er einhvern gaum verið að
gefa þessu, og væri betur, að af
framkvæmdum yrði, því atvinnu
mundi það gefa mörgum.
Webb borgarstjóri í Winnipeg, sem
vakið hefir eftirtekt á sér fyrir til.
raunir sínar í þá átt að koma hlut-
unum hér á hreyfingu, vinnur nú
rösklega að því, að sem fyrst sé
byrjað á að leggja breiða götu (mall)
milli Broadway og Portage stræta.
Eru bæjarráðsmenn að þinga um
þetta á hverjum fundi. Hudson’s Bay
félagið gerir ráð fyrir að reisa
stórkostlegt verzlunarhús við skraut.
götu þessa unt leið og hún verður
gerð. Stórhýsi það er gert ráð fyr.
ir að kosti $5,000,000. Bæjarráðið er
þegar farið að finna þá að máli, er
íveruhús eiga þar sem götu þessa á
að leggja — til að fá vitneskju um
verð á eignunum. Ef til frant-
kvæmda keniur, gefur þetta fjölda
manns atvinnu.
Skrautgötur þessari likar, eru viða
í stórborgum, og . þykir hin ýnesjta
bæjarprýði af þeim. Oft er þak yfir
þeim og meðfram þeim eru aldrei
nema vegelg og vönduð hús reist.
Hvað sem kostnaði verks þessa líð-
ur, er það víst, að skrautgatan lyft.
ir og hefur borgina í áliti.
Úr bænum.
Ritstjóri ‘‘Heimskringlu”, Sigfús
Halldórss frá Hiöfnum, sem skorinn
var upp á Misericordia sjúkrahúsintt
5. þ. m., er nú korninn heirn og heils-
ast ágætlega.
Hr. Einar Hr Kvaran rithöfundur
Rom heim s. 1. þriðjudag úr fyrir.
lestraferð sinni um Vatnabygina.
Vegna lasleika, sem óblíða veðurs
var eflaust orsök að, treysti hr. Kvar.
an sér ekki til að iflytja fyrirlestra í
Leslie og Churchbridge, eins og á-
kveðið var. Á þeim stöðum sem hann
hélt fyrirlestra, var honium og erindi
lians fagnað mjög. Séra R. E. Kvar-
an var með föður sínum í ferðinni.
Séra Rögnvaldur Pétursson, kona
bans og mágkona, sem til Kandahar
fóru, til að vera við útför Mrs. Guð-
rúnar Kristjánsson, tengdamóður
séra Rögnvaldar, komu aftur til bæj-
arins um helgina.
Mr. Fred Swanson hlaut ullar.
teppið við happadráttinn á spilafund-
inum í samkomusal Sambandskirkj-
unnar í vikunni sem leið.
Hr. Pálmi M. Sigurðsson, sem við
smíðar hefir unnið í Chicago undan.
farið og til bæjarins kom fyrir rúm-
um mánuði, lagði aftur af stað suð-
tir í morgunn, og býst við að stunda
þar smíðar framvegis. Kvað hann
nokkur stórhýsi verða reist í Chicago
á komandi sumri.
Hr. Júlíus Jónasson og Chris And-
erson, til heimilis í þessum bæ, lögðu
nýverið af tað suður til Chicago og
stunda þar smíðavinnu. Þeir hafa
báðir verið þar síðastliðið ár, on komu
heim um hátíðirnar; eiga því vinn.
una vísa.
Annað tölublað “Freys” er ný.
komið út. Fyrsta tölublaðið mælti
hvarvetna sem það var lesið, með sér
sjálft. Þetta tölublað mælir með
framtið “Freys”, því eftir að hafa
kynst því munu fáir vilja án hans
vera.
“FR Ö NS”-F UNDUR
næsti,’ verður haldinn á tnánudags-
kveldið kemur, 26. janúar, í neðri sal
G. T. hússins, hinurn ný.fágaða, og
byrjar stundvislega kl. 8.30.
Skemtiskráin verðttr aðallega uni
hið sextuga höfuðskáld Islendinga,
Einar Benediktsson. Erindi flutt um
hann af síra H. J. Leó, og kvæöi
hans lesin. Auk þess verður söngur
góður. — Að skemtiskrá lokinni verð-
ur nefnd kosin til að sjá um Miðs-
vetra.mótið. — Fjölmennið — fyllið
húsið-
Jóns Sigurðissonar félagið hefir
efnt til samkomu í Fyrstu lútersku
kirkjunni miðvikud. 28. janúar. Miss
Ttna Sutherland les þar upp kafla úr
píslarsjónleikjunum frægu, sem sýnd
ir eru í Oberammergau á Þýzkalandi
tíunda hvert ár, og sýnir hún mytndir
til skýringar efninu. Miss Suther-
land er hvarvetna annáluð fyrir
framsagnat'-list sína og ættu íslend-
ingar ekki að neita sér um þá ánægju
að hlýða á hana og fræðast um efni
upplestursins
Látið ekki hjá líða, að fjölmenna á
“Fróns”.fund næstkomandi mánu.
dagskveld. Fundurinn verður helg-
aður sextugsafmæli H\nars skálds
Benediktssonar. —
FYLLIÐ HÚSIÐ!
----------x------------
Ný Jb6k.
Hundrað bestu ljóð á ísl. tungu,
heitir bók, sem nýlega er komin út
og mönnum mun verða kæfkomin.
Jakob J. Smári hefir safnað kvæðun.
um. I formálsorðum bókarinnar segir
hann svo, meðal annars, um val
kvæðanna. — “Ætlun min var sú, að
fara einunigis eftir sk;)!dslslnpargildi
um val á kvæðunum, en með orðinu.
skáldskapargildi á ég við lífs- og
listagildi sameinað, — hve vel færð-
ar eru í skáldlegan búning, list-
rasnt snið, eilífar tilfinningar manns.
andans gagnvart tilverunni og fyr.
irbærum hennar”.
Fyrsta kvæði bókarinnar er úr
Völsungakviðu hinni fornu (Sótti
Sigrún sikling glaðan o. s. frv.) en
síðasta kvæðið er eftir Jórvas heitinn
Guðlaugsson (Mig langar—). Nokk.
ut' kvæði eru tekin eftir núlifandi
höfunda, þó að það muni ekki tíðkast
í samskonar bókum erlendum, og seg-
ir safnandinn, að sér hefði þótt
verða of stórt skarð fyrir skildi, ef
þeint væri slept.
Skiftar munu skoðanir manna
verða um val stöku kvæða, en um all-
an þorra kvæðanna er það að segja,
að þau eru alveg vafalaust með allra
bestu ljóðum, sem til eru á íslenzka
tungu, og ekki mimidi auðgert að
safna öðrum 100 ljóðum jafngóðum.
— Visir.
------0-------
Hörmuleg slys.
ÁTTA MENN DRUKNA VIÐ
LAND f VESMANNAEYJUM.
[Reykjavfk 17. «le»ember 1021.]
Þann 16. desember s. 1. vildi það
hörmulega slys til við Vestmanna-
eyjar, að bát hvolfdi þar skamt und-
an landi og fórust 8 menn, en einum
varð bjargað. Báturinn var að fara
út í Gullfoss með héraðslækni Hpll-
dór Gunnlaugsson, og fórst hann þar
eftir mikla sundraun, ásamt sjö mönn
um öðrum, en þeir vortt þessir:
Ólafur sonur Gunnars konsúls ÓL
afssonar, mesti efnis maður.
Bjarni Bjarnason frá Hoffelli,
formaður, lætur eftir ig ekkju og
þrjú börn.
Bræðurnir Snorri og Guðmundttr
Þórðarsynir, báðir kvæntir og áttu
3 börn hvor. t
Kristján Valdason, ókvæntur.
Guðmundur Guðjónsson, ókvæntur.
Guðmundur Eyjólfsson, lætur eft-
ir sig ekkju og mörg börn.
Allir vóru menn þessi hinir mestu
dugnaðarmenn og sægarpar.
Mikið brim og hvassviðri var í
Vestmannaeyjum síðdegis í gær og
hafði báturinn lagt frá Eiðinu, en
hvolft rétt- fyrir utan lendingu og
horfðu margir á það úr landi en
fengu enga hjálp veitt. Slysið sást
og frá Esju og þaðan var sendur vél-
bátur til hjálpar. Tókst honum að
bjarga einum manninum Ólafi Vil-
hjálmssyni frá Múla. Læknirinn
hafði haldið sér upp á sundi,
en var meðvitundarlaus er hann náð-
ist, og andaðist skömmu siðar. —
Fimm lík hafði rekið skörnmu eftir
slysið.
Hjalldór læknir Gunnlaugsson var
49 ára gamall og lætur eftir sig
ekkju og 4 börn.
TVO BÁTA VANTAR.
Vélbáturinn “Von” fór héðan til
fiskjar snemma i gærmorgun og
hafði ekki spurst til hans um hádegi
í dag. Veður var hvast síðdegis í
gær, með dimmviðri, en þó gæti bát-
urinn hafa afborið veðrið og borist til
hafs. Er nú verið að fá skip til að
leita hans. Sex menn munu vera á
bátnum, og eru þessir nafngreindir:
Markús Jónsson og Jón bróðir hans
og Rósenkrans Ivarsson. — Vélbát
vantar og úr Vestmannaeyjum. Var
hans leitað í gær og dag, en var ó-
fundinn, er siðast fréttist.
BÁTUR FERST, AF SKAGA-
STRÖND.
TVEIR MENN DRUKNA.
[ Akuroyri 20. deacvnber 1024.]
Róðrarbátur frá Skagaströnd hefir
farist. Tveir bátsverjar druknuðu,
en einum var bjargað. Hinir drukn.
uðu hétu Valdimar Benediktsson,
kvæntur, og Sigurjón Sigvaldason, ó-
kvæntur; báðir á besta aldri.
SLYS.
[Heykjnvlk 21. denember 1024.]
Maður slasaðist nýlega á botn-
vörpuskipinu Þórólfi og andaðist
nokkuru síðar, er hann hafði verið
fluttur til Flateyrar. Hann hét Da.
við Guðmundsson og átti heima á
Grettisgötu 20.
MANNSKAÐINN MIKLI VIÐ
ÍSAFJARÐARDJÚP.
[fsaftrbi 22. denember 1024.]
Fullvíst er, að vélbátarnir Leifur
•og Njörður hafa farist. Botnvörpu.
skip hefir fundið lík eins skipverjans
af Leif.
Þessir voru skipverjar á Leif:
Jón Jónsson, skipstjóri, ísafirði;
Páll Guðmundsson, stýrimaður,
Súgandafirði;
Eirikur Guðmundsson, vélstjóri,
Isafirði;
Hilöðver Sigurðsson, Súgandafirði;
Karl Clausen, Hnifsdal,
Guðmundur Benediktsson,
Brynjólfur Friðriksson,
Páll Guðmundsson,
iMagnús Dosóþeusson,
Guðmundur Þ. Jónsson,
Enok Jónsson,
Magnús Firðriksson,
allir úr Aðalvik.
Skipshöfn Njarðar var þessi:
Jónatan Björnsson, skipstjóri;
Adolf Jakobsson, stýrimaður;
Ásgeir Þórðarson, vélstjóri;
Jakob Einarsson,
Sturla Þorkelsson,
Jakob Kristmundsson,
Jóhann Hall Sigurðsson,
Maríanus Gunnlaugsson,
allir frá Isafirði;
Jens Jónsson, Bolungavik,
Jónas Helgason, Bolungarvík og
Þorgeir Guðmundsson.
------0------
Island í lifandi myndum
'Eins og mörgum er kunnugt, hef-
ir hr. Loftur Guðmundsson starfáð
að því síðan í fyrra, að gera kvik-
mynd af ýmsum atriðum úr atvinnu.
lífi þjóðarinnar, vinnubrögðum o. fl.
Kvikmvnd þessi er nú fullger og
verður sýnd i Nýja Bíó innan skams.
I fyrrad. var myndin reynd hér, og
bauð Loftur nokkurum gestum á sýn-
ipguna. — Er það skemst af mynd-
inni að segja, að hún virðist ágætlega
tekin og vel til hennar vandað á all-
an hátt. — Má það teljast hin mesta
furða, hversu vel myndatakan hefir
lánast, þegar þess er gætt, að L. G.
mun lítillar tilsagnar hafa notið, enf
orðið að fika sig áfram á eigin hönd
og læra af reynslunni. — Myndin
skýrir aðallega frá atvinnuvegum
þjóðarinnar og vinnubrögðum, bæði
við landbúnað og sjávarútveg.
Frá landbúnaðinum eru sýndar
ýmsar hreyfimyndir, svo sem slátt-
ur, heyþurkur, heyband, heylest o. fl.
— Útskipun á hestum, mjöltun á
kúm, strokkun, réttafé og réttalíf,
lambfé að vorlagi o. fl.
Þá eru sýndar þarna myndir af
botnvörpungaveiði, bæði þegar varp-
an er innbyrt og af ýmsum vinnu.
brögðum í skipunum, síldveiði, snld-
arsöltun, fiskþvotti, fiskþurkun og
öðru slíku.
Auk þessa eru margar fallegar
landslagsmyndir og myndir af merk.
um stöðum. Mynd af Reykjavík,
þvottalaugunum, mörgum kauptúnum
úti um land, sigi i fuglabjarg í Vest-
mannaeyjum o. s. frv. — Loks er
þarna mynd af konu í íslenzkum há-
tíðabúningi pg mörgum ungurn og
laglegum stúlkum.
Mynd þessi verður eflaust hin besta
augHsing fyrir landið og atvinnu-
veg þess með öðrum þjóðum, því að
vafísamt rná telja, að hún fari víða
ttm Jieim.
, £ — Vlstr.
Fréttabréf.
Point Roberts, Wash.
15. janúeir 1925.
Herra ritstjóri!
Þegar ég heyri talað um góða
gesti að heiman og sé í blöðunum, að
slíkir ætli að tala við fólkið eitthvert
kveldið þar í Winnipeg, þá finn ég
til þess, hve langt eg er í burtu frá
slíkri nautn sem það er, að hlusta
á góðan ræðumann. Fæstir af þeim
koma hinigað vestur, og þó þeir
komi í stórborgirnar, þá skilja þeir
tangan venjulega eftir, nema séra
Kjartan og iprófessor Sveinbjörns-
son. En svo munu þeir nú vera
þeir geymilegustu sem hingað á
ströndina hafa komið af góðum
gestum”, að heiman. Og sannarlega
búuni við lengi að komu þeirra.
Nú er einn nýkominn að heiman,
sem ekki er minst um vert. Hve
víða skyldi hann ætla sér að ferðast
um bygðir íslendinga? Margan
myndi langa til að sjá hann og heyra,
þó flestir hafi eitthvað eftir hann
lesið,; einmiitt fyrir lesturinn getur
maður ekki gleymt manninum, Ein.
ari H. Kvaran. Bækur hans eru ó-
gleymanlegar, eins og “Nýall” eftir
dr. Helga Péturss.
Jæja, þetta var mér fyrst í hug,
þegar ég tók pennan til að skrifa
eitthvað og senda ritstjóra “Heims.
kringlu”, sem nú er talinn bezti rit.
stjóri hennar það sem af er tuttug.
ustu öldinni. En svo verður að
bæta einhverju við, og þá er að
minnast á sveitina og sambúðina.
jSveitin er nú fremur smá, en fög-
ur, og sambúðin bara blátt áfram
ástúðleg. Maður er i einlægum
heimboðum, þar sem manni er
skemt eftir beztu föngum og síðan
veittar svo miklar góðgerðir og Ijúf
fengar, að maður kann sér ekki hóf
og étur helst til mikið. En það er
ekki talið siðlegt í þessari bygð, að
gera ekki ljúffengum réttum góð
skil, svo gamanið getur stundum
gránað út af þessu.
Gleðimót af ýrnsu tagi eru hér
oft fyrir utan hin reglulegit heimboð
svio Nem aftnælisveizlur; það
heyrir til blesstiðum konunum, sem
altaf eru að hugs um að láta fólk.
inu liða vel í rúmunum, spilagildi,
sönjgæfingar og bændafélagsfunldir.
Á þessu má sjá, að það er talsverð
gleði hér á ferðum, enda liður fólk-
inu vel. Má heita, aðbifreið sé i
hverju húsi, svo ekki þarf að vera
að ganga. Bifreiðaslys eru hér fá-
tið. Einn maður lenti í dálitlum æf-
intýrum með bifreið sina. Hiann
mætti kú einu sinni á brautinni, sem
hann sagði, að ekki hefði kunnað
| neinar keyrslureglur, svo hann varð
að keyra yfir hana. Kýrin meiddist
og beið bana af. í annað sinn steypt
ist bifreið hans kollhnýs, og fengu
þeir sem með honum voru talsverð-
ar rispur; en bifreiðin liðaðist sund
ur og varð eigandinn að fá sér aðra.
Þó þetta væri vítaverð ógætni, þá
þögðu menn samt um það við lög-
regluna. Síðan þetta var, hefir hinn
sami ekki orðið fyrir nein,u sliku. Er
jafnvel haldið, að athafnir hans séu
minna brjálaðar en áður, og er von.
1 andi að það haldi áfram að vera svo.
Nýlega höfum við fengið hreyfi-
myndavél, sem íbúarnir keyptu sjálfir
Þurfum við nú ekki að fara til ann.
ara staða, til að sjá góðar hreyfi.
myndir. Og innan skamms búumst
við við að fá hér daglegan póst, og
þegar það er fengið, þá erum við
eins vel í sveit settir, eins og hinir
mennirnir, en höfum fegurðina og
hreina loftið fram yfir ntarga aðra
staði.
Nú hafa menn breytt hér nokkuð
um búnaðarhætti; þannig: fækkað
kúm en komið upp hænsnum; þykja
hænurnar borga sig betur. En þá
þurfa menn ekki eins mikið land,
því hænsnarækt getur þirfist vel á
fáum ekrum, og nú ætla niokkrir hér
að færa út kvíarnar að mun næsta
ár. Landið hér á tanganum er eitt-
hvert hið ákjósanlegasta, sem til
þekkist fyrir hænsnarækt. Landinu
hallar öllu á móti sól og suðri, og er
hátt og þurt. Nú eru sumir að tala
um, að selja sneið af löndum sínum,
og vildu víst felstir að Islendingar
keyptu. Islendingar eru hér í meiri
hluta, og það vonum við að verði í
framtiðinni. Annars gæti ég trúað,
að tanginn yrði allur eign Islendinga
í framtiðinni. Þið, sem í kuldanum
búið austur í Sask., eða Manitoba,
og hugsið til að færa ykkur í hlýj-
ir.din á Kyrrahafsströndinni, skoðið
Point Robert áður en þið setjist að
annarstaðar. Það eru fleiri matar-
holur hér en menn sjá svona fljótt á
að lýta, og ágætt fólk, sem er fult
af hljálpfýsi ef einhver rekur upp á
sker.
Annars er sveitabragurinn góður,
eins og sést á hinum mörgu og tíðu
skemtana.mótum, að ógleymdum
lesitrafélagsfundum og pamkomum
sem það kemur á stað stundum.
Nokkrir ungir menn hafa gengið
mentaveginn hér, skal ég fyrst nefna
Björn Samúelsson. Hann er ný.
kvæntur konu af rússneskum ættum.
Þau komu hingað siðastliðið haust
og dvöldu hér nokkurn, tíma. Héldu
þau til hjá Jónasi Samúelssyni föður
Bjarnar. Björn er mesti myndar.
maður, og vel mentaður, eins og
framkoma hans ber með sér. Kona
hans er einnig vel mentuð og mjög
Ijúfmannleg í allri framkomu. Þau
héldu hér “Concert” áður en þau
fóru. Var það ljómandi skemtilegt.
Prófessor Samúelsson cr enn að
inentast, og sömuleiðis frú hanls.
Annar ungur maður, héðan af
tanganum, Sigurður Magnússon, er
útlærður. tannlæknir, og tekinn til
starfa. Hann hefur sett sig niður
hér á ströndinni í Washington-fylki.
Hann er efnilegur maður og dreng.
ur hinn bezti. Gæti ég trúað honum
til að vera vægur við hina fátækari.
Sigurður er nýkvæntur konu af hér-
lendum ættum. Báðir þessir menn,
sem nú voru nefndir, hafa kostað sig
sjálfir að öllu leyti.
Þriðji maðurinn er á leiðinn til
menta. Það er Eggert Burns. Hann
er efnispiltur og fullur af fjöri, og
líklegur til að verða að liði, og þjóð-
flokki sínum til sóma. En svo eru
margir ungir menn hér mjög efn’ileg-
ir, sem eru nú þegar í ýmsum trún.
aðarstörfum. Steinn Thorsteinsson
er póstafgreiðslumaður. Hann er
kvæntur. Mjög liðlegur og ábyggi-
legur. Laugi og Jónas Thorsteins-
synir eru í foreldrahúsum. Laugi er
kapteinn á skipi, sem fiskifélagið A.
P. A. á, og bróðir hans, Jónas, vél-
stjóri á sama skipi. Báðir eru þeir
efnilegir og velgefnir menn. Þá má
minnast á Gísla Thorleifsson John.
son. Hann er formaður fyrir fiski-
félag hér á ströndinni. Hjann er
harðduglegur maður, og trúr og hef-
ur gott orð á sér, fyrir að vera stöðu
sinni vaxinn.
Að lokum vil ég minnast þess, að
ég hefi haft regulega nautn af, að
lesa ræður sira Ragnars E. Kvaran,
sem birtar hafa verið í “Hjeims-
kringlu”. Vildi ég óska þess, að
“Heimskringla” j '.fengi að f.ytja
fleiri af ræðum hans. Sömuleiðis
ánægjulegt að lesa það sem birst
hefur í blaðinu eftir Dr. Hegla Pét-
urss. Eg vona ritstjóri góður, að
þú haldir áfram að birta greinar eft-
ir hann, ef tök eru á því. Það myndt
auka kaupendafjölda blaðsins Ihér
vestra, en aftra mönnum frá að kaupa
blaðið, ef margar Lalla greinar væru
teknar upp í það!
Með vinsemd.
Ingvar Goodman.
-----0------