Heimskringla - 28.01.1925, Blaðsíða 2
2. BLAÐSEÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 28. JANUAR 1925.
Áhrif geðshrœr-
inga á líkamann.
Eftir GuSmuná Hannesson.
Engum getur dulist þat5, atS tilfinn.
ingar hafa allajafna mikil áhrif á
líkamanai. Þannig verkar gleSin ber.
sýnilega örvandi og fjörgandi, gerir
•nenn létta í spori og liöuga í máli.
Aftur er eins og sorgin leggi þungt
farg á mennina, — þiWgt sem blý —
dragi úr þeim alian mátt og geri þeim
allar athafnir erfiðar. Þetta er al-
kunna, en aftur er þaö afarerfitt aö
gera sér Ijósa grein fyrir, hversu
líöan líkamans hefir áhrif á tilfinn-
ingarnar og þær aftur á líkamann og
starfesmi hans. Fjöldi vísindamanna
hafa reynt til aö ráöa þessar og þvi.
iíkar gátur og mikið hefir þeim oröiö
ágengt, þó margt sé enn i þoku hul-
ið.
Ein af bestu og skemtilegustu bók.
nnum um þetta efni er eftir Walter
B. Cannon, háskólakennara í Har-
vardháskóla í Ameríku. Hún heitir
Líkamlegar breytinigar viö sársauka,
hungur, hræöslu og reiði, og kom út
1920. Segir höf. þar bæöi frá sin.
um rannsóknum og annara og dregur
af þeim margvislegar ályktanir, sem
ég hygg aö ýmsum þyki fróðlegt aö
kynnast.
Áhrif tilfinninga á mcking-
arfœrin.
Ef svangur maður finnur lykt af
góöum mat og fer aö hugsa um
kræsingarnar, fer flestum svo, aö
“vatnið kemur í munninn á þeim".
Vatniö, sem fyllir munninn, kemur
úr munnvatnskirtlunum, og þeir fara
þá af staö við lyktina og ílanganina
eina. Þaö er þá ekki undarlegt, þó
þeir taki kappsamlega til starfa, þeg.
ar maturinn kemur i munninn og
góöa matarbragöiö bætist við ilm.
inn af réttunum. Þaö kemur sér lika
vel, aö munnvatniö skorti þá eigi, því
bragö finst ekki af neinu sem ekki
er uppleyst í vatni og auk þess gæti
enginn rent niöur þurrum matn-
um. Munnvatniö bleytir fæðuna,
leysir ýms efni upp svo bragöiö
finst, og gerir matinn sleipan og
auöveldan a*Ö 'renna niður. Svo bæt.
ist það viö, að í þvi er efni, sem breyt
ir mjöli í sykur, svo meltingin hefst
undir eins í munninitm, meðan mat.
urinn er tuggirtn. Alt þetta breytist
stórlega viö sterka geðshræringu t.
d. hræðslu og reiði, Það er eins og
munnurinn þorni þá upp og tuggan
tolli viö góminn. Á þessu byggist hiö
svonefnda hrísgrjónapróf Indverja,
sem notað er til þess að finna, hver
sé sá seki, af mörgum grunuðum.
Þeir létu þá hvern fyrir sig tyggja
hrísgrjón stutta stund, hrækja þeitn
síöan út úr sér og töldu þann sekan,
sem hrækti grjómnnittm hál fþurrum
út.
Ur því tilfinningar hafa slík áhrif
á munnvatnskirtlana, er ekki ólíklegt,
að svo kunni og að vera með önnur
meltingarfæri. Þaö er aö minsta kosti
auðséð, að erfitt muni vera aö renna
niöur, ef maturinn blotnar illa í
munninum og munnvatnsins nýtur
ekki til þess að gera hann sleipan.
Rússneski vísindamaðurinn Paw.
low o. fl. hefir rannsakað, hversu
maganum sjálfum brygði við. Hann
breytti maganum á tilraunahurtdum
þannig, að úr nokkrum hluta hans
geröi hann lítinn tilraunapoka, og lá
lítið gat inn í hann í gegnum mag.
álinn, en meginhluti magans var
saumaðttr aftur saman, svo að ltann
komst í sitt fyrra lag, þó minni
væri. Dýrið hafði þá einskonar atika
maga, sem engin fæða komst í og
alla starfsemi hans mátti auðveldlega
athuga gegnum gatið á magálnum.
Nú var séð um, að allar æöar og
taugar aukamagans væru óskaddaðar
og mátti því gera ráð fyrir, að hann
starfaðf að öllu eins og aðalmaginn,
sem melti fæðuna. Á sumum dýr.
unum breytti hann líka vélindinu
þannig, að það opnaðist á hálsinum
•og maturinn, sem dýrið rendi niður,
gekk út um opið og komst þá ekk.
ert af honum niður t magann. Það
kom nú í ljós, að óðar en hundurinn
sá kjöt eða fann lykt af því, fór
magasafi að streyma úr aukamagam:-
um, og þá ekki síður, ef hundurinn
fékk aö éta kjötiö, sem annars fór út
um opið á hálsinum og komst aldrei
í magann. Kirtlar magans störfuðu
þá bersýnflega á sama hátt og munn
vatmskirtlarnir. Þaö þurfti ekki
annað en lyktina og ílöngunina til
þess aö koma þeim af stað. Og þeir
héldu nokkurn tíma áfram aö starfa,
úr þvi þeir tóku til. Þó hundurinn
æti aðeins í 5 mínútur hélt safinn á.
fram aö streyma í 20 minútur. Sé nú
aftur eittíhvað tuggið eðaí^iö'y, sem
enginn matur er í, eöa ekki vekur
neina matarlyst, þá myndast enginn 1
magasafi, eða sárlítill. Athuganir á j
mönnum meö gati á maganum koma '
algerlega heim viö þetta. Tilraunir
þessar sýna þaö ljóslega, hve mikils
þaö er vert, aö maturinn sé lystugur,
vel tilbúinn og vel fratríleiddur, því ^
svo best kemur hann aö fullum not. ,
um, að allir meltingarsafar séu nægi. \
legir, þvi það eru þeir, sem leysa
fæðuna sundur og breyta henni í efni ,
sem geta streymt gegnum slímhúð
meltingarfæranna og komið líkaman.
um að notum.
Pawlow reyndi síðan að setja kött
ion til hundsins, áður en honum var
gefiö aö éta. Hundurinn varð óð-
ur og uppvægur, er hann sá köttinn,
en jafnaði sig fljótlega aftur, er
kötturinn var tekinn burtu. Síðan var
hundinum gefiö áð éta. Þá brá svo
við, að þótt hundurinn væri hungr.
aðttr og gleypti t sig matinn, þá mynd
aðist sárlitill magasafi. Væri hund.
hundurinn aftur byrjaður aö éta og
magasafi tekinn aö streyma, þegar
köttur var settur inn tiV hansi, þá
hætti magasafinn óöara aö streyma
og náði sér ekki aftur, fyr en eftir
15 mínútur. Eins hefir þetta reynst
á börnttm, sem reiðast, meðan þau
ertt að borða. Það er þvi auðsjáan.
legt, að sterkar geðshæringar kippa
úr starfsemi meltingarkirtlanna engu
siöur en munnvatnskirtlariina. Það
hlýtur þvi að vera hollast að skifta
ekki skapi sinu rétt áður en maður
borðar eða meðan máltíð stendur
yfir.
Jafnframt því sem meltingarsafar
myndast og breyta fæðnnni á ýmsan
hátt, starfa vöðvarnir í ntaga og
görnum að því að flytja hann niður
tneltingarfærin. og þessi starfsemi
et' jafn.nauðsvnleg og hinu Skyldu
nú geöshræringar verka líka á hr>vf.
ingar þessar, eins og meltingarkirtl.
ana? Þetta má auðveldlega sjá með
Röntgengeislunum. Cannon fann, að
óöara en dýrið reiddist, slakaöi all-
ur maginn og hreyfingar hans hættu,
jafnvel heila klukkustund eöa leng.
ttr. Fæðan sat þá auðvitað hreyf.
ingarlatts allan þennan tíma. SvipaÖ
hefur líka kornið í ljós með garnirn.
ar. Dýrin ertt þá í rattn og vertt all-
lengi að ná sér eftir geðshræring.
una. A sama hátt gengur þetta með
menn. Kona ein, viðkvæm í skapi
og geörik lét t. d. 1ækni rannsaka
meltingu magans aö morgni dags og
kont þá í Ijós, að bæði voru miklat/
leifar í magantim af kvöldmatnum
frá fyrra degi, og að saltsýruna, sem
á að vera í magasafaTntm, vantaði
álgerlega. Daginn eftir var maginn
rannsakaðtir á sama hátt, og þá
reynidst alt vera í bezta lagi. Orsök
þessa var sú, að í fyrra sinnið hafði
maður konunnar kontið drukkinn
heim utn kvöldiö og konan tekið sér
það mjög nærri, en i síðari sinnið
lék alt í lyndi. Það var geðshræring.
in. sem hafði truflað algerlega melt-
ingttna. Eftir þessti má geta nærri,
að skapbrigði og hverskonar óstilling
geta vaklið alls konar sjúkdómsein.
kennum í meltingarfærunum, og vilt
læknana, ef þeir gá ekki því betur að.
i Margir vilja því skfella skuldinni á
skapið og taugakerfið í fjöldanum
öllum af meltingarkvillum.
Þrautir og sársauki hafa svipttð á.
hrif og fyr er sagt um hræðslu og
reiði. Metlingarkirtlar hætta starfa
og hreyfittg innýflanna truflasit,
hverfur ■ eða getigur óreglulega.
Sterkum höfuðverk fylgir t. d. oft
og einatt ógleði eða uppsala. Hreyf.
ing magans verður þá öfug við það,
sem vera ,skyldi. Áhrif sársaukansi
geta haldist margar klukkustundir,
eftir að hann er genginn um garð.
Ahrif tilfinninga á blóðið.
Menn hafa komist að því, að jafn
vel blóðið breytist að nokkru við
geðshræringar og á þann hátt, að
meiri sykttr kemur í það en eðlilegt
er. Aukist sykur t blóðinu, svo nokk.
ru verulegu nemi, kemur þaö í ljós,
meðal annars, aö sykur kemur líka í
þvagið og má verða þess vart með
einfaldri þvagrannsókn. Þannig hafa
menn fundið, að sykur kemur mjög
oft í þvagið hjá stúdentum, þegar
þeir taka próf, þó ekkert hafi borið
á því á undan eða eftir. Sama hefir
fundist á iþróttamönnum við kapp-
leiki, ef mikið kapp hefir veriö í
leiknum. En auöveldara er að at-
huga þetta á dýrum. Þannig var t.
d. reynt að gera ketti reiða, með þvi
að láta hunda gelta að þeim, og
reyndist þá á 12 köttum, aö sykur
kom í þvagið á öllum eftir þessa
meðferð, en hans varð hvorki vart á
undan né eftir. Jafnvel það eitt aö
binda dýrið, þó vel fari um það að
öllu, nægir til þess að sykur komi í
þvagið, svo framarlega sem það
lætur sér ekki algerlega á sama standa
um heftinguna. Dæmi eru og til
þess, aö hrein sykursýki með sífeld.
um sykri í þvaginu, hefir brotist út
eftir ákafa hræöslu eða geðshrær.
ingu. Þá geta þrautir og sársauki
haft sömu áhrif og valdið sykri í
þvaginu.
En til hvers er þá sykur í blóðinu
og hverja þýöingu getur það haft,
að hann aukist? Þessu má svara á,
þá leið,, að blóðsykurinn er aðallega
notaður af vöðvum líkamans og úr
honttm fá þeir afliö við allskonar
vinnu og starf. Hann er þeirra elds
neyti. Eftir því sem sykur eykst í
blóðinu, hafa vöðvarnir úr meiru að
spila og eru betur búnir en annars
undir skyndilegt erfiöi.
Þá hafa menn og orðið varir við
aðra kynlega breytingu á blóðinu
við hræöslu, reiði og sársauka.
Skömmu eftir að geðshræringin
hefst, kemur það í Ijós, að blóðið
hleypur eða storknar hálfu fyr en
annars og er með þessum hætti hálf
klukkustund eða lengur, eftir að
geðshræringin er gengin um garð.
Þetta stafar ekki af því, að sykur
jókst í blóðinu, svo einhverjar frek.
ari breytingar hafa hlotið að verða
á þvi.
þetta nánar og reyndist honum, aö (
allar geöshræringar, sem hafa i för
meö sér lönigun til starfs og hreyf.
inga, t. d. reiöi, auka blóöþrýstinginn
og veita blóöinu úr innýflum, hör.
undi, hálsi og ytri pörtum höfuösins,
út í útlimi, heila, lungu og hjarta.
Jafnvel hugsunin ein um hreyfingu
og athafnir, eöa starfsvilji, nægir til
þess að breyta æðunum þannig í
skjótri svipan, þó maður hræri
hvorki legg né lið. Hiann fann einn.
ig, að ákveðin svæöi í heilanum
stjórna þessum breytingpim og frá
þeim gerast aðallega áhrifin eftir
hnoöa. og innýflataugunnm til líf.
færanna víösvegar um Hkamann. Alt
æðakerfið er þvi á sífeldri hreyfingn
eftir því sem skapið breytist.
Áhrif á augun.
Augun taka ýmsj,tm breytingulm
við geðshræringar. Allir sjá aö
augnaráðiö breytist óöara, svo aö
það eitt er oft ljós vottur um skap.
brigði, en erfiðara er að gera sér
ljóst, í hverju breytingin sé fólgin.
Sagt er, að augnrifán stækki nokkuð
og er sem augnalokin herpist dálítið
saman. Þá stækkar lósjopið í lit.
himnu auganis og að lokum er sem
augað sjálft ýtist fram á við, eins og
kemur fram í orðtakinu: að “augun
ætli út úr höfðinu” á reiðum manai.
Þaö er eins og þessar breyiin,gar
miði bæði að þvi, að gera dýrið eða
manninn ægilegri, og að hann sjái
betur. Þegar ljósopiö er Htið, skýlir
dökk lithimnan viðvæntri sjónhimn.
unni. Vig geðshræringuna er skýl-
umni svift hlíföarlaust burtu, svo
ljósiö geti falliö sem mest inn í aug.
aö.
HjatHa og aðar.
Ekkert segir fljótar til skapbreyt.
inga en hjartað og æðarnar. Menn fá
meiri eða minni hjartslátt við ákafa
geðshræring, og er þá eins og hjart.
að hamist við sína erfiðu vinnu.
Ekki leynir það sér heldur, hversu
menn stokkroðna við feimni, blygð-
ur. o. þvíl., en geta aftur orðið *á-
fölir af reiði. SHkar litarbreytingar
stafa af því, að vöðvarnir í æöum
hörundsins dragast saman, svo þær
nálega Iokast, eða þá slakna og þenur
þá blóðið æðarnar út, svo hörundið
roðnar. Með sérstökum rant^sókn.
um hefir þaö fundist, að æðarnar í
ýmsum liffærum þrengjast eða víkka
mjög mismunandi við geðshræringar.
Þannig ber langmest á samdrætti æöa
í innýílum, hörundi og slímhúðum,
miklu ntinna í vöðvum, beinum o.
þvíl., en ekkert í heila, hjarta og
lungum. Þar víkka þær öllu frek.
ar
Jafnframt því, sem æðarnar
þrengjast viða um líkamaninj og
jafnvel á stórum blóðríkum svæðum,
eins og innýflin ertt, en slakna ekki
að sama skapi á öðrum stöðum, þá
er það auðsætt, að þrýsingur blósins
í æðunttm mtmi vaxa. Til þess að
I komast fyrir, verður það að þenja
| þær út. sem helst 1áta eftir, með
j rr.eira afli en annars, og siðan rekuv
I hjartslálturinn þetta þrýstingsmikla
| blóö með mikltim hraða út um Hk.
amann. Alt þetta sýnir, að blóðrásin
I breytist mikið við geðshæringar og
j jafnvel efnasamsetning blóðsins tek.
ur einkennilegttm breytingum. Þess
ar breytingar stefna auðsjáanlega að
I sama marki: að sjá vöðvum, heila,
i lungtim, hjarta og ýmsttm öðrum Hf.
| færum fyrir rikulegri næringu, þvi
bæði er blóðið næringarmeira en|
ella (sykur aukinn) og streymir ó-
j venjulega ákaft um líffærin. Það er
; þvi skiljanlegt, að hækkun á blóö.
✓
þrýstingi hefir þau áhrif á þessa
vöðva, að þeir taka til starfa með
nýjum þrótti, eins og þreytan væri að
mestu horfin. Aftur eru önnur mik.
ilvæg Hffæri afskift, sökum þess að
æðarnar dragast þar saman, sérstak.
lega innýflin í kviðarholintt. Á
þennan hátt ráða vöðvar, hjarta,
lungu o. fl. yfir meiru blóði en venja
er til.
Geðsihræringar hafa þá mikil og
margbrotin áhrif á hjartaö og æöarn.
ar. Það er eins og blóðið flytjist
ýmislega til í likamainum, en Ihvar
æðar víkka og hvar þær þrengjast,
fer mjög eftir því, hverskonar til.
finningar hafa yfirhönd. Þjóðverj-
inn Ernst IVeber hefir rannsakað
Áhrif á hörundið.
Þess er áður getið hversu hör.
undsliturinn getur breytst, orðið ým.
ist fölur eða rjóður, eftir því hverj.
ar tilfinningar hafa yfirhöndina. Þá
brýtst og sviti út um hörundið við
mikla'. hræðslu, reiði o. þvíl., og jafn-
framt þvi sem hann gttfar upp, kóln.
ar hann og kælir hörundið. Segja
ntenn þvi stundum, að “köldum
j svita” slái út ttm mann'. Aö Iokum
! má stundttm sjá, t. d. ef hryllinguv
j fer ttm mann, að yfirborð hörtinds.
ins verður óslétt og úfið, líkt og
! fuglshamur. Þetta stafar af þvi, að
hárvöðvarnir, smáir vöðvar, sem
standa i sambandi við hárin og reisa
þau ttpp, dragast ósjálfrátt samani
j I>ess gætir að visu lítt, þó likhárin
; rísi á höfði manns” af skelfingu.
i Hitt er víst, að hárin rísa á mörgum
! dýrum við reiði, t. d. köttum. Þegar
þeir reiðast og búast til varnar, risa
háriti á hryggnum og afturhluta
skrokksins, lika á rófunni, og sýnist
dýrið þá miklu fyrirferðarmeira og
ægilegra.
Taugakcrfið og tilfinn-
ingarnar.
Vér höfum nú nefnt nokkur dæmi
þess, hversu tilfinningarnar hafa
j margskonar áhrif á líkamann og
mætti þó segja þá sögu lengri. Hvern
ig getur nú reiðin, sársaukinn eða
aðrar tilfinningar flogið þannig og
farið nálega út ttm allan Hkamann og
það í skjótri svipan ? Aö sjálf.
sögðtt má gera ráð fyrir, að tilfinn.
ingarnar hefjist fyrst eða geri vart
við sig í heilanum, sem meðvitundin
er bundin við, og þa,ð hlýtur þá að
vera samband milli rtans og allra
hinna líffæranna, sem fyrir áhrifttn.
um urðu. Svo er þetta og. Frá
heila og mænu liggja margkivislaðir
taugaþræðir til a!1ra liffæra Hkam.
ans og eftir þeim berast ýms áhrif á
milli með fuðulegum hraða. Flest
starfsemi Hffæranna stjórnast af slík.
ttm taugum að meira eða minna leyti.
Eftir því sem þær æsast eða sljógv-
ast, vex starfsemin eða minkar.
Hverntg er þá taugum innýfla og
æða farið, sem skifta hér mestu máli,
og hversu skyldi starfsemi þeirra og
verkaskifting koma heim við breyt.
ingar þær, sem geðshræringar valda?
Tvær taugar starfa aðallega aö stjórn
þeirra: hnoöataugin (n. sympathicus)
sem ég nefni svo, af þvi aö á henni
eru mörg taugahnoð (ganglia), og
innýflataugin eöa taugin víðförla (n.
Vagus). Báðar kvíslast um flest inn.
ýfli og hnoðtaugin fylgir auk þess
æðum og taugum viðsvegar út um
likamann, hreyfir æöarnar, og hár.
vöðva hörundsins, sem reisa hárin og
Höfuðverkir, bakverkir, þvag-
steppa, þvaglát og önnur hættuleg
merki um nýmasjúkdóma, munu
brátt hverfa ef GIN PILLS er neytt
reglulega. Þær kosta 50cents í öll-
um lyfjabúðum og lyfsöluverzlun-
um,
National Drug & Chemical Company
of Canada, Umited.
Toronto —• — — Canada.
78.
gera “fuglsham”, og veldur svita.
rensli úr svitakirtlum. Taugar þessar
skifta aðallega þannig verkum meö
sér, aö hnoðataugin eykur starfsemi
líffæranna, en innýflataugin dregur
úr henni nema um störf sé að ræða,
sem auka líkamsþróttinn. Hnoða-
taugin er framsóknar og eyðslutaug,
innýflataugin (og nokkrar /aðrar
taugar, sem fylgja herntii að málum)
er ihaldstaug, hvílir og safnar kröft.
um. Framsókn og íhald togast þann.
ig á í liffærunum, engu síður en á
þingum þjóðanna, en sá er munurinn
á'þeim og líkamanum, að þar ríkir
friösamleg samvinna og hvað hjálp'.
ar öðru á sinn hátt.
Til þess að fá nokkru glöggari
hugmynd um það, hversu starfsemi
tauganna kemur heim og saman viö
breytingar þær, sem vér höfum áö.
ur talið að væru samfara áköfum
geðshræringum, þá er hér sett stutt
yfirlit yfir helstu störf hnoðataugar.
innar.
Auga: Vikkar ljósop og augnrifu,
ýtir auga út, eykur tárarensli.
Nef: Þrengir æðar og minkar
slímrennsli, gerir jafnframt nasirnar
nokkru rúmbetri fyrir andardráttinn.
Munnvdtnskirtlar: Þrengir æðar
þeirra, gerir munnvatnið lítið og
slímkent.
Hjarta: Flýtir hjartsllætti, vikkar
æðar hjartans.
Lnngu: Vikkar æðar.
Magi og garnir: Þrengir æðar,
stöðvar rensli úr kirtlum og slakar
á vöðvum og dregur úr hreyfingu
þeirra.
Æðar: Þrengir æðar á höfði og
hálsi ög i innýflum, vikkar þær á bol
og útlimum. Eykur blóðþrýsting.
Hörund: Eykur svita og reisir
, hár.
Af yfirliti þesstt er það Ijóst, að
flestallar Hkamlegu breytingarnar sem
fyr eru taldar, falla algerlega undir
starfsvið hnoðataugarinnar. Vér get.
um því blátt áfram hugsað pss, að
þær spryttu af þeirri orsök einni, að
taug þessi yrði fyrir sterkum æsandi
eða örvandi áhrifum. Latneska nafn-
ið sympathicus bendir og til þess, að
menn hafi snemma rent grun í, að
hún stæði i nánu sambandi við til.
finningar, þvi það þýðir samúðar.
eða tilfinningataug.
Og þó ér málið ekki svo einfalt,
ef betur er gáð að. Vér höfum getið
þess, að sum áhrifin vöruðu miklu
lengur en geðshræringin. Þamnig
hélt magasafinn áfram að streyma
góða stund eftir aö hundurinn hætti
að éta, og væri renslið stöðvað með
því að gera hundinn reiðan, þá leið
nokkur tími, þangað til það komst i
samt lag aftur. Hvernig stóð á
þessu og hvernig gat sykur komið í
blóð og þvag? Ekki standa þó taug.
arnar í beinu santbandi við streym.
andi blóðið,
Nýrnahúfurnar.
Á efri enda hvers nýra situr dá-
litið líffæri, sem ég nefni nýrnahúfu,
sökum þess, að þaö er eins og Htil
uppmjó húfa sæti ofan á nýranu, en
gengi þó lítið niður á það. Þó hæð
húfunnar sé um 5 cm., þá er hún
þunn, mjúk átöku og ber svo Htið á
henni, aö fæstir veíta þessum líf.
færum eftirtekt við slátrun á skepn-
um.
Lengi vissu menn liið sem ekkert
um þessi Hffæri. Um miðja fyrri öld
fanrn enskur læknir, Addison, að
skemdir í þeim geta þó valdið sér.
stökum sjúkdómi. Húöin verður ein.
kennilega gráleit og stundum sv»
dökk, að heita má aö hún veröi rauö-
brúnleit. Meltingartruflanir fylgdu
þessu alloft og mikið magnleysi, auk
fleiri einkenna. Sjúkdómur þessi var
venjulega banvænn.
Eftir þetta fóru læknar að veita
nýrnahúfunum nána eftirtekt. Þeir
fundu aö dýr drápust, ef húfurnai:
voru teknar burtu, svo eitthvað þýö.
ingarmikið starf hlutu þær að vinna.
Þá kom þaö og í ljós, að ysta lagii
i húfunum var af alt annari gerð en
miðhluti þierra. Börkinn eða yfir.
borðslagið vita menn nú litiö um,
annað en það, aö dýr drepast ef hann
er tekinn burtu, en í kjarnanum, eöa
miðhlutanum, hefir fumdist mjög
einkennilegt efni — húfuefnið (ad.
renalin) —, sem hefir sterk áhrif á
líkamann, jafnvel í örlitlum skömt.
um. Ef t. d. húfuefnisblöndu er
strokiö á slimhúö maganis, ’hvítnar
hún óöara upp og helst þannig nokkra
stusd. Orsök þessa er sú, aö yfir-
borðsæðarnar dagast ákaft saman, svo
slímhúðin verður þvi sem næst blóð-
laus. Sé efni þessu spýtt inn í blóð.
ið sjást áhrif þess enn betur. Þau
ertt aðallega þessi:
1. Æðar í innýflum kviöarholsins
hörundi og slimhúðum dragast ákaft
saman, en lítiö eða alls ekki í lung.
um, hjarta og heila.
2. Þrýstingur blóðsins vex stór.
lega, sem eðlilegt er, úr því blóðið
er að miklu leyti rekiö úr stórum
svæðum i líkamanum. Hann getur
orðiö tvöfaldur eða þrefaldur, við
það sem eðlilegt er.
3. Hjartaslógin verða tíðari og
jafnframt sterkari, svo starfsemi
hjartans vex og að mun.
4. Ýmsir ósjálfráðir vöðvar drag.
así saman, t. d. vöðvinn sem vikkar
sjónopið, hárvöðvarnir sem reisa
hárin og sttmir vöövar í getnaðarfær
tinum. Aðrir slakna svo sem maga.
og garnavöðvar, svo Hffæri þessi
hætta að hreyfast. Eftirtektarvert er
að vöðvar í lungnapipum slakna og
vikka þær þvi lítið eitt, svo andar.
dráttur hefir greiðari gang um þær.
5. Kirtlarcnsli breytist á ýmAin
hátt. Það eykst úr kirtlum í rfttníni
og maga, en þverrar úr brisi og lif.
ur (gallið).
6. Blóðsykur vex og sykur kemttr
venjulega í þvagið.
7. Blóðið storknar fyr en vant er.
8. Dregur úr vöðvaþreytu likt og
vöðvarnir hefðu fengið riflegan hvild
artima, svo vöðvar, sem voru að gef.
ast ttpp ög verða þróttíauslir, taka á
ný til starfa, fám mínúum eftir að
efni þetta tekur að verka á þá.
Vér rekttm oss hér á einkennilegan
hlut, nefnilega efni þaö, sem
nýrnahúfurnar mynda og veita út í
likamann, hefir mjög hin sömu áhrif
á hann og ákafar geðshræringar eða
æsing á hnoðatauginni. Skiljanlegra
er þetta þegar þess er gætt, að kjarni
nýrnahúfnanna myndast x fósiturlífi
að miklu Ie)tti úr hnoðatauginni og á
rót sínii aS rtkja til heitnar. Fer því
aö Itkum, aO áhrif beggja verði á-
þekk.
En er þá nokknrt satnhand mflli
geðshræringa og starfsemi nýrna.
húfnanna? Vissulega er það svo. Ná.
kvæmar tilraunir hafa sýnt aö nýrna.
húfurnar, sem standa undir stjórn
hnoðataugarinnar, auka starfsemi sína
um allan helming við reiði, hræöslu,
sái sauka o. þvíl. Hér eru þá tvö
öfl, sem vinna að hinu sarna: hnoða.
taugin, sem hvetur fjölda liffæra ti!
aukinnar starfsemi, en letur nokkur,
og sérstakt efni, sem streymir úr
nýrnahúfunum inn-í blóðið og eyk.
u1- áhrif taugarinnar og starfsemi
lifæranna til mikilla muna. Nú er
það skiljanlegt, að áhrifin haldist
nokkru lengttr en geðshræringin, þvi
húfuefnið hverfur ekki samslfundis
út' blóöinu.
Hvaðan kom svo sykurinn i blóÖ-
ið? Ur mjölmat og sykri i fæðunni
streymir stööugt sykttr inn í æðar
meltingarfæranna og berst eftir þeim
til lifrarinnar. Þar ex honum breytt
i dýrasykur (glykogen) og safnast
liann fyrir i lifrinni. Þaðan fer
hann ekki sjálfkrafa, en tveir kirtlar
ráða mestu um þaö, hvort honum er
safnað eða hleypt úr lifrinni,
út í blóðið. Nýrnahúfurnar
veitá sykrinum úr lifrinni, en
briskirtillinn heldur í hann og hefir
andstæð áhrif. Venjulega vega
þessi áhrif salt, svo örlítill sykur er
í blóöinu, en geðshræringar auka
svo starfsemi nýrnahúfnanna, að
þeim veitir betur og afleiðingin er