Heimskringla - 22.12.1925, Blaðsíða 5

Heimskringla - 22.12.1925, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 22. DES. 1925. HEIMSKRINGLA 13. BLAÐSÍÐA ízku — Vísindaleg — Samvinna NO STÆRSTA HVEITISÖLUSTOFNUNIN I HEIMI. Útkoman hefir þýðingu. Lesið þessi álit hagfróðra manna. N. C. Stephens (Asst.-Gen. Manager, Standard Bank of Canada:— “Önnur orsök framfaranna er vafalaust Hveitisamlagið. útbúaötjórar vorir um alt Vest- urlandið hafa þá skoðun, að stöðugleiki verðsins og borganir á öllum tímum árs séu bóndanum til mikils hagnaðar. Eg er sannfærður um að Samlagið mun teljast eitt af mikilvægustu fram- fara-fyrirtækjum Vesturlancjsins, ef því hepnast að hafa ráðvanda og hagsýna stjórn framvegis, eins og hingað til.” The Financial Post (Toronto):— “Það er samt sem áður staðreynd, að sam- lagið hefir reynst veruleg hjálp smábændunum, sem af ýmsum ástæðum voru fyr meir neyddir til að selja korn sitt strax á haustin. SKRIFIÐ EFTIR ÖLLUM UPPLÝSINGUM UM INNTÖKU ISAMLAGIÐ TIL Manitoba eða Saskatchewan eða Wheat Pool Wheat Pool Winnipeg,Man Regina, Sask. Alberta Wheat Pool Calgary, Alta Okkar mörgu íslenzku#viðskiftavinum óskum við gleSi legra jóla, um leið og við þökkum þeim fyrir þá tiltrú, sem þeir hafa sýnt okkur, og vonumst eftir að njóta við skifta þeirra í komandi framtíð eins og að undanförnu G. Harman R. L. Harman TOASTERS; PERCOLATORS STRAUJÁRN; KRULLUJÁRN ÞVOTTAVJELAR MATREIÐSLUSTÓR, og fleira. APPLIANCE DEPARTMENT Winnipeg Electric Railway Main Floor Electric Railway Chambers ÞJER SEM NOTIÐ TIMBUR K A U P I Ð A F ii [npiie Sesh and Door COMPANY LIMITED BirgSir: Henry Ave. East. Phone A 6356 Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA. I ööru erindi, önnur ljóölína: var áður skrúg og vöxtur, líf og skjól. •— Á aö vera: y.ar áður skrúð og vöxtur, líf og sól. I sjöunda erindi, þriðja ljóðlína: Og þess vegna eru sorgarljóðin sungin: Á að vera: Og þess vegna eru sigurljóðin sungin. Eftirtaldir menn, sem kosnir voru af stúkunum Heklu og Skuld skipa fulltrúanefnd stúknanna: G. M. Bjarnason forseti 309 SimcoeSt.; S. Thorkelsson gjaldkeri 738 Arling- ton St.; Egill H. Fáfnis ritari 651 Home St.; Asb. Eeggertson vara for- seti; Sumarþði Matthews v. gjald- keri; J. Th. Beck v. ritari; Jón Marteinsson, Hreiðar Skaftfeld og Einar Haralds. Ágætis Standard Ritvél vinnur með rafmagni. Eins og Standard WOODSTOCK, er þessi vél útbúin með síðustu uppfyndingum í ritvéla- gerð. Inniheldur í einni vél betri útbúnað en nokkur önnur ritvél. Winnipeg Typewriter Exchange 643 B. Somerset Biock Phone A-4025 <<Bölsþá,, má ei hringja’ í kvöld. Eftir Rose Hartwick Thorpe. Eftir langan dag og dapran dýrðargeislum kvöldsins sól stráði allar Englands strendur, ásthlý signdi dal og hól; hluttekningar kossi kysti klökk á enni fljóðs og manns; gulli meyjar lokkar líktust, lýstuVreytu sporin hans; sorgin beygði hann í herðum, hún af ótta blá og köld byrgði orð, þó bærðust varir: “.Bölspá’ má ei hringja’ í kvöld.” Hún var stödd hjá hringjaranum, horfin sælu, ró og frið; stundi upp í hálfum hljóðum, — horfði og benti á fangelsið —: “Ástvin minn, til dauðans dæmdur, dvelur þarna; heyrðu mig, þegar “Bölspá” heyrist hringja, hann á — Nei, eg grátbið þig, hringdu’ ei fyr en Cromwell kemur, Cromwell hefir líknarvöld.” Orðin bæra bleikar varir: “,Bölspá’ má ei hringja’ í kvöld'.” Líkt og hvassar eitur-örvar orð af vörum hringjarans særðu hjarta’ og sálu hennar — samt var klökkvi’ í augum hans —: “Bessie, eg hefi lifað lengi, líf mitt á ei nokkurn blett, altaf hringt á hverju kvöldi hátíðlega — og gert það rétt.” Þannig mælti’ ‘ann: — “Má það ekki; minkunn væri þúsund föld, góða menn og guð að svíkja, get ei------verð að hringja’ í kvöld.” Augu hennar leiftra, loga, lesa má um fölar brár, það sem hún í sálu sinni sór við guð og öll sín tár. Kaldann dóminn heyrt ’hún hafði, hlustað þögul, niðurlút: “Þegar ‘Bölspá’ heyrist hringja, hengist Basil Underwood.” Andvörp tók hún, augun glóðu eins og gagnsæ logatjöld; hugsun bærir bleikar varir: “.Bölspá’ skal ei hringja’ í kvöld!” Kvikum fótum eins og elding inn í kirkju mærin þaut; öldungurinn augnadapur eftir þræddi kunna braut. Bessie steig af tröppu’ á tröppu, tafarlítið ferðin gekk; komst um síðir þreytt og þjökuð þangað upp, sem klukkan hékk svipljót yfir höfði hennar, hrikaleg og dimm og köld. Enn þá bærast bleikar varir: “.Bölspá’ skal ei hyingja’ í kvöld!” Auðn og þögn á alla vegu, alt er vafið dauðahjúp; yfir höfði ógna rjáfur, undir fótum heljar djúp. Sér ’hún klukku kólfinn bærast; kominn tími’, er hringja skal, skelfing grípur hjarta hennar, hún á nú á. tvennu val: Stökkva eða hrökkva — henni hættan skapar sverð og skjöld, stekkur beint á, bjöllu kólfinn: “.Bölspá’ hringir ekki ’ í kvöld!” Út hún sveiflast — svima kennir, sýnist borgin undur smá; kólfur særir kreptar hendm-, klukkan sveiflast til og frá^ Hringjarinn er heyrnardaufur, h’eyrði sjaldan klukknaóm, hugardapur hyggur “Bölspá” hringi Basils líflátsdóm. Mærin særð á höndum hangir, heldur stöðugt, föl og köld; hjartað berst og bærast varir: “.Bölspá’ hringir ekki’ í kvöld!” Stöðvast klukkan, stillist kólfur, stígur Bessie þreytt og sár staðlynd upp í stigann, þar sem steig ei neinn í hundrað ár — þegar England kvöldsól 'kyssir, kyrðin sveipar engi og tún, sagan gengur mann frá manni, margar aldir lifir hún; þegar gullnir geislar skrifa guðspjall lífs á himintjöld, sagt er Bretans börnum, hví að “Bölspá” hringdi’ ei þetta kvöld. Sást í fjarlægð Cromwell koma — Cromwell — Bessie hugrökk stóð, allur fölvi af enni horfinn, orðin kinnin heit og rjóð; upplitsdjörf og einörð sagði’ ’ún alt, sem skeði — duldi ei neitt; sönnun voru sárar hendur, » sást og glögt að hún var þreytt. Klökkvi grípur Cromwells hjarta, — Cromwell hafði líknarvöld, — leit á Bessie, bljúgur sagði: “.Bölspá’ skal ei hringja’ í kvöld!” Basil út úr köldum klefa “kaldir” böðlar hrundu’ á leið; köldum undir kvöldsins himni kaldur gálgi fangans beið. Eins og drottins engill sendur ákaft Bessie herðir skref; kemst til hans á hinstu stundu, honum réttir lausnarbréf. Basil vefur ástmey örmum, enginn þáði sælli gjöld; kysti Bessie, bljúgur mælti: “.Bölspá’ hringir ekki’ í kvöld!” Sig. Júl. Jóhannesscn. Skýring. Höfundur þessa kvæðis er kona; hún var fædd í ríkinu Indíana 18. júlí 1850. Hún orti kvæðiö, þega.r ihún var um tvítugt. Efni kvæS- isins er taliö sögulegt; átti þaö aÍS hafa gerst á döguin Cromwells. Klukkan, sem hringja átti, nefnist Curfew; er þag komiS af tveimur frdnsk- um oröum: “Couvre feu”, sem þýSir: '‘Byrgiö eldinn”. Var sá siður ha.finn, aö hringja klukku á kvöldin, til merkis um aö allir skyldu slökkva ljós og elda á þeim tímum, þegar Norömenn her- tóku England. Var þaiS gert i því skyni, aö vík- ingarnir gætu ekki gengið á ljósiö og rataö aö býlum manna, til þess ag gera þeim ónæöi eöa á- ihlaup. Siöar hafa oft verið sett svo kölluö "Cur- few”-lög; það er a.ö segja, mönnum hefir veriö skipaö aö slökkva ljós og ganga snemma til náöa á ófriðar- eöa hættutímum, og þaö gefið til kynna meö klu'kknahringingu. Þannig er tilkomiö nafn- iö “Bölspá”. Kvæöiö er frægt í enskum bók- mentum. Þýðandinn. Beata jólagjöfin, er bezta íslenzka kvæöabókin. Setjið ykkur ekki úr færi að kaupa “Andvökur” Stepháns G. Stephánssonar, merkilegasta ís- lenzka skáldsins, sem nú lifir. At- hugið vel, að þetta er ekkert aug- lýsingaskrum, heldur sannleikur, sem fjöldi Islendinga hefir gengið úr skugga uin; sannleikur, sem alment verður viðurkendur. Ekkert ís- lenzkt bókasafn er í góðji lagi ef “Andvökur” vantar. Fyrstu þrjú heftin kosta $3.50, og tvö síðustu heftin' $6.00. Alt upplagið -9.50. Notið þessi jól til þess að kynnast skáldkonungi okkar fyrir alvöru. Og ef þið eigiö bókhneigða ættingja eöa vini heima á IsLandi, þá veriö þess viss, að meiri fögnuð getið þiö ekki veitt þeim héðan aö vestan en “And- vökur”, fyrir nokkurt verð er þar kemur nálægt. Þeir sem kaupa vilja, eru beðnir að snúa sér til ráðsmanns Heimskringlu, hr. Jakobs Kristjánssonar. »oca/coecooeosooo5oseooocosoeoceococooccfi6ccec«cooocc«occc«c«oo«

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.