Heimskringla


Heimskringla - 30.06.1926, Qupperneq 4

Heimskringla - 30.06.1926, Qupperneq 4
4. BLAÐSIÐA. HEIMSKRINGLA ■% WINNIPEG JV JÚNÍ, 1926. Heintskríngla (StofnnH 1886) Krmur At A hverjnm mlttvlknderl. EIGENDCR: VIKING PRESS, LTD. 853 OS 855 SARGENT AVE., WITÍNIPEG. TalHÍmi: N-6537 Verfc bla?5sins er $3.00 árgangurinn borg- ls t fyrirfram. Allar borganlr sendlst THE YIKING PHJEfcS LTD. SIGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum Hitstjóri. JAKOB F. KRISTJÁNSSON, Ráðsmaður. VtanAnkrtft tll blnl(»ln«i THE VIKING PHESS, I.td., Bo* 8105 Vtnnftnkrlft tll rltxl lArnnni EDITOR IIEIMSKRINGI.A, IIo* 8105 WINNIPEG, MAN. "Heimskringla ls pnbllshed by The Viklnic Prena Ltd. and prlnted by CITY PRINTING <fe PUBI.ISIIING CO. 853-85S Sareent Ave., Wlnnlpegr. Man. Telepbonei N 6537 WINNIPEG, MAN., 30. JÚNÍ «1926. Afdriíin. Þá er stjórnin loksins jfallin á þingi, i fyrsta sinn í sögu sambandsríkisins, Fall* in, eftir einhverja hörðutu rimmu, sem háð hefir verið í þinginú. Og fljótt á litið hefir lítil þúfa velt þungu hlassi. Svo virðist í fyrstu sem aðgerðir Boivins, toll- og skattamálaráð- herra, í máli Mósesar Aziz, hafi verið steinninn, sem stjórnarskútan steytti á. En orsakirnar liggja miklu dýpra. — Þegar þingtíðindin eru lesin með athygli, sést að yfirsjón Boivins, er svo lítilvæg, að ekki kemur til mála, að hún hafi riðið stjórninni að fullu. Og borin saman við tollsvikahneykslið og alla þá óráðvendnis flækju, er um það ófst, er hún alveg hverfandi. Hún er ein veigamesta afleið- ingin af því, hvernig fyrirrennari hans, Jacques Bureau misbeitti embættisvaldi sínu, í sambandi við þá linkind er forsæt- isráðherrann sýndi þeim herra. Flokks- elskan fór þar í gönur með Mackenzie King, og varð banabitinn hans að síð- ustu. En ósigur stjórnarinnar á sér jafnvel víðtækari rætur en þær, er liggja út í yztu æsar tollsvikahneykslisins. Það var alment álitið að Dunning færði stjórninni nýtt lífsfjör og styrk. Enginn efast um dugnað hans. Þótt honum ynnist ekki tími til að iáta verulega til sín taka í þinginu, þá var hann búinn að sýna það heimafyrir, í ráðsmensku Saskatche- wanfylkis. En ef langt skal grafa, má vera, að það komi í ljós, að ötulleiki Dun- nings hafi verið dýru verði keyptur. Dunning var búinn að vinna sér mikið álit í Saskatchewan. Síðustu fylkiskosn- ingar sýndu, að hann var búinn að treysta liberala þar ramlega í sessi. Sá árangur hefir vafalaust verið aðalástæð- an til þess, að Mackenzie King lagði til kosninga í fyrra, og á þann hátt að auð- séð var að han nætlaði sér að ganga milli bols og höfuðs á framsóknarflokknum. Það sýndi sig skjótt að var óviturlega ráðið. Hann hugðist að gleypa fram- sóknarmenn hér í vesturlandinu. Til þess að ná því marki, snerust liberalar hat- ramlega á móti framsóknarflokknum. í stað þess að vinna með honum, í stað þess að rýmka stefnuskrá liberalanna. tók forsætisráðherrann það fangaráð, að hafa óskir og vilja liberalanna austurfrá fyrst og fremst fyrir augum, en úthúða franlsóknarflokknum. Sú kappgirni var skammsýn. í Saskatchewan gekk nokk urnveginn eftir áætlun. En í hinum fylkjr unum kom hún aðeins conservatívum að haldi. Mackenzie King tókst beinlínis og óbeinlínis að fækka framsóknarflokkn- um á þingi um fjörutíu manns. Þó stóð hann sjálfur liðfærri eftir en áður. Og hafði tekist það eitt að gera sér fullkom- lega óvinveitta ýmsa frjálslyndustu og framsæknustu framsóknarþingtnennina, sem af komust úr blóðbaðinu. Hefði hann rýmkað stefnuskrá sína í verulega “liberala”, þ. e. a. s. frjálslynda átt, hefði verið óþarfi fyrir hann að tapa þessum fjörutíu atkvæðum, og snúa hinum tutt- ugu og fimm til kaldrana við sig. Að vísu hefði hann þá mátt búast við að missa eitthvað af þeim liberölum frá sér eystra, er harðsnúnastir hafa verið til hægri. En það hefði margborgað sig. Þeir menn eiga að öllu réttu heima í conservatíva flokknum, en ekki sæti á “liberal” bekk, sé það lýsingarorð annað en nafnið tómt. ¥ ¥ ¥ LítiII vafi er á þvf að liberali flokkur- inn er nú kominn að krossgötum, sömu krossgötunum og liberali flokkurinn áj Englandi, og reyndar víðar, hefir tvístr- ast eftir svo gersamlega. Að þessum krossgötum koma allir flokkar á tiltölu- lega skömmum tíma. Leið sumra liggur áfram til vinstri; aðrir leita til hægri. Báðumegin er nýja samferðamenn að finna. Mackenzie King hefir auðvitað ekki viljað halda beint til hægri. En hann hefir heldur ekki þorað að stefna nógu langt til vinstri. Hann hefir yfirleitt ver- ið nokkuð reikull í ráði. Hann hefir von- að, að það mætti takast að slarka nokk- uð enn samflota við framsóknarflokkinn allann. í því trausti meðal annars mis- reiknaði hann sig og sigldi á boðana, sem umgirtu kröfur Albertamannanna um endurheimt náttúrufríðinda fylkisins í eigin hendur. Þar steytti hann fyrst um daginn, á skipbrotsleiðinni, þar sem skóla löndin voru. Albertamennirnir töldu hann vafalaust leika tveim skjöldum í því máli, af hræðslu við Quebecinga; og það hefir líklega orðið stjórninni meira til falls, en nokkurt eitt atriði annað. Hefði sú trú ekki komist inn hjá Albertingum, þá eru töluverðar líkur fyrir því, að stjórn- arskútan hefði getað legið af sér toll- hneykslisofviðrið. ¥ ¥ ¥ Flokksplægni og kápuburður á báðum öxlum reið Mackenzie King og stjórn hans að fullu. Hitt er annað mál hvort það er ekki úr öskunni í eldinn að fá conservatíva stjórn að völdum, eins og nú stendur. Mun fæstum vestanmönn- ; um blandast hugur um það. Enda er lítt hugsanlegt, að ekki hljóti kosningar að fara fram bráðlega. En hvernig sem fer þá er þó ekki hægt að yera óánægður með afdrif Kingstjórnarinnar, eins og stóð. Tvíræði hennar gagnvart vestur- landinu — og þar með reyndar landinu í heild sinni — var orðið óþolandi, nema þeim er sérstöku langlundargeði voru gæddir. En mergurinn málsins er þó, að kjósendur, eða fulltrúar þeirra, sýni landsstjórn það svart á hvítu, að henni getur ekki að ósekju haldist uppi yfir- hylming eða afskiftaleysi slíkrar ráðs- mensku og var í toll- og skattamálaráðu- neytinu, og svo, að kóróna það með því, að setja höfuðpaurinn á $4000 eftirlaun æfilangt í forngripasafnið, er nefnist öld- ungaráð Canada.' Það er þá heldur von um að stjórnin taki sér fram næst, ef hún kann að ná völdum; gái að sér, að hafa dálítið gleggra auga fyrir heiðri sínum og heill þjóðarinnar, en fyrir haggmunum hirðsnápa sinna og matarfriðla. ¥ ¥ ¥ Vafasamt er hvernig mælist fyrir neit- un landsstjórans, Byng lávarðar, um að verða við tilmælum fráfarandi forsætis- ráðherra og rjúfa þing. í vorum augum var það tvímælalaust misráðið. Meðal annars er það þvert á móti brezkum þing- venjum. Þar hefir ekki forsætisráðherra verið neitað um þingrof síðan árið 1832. Gladstone beið gagngerðan ósigur í þing- inu 1886, eftir 6 mánaða þing. Var þing þá rofið samkvæmt beiðni hans, þótt hægt hefði verið fyrir mótstöðumenn hans í þinginu að taka við stjórnartaum- unum,’ í trausti meirihluta. Ennfremur var þing leyst upp á Englandi 1922, 1923 og 1924, og, að því er “Free Press” segir frá, var það aðeins eitt árið af þrem, sem mótstöðumennirnir hefðu ekki getað myndað meirihlutastjórn. Þegar jafnaðarmannastjórnin sat að völdum sem minnihlutastjórn á Englajidi, lét Asquith opinberlega í ljós, að ef hún yrði feld, af liberölum og conservatív- um í sameiningu, þá hefði Macdonald ekki rétt til þess að rjúfa þing. Þessu mót- mælti Macdonald, Sir Robert Horne, próf. Diceý, Sir William Anson o. fl. Spunnust miklar umræður út af þessu, og komu menn sér alment saman um það, að síð- ustu, að þar sem stjórn Ma-cdonalds hefði skipulega verið rétt stjórn, sem konungur og þing hefðu viðurkent, þá hefði hún rétt til þess að krefjast þingrofa, ef henni sýndist. Enda fékk hún það, er að því kom. Vafalaust hefði Kingstjórnin átt að fá sama rétt. Mun og nálega eng- um hafa dottið í hug að henni myndi neit- að um það. — Auðvitað er jafnan ‘heimskulegt að einblína á fordæmin. En fram hjá þeim verður ekki komist sökum eftirdæmanna. og þau geta ^orðið kynleg. Færi nú t. d. svo, að Mr. Meighen biði ósigur í þing- inu, og æskti þingrofa, þá ætti landstjóri að gefnu fordæmi, að neita honum um það, og reyna að fá t. d. Mr. King til þess að klöngra saman ráðuneyti; geri land- stjóri það ekki, sem líklegast er, þá hefir hann sett það fordæmi um embættis- færslu sína, að hætt er við að mörgum eftirmanni hans verði vandsiglt á milli skers og báru á sjálfdæminu. Oldungar lýðsins. Öldungaráðið í Ottawa, sem engann á sinn líka meðal siðaðra þjóða, þegar harð stjórnarlöndin ítalía og Japan eru undan- skilin, hefir ekki brugðið vana sínum í ár. Það vofir yfir höfði þjóðarinnar eins og vondur draumur, eins og Damóklesar- sverð, sem jafnan fellur er verst gegnir. Það legst eins og mara ýfir mikið af nauð 1 synlegustu framkvæmdarsemi þjóðarinn- ar og kyrkir í fæðingunni löggjöfina, sem fulltrúar eru búnir að gera svo vel úr garði, sem þeir hafa vit til og unt er. Og það er eins og draugarnir og vofurn- ar gömlu í þjóðsögunum, voðfeldur og loftkendur skratti, sem ómögulegt er að festa hendur á, en þeim mun magnaðrí, að ómögulegt virðist að kveða það nið- ur. s Það hefir þegar unnið nokkur afrek af | því tæi, sem heldur hinni heróstratisku i frægð þess á lofti. Það hefir meðal ann- \ ars drepið ellistyrktariögin, sem fóru í j gegnum neðrimálstofuna slysalaust. Það var ekki von að þeir gætu fallist á það, þessir háeftirlaunuðu heiðursmenn, að ríkið reyndi að rnilda ofurlítið æfi- kvöld hrumra og blásnauðra manna, rétt i undir það að gröfin lykst yfir þá. Þá i skiftir það engu að hver teigur og þúfa í þqssu landi er markaður sporum og erf- iði þessara manna flestra; að landið er Spámennirnir og töðurlandiö. Það er gamalt orð, að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi. Það þarf ekki að skýra það nán- ar. Vér könnumst öll við til- finninguna að finnast alt bezt, sem fjærst er, og finnast alt verst sem næst er, Hve gamalt máltækið er, skal hér ekki rakið, en vel gæti það verið jafngamalt Mósesi, eftir því sem að meistar anum frá Nazareth fórust orð um þær viðtökur, er Gyðingar bjuggu spámönnum sínum. ¥ ¥ ¥ Vér rákumst á afmælisósk í Free Press um daginn, sem varð að dálitlu umhugsunarefni. Það var afmælisósk til Jóhanns Sig- urjónssonar. Það kom dálítið kynlega fyrir sjónir að sjá þarna afmælisósk til einhvers bezta vinar síns, sem látinn er fyrir þó nokkrum ár- um. Þegar fyrsta undrunin var liðin hjá, bar það í minni, að það myndu vera íslenzkir fregn ritarar við Free Press. Huga manns verða engin takmörk sett, og hann stekkur oft ein- kennilegar leiðir, frá einni þúf- unni til annarar. DODD’S nýrnapillur eru bezta nýrnameðalið. Lækna og gigL bakverki, hjartabiluri, þvag- teppu, og önnur veikindi, sem stafa frá nýrunum. — Dodd’s Kidney Pills kosta 50c askjan, eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást hjá öllum lyfsögum, eða frá The Dodds Medicine Co., Ltd. Toronto, Ontario. Eggert Stefánsson- Þaö hefir nýskeö borist fregn af söngvaranum ^nafnktíhna, hr. Egg- ert Stefánssyni, sem mörgum Islend- ingum hér vestra er kunnur, síöan hann var hér á ferð fyrir tveimur árum síöan. Hann er nú staddur i Berlín á Þýzkalandi, og hefir þar veriö ráöinn af tveimur stærstu fegurra, betra og byggilegra fyrir það, að þeir hafa lifað og strítt, þótt þeir hafi ekki borið gæfu til þess að leggja nóg fyrir til elliáranna, eða ef til vill ekki haft skap í sér til þess að véla meðbræð- ur sína í viðskiftum eða draga sér af al- mannafé, svo að lögum verði ekki við komið. Og þó voru þetta engin ósköp, sem átti að ryðja í þessi aldurhnignu olnbogabörn þjóðarinnar. Einn dalur á dag í mesta ¥ ¥ ¥ Hugurinn stanzaði rið þá staðreynd, að hér í borginni hefir verið staddur um skeið -Stephan G. Stephansson, án þess að oss sé kunnugt um að íslenzku fregnriturunum við Free Press hafi dottið í hug að minnast á þann mann einu orði. Og þá var það, að oss datt í hug máltækiö um spámennina og föðurlandið. grammófón hljómplötuverkstæðum, sem plötur þessar búa til, aö syngja söngva eftir ýmsa íslenzka tónfræö- inga. Tólf lög hefir hann. nú þegar sungiS^ fyrir “His Master’s Voice” (Victor félagið), og eru þau eftir Sveinbjörnsson, S. Kaldalóns, Þór- arinn Jónsson, Björgvin Guðmunds- son og fleiri. Eyrir hitt félagið hefir hann sungiö 10 lög, og á meðal þeirra er lagið “Nú legg eg augun aftur”, eftir Björgvin Guðmundsson., sem margir hér vestra dáðust að, lagi þeim til handa, er náð höfðu sjötugs- aldrr, og þó bundið þeim skilyrðum, að ekki hefðu ýkja margir orðið styrksins aðnjótandi; að sá sem nokkurn styrk átti að fá, varð auk aldurstakmarksins að njóta brezkra borgararéttinda; hafa bú- ið tuttugu síðustu árin í Canada; hafa verið búsettur í fylki því, er hann sótti um styrk til, uridanfarin fimm ár, og hafa ekki meiri tekjur af eignum sínum en sem næmi þrjú hundruð sextíu og fimm döl- um á ári. Sjálfir hafa þeir þessir aldur- hnignu lagaböðlar ekki nema vesala $4000 á ári til þess að svelta við, meðan þeir stritast við að sitja yfir löggjafar- gdlganum. Svo að þeim er nú heldur en ekki vorkunn, þótt þeir austroki ekki fé í aðra vesalinga. Þeir læstu líka til kyrkingar visna fingu* að hálsi lagafrumvarps, sem var sent á náðir þeirra, og fór fram á það, að nema iy; gildi hneykslislöggjöfina frá Winnipegverkfallinu sæla, er breyting var gerð á innflytjenda- og hegningarlögun- um, og gerð að landslögum á 40 mín- útum! Þessari löggjöf er svo varið, að samkvæmt henni er hægt að gera alla menn landræka, sem stjórninni er yeru- lega í nöp við, án dóms og laga, séu þeir ekki fæddir í Canada. Auðvitað nær þetta til brezkfæddra manna; var leikurinn og til þess gerður, að geta gert landræka ýmsa þá menn, er helztir voru leiðtogar verkamanna meðan á verkfallinu stóð, og sem voru bornir á Englandi eða Skot- landi. Það hepnaðist nú að vísu ekki 1 þá; svo illa mæltist þessi löggjöf fyrir. Og skömmu seinna var reynt að hrinda þes%- | | ari löggjöf. En gömlu mennirnir stóðu á verði, þá sem oftar, þegar um velferð og heiður Canada er að ræða. Þeir drápu það.. Englendingarnir og Skotarnir voru j verstu óróaseggirnir, sögðu þeir. Og það væri um að gera að hafa eitthvert óbrigð- * ult meðal til þess að losa sig við þá. Svo kemur þetta frumvarp fyrir þá háæruverðugu, eftir að þingið er búið að samþykkja það. Öldungarnir rumsk- ! ast. Þeir nudda augun; en það er glýja 1 á þeim, eins og þegar náttugla horfir móti degi og sólarljósi. Þeir sjá alt rautt; alt I landið í blóðrauðri glýju; “eintómir dé- | skotans Bolshevikar, blessaðir verið þér!” Og þeir læsa kjúkunum að hálsi hvít- voðungsins. Svolítið korr í anganum______ | og búið. Og rólegri halda þeir áfram | setustritinu, í hinni sælu meðvitund um að hafa bjargað Canada frá þeim háska, j sem myndi bersýnilega leiða landið til 1 glötunar, ef ekki væri við og við hægt að i gera borgara þess — vinnandi menn — útlæga án dóms og laga. ¥ ¥ ¥ Canada er að vísu ekki föður land Stephans í vanalegum skilningi. En það er það í ó- eiginlegri merkingu. Stephani hefir áreiðanlega vaxið víðsýni og vængþróttur við að flytjast vestur um haf. óvenjulpga gáfuð kona íslenzk komst svo að orði um daginn, að Stephan væri eini íslendingurinn, sem hefði orðið meiri maður' við það að flytjast vestur. Þess vegna mætti Canada vel eigna sér sinn helming af honum. — Hafi hún ekki hitt markið, þá var farið býsna nærri því. Vér gátum ekki varist því að hugsa um það, hve kynlegt það er, að íslenzkir fréttaritarar við canadiskt stórblað, skuli þurfa að láta það seilast nokkur ár aftur í tímann, út fyrir gröf og dauða, og þúsund mílna reginhaf, er það vill sýná and- legum atgervismanni íslenzkum hlýhug og virðingu, þegar mitt á meðal vor er staddur maður, er ekki einungis ber höfuð og herðar í þeim skilningi yfir alt andlegt atgervi íslenzkt hér vestra, heldur er tvímælalaust mesta skáld þjóðflokks síns, síðan Matthías leið, og einn af æðstu skáldkonungum ís- lenzkrar Ijóðlistar um allar ald- ir. Oss flaug í hug, hve gaman það hefði átt að vera fyrir ís- lenzku fregnritarana við Free Press, að geta sagt lesendum blaðsins frá því, að hér í borg- inni væri staddur maður, sem í raun réttri væri ekki einungis hinn ókrýndi skáldkonung- ur Canada, heldur allrar álf- unnar, sem stendur, þótt hann sé íslenzkur maður, bóndi vestur í Klettafjöllum, og yrki á íslenzku. Oss , datt sem sé ekki eitt augnablik í hug, að ef- ast um að þessir íslenzku fregn ritarar gætu það ekki, svo vel sem þeir hljóta að þekkja bæði amerískar bókmentir og lista- verk Stephans G. Stephansson- ar. En svo datt oss aftur í hug málshátturinn um spámennina og föðurlandið. ----------x--------- hve vel hann fór mei5. Þessar plötur verSa til sölu hér vestra innan skamms tíma, og verS- ur þaö óefaS auglýst í íslenzku blöð- tinnm. Félögin eru í þann veginn aS gera ráSstöfun fyrir því. Þegar Eggert var aS syngja í París á 'Erakklandi í fyrravetur, lofuSu stórblöSin mjög sönghæfileika hans, og kölluSu hann íslenzka söngvarann af “fyrsta flokki”. MikiS þótti koma til íslenzku söngvanna þar; og lagi‘5 eftir Björgvin GuSmundsson, “Nú legg eg augun aftur”, kváSu þau þaS fegursta af smálögum, er heyrst hefSi í seinni tiS. B. P. ---------x---------- íslenzkur dýralæknir. Af dýralæknaskóalnum hér í Cor- nell, einum hinum fremsta í- þeirri grein í öllum Bandaríkjum, útskrif- uSust 20 nemendur 14. þ. m., og hlutu þar meS titilinn D. V. M. (Doctor of Veterinary Medicine). I þeim hópi var einn Islendingur, Pétur Ölafsson, sonur O. K. Olafssonar og konu hans Sigurbjargar, á GarSar, NorSur-Dakota, en bróSursonur séra Kristins Olafssonar í Argyle. Lauk hann prófi meS ágætum vitnisburSi. Undirbúningsmentun sína hlaut dr. Olafsson í miSskóla í NorSur Dakota, og var síSan tvö ár á dýra- læknaskóla þar. HingaS til Cornell kom hann haustiS 1924. Hefir hann jafnan veriS meSal' hinna fremstu skólabræSra sinna og var í vetur er leiS kosinn félagi í Phi Kappa Phi, en í þann félagsskap hljóta þeir einir kosningu, sem fram úr skara í námi sínu. • Næsta ár heldur Pétur áiram námi hér á dýralæknaskólanum, og- mun hyggja að ná meistarstigi í vís,- indum (Master of Science), en vinn- ur jafnfram aS kenslu. Dr. ölafsson er mesti efnismaS- ur, sem hann á kyn til, og drengur hinn bezti, enda vinsæll meSal nem- enda og kennara. Námsferill hans spáir góSu um framtíS hans. Ithaca, 20. júní, 1926. Richard Beck. ----------x-----------

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.