Heimskringla - 17.04.1929, Síða 4

Heimskringla - 17.04.1929, Síða 4
4. BLAÐSIÐA HEI MSKRINCLA WINNIPEG, 17. APRÍL, 1929 itnskringla (StofonS XKSfl) Krnn »t t hTerJnnj mltTlkotfli EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. 803 oB 850 SARGEÍÍT AVE , WIJÍiXIPEG TALSIMI: 86 537 V«r» blatJslns er $3.00 Argangurlnn borg- tet fyrlrfram. Allar borganlr sendlet THE VIKING PREfiS LTD. 8IGTÚS HALLDÓRS frá Höfnum Rítstjóri. L'tnnltskrllt tll hlntlnlnai THB VIKING PRESS, Ltd., Bol »108 IJtnnflnkrlft t*1 rltstjflraoni BDITOá HEIMSKRIJÍGLA, Boi 8105 WWNIPEG, MAN. "Helmskringla ls prubllsljed by The Vlklng Prens Ltd. and printed by ptTV PRINTING * PIIBLISHING CO. 858-855 Snrieent A ve., Wlnnlpog, Man. Telephonet .80 53 7 WINNIPEG, 17. APRÍL, 1929 Gróusagnir Mr. O.T.J. Mr. 0. T. Johnson leiðist ekki gott að gera. Hann heldur kappsamlega á- fram að rógbera mig fyrir óvild til Banda ríkjanna og Heimskrirfglu fyrir Banda- ríkjafréttaleysi í ritstjórnartíð minni. Eg nenni ekki að sinni, að snúa mér frekar að vitleysu fyrra atriðisins en ég gerði í greininni ‘‘Rógburður,’’ en álygarnar, er felast í síðara atriðinu skal ég með einkar ijúfu geði hrekja með tölum, sem Mr. 0. T. Johnson getur ekki forðað sér undan. I Þegar Mr. O. T. Johnson lagði fyrst í þennan leiðangur, var ófræging hans sett fram án nokkurs samanburðar. Nú hefir honum sennilega hugkvæmst, að áhrifameira myndi vera að láta ófræging unni um Heimskringlu fylgja lof um Lögberg, eina íslenzka vikublaðið annað, sem gefið er út hér vestra. Eg skal taka það fram*að ég hefi enga tilhneig ingu til þess að gruna þá, er standa að Lögbergi, að þeir eigi nokkra sök á þessu. Mig grunar miklu fremur, að önnur hafi verið orsök þessarar hervæð- ingar Mr. O. T. Johnson, þótt um það megi kyrt láta að sinni, Að sögn Mr. O. T. Johnson mætir Lögberg að því að séð verður algerlega kröfum hans um fréttaflutning úr Banda ríkjunum. Heimskringla flutt þar á móti afar ómerkilegar Bandaríkjafrétt- ir í minni ritstjórnartíð, og að því er skilja má mikiu færri eða styttri. Telur hann til marks um þessi “ómerkilegheit”, að “það blað, sem afsakana-ritgerðin birtist í, var dágott sýnishorn* í því til- liti. Á framsíðu blaðsins eru nærri 4 dálkar af fréttum frá Canada. En frétt- ir frá Bandaríkjunum eru fólgnar í tveim ur stuttum málsgreinum: Leikhússeig- andi í borginni St. Louis setur auglýsingu í blöðin til “ræningja og launsáturs- manna.’’ Eg endurprenta þetta, af því að þessi málsgrein er eitt dágott sýnis- horn, af fleirum, af sannsögli og for- senduvissu Mr. O. T. J., og kem ég að því seinna. Þegar á stað var farið var það ann- arhvor þeirra félaga, <0 T. J. eða G. T. A.) sem þótti Heimskringla sérstaklega hafa vanrækt Bandaríkin síðustu tvö ár- in, þótt alltaf hefði hún auðvitað bölvuð verið. Og þegar Mr. O. T. J. syngur nú Lögbergi hósíanna í hæstum hæðum á kostnað Heimskringlu, þá þótti mér rétt að eyða dálitlum tíma til þess að leiða sannleikanni fullkomlega í ljós. Eg fór því vandlega yfir árganga beggja hlaðanna 1927 og 1928, og það, sem kom- ið er af árganginum 1929 til marzloka. Og árangurinn var þá þessi: í þessum 117 tölublöðum hvors blaðsins fyrir sig flytja þau fréttir frá Bandaríkjunum sem hér segir: Lögberg: 1067 þuml., eða 54.7 Hkr. dálka. Heimskrmgla: 1046 þuml., eða 53.6 Hkr. dáika. Og úr því ég var nú einu sinni byrj- aður á þessu datt mér í hug að bera sam- ^Auðkennt hér. ■ríÉLÍ an aðrar fréttir Mér vannst ekki tími til að fara yfir meira en árganginn 1928, og árganginn 1929 til marzloka, eða 65 tölublöð alls af hvoru blaði. Og árangurinn er þessi, að í þessum 65 tölublöðum hafa blöðin flutt fréttir alls, aðrar en frá Bandaríkjunum (kanadisk- ar og erlendar), sem hér segir: Lögberg: 2047 þml., eða 105 Hkr. dálka. , ^ Heimskringla: 2165 þml., eða 111 Hkr. dálka. * * * Svna ábyggilegar eru nú staðhæfing ar Mr. O. T. J. Blöðin mega í raun og veru kallast hnífjöfn. Heimskringla flytur síðustu 15 mánuðina sex dálkum meiri fréttir f>rá Kanada og öðrum lönd- um en Lögberg, en Lögberg flytur aftur á móti 1 — segi og skrifa einum — dálk meira af Bandaríkjafréttum en Heims- kringla síðustu 27 mánuðina. Svo enda þótt maður vildi ganga inn á þá skoðun Mr. O. T. J., (sem að vissu er vitleysa, þótt ekki verði nánar farið út f þá sálma hér), að ‘‘vestur-ísl. blöðin eigi fyrst ög fvrst og fremst að vera ‘’réttablöö,’’ þá veitir Heimskririglu heldur betur í því efni, einmitt þar sem Mr. O. T. J. ætlar að skaða hana mest! En svo er það ótahð, sem liver sann- gjarn maður myndi líta á, og virða mér til mikilla málsbóta, ef ég þyrfti nokkurra við í þessum samanburði, að ég er einn við ritstjórn Heimskringlu, þar sem Lög berg hefir tveim mönnum á að skipa. Eg er ekki að segja þetta til að gera lítið úr verki starfsbræðra minna að Lögbergi: ég veit að þeir hafa nóg að gera, heldur til þess að leiða enn áþreifanlegar í ljós, hve fjærri fer að ég þurfi að bera nokkurn kinnroða fyrir þann samanburð. er hr. O. T. Johnson greip til í fáræöi sínut Það þarf nú enga spádómsgáfu til að renna grun í það hvar Mr. O. T. J. ætlar sér að leita hælis. Auðvitað á balt viö staðhæfinguna um það hve tiltölulega— eða algerlega— ómerkilegar fréttir I-Ikr. flytji, og á bak við sýnishomið, er hann nefndi. Því skal aðeins þar tií svaraó, að ég þori alveg ósmeikur að leggja það undir dóm hvers sæmilega greinds og ó- hlutdræígs manns, er eitthvað fylgist með því, sem á dagskrá þjóðarinnar er, að maður sá, er til dæmis eingöngu læsi Hkr., væri engu ófróðari um þau niál, er helzt eru á döfinni með ’Bandaríkja- þjóðinni, og henni þykir mestu varða, en sá maður, er til dæmis læsi Lögberg ein- göngu. Og það eru rakalaus ósannindi hjá O. T. J., að greinin, ^r hann gat um sé “dágott sýnishorn” af Bandaríkja- fréttum Heimskringlu. Það er þvert á móti algerð undantekning, að hún flytji slíkar fréttagreinar þaðan, eða annars- staðar erlendis. En O. T. J. þykir auð- vitað miklu merkilegra, er Lögberg flyt- ur frétt um það, að Smith lögreglumað- ur og einhver negri hafi drepið hvorn annan, og að Florida Debro fékk útborg- aða lífsábyrgð manns fyrir negrann, en varð að skila henni aftur, er það kom á daginn, að hún hafði verið greidd fyrir "‘vitlausan” negra. Eða það, að Júðinn Mendelson hafi höfðað $100,000 skaða- bótamál á hendur líkbrennslustofu fyrir meðferð á iíki konu sinnar; o. s. frv., o. s. frv., er því nær óendanlega mætti telja. * * * Um gildi frétta, er blöðin flytja má auövitað deila til eilífðar nóns; eins um þessar, sem aðrar. En þá væri máske heklur ekki úr vegi að reyna að grennsl- ast eftir því hvílíka afburða þekkingu og dómgreind um mannfélagsmál, slíkir háyfirdómarar, sem hr. O. T. J. hafa til brunns að bera. Um það getur tæplega óljúgfróðara vitni en sjálfan hann, og er því _rétt að lofa honum að birtast lesend um í allri dýrð þekkingar sinnar og dóm- greindar Hann kemst meðal annars svo að orði í síðasta Lögbergi; “Við* Bandaríkjamenn þekkjum Upton Sinclair, án þess að leita til H. K. L. eða rit- stjóra Heimskringlu. Við* höfum lesið bækur iians — og stundum dembt mátulega miklu salti í þá andlegu fæðu, sem þar er til boða. Sin- ciair reit bók um sláturhúsin i Chicago, sem nafnfræg er orðin. Frá sláturiðnaðinum sagði hann þá eftirminnilegu sögu, að þegar veyka- mennirnir yrðu fyrir slysum og yltu í soðpott- ana, þá væru dauðir mannabúkar skoðaðir hið æskilegasta fituefni! I stóru sláturhúsunum í Chicago færu rottur og mýs sömuleiðis í soð- ið — allur sá viðbætir þakksamlega þeginn. Við Bandaríkjamenn borðum ennþá kjöt og notum fituefnin, þrátt fyrir þessa nafnfrægu bók Uptons Sinclair.” Eg hefi nú ekki minna álit á þroska Bandaríkjam., þeirra er fylgjast sæmi- lega með því sem er að gerast í kringum þá, ekki sízt er ræðir um það örlitla brot þjóðarinnar, er íslendingar mynda, að ég hygg að þeir myndu verða nokkuð margir, er hugsuðu sig um tvisvar — eða jafnvel þrisvar, iíkt og Njáll — áður en þeir væru reiðubúnir að samsinna því, er Mr. O. T. J. talaði þarna fyrir munn allr- ar þjóðarinnar. Og mér er það satt að segja einkennileg og óskemtileg tilhugs- un, að maður, sem hefir í tvö og hálft ár haft ritstjórn kanadisks blaðs á hendi, og búið, ég veit ekki hvað mörg ár, í Banda- ríkjunum, gerandi sér í hugarlund að hann fylgdist vandlega með merkustu fyrirbrigðum þar, skuli sýnilega ekki hafa hugmynd um það rót, er ‘‘The Jungle” vakti, né vita, að hún kom Roosevelt sjálfum á stað til þess að láta rannsaka og endurbæta sláturhúsin, er bókin fjall- ar um. Því ég vil ekki gera Mr. O. T. J. þar getsakir, að hann viti betur. Eða að hann skuli halda, að hann éti enn samskonar niðursoðið kjöt og það, er sláturhúsin í Chicago framleiddu, er “The Jungle’’ var rituð. Auðvitað þori ég ekki að fullyrða, að það sem hanri leggur sér til munns af.“kjöti og fituefn- um”, sé ekkitilreitt ‘‘á'la Chioago um 1900.” En það er áreiðanlegt, að ef svo er, þá er hann nokkuð sérstæður meðal þjóð- arinnar, í því að minnsta kosti.—- En með tilliti til þessarar þekking- ar Mr. O. T. J. á áhrifum ‘‘The Jungle” í Bandaríkjunum, þá lá menn mér tæp- lega, þótt ég stórfurði mig ekki á, að því er virðist, algerðu þekkingarleysi hans á áliti Upton Sinclairs í Evrópu, eða að honum þyki hlægileg ummæli Brandesar um Sinclair. Né lái mér heldur stór 1 kostlega, þótt ég svona fyrst um sinn meti a. m. k. jafnmikils umrnæli séra Björns Jóhannssonar og reyndar ýmissa fleiri málsmetandi manna og kvenna, ís- lenzkra, í Bandaríkjunum, og þau um- mæli er dómgreind og velvild Mr. O. T. J. hafa í sameiningu látið mér og starfi mínu í té.— Eg met að vísu mikils þau vinahót Mr. O. T. J., er hann svo Ijúfmannlega og lítillátlega klappar á kollinn á mér með þessum orðum: "Persónulega ber ég ^engan illvilja til ritstjóra Heimskringlu. Hann er prýðilega rithæfur og orðhagur, þó ungur sé og óreyndur í ritstjóra- sessi.”---■- Kj aftæðisfrelsi N og rógréttur *Auðkennt hér Eg ber heldur ekki hinn minnsta persónulega illvilja til Mr. O. T. J. Og það er því á engan hátt sagt honum til lítilsvirðingar, heldur af því að það er sæmilega rökstutt álit mitt, að ég þurfi frekar að halda á fullyrðingum ýmissa annara manna en hans, um ritfærni mína og orðhegurð á íslenzka tungu, ef ég á að géta sætzt á þau atriði við sjálf- an mig. Um hitt, að ég sé ungur og ó- reyndur í ritstjórriarsessi, get ég aðeins sagt það, að ef mig misminnir ekki stór- kostlega um fæðingarár mitt, þá hlýt ég að vera býsna mikið nær því, að kallasc miðaldra, en ungur maður. Að minnsta kosti sé ég enga von til þess, að ég eigi jafn mörg ár ólifuð, og þau, er ég hefi að baki mér. Og ef ég er algerlega ó- reydur í ritstjórnarsessi, eftir þó fimm ára samfleytt starf, þá get ég ekkert annað en beðið ‘haming'juna að hjálpa mér, við tilhugsunina um það, að ég hljóti að verða löngu kominn í kör, ef ekki dauður, áður en ég get gert mér nokkra von um að öðlast nokkra verulega reynslu í því starfi, þótt ég legði ekkert annað fyrir mig það sem eftir er æfinn- ar. Og þá líka hugsað til þess að hr. O. T. J. hlýtur þá að hafa hvílt sem ó- tenntur hvítvoðungur alla sína tíð í ritstjórnarsessinum, þar eð hann var þar aðeins tæpan helming þess tíma, er ég hefi þar setið. W’peg, 15. apríi, 1929. Sigfús Halldórs frá Höfnum. Síðan skipulag-sbundið mannféllag var stofnað, hafa menn deilt um mannréttindi og frelsi. Hver þjóð á sínar frelsishetjur. Eru það þeir, setn risið hafa gegn útlendri- eða innlendri, andlegri eða veraldlegri á- nauð. John Stuart Mill setti þá reglu fyrir ihlutunarrétti félagsheild arinnar á breytni einstaklingsins, að hver maður cctti að vcra sjálfráður, ef hann ekki ynni öðruni skaða með breytni sinni. Taldi hann öll lög siðspillandi, ef þau koma í bága við þá reglu. Bg býst við að engjn regla sé algild og án undantekninga, en þó er talið að þessi regla hafi mjög skýrt og- glöggNrað tilfinning ntanna fyrir einstaklingsrétti, og átt sinn þátt í að honum hafi verið bet- ur borgið á Englandi en víða ann- arsstaðar. En hegðanfrelsi manna takmarkast ekki eingöngu af lögum, heldur einnig af almennum siðaregl- um, hugsunarhætti og venjum. Við Islendingar miklumst mjög af forfeðrum okkar, fyrir drenglyndi þeirra, frelsisást og fleiri dyggðir. Við tölum oft um að vernda þann arf, til blessunar fyrir það þjóðfél - ag, sem við nú erum orðnir hluti af. Islenzkt drenglyndi er yfirgripsmikið orð, og gripur yfir flest það, er heyr- ir til göfugu hugarfari. Ráðvendni er einn þáttur hins forna drenglynd- is; ekki aðeins sú ráðvendni, að stela eigi fémunum, heldur en^u síður ráð- vendni í orðum og hugsunum. MSin- orðið var hin dýrmætasta eign hvers manns, Forfeður vorir vildu heldur láta lífið en mannorðið. Mannorðs- þjófurinn var í þeirra augum engu síður réttdræpur heldur en sá, sem fé- munum stal. Hver sá, sem sannleik- ann virti að vettugi, var settur í ó- drengja tölu. Við Vestur-íslendingar höfum nú eignast frelsishetjur, menn, sem ótil- kvaddir hafa tekið sig til að vernda þjóðarsómann okkar, og hinn góða orðstir, sem við höfum getið okkur í landi hér. Hafa þeir nú í heilt ár síaðið á árvökrum verði í blöð- um okkar, og almenning stórfurðað á úthaldinu. Eg er einn í tölu þeirra sem hafa horft undrandi á þessa varðsveit okkar frá byrjun, og nú siðast ekki áhyggjulaus. Það hafa komið fram í huga mínum spurningar eins og þessar: Hvar myndi “þjóðarsóminn” okkar standa í áliti hérlendra manna, ef þeir hefðu átt kost á að íylgjast með deilunum, og bardagaaðferðinni ? Og hvað myndi verða um framtíð íslenzks drenglyndis, ef þessir sjálfkjörnu leiðtogar væru teknir til fyrirmynd- ar? Hvert stefnir íslenzk blaða- mennská? A hún að verða opinber leikvöllur, þar sem óhlutvendni og slaðúrfýsn hafi mannorð einstakling anna að leiksoppi ? Erum við að Icggja ný lönd undir ríki mannrétt- inda og frelsis'? Og ef svo er, eru það þá ekki þær greinar frelsis og réttar, sem á hispurslausu alþýðu- máli myncju nefndar: kjaftœðis- frelsi og rógréttur. ) Eg hafði aldrei ætlað mér að leg'g'ja orð í deilurnar, sem staðið hafa uni heimfararmálið, né það, sem inn í þær hefir verið spunnið. Hefði heldur ekki gert það nú, nema fyrir þá sök, að nafn mitt hefir ver- ið dregið inn í þær af öðrum, í sam- bandi við hið svonefnda Ingólfsmál. Og eg held jafnvel, að eg hefði þag- að, ef ekki hefði verið dróttað að öðrum mönnum, mannorðs-meiðandi sökum, sem ég einn get borið um að eru tilhæfulausar og lognar frá rótum. Fyrir nokkru síðan birti A. B. Ol- son grein eftir sig í Lögbergi, þar sem hann segir frá samtali við séra Rögnvald Pétursson. Hafði séra R. P. talfært_við Arnljót, hvort Þjóð ræknisfélags-stjórnarnefndin myndi ekki vilja leggja fram fjárstyrk nokkurn úr varnarsjóði Ingólfs Ing- ólfssonar til lögvarnar fyrir annan mann. Kveðst A. B. Olson. hafa tekið því fjærri, en gefur í skyn að féð muni samt hafa fengist. Er KIDNEY A PIUS^ ^UkidneT^T 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin. viðurWennriu jneðujl, við bak- verk, gigt og bröðru sjúkdóm- um, og hinna mlörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfabúS um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir_$2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto 2, Ont., og senda andvirðið þangað. nd helzt að skilja á máli hans, að ein- hverjir, eða einhver, hafi átt að þröngva séra Albert Kristjánssyní og mér til að taka féð, án nefndar- samþykktar, —og því í heimildar- leysi. Talar hann mikið um myrkra: verk, og þar fram eftir götum. Séra Albert: E. Kristjánsson fannt sig meiddan af þessum aðdróttunum í og mótmælti þeim í Heimskriglu. Hr. : W. J. Lindal, lögmaður, lýsti einn- | ig yfir því, að féð hefði ekki veriS ! veitt. Þetta hélt eg að væri nægi- i legt til þess að A. B. O. myndi sanra færast um það, að ummæli hans I væru ósönn, og að hann myndi háTa j drengskap til þess að aft’urkalla þau^ opinberlega, samkvæmt áskorun séra Alberts, og biðja fyrirgefningar. En hvað skeður? Fjórða apríl keniur önnur grein frá hendi hans, og er hún birt í Lög- bergi: I upphafi greinarinnar lýsir hann yfir því, að sér “hafi veriö | kennt að elska óvini sína,” og fyrir j sögnin er: “Af ávöxtunum skuluð þér j þekkja þá.” Mún nú ekki mörgum | þykja einkennilegir ávextir elskunn- ar hjá Arnljóti, eftir að þeir hafa I lesið grein hans. Því það hygg egj að lengj megi leita, ef finna á' illmannlegra skrif. Hann japlar enn á sömu aðdróttunum og áður, 1 að öðru en því, að nú nefnir hann ekki sera Rögnv. Pétursson, en | snýst meir að hr. W. J. Lindal lög- j manni og mér. Ekki nenni ég aö j eltast við allar vitleysur Arnljóts. Það er sama tuggan sem þeir félagar þreytast aldrei á að taka hver út úr öðrum og væta í munnvatni sínu, áður en þeir smyrja henni á ný yfir síðurnar í Lögbergi. En aðdrótt- anir hans til séra Alberts, Mr. Lin- dals og' séra Rögnvalclar, í sambandi við þá hugmynd hans, að “tvö liundr uð dalir hafi verið greiddir” úr varnarsjóði Ingólfs Ingólfssonar, í því skyni sem séra Rögnvaldur á að hafa stungið upp á við hann í sam- tali því, sem áður er minnst á, eru allar tilhæfulaus heilaspuni. Eg var gjaldkeri Þjóðræknisfélagsifis þegar þetta Ingólfsmál var á döf- inni. Eg hafði varnarsjóð Ingólfs Ingólfssonar með höndum, meðan á málinu stóð. Eg 'grejddi engum manni eitt Cent úr þeim sjóði, neina þeim sem nefndih hafði samþykkt að ætti að fá borgun. Og allar j dvlgjur hr. A. B-.Olson um þessa j tvö hundruð dali, eru rakalaus ósann- indi, svo ég noti vægasta orðið. Hvorki Mr. W. J. Lindal né séra Rögnv. Pétursson minntust á þá fjar beiðni við mig með einu orði. Um séra Albert Kristjánsson og launa- kröfu mína (að henni vík ég síðar) er það að segja: að séra Albert vissi ekkert um hana, fyr en hanti Jlas upp reikning minn á nefndar- fundi, að A. B. Olson viðstóddwm, ásamt öðrum nefndarmönnum. — Frá þessu hafði eg fyrir löngu skýrt Arnljóti. Og igeta menn af þesstt séð drengskapinn, sem á'bak við að- dróttanirnar stendur. Þá vil ég mínnast fáum orðum á þau atriði í grein Arnljóts, sem snerta míg sérstakíega. Eftir að hann er búinn að hæla sér af því, hve vel bonum hafi farist snuðrið

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.