Heimskringla


Heimskringla - 08.10.1930, Qupperneq 4

Heimskringla - 08.10.1930, Qupperneq 4
 / 4. BLAÐSIÐA |ifctinslu*in0la (Sío/nuð 1SS6) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Elgendur: THE VIKING PRESS. LTD. SJ3 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsími: 86537 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist fyrirfram. AHar borganir sendist THE 'iHKING PRESS LTD. Utanáskrift til blaðsim: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. Utanáskrift til riistjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent A je., Winnipeg. "Heimskringla” is published by and printed by The Viking Press Ltd. 853-855 Sotrgent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 89 994 WINNIPEG 8. OKTÓBER 1930 Ný heimsverzlunarmiðstöð. í ágústhefti tímaritsins “Ourrent His- tory’’, skrifar J. A. Stevenson, canadiskur fréttaritari blaðsins “London Times’’, grein með ofanskráðri fyrirsögn, um Hud- sonsflóa sjóleiðina til Evrópu og þýðingu hennar fyrir heimsverzlunina. Vegna þess að greinin snertir eitt af helztu áhugamál • um íbúa sléttufylkjanna, er hún hér birt í íslenzkri þýðingu: “Miklar líkur eru nú á því, að sjóleiðin sem Henrý Hiudson fann endur fyrir löngu ,verði innan skamms lífæð viðskift- anna milli Norður-Ameríku og Evrópu. Það yrðu að minnsta kosti mikil von- brigði fyrir tvær miljónir manna í Sléttu- fylkjunum, ef sá draumur rættist ekki. í>að var jafnvel búist við, að farið yrði á þessu hausti að flytja landbúnaðar- afurðir Vestur-Canada þessa nýju leið til Evrópu. í október síðastliðið haust var skipsfarmur af kbrni héðan sendur á einu af skipum Hudsonsflóa félagsins þessa leið austur um haf og heppnaðist ágæt- lega. En samkvæmt því, er járnbrautar- ráðherra Dunning hefir skýrt frá, er lítil von til þess að sjóleið þessi verði opnuð til kornflutqinga aimennt fyr en á næsta hausti, 1931. Það hefir reynst mjög erfitt að gera járnbrautina norður til Churchill svo úr garði, að nægilega trygg væri yfirferðar með mörg vagnfermi af hveiti, vegna þess hve gljúpur jarðvegurinn er víða, því heita má að sumstaðar hafi orðið yfir kvik- syndi að fara. Þá hefir hafnargerðin þar nyrðra ekki verið neinn leikur. Að grafa álana til þess að gera innsiglinguna ör- ugga, reyndist miklu eyfiðara og kostnað- arsamara, en sérfræðingarnir ætluðu. — Óralangur aðfiutningur alls efnis, bæði í bryggjur og kornhlöður, hefir einnig taf- ið fyrír störfum. En verst af öliu er þó ef til vill þurðin á drykkjarvatni. Jörðin, er gaddfreðin, eftir að fá fet kemur nið- ur, allan ársins hring, og er það ein þraut- in, sem enn er ekki búið að leysa, hvernig birgja eigi upp með vatni, ef þarna risi lupp stór borg innan skamms. Fjarlægð- in frá hinum þéttbyggðari hlutum lands- ins gerir einnig vinnulýð erfiðara fyrir að leita þangað atvinnu. En þrátt fyrir alla þessa annmarka, er störfum flýtt þar nyrðra allt sem unnt er. íbúar Vestur-Canada virðast á einu máli um það, að það sé eitt stærsta spor- ið í velmegunaráttina ,sem hér hafi verið stígið á síðastliðnum tuttugu árum, að koma á vöruflutningum þessa leið til Ev- rópu. Hudsonsflóinn er um 1000 mílur á lengd og sex hundruð mílur á breidd. — Hann skerst svo langt inn í norðurhluta landsins að menn skoðuðu fyrrum að þeg- ar í suðurbotn hans var komið, væri ör- skammt inn að hjartapunkti vesturfylkj- anna þriggja. En þá voru menn stórhuga og færðust líka vegalengd í fang ótrauð- ari en menn gerðu eftir að járnbrautirnar komu til sögunnar. Út úr Hudsonsflóan- um er 500 mílna iangt og 100 mílna breitt sund, sem skipaleiðina vísar út á Atlants- haf. Áður en Canada varð ríki og C. P. R. járnbrautin var lögð vestur um land, var álitinn leikur einn að ferðast þessa Hudsonsfióa sjóleið til og frá Evrópu, af íbúum Vestur-Canada. Þá ieið komu hin- ir fyrstu innflytjendur hingað, er bólfestu tóku sér í Selkirk-nýlendunni. Qg um langt skeið fór ekki nokkur maður svo á milli Vestur-Canada og Evrópu, að hann færi ekki þessa sjóleið, sem í svo margra augum er nú ægileg. Þegar sléttufylkin tóku að byggjast, var það eitt af því, sem þingmannsefni Vesturiandsins urðu að gangast hátíðlega undir að iofa kjósendum, að flýta fyrir lagnfngu járnbrautar norður að Hudsons- flóa. Þá voru bændur farnir að reka korn- yrkju og stunda griparækt í svo stórum stíl, að vara þeirra nam 60 prósent af allri útfluttri vöru úr landinu. En á heims- markaðinum urðu þeir að keppa við Nýja Sjálands- og Argentínubóndann, er sjó- leiðis gátu flutt vörur sínar til markaðar og því miklu ódýrar en Canadabóndinn. Og það má fyllilega undarlegt heita, hve lengi drógst að koma á innanlands sam- göngum í Canada. lðnaður landsins var allur rekinn í Quebec og Ontario, meðfram St. Lawrence fljótinu og nægðu þær sam- göngur þar. En bændur Vesturlandsins urðu ekki aðeins að selja afurðir sínar á heimsmarkaðinum, eins fjarri og hann var og erfitt var að koma vörunni þang- að, heldur varð öl lsú vara, er þeir þurftu að kaupa, á sama hátt dýrari þeim en öðrum íbúum landsins, vegna samgöngu- leysisins hér vestra. Fram úr þe^Su raknaði nú að vísu tals- vert með lagningu járnbrautanna austan að og vestur um land. En með samkeppn inni, sem nú er orðin á heimsmarkaðin- um, hefir þörfin á brautinni norður að fióa ekki dulist. En sannleikurinn virðist sá, að í framkvæmdir stjórnanna í því efni hafi jafnan verið haidið af íbúum Austur- Canada. Loks hafa þær þó orðið að gegna kröfum Vesturlandsins, og nú er svo komið, að ekki er nema um iítinn tíma að ræða, þar til um Hudsonsflóabrautina hefst flutningur. Samkvæmt skýrslum, er nefnd sú gerði, er sambandsstjórnin sendi út af örkinni árið 1927, til þess að rannsaka allt, er að sjóleið þessari lýtur, er hægt að halda uppi ferðum um Hudsonsflóasundið í 4 mán- uði, án þess að ísbrjóta þurfi með. Og fram eftir haustinu er þar lengur hægt að halda uppi ferðum en á vötnunum eystra. Þokur hélt nefndin að ekki myndi mikill farartálmi nyrðra, með þeim útbúnaði, er nýtízku skip hafa. Nú er hveiti bóndans í Vestur-Canada sent til Englands og Evrópu annað hvort með því að flytja það til Fort William, eða til hafna vestur við haf, og sem þá fer um Panamaskurðinn. Hvor þessi ieið sem valin er, verður bóndanum dýr, vegna vegalengdarinnar. Með Hudsonsflóa leið- inni er vegalengdin stytt nokkuð, og þar af leiðandi burðargjaidskostnaður hveit- isins lækkaður. Sjóleiðin frá Montreal til Liverpool er 3,008. Frá Churchill er hún 30 mílum styttri. Er þá auðséð, að alls verður leið- in frá helztu hveitiræktarhéruðum Vest- urfylkjanna 500—1000 míiium styttri til Evrópumaijkaðaríns, ef Hudsonsflóaleið- in er farin, heldur en ef farið er um Aust- ur-Canada, því svo mikiu styttra er frá akuryrkjuhéruðunum norður til Churchill en til Montreal. Og leiðin um Panama- skurðinn er svo miklu lengri en Hudsons- flóaleiðin, að þar er ekki um neinn.sam- anburð að ræða. Hagur Vesturlandsins í heild sinni er því auðsær af Hudsonsflóabrautinni. Aftur geta vissir iandshlutar eða bæir tapað nokkru af sínum viðskiftum, eftir að flutn- ingur um hana byrjar. Winnipeg og Van- couver hljóta að tapa nokkru af sínum við skiftum, en Churchill auðvitað aftur að verða þeirra aðnjótandi. Og það verður ekki einungis hveitiflutningurinn, sem þar er um að ræða, heldur einnig innflutta iðn- aðarvaran frá Englandi, því hún verður ef- laust send Hudsonsflóaleiðina hingað, að minnsta kosti það af henni, er Vestur- landið kaupir. Pflutningur hennar, eins og hveitisins, verður ódýrari þá leiðina, og lækkar verð þeirrar vöru til bóndans. Hudsonsflóabrautin getur einnig haft á- hrif á viðskifti Bandaríkjanna. Öll norð- vesturríkin, Dakota, Minnesota, mikið af Montana, nokkuð af ríkjunum Wisconsin, Illinois, Iowa, Nebraska og Wyoming, geta stytt sér leiðina til markaðarins í Evrópu um 500 mílur, með því að nota Hudsons- flóabrautina. Og það má hiklaust gera ráð fyrir að þau geri það. Að lækka svo flutningsgjaldið leiðina austur að sjó, að það verði ekki hærra en gjaldið með Hiud- sonsflóabrautinni, mun tæplega vera hægt. Breytingin, sem þessi nýja braut er líkleg að hafa í för með sér á viðskifti Norður-Ameríku, er svo mikil, að erfitt er enn að gera sér glögga grein fyrir henni. í sambandi við þessa Hudsonsflóa sjó- leið, er knnfremur gert ráð fyrir, að jám- braut verði með tíð og tíma lögð beinustu leið frá ChurchiII til Prince Rupert á vest- lurströnd Canada, og með því sé leiðin stytt milli Evrópu og Asíu, svo að hún verði ekki nema tveir þriðju af leiðinni um Súezskurðinn, og 1500 til 2000 mflum styttri en leiðin, sem nú er farin um HEIMSKRINGLA Bandaríkin og Canada. Þeir sem utanlandsviðskifti reka í Vest- ur-Canada, líta svo á, sem viðskiftum sín- um sé heill að því, að flutningar hefjist um Hudsonsflóann. í fyrstu hlýtur þó þýðing brautarinnar að verða mest í sam- bandi við flutning korns og nautpenings -til Evrópu . En nú er það orðið víst, að Norður-Manitoba er auðugt af námum, eins og Flin Fion og Sherritt-Cordon námurnar bera vitni um . Og eignleiga er allt landið vestur af Hudsonsflóanium tal- ið ríkt af málmum, sem einhverntíma verða ef til vill unnir úr jörðu í stórum stíl og sendir til Evrópu. Þrír stærstu bank- ar í Canada hafa nú þegar útbú í Churchil! sem sýnir trú þeirra á framtíð þessara norðlægu héraða. Þegar á allt það, sem á hefir verið minnst, er litið, í sambandi við þessa fyrir- huguðu nýju vöruflutningaleið milli Norð- ur-Ameríku og Evrópu, er alls eigi úr vegi að hugsa sér, að Churchill verði ein þeirra borga, sem um er talað sem miðstöð heimsviðskiftanna, er stundir líða. l 1 Bækur. Gunnar Benediktsson: Æfi- saga Jesú frá Nazaret. Ak- ureyri 1930. Kver þetta, sem ekki er nema röskar 100 blaðsíður í litlu átta blaða broti, hef- ir vakið mikla hneykslun sumra kirkju- manna á Islandi og flestra sérkreddu- flokka. Hafa menn ausið gremju sinni óspart í blöðum og tímaritum yfir höfund- inn, séra Gunnar í Saurbæ, fyrir hinar ó- guðlegu skoðanir hans, sviksemi hans við kristna kirkju o. s. frv., og vilja láta dæma hann frá kjól og kalli, en klerkur sá tekur þessu öllu með hinní spámann- legustu ró c*g lýsir síðan yfir því í Straum- um, sem valdið hefir ennþá meiri hneyksl unum, að tíu ára prestsskaparstarf sitt hafi að miklu leyti gengið í það, að losa af sálum manna “trúarbragðaviðjar”, enda hafi þeir Jón Helgason biskup og Haraldur Níelsson prófessor eyðilagt mest allan kristindóm á íslandi, með því að andmæla friðþægingarkenningunni gömlu óskeikulleika biblíunnar og gildi trúar- játninganna, og geti nú landið yfirleitt tæplega skoðast kristið lengur. Þessi sljrif hafa valdið heimatrúboðinu og K. F. U. M. í Reykjavík óstjórnlegrar hrellingar, enda er það auðvitað óhjá- kvæmilegt, að hneykslanir verði í þeirra hópi í hvert skifti og einhverri hugsun er hreyft, sem ekki er nokkurra alda gömul. Er og heldur ómögulegt að taka nokkurt tillit til þess, enda skiftir það ekki miklu máli. En þó hefði eg kosið, að ritgerð sr. Gunnars í Straumum, hefði verið gæti- legar skrifuð, svo að hún hefði síður átt á hættu áð verða misskilin. Því að enda þótt allir sangjarnir menn skilji það auð- vitað undireins, að þau “trúarbrögð”, sem séra Gunnar á við, eru skýrgreind sem kreddufesta aðeins, þá er það þó mikið vafamál, hvort rétt sé að gefa orðiniu þá merkingu eina. Frá sögulegu sjónarmiði má það til sanns vegar færa. En frá trú- fræðilegu sjónarmiði verður sú merking of þröng. Frá því sjónarmiði má ef til vill færa flestar hugmyndir manna og skoðanir undir trúarhugtakið, hvað svo sem trúin er kölluð, og jafnvel vísindin og jafnaðarstefnuna. Að rússneska bylt- ingin sé gagnsýrð af trúarbrögðum, mun örðugt að ‘neita, þegar til hinnstu rök- semda kemur. Svo að einnig í jafnaðar- stefnu séra Gunnars og túlkun hans á Jesú Kristi sem jafnaðarmanna foringja, eru fólgin trúarbrögð, þótt víða skerist þau í odda við margt af hinum arfgenga kristindómi. Þess vegna er sjálfsblekking nokkur fólgin í þeírri hugmynd hans, að hann hafi ásamt hinum ágætu prófessor- um verið að höggva af mönnium “trúar- bragða viðjar’’ fyrir fullt og fast. Hann hefir verið að reyna að leitast við, eins og góðum kennimanni sæmir, að útrýma gömlum trúarhugmyndum, er hann hefir annaðhvort talið rangar eða úreltar, en boða aðrar nýrri í staðinn, sem hann hyggur sannari og heilsusamlegri þessari öld. Og þetta tel eg kristilega kemrimensku, að því leyti sem eg efast ekki um að hon-r um hafi gengið þar til hvöt hreinlyndis og sannleiksástar. Hefir hann borið fram úr sjóði hjarta síns þær trúarskoðanir. sem hann hefir álitið beztar og heilla- drýgstar, og er sú kennimennska allrar virðingar verð. Um hitt má deila til eilífð- ar, hver skoðun eða hver trú sé réttust, og að hve miklu leyti hverjum kenni- manni heppnast að leiða hugsanalíf og trúarþrá sinna samtfðarmanna til farsæls árangurs. Bók séra Gunnars, sem rituð er út frá “trúarskoðun” jafnaðarmennsk- unnar hefi eg haft miklu meira gam- an af að lesa en fjölda margar Krists æfisögur aðrar, enda þótt eg sé höf. mjög víða ósammála og telji það Iitlum efa orpið, að margar ályktan- ir hans muni lítt standast hina svo- nefndu vísindalegu gagnrýni. Margt af þvi, sem hann færir þeirri höfuð- kenningu sinni til stuðnings, að Jesús hafi endað sem uppreisnarmaður á sviði þjóðmálanna, grípur hann ein- mitt úr þeim ummælum, sem biblíu- gagnrýninni þykir líklegast að hafi orðið til á ofsóknatímum frumkirki- unnar. Þó eru margar athuganir .smellnar og gáfulegar, þótt aðrar séu fljótfæmislegar að sama skapi, t. d. það, að Jesús setji ekki eina ein- ustu kenningu sína fram sem trúar- skoðun. Slíkt nær auðvitað engri átt, því að öll hans kenning var trú- arskoðun og líf hans fyrst og fremst trúarlegs eðlis. En hinu get eg ver- ið höfundi samþykkur í, að mörg rök hnígi í þá átt, að einhver stórkostleg breyting hafi verið komin á trúar- líf hans undir hið síðasta. Guðshug- mynd hans virðist mér yfirleitt hafa stungið óendanlega miklu meira í stúf við allt, sem almenningur skildi á þeim dögum, en almennt hefir ver- ið álitið. En að guðsríkishugmyndir hans hafi þá fallið i ljúfa löð við jarðneskustu og frumstæðustu skoð- anir gamlatestamentis tímanna á þvi efni, virðist mér vera furðu mik- il fjarstæða. Jesús var einmitt alinn upp í þeim hluta landsins, þar sem andlegustu guðsríkis- og Messíasar- hugmyndirnar höfðu þróast. Fer því fjarri að bók þessi, þótt hún sé á margan hátt sniðuglega saman tek- in, haggi á neinn hátt þeirri skoðun, sem flestir fræðimenn í þessum efn- um munu hallast að, og guðspjöllin líka skýra sjálf frá, að Jesú hafi aldrei dulist það eitt augnablik eft- ir að hann sneri til Jerúsalem, að hann færi þangað til að deyja. Eru meiri líkindi til að ímynda sér, að hann hafi tekið að hugsa undir það síðasta, að ef til vill mundi hann á þann hátt einn geta öðlast Messías- artignina, sem opinberunarrit Sið- gyðingsdómsins dreymdi um, þ. e. hina ofurmannlegu dýrð þess manns sonar, sem kom í skýjum himinsins. og þann hugsunarþráð hafi svo læri- sveinar hans gripið, þegar Jesús birt- ist þeim framliðinn ,og sömuleiðis Páll, sem alltaf vænti endurkomunn- ar á hverri stundu. Ekkert af þess- um atriðum reifar sérá Gunnar eða rökræðir í bók sinni til nokkurrar hlítar, heldur einblinir á slitróttar frásagnir, helgisögum blandaðar um innreið hans í Jerúsalem. Að gyð- inglegur rabbi ferðast um með flokk manna var vitanlega engin nýlunda, og allra sizt um páskahátíðina, þeg- ar fólk sótti úr öllum áttum til must- erisins, og er því algerlega ástæðu- laust að setja þessá frásögn í sam- band við nokkum liðssafnað, her- mennsku eða umsát. Til þess gat varla komið, að svo fyrirferðarmikill atburður, sem séra Gunnar vill gera úr "umsát' Jesú um Jerúsalem og öllum her- brögðum hans þar, hefði getað dott- ið úr Gyðingasögu Flaviusar Jósef- usar, þar sem það hefði þó átt að vera heimildarmönnum hans í fersku minni. Svo að sagnfræðilega mun varla kenhing séra Gunnars hljóta viðurkenningu fyrst um sinn. Ann- ars eru sagnirnar um Jesú vafðar svo miklu fornaldarmyrkri, að örð- ugt er að átta sig á þeim sögulega þræði ,sem til grundvallar liggur. — Þess vegna þykist hver trúarflokkur og þar á meðal jafnaðarmenn, geta fundið sinni skoðun stuðning í orð - um hans og ummælum og frásögn- inni um hann. Það er mála sannast að Jesús hefir fyrst og Jremst haft þýðingu sem trúarleg persóna og fyr- ir kenningar sínar, en hver saga hans var, verður seint skorið úr til full- nægjandi hlítar, nema einhverjar al- veg nýjar heimildir komi fram í dagsljósið. En einmitt af því að hann er , og hefir verið trúarleg persóna fyrst og fremst, þá þarf engum illt við að verða, þó jafnaðarmenn sjái jafnaðarmann í honum og boði hann sem slíkan. Ástæðulaust virðist mér vera að gera nokkurn gauragang út úr því. Það sýnir aðeins enn greini- legar hið undursamlega vald hans yf- ir hugunum, og að svo ma^gir fletir eru á kenningum hans, að allir geta tekið hann fyrir leiðtoga sinn og frelsara, jafnvel þeir, sem eigi vænta neins annars meira en jafnaðarritys - ins á jörðu. Hygg eg að fleirum en mér þyki gaman að lésa bækling þenna. Frá- sögnin er öll lipur og alþýðleg og ýmiskonar fróðleikstínlngur í bók-- inni, sem alþýðu manna er að jafn- aði ekki kunnugt um. B. K. Ragnar H. Ragnar hefir opnað hina nýju kennslustofu I Ste. 4. Nor- man Apts., að 814 Sargent Ave., rétt í skakkhom frá Rose Theatre. Býður hann vinum og nemendum velkomið að líta á sína nýju íbúð og hljóðfæri. WINNIPEG 8. OKTÖBER 1930 í fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfjá- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto, Ont., og senda andvirðið þangað. S I N D U R. Vér gátum þess nýlega, þegar vér vorum að bera i bætifláka fyrir Lög- bergi fyrir meðferðina á dr. Sig. Júl. Jóhannessyni, að því væri eins farið með ritstjóra að blaði, eins og skip- stjóra á skipi, sem ráðinn er til þess að sigla skipi sínu á vissar hafnir til þess að leysa ákveðin viðfangsefni af höndum, hann hefði enga heimild til að breyta um stefnu eða starfsemi, án vilja þeirra, er eign og útgerð skipsins hafa með höndum. Hann getur sagt upp stöðunni ef “hún er honum ógeðfeld af einhverjum orsök- um; en að fara þveröfugt við það, sem er vilji og tilætlun þeirra, er skipið hafa i förum, er ekki einungis fíflska heldur brot á allri viðskifta- velsæmi. Hver maður, sem þannig fer að ráði sínu, hlýtur að verða rek- inn, samkvæmt öllum venjulegum og sanngjörnum viðskiftalögmálum. Til þess að skilja þetta, sýnist ekki þurfa neinar framúrskarandi gáfur, ef dómgreindin er ekki blinduð a£ ofstæki. Dr. Sigurður Júl. viður- kennir í síðasta Lögbergi, að hann skilji þetta ekki. Hann hefir með öðrum orðum ekkert lært síðan hann var rekinn frá Lögbergi. • • • Annað mál er það, hvoH. það sé sæmilegt af ritstjóra, að taka að sér stjórn þess blaðs, sem fylgir þeim stjórnmálaflokki, er ekki í hverju ein asta atriði falla saman við hans per- sónulegu skoðanir. Vér svörum því hiklaust játandi, að það geti verið i alla staði heiðarlegt. Yfirleitt telj- um vér það glópaldahátt, en ekki skynsamra eða siðaðra manna æði, að einn maður geti nokkru sinni fylgt öðrum f hjarta sínu algerlega skil- yrðislaust. Blint fylgi er verra en ekkert fylgi, því að sá maður, sem þannig fylgir stjórnmálaflokki, legg- ur ekkert til af skynsamlegum rök- um, til viðbótar við það, sem áður var til. Þess vegna teljum vér, að sá maður, sem ekki getur gerst rit- stjóri nema að finna það í hjarta sínu að hann sé raunverulegt flokks- þý, hann sé naumast á marga fiska. Af honum geti einskis verið að vænta neinu málefni til gagns eða stuðn- ings, af því að hann er aðeins of- stækisfullt bergmál af skoðunum annara. Þótt undarlegt megi virð- ast, kemur ofurlítil glæta af skiln- ingi fram á þessu í hugsanafálmi doktorsins sjálfs. En það er allt saman vafið í fjötra flokksofstækis- ins, svo að það notast að engu og rennur saman við hina venjulegu hugsanaþoku. Innst í djúpum sálar hans kemur upp þrá til þess að vera ekki algerlega blint flokksþý liberala flokksins, þvi að hann hefir einhverja óljósa hugmynd af, að honum sé það ósæmilegt. En raunar virðist þó þetta fálm hans vera meira sprottið á trú hans á jafnaðarstefnuna en hokkuð annað. Flokksofstækið kem- ur i ljós í þvi, að honum finnst hann þurfa að sækja um þeið eins og ein- hverja náð, að hafa sannfæringu út af fyrir sig. Slíkir hlutir detta aldrei frjálSt hugsandi mönnum í hug, sem hafa óháðar og ofstækislausar skoð- anir í raun og veru. Enginn býður þeim eðá boðar, hvað þeir mega hugsa eða segja. Hugsanir þeirra streyma óháðar og óhindraðar af öll- um flokkum eða stefnum. Og ein- mitt þetta gerir það að verkum, að þeir hafa betri dómgreind en aðrir. Sjónarmið þeirra á stjórnmálum og stjórnmálamönnum verða allt önnur yfirleitt. Þeir taka ekki stjórnmál eins hátíðlega eins og flokksþýin gera í skilningsleysi sínu. Þeim dett- ur ekki í hug svo fávísleg og barna- leg hugmynd, að einn stjórnmála flokkur ráði yfir öllu bjargræði og sannleika. öll stjórnvizka manna er fálm, sem enn er komið skammt á veg. Enginn flokkur hefir enn get-

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.