Heimskringla - 10.11.1931, Blaðsíða 5
WINNIPEG 10. NÓV. 1931.
HEIMSKRINGLA
5. BLA1>SÍÐA
En ennþá stendur mannkyn-
ið á þessu stigi villimenskunn-
ar, að geta ekkert lært af
glappaskotum sínum. Ennþá
halda jafnvel ýmsir mikilsvirtir
stjórnmálamenn því fram, bæði
leynt og Ijóst, að stríð sé helzta
úrlausnin til að létta af at-
vinnuleysi og fjárhagslegri
kreppu. Þess vegna er stríðs-
guðinn sá eini guð, sem örlát-
lega er fórnað, og ekki séð i
skildinginn við. Það hefir verið
fárast yfir hinni geysilega miklu
fátækraframfærslu og atvinnu-
leysisstyrkjum á Englandi, sem
nema um 250 milj. dollara á
ári ,og vitanlega væri það fyrir
flestra hluta sakir æskilegra.
að atvinnumálum og skiftingu
auðsins væri þannig fyrir kom-
ið, að þessir atvinnuleysisstyrk-
ir gætu fallið ifr sögunni. En
samt sem áður er þetta meira
en helmingi lægri upphæð en
sú, sem Englendingar verja til
herbúnaðar, og enginn fárast
yfir. Hvemig stendur á þessu?
Er mönnum það svona mikið
ljúfara að eyðileggja, heldur en
byggja upp? Eða er þetta aðeins
ein sönnun fyrir því, hversu ótt-
inn og ágirndin eru ennþá mikið
sterkari öfl í þjóðfélögunum,
en fómfýsin og góðvildin?
Nú er einn friðarfundurinn
enn ákveðinn í Genf í febrúar
næstkomandi, en fæstir munu
búast við nokkrum árangri af
honum. Menn eru yfirleitt hætt-
ir að trúa á þetta afnvopnunar-
hjal, sem altaf hefir leitt til
meiri herbúnaður aðeins. —
En allir hinir vitrustu menn
sjá þó glögt, hvert stefnir. Og
þeir eru jafnvel teknir að ótt-
ast, að yfir muni Ijúka með allri
hinni vestrænu menningu, ef
mannkynið fari ekki að ranka
alvarlega við sér og hverfa frá
öllum þessum fábjánaskap. —
“Ef þjóðirnar fara nú ekki mjög
bráðlega að sjá sér þann kost
vænstan, að leggja niður vopn-
in til að forða sér frá algerðri
eyðileggingu,” segir einn af rit-
höfundum Bandaríkjanna ný-
lega, “þá er komin full ástæða
fyrir apana að andmæla þróun-
arkenningunni.”
En hver getur þá helzt orðið
bjargarvon vor og leiðarstjama
til baka frá refilstigum þeim,
sem vér erum nú komin á?
Vér þurfum fyrst og fremst
að skilja, í hvert óefni komið er
og hætta því að vefja heðni
blekkingarinnar um höfuð vor,
og bama vorra, með því að
gylla glæpi menningar vorrar í
augum þeirra og ímyndun strax
á unga aldri, svo að þeir verði
að dygðum í trú þeirra. Þó að
Bandaríkjamenn ali t. d. upp
börn sín undir heraga og telji
þeim samt trú um, að þjóðin sé
biest friðelskandi í heimi — þá
skilja aðrir hvar fiskur liggur
Undir steini og sjá hispurslaust
í þeim hina mestu ófriðarhættu
nútímans. Auðséð er, hvílíka
bölvun sjálfsblekkingin leiðir yf-
ir alla þjóðina. Það er búið að
teyma alþýðu manna út í stríð
áður en hún veit af í nafni fag-
Urra hugsjóna — af því að hún
ekildi ekki í tíma hvert stefndi,
né hafði siðferðislega hrein-
skilni til að kannast við það og
íhuga með sjálfri sér, hvort sú
stefna væri heillavænleg. Og
Þannig er ástandið um heim
ullan.
En þótt hægt sé að kenna
hiönnum að skilja, þá er samt
ehki með því grafið fyrir rætur
úieinsins. Þjóðirnar verða á
hakaleiðinni til “eilífs friðar”
^hifram alt að losa sig við tvo
^Örunauta, sem verstir leiðtog-
ar hafa verið, og það er ágirnd-
'n og óttinn.
Þetta eru þær óvættir, sem
vsrið hafa Charybdis og Scylla
^ öllum leiðum, og hafa vilt alla
Vegu skynsemdar og góðvildar
* tröllahendur. Og áður en
beim er fyrirkomið, er einskis
íriðar að vænta.
En hvar verður þessu komið
til leiðar?. Mér detta í hug að-
sins tvær stofnanir, sem líkleg-
ar eru til að geta upprætt úr
hugum barna og unglinga á-
girndina og óttan og allan þann
hugsunarhátt, sem af því leiðir,
og það eru skólamir og kirkj-
an. Vér vitum hvernig skólarn-
hafa brugðist þessu hlutverki,
og hvernig kirkjan hefir einnig
bmgðist. Hvers vegna þannig
hefir farið, er í sjálfu sér ekki
örðugt að skilja, því að þetta
eru stofnanir þjóðfélaganna, er
endurtúlka aðeins lífsskoðanir
þeirra. Það er að minsta kosti
eðlilegt, að skólarair litist af
tilhneigingum og lífsstefnu
þeirrar kynslóðar, sem heldur
þeim við, enda þótt þeir eigi að
vera blóminn af vitsmunalífi
hennar, og þess vegna fremur
til leiðbeiningar en hrösunar.
En kirkjunni er hins vegar eng-
in bót mælandi, þegar hún styð-
ur hernaðarstefnuna, af því að
hún er beinlínis stofnuð utan
um hugsjón kærleikans og
bræðralagsins. Með því að
hallast að hermenning vorra
tíma, svíkur hún þess vegna
mannsins son með kossi, eins og
Júdas gerði forðum daga, þeg-
ar hann kom með herliði, til að
láta handtaka og krossfesta
höfðingja friðarins.
Kirkjunni er engin bót mæl-
andi, ef hún svíkur þá stefnu,
sem nú og æfinlega hefir verið
einasta bjargarvon mannkyns-
ins. Því að ef hugur vor frels-
ast ekki til trúar á Krist og
hans lífsstefnu hér á þessum
stað, þar sem þó einhver vís-
vitandi viðleitni er til þess höfð,
þá gerir hann það ekki annars-
staðar. Og þá erum vér glötuð
þjóð. Svo mikið er undir því
komið, að kirkja vor sé það,
sem hún á að vera, kirkja
Krists, en ekki leikfang Þórs og
annara heiðinna goða.
Og þegar vér skygnumst um,
nú meðan friðurinn er þó að
nafninu til, skygnumst um á
kumblum allra þessara píslar-
votta hernaðarins, finst oss þá
ekki að nógu margir hafi ver-
ið krossfestir þegar, eða þarf
að krossfesta Jesú Krist um all-
ar aldir, til þess að vér getum
séð, að hans trú og hans hug-
sjón er vor einasta bjargarvon,
vor einasta leið til baka frá fá-
vizku vorri og hörmungum?
í síðustu bók ritningarinnar
er talað um Krist á máli trúar-
innar eins og þann, sem geymi
lykla dauðans og heljar og sé
einn fær um að opna dyrnar,
svo að enginn ^eti lokað. Það
er talað um baráttu og sigur
og þann her, sem sigra muni
að lokum, og það eru þeir, sem
fylgja vilja lambinu, hvert sem
það fer. Þetta er líkingamál.
En mun ekki sá, sem ritað hef-
ir þessi orð, hafa skygnst eins
djúpt í rök lífsins og nokkur
heimspekingur nútímans?
Mun það ekki vera svo enn
í þessum heimi, að refar eigi
sér greni, en mannsonurinn eigi
hvergi höfði sínu að að halla?
Og hver af oss er þá reiðubú-
inn að segja með hinum trúaða
lærisveini: Herra, eg vil fylgja
þér hvert sem þú fer? En sá
maður, sem segir þetta í ein—
lægni, hann er kominn inn á
veginn, sem liggur til baka til
lífsins.
VETRARFLUG YFIR ÍSLAND
TIL EVRÓPU.
örskömmu eftir að víst þótti,
að þeir félagarnir Parker Cra-
mer og samfylgdarmaður hans
hefði farist, var það gefið til
kynna af sama félaginu, sem
kostað hafði ferð þeirra, að aðr-
ir menn væri ráðnir til nýrrar
farar í sömu sporin. Hét flug-
maðurinn Preston en vélstjóri
og loftskeytamaður Collington.
Þeim byrjaði seint lengi vel,
og dögum og jafnvel vikum sam
an heyrðist ekki annað af flugi
þeirra en það, að þeir væri að
sveima fram og aftur yfir aust-
urströnd Norður-Canada. Og
síðast var sú fregn birt í öllum
heimsblöðunum, að Preston
þætti svo áliðið hausts, að hann
hefði hætt við ferðina í þetta
sinn og myndi bíða þar til vor-
aði.
Þessi fregn er ósönn, ef trúa
má tíðindamanna “Associated
Press”, sem hefir haft tal af
þeim félögum norður á Labrador
Væri varlegt að trúa þessum
fregnum, samt sem áður, ef
ekki hefði samtímis borist fregn
ir frá flugfélaginu sjálfu, sem
styðja þá umsögn, að mennimir
sé alls ekki hættir við flugið
eða snúnir aftur, heldur hafi
þeir tafist og ætli sér að fljúga
norðurleiðina, “hvort heldur
verði í september eða alt til
desember." ftarlegt skeyti um
þ?sar ráðagerðir er sent Dan-
anum Peter Freuchen Græn-
landsfara, sem fór vestur um
haf í sumar sem leið, að boði
þessa félags, til skrafs og ráða-
gerða um málið. Var hann
kvaddur þangað vegna þess, að
hann mun manna gunnugastur
á Vestur-Grænlandi. En eng-
in íslendingur var kvaddur til,
og má ráða af því, að ísland
sé enginn þyrnir í augum flug-
manna á norðurleiðinni, heldur
að eins Grænland.
Peter Freuchen segir, að til-
efnið til orðrómsins um, að þeir
félagar hafi snúið aftur, sé það,
að þeir hafi orðið að snúa við
á leiðinni, eftir að hafa beðið
árangurslaust í Port Harrison
á Labradorskaga eftir eldsneyti
til áframhalds. Hafi þeir haldið
áfram norður með ströndinni
þaðan en séð ,að farið var að
snjóa, og þess vegna þótst verða
að hafa betri útbúnað í ferðina
áfrarn, en þeir höfðu gert ráð
fyrir í sumarferðalag. Þess
vegna hafi þeir snúið aftur
bæði vegna eldsneytisforðans
og eins vegna þess, að þeim
þótti vissara að hafa skiði und-
ir flugvélinni. Því að þeir þótt-
ust vita — sem satt er — að
úr því að Canada slepti, væri
ekki hægt að ná í meiða undir
flugvélina, eða aðrar tilfæring-
ar, þangað til kæmi til íslands.
Því að allir flugmenn búast við
því, að hér á landi fáist öll
tæki til þess að endurbæta það,
sem á þykir skorta.
Ekki þykir þeim flugmönn-
unum neinum vandkvæðum
bundið að ráðast í flugið þó að
veðurskeyti séu ófullkomin frá
Grænlandi. Þar kveður við
sama tón og hjá fyrirrennurum
Prestons, Parker Cramer og
samferðamanni hans, að þeir
séu háðir vélinni sinni en ekki
veðurskeytum. Og það sama er
grundvallaratriði hjá hinu ríka
ameríska félagi, sem gerir för-
ina úr garði — þá aðra í röð-
inni — eftir að sú fyrri lenti á
slóðum, sem flugmenn fara um
nær því daglega, en lenti þó í
hafinu og mennirnir druknuðu.
Oss íslendingum má þykja
virðingarverður áhugi þessa fé-
lags, sem vill sýna og sanna al-
heimi, að norðurleiðin sé sú
besta. En hins vegar hlýtur oss
að skiljast, að aðferðin er ekki
rétt. Því hefir hingað til verið
haldið fram, að það sem flug-
manninum væri nauðsynlegast
væri einmitt veðurfregnirnar.
Það má heita sannanlegt, að
Parker Cramer flaug út í veð-
ur, sem varð honum og félaga
hans að fjörtjóni, einmitt vegna
þess, að hann lítilsvirti ekki að
eins veðurfregnirnar heldur Iík*a
veðrið sjálft. íslendingar, sem
hafa áhugamáls að gæta, þar
sem viðleitni ameríska flugfé-
lagsins er, munu óska þess ein-
huga, að Ameríkumenn vildu
skilja og hagnýta sér, að engin
mannlegur máttur ræður við
veðrið.—Vísir.
Hesturinn beit dýralækninn.
í fyrra dag var Hannes Jóns-
son dýralæknir að skoða hest,
er Gunnar Ólafsson bifreiðar-
stjóri á, sá, er ekur læknabif-
reiðinni. Var Hannes búinn að
skoða hestinn og var kominn í
næsta bás og farinn að þvo sér
um henduraar. Kemur þá hest
urinn með hausinn yfir beizluna
og bítur í hendina á Hannesi.
Venjulega þegar hestar bíta
sleppa þeir strax aftur, en svo
var ekki um þennan hest. Hann
snéri uppá. En Hannes veit
hvernig á að snúa sér að hest-
um og gaf klárnum með vinstri
hendi högg beint framan á
snoppuna og annað til, og slepti
hann þá.
Hestur þessi er laungraður,
en hefir aldrei áður sýnt svona
fantaskap af sér.
Hannes er með hendina í
fatla. —Alþbl.
• • *
Akureyri 26. sept.
660 hundruð hestar hafa ver-
ið fluttir út í sumar. Flestir
þeirra hafa verið seldir til Dan-
merkur.
• • •
Rvík 7. okt.
Prófessor Alexander Jóhann-
essyni hefir verið boðið að flytja
tvo fyrirlestra við háskólann í
Berlín í vetur, um íslenzk efni.
• • •
Rvík 20. nóv.
Norður á Grýtubakka vildi
það til nýlega, að nokkrir ali-
refir sluppu úr varðhaldi. Tókst
að skjóta tvo þeirra, eftir því
sem fregnir frá Akureyri herma
en einir 4 eða 6 náðust ekki.
• • •
Rvík 10. okt.
Kaupdeila kom upp á Hvamms-
tanga fyrir nokkrum dögum út
af vinnu við Brúarfoss. Vildi
stjórn verkamannafélagsins fá
10 aura kauphækkun á klukku-
stund og forgangsrétt fyrir fé-
lagsmenn að fram- og uppskip-
unarvinnu hjá kaupfélaginu.
En nú undanfarið hafa bændur
sjálfir unnið að þessu eftir
megni, enda ekki þótt af veita,
í því verðhruni, sem framleiðsla
bænda hefir orðið að sæta. —
Stjórn verkamannafélagsins á
Hvammstanga sneri sér til
verkamálaráðsins í Reykjavík,
og lagði það afgreiðslubann á
Brúarfoss, þar eð hann hefði
tekið vörur á Hvammstanga.
Jafnframt tilkynti verkamála-
ráðið ríkisútgerðinni, að af-
greiðslubann yrði lagt á strand-
ferðaskipin, ef þau settu vörur
í land eða tækju vörur á
Hvammstanga. Bæði ríkisút-
gerðin og Eimskipafélagið litu
svo á, að þeim væri kaupdeila
óviðkomandi. Þegar Brúarfoss
kom til Akureyra, var hann af-
greiddur, og reyndu engir þar
til að hindra það. í fyrradag
var Súðin á Hvammstanga og
skyldi meðal annars flytja fros-
ið kjöt til Reykjavíkur. Um
það leyti, sem afgreiðsla skips-
ins var að byrja, fengu háset-
amir á Súðunni sl^eyti frá
stjórn Sjómannafélags Reykja-
víkur um að hætta vinnu við
afgreiðsluna, og urðu þeir við
þeirri áskorun, enda eru þeir
í Sjómannafélaginu. Hélt þá
skipið áfram til Borðeyrar. En
í morgun komust sættir á í
vinnudeilunni, og er Súðin af-
greidd á Hvammstanga í dag.
• • •
Rvík 10. okt.
Guðgeir Jóhannsson kennari
hefir látið af starfi sínu við
kennaraskólann og er tekinn
aftur við sínu fyrra starfi við
héraðsskólann á Eiðum. Munu
Austfirðingar fagna afturkomu
Guðgeirs að Eiðaskóla, því að
hann var þar hvers manns hug-
ljúfi.
• m m
Rvík 10. okt.
Heybruni varð í Austurhlíð
við Reykjavík aðfaranótt þriðju
dagsins 6. þ. m. 1 hlöðunni voru
800—900 hestar af heyi og
mun bruninn hafa orsakast af
hita í heyinu sjálfu. Slökkvi-
liðið var kallað á vettvang og
tókst að slökkva eldinn, en
skemdir urðu þó mjög miklar.
Heyið var eign Guðmundar Ól-
afssonar í Austurhlíð, en hlöð-
una átti Carl Olsen stórkaup-
maður.
• • •
Rvík 10. okt.
11 Rússlandsfarar tóku sér
far héðan með Goðafossi áleið-
is til útlanda 6. þ. m. Eru þeir
boðnir af ráðsstjórninni til mán-
aðardvalar ókeypis í Rússlandi
til að kynnast fimm ára áætl-
uninni og öðrum tíðindum þar.
Hefr kommúnistaflokkurinn hér
haft milligöngu um þessa utan-
för, en meðal Rússlandsfaranna
munu vera menn af öllum
E
FÞ
ÉRS ,
KULD
IÐFYR
IRBLAÐ
IÐÞÁB
ORGI
ÐÞA
ÐN
flokkum. Tíminn.
Ú
! I
i
BIRKS
i DIAMONDS
| BIRK’S BUILDING
i '
QUALITY FOR QUALITY WE INVITE
COMPARISON OF OUR PRICES
k-ommommommoM
Mxmmommommo-i
Innköllunarmenn Heimskringlu:
r CANADA:
Árnes.................................. F. Finnbogason
Amaranth .............................. J. B. Halldórsson
Antler....................................Magnús Tait
Árborg...................................G. O. Einarsson
Baldur............................................Sigtr. Sigvaldason
Belmont .................................... G. J. Oleson
Bredenbury................................H. O. Loptsson
Beckville ............................. Björn Þórðarson
Bifröst ..............................Eiríkur Jóhannsson
Brown .. .. .. .. ,, *. *. «* *».***...... T h o r s t. J. Gíslason
Calgary............................... Grímur S. Grímsson
Churchbridge...........................Magnús Hinriksson
Cypress River............................Páll Anderson
Ebor Station..............................Ásm. Johnson
Elfros..............................J. H. Goodmundsson
Eriksdale .............................. ólafur Hallsson
Framnes................................ Guðm. Magnússon
Foam Lake..................................John Janusson
Gimli........................................B. B. ólson
Glenboro...................................G. J. Oleson
Geysir..................................Tím. Böðvarsson
Hayland................................Sig. B. Helgason
Hecla.................................Jóhann K. Johnson
Hnausa..........n .....................Gestur S. Vfdal
Húsavlk...................................John Kernested
Hove.....................................Andrés Skagfeld
Innisfail ........................... Hannes J. Húnfjörð
Kandahar .............................. S. S. Anderson
Kristne8...................................Rósm. Árnason
Keewatin...............................Sam Magnússon
Leslie..................................Th. Guðmundsson
Langruth ................................Ágúst Eyólfsson
Lundar .................................... Sig. Jónsson
Markerville .......................... Hannes J. Húnfjörð
Mozart, Sask............................... Jens Elíasson
Nes.........................................Páll E. IsfeM
Oak Point................................Andrés Skagfeld
Otto, Man...................................Björn Hördal
Poplar Park.............................Sig. Sigurðsson
Piney....................................S. S. Anderson
Red Deer ............................. Hannes J. Húnfjörö
Reykjavík................................... Árni Pálsson
Riverton .............................. Björn Hjörleifsson
Silver Bay . — ...............•••*..____ ólafur Hallsson
Swan River............................. Halldór Egilsson
Selkirk..................................... jón Ólafsson
Siglunes...................................Guðm. Jónsson
Steep Rock ................................ Fred Snædal
Stony Hill, Man.......... .................Björn Hördal
Tantallon.................................Guðm. ólafsson
Thomhill..............................Thorst. J. Gíslason
Víðir....................................Aug. Einarsson
Vogar....................................Guðm. Jónsson
Vancouver, B. C........................ Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis............................August Johnson
Winnipeg Beach.........................John Kernested
Wynyard.................................F. Kristjánsson
f BANDARÍKJUNUM:
Akra ....................................Jón K. Einarsson
Blaine, Wash............................... K. Goodman
Bantry................................. E. J. Breiðfjörð
Cavalier ............................. Jón K. Einarsson
Edinburg................................Hannes Björnsson
Garðar...................................S. M. Breiðfjörð
Grafton..................................Mrs. E. Eastman
Hallson................................. Jón K. Einarsson
Ivanhoe..................................G. A. Dalmaún
Milton...................................F. G. Vatnsd&l
Mountain..............................Hannee BJörnsson
Minneota................................G. A. Dalmarm
Pembina...............................Þorbjöm Bjarnarson
Point Roberts........................Sigurður Thordarson
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold ............................... Jón K. Einarsson
Upham................................. E. J. Breiðfjörð
The Viking Press, Limited
Winnipeg, Manitoba