Heimskringla - 10.08.1932, Síða 1

Heimskringla - 10.08.1932, Síða 1
AMAZINC NEWS PHONE 37 266 DRESSES Any klnd AT ^ Beautifully MJjl’ Dry Cleaned Pgi'tKs MEN! YOUR CHANCE RegiHar|!SU|Tg Dry Cleaned / UQ * ¥ * ¥ Service and Smartly Pressed PHONE 37 3«6 PeptKs XLVI. ÁRGANGUR. WINNIPEG MIÐVTKUDAGINN 10. ÁGÚST 1932. NÚMER 46 TIL . SÉRA BENJAMÍNS KRISTJÁNSSQNAR við burtför hans og konu hans frá Winnipeg til íslands 8. ágúst 1932. Þú komst til vor með íslands frjálsa anda sem er og verður réttur landnemans. Þú leitað hafðir lífsins furðustranda með ljós hins sanna, góða og vitra manns. Þú komst til vor með íslands heilu hljóma. Hin helgu ljóð vors kæra föðurlands, er sorg og gleði hjartans enduróma sem unjlirspil við söngva meistarans. • Þú komst til vor með fjallaloftið ljúfa og landsins aldna þunga strauma nið. Þú lönd vor hugðist plægja, ryðja, rjúfa hið rétta og sanna þoldi enga bið. Þó stopult sé að treysta á akuryrkju þá andar lífið gegn um kalinn svörð. Og svo er það með framtíð frjálsrar kirkju að frækorn hennar síðar rísa úr jörð. Þökk sé þér vinur sifji Sögu og Braga sáðmaður góði er dvaldir meðal vor. Og leiddir strauma um vora heima haga sem hrestu að nýju íslenzkt fjör og þor. Já far þú vel til átthaganna aftur haf ástarþakkir fyrir liðna stund. Nú heim þig leiði lífsins mikli kraftur og lifðu sæll á vorri feðragrund. S. E. Björnson. SÉRA BENJ. KRISTJÁNSSON OG KONA HANS LEGGJA AF STAÐ TIL ÍSLANDS. Klukkan hálf sjö í gærkvöldi, lagði séra Benjamín Kristjáns- son og kona hans af stað heim til íslands. Fara þau alfarin. Ferðinni mun heitið til Eyja- fjarðar fyrst um sinn, en þar búa foreldrar og skyldfólk séra Benjamíns. Hvort að þau setj- ast þar að eða í Reykjavík, er ekki afráðið ennþá. Til Winnipeg komu Mr. og Mrs. Kristjánsson fyrir tæpum 4 árum. Hefir séra Benjamín verið prestur íslenzka Sam- bandssafnaðarins í Winnipeg öll þau ár er hann hefir dvalið hér vestra. Hefir hann þótt ágætur prestur og ræður hans hafa ver- ið rómaðar mjög fyrir bæði djúpsæi hugsana er í þeim hefir komið fram og fegurð máls og framsetningar. S. 1. mánudag var prestshjón- unum haldið skilnaðar-samsæti. Var það hið fjölmennasta. Voru þar margar ræður haldn- ar og kvæði flutt. Birtast þær ræður í þessu blaði, er skrifaðar voru, og með því að í þeim er all rækilega minst á starf séra Benjamíns hér vestra, látum vér þá frásögn nægja. En á meðal annara er til máls tóku, skal nefna séra G. Árnason, Mrs..R. Pétursson, séra Philip Péturs- son, Guðmund Eyford og Mrs. F. Swanson o. fl. Kvæðin er presthjónunum voru flutt, eru og birt í þessu blaði, nema kvæði Þorst. Þ. Þorsteinssonar skálds. Æskti hann að birta ekki kvæði sitt að svo stöddu. Peninga-gjöf var presthjón- unum afhent, en upphæðar ekki getið, frá safnaðarfólki. Kven- félag Sambandssafnaðar af- henti og Mrs. Kristjánsson silf- ur bikar til minja um samver- una. Mrs. K. Jóhannesson söng einsöng. Á milli ræða voru og íslenzkir söngvar sungnir af öllum. Samsætinu stýrði forseti Sam handssafnaðar Dr. M. B. Hall- dórsson. í lok samsætisins flutti séra Benjamín all-langa ræðu. Fór hann hlýjum orðum um við- kynningu sína af Vestdr-fslend- ingum og samvinnufólki sínu hér þakkaði hann fyrir eigin hönd og konu sinnar alla ástúð og velvild þeim sýnda. ÁVARP FORSETA SAMBANDSSAFNAÐAR í kveðju samsæti séra Benjamíns Kristjánssonar og konu hans. Eins og öllum viðstöddum er kunnugt, erum við hingað kom- in í kvöld til þess að kveðja séra Benjamín Kristjánsson og konu hans, sem nú eru að leggja á stað alfarin heim til íslands. Oss er öllum eftirsjá að þeim hjónum. Þau komu hing- að fyrir nærri fjórum árum, hafa síðan dvalið meðal vor og unnið verk sín vel og trúlega, hvert á sinn hátt. Voru þau svo óheppin, að skömmu eftir að þau voru komin, skall á hin mikla kreppa og deyfð, sem legið hafa eins og martröð yfir þessum félagsskap sem öðrum síðustu þrjú árin. Hafa þau eins og við öll, átt við mikla og marga erfiðleika að stríða í bar- áttunni við að halda uppi félags- skap vórum og eru þau því sízt af öllu öfundisverð af veru sinni hér. Þannig leizt mér á séra Benjamín, þegar eg fyrst sá hann, að vel mundi honum treystandi, og ekki þyrfti að efa það, að sannleikann mundi hann segja. Hefi eg ekki orð-‘ ið fyrir vonbrigðum í því efni. Margir munu nú segja, að þaö sé lítið í frásögur færandi þó einhver segi sannleikann. Það muni víst flestir gera. En það er eimitt sú dygðin, sem mest allra er van- rækt. Og ekki stöndum við ís- lendingar framar öðrum í því efni. Svo langt gengur þessi vanræksla, að það má nærri segja, að þeir séu spámenn ein- ir sem ómengaðan sannleikann segja — þó auðvitað geri prest- ar það *einnig stundum. En spámönnum sínum hafa menn ætíð launað á sama hátt: Með krossfestingum, bruna á báli og öðru þvílíku hnossi, meðan því var við komið, en með útskúf- un á einhvern hátt, síðan ekki var lengur hægt að lífláta þá. Þetta er eðlilegt, því ekkert hræðast menn eins og hrein- an sannleikann. Blandaður eða hálfur sannleikur, bragðast þeim ágætlega. Ef aðeins einhverju er snúið við, eitthvað felt úr, einhverju aukið í, er alt ágætt. Og mikið eru menn þakklátir . þeim, sem þvílíkt flytja. En sé eitthvað sagt, sem er alveg rétt og satt, er það sem djöflarót í munni manna. Og fáa vini eiga þeir sem þvílíkt. leyfa sér. Er því mönnum varla láandi, þó þeir sjái í gegnum fingur við sjálfa sig og aðra í þessu til- liti. Tek eg nú þetta tækifæri, að þakka séra Benjamín fyrir hrein skilnina, sannleiksást og trú- mensku í öllum greinum- Ber eg fram þetta þakklæti í nafni safnaðarins, safnaðarnefndar, og frá eigin brjósti. Og eigi síður þakka eg konu hans fyr- ir allan þann dugnað, framsýni og góðvild, í sambandi við störf sín hér. Eg ætla ekki að fara að fárast yfir því, að þau eru að fara í burtu frá okkur. Því sýnist ekki hafa verið mögulegt að aftra. Enda þekki eg svo vel sögu félagsskapar vors, að eg veit honum er borgið, hver sem fer eða kemur. Hann hef- ir verk að vinna, sem er svo mikilsvert og áríðandi, að eng- in hætta er á því, að hann líði undir lok. En í nafni okkar allra, sem hér erum saman komin, bið eg séra Benjamín og konu hans farsællar ferðar heim til ættlandsins, og ágætr- ar framtíðar, hvað sem þau taka sér fyrir hendur. Veit eg að þið öll takið undir þá árnað- arósk, eins vel og þau eiga hana skilið. Því það er hreint og bjart yfir báðum þessum hjónum. Ekki munu þau flekk- ótt finnast, hvorki á þessari jörð né annarsstaðar. M. B. H. TIL SÉRA BENJ. KRISTJÁNSSONAR frá hinu Sameinaða Kirkjufélagi. Ágæti vinur og starfsfélagi! Starfsbræðrum þ í n u m í stjórnarnefnd Kirkjufélags vors hafa fundist það mikil tíðindi og næsta óhallkvæm, er þeim barst til eyrna, að þú og kona þín telduð nú komið að þeim tíma, er þið telduð nauðsyn bera til, að lokið yrði störfum ykkar með oss og meðal þjóð- lokks vors í heild sinni í landi þessu. Að vísu fer því fjarri, að oss hafi komið þær fregnir með öllu á óvænt. Oss er það ljóst, að taugin er röm, er dreg- ur menn til þeirra staða, sem þeir eru ekki einungis runnir frá, heldur og hafa ástæðu til bess að telja hinn eðlilegasta og siálfsagðasta vettvang lífs síns. Vér könnumst ekki einungis við þessar ástæður heldur metum þær einnig. Vér hefðum kosið og talið oss stórlega mikilsvert, f samstarfið hefði orðið lengra, en oss er ljóst, að það hefði engu lýst nema vanþakklæti og skorti á skilningi, ef vér hefð- um eigi áttað oss á, að vér hefð- um engan rétt til þess að ætlast til, að vor verkahringur yrði talinn rétthærri ölhim öðrum kröfum. Þakklæti vort er einlægt og óskorað fyrir starfið, sem leyst hefir verið af hendj. Á herðum þínum hefir hvílt starfsemin í stærsta og umfangsmesta söfn- uði bræðafélags vors. Vér er- um þakklátir fyrir þá alúð og vandvirkni, sem þú hefir lagt í starf þitt. Oss er ljóst, að þú hefir verið öðrum prestum fyr- 'rmynd að því hugarfari, sem ætti að vera aðalhróður frjáls- lyndrar kirkju — þvf hugarfari, er telur samviskusamlega leit eiga að vera undanfara kenni- menskunnar. Þú hefir lagt kapp á að auðga anda þinn, þú hefir setið við brunna þekkingarinn- ar, þú hefir íhugað hinar ólík- ustu stefnur, borið þær saman, lagt dóm gáfna þinna á þær og fyrir bragðið auðnast að gera flutning kristindómsins börnun> vorrar aldar arðberandi í kirkju þinni. Vér erum þakklátir fyrir íhygli gáfna þinna, einarðleik skapferlis þíns og hreinskilni boðskapar þíns. En jafnframt því, að vér minnumst þeirrar þakklætis- skuldar, sem félag vort er í fyrir tarfsemi þína, þá væntum vér þess einnig, að þú teljir eigi þann tíma, er þú hefir með oss dvalið, hafa verið með öllu ó- frjóan fyrir sjálfan þig. Félags- svið vort er að vísu mjög tak- markað og máttur samtaka vorra lítill, en vér væntum þess, að þér hafi farið á þá lund, að þú hafir lært að meta þau verð- mæti, sem í því eru fólgin að standa þar í andlegum málum, sem þrengslin eru lítil. Að fé- lagsmálum vorum stendur að- eins tiltölulega lítill hópur manna og kvenna, sem unir sér þar bezt, er hátt er til lofts og vítt er til veggja. Vér höfum vænst þess af prestum vorum og öðrum forystumönnum, að þeir létu sér nægja sjálfs síns samviska og sannfæring að leið- arvita. Vér teljum aðra vita háskasamlega og leiða inn á grynningar. En vér höfum þá -annfæringu, að það sé ekki fjarri skapferli þínu að una á slíku fleyi hinnar óháðu hugsun ar.* Og vér 'teljum oss sæmd í því,að hafa verið á þilfari með þér þessi fáu ár, sem oss varð samstarfsins auðið. Svo mjög sem vér finnum til þess, hve félagsmál vor hafi mist við brottför þína, þá gleður oss hinsvegar sú tilhugsun, að ættland vort muni fá að njóta krafta þinna um ókomin ár. Vér efumst ekki um, að þú munir láta þau mál æfilangt til þín taka, sem þú hefir nú um skeið starfað fyrir — málefni hinna andlegu hugsjóna og hinnar frjálsu leitar kristinna manna. í óskum vorum um fararheill bíha og konu þinnar frá stöðv- um vorum felst jafnframt óskin um hamingjuríkt líf og sífelt mikilfenglegra verksvið í barátt- unni við að gera líf íslenzkra manna andlegra og frjálsara. Wynyard, 6. ágúst, 1932. Fyrir hönd stjórnarnefndar hins Sameinaða Kirkjufélagis, með mikilli alúð, Ragnar E. Kvaran. BENJAMÍNS KRISTJÁNSSONAR OG FRÚAR wamc iamímii r.iád mqh atti d TIL SÉRA DC.INJMIVIIIVO MMO I JMIVOOUIVMK HANS JÓNÍNU BJÖRNSDÓTTIR 8. ágúst 1932. (f gamni og alvöru) í kvöld hefir fólkið flykst hér inn og fjöldi af góðum öndum, að kveðja prestinn og konuna hans, með kossi og handarböndum. Og andarnir fylgja þeim alla leið til íslands í næstu viku, en við sitjum eftir hrygg og hljóð með heimþrá okkar í kviku. En meðan þau epnþá eru>hér við óskum þeim ’góðrar ferðar, og bænir okkar — ef á er reynt þær eru ekki lítilsverðar. \ Og eystra geta þau ornað sér við ylinn frá þessum ræðum; og ljóðið mitt á að lýsa þeim sem leiftrandi stjarna af hæðum. En þó að við orkum einhvers góðs með afbragðs ræðum og ljóðum Þá getur skeð að þeir biðji bezt sem biðja í lágum hljóðum. * * * Og með þau austur um Atlanz haf hinn örskreiði dreki líður og fjallkonan aldna eftir þeim með útréttann faðminn bíður Við treystum því að hún annist best um óskabörnin sín ljúfu; og bernskugull þeirra geymi hún enn hjá græntyptri smalaþúfu. * * * Svo tek eg Benjámín hlýtt í hönd, og hver sem að vill má lá það að eg ætla að kveðja konuna hans með koss', ef eg bara má það. Lúðvik Kristjánsson. KVEÐJU ORÐ til séra Benj. Kristjánssonar og konu hans. 8 ágúst 1932. Þann 30. júlí s. 1. andaðist að heimili sínu 543 Victor St., hér í borginni, Torsteinn John- son, kennari í hljómfræði, 65 ára gamall. Hann ha$ði kent hjartasjúkdóms undanfarið og hann mun að síðustu hafa orðið honum að bana. Hann þótti góður kennari og fiðluspil og sönglist hefir fjöldi ungmenna hjá honum numið. Hins látna verður eflaust minst ítarlegar síðar. Vér erum hér stödd á kveðju- móti. Með samsæti þessu, sem hér er fram að fara, erum vér t að kveðja ung hjón, prest þessa safnaðar og konu hans, er hing- að komu til vor fyrir tæpum fjórum árum síðan, en sem nú eru á förum heim aftur, til sinna fyrri átthaga. Vér hefð- um gjarna kosið, að þau hefðu mátt dvelja með oss lengur. Þau hafa að maklegleikum, get- ið sér góðan orðstír. Málefnum þeim, sem þau hafa veitt for- stöðu, hafa þau verið til sæmd- ar. Félagslífi voru íslendinga hér í landi hefir verið ávinning- ur að komu þeirra Þau hafa í hvívetna, unnið sér álit, hylli og traust drenglyndra manna. En atvikin hafa hagað því svo til, að eigi getúr orðið lengra úr dvöl þeirra í þetta sinn en orðið er. Það hefir fallið í mitt hlut- skifti, fyrir hönd safnaðarfólks- ins að mæla til þeirra nokkur orð að skilnaði, og við það hefir rifjast upp fyrir mér í huga mín- um gamall atburður, sem eg hefi ekki getáð gleymt frá liðn- um árum. Atburður þessi gerð- ist fyrir tæpum tíu árum síðan. Það stóð líkt á og nú, — það var verið að kveðja. Á meðal vor hafði þá dvalið um rúmt fjögra ára skeið, einn hinn ágætasti maður, er hingað hefir komið, tónskáldið Svb. Sveinbjörnsson. Hann var þá á förurn heim til íslands, ætlaði að leggja af stað morguninn eftir. Mót þetta var haldið í heima húsi, og aðeins fátt manna þar saman komið, nokkurir vinir hans og kunn- ingjar, er kynst höfðu honum me^t og vildu dvelja með hon- um sem lengst að auðið yrði. I Það var orðið siðla kvöldsins en (enginn hafði haft orð á því, að mál myndi vera að skilja. Sjálf- ur dvaldí hann, í algleymi um hvað tímanum leið, við minn- ingar liðinna ára og rifjaði upp atburði er gerst höfðu þá fyrir löngu. Ag lokum reis kona hans á fætur og minnir hann á að það muni vera kominn tími til að fara, því með morgni verði þau að leggja af stað f hina löngu ferð. Hann sleit samtalinu við hálfsagða sögu og stóð á fætur. Geislar hinna glöðu minninga er lýstu af aug- um lians og yfirbragði, óskýrð- <>st og hann sagði fremur lágt: “Já, það eru alt af þessi sömu Idðindi að þurfa að kveðja.’’ Það voru þessi orð hans eink- um, sem festu þenna atburð mér í minni — þau voru svo hreinskilin og látlaus, svo djúp og spök og sönn. Og það eru þau sem skjóta honum alt af upp huga mínum, upp aftur og aftur við hvert tækifæri, sem þetta, þegar einhverjir eru á förum, þegar verið er að kveðja. Oss er öllum svo farið að vér kjósum oss heldur að mega heilsa heldur en kveðja. Vér finnum til þess að það er léttara að segja “komið þið sæl” heldur en “farið þið vel”. í öllum kveðjum er falinn sársauki — þrautin að þurfa að kveðja, —- einhverskonar sársauki serii vér gerum oss sjaldnast fulla grein fyrir, enda getum við það ekki, myndirnar eru svo breytilegar. Stundum á hann skylt við til- finninguna sem saknar dagsins í gær, þá hann er liðinn, meira en morgundagsins sem í vænd- um er. Stundum við leiðarslit- in, er einn stefnir til fjalls, sem í álaga sögunni, en annar til fjöru; stundum við þann per- sónulega missir sem samveru- slitin hafa í för með sér; en stundum, og lang oftast, við minningarnar er hver um sig á, en verður nú það sem eftir er að geyma í brotum sökum þess að sameignin er bönnuð með fjarvistinni. Mesti gróði æf- innar eru minningarnar, og sá eini gróði er svo verður í sund- ur greindur að auðkend verða (Frh. á 5 bls.)

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.