Heimskringla - 04.10.1933, Síða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 4. OKTÓBER 1933
FJÆR OG NÆR.
Athygli íslendinga virðist oss
vert að draga að því, að tenór-|
söngvari Sigurður Skagfield
hefir byrjað söngkenslu í bæn-
um. Er kenslustofa hans að 25
Musie and Arts Bldg., á Broad-
way . Hefir hann stofu í fé-
lagi með John O. Norrhagen,
vikurkendum kennara í fíólín
spili. Er stofa þeirra ein sú
stærsta í allri byggnigunni.
Sigurður hefir áður kent söng
og hlotið bezta orð fyrir sem
vænta má, svo ágætur söng-
maður sem hann er. Og sjálfur
hefir hann notið kenslu hjá
beztu söngkennurum Evrópu.
Talið við hann ef yður liggur
hugur á að nema söng; Síma
og áritun hans finnið þér í aug-
lýsingu frá honum á öðrum stað
í blaðinu.
* * * *
Bjöm Hansson frá Humboldt,
Sask., hefir verið hér eystra
nokkra daga að heimsækja
foraa vini. Fór hann norður
til Árborg, en þar dvaldi hann
áður eh hann flutti vestur og á
þar fjölda kunningja. Að vestan
sagði hann ekkert sérstakt að
frétta; kvað búskapinn berjast
í bökkum, en þó mundi hann
víðar verri en í sinni bygð, en
Gunnar Erlendsson
Teacher of Piano
594 Alverstone St., Phone 38 345
UNCLAIMED CLOTHES
All New—Not Worn
Men’s Suits & Overcoats
479 PORTAGE AVE.
I. H. TURNEB, Prop.
Telephone 34 585
“WEST OF THE MALL—BEST
OF THEM ALL”
bændur sagði hann flesta
Þjóðverja þar og þeir væru
hagsýnir og þrifnir búmenn.
Björn hefir um nokkur ár veitt
smjörgerðar-búi í Humboldt
forstöðu og gerir enn. Sinnir
sonur hans því meðan hann tók
sér tveggja vikna hvíld .Björa
hélt heimleiðis s. 1. föstudag.
* * *
Séra Guðmundur Árnason frá
Lundar, kona hans og sonur,
Einar ,voru stödd i bænum yfir
helgina. Séra Guðmundur
messaði í Sambandskirkjunni á
sunnudagskvöldið. Einar verður
hér í bænum í vetur. Hann
stundar nám á Manitoba há-
skóla.
> * * *
Sigurjón Þórðarson frá Hnaug-
um, Man., var Staddur íBænum
s. 1. fimudag. Hann kvað bænd-
ur kvarta undan verðleysi bús-
afurða, einkum gripa, og sagöi
það þeim mun tilfinnanlegra,
sem nokkrir hefðu nú svo mik-
inn stofn, að hey eða fóður
hefðu ekki handa honum öll-
um og yrðu því að mínka hann
eða selja á lágverðinu.
* * *
Séra Guðmundur Árnason
messar á Langruth, Man., næst-
komandi sunnudag (8. okt.).
* * *
Benedikt Jónsson frá Mozart,
Sask., kom til bæjarins síðast
liðna *»ku til þess að vera við
jarðarför bróður síns Friðriks
Jónssonar, er dó á almenna
sjúkrahúsinu í Winnipeg, þriðju-
daginn 26. september.
* * *
Kristlaugur Anderson frá Ár-
borg, Man., sem um tveggja
vikna tíma hefir verið í bænum
að leita sér lækninga, hélt heim
til sín s. 1. föstudag. Hefir
hann fengið bót meina sinna.
J. J. SWANSON & Co. Ltd.
REALTORS
Rcntal, Insurance and Financial
Agents
Sími 94 221
600 PARIS BLDG. — Wlnnipeg
KAUPIR GAMLA GULL-
MUNI FYRIR PENINGA
ÚT f HÖND
CARL THORLAKSON
ÚrsmiSur
699 Sargent Ave., Winnipeg
íslenzka gull- og silfur-
smiða stofan
BifreiðarFerðir
Afsláttar’ fargjöld til allra
staða. Ferðist með hinum
nýju hituðu ‘Sedan’ bílum.
Farþegjar allir vátrygðir.
Æfðir bílstjórar.
Sýnishorn fargjalda:
Wpg til Regina .. $ 7.00
Wpg til Calgary .... 14.00
Wpg til Saskatoon .. 9.50
Wpg til Toronto.. 18.75
Wpk til New York .. 23.50
Spyrjið eftir fargjöldum til
allra staða
THE
Drivers, Syndicate
439 MAIN St.
Sími 93 255 Winnipeg
í meira en 65 ár . . .
BEZTU kaupin
BEZTU sniðin
BEZTU loðskinnin
sen unt er að fá, á nokkurri
L0ÐKÁPU _
í>etta er vitnisbarður HDLT RENFREW!
Grávöru fatnaðurinn er vor!
Unnin á vorum eigin verk-
stæðum af hinum beztu og
fullkomnustu grávöru klæð-
skerum í Canada. Hvort þér
-heldur þurfið að fá yður nýja
kápu eða láta gera við eldri
kápu komið beint til HOLT
RENFREW, það borgar sig
fyrir yður með tímanum.
Holt Renfrew
STOFNAÐ 1837
SÍMI 21 857
Stundaði dr. Sig. Júl. Jóhannes-
son hann og biður Kristlaugur
Heimskringlu að færa honum
innilegustu þakkir fyrir alla
hjálp sér veitta nú sem fyr.
* * #
Messa í Sambandskirkjunni
á sunnudaginn kemur á venju-
legum tíma. Séra Rögnv. Pét-
ursson prédikar.
* * *
Jón Sigurðsson frá Lundar,
Man., kona hans og dóttir, voru
stödd í bænum yfir helgina.
Mrs. Sigurðssón var að leita
sér læknisráða við augnveiki.
* * *
í bænum er stödd ungfrú
Bára Jónsson hjúkrunarkona
frá New York. Hún kom til að
vera við jarðarför föðurs síns
Friðriks Jónssonar er fram fór
s. 1. fimtudag.
* * * ^
Ungfrú K. A. B. Kristjánsson,
Wynyard, Sask., og Jakob
Guðnason ffá Glenboro, Man.,
voru gefin saman í hjónaband
15. sept. s. 1. að heimili Mrs. S.
Kristjánsson, móður brúðurinn-
ar, í Wynyard bygð.
* * *
Sunnudagsskóli Sambandssafn-
aðar, byrjár
nú aftur eftir sumarhvíldina
á sunnudaginn kemur þann 8.
þ. m. kl. 11. f. h. Er óskað eft-
ir að kennarar allir verði þar til
staðins, og eins börn þau er
skólann hafa sótt eða ætla að
sækja á þessum vetri. Slegið
weröur saman skólum The Uni-
tarian Church á Westminster
Ave., og Sambandskirkjunnar,
og veitir séra Philip M. Péturs-
son hinum sameinaða skóla for-
stöðu. Unglingar þeir ór fermd-
ust á síðastliðnu vori eru beðnir
að koma, er svo til ætlast að
með þeim verði myndaður sér-
stakur bekkur í skólanum er i
vetur lesi sérstaka kafla úr
biblíunni og kirkjusögunni und-
ir leiðsögn séra Philips. Eru
foreldrar beðnir að leggja alt
kapp á að skólinn geti orðið
sem fjölsóttastur og börnunuin
sem gagnlegastur á þessum
vetri.
* * *
Föstudaginn var 29. sept. and-
aðist að heimili sínu á Garðar,
N. D., bændaöldungurinn Joseph
Sigvaldason Walter. Jarðarför
hans fer fram á miðvikudaginn
í þessari viku, 4. þ. m. Joseph
var fæddur { Prestshvammi í S.
Þingeyjarsýslu 15. apríl 1858
og var því rúmra 75 ára. Úr
þingeyjarsýslu fluttist hann
ungur austur til Jórvíkur í
Breiðdal og þaðan 1878 til ís-
lenzku nýlendunnar Markland,
í Nýja Skotlandi. Til Dakota
nýlendunnar kom hann 1883 og
nam land við Garðar. Þar hefir
hann búið síðan. Systkini hans
er vestur fluttu nokkru fyr,
voru þau Björn Sigvaldason
Walter (dó 1932) og Halldóra
ekkja Brynjólfs Gunnlaugsso^-
ar í Argyle bygð.
* * *
Frétt frá Kandahar hermir
að G. J. Sveinbjörnsson, er fyr-
ir nokkru varð fyrir því slysi, að
detta af heyvagni er á ferð var
og lærbrotna, sé á góðum bata-
vegi.
* * *
í blaðinu “Wynyard Advance”
frá 21. sept. segir: “Hingað til
bæjarins (Wynyard) komu í
gær úr áttinni frá Saskatoon
eitt hundrað menn. Atvinnu er
hér ekki fyrir nema örfáa af
þeim, ef nokkra. Að standa
straum af að fæða ög hýsa þá
þó ekki sé nema stuttan tíma
verða þungar búsifjar íbúun-
um.”
? * * *
Til bæjarins komu á þriðju-
daginn í þessari viku Mr. og
Mrs. Hjörtur Bergsteinsson frá
Alameda, Sask. Með þeim voru
dætur þeirra þrjár, Margrét,
Mable og Þórunn og sonur
Gunnar Hrafn. Dvöldu þau
hér nokkra daga í heimsókn til
kunningja og vina. Ennfremur
var Mrs. Þórunn Bergsteinsson
að leita læknis við sjóndepru.
Mr. Bergsteinsson leit inn á
Hkr. sem snöggvast og sagði
fremur bærilega líðan þar í
sveit.
* * *
Páll Bjarnason frá Wynyard,
Sask., lagði af stað í dag með
fjölskyldu sinni vestur til Van-
couver, B. C. Býst hann við
að setjast þar að. Segir í bréfi
að vestan, að hjónunum hafi
verið haldið veglegt skilnaðar
samsæti að Wynyard áður en
þau fóru.
* * *
Ágúst Sigurðsson sem um
nokkur ár hefir verið útgefandi
blaðsins “Wynyard Advance,”
hefir nú látið af þeim starfa.
Segir blaðið, að hann hafi i
hyggju að flytja til Winnipeg.
Þeir er við útgáfu blaðsins taka
j heita W. C. Needham og N. A.
' S. Pett.
* * *
Yfirlýsing
í byrjun greinar minnar um
“Bréf frá Ingu” í Hkr., gat eg
þess að eg hefði verið beðin að
skrifa ritdóm um þær bækur og
virðast margir halda að útgef-
andinn hafi mælst tii þess.
Svo er ekki, Mr. S. Thorkel-
son vissi ekkert um þann rit-
dóm fyr en eg var búinn aö
I skrifa hann og las hann ekki
j fyr en hann kom út í blaðinu.
M. B. H.
* * *
; Laugardaginn, 23. sept. voru
þau Jóhannes Gottfred, sonur
iMr. og Mrs. Gottfred (Gott-
skálkson), frá Winnipeg, og
lEline Magnússon frá Selkirk
I gefin saman í hjónaband af séra
1 Rúnólfi Marteinssyni. Hjóna-
vígslan var framkvæmd í ís-
lenzku lútersku kirkjunni í Sei-
kirk. Mrs. Murdoch söng ein-
söngva, söngflokkurinn söng
sálm ,en Mr. Gunnlaugur Odd-
j son var organistinn. Brúðguma-
sveinn var Mr. Albert M. Young
! frá Winnipeg og brúðarmær
j Miss Theda Magnússon, systir
! brúðurinnar. Faðir brúðurinn-
I ar, Mr. Jón Magnússon, leiddi
brúðurina að altari. Kirkjan
var alskipuð fólki. Að vigslunni
lokinni sat fjöldi vina rausnar-
lega veizlu á heimili foreldra
brúðarinnar, Mr. og Mrs. J.
Magnússon, 389 Taylor Ave., í
Selkirk. Næsta dag lögðu
brúðarhjónin á stað í skemti-
ferð til Vancouver í British
Columbia. Heimili þeirra verð-
ur í Winnipeg.
* * *
G. T. Spil og Dans
á hverjum þriðjudegi og laugar-
degi í I. O. G. T. húsinu, Sar-
gent Ave. Byrjar stundvíslega
kl. 8.30 að kvöldinu. $16.00 og
$20.00 í verðlaunum.—Gowlers
Orchestra.
Mrs. Guðrún Danielsson, kona
Daniels Danielssonar að Hnaus-
um, Man., lézt s. 1. laugardag,
að heimil tengdasonar síns Gísla
kaupmanns Sigmundssonar. Hin
látna kona var háöldruð og átti
við lasleika að búa síðustu ár-
in. Hún var merkiskona og
verður æfi atriða hennar minst
síðar.
* * ¥
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
sinn næsta fund fimtudags-
kvöldið 12. október að heimili
Mrs. H. J. Lindal, 912 Jessie
Ave.
* * *
Til leigu: Stórt framherbergi
fyrir tvær stúlkur og fæði ef
óskað er, að 624 Victor St.,
Winnipeg.
Mrs. H. Pétursson
* * *
Messugerð flytur Mr. G. P.
Johnson, sunnudaginn 8. okt.
kl. 11. f. h. í Westside skólahús-
inu. Sunnudagaskólinn verður
strax eftir messuna, einnig verð-
ur messað í Bræðraborg, Foam
Lake safnaðar kl. 2. e. h. Mælst
er til að sem flest ungt fólk
verði þar viðstatt og mæti á
fundi sem haldinn verður eftir
messuna.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
* * *
Home Cooking Sale
Deild nr. 5, Kvennfélags lsta.
Lút. safnaðar efnir til sölu á
heima til búnum mat, laugar-
daginn 7. okt. næstk. að 625
Sargent Ave., við Maryland St.
Þar verður á boðstólum alls-
lags bakningar og kjötmatur,
MESSUR 0G FUNDIR
f klrkju Sarabandssafnaðar
Mesfiur: — á hverjum Bunnudegf
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndln: Fundlr 2. og 4.
fimtudag.sk veld i hverjum
mánuSi.
Hjálparnefndln. Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundlr annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn. Æfingar á hverju
flmtudagskveldi.
Sunnudagaskélinn: — A hverjuTi
sunnudegi, kl. 11 t. h.
einnig þurkur af ýmsu tæi meö
vægu verði.
* * *
Fyrir nokkrum árum var það
ákveðið, að enska kirkjan skyldi
helga dýrunum einn messudag
á ári. Aðrar þjóðir hafa farið
að dæmi Englendinga, t. d. hefir
Dýraveradunarfélagið norska
komið því til leiðar, að þar i
landi helgar kirkjan dýrunum
einn sunnudag á ári. Tala þá
prestar í öllum kirkjum lands-
ins um dýraverndun og hvaða
skyldur vér mennirnir höfum
við dýrin. Til þessa var valinn
13. sunnudagur eftir Þrenning-
ingarhátíð, (13. sept.).
* * *
Munið eftir að til sölu eru á
skrifstofu Heimskringlu með af-
falls verði, námsskeið við helztu
verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
tal af ráðsmanni blaðsins.
mm
SKEMTISAMKOMA
Þakkargjörðardaginn Mánudagskveldið 9 okt. í kirkju
Sambandssafnaðar, Banning og Sargent, kl. 8. e. h.
Fyrir samkomunni stendur, sem að undanförnu
Kvenfélag safnaðarins.
TIL SKEMTANA VERÐUR:
1. Ávarp forseta.
2. Piano solo, Miss Snjólaug Sigurðsson
3. Sonata Pathetique lst movement, Beethoven, Miss
Thelma Guttormsson
4. Vcx’al solo, selected, Mrs. K. Jóhannesson.
5. Ræða, Séra Rögnv. Pétursson
6. Vocal Duette, “Still as the Night” Carl Goetze
Mrs. K. Jóhannesson, Mr. Paul Bardal.
7. Upplestur, Lúðvik Kristjánsson
8. Vocal solo, selected, Mr. Paul Bardal
9. Violin solo, Miss Pearl Pálmason
10. Veitingar í fundarsal kirkjunnar.
Inngangur ekki seldur. Allir velkomnir.
Samskota leitað áður en gengið er að borðum.
Forstöðunefndin.
m
mmwmm
fímm:mmmmmmmi?-
Prentun
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leyst. Látið oss prenta bréfhajusa
yðar og umsiög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKING PRESS LTD.
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
* Sími 86-537 *