Heimskringla - 25.09.1935, Page 7

Heimskringla - 25.09.1935, Page 7
WINNIPEG, 25. SEPT. 1935 HEIMSKRINGLA 7. SÍÐA MINNI ÍSLENDINGA Frh. frá 3. bls. frelsis og hagsmnualegra rétt- inda. Lengi lifi íslenzk tunga! Það samþykkjum við öll af heilum hug, en enn heitari er sú þrá, að lengi lifi íslenzk hugsjón, ís- lenzkt eðli, íslenzk lífsskoðun, íslenzkt hugsana-frelsi og sjálf- stæði. Það, sem forlögin hafa varðveitt út á útkjálka heims. hef'ir ekki verið í tilgangsleysi. Sú öld er nú risin, að heimurinn verður að hlýða á boðskap slíkra hugsjóna, eða þá að öðr- um; kosti að steypa sér út á þá ófriðar-öldu, sem mun fjötra og andlega lama -komandi kynslóð- ir. Lengi lifi ísland! Sú ósk er okkur eðlileg og einlæg í dag og alla daga. En margfalt heitari er sú ósk, að lengi lifi íslenzk menning og íslenzk áhrif í sögu alls heims, að enn liggi það dýrðlega markmið fyrir ís- lenzkri menning, að túlka inn í lífsstefnu voldugri þjóða heims- ins hugsjónir mannúðar, lýð- ræðis og frelsis. Þá hefir Island uppfylit þá æðstu köllun. Þá lifir ísland í sögu allra ókom- inna alda. FYRSTA ÚTVARP frá íslandi til Ameríku Rvík. 3. sept. Á sunnudagskvöldið var gerð tilraun héðan í fyrsta sinn með útvarp til Ameríku. Samkvæmt skeytum, sem hafa borist þaðan síðan, bæði til forsætisráðherra og Ríkisút- varpsins, hefir tilraunin hepnast ágætlga, truflanir ekki verið teljandi og dagskráin líkað vel. Segir í ýtarlegasta skeýtinu, sem er frá Árna Helgasyni raf- fræðing í Chicago, að engar truflanir hafi verið, og sérstak- lega hafi þau orð, sem sögð voru á íslenzku, snert sam- landana vestan hafsins. Það þarf ekki að efa. Þeir, sem til þekkja, vita að hlýnað hef'ir íslenzkum hjörtum' vest- anhafs, yngri og eldri, er for- sætisráðherra hóf ávarp sitt til þeirra á íslenzku, og að fáir hafa grátið “þurrum tárum”, er þeir heyrðu: ‘Ó, guð vors lands’ óma í eyrum sér — heiman af íslandi. Útvarpið hófst með svohljóð- andi ávarpi Mermanns Jónas- sonar forsætisráðherra: Eg leyfi mér fyrir hönd þjóðar minnar að ávarpa yður, virðu- legu útvarpsnotendur í Vestur- heimi. Á milli mín og yðar ligg- ur hálf kringla heims; — en snilli mannsandans hefir brúað þessar óraleiðir og gert mér mögulegt að bera hinni ungu voldugu þjóð hins nýja tíma, vinarkveðju aldinnar móður sögu og sagna yzt í Atlantshafi. Fyrir þúsund árum litu sam- landar mínir fyrstir hvítra manna hinar fögru strendur lands yðar. Þá hljómaði í fyrsta sinn í hinni nýju álfu hin norræna tunga, sem enn er töl- uð nærri óbreytt hér í föður- landi hinna ótrauðu sæfarenda- — Nú gnæfir hér í liöfuðborg lands vors, skamt þaðan er eg tala, tignarleg og fögur stand- mynd hins frækna foringja hins litla hóps, er vestur fór, Leifs Eiríkssonar, er landar hans nefndu hinn heppna. Mynd þessa færði Banda- ríkjaþjóðin íslendingum árið 1930 í minningu þess, að þá varð löggjafarsamkoma vor, Al- þingi, þúsund ára gamalt. Íslendingum hinuin fornu auðnaðist ekki að verða land- námsmenn í hinni nýju heims- álfu. Fyrst hundruðum ára síð- ar, í lok nítjándu og í byrjun tuttugustu aldar, fóru íslending- ar og þá í þúsundatali, aftur vestur um haf. Þá auðnaðist þeim, að festa þar rætur og nema ný lönd. — Er oss, sem heima sitjum, það mikið gleði- efni, að vita að þessir bræður vorir og systur hafa reynst verðugir afkomendur forfeðr- anna og að þeir hafa, með því að reynast nýtir og góðir borg- árar, launað fóstru sinni ‘þau glæsilegu skilyrði til vaxtar og frama, sem hún hefir börnum sínum að bjóða. Er það ósk vor og von að stöðugt vaxandi bönd viðskifta, vináttu og menningar megi órjúfanlega tengja oss hinni voldugu önd- vegisþjóð Vesturheims. Til þeirra landa minna, sem í Vesturheimi búa vil eg mæla þessum orðum á þeirra gamla móðurnfáli: Vestur-íslendingar: Eg flyt yður hjartanlegar kveðjur lands og þjóðar. Vér heima-íslendingar óskum einskis frekar en aukinna kynna við yður og þá þjóð, sem yður fóstrar. Engir gestir eru hér velkomnari en þeir, sem að vest- an koma til að njóta hér “nótt- lausrar voraldar veraldar þar sem víðsýnið skín” eins og skáldið yðar góða kemst svo snildarlega að orði. — Verið þess vissir, að athygli vor og samhygð fylgir yður, og minn- umst þess, að hver sigur sem vinst, hvort heldur er vestan hafs eða austan, er vorum sameiginlega stofni til aukins frama. , Ræða forsætisráðherra var öll flutt á ensku, nema kveðju- orðin til Vestur4slendinga. Á eftir ræðu forsætisráð herra söng karlakór K. F. U. M. þjóðsöng Bandaríkjanna, PELtmERS COUNTRY CLUB JPECIAL The BEER that Guards Q.UALITY Phones: 42 304 41 111 j næst áttu þeir Ragnar E. Kvar- an og Eiríkur Benedikts samtal j um landið, þá söng Karlakór K. I F. U- M. aftur tvö þjóðlög, Guð- I mundur Kamban flutti erindi um Leif Eiríksson og að síðustu söng blandaður kór þjóðsöng íslendiriga.—Nýja Dagbl. KLUKKAN GENGUR NÚ! DAY SCHOOL for a thorough business training— NIGHT SCHOOL for added business qualifications— Tlre Dominion Business College, Westem Canada’s Largest and Most Modem Comniercial School, offers complete, thorough training in Secretaryship Stenography Clerical Efficiency Merchandising Accountancy Bookkeeping Comptometry— —and many other profitable lines of work We offer you individual instruction and the most modem equipment for business study, and AN EFFECTIVE EMPLOYMENT SEKVICE for the placement of graduates in business DOMINION BUSINESS COLLEGE On The Mall and at Elmwood, St. Jiames, St. John’s Þegar Woodrow Wilson var forseti U.S.A., þá var Mr. Árni Mýrdal formaður á Laxniður- suðu húsi er A. P. A. Go-, (Al- aska Packers Association), á Point Roberts. (Er nú hætt að sjóða niður lax). Eitthvað var það í stjórn Wilson forseta, sem ekki var náðarsamlega tekið inn hjá A. P. A. fél. Vatt þá Mr. A- Mýr- dal upp hugsana klukku sína, setti stóra vísirinn á skífuna fyrst, auglýsti í Heimskringlu hvernig — á A: P. A. fél. kvarða væri litið á stjórn forseta W. Wilson. Var Mr. A. Mýrdal svo stórorður þar, að mörgum mun hafa fundisit of langt farið, og sagt með orðum, sem Wilson forseti átti hreint ekki skilið. Það eru nú mörg ár síðan þetta gerðist, hafa orðið þrenn forseta skifti á þessum tímfa í U- S., sem liðinn er síðan Wood- row Wilson var forseti, og hefir ekki það eg man heyrst hljómur frá klukku Mr. A. M. öll þessi ár; má vera að hún hafi stanz- að á sama tíma, og Mr- A. Mýrdal sagði A. P. A. upp sinni þjónustu. En nú kemur í Heimskringlu, nr. 49 — 4 sept. s. 1. grein með fyrirsögn, “Lát- um þá ríku borga”; er klukka Mr. Árna Mýrdal byrjuð að ganga og slær! Er nú litli vís- irinn settur ofan á þann stóra, af því þeim stóra vísir var ekki hægt að ná af, enda gerir það ekki mikið til, því klukkan gengur og hringir með sama gangi og hljóm sem fyr var. Er núverandi forseti, Mr- Fraklin D. Roosevelt, sem klukkusláttur Mr. A. Mýrdal beinist að, í sársauka-tón um biljón, Mr. “Ford” bíla fram- leiðanda. Er Mr. Robert Jack- son settur í klefa, út af því hvað hann áleit að ætti að gera við biljón dala söfnun Mr. Fords. Hefir Mr. R. Jackson verið að sýna fram á, hvað stjórn U. S. gæti gert við auð- söf'nunar félögin, er þau gerðu sig svo stór, að sýna aðalstjórn og forseta U. S. vígtennur sínar, eins og Mr. Ford gerði, er NRA var lifandi. Ef Ford Co., býr itil sjö þúsund og fimm hundruð bfla á dag, selur hvern fyrir fimm hundruð dali, og upp, þá er það laglegur sjóður, sem myndast yfir árið; sýnist ekki vera synd að hafa sömu orð við Ford Co., eins og kona á íslandi sagði við bónda sinn, er hann gerði matarpottinn þeirra ónýtan, í staðinn fyrir að setja bót á pott skömmina. Hún sagði. “Þú verður að borga pottinn Steinn.” Bíla framleiðsian er að verða sú versta landplága, sem til er nú í U. S., og allar þær tugir biljóna, sem Mr. A. M. reiknast, að dollara biljón Mr. Ford Co., hafi fætt af sér, er stærsta dráps-vél heimsins nú sem stendur. Því eiga félögin að leggja í ríkissjóðinn þrjá fjórðu af inntektum. Ef forseta Roosevelt hefði hvergi yfir sést í viðreisnar verki sínu, alt gengið eftir ósk hans, og fólksins, þá hefði mátt segja, að hann væri jafn snjall guði almáttugum, því svo var ástandið orðið bágt í landinu, að krafta verk varð að gerast. Hefði möt^okkur hans hjálpað til að rétta við, v§rið eins og kristnum mönnum ber að vera, þá hefði alt orðið í bezta lagi strax. En þeir létu það vera, þeim er sama þótt miljónir fólks sé hungrað, ,og er klukku gang- ur Mr. A. Mýrdal örlítið sýnis- horn þar af, því hann elskar auðvaldið meir en fólkið, sem lítið hefir og ekkert á. Samt heyrir hann til almúga klass- anum. Sendir nú bezta og æðsta manni þjóðar U. S. and- skot eins og hann gerði þá er Woodrow Wilson var forseti. Af því Roosevelt þekkir auð, og hvernig synir og dætur fara með þá vöru, því er það, að hann vill þeir ríku borgi. Að hann sé sjálfur ríkur, er óvíst. Senator Huey P- Long sagði í einni ræðu sinni að hann áliti að Roosevelt ætti varla svo mikið; að hann gæti borgað fyrir góða bót á buxurnar sín- ar. Annars er klukkugangur Mr. Árna Mýrdal mesta fyrirmynd, því það er eins og krafturinn mínki, er á líður, og er ekkert í samanburði við þá hann setti stóra vísirinn á, er Woodrow Wilson var forseti, og sat við vinnu sína í Hvíta húsinu í Washington, D. C. Viss er eg um það að færi svo, að Mr. A. Mýrdal ætti kost á að sitja í forsetastól U. S. að þá mundi hann skifta um skoðun á auðvalds-farganinu eins og það er nú orðið; mér skilst það vera* erfitt verk, að standa við stýrið á þjóðarskút- unni. Það gæti farið svo að hann þætti nokkuð ráðríkur, og yrði því ekki lengi þar. Annars er það slæmt um eins vel gefin mann sem Mr. Árni Mýrdal er, hvað lítið hann gerir til þjóðþrifa. Hann gæti gert mikið gott ef hann lokaði sumt af sínu niður í kistu, byrj- aði líkt og Mr. Ford á einhverju sem gerði hann frægan, og þá gæti hann gefið tugum, eða hundruðum manna vinnu. Það færi honum betur, heldur en að vera úthúða gerðir beztu manna þjóðarinnar, eins og hann gerði um fyrverandi forseta Wood- row Wilson og núverandi for- seta Franklin D. Roosevelt. —Bellingham, Wash., 15. sept. 1935. S- J. Johnson Dr. M. B. Halldorson 401 BoydL Bldg. Skriístofusíml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finnl á skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 158 Dr. J. Stefansson 216 MEDICAL ARTS BLDG. Horni Kennedy og Graham Stundar eingöngu augna-eyrna- nef- og kverka-sjúkdóma Er að hdtta frá kl. 2.30—5.30 e. h. Talsimi: 26 688 Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691 Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar ílutninga fram og aftur tun bseinn. Dr. K. J. AUSTMANN Wynyard —Sask. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 854 BANNINO ST. Phone: 26 420 Dr. O. BJORNSSON 764 Victor St. OFFICE & RESIDENCE Phone 27 586 Gunnar Erlendsson Pianokennari Kenslustofa: 594 Alverstone St. Sími 38 181 Dr. E. JOHNSON 116 Medical Arts Bldg. Talsími 23 739 Viðtalstími 2—4 p.m. Heimili: 776 Victor Street Winnipeg Talsimi 22 168. RAGNAR H. RAGNAR Pianisti oa kennari Kenslustofa: 683 Beverley St. Phone 89 502 BRÉF Sannarlegt nýmæli má þessi nýja stjórnmálastefna Alberta- fylkis heita, og mörgum mun nú mikil forvitni á þvf hversu happasæl stefna sú reynist í framtíðinni. Dreifing auðsins til almennings, er það eina verulega sem almenningur get- ur dálítið skilið í, en eitt er öllum orðið ljóst, og það er að ástandiðl í borgum og bygðum er nú orðið stórkostlega alvar- legt og að stjórnar eða pólitísku flokkarnir virðast ekkert við á- standið ráða. Aðeins eitt af öllum ófærunum sem m'innasx mætti á, og sem stjórnirnar virðast vera komnar í er það þegar t. d. Winnipeg-bæjar- stjóm hefir nú í öll þessi ár alið á bæjarpeningum heilan hóp af ungu og hraustu fólki, sem aldrei tekur handar vik; margt af þessu fólki eru börn, sem al- ast frá vöggunni við þetta ráð- lausa vinnuleysi; hefir nú þessi sama stjórn athugað að hún er hér að ala upp ráðlausa ósjálf- bjarga aumingja, sem ætíð hljóta að verða sjálfum sér og þjóðfélagi því, sem' þeir alast upp í og með til ógleymanlegrar eyðileggingar. Og hver sú stjórn hvort heldur er bæjar eða fylkisstjóm eða landstjóm, sem ekki lítur eftir framtíðar velferð þegna sinna, verður æ- tíð ófær til að stjóma, því hvað sem að neyðir ungdóminn til að taka aldrei ærlegt handarvik, það gerir þann sama ungdóm ófæran fyrir lífið. G. Th. Oddson, Akra, N. D. G. S. THORYALDSON B.A., LL.B. Lögfrœðingur 702 Confederation Life Bldg. Talsími 97 024 W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnig skrifatofur að Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miðvikudai í hverjum mánuði. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úti meðöl i viðlögum Viðtalstímar kl. 2—4 e. h. 7—8 að kveldinu Sími 80 857 665 Victor St. A. S. BARDAL selur líkkistur og annasit um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG Dr. S. J. Johannesson 218 Sherbum Street Talsíml 30 877 Viðtalstími kl. 3—5 e. h. Rovatzos Floral Shop 206 Notro Dame Ave. Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Daily Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandic spoken THE WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Dr. A. V. JOHNSON tSLENZKVR TANNLÆKNIR 212 Curry Bldg.. Wlnnipeg Gegnt pósthúsinu Simi: 96 210 Heimilis: 33 328 J. J. Swanson & Co» Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi: 94 221 600 PARIS BLDG.—Winnipeg J. T. THORSON, K.C, Islenzkur lögffœðingur Skrifstofa: 801 GREAT WEST PERMANENT BUILDING Sími: 92 755 Orrics Phoni 87 293 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDING OrrxcE Hours: 12 - 1 4 p.m. - 6 P.M. AND BT APPOINTMENT Talsimi: 28 889 Dr. J. G. SNH)AL TANÍLÆKNIR 614 Somerset Block Portage Avenue WINNIPEG Res. Phone 72 409

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.