Heimskringla - 07.06.1939, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 7. JÚNÍ 1939
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
KLETTAFJÖLL OG
KYRRAHAF
Eftir Sig. Júl. Jóhannesson
Framh.
Á meðan lestin leið yfir Sas'k-
atchewan fylkið fann eg það að
ýmsar myndir vöknuðu í hugan-
um, sem þar höfðu sofið eða
legið í dvala.
Eg sá í anda svo að segja
fyrstu tilverudaga þess fylkis.
Við hjónin fluttum þangað árið
1908 og var fylkið þá hér um bil
ársgamalt. Þangað streymdi
múgur manna úr öllum áttum og
alt logaði af eldmóði og áhuga.
Einkenni æskunnar sáust þá og
einkendu alt og alla. Það var
eins og allir væru ungir — ung-
ir í annað sinn ef þeir höfðu
lifað sína fyrri æsku áður og
annarsstaðar. Framtíðin var
eins og heiður himin með hlýrri
sól og skínandi stjörnum.
Þar voru þá svo að segja engir
þjóðvegir, víða engar járnbraut-
ir, engin stórvirki af neinu tagi.
En þetta átti alt að koma seinna.
Menn sáu það alt í huganum —
í nokkurskonar vökudraumi. Og
þótt þeir enn hefðu aðeins bygt
sér kofa úr bjálkum eða borðum,
þá sáu þeir í anda önnur hús og
glæsilegri, sem dugnaður þeirra
og starfalaun hins frjóa lands
áttu að reisa í sameiningu. Mér
fanst sem hver myndin af ann-
ari rísa upp í huganum frá þeim
dögum. Þar voru allir svo að
segja jafnir; enginn rígur, eng-
inn flokksdráttur, engin afbrýð-
issemi, allir fú§ir að rétta hjálp-
arhönd þeim, sem þurfti — og
hver var sá er ekki þurfti? Þar
ríkti andi hins raunverulega
kristindóms. Ef einn slátraði
alikálfi, þá var hann brytjaður í
stykki og sinn bitinn gef-
inn hverjum. Væri von á ein-
hverjum nýjum sem bættist í
hópinn þá komu þeir saman, sem
fyrir voru og skiftu með sér
verkum til þess að sækja hann,
ieiðbeina honum, hýsa hann til
bráðabirgða, hjálpa honum til
þess að reisa kofa og rótfesta
heimili. /
Mér fanst landnámið í Sask-
atchewan alt rifjast upp — alt
bera fyrir augun eins og glögg
hreyfimynd — þegar lestin brun-
aði eins og örskot áfram — á-
fram. Og mér fanst eg bera
svipaða tilfinningu gegn þeim
stöðum sem vestur fluttir íslend-
ingar bera gegn ættjörðinni.
Við fórum í gegn um höfuð-
borg fylkisins, Regina. Það er
fallegt nafn en fremur ljótur
bær. Þegar eg horfði þar á
þinghúsið þá mundi eg eftir að
tveir fulltrúar íslendinga sem eg
þekti höfðu setið þar á löggjafar
bekk. Það var W. H..Paulson og
Ásmundur Loftsson. Og eg var
stoltur í huganum þegar eg
hugsaði til þess að á þingtíð
Pauslons kom upp stórkostlegt
fjárglæframál sem allmargir
þingmenn voru flæktir í en land-
inn hafði ekki látið fætur sína
flækjast í því neti.
Skömmu eftir að lestin kvaddi
Regina fór eg að grenslast eftir
hvernig umhorfs væri í hinum
vögnunum og gat því sagt eins
og Stephan G.:
“f næsta vagn gekk eg svo ó-
boðinn inn
að athuga mannlífið þar.”
Þegar þangað kom tók eg
fyrst eftir því að tveir menn
| deildu um eitthvað, og höfðu ná-
j grannarnir þyrpst umhverfis
I þá. Það er þrent, sem fólk
j sækist mest eftir að sjá og
heyra, þótt undanlegt sé. Það
er: rifrildi, áflog og eldar.
Ef einhversstaðar kviknar i
húsi eru menn og konur í stór-
hóþum komin þangað innan
skamms. Þegar einhversstaðar
eiga sér stað áflog eða rifrildi,
er- sama máli að gegna.
Mennirnir voru að ræða
Stjórnmál; annar var liberal,
I hinn conservative. í annars aug-
! um var King svo að segja heilag-
j ur engill, en Bennett heldur verri
j en flugnahöfðinginn sjálfur. Hjá
hinum var Bennett býsna nálægt
j því að vera almáttugur en King
ekkert annað en fótaþurka auð-
valdsins. Og báðir þóttust víst
færa fullkomin rök fyrir ræðum
sínum; báðir þóttust sanna mál
sitt. Sjálfur hlustaði eg á með
mestu athygli, lagði ekki or* í
belg en mér datt í hug vísan
hans Hannesar Hafsteins:
“f blaða- og funda gargans gríð
menn geta fjölmargt sannað;
en til að stjórna landi og lýð
þarf langtum fleira og annað.”
Framh.
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth..............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................K. J. Abrahamson
Árnes...............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg.................................G. O. Einarsson
Baldur..........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville..............................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury..............................H. 0. Loptsson
Brown...............................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge.........................H. A. Hinriksson
Cypress River............................Páll Anderson
Dafoe...................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man...................K. J. Abrahamson
Elfros...............................J. H. Goodmundson
Eriksdale..............................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.....................Rósm. Árnason
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli.................................. K. Kjernested
Geysir................................Tím. Böðvarsson
Glenboro..................................G. J. Oleson
Hayland...............................Slg. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa.................................Gestur S. Vídal
Húsavík.................................John Kernested
Innisfail......................7.....Ófeigur Sigurðsson
Kandahar...............................S. S. Anderson
Keewatin...............................Sigm. Björnsson
Langruth..................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville......................... Ófeigur Sigurðsson
Mozart................................ S. S. Anderson
Oak Point.............................Mrs. L. S. Taylor
Otto.............................................Björn Hördal
Piney...................................S. S. Anderson
Red Deer........................... Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík.........................................Arni Pálsson
Riverton.............................Björn Hjörleifsson
Selkirk.........................................Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.......................K. J. Abrahamson
Steep Rock.......................................Fred Snædal
Stony Hill.......................................Björn Hördal
Tantallon..............................Guðm. Ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víðir.................................._Aug. Einarsson
Vancouver............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach.........................John Kernested
Wynyard ..'............................S. S. Anderson
f BANDARÍKJUNUM:
Akra................................ Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash.................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier..............................Jón K. Einarssoa
Crystal..............................-Th. Thorfinnsson
Edinburg..............................Th. Thorfinnsson
Garðar................................Th. Thorfinnsson
Grafton................................Mrs. E. Eastman
Hallson...............................Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe..............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ágmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton.....................................S. Goodmán
Minneota.............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Sveld.................................Jón K. Einarsson
Upham.................................E. J. BreiðfJöiO
The Viking Press Limited
Winnipeg; Manitoba
HERNAÐUR NÚTÍMANS
Heýna í höfuðborginni, á stóra
auða svæðinu stóð hann og sólin
skein í allri sinni dýrð á skín-
andi klæðin og djásnið sem gerði
hann svo glæsilegan. Gullút-
saumaða kápan og perlum
skreyttu borðarnir endurspegl-
uðu dýrð sólarljómans eins og
daggardropar á rós. Hann lyfti
upp veiklulegri hendi, alsettri
dýrum og fágætum gimsteinum,
og lýsti yfir blessun Guðs yfir
ýmsum hernaðartækjum. Þegar
hann hélt uppi höndunum þá
féllu borðarnir á kápuermunum
til baka í fögrum og töfrandi
bylgjum.
Hann færði sig yfir til fylk-
ingu hermannanna, manna sem
umskapaðir höfðu verið til að
líta út allir sem einn maður, tala
og framkvæma sem einn maður,
eiris og vél, en aldrei að hugsa;
slíkt var bannað. Alræðisherr-
ann einn mátti hugsa. — Hvers
annars þarfnast nokkur þjóð: al-
ræðisherra sem fyrirskipar,
manna sem hlýðnast, berjast og
deyja og Guðsþjóns sem leggur
blessanir sínar yfir alt.
Gamalmenni konur og börn
stóðu og horfðu á og voru eins
og í leiðslu yfir allri þessari dýrð
og valdi sem þarna kom í ljós.
Sannarlega gat engin fegurð
jafnast á við Guðsmanninn í
skínandi og dýrðlegu klæðunum
sem stóð frammi fyrir fólkinu
og tónaði fögur orð sem fólkið
ekki skildi og lagði blessanirnar
yfir herútbúnaðinn.
Alræðisherrann veifaði kveðju
til hersveitanna og horfði með
stolti á þessa menn, sem verið
var að senda út í dauðann. —
Stoltar konur og mæður horfðu
aðdáunaraugum á þessa menn
sem þær kölluðu sína eigin. Þær
skildu eigi að í raun og veru var
verið að fórna þeim á altari her-
guðsins.
Börn stóðu hjá og veifuðu fán-
um en vissu elcki og skildu ekki
til hvers.
Úti á eyðimörkinni ruddust
herbáknin áfram, drápsvélar,
ferlíki úr stáli, gerð af manna-
höndum til að eyðileggja. Guðs-
maðurinn hafði lagt blessun
Guðs yfir þetta alt — máske he'r-
guðsins, Guðs þessa heims en
ekki hins réttláta og góða Guðs
—herbáknin ruddust inn í litlu
varnarlausu þorpin og spýttu
eldi og drápu menn og konur og
börn. Hermennirnir þrömmuðu
á eftir og drápu og eyðilögðu.
Uppi í heiðbláma himingeimsins
sveimuðu með ógurlegum gný
afar stórir flugdrekar. Þeir
hringuðu sig yfir litlu þorpunum
og köstuðu niður sprengikúlum
sem eyðilögðu mannslíf, heimili
og fagra framtíðar drauma.
Móoir ásamt tveimur börnum
sínum með grátin andlit horfði á
stóru flugdrekana svífa um him-
ininn. Faðir barnanna var fall-
inn í valinn og þau sátu yfir líki
hans. Hann hafði verið val-
menni og elskað fjölskyldu sína.
Þau höfðu staðið hjá og hjálpar-
vana horfi á hann drepinn. Þau
höfðu séð manninn í snyrtilega
einkennisbúningnum miða
skammbyssunni á hann og þau
heyrðu skotið og sáu föður sinn
falja til jarðar. Það var hræði-
leg sjón, hann sem ætíð var þeim
svo góður og ástúðlegur lá þarna
á jörðinni og hreyfði sig ekki.
Móðirin hafði þotið til hans og
fleygt sér niður hjá honum. Hún
horfði á hann, hristi hann til og
reyndi að tala við hann. Börnin
höfðu aldrei fyr séð móður sína í
slíkri geðshræringu.
Svo gerðist hún þögul og hljóð.
Börnin færðu sig nær henni og
horfðu á blóðið renna úr höfði
föður síns — gegn um þykka
svarta hrokkna hárið rann það
og niður andlitið og ofan á jörð-
ina og myndaði þar poli og flug-
urnar komu og suðuðu og sveim-
uðu í kring.
Börnin horfðu á blóðið renna
og hlustuðu á flugurnar suða.
Þau reyndu að tala við móður
sína en hún svaraði þeim ekki.
Hún bara horfði út í geiminn á
stóru drekana sem gerðu svo
mikinn hávaða.
Skyndilega féll niður sprengi-
kúla örskamt frá og litli dreng-
urinn sá hana grafa sig djúpt
niður í jörðina og síðan sundr-
aðist hún í þúsund mola. Hann
heyrði sársaukahljóð og horfði1
í kring um sig. Hann sá móður
sína og litlu systir liggja yfir
líki föður síns, blóð rann úr þar
sem áður höfðu verið augu móð- j
urinnar og andlit litlu systir
hans var alt sundur tætt. Á
hans eigin handlegg var stórt
sár og rann blóðið úr því. Hann
lagði litlu hendina yfir sárið en
blóðið þykt og heitt ran út á
milli litlu fingranna. Hann
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlfstofusiml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að flnni 6 skriíatofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. HeimlU: 46 Alloway Are. Talsimi: 33 lSt Thorvaldson & Eggertson Lögfræðingar 705 Confederation Life Bldg. Talsimi 97 024
Orrici Phonk Rks. Phonk 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 100 MKDICAL ART8 BUIUDINQ OrncK Homis: 12-1 4 p.m. - 6 r.M. AND BT APPOINTMENT W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKlR LÖGFRÆÐINQAR öðru gólíi 325 Main Street Talsimi: 97 621 Haía einnig skrifstofur að Lundar og Gimli os eru þar að hitta, íyrsta mlðvikudaB i hverjum mónuði.
Dr. S. J. Johannesðon 272 Home St. Talsiml 30 877 VlOtalsUml kl. 3—5 e. h. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Leetur útl meððl I vlðlögum VHStalstímar kl. 2 4 e, h. 7—8 »8 kveldlnu Simi 80 867 666 Vlctor Bt.
J. J. Swanson & Co. Ltd. HÆALTORS Rental, Inturance and Financial Agents Sími: 26 821 308 AVE^íUE BLDG.—Winnipeg A. S. BARDAL eelur llkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann aiiskrm.e mlnnlsvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE 8T Phone: 66 607 WINNIPBO
Gunnar Erlendsson Planokennart Kenslustofa, 796 Banning St. Sími 89 407 thl watch shop Thorlakson Baldwin Diamonds and Weddlng Ringg Agents for Bulova Watchea Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 691 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast aliskonar ílutnlnga fimm og aftur um bœinn. Rovatzos Floral Shop *0« Notre Dame Ave. Phone 94 954 Freata Cut Flowera Daily Plants ln Season We speclalize in Weddlng & Concert Bouqueta Sc Funeral Designs Iceiandic spoken
DR. A. V. JOHNSON DENXIST 506 Somerset Bldg. Office 88124 Res. 36 888 MARGARET DAUVIAN TEACHER OF PIANO 844 BANNING ST. Phone: 26 420
greip dauðahaldi í móður sína og
grét en hún svaraði ekki. jar til fólksins sem drepið hafði
En áfram héldu stríðsvélarn-! son hennar. Hún sem ætíð áður
ar æðandi yfir landið og út- hafði verið svo blíðlynd og aldrei
breiddu hörmungar,
ingu og hatur.
eyðilegg- fyr hatað nokkra manneskju.
Hún reis á fætur og gekk út 1
• kirkjuna og þegar hún nálgaðist
En hima í höfuðborginni á dyrnar þá fór hún að efast um
stóra auða svæðinu skein sólin í að Guð væri til. Hún var hrædd
allri sinni dýrð yfir gulldjásnið j 0g hún spurði sjálfa sig: Hvern-
og perlum skreyttu borðana og jg getur verið til nokkur Guð?
veiklulegu hendurnar sem gihi-
steinarnir skreyttu voru upp-
lyftar í bæn, bæn fyrir sigri. Úti
á skrúðgöngusvæðinu skálmaði
alræðisherrann og yfirleit nýja leftir meira valdi
hersveit sem verið var að senda!
Hún hafði með þjáningum fætt
son sinn inn í heiminn og nú
hafði hann verið tekinn frá
henni vegna græðgis þjóðarinnar
í stríðið.
Inni í kirkjunum krupu með
perlubandið í höndum sér konur
og mæður mannanna sem sendir
höfðu verið í stríðið fyrir nokkr-
um mánuðum. Inni í lítilli
kirkju á hliðargötu kraup móðir
nokkur alein. Sólin skein inn
um litaðar rúður glugganna og
varpaði litaðri birtu á andlit
hennar og á hinar dökku sorgar-
slæður sem hún bar í minningu
um son sinn. *
Hún flutti bænir sínar frammi
fyrir kristslíkneski sem útskorið
var ú» við og málað eðlilegum
litum. Sólin skein í gegn um
bláa glerrúðu og varpaði bláu
ljósi á kristsandlitið og líknesið
sýndist kuldalegt og harðneskju-
legt. Móðirin lyfti nú upp aug-
um sínum og leit á kristslíknesk-
ið en kristur sýndist nú eitthvað
svo undarlegur og fjarlægur og
kaldranalegur að vesalings móð-
irin varð dauðhrædd.
Mikið hatur bjó í hjarta henn-
Hún gekk áleiðis til stóra auða
svæðisins þar sem hún hafði
síðast litið son sinn augum. —
Skrúðgöngu svæðið var alskipað
hermönnum, nýliðum sem stóðu
í sólskininu og meðtóku blessan-
ir Guðmannsins og þegar hún
virti þá fyrir sér þá virtist henni
hver og einn þeirra vera ímynd
sonar hennar.
Uppi á svölunum stóð guðs-
maðurinn með upplyftum hönd-
um og tónaði blessanirnar.
Hún ruddist inn í mannfjöld-
ann og sorgarslæðurnar rifnuðu
þegar hún braust áfram til þess
að komast fram fyrir mann-
þröngina og þegar hún loks
komst upp að svölunum þá leit
hún upp og hrópaði: niður með
stríðin, niður með mannvigin,
niður með alla þá sem leggja
blessun sína yfir stríðin.
Lögreglan ruddist áfram og
lafði hendur á hana heldur ó-
þyrmilega og dróg hana í burtu.
Fólkið sagði: Hún er vitskert.
410 Medical Arts Bldg.
Dr. K. J. AUSTMANN
Stundar eingöngu
Augna, eyrna, nefs og kVerka
sjúkdóma
10 til 12 f.h.—3 til 5 e.h.
Skrifstofusími 80 887
Heimasími 48 551
Hún var úrskurðuð vitskert af
því hún dirfðist að hrópa: “nið-
ur með stríðin, niður me?í mann-
vígin.” — (Lauslega þátt hefir
Helgi Elíasson úr Illustrated
Weekly of India).
----------------- ; £
fslendingar!
Þér sem eruð bókamenn og
bókavinir! Munið eftir því, að
þér aukið þægindi yðar, og
prýðið alt í kring um yður, með
því, að láta binda og gylla bækur
yðar. Þá þurfið þér ekki annað,
en að renna augunum yfir kjöl-
inn á bókunum, til þess að finna
bókina, sem þér þurfið á að
halda. Sendið því bækur yðar,
sem fyrst, í band eða viðgerð,
til Davíðs Björnssonar að
“Heimskringlu”. — Stafirnir
þryktir í gull eða silfur á kjöl-
inn, eftir því sem óskað er. —
Miklu efni úr að velja í mörgum
litum. Verkið vel af hendi leyst.
— Þér hafið erft offjár, en
samt neitið þér að greiða skuldir
yðar ?
— Já, eg kæri mig ekki um
að fólk segi um mig að eg lifi í
óhófi þó mér hafi áskotnast
aurar.