Heimskringla - 14.06.1939, Side 1
Phone 96 361
OyV ^ Country Club
1 BEER
“famous for flavor”
LIII. ÁRGANGUR
HELZTU FRÉTTIR
_____________________
Vertíðinni lokið
Sambandsþinginu var slitið 3.
'júní; þingmennirnir eru nú að
vertíð lokinni að koma heim með
aflann og geta nú rétt úr sér
eftir róðrana.
Frá störfum þingsins hefir
flestum verið sagt, nema því er
gerðist síðustu dagana. Skal hér
því aðeins á það minst.
Frumvarp Dunnings um stofn-
un veðlánsbanka var samþykt í
mesta flýti, en var þó mjög lim-
Iest áður og breytt frá því sem
það var upphaflega. Stjórnin
varð í mörgum greinum að láta
undan ofurvaldi lánfélaganna
sem $580,000,000 eiga í veðlán-
um um alt land. Ákvæðið um
niðurfærslu lánskulda í bæjum,
var felt úr frumvarpinu. Og
vextir á lánum til annara en
bænda, verða ekki bundin við'
5% ákvæðið heldur, sem farið
var fram á í frumvarpinu í
fyrstu. Veðlánsbankinn sjálfur
getur að vísu veitt lán fyrir
514%, en aðrir bankar geta sett.
vexti eftir því sem þeim sýnist.
5% vaxta-ákvæðið er því úr sög-
unni; stjórnin ræður, með öðrum
orðum, ekki hverjir vextir verða.
Þessar tvær breytingar á
frumvarpinu, varða miklu og
draga mjög úr kostum frum-
varpsins. Að því leyti, sem 5%
ákvæðið stendur enn óhaggað á
Iánum til bænda frá þessari
stofnun, má frumvarpinu það til
gildis telja en hvað margir
bændur geta tekið peningalán
með þeim vöxtum og borgað þá
og nokkuð í láninu árlega, með
hveiti á því verði, sem það er?
Annað sem í lok þingsins var
samþykt, var að gefa iðnaðar-
höldum 10% afslátt af tekju-
skatti þeirra, ef þeir gerðu eitt-
hvað við stofnanir sínar eða
stækkuðu þær. Þessu ákvæði
um skattlækkun iðnaðarburgeis-
anna, var harðlega mótmælt,
nema eitthvað væri á sama tíma
gert til að létta byrði alþýðunn-
ar, eins og með lækkun sölu-
skatts og tolla. En við það var
ekki komandi.
Þeir sem k.röftuglegast mót-
mæltu lækkun tekjuskattarins á
iðnaðarhöldunum, voru Angus
Maclnnis, C.C.F.-sinni frá Van-
couver og G. E. Wood, liberal
þ.m. frá Ontario. Bentu þeir á,
að iðnaðarhöldarnir mundu með
þessu bæta vélum við sig og af
því leiddi aukið atvinnuleysi. En
Dunning og stjórnin var á ann-
ari skoðun.
Tveir þingmenn frá Vancouv-
er, Grant MacNiel, C.C.F.-sinni
og Howard Green, íhaldsmaður,
hreyfðu því að gert væri eitt-
hvað til að bæta hag hermanna
úr síðasta stríði, sem allslausir
væru. Töldu þeir skömm, að
þessir menn væru nú á hrakn-
ingi og héldu lífi í sér með því
að vinna fyrir fæði aðeins hjá
bændum eða líknarfél. hins
opinbera; mennirnir, sem áður
var af stjórninni talað um sem
sannar hetjur! Töldu þeir þá
hafa tapað tækifærum að halda
sinni atvinnu með því að fara í
herinn og væru þessvegna öðrum
verðari ásjár. Stjórnin sló
skolleyrum við þessu og kvaðst
ekkert fyrir þessa menn geta
gert.
Meðan nefnd þingmanna ,sat á
fundi og var að íhuga Bren-
byssu-málið, var þingi slitið. —
Álit þeirrar nefndar bíður því
næsta þings, enda betra að gera
ekki meira veður úr því en orðið
er undir kosningar. Nefnd eða
ráð skipaði þó stjórnin til þess
að hafa eftirlit með hervopna-
smíði hér eftir.
Fiskiráð var ennfremur skip-
að til þess að greiða fyrir með
rekstur og sölu þessa iðnaðar.
“Bretar vinna
Bandaríkin aftur”
Með þessari fyrirsögn birtist
grein í einu stórblaði New York-
borgar “The World-Telegram”,
s. 1. fimtudag, er sagði frá komu
konungshjónanna brezku til
Bandaríkjanna. Viðtökurnar
syðra hafa af bæði þessu og öðru
að dæma verið svipaðar og í
Canada. Við landamærin tók Mr.
Hull ríkisritari og frú hans á
móti konungshjónunum og
fylgdu þeim til Washington, D.
C., á fund Roosevelts forseta og
frúar hans. Var konungshjón-
unum þá sýnd borgin og að
kvöldi haldin móttöku veizla í
Hvítahúsinu. Þar flutti for-
setinn og konungur ræður þær
sem birtar eru á öðrum stað í
blaðinu.
Til New York var komið og
sagði svo í útvarpsfrétt, að kon-
ungi hafi orðið starsýnt á styttu
Leifs hepna við íslenzka sýning-
ar skálann.
Við komu konungshjónanna
til Washington, er sagt að verið
hafj um 600,000 manns.
Til Canada komu konungs-
hjónin aftur s. 1. mánudags-
morgun. Heimsækja þau nú
Auisturfylikin, sem þau komu
ekki við að heimsækja fyr. Frá
Canada verður haldið 15. júní,
en áður en festar verða leystar,
útvarpa konungshjónin kveðjum
til Canada.
Þjóðeign járnbrauta
í Svíþjóð
Á ríkisþinginu í Svíþjóð var
nýlega samþykt í báðum deild-
um stjórnarfrumvarp um að
gera járnbrautir landsins að
þjóðeign. í frumvarpinu felst,
að stjórnin nái í sínar hendur
öllum járnbrautum landsins á
næstu fimm árum, sem nú eru
eign einstaklinga. Allar járn-
brautir landsins eru um 16,900
km. að lengd (10,500 mílur). Af
þeim eru um 8,800 kílómetrar
(5,500 mílur) eign eiinstakra
manna, sem á næstu árum verða
því sameinaðar ríkisjárnbraut-
unum.
Sambandsstjórnin
gefur smjör
f þessari viku verður byrjað í
Toronto að úthluta smjöri ó-
keypis til fátækra. Hefir Sam-
bandsstjórnin keypt um 6 miljón
pund smjörs til þessa, en um
útbýtinguna sér Rauðakross fé-
lagið í Canada. Menn sem tak-
markaða vinnu hafa eða eru
vinnulausir, fá eitt pund af
þessu smjöri á móti hverju pundi
er þeir kaupa. Borgin Toronto
fær um 232,000 pund af smjör-
inu, en afganginn aðrar borgir
í Canada.
50 börn hnept í varðhald
Leynilögregla nazista í Tékkó-
slóvakíu, henpti nýlega um 50
skólabörn í varðhald. Börnin
var verið að flytja til Zlin og
var farið um sum þýzku héruðin
í Moravia. Börnin úthrópuðu
Þýzkaland og voru öll handtekin
á lestinni.
PELISSIER’S
Country
Club
Beer A
Phone 9ö 361
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 14. JÚNÍ 1939 NÚMER 37.
Ræður George VI konungs og
Roosevelts forseta í Washington
Hér á eftir fara ræður þær er George VI. Bretakonungur
og Frankin D. Roosevelt forseti, fluttu í móttöku-veizlu kon-
ungshjónanna 8. júní í Hvítahúsinu í Washington.
RÆÐA ROOSEVELTS FORSETA
Yðar hátignir: í lífi þjóða sem einstaklinga, koma fyrir
atvik, sem gnæfa yfir alla aðra viðburði sögunnar og ógleym-
anleg verða. Eitt þessara minnisstæðu atvika er núf að
gerast í söjfu Bandaríkjaþjóðarinnar, þar sem hún á í fyrsta
sinn kost á að bjóða velkominn til landsins Konung og
Drotningu Breta og nábúa þjóðar vorrar, Canada, og allra
þjóða hins víðfeðma Bretaveldis. Það er í senn fágæf en
fagnaðarrík stund, er við munum ávalt minnug og þakklát
fyrir, því hún er um leið vottur um vináttuna, sem brezku og
bandarísku þjóðirnar knýta saman órjúfanlegum böndum.
Vér höfum mikla freistingu til að halda fram að enginn
stærri skerfur hafi verið lagður til menningarinnar og vel-
ferðar öllu mannkyni, en sá, er þessar tvær þjóðir hafa gert
með framkomu sinni og fögru eftirdæmi um sambúð þjóða á
milli.
Það er vegna þess að hvorug þjóðin hefir nokkru sinni
borið hinn minsta ótta til hinnar, að milli þeirra hafa aldrei
nein vígi verið reist. Það er vegna þess að hvorug þjóðin
hefir óttast árás af hinnar hálfu, sem þær hafa aldrei kepst
hvor við aðra í herútbúnaði.
Á eitt dæmi sem nýega kom fyrir, er bæði konungurinn
og eg munum eftir skal minst. Tvær óbygðar eyjar í Kyrra-
hafinu urðu alt í einu að þrætuepli milli Breta og Banda-
ríkja þjóðarinnar vegna þess hve ákjósanlegur flugáfangi þær
eru milli Ameríku og Ástralíu. Báðar þjóðirnar gerðu kröfú
til eignaréttar á þeim. Og báðar höfðu mikið til síns máls.
Að hefja langa þrætu um þetta gat orðið til þess, að vekja
óvild milli þjóðanna og frestaði að minsta kosti því, að eyjarn-
ar yrðu notaðar til þess, er þær voru hentastar. Til að gera út
um málið, var svo lagt til, að eyjarnar skyldu notaðar af
báðum þjóðunum eftir þörfum og láta liggja milli hluta um að
skera úr með eignaréttinn á þeim til ársins 1989. Á þetta
var sæzt, svo á næstu 50 árum þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af því máli.
Ef hægt væri að skera á eins auðveldan hátt úr landa-
þrætumálum annara þjóða og þarna reyndist, væri stórt spor
stigið í heiminum til varanlegs friðar og ánægjulegra lífs og
sambúðar. Og þá gætu menn enn á ný litið vongóðir og glaðir
til framtíðarinnar.
Megi skilningur þjóða vorra æ glæðast meir og meir fyrir
þessu 0g vináttu böndin treystast. Frúr mínar og herrar!
Við drekkum skál Hans Hátignar, George konungs VI.
RÆÐA GEORGE KONUNGS
Heimsókn Drotningarinnar og mín hingað í dag, er nokk-
uð, sem oss hefir verið ofarlega í huga í margar vikur og
hafi augnabliks áhyggjur gripið oss, hefir það aðeins orðið
til Þess að við höfum því meir hlakkað til þessarar stundar.
Eg vil þessvegna í fyrsta lagi þakka yður fyrir yðar góða
boð og fyrir yðar ennþá betri viðtökur. Hvernig þér hafið
tekið á móti oss í Washington, hefir snert strengi tilfinninga
vorra djúpt. Og við vitum að hver einasta mínúta sem við
dveljum í Bandaríkjunum, verður oss óblandinn fögnuður.
Frá Canada, sem við komum og hverfum aftur til bráðlega,
færi eg yður hlýjar og einlægar kveðjur nábúa og ótraúðra
vina. Frá öðrum þjóðum vorum og frá Bretlandi færum vér
yður einnig hugheilustu kveðjur og góðvina árnað, Um leið
og vér drekkum skál yðar, herra forseti, óskum vér yður til
heilla og hamingju. Vér treystum því og trúum, að saga
Bandaríkjanna beri á komandi árum eins glæsilegan vott um
í'kipulagðar framfarir og velgengni í öllum greinum eins og
hún hefir gert til þessa. Og vér biðjum þess og vonum að
þjóðir vorar megi í framtíð vinna saman að því er til vel-
ferðar 0g friðar heyrir.
Bauð konungurinn
Roosevelt?
Eftir ferð konungshjónanna
brezku til Bandaríkjanna og sem
þau tala bæði um sem eina hina
ógleymanlegustu heimsókn, telja
mörg blöð víst, að Roosevelt for-
seta og frú hans hafi verið boðið
til Englands á komandi hausti.
Með vissu verður auðvitað ekki
um þetta sagt, en ólíklegt er það
ekki. Það getur verið litið svo
á, að meðan Roosevelt er við
völd, sé ýmislegt á móti ferð
þeirri. Samt eru mörg dæmi
þess að forsetar Bandaríkjanna
hafi heimsótt önnur þjóðríki.
Wilson, Theodore Roosevelt,
Taft, Harding, Coolidge og nú-
verandi forseti sjálfur hafa út
úr landi brugðið sér meðan þeir
voru forsetar. Hitt er þó algeng-
ara, að þeir fresti slíkum ferða-
lögum þar til embættistíð þeirra
er lokið.
FRÉTTA-MOLAR
Forsetafrú F. D. Roosevelt
skrifaði mjög nákvæma og
greinilega frásögn af ferð kon-
ungshjónanna til Bandaríkj-
anna, sem birtist í blaðinu Win-
nipeg Tribune og eflaust urmul
blaða í Bandaríkjunum. Frá-
sögn hennar birtist á hverjum
degi í fjóra daga og skýrir svo
að segja frá hverri hreyfingu
konungshj ónanna.
* * *
Bæjarráðið i Winnipeg hafði
það mál til íhugunar á síðasta
fundi sínum, hvort ekki væri
fýsilegt fyrir bæinn að koma
upp stofnun til að hreinsa (re-
fine) og selja gasolíu og olíu til
áburðar á eigin spýtur.
* * *
Á morgun (fimtudag) syngja
skólabörn í mörgum borgum
Canada “God Save the King”,
sem næst þeirri stund, er kon-
ungshjónin kveðja Canada. í
Winnipeg er talið að 30,000 börn
taki þátt í söngnum. Mikið af
deginum eftir hádegi hlýtur að
fara í þetta, því ekki getur
nema einn bær látið syngja í
einu. Konungshjónin fara að
kvöldinu, 15. júní, frá Halifax
til Newfoundland og Englands.
* * *
Tekjuhalli fylkisstjórnarinnar
í Saskatchewan nam á fjárhags-
árinu sem lauk 30. apríl $643,-
485. Tekjurnar á árirni námu
$20,941,715.
* * *
S. 1. laugardag var opnaður
nýr þjóðvegur (The Pas High-
way) í Manitoba. Hann er frá
Mafeking og norður að The Pas.
Var mikil hátíð haldin norður
þar við þetta tækifæri og voru
John Bracken forsætisráðherra
og T. A. Crerar námuráðherra
sambandsstjórnar og þ.m. fyrir
Churchill þar að fagna fram-
förunum með kjósendum sínum.
* * *
Á mánudaginn skýrði lögregla
Winnipeg-bæjar frá að 9 bílum
hafi verið stolið yfir síðustu
helgi. Þeir voru allir fundnir á
mánudag og furðu litlu stolið úr
þeim.
* * *
Hitler hefir verið gerður að
heiðursborgara í Danzig. Með
Danzig tilheyrandi Póllandi,
verður Beck utanríkismálaritari
Póllands um leið verndari Hitl-
ers, sem annara útlendra borg-
ara í Danzig. Ákvæði þessu er
ennfremur sú skylda samfara
fyrir Pólland, að sjá um útför
allra heiðursborgara í Danzig.
SKEMTISKRÁ
Islendingadagsins 17. júní
1939 á íslenzku sýningunni
í New York
Útvarpsstöðvar—11.830 mega-
cycles, short wave, W2XE. Pos-
sibly Canadian Broadcasting
Network.
Time 2.15 p.m. to 3.30 p.m.
Eastern Daylight Time. 12.15
p.m. to 1.30 p.m. Winnipeg Time.
Ræðumenn: Thór Thórs, for-
maður íslenzka sýningarráðsins.
Fiorello H. LaGuardia borgar-
stjóri í New York. Grover A.
Whalen, forseti sýningarinnar.
Gerald P. Nye, senator fyrir
Norður Dakota. Dr. Vihjálmur
Stefánsson, fulltrúi Þjóðræknis-
félagsins. íslenzk musik.
GRÍMSEY
Eyja liggur í Ægi
Undir heimsskautsins baug.
Þar um sumarnótt syndir
Sól í hafdjúpsins laug.
Varpar gullbjarma gliti.
gljáir lognsléttur sær.
Leiðir purpuraliti
Lengra en kveldgeislinn nær.
Og sem bogi í baksýn
Birtast snjóþakin fjöll,
Er í fjarlægðar fölva
Falla í bládjúpið öll.
Hefst þá röðull úr hafi
Hljóminn vorraddir fá.
ómar bergmál úr bjargi;
Brothljóð öldunum frá.
Kyrð er rofin og rabbar
Rembin æður við strönd.
Kría leikur í lofti,
Leggst gegn strauminum önd.
Hlægja langvíur löngum.
Liggur álka á sæng.
Vakna teistur og tirðlar
Teigja ljóskvikan væng.
Borgarhöfði þar brýtur
Brim með útréttri mund.
Eyjafótur og Flesjar
Faðma víkur og sund.
Svo er Sveinsstaðarani,
Sem í klappirnar hjó
Kröftug víkinga kvæði,
Karlmanns átök við sjó.
í skjóli hamranna háu
Hefst mót sólarlagsátt
Gróður grösugra hlíða,
Er grær í brekkunum hátt.
Þangað sauðfé á sumri
Sækir næring og frið;
Einnig elskendur tíðum
Una hamrana við.
En mót austri sézt rísa
Yfir stormbylgju köst,
Sextugt bjargið, er brýtur
Brimsins eilífu röst.
Er um stuðlabergsstalla
* Steypist fóðöldu-hríð
Bjargið brosir í kampinn:
Býður hafinu stríð.
Þar í íshafsins álum
Aldabarátta er háð.
En úr sögunni sjálfri
Sumt er glatað og máð.
Uvorki upphaf né endi
Andi mannanna kýs
Er um sólstöður sumars
Sól af öldunum rís!
S. E. Björnsson
Á mánudaginn þann 5. þ. m.
voru þau Miss Stefanía Aðal-
björg Björnson og Mr. Carl H.
Denbow gefin saman í hjóna-
band í Minneapolis, Minn. Brúð-
urin er dóttir þeirra Mr. og Mrs.
Gunnars B. Björnson og fór
brúðkaupið fram á' heimili
þeirra. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður að Athens O.
Thór Thórs alþingismaður frá
Reykjavík á íslandi kemur fyrir
þessi mánaðarmót til Winnipeg
og flytur erindi á vegum Þjóð-
ræknisfélagsins á eftirfarandi
stöðum:
f Winnipeg, mánudaginn 3. júlí.
Gimli, þriðjudaginn 4. júlí.
Argyle, fimtud. 6. júlí.
Mountain, N. D., sunnud. 9. júlí
Nánar auglýst í næstu blöð-
um.
Hr. Thór Thórs er sonur Thór
Jensen kaupmanns og einn af
mestu menta- 0g atkvæðamönn-
um íslenzku þjóðarinnar. Hann
er lögfræðingur og hefir með
höndum auk þingmensku ýms
mikilsverð störf. Hann er for-
maður íslandssýningarinnar í
New York, og er nú þar stadd-
ur; kom þangað nýlega, en Vil-
hjálmur Thór er þar fram-
kvæmdarstjóri. Frá New York
komur hr. Thórs hingað.
* * *
Guðm. dómari Grímsson frá
Rugby, N. D., kom til bæjarins í
gær. Hann kom til að sjá dr.
Rögnvald Pétursson og aðra
kunningja í bænum.
* * *
Frézt hefir að Gunnari B.
Björnssyni muni verða boðið til
íslands í sumar af stjórninni
heima.
* * *
Halldór Gíslason frá Winni-
pegosis, Man., kom til bæjarins
í gær. Hann dvelur í bænum
fram að. vikulokum og fer þá
norður til Winnipegosis aftur en
flytur 1. júlí til Leslie, Sask.