Heimskringla - 12.07.1939, Side 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 12. JÚLí 1939
FJÆR OG NÆR
MESSUR f fSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Vatnabygðir sd. 16. júlí
Kl. 11 f. h. Sunnudagaskóli í
Wynyard.
KI. 11 f. h. (M.S.T.): Messa í
Hólar.
Kl. 2 e. h.: Messa í Mozart.
Kl. 4 e. h. Messa í Grandy.
Kl. 7 e. h.: Messa í Wynyard.
Jakob Jónsson
Young Icelanders News
The Young Icelanders are go-
ing to take a trip on the S. S.
Keenora Sunday, July 16, 1939.
All members are asked to bring
their friends and anyone desir-
ing to come is heartily welcome.
Please arrange to be at the
Redwood Dock at 2 p.m. on the
above date and bring your own
lunches.
Mr. og Mrs. Sigurður Sigurðs- | Mrs. Anna Pétursson kona
son frá Ashern og synir þeirra,ólafs Pétursson fasteignasala að
tveir, Sigurður og Leo, komu til! 123 Home St., Winnipeg, og
bæjarins s. 1. fimtudag og börn þeirra, Elsie, Lilja, Pétur
GET IN
THE GAME
HERE’S TO MEN who love
the feel of a No. 7 Iron as
it cuts the turf and lifts the ball
to the green, who like the
smooth yellow skin of a foot-
ball, the silky strength of a
fishing line or the whip in the
rod, the giossy grain in a pair
of skiis, the clean spikes on the
soles of supple black track
shoes, the grip on the golden
handle of a tennis racket and
the whine of the almost trans-
parent strings as they cut the
ball, the blended noise of siz-
zling bacon and bubbling coffee
cooked in camp equipment over
a log fire, the balance in a good
baseball bat, the rich smell of
leather in a catcher’s glove or
the smooth grey cover Of a
softball. If you appreciate these
feelings and you thrill at the
sight of clean new sporting
equipment — then you’ll find
Eaton’s with its wide selection,
a paradise to shop in.
EATON’S
stöldruðu hér við fram undir
helgi.
* * *
Mrs. Hannes Pétursson, 353
Oak St., Winnipeg og dóttir
þeirra hjóna, María, lögðu af
stað í vikulokin suður til New
York á heimssýninguna. Þær
verða að heiman í tvær til þrjár
vikur.
* * *
Mrs. P. S. Dalman og dóttir,
Alma, lögðu af stað til Vancou-
ver, B. C„ s. 1. sunnudag. Fóru
mæðgurnar að heimsækja Paul
Dalman hljómsveitarstjóra, son
Mrs. P. S. Dalman. Þær bjugg-
ust við að verða mánaðar tíma
að heiman.
* * *
Miss Elsie Pétursson, dóttir
Ólafs Péturssonar fasteignasala
kom heim fyrir fáum dögum síð-
an frá Vancouver, B. C. en hún
hafði þar kenslu með höndum
s. 1. vetur. Hún dvelur hér
eystra fram undir lok ágústmán-
aðar, en fer þá vestur aftur og
heldur áfram kenslustarfi. Hún
var fulltrúi stúlkudeildarinnar
“Blómalind”, í Vancouver á
ellsherjar ungmenna þinginu
(Youth Conference of Canada),
sem haldið var nýlega í Winni-
peg.
* * *
Valdimar Bjarnason frá Van-
couver, B. C., (sonur Páls
Bjarnasonar, sem íslendingum
er kunnur fyrir skrif sín í Hkr.)
kom til bæjarins fyrir nokkru og
sat hér allsherjar þing ung-
menna (Youth Conference of
Canada) sem fulltrúi frá Van-
couver.
og Sigurður, lögðu af stað i
skemtiferð til Austur Canada og
Bandaríkjanna s. 1. sunnudag.
P’erðinni var fyrst heitið til
Minneapolis og Duluth, þaðan til
Toronto, svo <til Huntsville í
grend við Toronto, þ>ar sem
Hannes sonúr þeirra Mr. og
Mrs. 0. Pétursson býr og sem
er verkfræðingur í þjónustu On-
tario-stjórnarinnar. Því næst
verður haldið til Dryden, Ont.,
en þar býr Rögnvaldur sonur
þeírra, verkfræðingur, sem við-
skifti rekur á eigin spýtur. Að
heiman var búist vð að vera í 3
til 4 vikur.
* * *
Mr. og Mrs. William Rinn frá
Los Angeles, Cal„ ásamt börn-
um sínum Raymond og Lorna,
eru nýkomin í heimsókn til for-
eldra Mrs. Rinn, Mr. og Mrs. Jón
Magnússon að 940 Ingersoll St.
* * *
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson var
fluttur á spítala (General Hos-
pital) s. 1. fimtudag og var
skorinn upp við kviðsliti. Honum
líður eftír vonum og menn búast
við skjótum bata, en þess er
æskt fyrstu dagana, að hann
hafi sem mest næði og sé ekki
heimsóttur.
Árni Eggertsson fasteignasali
og Árni lögfræðingur sonur
hans, Sveinn Thorvaldson, M.B.
E„ frá Riverton og Thórður
kaupmaður Thórðarson frá
Gimli, lögðu af stað s. 1. laugar-
dag suður til New York á heims-
sýninguna.
* * #
Gunnar Guðmundsson frá
Winnipegosis, Man„ (fyrrum frá
Wynyard), kom í gær til bæjar-
ins. Með honum komu Mrs. G.
Friðriks'son, og þrjár dætur
hennar. Mrs. Friðriksson kom
til að leita sér lækninga við augn-
veiki.
I2V2 per cent
hlutagróði ....
Það borgar sig að nota Hydro orku vegna þess
að af hverjum dollar eyddum fyrir hana fær
bærinn innheimt 12(4 Per cent í sköttum, sem
léttir skattbyrði almennings.
Yfir tvö síðustu árin, hefir City Hydro lagt bæn-
um til fé á þennan hátt, sem nemur $500,000.
Þessi fjárhæð er auðvitað auk reglulegra skatta,
sem félagið greiðir bænum.
Á þennan hátt hagnast þjóðfélagið aðeins með
notkun City Hydro orku, svo munið að—
CITY HYDRO
er yðar — notið það!
Dr. Richard Beck og fjöl-
skylda hans sem hefir dvalið um
þriggja vikna tímjj, í Winnipeg,
leggur af stað heim til sín til
Grand Forks, N. D„ í dag. Dr.
Beck á forkunnar vandaðan íbúð-
arvagn, sem hér eru kallaðir
“trailers” 0g bílar toga létti-
lega. Er kostur þeirra sá, að
hægt er að á hvar sem er og
vera. sem heima hjá sér. Dr.
Beck flutti því húsið með sér og
sasna sem bjó hér í Winnipeg
meðan við var staðið. Næst
flytur hann til Ithaca eða hver
veit hvert meðan á hvíld frá
kenslunni við Norður-Dakota
háskóla stendur. Meðan Dr.
Beck stóð hér við, vay dvöl hans
eitthvað annað en hvíld, því
hann starfaði sífeldlega að
þjóðræknismálum og stjórnaði
öllum samkomum Thor alþm.
Thors hér. Notuðu aðrir frí-
stundir sínar eins og hann væri
það viðhaldi íslenzkra mála hér
mikil hjálp.
* * *
Ben Hendrickson, 449 Burnell
St„ Winnipeg, lézt ^á Grace
sjúkrahúsinu sunnudaginn 9.
júlí. Var banamein hans hjarta-
bilun. Lætur hann eftir sig
konu, Kristínu Jónsdóttir og
tvær dætur, Mrs. R. Storry, í
Winnipeg og Lilliam Helgu, ó-
gifta, heima. Faðir hins látna
Hinrik Jónsson ættaður frá Leirá
í Borgarfirði, býr í Selkirk og
hefir gert lengi; þar var og
hinn látni fæddur. Móðir hans,
Guðrún Einarsdóttir, dó 1932;
var hún frá Varmalæk á íslandi.
Bræður hins látna eru 3 á lífi:
Jón og Runólfur í Selkirk og
Victor í Winnipeg.
Ben Hendrickson var 48 ára
að aldri, mesti myndar og hag-
Ieiksmaður. Hann hafði unnið
27 ár sem vélstjóri hjá C. N. R.
félaginu og fórst það starf, sem
annað er hann gerði prýðilega
úr hendi.
Útförin fer fram frá útfarar-
stofu A, s. Bardal 13. júlí, kl.
1.30 e. h. Grafið verður í ís-
lenzka grafreitnum í Selkirk.
* * *
Bréf
Stephans G. Stephanssonar,
fyrsta bindi, er nú komið vest-
ur. Er bókin til sölu hjá Mag-
núsi Peterssyni bóksala, 313
Horace St„ Norwood, Man„ og
hjá dr. R. Péturssyni á skrif-
stofu Heimskringlu. Verðið er
$1.75. Ágætari og verðmætari
bók er ekki hægt að hugsa sér,
en þessa. Skrifið sem fyrst eft-
ir henni.
SARGENT TAXI
SIMI 34 535 or 34 557
724 >/2 Sargent Ave.
Jón Kristjánsson frá Lundar,
Man„ kom til bæjarins fyrir
helgina. Hann kom með syni
sínum, Theodore Kristjánssyni,
sem heima á í Lethbrid^e, Alta.,
og konu hans og þrem börnum,
er heimsóttu hann til Lundar.
F'ylgdi Jón þeim hingað áleiðis
heim aftur. Mr. Theodore Krist-
jánsson og fjölskylda hans
bregða sér suður til Chicago áður
en þau halda vestur.
* *. <•
Þeir sem unnu silfur bikarinn,
skjöldinn og glímubeltið á ís-
lendingadeginum að Gimli árið
sem leið, eru vinsamlega beðnir
að koma bikarnum, skildinum
og beltinu hið allra fyrsta til
Thorlakson og Baldwin að 699
Sargent Ave„ Winnipeg.
* * *
útiskemtun (picnic) stúkn-
anna Heklu og Skuldar verður
haldið sunnudaginn 16. júlí á
leikvelli Baseball klúbbs stúk-
unnar Skuldar á Notre Dame
Ave og Wall St„ beint norður af
Sargent Park. — Allskonar
skemtanir, svo sem ræður og
íþróttir fara þar fram. Allir vel
komnir. Picnic þetta er svo auð-
velt að sækja, að allir Good-
templarar og vinir þeirra ættu
þangað að koma.
* * *
Leiðrétting
í lokagrein minni “Sitthvað úr
langferð”, í Hkr. 5. júlí, stend-
ur: “En af Þorsteini bróður
Leifs hefna, er engin stytta til”
Á að vera: “En af Þorvaldi —’
0. s. frv.
Winnipeg, 10. júlí, 1939.
S. Thorkelsson
* * *
Séra K. K. ólafson flytur
fermingar guðsjþjónustur með
altarisgöngu sem fylgir, sunnu-
daginn 16. júlí:
Otto, kl. 11 f. h.
Lundar, kl. 2 e. h.
Að Lundar fer athöfnin fram
að nokkru leyti á ensku.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Rögnv. Pétursson
45 Home St. Winnipeg, Man.
Allir íslendingar í Ameríku
ættu að heyra til
Þjóðræknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis) ,
$1.00, sendist fjármálarit- |
ara Guðm. Levy, 251 Furby |
St„ Winnipeg, Man. j
PETERS0N BR0S.
ICE and WOOD
DEALERS
Box 46
GIMLI, Manitoba
Fulltrúi ungmenna í stjórnar-
nefnd hins Sameinaða Kirkjufé-
lags er Helga Reykdal en ekki
Helga Borgfjörð eins og stóð i
síðasta blaði Hkr.
$ ý
íslendingar!
Þér sem eruð bók^menn og
bókavinir! Munið eftir því, að
þér aukið þægindi yðar, og
prýðið alt í kring um yður, með
því, að láta binda og gylla bækur
yðar. Þá þurfið þér ekki annað,
en að renna augunum yfir kjöl-
inn á bókunum, til þess að finna
bókina, sem þér þurfið á að
halda. Sendið því bækur yðar,
sem fyrst, í band eða viðgerð,
til Davíðs Björnssonar að
“Heimskringlu”. — Stafirnir
þryktir í gull eða silfur á kjöl-
inn, eftir því sem óskað er. —
Miklu efni úr að velja í mörgum
litum. Verkið vel af hendi leyst.
MESSUR og FUNDIR
I kirkju SambandssafnaBar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funölr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu
Söngæfingar: IslenzHi söng-
flokkurinn á hverjú fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÓDÝR ELDIYIÐUR
FYRIR SUMARIÐ
Þurt Slabs og Edgings
$4.00 corðið, $2.50 hálft cord
Skjót, hrein uppkveikja
5 kassar $1.00
Kassaafsaganir
$1.50 hálft cord, $2.50 corðið
THORÉELSSON’S ltd.
License 3 Sími 21 811
HITT OG ÞETTA
Séra K. K. Olafson flytur
erindi í Argylebygð um efnið
“Fyrirhugað samband kirkjufé-
lagsins við “United, Lutheran
Church in Amguca,” sem fylg-
ir:
Glenboro, miðvikudaginn 19.
júlí kl. 9 e. h.
Baldur, fimtudaginn 20. júlí
kl. 9 e. h.
Brú, föstudaginn 21. júlí, kl.
8.30 e. h.
P'ólk er beðið að fjölmenna.
Því gefst tækifæri að bera upp
spurningar og gera athugasemd-
ir.
* * *
fslendingadagur í Seattle
Seattle-íslendingar efna til ís-
lendingadagshalds við Silver
Lake, sunnudaginn 6. ágúst
1939. Er það tólfti íslendinga-
dagurinn þeirra á þessum stað.
Einar Páll Jónsson ritstjóri
Lögbergs, heimsækir Stranda-
búa á þessu sumri í fyrsta sinni.
Telur nefndin hann fyrstan á
blaði af þeim er skemta, ásamt
mörgu góðu hljómleika- og söng-
fólki.
fslendingadagurinn hefir
hepnast Ijómandi vel undanfarin
ár í Seattle, og er fylsta von
um að hann verði það eigi síður
í ár en áðuK
* * * .
Útiskemtun (Picnic) stúkn-
anna Heklu og Skuldar verður
haldið 16. júlí á leikvelli Base-
ball klúbbs stúkunnar Skuldar á
Notre Dame Ave„ beint norður
af Sargent Park. Þangað er ætl-
ast til að allir verði komnir kl.
2 e. h. Fer þar fram skemti-
skrá og sport eins og að undari-
förnu. Allir velkomnir.
Stærsti almennigsbíll heims-
ins er í Þýzkalandi, smíðaður í
Ulm. í bíl þessum eru sæti fyrir
120 farþega. Bíllin er 20 metrar
á lengd og vélin hefir 150 hest-
öfl.
* * *
Faðirinn opnar útidyrnar og
sér^dóttur sína grátandi á tropp-
unum.
— Hvað er að þér, góða mín?
— Maðurinn minn er vondur
við mig og nú vil eg flytja heim
til mömmu.
— Þú kemur of seint, barnið
mitt. Mamma þín er farin til
ömmu.
* * *
Dóróthea litla kvartaði undan
því morgun einn, að hún hefði
verk í maganum. “Það er vegna
þess að maginn er tómur,” sagði
móðir hennar. “Láttu eitthvað
í hann cs vittu til þvert þér
batnar ekki”.
Næst þegar Dórothea var í
spurningum hjá prestinum á-
samt stallsystkinum sínum,
kvartaði prestur sáran um höf-
uðverk. “Það er vegna þess að
höfuðið er tómt,” sagði telpan.
Viljið þér ekki reyna að láta
ofurlítið í það og sjá svo til,
hvort yður batnar þá ekki?”
VIÐ KVIÐSLITI?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stal og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
RÆÐA THOR THORS
f Frh. frá 5. bls.
ur nú fært að tala hvert um álf-
ur, sem við óskum; við tölum nú
jafn auðveldlega við Rómaborg
og Akureyri.
Við vitum að skáldið hefir rétt
fyrir sér er hann segir:
“Land mitt, þú ert sem órættur
draumnr, — óráðin gáta fyrir-
heit.”
Auðæfi íslands eru enn lítt
rannsökuð en nú erum við að
hefjast handa með öflugar vís-
indalegar rannsóknir innlendra
manna á ágætum lands og lagar.
Að lokum aðeins þetta: Við
heima óskum aukins sambands
og samstarfs við ykkur — hérna
handan við hafið. Við vitum að
segja má um hvern Vestur-ís-
lending: Þú ert vinur vorrar
gömlu móður. — Vinátta ykkar
hefir svo oftsinnis og glæsilega
komið fram. Þáttaka ykkar í
stofnun Eimskipafél. var fögur
sönnun þess hversu miklu sam-
starf okkar allra getur áorkað.
! Eg veit að ykkur er mikill vandí
á höndum að vernda hér í mann-
hafi hinnar miklu álfu, þjóð-
menningu ykkar og tunguna,
sem verið hefir okkur öllum guð-
leg móðir. Hvern þann skerf
sem við heima á Fróni, gætum
lagt ykkur í baráttunni, í hugs-
un og athöfn, viljum við af heil-
um huga af hendi inna. — Við
erum allir börn sömu móður,
fjallkonunnar glæstu og tignar-
legu, og henni viljum við öll
þjóna og heita því að vera altaf,
hvert sem við förum og hvar
sem við í fylking stöndum, sann-
ir íslendingar.
Það er stundum dapurlegt út-
lit heima á gamla landinu, því
að allir vita hversu við erum
háðir árferði og gjafmildi nátt-
úrunnar til lands og sjávar, en
íslands hamingju hefir ætíð orð-
ið eitthvað að láni, og við sjáum
og vitum að:
“Árdegið kallar, áfram liggja
sporin,
enn er ei vorri framtíð stakkur
skorinn.”
Þakka ykkur öllum og árna
árs og friðar.
With Shampoo
& Finger Wave
Complete
AMAZING VALUE
--Greatest Advertising Offer Ever Made_
A GUARANTEED SCIENTIFIC PUSH UP
Permanent
WAVE V5 ______________________
Xhls Offer Is IVIade by the Sclentlfic as an Advertislng Speciai.
Never Before Such Values. Beautifui, Lftsting, Permanent Waves.
Phone 24 862
SCIENTIFIC BEAUTY CULTURE
612 Power Bldg., Portage Ave. & Vaughan St., Winnipeg
Winnipeg’s Largest, Most Reiiabie, Best Equippcd Beauty Salon