Heimskringla - 02.08.1939, Síða 1

Heimskringla - 02.08.1939, Síða 1
Phone 96 361 ^ Country Club r V BEER “famous for flavor” PELISSIERS Country Club Beer Phone 96 361 LIII. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 2. ÁGÚST 1939 NÚMER 44. ÍSLENDINGADAGURINN I WINNIPEG FIMTIU ÁRA HELZTU FRETTIR Frá Iðavelli Stjórnarnefnd íslendingadags- ins á Hnausum biður þess getið, að gestirnir sem hér eru staddir vestra frá íslandi, þeir Árni Q. Eylands og Vilhjálmur Þór, muni báöir verða á íslendnigadeginum á Iðavelli og ávarpa Vestur-ís- lendinga. Hr. Eylands er nú kom- inn og að hann verði á hátíðinni á Iðaevlli er því víst. Hr. Þór er ekki enn kominn, en hann er væntanlegur í vikulokin til Win- nipeg. Verði hann kominn norður fyrir hátíðina verður hann einnig á Iðavelli. Blaðið er ennfremur beðið að geta þess eða ítreka, að hljóð- nemi verði nú við ræðustólinn á Iðavelli, svo engin hætta sé á, að ekki heyrist til ræðumanna. Til hátíðarinnar á Iðavelli hef- ir því verið einkar vel vandað. Ummæli La Guardia Þegar Fiorello Henry La Guardia, borgarstjóri í New York, ávarpaði íslenzku sýning- ardeildina, 17. júní, komst hann svo að orði, að hann ætti að skila kveðju frá stærstu borg heimsins til merkustu þjóðar- innar í heimi. Það má ekki minna vera en að ummæli þessi séu þökkuð af íslendingum, ekki sízt þar sem í hlut á einn af fremstu borgurum mestu menn- ingarþjóðarinnar í heimi. Orð hans eru þung á metum og ís- lendingum mikilsverð. Tvær.íslenzkar konur stofna verzlunarskóla í Winnipeg Mjög bráðlega tekur nýr verzl- unarskóli til starfa í Winnipeg, undir stjórn tveggja íslenzkra kvenna. Heita konurnar ungfrú Lóa Eyrikson og Mrs. Lilja Björnsson og eru þær systur. Hin fyrnefnda hefir um 12 ár kent á Success-verzlunarskólan- um. Mrs. Björnsson er útskrif- uð af verzlunraskóla og hefir einnig mikla æfingu við kenslu. Þær eru dætur Sigurjóns Ey- riksonar og Kristrúnar Þorkels- dóttur, er búið hafa bæði í Wyn- yard og Dakota hér vestra, en eru skagfirsk að ætt. Skóla sinn nefna systurnar Winnipeg Commercial School og heimili hans verður í Room 203 Sterling Securities Bldg., á Por- tage Ave., á móti Hudson’s Bay búðinni, eða all nærri því. Þetta mun vera eini íslenzki verzlunarskólinn, sem stofnaður hefir verið hér vestra. óskar Heimskringla honum til lukku og hún vonar, að starfsviðum íslendinga fjölgi, en fækki ekki, hér vestra. Yestur-íslending boðið til Islands Morgunblaðið hefir frétt að Gunnar B. Björnsson ritstjóra í Minnesota, hafi verið boðið að koma hingað út til íslands á veg- um ríkisstjórnarinnar í sumar, en að ekki hafi getað af því orð- ið, að hann þæði boðið. Var honum sent heimboðið fyrir rúmum mánuði og svaraði hann með skeyti að hann gæti ekki komið vegna þess að hann ætti að taka við starfi 1. júlí fyrir Bandaríkja stjórnina. Mun því enginn Vestur-íslend- ingur kpma hingað í sumar í boði ísl. ríkisstjórnarinnar. f fyrra kom hingað, eins og kunnugt er, Guttormur J. Gutt- ormsson skáld og dvaldi hér fram eftir sumri. Ráðgert er að reyna að bjóða einum Vestur- íslendingi hingað ár hvert, og er veitt til þess fé á fjárlögum. —Mbl. 13. júlí. Sem enginn þekti fyr. Hún óttast hvorki guð né Glám En glaðan siglir byr. Á bráút með henni barnið fer Af boðum hennar heillað er. Hún nær þess hjarta trausti og trú Er trumbu sína ber. Og áttræða það yngir frú Ef Eaton’s-bók hún sér. Á þingum hana ei þrýtur róm. —Hún þolir engan leyndardóm. Hún hossar þeim sem hossar sér Og honum réttir blóm, ,Og oftast best af öllum ver Hans auða sálar tóm. Hinn dularfulla djúpa frið, Sem draumum mannslífs heldur við Hún blygðast sín að bera á torg Um brautargengis hlið. Hún yfirlætis byggir borg En brestur innsýnið. Með skjallinu hún skautar sér Og skrumið hennar hugsjón er. Með leifturhraða um lönd og höf Hún lof og smjaður ber. Sú helstefnunnar hefndargjöf Til himins aldrei fer. J. S. frá Kaldbak Gefin voru saman í hjónaband 27. júlí Mrs. Thóra Ingibjörg Thorne frá Vancouver og Sigfús Pálsson frá Winnipeg. Hjóna- vígslan fór fram á heimili Jóns Jóhannssonar á Lundar, að við- stöddum nánustu vinum. Séra G. Árnason gifti. Framtíðar- heimilið verður í Vancouver. SETTUR FYRSTI VEST- MANNADAGUR Á ISLANDI Eftir Sigfús Halldórs frá Höfnum AUGLÝSING 20. ALDARINNAR Hún þýtur eins og þruma í kring Sú þúsundanna auglýsing. Hún rekur nefið on-í alt Um allan heimsins hring. Hún malar gull og malt og salt Og menn í sama bing. Hún kemur inn um allar dyr Og ekki neinn um leyfi spyr. Hún lykla á að öllum skrám, Árni Eggertsson, K.C., og fað- ir hans, Árni Eggertsson fast- eignasali, Sveinn Thorvaldson, M.B.E., frá Riverton og Thórður kaupm. Thórðarson frá Gimii, komu um miðja s. 1. viku heim sunnan frá New York; þeir voru að heimsækja sýninguna. Af ís- lenzku sýningunni létu þeir hið bezta. * * * Dr. Lárus Sigurðsson er ný- kominn heim úr ferð til sýning- arinnar í New York. Hann var mjög hrifinn af íslenzku sýning- ardeildinni. Eg býð alla velkomna, sem hér eru staddir. Eg býð velkomna fulltrúa æðstu stofnana þessa lands, and- legra og veraldlegra. Eg býð velkomnar þær tignu konur, sem hér ganga brátt til sætis, og sem með hérvist sinni í dag tákna oss þrjú af þeim fjórum löndum, sem alið hafa og líka leitt til moldar flestar manneskjur af ís- lenzku bergi brotnar. Eg býð" velkomna gesti og starfsmenri. Eg veit, að vér erum hér saman komin í þökk allra góðra vætta. Frá fyrsta Vestmannadeginum á Þingvöllum f dag er fulltrúi frá íslandi á 50. íslendingadegi* í Canada, að Gimli, þeim helga stað, þar sem íslendingar námu fyrst land í Manitobafylki. í tilefni af þeirri hátíð hefir þangað verið sent skeyti, er svo hljóðar í íslenzkri þýðingu: “Fyrsti Vestmannadagur á ís- landi sendir innilegar kveðjur og hamingjuóskir öllum saman komnum að Gimli, og öllum ís- lendingum handan við haf, á fimtugasta íslendingadegi í Can- ada.” # f dag höldum vér fyrsta Vest- mannadag á fslandi, að Þing- völlum, þeim helga stað, sem valinn var af guði og mönnum til þess að verða þingstaður þjóðarinnar, í 9 aldir í rauninni, en í hugum vorum æfinlega. Að þessi dagur er haldinn hér og á þann hátt, sem raun ber nú vitni um, stafar af því, í sem styztu máli sagt, að í stað sársaukans yfir sifjaslitunum við Vestur- farana er nú komin fró við skiln- inginn á því, að hinir verðandi Vestur-fslendingar lifðu sannar- lega þótt þeir dæju, að því leyti, sem við kom sambandinu við oss hér heima, og að það líf muni verða eilíft, miðað við beggja til- veru. Að sinni er nóg að drepa aðeins á þetta, því að skilningur þessa sannleika mun greinilega verða ljós af orðum þeirra, er hér taka til máls á eftir mér í dag. Þessi fyrsti Vestmannadagur hefir þegar tileinkað sér fagurt Fjallkonan á Gimli Sigurborg Davidson Myndin hér að ofan er af Miss Sigurborgu (Lóu) Davidson, er verður Fjallkonan á fimtíu ára afmælishátíð íslendingadagsins, er haldin verður 7. ágúst n. k. á Gimli. MISS CANADA Miss Ameríka (Kristjana Pétursdóttir), Fjallkonan (Vigdís Steingrímsdóttir forsætisráð- herrafrú) og Miss Canada (Gerður Jónasdóttir) * Hér mun átt við erindi Thor Thors alþm., það er flutt var 4. júlí á Gimli á samkomu hans þar, en ekki á íslendinga- deginum, sem ekki verður hald- inn fyr en 7. ágúst. Ritstj. Hkr. Evelyn Torfason Á fslendingadeginum á Gimli ágúst, verður stúlka sú er mynd þessi er af Miss Canada. Nafn stúlkunnar er Miss Evelyn Torfason og á heima á Gimli. MISS AMERÍKA Guðrún A. fsfeld Á fslendingadagshátíðinni 7. ág. á Gimli hefir Miss Guðrún Anna ísfeld hlutverkið: Miss Ameríka. Hún er frá Garðar, N. Dak. kvæði og söng. Honum hefir einnig verið skapað sérstakt merki, og undir því merki mun hann sigra. Vestmannamerkið er, eins og þér sjáið, hlekkja- hringur um tengdar hendur. Eg veit ekki hvort hin unga lista- kona, sem markið gerði, hefir nokkurn tíma heyrt tilvitnunina um “hands across the sea”. En hvað, sem um það er, þá er það góður fyrirboði, að hún hefir fest þessa hugmynd: hendurn- ar, sem mætast um haf, í þá umgerð, að mér þykir ekki lík- legt að mönnum hugkvæmist í bráð umbót ál þessu látlausa tákni sambandsins milli vor og Vestur-íslendinga. Sá trausti hlekkjahringur, sem í merkinu lykur um handaband vort um haf, er eins og giftingarhring- urinn: hann er endalaust tákn órjúfandi sambands. Megi þá þessi fyrsti Vest- mannadagur verða öflugur hlekkur þess trygðahrings, sem um alla framtíð — að svo miklu leyti, sem mannlegur skilningur fær greint það hugtak — tengi hugi og hendur um hið mikla haf, sem oss skilur, á íslandi, frá ættmönnum vorum í Vestur- heimi. Að svo mæltu lýsi eg settan fyrsta Vestmannadag á fslandi.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.